Heimskringla - 27.02.1929, Blaðsíða 4

Heimskringla - 27.02.1929, Blaðsíða 4
4. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 27. FEBR., 1929 "pttítntskringla (Stofnnlt 188«) Kemnr nt 1 hrerjnm mlSTlkntrfi EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 8BS t>( 855 SARGENT AVE. WIIÍNIPEG TAI.SIMIt 80 537 V«rU blaDslns er »3.00 Argangurinn bor*- lat fyrirfram. Allar borganir sendiit TKE VIKING PR-ESS LTD. SIGEÚS HALLDÓRS Irá Höfnum Rltstjórl. UlanAnkrlll tll hlabalnat TBB VIKING PIIESS, Utd-. *»l 8105 UtanAakrlft tU rlt»tJdraO»i EDITOIt HEIMSKRINGLA. Box 3105 WINNIPEG, MAN. “Helmskrlngla ls publlsbed bjr Tbe viklnir Preaa I.td. and printed by CIT Y PRINTING <fe PUBUISHkNG CO. 053-855 Snrttent A ve.. WlnnlpeK, Mnn. Teiephonet .80 58 7 WINNIPEG, 27. FEBR., 1929 “Og enn kvað hann, blessaður” Það má nú með sanni segja. Þvílík óstöðvandi demba, sem hellist úr hr. H. A. Bergman og fylgifiskum hans, í ‘‘Lög- berg,’’ út af Ingólfsmálinu. En þess er þá vert að geta um leið, að ekki er kurteis in, eða gestrisnin á þeim bæ meiri en það, að forseti Þjóðræknisfélagsins, séra Ragnar E. Kvaran, fær ekki leyfi til þess að svara opnu bréfi til félagsins þai í blaðinu. Fór hann nærri um gest- risnina, þótt fáir myndu hafa getað trú- að svo kynlegri blaðamennsku, ekki sízt er um jafn hógvært og kurteist svar var að ræða, og menn mega sjá í síðustu Heimskringlu,— Mikið af þessu “syndaflóði” Lög- bergs hefir átt að ganga út á það, að sanna að Þjóðræknisfélagið hafi aldrei haft neitt með “Ingólfsmálið” að gera, og að ég hafi jafnvel verið þeirrar skoð- unar í upþhafi. Eg skal þá sýna fram á það hve mikið er að byggja á þeim staðhæfingum, og víkja þá um leið að málinu nokkuð frekar, þótt ég héldi að ég væri búinn svo rækilega að svara, að meira þyrfti ekki við. En menn gleyma fljótt. Og þegar elgurinn er stöðvunar- laust vaðinn á eina hlið aðeins, kann les- endum að skjöplast á vöðunum. — Eg skal þá fyrst snúa mér að staðhæfing unum um það, að Þjóðræknisfélagið hafi aldrei haft með Ingólfsmálið að gera, og sýna hvílík fjarstæða það er, að ég hefi nokkurntíma verið þeirrar skoð- unar, Mínu máli til sönnunar leyfi ég mér að birta eftirfarandi útdrætti úr Heimskringlu frá þeim tíma: Úr “Til fslendinga.’’ Hkr. 24. des. 1924: “Eftir nokkrar umræður var ákveðið að fela stjórnanicfnd Þjóffrœknisfélagsins* að beita sér fyrir framgang þessa máls.” --“Mr. Hjálmar Gíslason, 637 Sargent Ave., Winnipeg, gjaldkcri stjórnarncfndar Þjóðrœknisfélaigsins* tekur á móti samskotum.” .... 1 umboði stjórnarncfndar Þjóðræknisfélags- ins* Sigfús Halldórs frá Höfnmn, ritari. Er nokkur í vafa um það, að ég hafi þegar í upphafi iitið svo á, er ég fór að rita um þetta mál, að ég skrifaði þessa hvöt sem ritari Þjóðræknisfélagsins, en ekki sem ritari einhverrar 'Tngólfsnefnd- ar”? (sem aldrei hefir verið til fyr en það æxli vex í höfðinu á hr. H. A, Bergman og einhverra fylgifiska hans — fjórtum árum eftir að Þjóðræknisfélagið hljóp undir bagga með Ingólfi Ingólfssyni). til þeirrar streitu, að einkis sé látið ófreistað, er hugsanlegt sé að gera manninum til bjarg- ar.....” Or “Mál Ingólfs Ingólfssonar,” Hkr., 7. jan. 1925. “Eins og getið var um í síðasta blaði, lagði Mr. Hjálmar Bergman á stað til Edmonton á laugardagskveldið, þann 27. desember síðastl. í sambandi við mál þetta Hann kom aftur til borgarinnar á nýársdag. Á laugardaginn var, 3. janúar, hélt stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags- ins* fund á skrifstofu