Heimskringla - 14.03.1928, Side 5
WINNIPEG 14. MARZ 1928
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hiamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
reynt að innleiöa og heföhelga í u samhandi enga 'betri þýðýigu á
íslenzkri ritlist. Kallast þetta
"exprcssionismusog finn ég í þess—
þvi, en “dintlist.” Þykir mér sem
aS meiru ráði, urn áferð þessara
listaframleiðslu, sundurlausir scnnzk—
udintir og sprettandi I “huigdettur”
(gamanþýðing í skóla á orðinu “im-
pulse”), heldur en réttnefndur skáld—
legur innblástur.
Sem ótvíræð dæmi þessarar ný-
móðins snildar má benda á Eimreið—
ar^kvæðið, sem vitnað er í grein
minni hér i blaðinu 22. febr. sl., svo
og "Sálminn” góða, eftir sama höf—
und sem Heimskringla birti á síð-
astliðnu sumri, og flestum, er lásu,
verður ógleymanlegur. U,m þessar,
og þvílíkar, bókmentaafurðir vefður
það að segjast, eins og um “fuglinn
fljúgandi,” að af engu verður ritað,
að þar sé um list að ræða, af öðru
en þvi, að höfundurinn kallar siig
listamann, og ber þetta á borð fyrir
íslenzka alþýðu í nafni listar og
snilar.
Hvað eigum vér, fávísir leiktnenn,
í fagurfræðilegum efnum, að álíta
um list og snild, af þessu tagi? Með—
taika hana og dást að henni, upp á
góð orð og ábyrgð höfundarins? Eg
verð þess var, að menn eru hikandi
í því efni. Mættu þeir treysta
sinni eigin dómgreind, teldu þeir
(Frh. á 8 bls.)
Menn! Nýju Brezku UUarklœðnað-
irnir fyrir vorið eru komnir.
Utsalan Mikla
í fyrramálið og stendur
næstu daga
Og hvílíkt undursamlegt upplag úr að velja — samansafnað úr brezk
um tóverksmiðjum, sem orðlagðar eru fyrir vefnað og vörugæði. —
Tweeds, Worsteds, Cheviots. vaðmáls. klæðisfrakkar. er nöfnum tjá-
ir að nefna í öllum þeim vígindum er canadískir menn helzt girnast.
Hið stærsta og mesta úrval er nokkurntíma hefir sýnt verið á þvi
verði í Canada. .
Alklæðnaður eð aYfirfrakki
sniðið eftir máli á
Yér gerum hyerjum manni mögulegt að
eignast föt sniðin eftir máli.
KLÆÐNAÐIR og
YFIRHAFNIR
með því sniði
sem þér kjósið
GOLF-FÖT
saumuð eftir máli
$27.00
Vér saumum föt og yfirfrakka, er sniðin eru við vöxt kaupenda
fyrir það verð, sem er langtum lægra en vanalega er sett. Á því er
enginn vafi. ..........
Og þetta getum vér gert af því vér spörum yður framfærslu allra
verzlunarmilliliða. .....
Hver flík sem vér búum til er ábyrgst. Vér skulum á augabragði skila
peningunum aftur, eða fá yður föt að nýju eða yfirfrakka, ef þér eruð
ekki ánægðir með það sem þér hafið fengið. Vér gefum þessa stálslegnti
ábyrgð af því vér berum fullt traust til sjálfra vor að geta búið til föt
sem fara vel, eru móðins, á verði sem er margfalt lægra en það sem þér
hafið áður orðið að borga.
Komið í fyrramálið og veljið yður efni úr hinum prýðisfögru dúk-
um sem eru nýkomnir. Vér skulum hafa fötin til á hvaða tíma sem ósk
að er. Það er ekki langt til PÁSKA og þá þarfnist þér þeirra.
The Regent Tailors
Verzlunardeildir í
öllum fylkjum Canada.
285 Portage Avenue
Næsta búð við
Standard bankann
i t
Tvö kvæði
flutt á Frónsmóti 22. febr. 1928.
“Jól hjá mömmu”
68 ára helg endurminning.
Jeg er að hugsa um æsku og jól,
þar er hún mamma björtust sól
sem hefur sett á huga minn
sinn hreina ættar stimpilinn.
Og enn er svipur hennar hýr
með helgu brosi að mér snýr
hún stendur göfug, hrein og há
með hárið bjart og augun blá.
Hún var ei allra vinurinn
en vafði í faðmi drenginn sinn
og söng um móður unga ást,
þá ást, sem best í heimi sást.
Þá kalt var úti að kafa snjó
af kulda stundum fékk ég nóg,
en þegar kom ég aftur inn
var opinn móðurfaðmurinn.
Og ég hef grátið, mamma mín
að mega ekki njóta þín,
því þegar hnigu trega tár
og tilfinningin varð mér sár,
þá var, það móðurmundin þín
sem mjúkast þerrði augun mín;
ég sofnað hef með særða lund
en svo kom þessi gleðistund:
í draumi sá ég svipinn þinn
það særðan gladdi huga minn.
Eg vini marga aðra á
sem augum mínum hurfu frá,
en þú ert ætíð, mamma mín,
þar mest og helgust gleðin skín.
Eg er að hugsa um himininn
því himin sjálfsagt einihvem finn
en hvert við mamma mætumst þar
það mesta spursmál lífs míns var.
Eg kem þar sjálfsagt kaldur inn
en komi ég í faðminn þinn
og heyri móðurhjartað þitt
það himnaríki verður mitt.
Sigijrður Jóhannssoh
* * ¥
Ættjörðin.
Við álfuna tengir mig ekkert band,
Eg elska ekki nokkurt sérstakt land.
Því sjá, ég hugsa mér himingeiminn
sem haf, er fellur að stjörnuiströnd,
og stjörnurnar sjálfar meginlönd.
Eg elska ekkert minna en allan heiminn.
Hví skyldi þá hyggja á mein og morð,
Á myrkvaða sól og brenda storð,
þó albræðrum verði hvern annan að styggja’
Já, hvers vegna taka upp hildarbrand,
fyrst heimurinn allur er samþegna land
og heimsþegnar allir sem heiminn byggja.
Mitt einasta heimland í öllum geim
er öll þessi jörð, sem við köllum heim
og mönnunum er eins og móðir börnum.
Mig grunar að ekki sé gífurleg sekt
að grípa til vopna, en afsakanlegt,
isé á okkur herjað frá öðrum stjörnum.
\
Guttormur J. Guittormsson.
Símið 45 262
Og
Wood’s Coal Co., Ltd.
mun birgja yður með viði eða kolum, eftir því sem þér
þurfið, og gera það bæði fljótt og vel, hvenær sem vera
skal. — Eldiviðarbirgðir og skrifstofa við
PEMBINA HIGHWAY, við Weatherdon.