Heimskringla - 30.01.1929, Page 8
I. BLAÐSlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 30. JAN. 1929
Fjær
og
nær.
MESSUR
Séna Þorgeir Jónsson messar
á sunnudaginn kemur, 3. febr.
kl. 3 síðdegis, að Gimli.
THEATRE
Sarg^nt and Arlington
Went Endx
Theatre,
Flnest
Hingað komu á fimtudaginn hr.
J. K. Peterson frá Wynyard og hr.
H. Hoseason frá Mozart, Sask.
Munu þeir hafa komið bæði í við-
skiftaerindum og kynnisferð. J. K.
Peterson fór heirn aftur um helgina,
en Hóseason verður -hér eitthvað
lengur. Engar sérlegar fréttir
sögðu þeir að vestan fram yfir það,
sem áður hefir verið getið um.—
THlíR—FRI—SAT., Thl. Week
Mary Astor and
Lloyd Hughes in
“NO PLACE TO GO’’
Hoot Gibson in
Konulát
Sá sorgaratburður skeði hér í
Swan River byggðinni, 19. þ. m., að
bráðkvödd varð að heimili sínu
merkiskonan Abígael Ólafsdóttir,
kona Jóns Hrappsted, eins af braut-
ryðjendum þessarar byggðar. Abíga-
el eftirskilur ástkæran eiginmann;
•uppkomin og sjö mjög mannvænleg
börn. sártsyrgjandi ásamt öllu ná-
grenni íslendinga, og annara þjóða
fólks. I'essarar merku konu verð-
ur nánar getið í íslenzku blöðunum
í Winnipeg.
H. J. E.
Mr. Jónas Bjarnason frá Dalmany
Sask. er stadur í bænum um þessar
mundir. Er hann sér til skemtunar
hér og til þess að kynnast landanum
í Winnipeg. Hann hefir unnið eins
og berserkur síðan hann kom að
heiman 1913, og á nú heimilfcréttar
land í Marengo, Sask. A jörð sinni
býr hann þó ekki, heldur leigir hana,
enda einhleypur maður. Hann hef-
ir stöðuiga atvinnu hjá Can. Nat-
ional Railway þar vestra og sem
vænta má ferðast á fólksins kostnað.
‘THE WILD WEST
SHOW’’
Mon—Tuen—Wed. Next AVeek
“WIN THAT GIRL’’
DAVID HOI.I.IVS and
SI.E CARROL
—ALSO—
“A THIEF IN THE
Mr. Lúðvík Kristjánsson kom á
sunnudaginn var vestan frá Regina
og Saskatoon eftir máníðardvöl í
hverjum stað.
ROSE
Á fimtudaginn í þessari viku sýn-
ir Mary Astor sig í leiknum "No
Place to Go.” Fleiri afbragðs leik
arar koma fram á Rose þessa viku
og í byrjun hinnar næstu, sem hver I
rrtáður hefir yndi af að sjá leika.
Sjá auglýsinguna fyrir nöfn þeirra.
Á miðvikudagsmorguninn Var lézt
á barnaspítalanum hér í bæ Sólrún
R. Johnson, 446 Harbison ave., eftir
langa og þunga legu í barnalömunar
fári, er endaði með lungnabóligu, er
Iró hana til dauða. Hún var 14
ára að aldri. og var talin einhver
bezti nemandi Lord Selkirk skólans.
Hún var til heimilis ásamt tveim
yngri systrum sínum Aurotu og
Ragnheiði, hjá frænku sinni, Mrs.
S. Guttormsson. Faðir Sólrúnar
litlu, Gísli Johnson, sonur Gísla John
son, Wapah, Man., kom sunnan frá
Wisconsin til þess að vera viðstadd-
ur jarðarförina. er fór fram á laug-
ardaginn. Jarðsöng séra B. B.
Jónsson, D.D.—
Heimskringla vottar aðstandendum
innilega hluttekning sína.
Jóns Sigurðssonarfélagið I. O. D.
E. heldur fund föstudagskveldið 1.
feb. kl. 8 að 878 Sherburne str.,
Winnipeg. Oskað er eftir að fund-
urinn verði fjölsóttur.
FYRIRLESTUR verður haJdúrn
í kirkjunni nr. 603 Alverstone str.,
sunnudaginn 3. febr., kl. 7. síðdegis.
Uppfundingar og furðuverk nútím-
ans í ljósi hins innblásna orðs. Hvað
þýðir allt þetta? — Allir boðnir og
velkomnir.
í Virðingarfyllst,
Davið Guðbrandsson.