hans, og á þeim fundi skýrði hann mjög ítarlega frá öllum málavöxt- um.” ..... “Nýja rannsókn í málinu virðist naumast hægt að fara fram á, því engin ný gögn eru fyrir hendi, sem ekki var vitað um, þegar málið var tekið fyrir í fyrstn* 1 umboði nefndarinnar, Hfáhnar Gíslason, Gísli Jónsson, Arnljótur Björnsson, Olson. XJr“Ingólfsmálið,” ritstjgr. í Hkr., 28 jan. 1925: “Hjálmar A. Bergman lögmaður, er nýkom- inn til baka frá Ottawa, og hefir skýrt nefnd Þjóðræknisfélagsins frá tilraunum sínutn* til að fá hinn dauðadæmda fanga náðaðan.’’....... ....“En hver svo sem hin endilegu úrslit kunna að verða, þá þakkar stjórnarnefnd Þjóð- ræknisfélagsins hinar framúrskarandi undir- tektir og alniennu þátttöku Islendinga í þessu al- varlegasta og þungbærasta máli, er félagið* hefir til þessa haft með höndum.” tlr “Dauðadómnmn breytt,” ristjgr. í Hkr 4. febr. 1925: “Tvö samhljóðandi símskeyti bárust i fyrra dag hr. Gisla Jónssyni, vara-forscta Þjóðræknis félagsins* og Hjálmari lögmanni Bergman.......” tJr fundargerningum “SjöUa Arsþing Þjóð- ræknisfélags Islcndinga í VesturheimiHkr.. 11. marz 1925: “Forseti rakti sögu Ingólfsmálsins í fáum en skýrum dráttum, frá upphafi til hinna ánægju legu úrslita: að dauðadómnum var breytt ti) æfilangs fangelsis. ....Bæru þar öllum aðiljum þakkir: Lög- manninum, sem svo ágætlega hefði með málið farið; Þjóðrœknisfélaginu, Sem ábyrgðina hefði axlað, sem cnginn annar hefði vogað að takast á hendur;* íslenzku blöðunum hér vestanhafs, sem fyrir málinu hefðu svo drengilega talað, en án þeirra hefði lítið getað orðið úr framkvæmd um fyrir félaginu.... Með árangur þann fyrir augum sem fengist hefði á þessum tveim stórmálum, (hitt var ís- lenzkukennslan) er Þjóðræknisfélagið* hefði fyrir beitzt, o. s. frv.’’ — » ----“Um annan lið urðu töluverðar umræð- ur. (Um það, að reyna að fá Ingólf færðan til Stony Mountain.) Fannst fljótt, að mörgum þótti æði var- hugavert, að binda hendur stjórnarnefndarinn- ar, að nokkru sérstöku leyti, í þessu máli, vegna þess að mjög væri þá hætt við, að með því væru Þjóðræknisfélaginu* sköpuð vandræði i viðskiftum við stjórnarvöld þessa lands. Var bent á að nefndinni hefði þegar borist fremui kuldalegt svar, frá fangelsismála-yfirvöldunum, og hefði það um leið verið fremur nöpur fyrir- spurn í þá átt, hvernig félagið hugsaði sér að endurbæta meðferð stjórnarinnar á þessum fanga. Eftir nokkra stund bar séra Ragnar E. Kvaran fram rökstudda dagskrá, með aðstoð dr. Sig. Júl. Jóhannessonar og hljóðaði hún á þessa leið: “I því trausti að stjórnarnefnd félagsins* reyni að afla sér upplýsingar um hvort ekki megi létta frekar raunir Ingólfs Ingólfssonar, o. s. frv.” Ur “Líflátsdómur,” ræðu fluttri í Sam- handskirkju, sd. 21. des., af séra R. E. Kvaran: “...Eftir því sem mér skilsf, þá hefir sér- stakur félagsskapur tekið að sér, að grafast fyrir hið sanna í því efni, og síðan, ef þarf, leita fylgis Islendinga,...” “Dauðadóinurinn,” ritstjgr. í Hkr., 7. jan. 1925: “Eins og menn sjá á öðrum stað í blaðinu, þá hefir stjórttarncfnd Þjóðræknisfélagsins* ekki setið auðum höndum i sambandi við mál það hið sorglega, sem flestum Islendingum er nú tiðræddast um — mál Ingólfs Ingólfssonar.” .....J..