Heimskringla - 06.02.1929, Síða 4

Heimskringla - 06.02.1929, Síða 4
4. BLAÐSlÐA HEIMSKRINQLA WINNIPEG 6. FEBR. 1929 Hdittskringla (StofnoO 18H6) Kemor nt I hverjnm milivlkoiecl* EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 858 »K 855 SAHCEJIT AVB . WIJÍNIPEG TAI.SIMI: 8« T.37 V«r8 blaBMna er $3.00 árgangurlnn borg- l»t fyrlrfram. AUar borganlr sendlst THE VIKING PREKS LTD. SIGFÚS HALLÐÓRS frá Höfnum Rltstjóri. IJtanA«krtlt 411 blnb«tna: THB VIKIUiG PKKSS, 1.10.. Boi 8105 l’tnn A«krlft tll rlt«tJArnn»: KDITOK HEITISIíRIJVtiI.A, Bol 8105 WIIVNIPEG, MAN. “Heimskrlngla la pnbHshed by The Vlklntc l’re«« i.td. and prlnted by CITV PKINTING ,fc PUB1.18H MNG CO. B5S-S55 Snrtcent Ate„ NVInnlpeg. Mnn. Telephone: .80 53 7 WINNIPEG, 30. JAN. 1929 Af ástandinu á Rússlandi Maðurinn er sentímental skepna og skirrist í lengstu lög við að horfast í augu við staðreyndir, er strjúka tilfinn- ingum hans á móti háralaginu. Allt frá fyrstu árum Sovjetstjórnar- innar og árásaherferðum Kojtchak, Dene kin og Wrangels hefir varla liðið svo mán uður, að ekki hafi einhver fréttabylgjan flætt í kringum jörðina frá austri til vesturs, eða' öfugt, að nú væri Sovjet- stjórnin loksins komin á heljarþrömina; búin að komá^öllu á Rússlandi í kaldakol; Trotsky myrtur; bændurnir í uppreisn; Stalin drepinn; bændurnir í uppreisn; Stalin neyddur til þess að láta öll við- skifti í hendurnar á sérgróðahákörlum; bændurnir enn í uppreisn, o. s. frv., o. s. frv. Allt þetta vitleysuflóð stafar svo sem ekki af því, að ekki hafi verið mögulegt að afla sér betri upplýsinga, heldur af því, að stórblöðin, þjónustuandar auð- valdsins, hafa jafnan gleypt við öllu því, er blöð og pésar rússneskra landflótta- manna, keisarasinna, í París og Berlín og víðar, hafa að flytja um hið ægilega ástand á Rússlndi, til þess að halda uppi kjarkinum sín á meðal meðan beðið væri eftir því, að einhver Nikúlásinn eða Al- exanderinn kæmist á hásætið á Rúss- landi. Til dæmis um það, hversu langt þessi flónska hefir gengið má nefna það, að hið víðkunna fréttablað "The Literary Digest,’’ hefir alveg fra^i á þenna dag vitnað í “Rul”, hið svokallaða frjálslynda blað rússneskra landflóttamanna í Ber- lín, sem eitt dæmi um “Russian Opinion.” Og ætti þó ekki að þurfa jafn fjöllesna menn og ritstjóra “The Literary Digest,’’ til þess að skynja það, að blaðið “Rul” og önnur slík, hafa jafn mikil áhrif á al- menningsálitið á Rússlandi og mýfiuga hefir með sting sínum á lendar fullórðins fíls, og er álíka gildur fulltrúi Sovjetstjórn arinnar og Rússlands, sem þættist ástr- alskur halanegri tala við særingarmessur fyrir hönd Stanley Baldwin og brezku stjórnarinnar. Þá hefir mikið tillit ver- ið tekið til manna, eins og til dæmis sænsks prófessors nokkurs, hagfræðings, sem frægastir hafa orðið fyrir það, þótt sérfræðingar ættu að vera um mannfél- agsmál, að ferðast eitthvað um Rúss- land, annaðhvort fyrirfram ákveðnir í því, að sjá fjandann á veggnum í hverj- um krók og kima, eða þá hreint og beint sneyddir því viti, er þarf til þess, að koma auga á allar umbætur, er orðið hafa frá því sem verra var, meðan nokkuð er að- finnsluvert og í ólagi, en af því er auð- vitað ærið nóg á Rússlandi enn. Að vísu hafa víða birzt skynsam- legar og óvilhallar greinar eftir málsmet- andi menn, í ýpisum tímarltum og frjáls lyndum blöðuín, En þeir menn, er aldrei vilja lesa eða heyra neitt annað en það, sem þeim sjálfum er geðfeldast, kaupa lítið frjálslyud blöð, eða tímarit. sem nokkurs virði eru. Því síður dettur