Heimskringla - 02.03.1927, Síða 2
2. BLAÐSIÐA
IIEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 2. MARZ, 1927.
Á við og dreif.
....okkrir landsmálaþættir.
Eftir Einar H. Kvaran.
Um nokkurra ára skeið hefi eg
ekki látið til tnín taka, sem sérstak-
lega er nefnt landsmál. Ymislegt
her til þess, meðal annars það, að
hugurinn heíir verið fastara bundinn
við annað. Eg hefi lika fundið, að
mér veitti alltaf örðugra og örðugra
að eiga að fullu samleið með nokk-
urum flokkinum. Stundum hefi eg
verið að halda, að það stafaði að
einhverju leyti af því, að eg væri
að verða einrænni með aldrinum. En
ekki hefir sú skýring samt fullnægt
mér.
Fyrir hefir það komið, eins og að
likindijm ræður, að eg hefi rabbað
um sum af þessum málum við beztu
vini mína. Þeir hafa þá alloft sagt
við mig: “Hvers vegna segirðu þetta
ekki á prenti i" Eg hefi fundið að
það var . næðissamara og ábyrgðar-
minna að þegja. En niðri í djúpi
sálar minnar fann eg, að þögnin hafði
líka sína annmarka, úr þvi að um á—
kveðna sannfæring var að tefla.
Fyrir nokkru bar það á górna hjá
mér við ritstjóra “Varðar”, að eg
kynni að hafa tilhneiging til að láta
eitthvað uppi af af hugsunum nún.
um, þeim er kæmu landsmálum við.
Hann bauð mér tafarlaust rúm í blaði
sínu. Eg benti honum á, að þetta
væri töluverðum annmörkum bund-
ið. Eg yrði nokkuð rúmfrekur, ef
eg færi af stað á annað borð. Hitt
væri þó verra, að af mörgum mundi
verða litið svo á, sem greinir mínar
væru verra en einskis vlrði frá flokks
fylgis sjónarmiði. Eg ber ekki kala
til nokkurs stjórnmálamanns né nokk.
urs stjórnmálaflokksins; eg þykist
sjá, að allir hafi þeir nokkuð til síns
máls. Svo eg hefi enga löngun til
að vera jjieð nokkrar ýfingar í garð
nokkurs þeirra. En eg hefi enga á-
nægju af að vera að skrifa neitt nieð
hliðsjón á því, hvort það komi sér vel
fyrir einhvern flokkinn. Eg hefi ekki
ánægju af aS skrifa neitt annað en
það, sem er mín sannfæring og mér
finnst einherju rnáli skifta að sagt
sé.
Þess lét eg getið við ritstjórann,
og hann tók því ágætlega. Hiann
kvað mér heimilt rúm í “Verði’’,
hvað sem mig langaöi til að segja.
Svo góðvildarfulla gestrisni stóðst
eg ekki og lofaði nokkurum grein—
um,
I.
Fornöld vor og sigur róman—
tikurinnar.
Mig langar til þess að fara fram
á það við lesendur mína, að þeir
beini allra snöggvast íinyndunarafl.
inu i þá átt, sem margir þeirra hafa
sennilega aldrei stefnt í. Gerum ráð
fyrir, að vor biðu sömu örlög sem
þau, er vér áttum að sæta á niður—
lægingartímabili þjóðarinnar, — að
vér glötuðum sjálfstæði voru og yrð.
um undirlægjur annarar þjóðar, sem
beitti við oss hinu og öðru harðræði,
— að framtakssemi þjóðarinnar
hnignaði svo, að langflestir íslenzkir
menn yrðu að gersamlega févana
smælingjum, svo að mjög mafgir
þeirra kæmust á vergang, ef eitthvað
bæri út af, og talað yæri um að flytja
alla þjóðina á eitthvert óbyggt svæði
sem þurfamenn — og að andlegu at-
gervi þjóðarinnar virtist hnigna að
sama skapi sem efnalegri velgengni
hennar.
Gerum ennfremur ráð fyrir, að
þetta henti oss innan einhvers til—
tölulega skamms tíma, og að svo risu
einhverntíma síðar upp einhverjir
mikilhæfir viðreisnar— og endurvakn
ingamenn. Hugsum oss, að þessir
menn höguðu sér eitthvað líkt og
mennirnir, sem unnu samskonar verk
fyrir oss á 19. öldinni, og leituðu í
sögu þjóðarinnar til þess að lyfta
henni upp. Og þá verður sú spurn—
ing fyrir oss:
Hvert mundu þeir leita?