“vörnin hefir naumast verið mjög kapp- samlega rekin. Þetta er lögmanninum, Mr. H. Bergman, sýnilega svo einkarljóst. Og þess vegna hefir stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins* vafalaust að hans ráði, ákveðið að halda málinu ^Auðkennt hér. Á öllu þessu, hverri grein, er ég rit- aði í Heimskringlu 1924 og 1925, er þetta mál stóð yfir, sézt greinilega, frá upphafi til enda, að samkvæmt mínu áliti, er það Þjóðræknisfélagið eitt, er hefir Ingólfs- málið með höndum, og að hr. H. A. Berg- man er í þjónustu þess, hvað svo sem hann, eða liðsmenn hans vilja nú um það segja. Sama sanna þessi skilríki um alla meðnefndarmenn mína, er láta frá sér heyra, hvort heldur í Heimskringlu, eða á ársþingi Þjóðræknisfélagsins. Jafnvel *Auðkennt hér. hr. A. B. Olson, er hr. Bergman vill bregða fyrir sig því til sönnunar, að Þjóðræknisfélagið hafi aldrei haft neitt með málið að gera, skrifar undir það í Heimskringlu, með tveim samnefndar- mönnum sínum, að stjórnarnefnd Þjóð- ræknisfélagsins hafi haldið fund á skrif- stofu hr. Bergman, er hann var nýkom- inn að vestan, og hafi hr. Bergman þar lagt fram alla málavexti fyrir hana ‘‘mjög ítarlega.’’ En því var hann að skýra frá þessu á fundi stjórnarnefndar Þjóð- ræknisfélagsins, ef því kom málið ekkert við?' Séra R. E. .Kvaran lítur auðsjáan- lega strax svo á sem Þjóðræknisfélagið hafi tekið að sér málið, því ekki gat ein- hver ‘Tngöl'fsnefnd’’ kallast félagsskap- ur. Hann og dr. Sig. Júl. Jóhannesson líta svo á, á ársþingi Þjóðræknisfélags- ins, að félagið eigi að fara það með mál- ið, sem írekar verði reynt. Almennur fundur, sem Þjóðræknisfélagið kallar saman í Winnipeg, vísar frá sér málinu til þess, og skorar á menn að styrkja ÞjóðræknisfélagiS að málinu með fjár- framlögum (sbr. útdrátt úr fundargern. í Hkr., 5. des. 1928). Og svo til síðustu og skilmerkilegustu áréttingar: Eg heyrði hr Bergman lýsa því yfir, að hann héldi Þjóðræknisfélaginu ábyrgu fyrir kaupi sínu fyrir þessa málafærslu. Hann leyfði sér að lýsa mig ósannindamann að þessu. Eg lýsti hann aftur ósanninda- mann að þeirri staðhæfingu, og kvað, sem satt er, að ég hefði vitni að þeim ummælum hans. Og sú yfirlýsing mín stendur í honum fram á þenna dag. Hon- um er þar ekki auðið að komast undan sjálfum sér. Og svo læzt hann og liðsmenn hans vera hissa á því, að þáverandi stjórnar- nefnd skilar afgangi varnarsjóðsins í hendur Þjóðræknisfélagsins á ársþingi þess! Og stagast á því fram í rauðan dauðann, að Þjóðræknisfélaginu hafi aldrei komið málið neitt við! Og eru samt hinir grimmustu út af því að séra Jónas A. Sigurðsson, forseti Þjóðræknis- félagsins og eftirmaður hans, séra R. E. Kvaran skuli ekki hafa haft málið á dag- skrá, 2—4 árum síðar, eða jafnvel á hverju þingi þess! Fyr má nú rota en dauðrota. Skynsemina. Eða hvers vegna þetta sífellda argaþras lum að Þjóðræknisfélagið hafi ekki gert og geri ekki nóg fyrir Ingólf, ef því hefir aldrei komið maðurinn eða málið nokkurn skapaðan hlut við! Og svo þessar staðhæfingar að félag iö hafi ekkert fyrir Ingólf gert! Maður veit varla hvort maður á að kenna þar um ósvífni eða bláberum kjánaskap. Sann ósvífni eða bláberum kjánaskap. Sann- leikurinn er sá, að félagið hefir allt fyrir hann gert það er stofnað var til í upphafi, og meira. Því þegar handa var haf- ist, var ekki um nokkurn skapaðan hlut annan að ræða, en að sjá um, að maður- inn fengi komið fyrir sig allri vörn, er kostur var á. Þetta tók Þjóðræknisfél- agið að sér að sjá um, og fyrir þess gjörð- ir var maðurinn frelsaður frá lífláti. Og það mætti ljóst vera öllurn mönnum, og þar á meðal frænda Ingólfs, er nú sýnir Þjóðræknisfélaginu þakklæti sitt á svo sérkennilegan hátt, að mig brestur geð til þess að fara mörgum orðum um, að hefði ekki