Heimskringla - 21.07.1926, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 21. JÚLÍ 1926.
HEIMSKRINGLA
6. RLAÐStÐA,
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
KAU PIÐ A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Birgðir: Henry Ave. East. Phone A 6356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
notaleg tilhugsun, ofan á alt anna8,
þegar maður á a8 fara a8 pæla vi8
ritstörfin, aö hugsa til þess, aö frá
7. júlí þessa árs og til 30. septem-
ber n. k., situr Finnbogi Hjálmars-
son Tjörnesingur, úti í Winnipegosis,
meö Argusaraugu og -Damðklesar-
sveríS á bláþræði yfir höföi manns,
reiöubúinn aö láta þaö falla viö
minsta hortitt!
Þaö hefir meiri mönnum en mér
fatast viö slíka tilhugsun.
Vertu nú blessaöur og sæll. Við
sjáumst máske síðar?
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Söngstarfið.
Vill háttvirtur ritstjóri Heims-
kringlu gera svo vel aö ljá eftir-
fylgjandi línum rúm í sínu heiðr^ða
blaöi?
I Lögbergi og Heimskringlu er
komu út 2. og 3. júní síðastl. er grein
“Söngstarf og þjóðrækni”, rituð af
söngfræðiijgi og tónlistarmanninum,
hr. S. K. Hall, sem meg réttu er við-
urkendur einn með allra frægustu
tónlistarmönnum meðal Vestur-Is-
lendinga. Greinin er sannarlega orð
í tíma talað, af manni, sem veit, um
'hvag hann talar og hvað helzt má
verða málinu að liði. Eg varð glað
ur að lesa þessa grein, sem hvorki
er rituð af fordiy né yfirlæti, held-
ur af viti og þekkingu með góð-
vilja; ættu því allir Vestur-Islend-
ingar að veita orðum þessa mæta
manns áheyrn og eftirtekt. Sönglist-
in er ein hin fegursta list, sem æfð
er og brúkuð, og sem framar flestu
öðru lyftir mannsandanum hærra og
hærra til hásala alheimsstjórnarans.
En til þess að listin geti orðig gagn-
tæk og borið blessunarrika ávexti,
þarf hún að verða eign fjöldans, og
þag sem fyrst. Og víst er um það,
að meðal unga fólksins íslenzka hér
vestan hafs, er fjöldi af sönghæfum
röddum, ef þær fengju nauðsynlega
tamningu og æfingu. Nú hefir Þjóð-
ræ*knisfélagið tekið þetta mál að sér
sem þjóðræknisstarf; á því er heldur
enginn vafi, ag sönglistin getur ver-
ið einn sterkur þáttur í viðhaldi þjóð-
ernis Vestur-Islendinga. Vænta má |
og að stjórn Þjóðræknisfélagsins |
beiti sér fyrir þetta mál með allri al-;
úð, en alþýðan verður þá líka að!
taka opnum örmum þessu göfuga!
þjóðþrifamáli, sem öllum getur orðið i
til ánægju, gagns og sóma.. — Hinn'
heiðraði greinarhöfundur, hr. S. K. |
Hall, bendir á heppilega úrlausn
þessa máls, sem virðist vera sú hag-
nýtasta og vel framkvæmanleg. Hr.
Brynjólfur Þorláksson hefir þegar
gefig þá raun af sér, að hann er
söngstarfinu vej vaxinn. Eftir orð-
rómi þeim, sem yfir fer, er hann á-
gætur söngstjóri, með afbrigðum
góður leiðtogi barna og unglinga, en
á því liggur nú hvað mest. . Eg þori
að staðhæfa, ag söngkensla út um
sveitirnar með góðum leiðtoga, myndi
bera stórum meiri og varanlegri á-
vöxt í hugum yngri kynslóðarinnar,
en háfleygir og fræðandi fyrirlestrar
lærðra manna, þar á er engin liking.
Sönglistin grípur á öllum beztu og
fínustu tilfinningum unglinganna, og
færir þá in i paradis sæluríkra
nautna og* unaðar.
Eg get nú búist við, að sumir segi,
að þetta kosti fé mikið og fyrirhöfn;
það er rétt, eg skal játa það; en. ó-
viðráðanlegur er sá kostnaður ekki;
Þjóðræknisfélagið myndi taka hlut
í honum að góðum mun til móts við
sveitirnar, sem að sjálfsögðu myndu
geta borið sinn hluta; enda mætti
létta undir með fleiru; en svo er ekki
ósanngjarnt að hugsa, að þeir sem
búnir eru að lifa hér 5 þessu blessaða
landi 40—50 ár, séu þess umkomnir
ag lyfta, ekki þyngra hlassi, ef fé-
lagsskap og bróðurlega sartíúð vant-
ar ekki. Þjóðræknisfélagið hefir nú
starfað um meira en sex ár, og hefir
átt góða forvígismenn, en það virðist
hafa átt við ramman reip að draga.