Hver atriði úr sögu þjóðarinnar
mundu þeir telja liklegust til þess
að hrífa hugi hennar og knýja hana
fram til nýrrar manndáðar og at—
orku ?
Eg geri ráð fyrir. að sú niðurstaða
sem eg hefi komist að í því efni,
muni valda hneyksli hjá einhverj—
um og verði talin nokkurskonar goð—
gá. Það virðist svo erfitt að ræða
sum mál við þá menn, sem láta til—
finningarnar og hleypidómana fergja
skynsemina.
Sennilegt er, að eftirkomendurnir
mundu bera saman fornöld vora og
þessa tíma, sem vér lifum á, segjutn
síðan 1874. Onnur tímabil koma
tæplega til greina.
Þeir mundu að sjálfsögðu koma
auga á það, að lslendingar á 10., 11.,
12. og 13. öldinni hefðu haft mikið
til síns ágætis. Ekki mundi það
leyna sér fyrir þeini, að margir
þeirra hefðu verið ljóngáfaðir menn.
þeir sæju það, að nokkurir þeirra
hefðu skilið eftir bækur — ekki marg
ar, en nokkurar — sem eru ódauð-
legar í sinni grein . Þeir mundu sjá
það, að þessar bækur væru ómetan—
legir fjársjóður, sumpart fyrir það,
hve þær varpa skæru skilningsljósi
yfir menn og málefni, sumpart, og
ekki síður, fyrir hitt, hve málið, sem
þessir fornhöfundar vorir rituðu, er
þrungið af viti og rökfestu, svo að
ef menn kynna sér það nokkuð vand-
lega, þá er það öflugasti varnargarð-
urinn gegn flóðbylgjum subbuskap—
arins og vanhyggjunnar. Þeir mundu
sömuleiðis sjá það, að ýmsir þeirra
•hefðu verið mjög mikils metnir í öðr
um löndum fyrir líkamlegt og and-
legt atgerfi, sem vaskleikamenn i
mannraunum, fræðimenn og skáld.
Þeir mundu eins og vér, sjá sérstak—
an Ijóma yfir þessu timabili. En
saman við þann ljóma mundi samt i
augum þeirra rlenna ískyggileg ó—
veðursblika.
Hvaðan koni óveðrið'?
Það kom ekki austan úr Noregi,
eirs og menn virðast hafa gert
sér í hugarlund. Það kom ekki frá
drottnunargirni né ásælni nokkurs
útlends þjóðhöfðingja.
Hvaðan ætli það hafi komið nema
úr sálum mannanna sjálfra?
Það er ofbeldishugurinn. sem fór
með þá. Og því er nú ávalt svo
háttað, að þar sem ofbeldið er þunga
miðjan, þar verður litilmagninn létt—
ur á metunum.
Þegar vér athugum, hvað þjóðin
var lítil, þá ér það alveg óhemjulegt
hve mikið var um vigaferlin. Lík_
lega hafa þau verið tiltölulega tíð—
íri, en með nokkurri annari þjóð á
þeim timum.
Samt var þetta ekki ískyggilegast
né örlagaþrungnast. Viðsjálast af
ÖIlu var það, að sjálft skipulag þjóð—
arinnar var reist á ofbeldi. F.ngir
óhlutdrægir dómar fóru fram i land—
inu. Hve skýlaust sent það var, að
málstaðurinn væri réttur, þá var ekki
nokkur vegur að fá hann viðurkennd
an, nema málsaðili hefði liðstyrk til
þess, — meiri liðstyrk en sá, er fór
með rangt mál.
Enginn vandi er að sjá, hvernig
réttarfarinu hefir i rj^in og veru
verið háttað. Ef til vill kennir það
hvergi Ijósara fram en í Viga—Styrs
sögu og heiðarviga. Víga—Styr hælir
sér af því að hann hafi drepið 33
menn og engan þeirra bætt. Hann
er svo mikill höfðingi, hefir svo mik
inn frændafla og svo mikið magn á—
hangenda, að hann þarf enga ábyrgð
að bera á gerðum sínum.
