Heimskringla - 25.04.1928, Side 4

Heimskringla - 25.04.1928, Side 4
4. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 25. APRÍL 1928. < StofnnTf 188«) Krmnr At A hverjnm mlKTlkndeKÍ EIGEXDUR: VIKING PRESS, LTD. 8S3 ok 855 8ABGENT AVK. WISÍNIPKO TA1.SIMI: SC 537 V»r« blaCnlns er $3.00 á.rgangurlnn borg- iet fyrirfram. Allar borganir sendiat TIIE VIKING PHEfS LTD. SIGPÚ8 HALLDÓRS Irá Höfnuin Ritstjórl. UtnnAMkrlIi ttl ItlntVHlnn: THR VIKIA'G PltKSS. I.td., Bnl S105 lltnnAnkrlft tll rltNtJðriin:i: 81DITOH I1EÍMSI<RISIGI.A, Ilo* 3105 WIAAIPEG, MAN. “Hetmskrlngla le publtsiied by Tbe Viklngr I’rena I,td. and printed by CITY PKIATIAG A PUHI.ISHIAG CO. g53-8S5 Snreeut A ve., Wlnnlpeg. Mnn. Teleplinne: .86 53 7 WINNIPEG MANITOBA,25. apríl 1928. FISKISAMLAGIÐ RÆÐISMAÐURINN OG ÞJÓÐRÆKNIN. Ræðismaður íslendinga og Dana hér í Winnipeg, hr. A. C. Johnson, gat sér þess til í Lögbergi um daginn, að vér myndum veita móttöku skýringu frá hon- um út af ummælum þeim, er vér viðhöfð- um um skrif hans í fyrra til þáverandi forsætisráðherra Islands, Jóns Þorláks- sonar. Ræðismaðurinn gat rétt til, eins og sjá má á öðrum stað hér í blaðinu. Hitt er annað mál, að vér fáum enga leiðrétt- ingu séð j máli hans á “skopyrðum” .vor- um. Lítum vér rétt á það, að þau hafi verið hæfileg þá, eru þau það engu síður nú, að “leiðréttingunni” athugaðri, og svo er um annað, er vér létum um fyrstu grein ræðismannsins mælt, og það því fremur, sem í þessari síðustu grein ber meira á embættismanninum, en einstakl- ingnum hr. A. C. Johnson, eins og síðar mun verða að vikið. Og yfirleitt er leið- réttingin þann veg rituð, að vér, sem þjóðræknismaður, og ritstjóri opinbers málgagns, neyðumst til að fara um hana fleiri orðum/en nauðsynlegt var um dag- inn. Kristinn Pótursson á skilið þökk landa sinna fyrir það, að hreyfa opin- berlega hugmyndinni um fiskisamlag. En uppfitjunin verður til einskis, ef prjónarnir eru að henni lokinni lagðir á hiliuna. Það ætti að vera metnaður öll- um íslendingum, að halda nú áfram verk- inu í einni lotu, unz allt er komið í hæl og totu. Það er þá líka þeim mun auðveldara, sem “The Co-operative Marketing Board” virðist nú hafa gert alvarlega gangskör að því, að leita álits og aðstoðar fiski- manna til þess að koma þessari samlags- hugmynd í framkvæmd. Þykir oss ekki ósennilegt, að það megi enn að einhverju leyti þakka hr. Kr. Péturssyni. Að minnsta kosti vitum vér til þess, uð hann hefir átt tal um hugmyndina við ritara nefndar- innar, Mr. P. H. Ferguson. Hvað sem um það er, þá hefir Mr. Ferguson fyrir hönd nefndarinnar sent flestum eða líkl. réttara sagt öllum fiski- leyfishöfum í fylkinu eyðublað með ná- lega 40 spurningum, er í ljós megi leiða þá vegi er færastir séu til framkvæmdar. Vér förum ekki mörgum orðum um þetta að sinni; viljum aðeins geta þess að einn góður lesandi Heimskringlu sendi oss til yfirlits eyðublað það, er liann hefir íylit, og með því grein, er sökum rúm- leysis verður að bíða næsta blaðs — eins og margt fleira — og mun þá verða eitt- hvað nánara að þessu vikið. En því eru þessi orð rituð nú, að vér höfum komist á snoðir um það hjá öðr- um góðum vini