Heimskringla


Heimskringla - 26.06.1929, Qupperneq 1

Heimskringla - 26.06.1929, Qupperneq 1
FATALITUN OO IIRBINSUN BUicc Ave. and Simcoe 8tr. Slml 87344 — tvær llnur Hattar hrelnaatllr og endurnýjatlir. Betrl hreinRQB Jafnödýr. I " IÁgætustu nýtízku litunar og fatahrelna- unarstofa i Kanada. Verk unniö & 1 degi KLLICE AVK., and SIMCOB STR. Winnlpeg —t— Man. Dept. M. XLm. ÁRGAíTr,TTT» MIÐVIIKUDAGINN WINNIPEG 26. JÚNl, 1929 NÚMER 39 ’ ^('v- Fétumson jsscoocoise 45 Home ,st. -1 city ooo&soooooooooosoocoeoí F R É T TI R »SOOBOOOOOSOOOOOOOSOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO^ Velgengni Eimskipafélagsins. I gærdag barst Arna Eggertssyni fasteignasala svohljóöandi skeyti frá Reykjavík: L. C. D. Arni Eggertsson, Winnipeg Annual meeting 22-6. Re-elected >ou, Benediktsson, Halldór Thor- steinsson, elected Jón Asbjörnsson Eáfwyer. Members Board decided pay 4 p. c. Dividend. Board au- thorized build or buy one or távo steamers. Greetings Jóhannsson. Eimskip Þýðing: Arsfundur 22-6. Endurkosnir þér, Renediktsson, Hatlldór Þorsteinsson. Kosinn Jón Ásbjörnsson lögmaður. Stjórnarnefnd ákvað 4 prósenta arð- greiðslu. Nefnd heimilar byg.gingu cða kaup eins eða tveggja eimskipa. Heilsið Jóliannsson. Eimskip Þessi símfregn er vafalaust gleði- efni öllum Vestur-Islendingum, þvi K A N A D A Aukakosning til fylkisþings Mani- toba fór fram á laugardaginn var í Turtle Mountain kjördæmi. Hefir þingsætið staðið autt síðan í febr- uar í vetur, að þáverandi þingmaður, R- G. Willis (cons.) lézt. Nú fóru svo leikar að conservatívar unnu aft ur sigur og fékk þinginannsefni þeirra Alexander R. Welcli 1,327 at- kvæði en þingmannsefni framsóknar utanna og lilterala santeinaðra, Earl Campbell aðeins 995 atkvæði. Nam uteirihluti Mr. Wtelch nú 116 at- kvæðum framyfir meirihluta Mr. Willis 1927. Kosningarimman var óvenjulega fast sótt af hálfu heggja aðila. Frá Ottawa er simað 24. þ. m., að þar hafi látist daginn áður, á sunnudaginn var Right Hon. William Stevens Fielding, fyrverandi fjár- uialaráðherra, og einn af helztu stjórnmálamönnum Kanada mörg undanfarin ár. Hafði hann lengi verið veikur, enda orðinn fjörgant- all maður á 81. aldursári. Mr. Fielding sagði af sér fjár- uialaráðherra embætti ríkisins árið 1924, og hafði þá gegnt því í 15 ár samfleytt. Tólf árin þar næst a undan hafði liann samfleytt verið forsætisráðherra í Nova Scotia, en þar var hann borinn og barnfæddur. Frá Brandon er símað 21. þ. m., að á allsherjarflokksfundi conserva- tiva í Manitoba, er haldinn var þar á fimmtudaginn, hafði fylkisleiðtoga þeirra, F. G. Taylor hersi, verið greidd fullkomin traustsyfirlýsing uieð óvenjulega einróma og öflugu þakklæti fyrir handleiðslu hans á flokknum á síðasta þingi, er niest snérist um Sjö-systra málið, þrátt fyrir það, að vitanlegt var áður en arsþingið hófst, og jafnvel i byrjun þess, að tilraun myndi verða gerð af flokksbroti, héðan úr Winnipeg að sagt er, til þess að taka af honum forræði flokksins. Frá Regina er símað 21. þ. m., að Gardiner forsætisráðherra hafi farið á stúfana við framsóknarflokk inn og þingmenn hans í fylkinu, að styðja fylkisstjórnina