Sagan hefir, því miður, að miklu
leyti glatast, svo sem kunnugt er. En
i sögu þeirri, sem Jón Grunnvikingur
ritaði eftir minni, standa meðal ann—
ars þessar línur:
“Nú vaxa svá metorð og yfirgang—
ur Styrs, að flestum stóð mikill ótti
af; þótt hann vægí menn, bætti hann
engu, og flestir urðu svo að láta sem
hann vildi, því engi fékkst réttur ýfir
honum; stóðu og margir rikir menn
at honum, vinir og mágar, svá at
fáir þorðu að veita honum nokkurar
tilgerðir.’’
Þessum óbótamanni virðist enginn
staður hafa hæft i þessum heimi ann
ar en gálginn. og enginn. staður i öðr
um heimi annar en eitthvert helviti.
Sennilega hefir fvlgið aukist eitt-
hvað við það að hann !ét reisa kirkju.
En að minnsta kosti hefir hann talið
sáluhjálp sinni óhættara fyrir þessa
kirkjubygging, þvi að klerkarnir
höfðu talið mönnum trú um, að þeir
sem kirkju létu gera, ættu ráð á að
kjósa svo marga menn til himnarik-
is, sem margir gætu staðið innan
kirkju þeirra. Geta má nærri, að
Styr hefir þá ekki hugsað sér, að
hann yrði sjálfur skilinn eftir fyrir
utan.
Þegar þessi höfðingi hefir hælt sér
af þvi, að hann hafi drepið þrjátiu
og þrjá menn, án þess að bæta þá a“S
neinu, eykur hann að minnsta kosti
einum við í hópinn. Hann drepur,
þá alsaklausan bónda, hinn vaskasta
mann, sem hafði sýnt honum gest—
risni. Hann gerir það ekki í neinni
bræði. Hann undirbýr athöfnina,
situr fyrir bóndanum með ofurefli
og drepur hann, fyrir það eitt, að
hann er að reyna að komast í aðra
sveit undan ofsóknum Styrs.
Farið er fram á það við Styr að i þá að verða svo gerólikur því, sem
tíma síðar í þessum greinum, hefi
eg ekki neina tröllatrú á því, að þær
hugmyndir verði til frambúðar.
En því siður get eg hugsað mér.
að eftirkomendur vorir geti látið sér
til hugar koma, að nota fornöld vora
til þess að lyfta þjóðinni upp. Eg
frá háskólanum niður í farskólana,
og skyldan, sem þjóðfélagið hefir
tekið á sig, að sjá ungmennum fyrir
fræðslu, eru sæmd þjóðar vorrar,
hvað sem menn segja. Allt er þetta
verk þessarar kynslóðar, að undan-
tekinni stofnun menntaskólans — og
kygg, að hugsunarhátturinn hljóti | hún líka í raun og veru. Sama
gera umkomulausum syni bóndans
einhverja sæmd í föðurbætur. Styr
lízt svo á piltinn, að hann sé ekki
líklegur til þess að hefna föður síns,
og hleður á han nsvívirðing. En.gar
horfur eru á því að neitt verði fyrir
þetta bætt. En pilturinn reynist ann—
an veg en Stvr hugði og vegur hann.
Til eru svo góðgjarnir og sanrígjarn
ir menn, að þeir skjóta piltinum und—
an og konia honum til útlanda. Fyr—
ir það drengskaparbragð drepur
mestur höfðingi Vesturlands, Snorri
goði Þorgrímsson, þá af þessum
mönnum, sem hann nær til. Og út úr
því halda manndrápin áfrani, svo
sem lesa má að Heiöarvigasögu.
Þau voru mörg meinin, sem þjáðu
hið forna skipulag vort. En sjálft
banameinið virðist hafa verið það,
að framkvæmdarvaldið vantaði með
ÖIIu. Forfeður vorir voru svo miklir
sjálfstæöismenn. að/þeir þoldu ekk—
ert óhlutdrægt dómsvald, og að þeir
gátu alls ekki unað neinum sameigin—
legu framkvæmdarvaldi . Maður, er
unnið hafði mál, var engu nær, ef
hann hafði ekki bolmagn sjálfur til
þess aö fá dóminum fullnægt. Og
svo fetigu þeir Sturlungaöldina og
sjálfstæðismissi þjóðarinnar.
Ekki mundi það dyljast eftirkom—
endum vorum, að ýmislegt hafi for—
feður vorir gert vel og farsællega.
