Heimskringla - 05.06.1929, Page 4

Heimskringla - 05.06.1929, Page 4
4. BLAÐSlÐA ri L T ivf b l\ K I IM u Lft o. j ui\i, 1929 f Ifrímskríttglst (Stofnu« 1S8«) Kemur nt á hTerJum mlTJtrlkudeará- EIGENDUE: VIKING PRESS, LTD. 853 »K 855 SARGENT AVE , WIIWIPEG TALSIMI: 8« 537 V«rS blatSslns er $3.00 ftrgangurlnn borg- Ut fyrirfram. Allar boreanlr sendlst THE VITÍING PREES LTD. aiGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum Rltstjórl. UtnnAskrllt tll bla*«ls«i THB VIKIISG PRESS, L.t«Jn II"I *H>* l'tanAskrlft tll rlt»tj*rnn«i KDIl'OR HKIMSKRI.NGLA. Boi 8105 WINNIPEG, MA». “Helmskringla is published br The Vlklng Preas 1/14. and printed by CITV PHISiTIiVG A PIIBI/ISHING CO. 858-855 Sariarent Ate.. WlnnlpeK, Mnn. Telephone: .86 53 7 WINNIPEG, 5. JÚNÍ, 1929 Kosningarnar á Bretlandi Mr. Lukin Johnston, hinum brezka fregnritara conservatíva Winnipeg blaðs ins “Tribune”, hafði ekki missýnst, er hann komst svo að orði í einu fréttabréfi sínu um daginn: “HVernig sem fer í þessum kosningum, sem svo afar erfitt er aö átta sig á, þá igetur maður ekki fariö svo þversfótar, aö ekki verði maður áþreifanlega var viö þaö, að verkamannaflokk- urinn fer vaxandi dag frá degi. Hin ósleiti- lega fylgisöflun þeirra, sem enginn trafali vinn ur bug á, kemur þeim til vaida, ef ekki 1929, þá ef til vill 1934. Þaö er ekki hatur eða stétta- bardagi, sem kemur þeim ofan á. “Það er ekki skortur á konungshollustu, stjórnarbylting, né nokkuö í þá átt. Það er jniklu fremur vaknandi, öflug vissa almennings, að undir ráðsmennsku gömlu flokkanna, bjóðist honum ekki tækifæri á Englandi til jafns við verkamenn í nýlendunum handan við höfín. Þeir forðast alla tilhugsun um ofbeldisbyltinigu, ?n þeif heimta að spilin séu öll gefin að nvju.” fls . * * Spá Mr. Lukin, sem hann var auð- vitað langt frá að vera einn um, hefir j-ætzt, og það líkiega fram yfir allar von- ír jafnaðarmanna. Því enda þótt verkamenn hafi unnið flestar auka-kosn- ingar undanfarin ár, þá hafa þó liberalar unnið ekki fáar tiltölulega, auk þess, sem meirihluti conservatíva í brezka þinginu var svo gífurlegur, að ekki virtnst mikil líkindi til annars éh að þeir héldu að minnsta kosti flestum þingsætum allra flokka, ef ekki algerðum meirihluta, eins og áður. Sjálfir gerðu conservatívar ráð fyrir því, og þóttust þá hafa vaðið vel fyrir neðan sig, að hreppa 320 þing sæti; verkamenn myndu fá 220 og liberal ar um 80. En Bretar voru orðnir enn þreyttari en nálega nokkurn hefði grunað á algerðu ráðaleysi Baldwin-stjórnarinnar, að ráða fram úr atvinnuleysinu, sérstaklega að þvf er kólanámuiðnaðinn snerti. Og ekki hefir þjóðinni fallið hetur utanríkisráðs- mennskan. Hálfvelgja Sir Austen Chamberlain, sem hefir verið leiksoppur á roilli persóiiíilfegrar friðarfýsnar og ’hér' valdsstefnu flokksins, hefir skapað honum svo þungan drösul að draga í kapphlaup- inu við verkamannaframbjóðandann í kjördæmi sínu, að hann fékk aðeinS haltrað aftur í sæti sitt með hér um bil 40 atkvæða meirihluta, þrátt fyrir allan ljómann, er stafar af utanríkisráðherra- embættinu. Og flugmælska Lloyd George og lýðskrumaragáfan, sem hann er gæddur með afbrigðum, færði lionum engan veru legan vinning í aðra hönd. Hann vann allmörg þingsæti frá conservaíívum, en hann tapaði aftur víða fyrir verkamönn- um, svo að nálega stenzt á tap og vinn- ingur. Að vísu má segja að sigur hans hafi verið meiri, en unnin þingsæti segja. því hefðu hlutfahskosningar átt sér stað, myndi flokkur hans hafa hreppt töluvert á annað hundrað þingsæta samkvæmt atkvæðamagni. En þjóðin hefir auð- sjáanlega ekki lengur trú á loforðum hans, enda hpfir hún