blaðsins, er einnig hefir fiski stundað, að þeir munu ekki vera all- táir íslenzkra fiskimanna, er eigi hafa enn svaraö þessum spurningum Mr. Ferguson. Vildum vér því brýna það sem rækilegast fyrir hverjum einasta fiskimanni, er þetta les, að svara Mr. Ferguson tafarlaust, hafi þeir ekki þegar gert það. Það skift- ir engu máli hvert menn líta samlagshug- myndina vinaraugum eða eigi, eða hvort menn treysta sér til þess að svara öllum spurningunum út í æsar eða eigi, íslend- ingar mega eigi gera sér þá höfuðskönnn, að gera sig opinbera að þeirri fávizku, eða því áhugaleysi, um opinber mál, að maður nú ekki tali um þau, er þeirra eigin hags- muni snerta, að jafnvel nokkur minnsti hluti þeirra þurfi, að standa orða. og and- svarslausir, eins og ómálga fénaður, er til þeirra er leitað álits og skýringa, af hinu opinbera. Svarið þessvegna tafarlaust, séuð þér ekki búnir að því. Svarið öllu því. er þér vitið yður á nokkurn hátt geta svar- að, og verið alls ósmeikir að senda það frá yður beina boðleið, þótt þér neyðist ef til vill fram hjá sumu að ganga. Með því eina móti er mögulegt fyrir hið opin- bera, eða einstaklinga, að komast að raun um það, hvar skórlnn kreppi að flestum. Með því eina móti fæst bót á kreppunni ráðin. Svarið þessvegna tafarlaust. Helzt miklu, ef unnt er, en heldur litlu, en engu, ef annars er ekki úrkosta. En svarið allir einhverju. — Ýmsum minni háttar athugasemdum í grein ræðismannsins, t. d. unl meðferð málsins af hendi Þjóðræknisfélagsins og nefndanna, munum vér lítil eða engin skil gera, og það sökum þess helzt, að ómögulegt er annað að hugsa sér, en að bæði þjóðræknis- og heipiferðarnefndin finni sig knúðar til mjög rækilegra and- svara. En það er aðallega tvennt, er vér munum að víkja: í fyrsta lagi nauðsynin rio- árangurinn af embættisbréfinu góða; og í öðru lagi afstöðu þá, er hr. A. C. Johnson tekur, sem ræðismaður, til þjóð- ræknisfélagsins. Embættisbréfið er þá fyrst á dags- skrá, Um nauðsyn þess og árangur er það sameiginlegt að segja, að nauðsynin var engin og árangurinn enginn. Um nauð synina er það að segja, að hr. A. C. John- son er skipaður fulltrúi íslenzkra og danskra stjórnvalda, til þess að leiðbeina þegnum þeirra ríkja hér, er í öngþveiti komast á einhvern hátt sökum þegnréttar síns, gagnvart þeim ríkjum annarsveg ar og Canada og annara ríkja hinsvegar. En frá því er langur vegur til hins, og honum sem öðrum ófær, að hann sé líkt og konungarnir “af Guðs náð,” ef svo mætti segja, sjálfkjörinn fulltrúi og for- göngumaður, íslenzka og klanska þjóð- arbrotsins hér, í öllum málum, er þau opinberlega ráðast í. Það er heldur ekki sjáanlegt af nokkru er enn hefir fram komið, að ræðismaðurinn hafi ritað þetta bréf í nokkurs manns umboði, ann- ars en síns sjálfs. Og því síður gat nauð- syn til bréfsins borið, sem hann segir nú sjálfur, að hann álíti að vér “íslendingar í Ameríku eigum að bíða með ailar ráð- stafanir um þetta mál, þar til að bræður vorir á íslandi gera oss aðvart um, að hve miklu leyti, og hvern hátt þeir æskja, að vér eigum þátt í hátíðinni með þeim.” Hví beið hann þá ekki rólegur, fulltrúinn sjálfur, eftir því þátt-töku