Þeirra mesti heiður verður sennilega
sá, auk bókanna, að þeim tókst betur
en öðrum þjóðum að konia kristninni
á hjá sér. Fyrir þvi verður naum—
ast gerð önnur skynsanileg grein. en
að Ásatrúin hafi að mestu verið und
ir lok liðin í landinu. Svo stórbrotn—
ir málafylgjumenn, sem forfeður
voru voru, og svo fítið sem þeim var
um það gefið að láta sinn hlut. voru
þeir ekki liklegir til að láta bugast
af öðru eins spakntæli og því. að “ef
vér slitum lögin, þá slitum vér frið -
inn’’, eins og kristnisagan orðar þessi
ummæli. Þeir börðust sjálfir-'á
sjálfu Alþingi fáum árum síðar
friðarhugsunin fyllti ekki meira rúm
i hugum þeirra en betta.
Vér getum ekki hugsað oss ann—
aö, eftir því, hve snilldarlega for—
feðrum vorum tókst að fara með
þetta mál, en að þessir gáfuðu menn.
sem margir höfðu mikil kyntii af
öðrum löndum og hugsanastraumum
þar, hafi verið farnir að sjá það
mjög almennt, að Asatrúin samsvar—
aði ekki lengur hugsanalifi andlega
þroskaðra manna, og þess vegna hafi
j þeir látið skirast með svo litlum mót—
| þróa. Af sömu ástæðu hlýtur það
að vera, að heiðnu trúarbrögðin
virðast með öllu hafa verið Iiði«
undir lok í landinu eftir mjög stuttan
tima.
Kristnin gerir ómetanlegt gagn um
stund. En sá timi var þvi miður ekki
langur. A furðu stuttum tima er
kristnin ofðin svo„ að þaö skiftir ekki
miklu máli að drepa menn. Hitt er
aðalatriöið að ná prestsfundi, áður
en liflát fer fram fyrir manndrápin.
Mestur sigur, sem rómantíkin og
máttur snilldarinnar hefir unnið hér
á landi, er sá að koma inn í jafn—
skynsama þjóð og Islendinga gagn—
rýnislausri dýrkun á fornöld vorri.
Það er furðulegt meistaraverk, sem
Jónasi Hallgrínissyni tókst að vinna,
þegar hann fékk talið löndum sin—
um trú um, að forfeður vorir hafi
unað glaðir við sitt. En það er
mjög lítill sannleikur i þvi. Ofbeld—
ismennirnir, sem höfðu nægilegt bol—
magn til þess að þurfa ekki að læra
neina ábyrgð á gerðum sinum. kunna
að hafa gert það. Aðrir gerðu það
ekki.
Eg vona, að aldrei komi til þess, að
slika endurreisnarbaráttu þurfi að
hefja sem þá, er eg hefi verið að
gera ráð fyrir. Eg vona, að T'slend—
ingar sökkvi aldrei niður í eymdina,
þó að það hafi hent þá áður. Eg
ætla ekki heldur að spá neinu um
það, hverjar skipulagsmyndir múndu
vaka fyrir þessum endurreisnarmönn
um, ef þeir þyrftu einhverntima að
koina íil sögunnar. Ekki get eg
hugsað mér, að þær yrðu að öllu
leyti sömu hugmyndirnar, sem vaka
fyrir ráðandi flokkum í Iandinu nú.
Eins og koma mun fram einhvern—
hann var á söguöldinni, að mönnun-
um finnist örlítið þangað að sækja,
annað en snilldina á orðalaginu. Eg
ræð það meðal annars af því, að svo
er um oss nútíðar—Islendinga, sem
ekki höfum af einhverium ástæðum
horft svo fast á fornöldina, að vér
höfum orðið andlega sjóndaprir.
II.
Nútíðarmcnning vor.
Eg vék að því i greininni hér á
undan, að eg væri ekki sannfærðijr
um það, að eftirkomendur vorir
mundu að öllu leyti fella sig við það
þjóðarskipulag, sem njú ríkir með
oss. Eg vik nokkuð að því siðar.
En óhugsanlegt virðist mér ann—
að, en að þeir muni meta mikils þær
kynslóðir, sent hafa verið að’starfa
hér í landinu á siðustu 50 úrunum.
og að þeim muni finnast ólíku meira
til vor að' sækja til lyftingar fyrir
þjóðina en til forfeðra vorra á sögu
öldinni.