góðar ástæður til þess að álíta að iíkt myndi hafa farið um loforð hans um að binda tafarlaust enda á allt atvinnuleysi, er til efndanna kæmi, eins og þegar hann ætlaði að “hengja keisarann” hér um árið. Brezkir kjós- endur hafa áttað sig á því, að það þarf meira en sniöugann hrossakaupmann til að leiða sig á réttan veg til fyrirheitna landsins. * * * Telja má víst, að Baldwinstjómin segi af sér án þess að láta skera úr á þingi, því þótt ýmsír fylgismenn hennar æski þess helzt, þá leggst þó til dæmis “Times” á móti því, og telur sjálfsagt að fá stjórntaumana í hendur Ramsay Mac- Donald. Má því telja víst að hann myndi ráðuneyti. Hve langæ sú stjórn verð- ur er ekki gott að ætlast á, því hún verð- ur vitanlega að styðjast við fylgi Lloyd George, þótt hún hafi flestum þingsætum á að skipa allra flokka. MacDonald hefir lýst því yfir, að hann muni gera sitt ítrasta til þess að ekki þurfi fyrst um sinn að ganga til kosninga aftur. Má vera, að Lloyd George verði og að þessu sinni þægari til samvinnu en 1924, er hann felldi verkamannastjórnina frá völdum, í von um að nýjar kosningar myndu gefa sér sigur, því sú von brást herfilega, og það af því, að margir töldu, að kjósendum þótti hann enga gilda á- stæðu hafa haft til þess að fella Mac- Donald stjómina. Annars virðist meira en lítill *vafi geta á því leikið, hvort Ramsay Mac- Donald eigi að sækja fast samvinnu við Lloyd George. Frá voru sjónarmiði væri það málstað flokks hans og fram- tíð Bretlands miklu betra að láta Lloyd George fella sig aftur frá völdum heldur en að kvika nokkuð frá stefnu sinni. Því það er sæmilega víst, að við nýjar kosningar, ef þær fæm bráðlega í hönd myndi Baldwin ekki aukast fylgi, hlut- fallslega, frá því, sem nú hefur hann, og Lloyd Gerge myndi vafalítið tapa. Því mjög mikil líkindi eru til þess, að þeir liberalar, sem lengst eru til hægri, myndu greiða, oonjservati vum atkvæði sitt, en þeir, sem frjálslyndastir eru, skipa sé!1 í lið með verkamönnum, til þess að koma á traustri meirihlutastjórn, er frið gæti fengið til þess heilt kjörtímabil, að sýna hverju hún gæti áorkað. Og sannarlega væri gaman að sjá hvort það myndi ekki valda verulegum straum- hvörfum til hins betra, ekki einungis í brezku þjóðlífi, heldur og í samþjóðlegri starfsemi í Evrópu og jafnvel víðar, ef Ramsay MacDonald fengi óáreittur að fara með völdin um nokkurra ára bil, að minnsta kosti. Þrotavörnin. Margír reyndust sannspáir um það, að Lögberg myndi virða að vettugi funda- ályktunina, sem séra Guttormur Gutt- ormsson sendi báðum íslenzku blöðunum hér til birtingar um daginn, fyrir hönd safnaða sinna, svo skynsamleg og sann gjörn sem hún þó var. í síðasta tölu- blaði Heimskringlu var ekki með éinu orði vikið að deilumálunum, sökum þess að rétt þótti að sjá, hvort hugsanlegt væri að Lögberg vildi bregðast á sama ráð. En það var nú ekki alveg við það komandi á þeim bæ. Ritstj. þar dregur ekki einungis í efa hve heppileg þessi á- Iyktun muni vera.heldur lýsir því einnig yfir að sér komi “næista kynlega fyrir,” .að hún skuli hafa komið fram á þessuni tíma, og gtífUF f skyn á sínn drengiléga hátt að þái* muni liggjá fiskur undir Stéírti! Um leið hellir hanll úr sér einni ókvæðisgusunni enn á mig fyrir “róg- burð’‘(L irtin'rt um dr. Brandsort, og “sannaf1’ sitt mál um bréfabirtinguna,, rtleð því að birt.a bréf tiv. McKay, seirt Heimskrirtgla hefir áður birt, en “gleym- ir” að birta SÍðustu greinina, þar sem dr. McKay lýsir því yfir, afdráttarlaust, að Bracken forsætisráðheri'a hafi ekki heim ilað birtingu bréfanna. Og svo segir ritstjórinn að í þeim kafla bréfs dr. Mc- Kay’s, sem