boði er hann “taldi víst, að yrði oss íslendingum boð- ið,” í stað þess að kryfja forsætisráð- herra íslands jafn óþyrmilega sagna um það, hvað þeir þarna heima væru nú eiginlega að aðhafast, ef það væri þá nokkuð? Um árangurinn af skrifinu ber “leið- réttingin” að surnu leyti bezt vitni. Sam- kvæmt almennum kurteisisreglum sam- þjcð'.egra viðskifta, gat forsætisráðherra ekki annað en viðurkennt þetta skrif frá fulltrúanum íslenzka. Svar hans er í rauninni heldur ekkert annað. Hann vísar því til hátíðarnefndarinnar, er enn ekki, ári síðar, er farinn að gefa því minnsta gaum, að því er séð verði. Verri snoppung er tæpast auðið að hugsa sér, en þó að vísu heldur ekki eðlilegri, því bréfið var, sjálfsagt þó ósjálfrátt, en ekki viljandi, stílað í þeim knésetningartón, sem þar væri eftirlitssamur og ríkilátur skólameistari, að aga og áminna óþrosk- uð börn til eftirtektar og athafna. Enda höfum vér það fyrir satt, og förum þar ekki eftir selfluttum gróusögum, að bréfið hafi vakið almennt athlægi heima á íslandi, er vestanblöðin bárust þangað Ein sönnun þessa máls liggur hér fyrir framan oss, er vér ritum þetta. Það er eintak af helzta skopblaði íslands “Spegl- inum,” er gerir bréfi ræðismannsins þau skil, að auðsæ er lítilsvirðingin á þessu skrifi er skín þar út úr orði hverju og línu. Þótt oss þegar í fyrra, sem nú, þætti leiðinlegt að fulltrúi íslands hér vestra, skyldi verða til þess að bregða því skringi- ljósi yfir sjálfan sig með þessu bréfi, að vel mætti við því búast, að dálítil skop- glæta gæti af því stafað á oss hina, er sama megin hafsins erum búsettir, þá fannst oss ekki um svo stórvægilegt at- riði vera að ræða, að ástæða væri til þess að fjargviðrast út af opinherlega, né "krefj ast þess að strengilega skyidi tekið ofan í við ræðismanninn. En nú gegnir nokkuð öðru máli, er tekin er til greina annar aðfinnsluliðurinn, sem nefndur var hér að framan. Og komurn vér þá að honum: afstöðu ræöismannsins, fulltrúa ís'.enzkra stjórnarvalda hér vestra, til Þjóðræknis- félagsins. Það verður að segjast ræðismanninum til hróss, að hann veður ekki neinni sauð-, argæru klæddur framan að þjóðræknis- hjö.rðinni. Hann gerir hreiniskilníislega grein fyrir opinberum fjandskap sínum við Þjóðræknisfélagið, og væri vel farið ef fleiri skoðanabræður hans kæmu svo drengilega til dyra. En þá er líka þess að vænta, að jafn hreinskilnislega verði svar að. Ræðismaðurinn leitar fyrst höggs á grein séra Rögnvaldar Péturssonar, er hann kurteislega og frekar hispurslaust nefnir “langa botnleysu” er birtist í Heims kringlu. Urn þá “botnleysu” erum vér sömu skoðunar, og þá er hún bintist, að hvort sem hún kemst í framkvæmd eða ekki, þá er hún langfegursta og þrótt mesta hugmyndin, um veglegan skerf Vestur.