Vestur-Islendingar virðast ekki hafa
gert sér vel ljóst, aif þetta félag —
Þjóðræknisfélagið — er stærsta og
veigamesta félagið þeirra, og það er
hornsteinn hvers annars góðs fé-
lagsskapar meðal þeirra. Að and-
æfa Þjóðræknisfélaginu og lítilsvirða
það, er heimska, sem meinar það að
týna sjálfum sér.
9.—7.-26.
Jónas J. Húnford.
SIGLINGAR.
Scandinavian American Line.
Símfregn frá Oslo segir að e.s.
Frederik VIII hafi farið frá Oslo
þann 16. þ. m. með yfir 500 far-
þega. Búist er við að hann lendi
i Halifax næstkomandi sunnudag og
sigli þaðan aftur 3. ágúst n.k.
Varnagli.
Oft reynist það þannig, að þegar
einn lastar annan, er sá sízt gull frem
ur en hinn er grjót.
Glappaskotin lík og komu fyrir
Nóa gamla, "ganga svo til enn. —
Eg rak augun í feita fyrirsögn, á
einni siðu Lögbergs, sem út kom j
þann 15. júlí síðastliðinn. Fyrirsögnl
in er: “Páskasólin hans Fúsa,f..
Ef til vill á þessi grein að skiljast!
sem nokkurskonar ritdómur um ljóð
það, er hr. S. B. Benedictsson hefir i
ort. En fremur skilst manni, að það
sé verulegur fúlmenskusamsetning-
ur, eða þá gorvæl úr barka oflát-
ungs.
Maður hlýtur nú að snúa máli sínu
beint til ritstjóra Lögbergs. Það
er fásinnu næst og enda fyrirlitlegt
skeytingarleysi af honum, og væri
enda af hvaða ritstjóra sem er, að
láta glæpast til þess að láta prenta
slíkan og annan eins ósóma, auð-
sjáanlega Sprottinn af lægstu hvötum
mannshjartans, illgirninni og óvild-
inni í garð*meðbræðra sinna. Slík
ritstjórn er blátt áfram óal^ndi og
óverjandi, því fyr getur nú kallast
ritfrelsi, en að menn séu þannig
rifnir á hol. 'Slíkur maður, sem
haldið hefir á penna við áminsta
grein, virðist tæplega eiga sæti á hin-
um óæðra bekk meðbræðra sinna, og
því síður eiga skilinn rétt til þess
að svívirða þá þannig í opinberu blaði
fvrir engar sakir. Það er eins og rit
Islendingadagur
að Lundar
5. ágúst 1926
ÍSLENZKAR GLÍMUR — KAÐALDRÁTTUR — ALLS-
KONAR ÍÞRÓTTIR — BARNASÝNING.
PAUL REYKDAL, íþróttastjóri.
I
Margir ræðumenn — þar á meðal:
SÍRA JÓNAS A. SIGURÐSSON.
SIRA H. J. LE<X
SIRA ALBEftT E. KRISTJÁNSSON.
Söngflokkur æfður af V. Guttormssyni.
VEITINGAR DANS AÐ KVÖLDINU
stjórinn hefði aðeins birt kvæðið
til þess að fá tækifæri til þess að
láta svívirða höfundinn. Það er
annars ilt til þess að vita, að menn
skuli misbrúka svo hörmulega gáfur
sínar, eins og gert er í þessu grein-
arfargani eftir J. Einarsson.
Maður sér nú hvernig að gamall
kunningi minn tekur á móti hinni ó-
hýru sendingu, og er líklega réttmætt
að hann eigi kost á að fá orðið i
öðruhvoru blaðinu. En ritstjórar
ættu að stöðva slíka óþarfa keskni,
orðaflóð og erjur í tima. Það er
nóg, sem nóg er, af sundrung meða)
vor Vestur-Islendinga, þótt ekki séu
gefin ný tækifæri til slíks, með á-
stæðulausri og heimskulegri ill-
kvitni.
Skýrir og skorinorðir ritdómar
eiga sjálfsagt sæti í blöðum, en burt
með alt slíkt nagg, sem þeim berst
frá nöldrunarseggjum aðeins.
Quill Lake, Saskatchewan,
17. júlí 1926.
August Frímannsson.
Hveitisamlagið.
Samlögin í Astralíu þinga.