Það er óhemju—átak, sem íslenzk
þjóð hefir gert á þtessum tima, og
eg kannast við það í einlægni, að
eg get orðið nokkuð óþolinmóður
stundum, þegar eg sé menn rita, eða
heyri þá tala, eins og misfellurnar
hiá oss séu aðallega frásagnarverð-
ar, og að i raun og veru sé um aft—
urför að tefla. Þeir menn, sem svo biskupinn yfir Islandi lýst yfir er
tala og rita, ættu »ð kynna sér hvern-
segja um bókas'ofn, skjalasafn, þjóð—
menjasafn og lestrarfélög. Eins er
um félagslífið allt, til eflingar verk—
egitm og andlegum framförum, það
var alls ekkert til, þegar þeir menn
voru að alast upp, sem nú cru roskn-
ir.
Frelsi og jafnrétti landsmanna hef
ír aukist svo, að ástandið er orðið
allt annað en áðirr. Hegningarlögin
frá 1869 eru að sönnu í gildi,’ en
allir finna það, og lögfræðingarnir
vist einna bezt, hve mjög þau eru lir—
elt og samsvara illa i ýmsitm efn—
um réttlætistilfinning þjóðarinnar.
íjví ,að manínúðin Ihefir eflst svo
nijög, að það er aðdáunarefni sum—
um, eins og mér, og óánægjuefni ein—
stökum mönnum, sem ertt með aftur—
kasts—tilhneigingar. Annars skal eg
láta mér nægja í þessu sambandi. að
benda á þrjú atriði, sem blasa'við öll
ið á síðustu áratugum, þá hefði hamt.
sjálfsagt búist við þvi, að bókmennt—
irnar mundu taka undir sig sprett.
Hitt var ekki jafnlíklegt, að við-
mundum nú hafa fengið , álitlegan
hóp af verulegum listamönnum. Þeir
eru ekki margir áratugirnir, síðan er
enginn Islendingur, sem ekki haföi
komið til útlanda, hafði neina hug—
mynd um list málaranna né mynd—
höggvaranna. Sigurður Guðumunds—
son drukknaði í fátækt ‘og fékk engu
afkastað nema fáeinum altaristöflum,
sem hann hafði enga ánægju af. —
Fyrsti maðurinn eftir hann lagði út
á listabrautina 1895. Nú rekur hver
málverkasýningin aðra. Og vér höf
um reist hús fyrir verk tnyndhöggv—
ara, sem þekktur er um töluverðan
hluta heitnsins og á væntanlega eft—
ir að verða miklu frægari. I tónlist—
inni höfum vér eignast ágætismenn.
svo að í þeim efnum er að verði
bylting. Og leiklistin, sem • hefir
verið að brjótast áfram í mestu erf—
iðleikum, er þjóð vorri sæmd.
Mjög oft hefi eg heyrt því varpað*
fratn, að þjóðin hafi ekkert orðið
ánægðari fvrir allar þessar breyt—
ingar, setn gerst hafa. Eg skal ekk—
afnátn vistarbandsins, sent var ert fullyrða um það að þessu sinni.
ómótmælanleg kúgun og áþján, rýnik
un kosningarréttarins og sá kostur,
sem konum er nú orðinn á því að
leita sér atvinnu.
Þó að einmitt um þessar tnundir
bóli á afturkasts—tilhneigingum í
þjóðkirkju Islands, og þó að hún sé
mjög vanmegna sem stendur og
henni lítið sint mjög víða á landinu,
þá er hún vafalaust með þeim frjáls—
lyndustu ;og rúmbeztu þjóðkirkjum
í heimi. Því hefir meðal annars
ig ástatt var um það leyti, sem ver
fengum löggjafarvaldið og fjárfor-
ræðið, og hugleiða það af nokkurri
stilling og viti. Eg ætla ekki að fara
að lýsa því ástandi nú. Ýtnsir hafa
gert það, og þar á meðal eg.
Eg ætla heldur ekki að fara að
fjölyrða tnikið um það nú, setn kom—
ið hefir verið í framkvæmd. Ollum
ætti að vera það nokkurnveginn
ljóst.
lendis. Þetta er ein af þeim merkis—
breytngutn, sem orðið hafa hér á
landi, síðan er til dæmis að taka séra
Matthías Jochumsson fékk biskups—
áminningu fyrir að neita útskúf—
unarkenningunni. Svo virðist sem
annar hugsunarháttur fái ekki þrif—
ist verulega hér á landi nú en frjáls—
lyndislegur. Menn líta nú á sig setn
frjálsa menn, í veraldlegum og and-
I legum efnum. Þar sem nú frjáls—
Samt finn>t mér ekki úr vegi ^ ]yntu kirkjunnar er i fullu samræmi
að rifja upp nokkur atiiði. Sumit j vjg hugsunarhátt ntikils meiri hluta
menn virðast svo gfeymnir, að þjóöarínnar, ‘virðist mér mega búast
minnsta kosti þegat þeit komast í , vjg þyj^ a,g þag vj.j-gj útsæði til nýs
vont skap.