Leikurinn “Ljós-hús Nan” • sem
Good Templarar i/Winnipeg standa
fyrir og sýndur hefir verið tvö kveld
í þessari viku, þótti takast svo vel á
þriðjudagskveldið var, að ákveðið
hefir verið að leika hann eitt kveld
ennþá. Á mánudagskveldið kemur
gefst þér í síðasta sinni tækifæri að
sjá þenna leik, sem allt útlit er þó
fyrir að verði of vinsæll til þess
að verða ekki sýndur ^ramar. —
Munið kveldið.
Sunnudaginn 20. þ. m. andaðist í
Spanish Fork, Utah, séra Runólfur
Runólfsson 76 ára. Fór jarðarför-
in fram þ. 23. s. m. frá ísl.-lútersku
kirkjunni í Spanish Fork og var
mjög fjölmenn. Prestur frá Salt
Lake City jarðsöng.
WALKER
Ilinn fraegi enski leikari, Bransby
Williams, byrjar á mánudaginn kem-
ur að leika á Walker leikhúsinu.
Hann er ráðinn alla vikuna. Tvo
af þeim fjórum leikum sem hann kom
með heiman af Englandi, sýnir hann
hér. Fyrri hlúta vikunnar leikur
hann “The Mystery of Nicholas
Snyders,” leik saminn af Jerome K.
Jerome, höfundarins að “The Pass-
ing of the Third Floor Back,” sem
Sir Johnston Forbes-Robertson varð
frægur fyrir að sýna. Bransby Will-
iams skarar mjög fram úr í leikara
iðninni og er mjög mikils metinn sem
áhrifamikill og aðdánarvérður leik-
ari bæði í London á Englandi og í
Austur-Canada.
Seinni part vikunnar sýnir hann
“Oliver Twist” og hefir hann ráðið
öllu sjálfur með sýningu á þeim
leik. Mr. Williams er talinn að
skilja verk Dickens betur en nokkur
mnar og hefir oft haldið fyrirlestra
um skáldverk hans. Leikfélag hans
allt, ásamt Kathleen Saintsbury er
með honum.
The Westminster Glee Singers
verða á Walker fimtud., föstud. og
laugard., þ. 14, 15, og 16 febr. Þeir
hafa nýtt program fyrir hvert kveld.
Sóngvarar þessir hafa sungið í kirkj-
um og við mjög hátíðleg tækifæri á
Englandi.
...
Hingað kom rétt eftir helgina Mr.
Páll Bjarnason frá Wynyard. Dvel-
ur hann hér nokkra daga.—
Séra Friðrik A. Friðriksson kom
vestan frá Wynyard á fimtudaginn
var, frá jarðarför Odds heitins
Magnússonar. Fór séra Friðrik
suður til Chicago daginn eftir.
Séra Hjörtur J. Leó kom í gærdag
norðan frá Lundar á leið vestur til
Blaine á Kyrrahafsströnd. Mun
liann eiga að taka við söfnuði þeun
er séra Halldór E. Johnson sagði upp
þjónustunni.
BRANSBY WILLIAMS
hinn nafnkurmi enski leikari sem
verður að Walker leikhúsinu vikuna
sem byrjar 4. febr.
Herra B. Thordarson frá Gimli
hefir tekið að sér fyrir Canadian
General Realty Ltd., Islendingabygð-
irnar báðum megin við Mánitoba-
vatn og fer nú þegar um austur-bygð
ina í þarfir félagsins, en býst við
að ferðast um vestur-bygðina seinna
í vetur.
/. J. Swanson and Co. Ltd.
The Nordheimer
Apartment Upright Piano
8
Er búið til í Canada og er í mjöig miklu áliti hjá góðum
spilurum. Ágætt heimilishljóðfæri. Biðjið um að lofa yður
að sjá og heyra til þess í búð vorri.
I’etta piano hefir undur fagra cfg hreina tóna. Það er einn-
ig undur fallegt á að líta. Það hefir hinn vel þekkta Duplex
tónstiga, kopar-vafða bassa strengi, Otto Higel gerð og fílabeins
nótur. Stærð 4 fet 2 þuml. á hæð, 6 fet á lengd og 26 þuml. á
Walnut 'eða Ivory gerð. Sæti fylgir ... $595.00
Þctta vcrð cr fyrir pcninr/a út'i hönd. En á tima má einnig kaupa
það mcð lítilli auka borgun. . Piano cr einnig hœgt að kaupa mcð
litilli niðurborgun og afganginum á 10 mánuðtim eða meira.
^T. EATON C°„„„
WINNIPEG - CANADA
Tíunda Áisþing
Pjóðræknisfélagsins
verður haldið í
GOODTEMPLARAHÚSINU (við Sargent ave.) í W’peg.
27., 28. febr. og 1 ma'r)z næstkomandi
og hefst kl. 10 f. h. miðvikud. 27. febr.