að málunt á uæsta fylkisþingi, en að flokkurinn °g þingmennirnir hafi þverneitað þvi. á fundi, er haldinn var í Re- setn vér bezt vitum, mun þetta vera i fyrsta skifti, sem Eimskiptffélag Is- lands hefir séð sér fært að greiða arð hluthöfum sínum. Gleðin mun þó ekki nema að litlu leyti stafa af þeirri fjárupphæð, sem hluthöfum fellur í skaut, heldur fyrst og fremst ;if þeirri tilhugsun að arðgreiðslan ber þess ótvíræðan vott að nú er Eimskipafél., þessi ástmögur Islend- inga vestanhafs og austan orðið sjálf stætt og þróttmikið fyrirtæki, full- fært um að gegna þeirri köllun, er því var ætluð, eins og sjá má fyrst og fremst af því, að auk arðgreiðsl- unnar sér það sér fært, að færa út kvíarnar til muna, landi og lýð ti! blessunar. Lifi, blómgist og bless- ist það! Mr. Eggertsson biður hérlenda hlut hafa að framví.sa arðmiðum sínum fyrir árið 1928 á skrifstofu hans. 1101 McArthur Bldg., Winnipeg. Arðmiðar frá fyrri árurn koma auð- vitað ekki til greina. gina á fimmtudaginn var. Voru svohljóðandi tillögur, þvert ofan í málaleitan forsætisráðherra, sam- þykktar á fundinum, er setinn var af 40 helztu fulltrúum flokksins úr 20 kjördæmum í fylkinu. “1. Að samkvæmt áliti þessa fund ar, skuli hinir nýkosnu þingmenn vorir styðja vantraustsyfirlýsingu á hendur Gardinerstjórninni, verði slík tillaga borin fram á næsta þingi.” “2. Að framsóknarflokkurinn skuli halda sérstöðu sinni með því að neita ráðherraembættum og með því að neita að taka þátt í þingflokks- fundunt hvors gömlu flokkatma fyrir sig sem vera. skal.” Fj ær og nær. 1 santbandi við kirkjuþingið i Riverton, er hófst á föstudaginn, vild um vér geta þess, að þeir, er óska að vera viðstaddir Ikirkjuvígsluna þar á sunnudaginn (30. júní) geta tekið sér far með járnbrautarlest er fer frá C. P. R. stöðinni kl. 10.15 f. h. Geta þeir, er þurfa, komist heini til Winnipeg aftur um kveld- ið, að vígslunni lokinni. Sökum kirkjuþingsins, er hefst í Riverton nú á föstudaiginn, 28. þ. m., og stendur yfir helgina, verður eigi messað í Sambandskirkju í Winni- peg á sunnudaginn ketnur, 30. þ. m. Á laugardaginn var fóru þeir séra Ragnar E. Kvaran, séra Rögnv. Pét- ursson, Philip Pétursson, cand. theol. og Tltorv. Pétursson til Piney. Séra Röignvaldur flutti fyrirlestur þar í skólahúsinu urn Islandsferðina, en á sunnudaginn prédikuðu þeir eftir hádegi og að kveldinu séra Ragnar E. Kvaran og Philip Pétursson. Að- sókn var góð að fyrirlestrinum og báðum messunum. Séra Jónas A . Sigurðsson verður í Tantallon á sunnudaginn og flytur þar messu. Sú fregn barst hingað rétt er blað ið var að fara til prentunar, að látist hefði að morgni hins 21. júní að heimili sínu í Markerville, öldurtigí- urinn Jónas J. Húnforð, 81 árs að aldri. Hans verður nánar minnst siðar. Philip M. Petursson, B.D., Ph.B. Heimskrinigla gat þess um daginn, að nýlega hefði lokið guöfræðisnámi við Chicagoháskólann Philip M. Pétursson, sonur Mr. og Mrs. CHafs Pétursson, 45 Home St. hér í bæ. Er Philip Pétursson nú kominn hing að norður, og hefir í hyggju að skapa hér svið starfsemi sinni. Þyk- ít Heimskringlu bæði þess vegna og sökum námsferils hans, viðeigandi að kvnna lesendum sínum dálítið nánar þenna unga og efnilega mann. x Philip Markús Pétursson er fædd- ur í Roseau, Minn., 21. okt., 1902. Er hann elztur af tíu systkinum, en af þeim eru níu á lífi. Skólaménntun sína fékk Philip1 því nær alla hér í Winnipeg. Barna skólafræðslu nam hann við GreenWay skólann; miðskóla við Winnipeg Col- legiate, og lauk þar fyrsta bekkjar námi æðri skólafræðslu vorið. 