Sambandsþing hveitisamíaganna í
Astralíu var haldið síðustu vikuna
í maí, og er sagt að það hafi verið
eitt af þeim allra. merkilegustu, sem
haldið hefir verið þar í landi. Eitt j
af aðalmálunum voru umræður og
skýrslur frá alþjóðaþinginu, sem
haldið var í St. Paul, Minn., í febrú-
ar s. .1, sem lagðar voru fram af
þeim fulltrúum, sem þar mættu fra
Astralíu.
Rætt var um, hvort mögulegt væri
að sameina söluna til útlanda með
því að stofna eina aðalsöludeild fyrir
alt landið, líkt og hér er, en vegna
hinna miklu mismuna á flutnings-
gjaldi og flokkunaraðferða, var það
ekki álitið heppilegt. Akvarðanir
voru samt teknar um að samlögin
skyldu standa í nánara sambandi
hvert vig annað en verið hefði.
Föst nefnd var skipuð einum full-
trúa frá hverju ríki, sem á að fjalla
um öll sameiginleg mál. Einnig var
Islendingadagur
Vatnabygdar
að Wynyard 2. ágúst
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ.
MINNI ÍSLANDS:
Ræða..................Sig. Júl. Jóhannesson
Kvæði..................Jónas A. Sigurðsson
MINNI CANADA:
'Ræða...................Björn Hjálmarsson
Kvæði................Sig. Júl. Jóhannesson
Kór 200 ungmenna undir stjórn hr. Brynjólfs Þorláks-
sonar, skemtir með söng um daginn.
Fegurðarglímu sýna nokkur æfð ungmenni.
ALMENN KAPPGLÍMA:
1. verðlaun $15.00; önnur verðlaun $7.00
Allskonar íþróttir, svo sem hlaup, stökk o. s. frv.
verðlaun gefin.
Þátttakendur í glímunni gefi sig fram við nefndina áður
en dagskráin byrjar.
FJÖLMENNIÐ TIL WYNYARD 2. ÁGÚST!
rætt um nauðsyn á að koma grund-
vallarlögum allra samlaganna í sama
form, en sökum þess, hve mismunandi
ríkjalögin eru, var ekki hægt áð hafa
neinar aðgerðir í því, sem stendur.
Verður það gert svo fljótt sem mögu
legt er.
Akvarðanir voru teknar um að
skifzt yrði á við samlögin í Canada
á uppskeruskýrslum. Miðnefndinni
! var falið að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir viðvíkjandi heimsókn full-
trúanna frá canadiska samlaginu í
ágúst næstk. Skýrsla fulltrúanna,
sem mættu á alþjóðaþinginu, lagði
mikla áherzlu á, hve ágætt sölufyrir-
komulag canadisku samlaganna væri,
og sýndi þingið allan vilja á að taka
það upp.
Þingið var haldið í Perth í Vestur-
Astralíu, og var ákveðið að halda
það næsta í Sidney, New South
Wales.
Stjórnarnefnd Hveitisamlagsins í
Canada hefir tilnefnt H. W. Wood,
G. W. Robertson og C. H. Burnell,
til að fara til Astralíu, í sambandi við
boð hveitisamlaganna þar. Mr. J. W.
Jackman fer til Argentínu, til að gera
ráðstafanir til að fá ábyggilegar fram-
leiðsluskýrslur þaðan, og athuga hvern
ig samvinnuhreyfingunni vegni þar.
¥ * *
Lesendum stendur til boða að senda
spurningar viðvíkjandi samlaginu tit
blaðsins, og verður þeim svarað í
þessum dálk.
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*
♦*♦
I
OH
«»()•«»()«»()«■ p
Horse
Races
RIVERPARK
$2,200 fjársjóður
Pari Mutuel aðferðin viðhöfð.
F. HAMMER, Manager
Kappreiðar þessar fara fram í sámbandi við Field Day
Sports, lögreglunnar í Winnipeg (Police A. A. A.)
31. júlí. Hefst kl. 10 fyrir hádegi.
\
Islendingadagshátíðin
verður einnig haldin í
River Park 2. ág. n.k. j
i
►<o
t
t
t
t
t
t
t
t
t
V
t
t
t
t
Y
t
♦♦♦
t
♦:♦
Velmegun
Getur fengist
aðeins með
M e n t u n
Samtökum
Samvinnu
Takið pláss yðar
í SAMLAGINU.
Manitoba
Wheat Pool
Winnipeg,Man
Saskatchewan
Wheat Pool
Regina, Sask.
Alberta
Wheat Pool
Calgary, Alta.
t
t
t
t
r
t
t
t
t
t
t
♦:♦
t
t
:♦♦♦♦