þeim f hug að kynna sér jafn ítarleg verk og það, sem “The Vanguard Press” í New York hefir gefið út, undir ritstjórn Jerome Davis, sem er prófessor við Yale háskólann nafnfræga. Er þar samvizku samlega lýst öllum hliðum atvinnu- og þjóðfélagsmála á Rússlandi frá 1917— 1927, ítarlegar og betur en nokkursstað- ar annarsstaðar mun hafa verið gert, enda unnu að því verki nær tuttugu manns, sérfræðingar um listir og vís- indi, atvinnumál og viðskifta. Tiltölulega fáir af þeim sentímental- istum — sem vanalega eru þeim mun viðkvæmari fyrir vitleysunni, sem þeir eru “harðsoðnari’’ á aðra lund — hafa treyst sér til þess að mæla zardæminu bót beinlínis, og ekki vogað, og þá auð- vitað sérstaklega ekki hér í Ameríku, að mæla bót opinberlega því þjóðskipulagi, er zarveldið hélt á Rússlandi, þótt í hjarta sínu finnist þeim það máske hafa verið fullgott fyrir Rússann um 1910, eða svo, sem hefði verið eitur í beinum hvers frjálsborins Ameríkumanns. Þess vegna hafa þeir, og þá aftur sérstaklega hér í Ameríku, er á sér Merkuríus fyrir vernd- arguð, beint langmestum vonum sínum í þá átt, að ráðstjórnarfyrirkomulagið væri framar öllu öðru hagfræðilega ó- framkvæmanlegt. Þess vegna hefir nú um nokku,ð langan tíma borið minna á lygasögunum uhi siðferðislegar hrelling- ar, er framkvæmdar væru samkvæmt valdboði og vilja ráðstjórnarinnar, svo sem eigna- og skírlífsnám kvenna, o. þ. h., en aftur fjölgað skáldsögunum um gjaldþrot, er annaðhvort væri þegar stað- reynd, eða biði aðeins fárra daga að verða það; um algert iðnaðarhrun og svo bændauppreisnir, er á hverju hálfu ári ,eða svo, eiga að steypa ráðstjórn- inni. (Amerísk blöð hafa alveg nýlega sagt frá einni, er væri í raun og veru ennþá voðalegri en hinar hefðu nokkurn tímá sagðar verið). Það er því ekki með öllu ófróðlegt fyrir þá, er t. d. ekki hafa kynnt sér “Vanguard Press” ritin, að kynnast skýrslu, glóðvolgri úr ofninum, er ein- mitt lýtur að iðnaðarástandi, samgöngu og viðskifta á Rússlandi. Hún er eftir gáfaðan og “harðsoðinn” Bandaríkja- mann, Albert A. Johnson að nafni. Þótt vér segðum “harðsoðinn,” bend ir það einungis til þess (en einkis verra) sem verður að segjast, þótt það kunni að láta sem Líkaböng í eyrum þeirra manna, er ekkert geta hugsað sér ótrúlegra og jafnvel hryllilegra en það, að Sovjet- stjórnin eigi eftir að komast klaklaust fram úr ölium hrakspám, að með bezta vilja, er ekki mögulegt að koma Bolshe- víkanafninu á Albert A. Johnr-on. Hann er Bandaríkjamaður, hefir lagt stund á uppeldismál og landbúnaðarhagfræði; er Hoover-sinni síðan hann var hægri hönd Hoover’s 1921; ferðaðist þá víða um á Rússlandi og sendi Hoover skýrslu þá, er varð ein aðal driffjöðrin til þess aö hrinda á stað líknarstarfi Bandaríkj- anna, er flutti nafn Hoovers um allan heim. Albert A. Johnson sá allar hörm- ungarnar þá, eins og hann segir sjálf ur: “.....á einum stað sá ég fjórar kon- ur í fæðingarhríðunum, innan um mörg hundruð manns er biðu banhungraðir, með þolinmæði sárþjáðra, og rétt hjá líkin, sem lögð höfðu verið til á jörð- inni, lík þeirra, er farist höfðu úr alls- konar fári, er skjótt vann bug á þessum úttærðu manneskjum — þarna gaf í einu Á& líta alia hringrás lífs og dauða.” — Og 1923 kom Mr. Johnson tvær ferðir aftur til Rússlands, svo hann hefir ekki við annara skýrslur eingöngu að styðjast, er hann ber saman ástandið þá, er Sov- jetstjórnin var að byrja að koma lagi á óskapnaðinn, og nú, er hann hefir dval- ið hér um bil eitt ár á Rússlandi á sí- felldum ferðalögum; farið