1922. Næsta vetur gekk hann á kennara- skólann hér í Winnipeg. Veturinn þar á eftir, 1923—24 var hann skóla kennari í Piney, Man., og kendi næstu tvo vetur í St. Vital hér við Winnipeg. I septembermánuði 1926 fór hann ti! guðfræðisnáms við Chi- cagoháskólann, Meadville deild hans. Lauk hann prófi í vor, bæði stú- dentaprófi í heimspeki (Ph. B.) við Chicagoháslkóljann og fullnaðarprófi guðfræði (B. D.) við Meadville háskólann. Fær hann prófskírteini fyrir því síðar í sumar. Tvenn verðlaun hefir Philip fengið við nám sitt; $75 verðlaun, sem veitt eru fyr- ir framúrskararidi ræðtumennsku (Excellence in Public Speaking), og $25 verðlaun, sem veitt er fyrir fram úrskarandi utankirkjuþjónustu (Ex- cellence in Pastoral Theology, sálnia gæzlu, sem kallað var einu sinni á á Islandi). Philip hefir lagt sérstaka stund a að hlúa að gróðri hennar og ræktun utankirkju- eða útbreiðslustarfsemi (Field Work). Er það eitthvert allra mest nauðsynjanám hvers ntanns, er býr sig undir prestskap. Þegar uin haustið 1926 hóf Philip starfsemi við Henry Booth House, á horni Union og 16. strætis í Chi- cago svo að segja í miðdepli glæpa- mannahverfisins i Chicago. Var stofnun þessi byiggð af Henry Booth, Universalist kirkjumanni, í þvi skyni að leiðbeina og hjálpa þeim vesal- ingum er umhverfis búa. Gætti Phil- ip þar drengjaflokks úr umhverfinu og kenndi ensku þeim er nota vildu kennsluna einu sinni á viku. Mark- miðið er auðvitað, að halda drengj- unum frá götuflækingi oig þar af leiðandi félagsskap við éldri drengi og fullorðna, er þegar eru meira eða minna flæktir í neti glæpa og alls- konar spillingar, og glæða hjá þeim áhuga á einhverju nýtilegu. Þarna ægir öllum þjóðflokkum saman. Við enskunámið hjá Philip fengust til dæmis fjórir Mexikanar, þrír Spán verjar, þrjár Gyðingastúlkur ag svo (Frh. á 5. bls.) Um skógrækt á Islandi I fyrra vetur ræddu Vestur-ís- lendingar mikið um það, hvað þeir ættu að gera garnla landinu til gagns og sónta, er þeir heimsæktu átthagana árið 1930. Merkilegasta tillagan, sem kom fram i þessu máli var sú, að þeir hjálpuðu til þess að klæða Island skógi. Frumkvöðull þessa máls var rnaður nokkur, Björn Magn- ússon að nafni. Hefir hann alið mestan aldur sinn sent veiðimaður í Norður-Kanada og er því þaulkunn- ugur skilyrðum þeim, sem hinir víð- áttumiklu skógar eru þar háðir. Virð ast honum skilyrði þessi ólíkt verri en þau, sem ísland gæti veitt. Er það ástæðan til þess, að hann hefir komið fram með tillögu þessa. Hugmynd hans mun vera á þá leið, að Vestur-Islendingar stofni sjóð, sem verja eigi til skógræktartilrauna, og ennfremur að reyna ýmsar arner- ískar trjátegundir, er lítið eða ekk- ert hafi verið reyndar áður. I fyrstu fékk hugmyndin byr undir