honum þóknast að birta sé “allan sannleikann að finna.” Hvílík blaðamennska! En til þess að tryggja sér það eins og frekast var unnt, að deilunum skyldi ekki slota, hefir blaðið meðferðis örein ?ftir Hjálmar A. Bergman K. C., ef til vill allra dónalegasta skrifið, sem enn liefir komið fram í þessum deilum frá hendi þess dánumanns, og er þá að flestra góðra manna áliti töluvert sagt. Sú grein mun eiga að vera tvennt í senn' rothögg á mannorð mitt,—eða eins og höf undurinn, lögmaðurinn valinkunni, kemst svo fagurlega að orði: “dómur, sem í eðli sínu er þyngri en líkamlegur dauðadómur,” — og varnarit fyrir dr. B. J. Brandson. Það er skemmst frá að segja, að hvorttveggja er afstyrmistilraun. Eg nenni satt að segja ekki að vera eltast við þær persónulegu svívirðingar, sem Hjálmar A. Bergman reynir að varpa að mér. Eg hefi einhvernveginn hugmynd um það, að mannorði mínu muni vera nokkurnveginn óhætt fyrir þeim heiðurs manni, í áliti þeirra, er þekkja okkur jafnt og jafnvel fleiri Vestur-íslendinga. En ég get ekki stillt mig um að benda á jafn hiægilega röksemdafærslu hjá jafn skýrum lögmanni, og sú er, sem mun að- allega eiga að ríða mér að fullu, nefni- lega þessa: að af því að ég hafi átt í deilum við Mr. Bildfell meðan hann var ritstjóri Lögbergs; greint á við hann um ýms málefni og enda sett út á ritstjórn hans, að þá ætti ég ómögulega að geta stárfað í nefnd, þar sem hann er formað- ur. Hvílík dása^mleg röksemdaijærsla! án þess að litið sé nú til þess, hvað hún kemur bréfabirtingunni við. Og af því a,ö Mr. Bildfell er formaður nefndarinn- ar, þá er ég <og auðv. aðrir meðnefnd • armenn mínir) “undirtylla.” ‘‘Undir-i tylla!” “Undirtylla!” grenjar hr. Berg- man einum tíu sinnum. Já, og á sama mælikvarða er þá Hjálmar A. Bergman, K. C., hvorki minna eða mjórra en sjálf- boða-“undirtyIla’’ hjá dr. B. J. Brandson. Sæll, nafni! lá mér við að segja, áður en ég uppgötvaði, að ég á ekki nema helm- inginn af þeirri veglegu nafnbót. En auðvitað reynir hr. Bergman að finna stað ályktun sinni um það, að ég geti ómögulega hamist í þeirri nefnd, sem hefir hr. Bildfell að^formanni, með staðhæfingu sinni um það, að ég hafi hér á árunum farið svo afar “svívirðilegum” orðum um Mr. Bildfell, að mér ætti “fél- agsins,” ættjarðarinnar” og allra hluta vegna, að vera ómögulegt “að láta það viögangast að hann héldi þeirri stöðu.” Þar greip hr. Lögmaðurinn einmitt á kýlinu! Því það er víst, að hér á árun um fór hann sjálfur langt um svívirði- legri orðum um dr. Björn B. Jónsson, en ég hefi nokkurntíma farið um Mr. Bildfell. Það var þegar hr. lögmaður- inn var að lýsa því fyrir löndum sínum, hvernig dr. Ðjörn hefði farið skrökvandi byggð úr byggð, færi vísvitandi með ó- sannindi,* o. s. frv., o. s. frv., og stakk því svo að lesendum, sem ábæti ofan á þenna þokka, að þann innri mann, sem nú væri að koma í ljós, hlyti séra Björn ein- lægt að hafa haft til að geyma. Samt veit ég ekki betur en að hr. Bergman hafi nú um alllangt skeið sótt kirkju til séra Björns og verið í söfnuði hans — æði mikið lengur en ég hefi setið í Heim- fararnefndinni með Mr. Bildfell. En hr. lögmaðurinn vill kannske halda því fram, að hann hafi haft betr- andi áhrif á dr. Björn B. Jónsson, svo að hann sé nú allur annar maður og hæfari prestur en þá. Þeir trúa því sem það virðist líklegt. En ég á von á því að rnenn lái mér ekki stórkostlega, þótt ég geri mér í hugarlund að mér leggist nokk uð líkt til nú, og dr. Birni lagðist þá, nefnilega, að það verði ekki tekið mikið mark á því, þótt hr. Hjálmar A. Bergman finni köllun hjá sér til þess að þjóna lund sinni með því að hrópa að