um 20,000 míl- ur, til þess að kynnast sem ítarlegast öllum lífs- og staðháttum, stjórnarfari og atvinnuvegum. Hann fór frá Moskva 17. september og hefir síðan verið að vinna úr þeim fróðleik, er hann hefir viðað að sér. Kemst hann svo að orði,, í formála fyrir skýrslu sinni, er birt verð- ur í fjölmörgum stærstu dagblöðum Bandaríkjanna: “Með því að viða að mér hagtölum, kynna mér þær og prófa í ljósi þeirrar þekkingar, er mín eigin augu hafa sannað mér, hef ég sannfærst am ýmsar óbifanlegar og afar t ftirtekta- verðar staðreyndir um ástandið á Iiúss- landi nú sem stendur, til dæmis: 1) Rússar unnu 34,498,000 meter- tonn af kolum árið sem leið. Þetta er 17yí % meira en unnið var 1913. 2) Olíuframleiðslan nam 11,052,- 000 metertonnum, meira en nokkurn- tíma var unnið mest á ófriðarárunum, er unnið var af mestu kappi; 25% meira en 1913, og 238 % meira en 1921. 3) Innflutningur á óunninni baðm- ull frá Bandaríkjunum hefir sjöfaldast á fimm árum og nemur nú 113,910 tonn- um. 4) Hagskýrslur um höfuðiðngrein- ar sýna að framleiðsla hvers verkamanns hefir fjórfaldast á sex árum, þ. e. a. s. eftir, að landið fékk frið og endurreisnar- tímabilið hófst. Þegar verðmæti fram leiðslu hvers manns, reiknað út í rúbl- um, benti á 40 % framför frá 1913, þá leizt aðal hagstofu ríkisins bezt að hafa vaðið fyrir neðan sig, og setti í stað þess í skýrsluna, að “framleiðsla verkamanns- ins á nef hvert, væri komin langt fram úr því sem náðst hefði fyrir ófriðinn.” 5) Samskonar samanburður með tilliti til verðmætis rúblunnar fyrir ó- friðinn, sýnir að meiri framleiðsla á sér stað nú en 1913, þá er ræðir um náma- vinnu, málmhreinsun og vefnaðarvörur. Námuframleiðsla nam nú 1,245,000,000 rúblum, samanborið við 1,004,000,000 1913; Málmhreinsun 679,000,000 rúblum samanborið við 628,000,000; vefnaðar- vörur 1,569,000,000 rúblum, samanborið við 1,494,000,000 1913, allt miðað við gengi rúblunnar þá. 6) Flutningur með járnbrautum. fjárhagsárið er endaði 30. september síð. astliðinn var 40 % meiri en 1913.. Það er að segja miðað við rússneskt jafn- gildi tonn-mílunnar.* Míluflutningur hefir því nær fjórfaldast, frá því að ég var síðast á Rússlandi. Hagtölur: 1913, 3,759 miljarð púð-verstur; 1923, 1,346 miljarð púð-verstur; fjárhagsárið 1928, er endar 30. september, eins og hin, 5,- 239 miljarð púð-verstur. (1 milj. — 1000 miljónir; 1 púð — 36.1 pund; 1 versta — 0.663 rníla, eða því nær nákvæmlega tveir þriðju úr mílu). 7) Meira en þrisvar sinnum meira rafmagni — miðað við kílówatt-stundir— er nú völ á til almenningsnota en 1913. Til iðnreksturs er völ á 65 % meira en 19- 13. Raforkueyzla í mylnum og verk- smiðjum, stökk úr 281,000,000 kílówatt- stundum 1923, í 1,800,000,000 kílówatt- stundir 1927. 8) Stálbræðsla er um 10% meiri en 1913, en hefir fjórfaldast á fjórum ár um. Aukning járnframleiðslu hefir ver- ið enn örari hiutfallslega. Stálbræðsia jókst úr 61,000,000, 1924, í 234,000,000 púð 1928; járnframleiðsla úr 42,000,000, í 211.000,000 púð á parrta tíma. 9) Akuryrkja, er varð fyrir verra skakkafalli í heimsstyrjöldinni, borgara- stríð'jnum 02 hmigursneyðinni en noltk- ur cnnur iðngrein. hefir verið lengur að ná sér. Framleiðslan hefir tvöfaldast síðan 1921; er komin töluvert fram úr framleiðslunni 1917 (fyrir stjórniarbýlt- inguna), en er ekki búin að ná magni sínu frá því fyrir ófriðinn. 