íslendinga til þessarar einstöku minningarhátíðar, er vér enn höfum séð og búumst við að sjá. Og vér skyldum ósmeykir deila um það til eilífðarnóns, við hvern sem vera skal, að et nokkur verulegur ættþjóðarmetnaður væri al- mennur meðal Vestur-Islendinga, þá væri sú hugsjón vel framkvæmanleg. Því er á þetta atriði drepið, að þessi grein séra Rögnvaldar virðist hafa verið hálmstráið, er 'hryggbrotið ha.fi úlfalda umiburðar- lyndis ræðismannsins gagnvart Þjóð- ræknisféiaginu, svo að hann finnur sig knúðan tii að fara af stað og ófrægja Þjóðræknisfélagið í augum yfirboðara síns í Montreal. Það er engu líkara en að ræðismaðurinn vilji gefa í skyn, að það sæði hafi fallið í góðan jarðveg, og munu þó flestir þurfa að láta segja sér það þrisvar. Síðar í “leiðréttingunni” minnist ræð- ismaðurinn Þjóðræknisfélagsins, sem . . .hins arga fargans, sem hann (for- seti þess) og hans nótar eru forsprakk- ar fyrir, og sem heldur uppi kaupskap á íslendingum.” (Auðkent hér). Vér teljum það fullkomna svívirðu í garð Þjóðræknisfél.; sérstaklega að fara þess um orðum um auglýsingasöfnun gjald- kera þess, fyr og síðar, og annara valin- kunnra manna og kvenna, er það starf hafa haft á hendi, og öllum vitanlega hafa annast það á þann hátt, er hér í landi tíðkast. En auðvitað hljóta þessir starfs- menn Þjóðræknisfélagsins að taka opin- berlega afstöðu til þessara ummæla. Og vér endurtökum það, að vér teljum það fuhkomna óhæfu af fulltrúa íslenzkra stjórnarvalda, og koma þaðan úr hörðustu átt, að fara slíkum orðum um starfsemi Þjóðræknisfélagsins. eina félagsskaparins hér vestra, er hefir þann einn tilgang og tilverurétt, að við'íi.alda sem lengst ís- lenzkum verðmætum hér og efla og styrkja sambandið við ísland í hvívetna. Og lýsi ræðismaðurinn yfir vantrausti sínu á féiaginu og starfsemi þess við yfir- boðara sinn í Montreal, þá krefjumst vér þess sem meðlimur Þjóðræknisfélagsins, að stjórn þess taki á sama stað hæfilega aftöðu til þessara ummæla. Séu misfell- ur á stjórn eða framkvæmdum Þjóðrækn- isfélagsins, til lengdar, þá eru meðlimir meðsekir stjúrnendum, og meffifmanna að iagfæra það. En þá fyrst, að minnsta kosti, er þeir eru úrkula vonar um að það takist, getur komið til álita, hvort þeir álíti sér það síðustu lífsvon, að fulltrúi Is- lendinga hér beri ófrægisorð á félagið til yfirboðara síns í Montreal. Vér höfum litlu hér við að bæta. Heim- ferðarnefndin kemst tæplega hjá að svara því, sem til hennar er mælt í þriðju síð- ustu málsgrein “leiðréttiRgarinnar”. En ef til vill hefði ekki verið úr vegi fyrir ræð ismanninn, að stilla einhverju af þeim um- mælum í annað hóf. En hann um það, hvert snið hann velur sér, eftir því hver í hlut á. Aðeins þetta að síðustu: Það má vel vera að hr. A. C. Johnson, hafi reynst nýt- ur og samvizkusamur embættismaður, er til daglegra og venjulegra embættisstarfa kemur, þeim er hinum ábyrgðarminni ræð ismannsskrifstofum eru ætluð. Og per- sónulegan kala berum vér engan til hans. hvort sem trúlegt þykir eða eigi. Þetta er sagt í tilefni af fáeinum athugasemd- um, í grein hans í síðasta Lög- bergi. En allt þetta kemur ekki þessu máli við. Hann endar grein sína, er hann hefir lýst hreinskilnislega hugarþeli sínu til Þjóðræknisfélagsins, og af- stöðu sinni til þess, sem embætt- ismanns hins opinbera, með þeirri yfirlýsingu, að þeitta sé nú allt er hann hafi til saka unn ið, og að hann leggi það fúsiega undir dóm almennings hér og heima á íslandi, hvort hann eigi fyrir það ákærur skilið. Vér verðum jafn hreinskilnislega þar til að