manni þau fúkyrði og aðdróttanir, sem ég veit hann einan manna á sama menntastigi láta sér sæma. * * * Um bréfabirtingmia get ég verið fá- orður. Hártoganiriiál6 óg fólskan sem hr. Bergman !S&tur sér sæma að flétta saman í því tilefni, fá ekki hóti breytt uín það, fremur en hin “samvizkusam- lega” úrfelling Lögbergsritstjórans úrt bréfi dr. McKay, að dr. Brandson fór með bréfin í Lögberg í algerðu heimildarleysi forsætisráðhetTans og án hans vitundar. Eg sé enga ástæðu til þess að efast um það, er dr. McKay sagði okkur, að hann væri vinur dr. Brandson. Og ég er sannfærður um það, að hann er dr. Brandson engu óhollari vinur en hr. Bergman er. Og livorki hr. Bergman eða nokkur annar kemst framhjá þessum ummælum dr. McKay, í bréfinu til mín, er prentuð voru í Heimskringlu 22. maí: “Eg er yður algeGega sammála um það, að forsætisráðherra HEIMILAÐI EKKI birtingu þessara bréfa. ’ Allir þeir, sem fullt skyn bera á op- inbera siðfræði, vita vel, að það var að- eins einn einasti vegur opinn fyrir dr. Brandson, að ganga hreinlega til verks með birtingu bréfanna, eftir að forsætis- ráðherra hafði látið í Ijós við dr. McKay að hann óskaði ekki eftir því, að bréfin yrðu lögð fram í þingi, nefnilega sá, að *Auðkennt hér. dr. Brandson segði þá við dr. McKay á þessa leið: Segðu þá forsætisráðherra, að ef hann ekki óski að bréfin séu lögð fram í þingi, þá óski ég að fá þau til birtingar í Lögbergi. En ekkert þessu líkt sagði dr. Brandson, ekki einu sinni við dr. McKay, að því er hann sagði okkur sjálfur, hvað þá heldur að forsætisráðherra hefði nokkra hugmynd um það. Það er gersamiega tilgangs- laust fyrir hr. Bergman, eða hvern sem er, að vera með nokkrar vífilengjur eða láta- læti um þetta efni. Það er nú einusinni svo, að það er ekki talið góðum borgara samboðið, að birta bréf úr skjalasafni forsætisráðherra, án þess að tilkynna honum slíka fyrirætl- an, ekki sízt þegar hann hefir óskað þess, að þau yrðu ekki lögð fram opinberlega í þingi, af því að hann óttaðist deilur um þau. Undir þeim kring- umstæðum bar einmitt tvöfalda skyldu til þess að láta hann vita afdráttarlaust og hrein- skilnislega, til hvers átti að nota þau. Enda sýna þessar fólskulegu, persónulegu árásir, sem Lögberg síðan hefir verið barmafullt af, betur en nokkuð annað, að þeim, sem að þeim standa, er það fyllilega ljóst, að dr. Brandson missté sig illa. “Sannleikanum verður hver sárreiðastur.” Mr. Bergman skýrir frá því, að hann hafi sjálfur farið eftir bréfunum. Margan hafði nú satt að segja grunað, að hann hefði haft hönd í bagga með dr. Brandson og sumir meira • að segja viljað afsaka doktorinn með því. Eg sé dr. Brandson sannarlega litla eða senga af- sökun í því, hafi hann að ein- hverju leyti farið að rá^um hr. Bergmans um bréfabirtinguna. En hitt skal ég fúslega játa, að dr. Brandson er sá maður, að það er neyðar-hart aðgöngu, fyrir hann, að þurfa að láta þá stallbræður, hr. Einar Pál Jónsson og hr. Hjálmar A. Bergman, K. C., halda uppi vörn fyrir sig, á þann, sem betur fer, dæmafáa, og að flestra viti dæmalausa, hátt í vestur-ís- lenzkri blaðamennsku, sem þeir hafa gert nú undanfarið. Það er slík þrotavörn, að ég veit, að þeir, sem raunverulega er annast um dr. Brandson myndu eiga þá ósk heitasta sjálfs hans vegna, að hann tæki fyrir munninn á þeim fé- lögum eða “gerilsneyddi” hann að minnsta kosti, áður en hann leyfði þeim að nota hann til “varnar” fyrir sig. W’peg., 3. júní 1929. Sigfús Halldórs frá Höfnum. ---------X---------- Drengilegt viðvik væri það nú af þeim, er þetta blað lesa, ef þeir vildu hlaupa undir bagga með fræði- manninum góðkunna, Steini