10) Framleiðsla helztu iðngreina, að meðtaldri framleiðsiu fæðutegunda, var fjórum og hálfu sinni meiri 1927 en 1922, og lítið eitt meiri en 1913. Hver einasta hagfræðistafla er nokk ur hagfræðingur getur dregið, sýnir stöð uga og óðrísandi línu til velmegunar frá árinu 1921, er Rússland loks sameinaðist undir Sovjetstjórninni. í þessum tíu liðum hér að framan skýía hagtölurnar frá iðnaðinum; um ýmislegt annað er vert að geta, til dæm- is: Fyrir tuttugu árum síðan neyttu verkamenn í Moskva og St. Pétursborg tvisvar sinnum meira rúgbrauðs miðað við þyngd, en þeir neyttu af mjólk, kjöt- mat, og sætmeti samtals. Árið ’26 neyttu þeir 60% meira af mjólk, kjöti og sætmeti en af rúgbrauði, og hveitibrauð var langt um tíðara orðið á borði verkamannsins. Bændurnir éta nú að meðaltali 84 pund á ári af kjöti, hver maður, samanborið við 35 pund fyr- ir( ófriðinn. Hagtölurnar staðfesta það, að óðum er að ráðast bót á því, er maður rak allsstaðar augun í 1921 og 1923, að fólk. gengi berfætt. Skóframleiðsla á Rúss- landi jókst núna síðasta árið um 56 %, og voru 23,000,000 stígvél gerð. 36,000, 000 yfirskór voru gerðir — 25 % meira en 1913. *með tonn-mílu er átt við tonn af vörum, flutt eina mílu. Kaupgjaldstölur frá níu ihelztu iðngreinum sýna að í þremur er kaupið iítið eitt lægra en 1913, en í sex iðn- greinum hærra og það svo að nemur 72% í einni. En erfitt er að bera saman, af því að í kaupgjaldinu nú er innifalin trygging gegn veikindum og at vinnuleysi, og ýms önnur hlunn indi. , Vinnutími hefir verið styttur um hér 'um bil 2 1-4 — 7 1-4 klukkustund á dag. Aðal hagsstofu ríkisins telst svo til að framleiðslukostnað- ur hafi minnkað um 5 per cent síðasta ár, en framleiðsla hvers verkamanns aukist um 15 per cent á sama tíma. Árið sem leið voru 2,553,000, 000 metr. baðmullardúka ofnir, 8 per cent meira en árið áður og 13.2 per cent meira en 1913. Ennfremur voru 97,525,000 metrar ullardúka ofnir, eða 15.8 per cent meira en árið áð- ur og því nær alveg jafn mikið og 1913. Þessar tölur benda á vakn- andi Rússland, ér að minni hyggju á eftir að taka sæti sitt á efnalegum öndvegisbekk ver- aldarinnar, og það innan skamms........ Með því að hag- nýta sér meiri raforku; með því að taka upp nýtízku aðferð ir við tóolanám; með því að koma sér upp fleiri vinnuspar- andi vélum, með skynsamlegfi skipulagningu á iðnaði sínum, berst Rússland áfram til frek ari framfara. Árið sem leið lagði Sovjet- stjórnin $550,000,000 í fyrirtæki ýmissa helztu iðngreina, og er þó ekki talið það fé er hún hef- ir lagt í hinar stórkostlegu raf- virkjanir, er hún hefir nú á döfinni. Og á yfirstandandi fjárhags- ári býst hún við að leggja $850, 000,000 í nýjar verksmiðjur, nýjar vélar og endurbættar. Eftirspurnin eftir byggingar efni er svo stórkostleg og al- menn, að í borgunum úthluta embættismenn stjórnarinnar stálbjálkum eftir því sem á dag inn kemur hvar þörfin er brýn- ust. Fjórum miljónum dala ver rússneska ríkið á yfirstandandi fjárhagsári til jarðfræðisran- sókna, til þess að grennslast eftir námum, er almennt eru taldar að séu langsamlega miklu auðugri en jafnvel nám- ur Bandaríkjanna ailar. Þegar skýrslur frá þeim ran- sóknum eru komnar stjórninni í hendur, skipuleggur hún enn á ný — með augun á djúptæk- um, almennum framförum, sam kvæmt áætlun, yfirlagðri mörg ár fram í tímann, svo að meira taki til ráðstjórnar ríkisins með ári hverju í viðskiftum verald- arinnar. Með þesskonar skipulagn- ingu á olíuframleiðslunni und- anfarin ár, hefir Rússland aft- ur tekið sæti á fremsta bekk olíuframleiðenda. Og menn skyldu hugfesta það rækiiega að olía hefir verið þungamiðjan í allri pólitízkri hringrás síðan ófriðnum mikla