svara, í samræmi við það sem hér er að framan sagt, að vér álítum að hann eigi fyrir þær athafnir fyllstu ákærur skil ið, og leggjum það jafn fúslega undir dóm almennings, hvort hann liafi ekki þegar með at- höfnum sínum, af hinum víð- tækari opinberum málum, mis- boðið þannig embætti sínu, að hann sjálfur, vér Vestur-íslend-> ingar og heimaþjóðin séum svo bezt staddir, að hann sé losaður við embættið og ábyrgðina, er því fylgir. --------x-------- Bókarfregn. GESTUR PALSSON — RITSAFN Sögur — kvæöi — fyrirlestrar — Iblaöagreinir. Meö ritgerö um höfundinn eftir Einar H. Kvaran. tJtgefandi Þorsteinn Gíslason, Reykjavík 1927. Sumir vinir Gests Pálssonar — gamlir og nýir — haía spurt mig um hvort ég vildi ekki leiða athygli les- enda Heims'kringlu aö þessari bók. Þetta ritsafn er svo að segja alveg nýkomiö á öókamarkaðinn hér í Winnipeg, en það er ekki ólíklegt að marga fýsi að eignast það, er eftir- tekt þeirra hefir verið vakin á þvi. Það er orðið mjög hátt á fjórða tug ára siðan Gestur Pálsson dvaldi með Winnipeg-Islendingum, en þaö hefir verið mér stöðugt undrunar- efni, síðan ég kom hingað til lands, hve oft hann og _rit hans hafa borið á góma í samræðum manna. Mér finnst margir enn tala utn hann því líkast sem hann hefði verið hér í gær, og þeir atburðir nýafstaðnir, er hann var viðriðinn. Menn eru svo lang- minmtgir þar sem hann er annarsveg- ar, að það er fyllsta ástæða til þess að ætla, að hann hafi á einhvern hátt náð nieira haldi á intyndunarafli manna, heldur en líklega nokkur ann- ar Islendingur álfunnar. Það 'hvílir einhver rómantísk hula yfir þesstmi realista. Hann var fyndinn og kald- hæðinn með afbrigðum, en jafnframt svo meir og klökkur á köflum, að það væri móðgun við kvenþjóðina að kalla hann kvenlegan. Hann tem- ur sér það hugrekki, sem til þess þarf að horfa framan í veruleikann, en jafnframt ritar hann um svaninn, sem sýngur æfina alla um drauma sína. Hann er sífelt i erjum og bardögum, en þó hefi ég aldrei hitt neinn mann, sent hefir fundist hann í raun réttri hafa átt 'heinta í styrjöldum. Þetta “ritsafn” er langveglegast af því, sem út hefir verið gefið eftir Gest Pálsson. Bókin hefst með itar- legri frásögu urn höfttndinn, eftir Einar H. Kvaran. Þótt mönnum kunni að virðast mér skylt nokkuð málið, þá hygg ég ekki að iþeir, sem lesið hafa ritgerðina, telji það ósann- gjarnt af ntér að segja, að meira sé á henni að græða en öðru, sem rit- að hefir verið um Gest Pálsson. Hin ytri æfisaga er ekki eingöngu sögð — og hún er vitaskuld ekki sérlega flókin eða margbreytt, þvi æfin varð ekki löng — heldur er gerð sú grein fyrir lund og ttpplagi ntannsins, sem nákunnugur maður einn getur gert, og velviljaður. Það er engin tilraun gerð til þess að breiða yfir það, sem áfátt var í fari Gests, en ekki er ó- hugsandi að ýmsir sjái það nú í nokk- uru öðru ljósi, en þeir kunna að hafa gert áður. Qg ég hygg að Vestur- Islendingum mörgunt þyki fróðJegt að lesa um skoðanir greinarhöfundar á því, sem ritað hefir verið áður um starf og líf Gests Pálssonar með- 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hii. viðurklenndu meðujl, viö bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa f 1 • oM-.Iuðum nýrum. — Þær eru til bölu í öllum lyfabúð um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. an hann dvaidi hér vestra. Sérstak- lega er allmikið minnst á hinn furð- uglega eftirmála, er fylgdi Reykja- víkur-útgáfunni gömlu. Þá er og f þessari ritgerð E. H. K. ítarlegri greinargerð fyrir skáldskap Gests, helditr en áður hefir verið rituð. Viðbótin er nokkur i þessari hók frá því, sem áður hefir birst í bók- arformi eftir Gest Pálsson. Er ekki eingöngu allt tekið með, sem prentaS var í fyrri útgáfum tveimur, held tr og töluvert nýtt, sem ýmist er prent- að eftir handritum höfundarins eða upp úr blöðum, sem nú eru ekki leng- ur handtoær almenningi. T. d. er fyrirlestur all-langur, sem aldrei hefir verið áður pentaður og nefnist "Nýi skáldskapurinn”. Eru þar rakt ar skoðanir höfundarins á skáldskap Islendinga frá Jónasi og Bjarna og fram til þess, er fyrirlesturinn er sam inn. Eru þar margar frumlegar at- huganir, en ýmsar þeirra niunu vita- skuld lengi orka tvímælis. En ekki er sizt skemtilegt að fá hér i hendur heilt safn af blaðagreinum Gests, þeim þeirra, sem helzt hafa almennt gildi, og ekki geta talist dægurgreinir ein- ar. Þarna er meðal annars hinn frægi ritdómur um Ljóðmæli Matth. Jochumssonar. Er hann ekki sízt merkilegur fvrir þá sök, að sumt í honum er ágætt dæmi þess, hve góður skáldskapur er miklu langlífari heldur en fyrirtaks vel ritaður dómur getur orðið, sem miðaður er of einstreng- ingslega við einhverja “skáldskapar- stefnu”. Mikið af dómi Gests stend- ur enn, en þó það sízt, er hann sjálf- ur hefir vafalaust talið gáfulegast í athugasenidum sínum. Annars get eg ekki stillt mig um að telja upp allar blaðagreinarnar, svo menn sjái hve fjöllbreytt umtalsefnin eru: Ávarp Suðra — Deild Hins ís- lenzka Bókmenntafélags í Kaupmanna höfn — Náttuglur — Breyting á reglu gerð latinuskólans — Um kosningu presta — Matth. Jochumsson: Ljóð- mæli — Benedikt Sveinsson — Bjarní rektor — Goddtemplara félagið — “Eigum við —” — Bréf frá Reykja- vik — Vestur um haf — Vonir---------- Smávegis eftir Turgenjew — Hvítir og svartir þrælar, eftir von Sohewrin — Vizkusiteinninn eftir H. Pontop- pidan. Eins og þeir kannast við, sem les- ið bafa Winnipeg útgáfuna af ritum Gests, þá er sumt af þessu þar birt, en hitt er iþó miklu markverðara, sem ekki hefir áður verið gefið út í bók. Þessar linur áttu ekki að vera neinn t itdómur um þessa bók eða neinskonar mat á rithöfundinum Gesti Pálssyni En eg held að það sé vert að benda mönnuin á bókina. Sjötíu og fimm ár voru liðin á síðasta ári frá fæðingu G. P. Sanrt er hann enn vinsælli en flestir ritihöfundar að.rir með þjÓ5 vorri. Hann var svo hressandi sjálf- stæður og ágætur listamaður, svo nap- ur og viðkvæmur, svo beiskur og full- ur samúðar, svo háður liífsskoðun, sem nú er að deyja út, en þó gat engin lífs- eða heimspekisskoðun reist skorður við heitu tilfinningalífi hans; hann er í einu orði svo einstætt fyrirbrigði í íslenzkum bókmenntum, að það er ekki líklegt, að landar hans hætti en.i um langt skeið að hafa yndi af því

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.