Það er enginn smáræðis atburður,
að vér skulum hafa fengið sjálfstæði
vort að fullu, eftir rúma hálfa sjö—
undu öld. Að minnsta kosti hafa
aðrar þjóðir litiðsvo á, þær
gróðurs innan kirkjunnar.
Nýjar og blómlegar bókmenntir
hafa konúð upp, og mér er óhætt að manndauðinn kominn
Eg veit að menningin hefir tilhneig—
ing til að skapa ný óánægjuefni, eins
og í staðinn fyrir þau, sem burtu
hafa verið tekin. Lífi voru er svo
háttað hér á jörðinni, að vér eig—
utn alltaf nýjum vandamálum að
mæta. Þau hafa skapast með hinni
nýju menningu vorri, eins og annars—
staðar. Eg mun eitthvað víkja að
því síðar, því að ekki er því að
leyna, að mér virðast þau alvarleg.
En ekki get eg hugsað mér annað en
að mennirnir vaxi að minnsta kosti
að einhverju leyti að manngildi við
það að fá öfl náttúrunnar sér undir-
gefin, vita af sjálfum sér sem
frjálsum mönnunt, fara að nota
kraftana i sjálfum sér. sent áður
hafa legið ónotaðir, og fara að hugsa
nýjar hugsanir. Annars yrðum vér
að álykta, að allt menningarstrit ver-
aldarinnar sé einskis virði, og tnér
veitir örðugt að sætta mig við þá
hugsun.
En hvað sem því líður, fnnst mér
ekki hlaupið að því að finna ný ó—
ánægjuefni, sem vegi á móti því' at—
riði. sem Guðmundur Hannesson pró
fessor hefir skýrt frá. að árið 1861
dóu hér á landi 36%, en 1920 var
fullyrða, að ef eitthvað alveg sam-' Prófessorinn bendir
sambandi, að manndauðinn
svarandi væri til sýnis frá fornöld
senl | vorri, þá þætti það ekki ómerkilegt,
orðið hafa undirlægjur erlends valds , r ungdæmj mjnu höfgu menn ekk-
og náð sjálfstæðinu, að einhvers sé crt ag Iesa> Bókahungrið var eitt
það vert. Bolað hefir á röddum, setn aðaleinkenni þjóðlífsins. Nú er bóka
lýsa lítilsvirðing eða jafnvel óvild á 0g blaðanrergðin orðin svo ntikil, að
þeint nterkisviðburði. Vonandi ntagn—
ast ekki sú fásinna. Hugurinn ætti
sannarlega að vera allur annar.
Verklegu framkvæmdirnar, sem
orðið hafa á þessum áratugum, síð—
an er vér fengutn fjárráð vor, eru
eins og eitthvert æfintýri. Að minnsta
kosti er það svo í mínum augtim, et'
man svo vel kyrstöðuna og úrræða—
leysið fyrir 50 árum, og hve örliti')
menn höfðu úr að spila. Þessar óra—
leiðir af brúuðum yegum, setn lagð -
ir hafa verið, finnast mér merkileg—
ir. Eg hugsa til unglingsára minna.
þegar enginn vegarspotti var til á
landinu, og aðeins eitt vatnsfall brú—
niður í 14%.