Dagskrá:
/
1. Þingsetning
2. Skýrsla forseta
3. Kosning kjörbréfanefndar
4. Kosning dagskránefndar
5. Skýrslur annara embættismanna
6. Utbreiðslumál
7. Fræðslumál
8. Ubgáfa Tímaritsins
j 9. Húsabyggingarmál
10. Bóksafn
11. Iþróttamál
12. Heimfararmál
13. Löggilding
14. Breyting á stjórnarskrá
15. Kosning embættismanna
16. Ný mál
*
Almennar samkomur í sambandi við þingið verða auglýstar
síðar.
\
RAGNAR E. KVARAN,
forseti.
Frá Islandi
WALKER
(anndn's Fiiieat Theatre
Wed NEXT WEEK Sat-
Mai. * /K 1 vv t. i_ r\ MAT
...The World-Famous Character....
Actor
Bransby
Williams
And His London Company, with
K A TIILEE N S AI \ TSIII RY
Mon., Tuen., Wed., (Wed. Mat.)
In Jerome K. Jerome’s
“THE MYSTERY OF
NICHOLAS SNYDERS”
Thnr., Frl., Snt. (Sat. Mat.)
In a New Version of Chas. Dickens’
OLIVER TWIST
Evrn...... f2.00, «1.50, $1.00, 7.*»c, 50c
Wed. Sat. Mata. ... $1.00, 75c, 50c JI5c
Ritsafn Stgr. Thorsteinssonar
er komið út þessi árin. Arið
1931 eru 100 ár liðin frá fæðingu
«káldsins og er það ætlun útgefandan.s
Axels Thorsteinssonar, að ritsafn
föður hans ,alit, verði komið út fyr-
ir þann tíma. Ut eru komin þessi
rit: 1. bindi ljóðaþýðinga, Indversku
sögurnar Sakúntala og Sawitri, og
Æfintýrabókin. Nú er í prentun
2. bindi ljóðþýðinganna. Verður
ritsafn Steingríms mjög eigulegt og
þarf ekki að efa, að fólk sýnir minn-
ingu hins ágæta skálds þann heiður
að taka vel á móti þeim ritum þess,
er sonur skáldsins igefur út.
—Alþýðublaðið.
Vinnukona óskast, vön við hús-
störf og góð við börn.
Mrs. Hatincs Líndal,
912 Jessie Ave., Winnipeg.
Phone 51 397
UOSHUS NAN
Sjónleikur í þrem þáttum verður sýndur í
GOOD TEMPLARS HALL (cor. Sargent and McGee)
MÁNUD. 4. FEBR., 1929
Byrjar stundvíslega kl. 8 e.m.
i GÓÐUR, LANGUR LEIKUR
Aðgangur:50c fyrir fullorðna; 25c fyrir börn innan 12 ára
SÉRSTÖK SALA
Á FIT-RITE TAILORED
FATNAÐI 0G ULSTERS
Þú getur valið úr fatnaði í búð vorri á mjög niðursettu
verði:
Fyrlr
$15
Vanaverð $23 og $25
í>aS eru ekki mjög margir fatnaSir eftir af þessum, en finnyröu
einn sem passar þér, færtSu endingargóö föt.
Fyrir
$20
Vanaverð $28, $30 og $33
trr ógrynni er a5 velja af þessum fötum. Þau eru úr vaðmáli
og Worsteds, ein- og tvíhnept.
Fyrir
$25
Vanaverð $35 og $38
Þú veist úr hve miklu er aö velja af fötum á þessu vértii, því þatS
vita allir sem föt kaupa.
Fyrir
$30
Vanaverð -40, $43 og $45
Gullfalleg föt, ger5 úr fínasta innfluttu efni. Þau ættu allir a5
sjá.
Fyrir
$35
Vanaverð $45, $48 og $50
,Fyrir þann sem vantar verulega gó5 föt, eru engin betri en
þessi.
Fyrir
$40
Vanaverð $50, $55, $58 og $60
Fyrir þann sem vantar hi?5 bezta skozkt og enskt klæbi í föt, eins
vel tilbúin og hægt er, eru þessi föt valin.
Stiles & Humphries
Winnipegs Smart Meris Wear Shop
261 Portage Ave.( Next to Diniguvallsl
^30oooooooooooooooasooscooooooccooocooGoccoooocoB«oB<o<
WONDERLAND
THEATRE
Continuous Daily 2—11 p.m. Sat. Show starts 1 p.m.
COLLEEN MOORE in
“O H, KAY!”
Comedy and TARZAN. chapt. 14
Mon—Tues—Wed.. Feb. 4—5—6
CLARA BOW in
“THE FLEET’S IN”
Comedy and Scenic Telephone 87025