Þjóðræknisfélagið verið, þá iægi nú nafni hans og frændi með brotinn háls, í kaldri gröf. En af því*að það var til, og aðeins vegna þess, þá er hann þó á lífi, við jafngóð kjör og aðrir þeir, í Kanada, er þrátt fyrir aðgerðir duglegs lögmanns, hvort sem hann heitir H. A. Bergman, eða ekki, verða að þola sams- konar refsingu samkvæmt fullgildum 12 manna kviðdómi. Því það skulu menn ekki halda, þótt hr. Bergman hafi þarna vafalaust unnið gott lögmannsverk, sem verjandi hins dæmda, að ekki hefðu fleiri kanadiskir lögmenn, er félagið hefði getað leitað til í forföllum hr. Bergmans, getað afrekað því sama. En auk þess að útvega Ingólfi þá vörn, er frelsaði hann frá vissum dauða, hefir félagið reynt að gera það fyrir hann, sem það gat sóma síns vegna, samvizku og landslaga. Það byrjaði á því, að fá kaldar snuprur í hattinn hjá yfirvöldunum í Ottawa, og einmitt fyrir eina ráðleggingu hr. Bergmans. Það var út af líðan fangans og samastað. Séra Jónas A. Sigurðsson fékk það svar frá yfirvöldunum, er hann fór eftir annari bendingu, að. ósk þingsins, að á andlegri heilsu fangans sæi læknir engan brest \ En myndi fanganum líða bet- ur á vitlausraspítala en í fang- elsi? Og ætti félagið, hvað sem því liði, að hætta á það, að komast í verulega ónáð hjá kanadiskum stjórnarvöldum, fyrir tilraunir, er það sjálft hef- ir enga trú á, einungis til þess, að sínu áliti, að þjóna geðsmun um hr. H. A. Bergman, ef hann þarf að svala sér á Þjóðræknis- félaginu, af saupsætti við það um allt annað mál, eða yfir- leitt? Eg, að minnsta kosti get ekki láð því ef það kýs held ur frið við stjórnarvöldin sam- kvæmt samvizku sinni, en fjand skap fyrir það að breyta á móti sannfæringu sinni. — Og þá er vert að athuga dá- lítið betur þenna brennandi á- huga hr. Bergman fyrir fang- anum, og hvernig hann hefir lýst sér gagnvart honum og Þjóðræknisfélaginu. Þegar málið hefst, sér hr. Bergman í hverju blaðinu á fætur öðru, að Þjóðræknisfél agið telur sig, og er talið, standa fyrir máliitu og hafa hann í þjónustu sinni. Engin mót- mæli þá. Á þeim bólar ekki opinberlega fyr en hann hefir dregið sinn hlut á þurt land og ekki fyr en fjórum árum seinna, að hann lendir í andstöðu við félagið út af öðru máli. Hr. Bergman virðist nú helzt telja Ingólf saklausann. Eða svo skilja víst flestir orð hans þar á meðal hr. Ingólfur Jó- hannsson, er ritar svo, án þess að hr. Bergman sjái nokkra á- stæðu til þess að gera athuga- semd við: ‘‘— sem eftir skýrslu þinni virðist miklu fremur vera saklaus af ákæru þeirri, er á hann var borin, en sekur—.” Ómögulegt var fyrir nefndina, er hr. Bergman starfaði fyrir, að skilja á honum, að hann á- liti það, þótt hann benti á, sem margir gátu séð að ýmsar lík- ur, er kviðdómurinn hafði fyrir sér, væru veikar. f fjögur ár liggur hr. Bergman á þessum grun sínum, ef hann þá liefir hann. f fjögur löng ár hreyf- ir hann sig ekkert opinberlega gegn því að þessi ímyndaði sak- leysingi visni í fangelsisvist und ir brennimerki morðingjans. Hann bíður með allar opinber- ar bendingar, þangað til honum lendir saman við Þjóðræknis- félagið. Hvílík dásamleg dreng- lund. Að því er nú má skilja á skrif um hr. Bergmans, eða máske sérstaklega fylgifiska hans, þá hefir hann ætíð álitið, að Ing- ólfur ætti samskotaféð, en ekki Þjóðræknisfélagið né nokkur annar. Samt líða svo fjögur ár, að hann hefst ekki handa til að heimta féð, er hann leifði sjálfur, þessum aum ingja til handa, er hann ber svo takmarkalaust fyrir brjósti. Það er eins og