á það í þessu
sé með
oss orðinn svo lítill og fólksfjölgunln
svo núkil, að vér séum að þvi leyti
í tölu fremstu þjóðanna, og að á
hálfri öld höfum vér hafið oss frá
miðaldaástandi upp í röð helztu
menningarþjóða. Og hann segir, að
það sé líkast kraftaverki >
Þetta er sjálfsagt að mjög miklu
leyti að þakka læknafjölguninni, sem
eg hefi ekkert minnst á hér að fratn—
an — enda auðvitað mörgu öðrit
sleppt. Hún er vafalaust eitt af mik—
ilvægustu atriðum í framförum vorra
tima hér á landi. Aður var Iækna—
fæðin blátt áfram voðaleg. Mér
stendur það fyrir minni, að þegar eg
fluttis tað Goðdölum með foreldrum
minum, fyrir 56 árum, þá var eng—
inn læknir nær okkur en norður á
Akureyri á aðra hliðina, en vestur í
Hnausum í Þingi i Húnavatnssýslu
á hina. Kvoruga leiðina er unnt að
sumarlagi nenia
A vetrum kom
gengi jafnhratt og raun hefir á orð— engum mánni úr því byggðarlagi til
enginn hefir unda nað lesa. Fróð-
Ieik og hugsunum er veitt út yfir
fólkið í striðum straumum. Hver sem
athugar uniræðuefnin með þjóðinni
nú. allt frá hintt efnikenndasta, eins
og áburðargryfjum og öðrum verk—
legum og nauðsynlegum framkvæmd-
ttnt til þeirra alheimsspurnínga, seni
t. d. sálarrannsóknirnar og guðspekin
hafa vakið í sálum mannanna, og
ber það saman. við þrengslin utan unt
hugi þeirra fyrir fáeinunt áratugum.
hann hlýtur að sjá hvað frantþróun
hugsanalífsins hefir verið stórkost—
leg.
Islendingar hafa ávalt verið bók-
að. Nú hugsum vér til þess aö fara|hnejgg þjóg ,og ef e;nhver hef5i haft
á bilum austan úr hljótshlíð og norð nægjjegt íniyndunarafl til þess að komast á dag að
ur i Þingeyjarsýslu úuian tarra ára. hugsa súri ag yiðreisn þjóðarinnar (mjög vel riðandi
Simi er konúnn um mestallt landið.
Banka höfutn vér fengið, og þeir
hafa gerbreýtt viðskiftalífi þjóðar—
innar. Verzlunin að kalla má öll
orðin innlend. Sjávarútvegstaékin
orðin svo fullkomin sem nokkurs—
staðar í veröldinni. Sjómannastétt—
in ef til vill betur mönnuð en í
nokkuru öðru Iandi . Islenzk ný-
tizkuskip bruna með ströndum fram
og um veraldarhöfin, i stað þess sem
Jónas Hallgrímsson kvað, að “eng—
inn kunni að sigla’’.
Landbúnaðurinn er vitanlega ekki
jafnlangt kominn að sinu levti eins
og aðrar atvinnugreinir. Har.n hef—
ir átt örðíigri aðstöðu. En áhttg—
inn er vaknaður, og um það er ekki
lítils vert. Sumstaðar er jarðrækt—
inni að fara fram hröðum fetuni, og
húsagerð á stórum flákum á land—
inu öll önnur en hún var, þó að mik—
ið verk sé enn óunnlð i báðum þess—
um efnum.
Fráleitt er minna vert um þær
framfarir, sem hafa orðiö á andlega
sviðinu. Mtenntastofnanirnar, allt
Yilt þú komast áfram
Velgengni er einungis þeirra, sem eru reiðubúnii að
grípa tækifærið, þegar það gefst. Eruð þér? Eða eruð
þér ánægð að fljóta úr einni lágt launaðri stöðu í aðra?
Nútíðar verzlun krefst þekkingar og kunnáttu. Hún
bíður ekki eftir að óreyndir byrjendur læri einhvern
graut í starfi sínu. Látið ekki vankunnáttu standa yður
fyrir þrifum. Byrjið kaupsýslustarfið rétt.
E/mwood Business College
veitir fullkomna kenslu í öllum kaupsýslufögum. Sér-
stakar greinir kendar ef æskt er. Ágætlega lærðir og
hæfir kennarar, sem hafa haft virkilega starfsreynslu,
tryggja gagnkvæma kenslu.
Sífeld eftirspurn eftir ELMWOOD LÆRLINGUM.
Námsgreinir
Bookkeeping, Typewriting,
Shorthand, Spelling,
Composition, Grammar
Verð:
Á máhuðl
Dagkensla........$12.00
Kvöldkensla.......6.00
Morgunkensla .. .. 9.00
Filing, Commercial Law
Business Etiquette
High School SubJects,
Burrough’s Calculator.
Skrifið eftir fullum uppiýsingum til skólastjórans.
210 HESPLER AVE., ELMWOOD.
Talsími: 52 777 Heimili: 52 642