slotaði. Á fjórum árum hefir þessi skipulagning minnkað borun- arkostnaðinn um 57 per cent og framleiðslukostnað yfir höf uð um meira en 50 per cent. Árið 1913 var um 90 per cent af þeim 9,200,000 metertonnum er Rússland framieiddi, komið upp á yfirborðið með hinni úr- eltu “austurs’’ aðferð. Árið sem leið voru um 75 per cent af framieiðslunni, 11,052,000 metertonnum, framleidd með djúp- og þrýstidælum.” Svo mörg eru orð Mr. Al- berts A. Johnson um þessa hlið rússneska þjóðlífs, og verður vonandi engum óglatt af sann- leikanum, þótt beiskur kunni ; að virðast í fyrstu. í fullan aldarfjórðung hafa j Dodds nýrna pillur verið hÍK ! viðurtóenndiu jneðujl, við bak- 1 verk, gigt og hröðru sjúkdóm- j um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfaibú5 um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. Bækur SAGA; missirisrit; ritstjóri Þor- steinn Þ. Þorsteinsson. Fjórða ár; 2. bók. IV’peg 1928—1929. ^Columbia Press Ltd. Saga hefir náð miklum vinsældumr og að maklegleikum því hún hefir margt skemtandi og fræöandi flutt. síSan hún hóf göngu sína fyrir fjór- um árum síSan. Sjaldan eSa aldrei mun hún þó> hafa átt betri viStökur skiliS en í þetta sinn. Mest fyrir tilverknaö- ritstjóisans sjálfs, en líka fyrir ýmis- legt, er aSrir hafa lagt af mörk- um viS hana. iRitstjórinn fær þenna vitnisburö fyrir kviSuna miklu og ágætu, er hann las á Frónsmóti nýlega í fyrsta sinni: “A Þingvelli 1930,’* er fyrst verSur fyrir manni í bókinmL í níu flokkum, er allir eru prýSilega vel kveSnir, og ýmsir stórkostlega vel, svo sem t. d. fyrsti kaflinn og hinn síSasti, sálmræn lofgjörS, stór- fögur í formi og anda. VirSist kviSan einkar vel fallin til þess afr tónskáld spreyttu sig á henni og verfr ur gaman aS bera hana saman viS’ verSlaunadrápurnar aS heiman, engu síSur fyrir þaS, þótt höfundur sendi ,hana ekki heim til álits. HefSi ver- :iS gaman, ef tími hefSi unnist til og- ekki allt gengig af göflum hér út af heimferSinni, aS geta flutt þjóSbræSr um vorum heima þessa kviSu í vestur íslenzkum óSi og tónum. — En tif hvers er aS tala um þaS, sem ekki cr til, sagSi karlinn, er hann sauS nagla súpuna. Steinn H. Dofri á tvær ritgerSir um Njálu í þessu hefti Sögu. Er hin fyrii, rituS af meira iærdómi er* svo, aS ég kunni til fuils aS meía þá liliðina, og mætti ef til vill segja eitthvað álíkt um hinn síðari, era þó er ég, hamingjunni sé lof, ekkí ryðgaSri í fornsögunum en það, a‘5> þar get éig nokkurnveginn fylgst meó i snöggum lestri og get þá ekki orða bundist uin þaS, aS mér, sem ósér- fróðum en sögulesnum Islending. finnst þar fjölmargt stórvel athugað, svo aS víst má telja þá ritgerS. (“Snorri Sturluson oig Njála”), með« beztu og veigamestu ritgerðum, er “Saga” hefir flutt, ágæta til um- hugsunar hverjum manni, er les sög- urnar sér til gagns og fróðleiks. Eg: kann 'mjög vel viS stíl og orðbragS. auk þess sem allur andinn er vís- j indamannsins, sem er ósmeikur vi5 j nýjar leiSir og nýjar tilgátur, et» fullyrSir þó ekki þegar í staS, a5 hvert sitt hugboS sé rétt. Mann furðar annars stórlega á þvi, að ísland skuli hafa efni á því, að láta aSra eins athyglisgáfu á sviðum sögu og ættfræðiransókn hýrast í örbirgð hér norður á Maní tobaöræfum, og draga fram lífið á fiskireitingi og hundafóSrun, til þess- aS geta stolið fáeinum stundum til þess aS hverfa inn á þau lönd, þar sem hugurinn er allur. Og- ég vil skjóta því til einhvers eða allra góSra drenigja, er Heimskringlu lesa á Is-

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.