hann muni ekki eftir því, fyr en hann er farinn að kljást við Þjóðræknisfélagið út af heimfararmálinu. En það má þó telja honum til máls- bóta, að hann áskilur sér í þess ari trú, ekki nema hérumbil þrjá fjórðu hluta aleigu þessa umkomuleysingja fyrír það að hjálpa til að frelsa hann frá gálganum. Von er nú, að ýmsum finnist til. Eða skyldi ekki t. d. dr. Brandson hafa aukið stórum á vinsældir sínar, ef hann hefði áskilið sér, segj- um $300. af $400. aleigu ein- hvers aumingjans fyrir að frelsa hann með læknislist sinni frá bráðum bana? Hver efast? Líklega ekki þeir, að minnsta kosti, er í ræðu og riti hafa sungið ‘‘gloríá’’ um hr. Berg- man fyrir alla umhyggjusemina í garð slysamannsins, og jafn- vel fundist honum vanborgað fyrir, að maður nú ekki tali um vanþakklætið. En í þenna eðallyndis og ó- sérplægnislofsöng blandast þó I fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurtóenndíu jneðujl, vilð bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær em til sölu í öllum lyfaibúð um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. í mínum eyrum að minnsta kosti ein rödd, sem samhljómar ekki algerlega. En þá rödd metur hr. Bergman mikils, eins og við fleiri. Röddina á hr. Stephen Thorson. En um hann kemst hr. Bergman svo að orði í Lög- bergi 14. þ. m., eins og menn muna: ‘‘Allir, sem þekkja nokk uð til hr. Stephen Thorsons„ munu viðurkenna að það er ekki ofsagt að segja, að hann sé svo stórgáfaður maður, að hann megi réttilega telja einn af hinum allra skýrustu núlif- andi Vestur-íslendingum........ Þegar hann leggur eitthvað til ..... má því æfinlega ganga út frá því sem vísu, að það sé byggt á skörpum skilningi, grandgæfilegri íhugun og ein- lægri sannfæring,.....” — Hér er ég loks sammála hr- Bergman. En hvað má nú helzt hyggja að hr. Stephen Thorson álíti um það, hverjar hvatir helzt hafi rekið hr. Berg man og liðsmenn hans út til ritverkanna um Ingólfsmálið, í sumar og vetur. Jú, hann seg ir svo: “Ef hiröskáld heimfaramefndar- innar hefði ekki farið aö yrkja um IngólfsmáliS í Heimskringlu, þá hefði það ekki komið á dagskrá í þetta sinn. Eg tel þaS alveg sjálf- sagt, aS þessi hirSskáld, eins og öll önnur hirSskáld, hafi “kunnaS að kveSa kónginum í vil,” eins og St. G. hefir komist aS orSi. Ef hirð- skáldin hefðu þagað, þá hefði Jónas Pálsson aldrei ritað sínar greinar, og ef Jónas PáLsson hefSi ekki ritaS sínar greinar, hefSi ritstjóri Heims- krin.glu ekki ritaS eins gífurlega um máliS eins og hann gerSi og scm kom Hjálmari A. Bergtnan til að rita sínar ritgerðir.” Og þarna trúi ég að hr. Stephen Thorson hafi með þeim skarpa skilningi, sem við hr. Bergman erum sammála um að hann sé gæddur, tekist að- dáanlega að grafast fyrir helztu hvatirnar, sem, auk hatursins við Þjóðræknisfélagið hafa leg- ið til grundvallar fyrir hinum eðallyndu og ósíngjörnu að- finnslum við Þjóðræknisfélagið í tilefni af Ingólfsmálinu nú undanfarið. En mér er ekki meira í nöp við hr. Bergman en það, að ég hefði vel getað unnt honum og þjóðarsæmdinni margumræddu að þær hefðu átt dálítið göfugra foreldri.— • Og af vísinum má ávöxtinn merkja. Og mér þykja vinnu brögðin sem hr. Bergman og hans ‘‘heimafólk” hafa heitt liðlangan tímann, síðan í vor sem leið, vera mjög í samræmi vð aðra drenglund í þessu máli. Eg skal að endingu leyfa mér að draga fram í birtuna sýnis- horn af þeim, tekin úr tveim síöustu greinum hr. Bergmans í “Lögbergi.” Hin fyrri er /

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.