H. Dofra, er misst hefir allt sitt, í skógareldunum miklu norðan við Le Pas, eins og sjá má á öðrum stað hér í blaðinu. Al- eiga hans mun ekki hafa verið fyrirferðamikil, líklega ekkert annað en útgerðin, fyrir utan fræðibækur hans og handrit, en hún hélt honum þó við líf og samastað- Nú á hann hvergi höfði sínu að halla. En mikið þyrfti ekki hver maður að leggja af mörkum til þess að hann mætti koma sér aftur upp netjum, og einhverju húsa- skjóli, sem hverjum manni er nauðsynlegast, hversu aumt sem það kann að vera. — Heimskringla veitir fúslega við töku því er lesendur hennar kynnu góðfúslega að láta af hendi rakna í þessu skyni- w DODDS ' KIDNEY 'lí, PILLS j I fullan aldarfjórðung hafa. Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndíu meðujb við bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er- stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfabúð um á 50c askjan eða 6 öskjur" fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. Hugleiðingar. Eftir Jóti JóttSsov úr Garði Herra Ritstjóri! Aftur dettur mér i hug að sendT blaði yðar nokkrar línur, í því skynt að háttvirtum lesendum gefist kostur á að kynnast hugleiðingum mínuni! viðví’kjandi ýmsum fremur mikils- verðum atriðum í ritgerðum sumra vorra merkari blaðarithöfunda nú upp á síðkastið. Eg er ekki einn þeirra manna sem telja það óþarft að mál séu rædd til hlílar. A8 vísu eru þeir höfundar til, sem hafa sérstakt lag á að endurtaka aftur og aftur allt, sem þeir hafa sagt áður, og má vera að það þreyti suma les- endur; en við þá sömu höfunda má þó virða eljuna og ástundunarsem- ina við að koma sínum andans pró- dúktum, ekki burðugri en þau þó eru, fram fyrir almenning. Eig er þess fullviss að þeim inuni finnast miklu af sér létt, í hvert sinn, sem þeir hafa úthelt sjálfum sér a5 nýju; og má vel vera að það sé þeim sálubót, ef ekki heilsubót. Og er mönnunum þetta of gott'? vil ég spyrja. ) Eg ætla þá að víkja aftur að málir sem ég hefi minnst á lítilsháttar áð- ur, nefnilega gáfnafar manna í Ban- daríkjunum. Eg hefi mikið um það ntál hugsað. er. samt hefi ég ekki komist að á- kveðinni niðurstöðu um það, enda. er þekking mín á því máli mjög af skornum skamti og náttúrlega langt um minni en þekking þeirra, sem þar í landi búa. Rétt nýverið rakst ég á ritgerð í merku vikublaði, sem gefið er út i New York. Riígerðin er .öll nokk- uð eftirtektarverð fyrir alla þá, sem láta sér annt um sóma Bandaríkja- þjóðarinnar. Höfundur hennar er James Truslow Adams, vel þekktur sagnfræöingur og rithöfundur þar eystra. Hann kemst meðal annars svo að orði um menningarástandiS hjá þjóð sinni; “America already has, probahly, the lowest grade men- tal life of any of the great modern I nations.” Eg verð að segja að þetta kom nokkuð flatt upp á mig, Eg sé ekkí beinlínis ástæðu til þess að rengja það, því ég geri ráð fyrir að hr. Adams viti með hvað hann er að fara. En mig furðar samt á því, að maðurinn skuli segja þetta. Hvar er föðurlandsástin hjá þeim manni, sem segir þetta um þjóð sina? Það | er eins og honum liggi heiður og ! sæmd þjóðarinnar í léttu rúmi. Sér I hann ekki, að með þessu er hann að styðja málstað útlendra oflátunga, sem halda ,að þeir séu sjálfir gáf- aðri en vel flestir þeir, sem fæddir eru og upp aldir þar í landi. Adams. þessi og ef til vill örfáir aðrir í Bandaríkjunum hefðu gott af að kynnast því, sem skrifað hefir verið í Lögberg- um þetta mál. Af því gætu þeir lært að níða ekki sína eigin þjóð. En hér kemur að því, sem mörgum hefir reyndar verið lengi ljóst, að margt er skráð á voru máli,

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.