báða vængi, og leit út fyrir að hafist yrði handa til framkvæmda þegar í stað. En þá vildi svo til að tveir vel metnir menn heima á Islandi fundu sig knúða til þess að láta i ljós álit sitt á málinu. Skrifuðu þeir vinabréf vestur um haf og lýstu þar skógræktinni og söigu hennar á íslandi í fáuni dráttum. Alit þess- ara rnanna barst fljótt út á meðal Vestur-íslendinga, enda var kafli úr öðru bréfinu birtur í Heimskringlu. Viðtakandi bréfsins hefir bersýnilega látið blindast af ágæti bréfritarans, sem vonlegt var, því það var Guð- mundur Hannesson prófessor í lækn- isfræði við Háskóla íálands. Hinn bréfritarann hirði ég ekki um að nefna, því mér vitanlega hefir bréf hans ekki verið birt. En innihaldi beggja bréfanna var þannig varið, að þau hafa spillt mjög fyrir því að Vestur-íslendingar hæfust handa og stofnuðu skógræktarsjóð. Og hefði Björn Magnússon ekki barist fyrir þessu áhugamáli sínu af alefli, hefði það likast til kat'nað í fæðingunni. Lýsing prófessorsins á skógrækt- inni á Islandi er svo röng og vi'll- andi, að slíkt má ekki ómótmælt standa. Nú er liðið hér um bil ár síðan bréfið var birt, og vegna þess, að enginn hefir orðið til þess að svara þvi, ætla ég að sýna frani á rangfærslur G. H. og jafnframt að lýsa möguleikum í nokkrum orð- um„ Væri vel farið ef áhugi V.- lslendinga vaknaði aftur, þegar mál- inu er rétt lýst, og víst er það, að þeir geta ekki á neinn hátt sýnt ætt- jörð sinni meiri sónta, heldur en Mun vera bezt að birta aftur bréf kafla prófessorsins, svo nienn geti betur áttað sig á málavöxtum. Hann hljóðar svo: “Hugmynd ykkar að “klæða land- ið með skóg'i” er falleg en barnaskap- um. Það er margreynt að skógar- rækt hér er afar erfið, því sent næst óniöguleg. Með því að setja tréu niður í skjólsælustu stöðum og bera áburð á jörðina má fá nokkrar teg- undir til að þrífast og þó kramar- lífi, en tré sett í almennan jarðveg drepast, nema hvað birkið kann að slóra, verður þ|ó oftast dvergvaxið og kræklótt. Þið getið alls ekki bjargað ]>essu skógræktarmáli. Það litla, sem hægt er að gera í því, verð um við að gera siálfir með því að þreifa okkur áfram. Danir eru vel að sér i skógTækt og komu með plönt ur frá Danmörku og gróðursettu hér. Allt dó út. Betur gekk með plönt- ur sem aldar voru upp hér af fræi og gekk þó illa.—” Satt er það, að trjágróður á erfitt með að þrífast á íslandi og er margt sent stuðlar að þvi, en tilraunir þær, I VOR. Vér heilsum þér vinsæla vorgyðjan hýr. Vér vitum að sigur í fangi þér býr, Og veturinn frá okkur flytur. Því vonin á heimili hvar sem þú varst; í heiminn þú lífið og kærleikann barst, Við orkulind al-lífs þú situr. Á ísaláð þekktum við árstíðir tvær; Og allt sem við liðum var bundið við þær— Þótt oftar það væri nú vetur. Því lofuðu allir þann aufúsu-gest, Sem örvaði gróður og lífgaði flest; Þá leið þeim, og búnaðist, betur. Og sagan, sem mannlífið enn hefir orkt, Við andlegan vetur og samúðarskort, Er lýgi upp á höfundinn háa. Því verður að styðja þann vormanna-hóp, Sem vonin og ljósið úr sorpinu skóp, Við tilraun að lyfta því lága. Þá dregur nú óðum að deginum þeim, Sem drunganum léttir um gjörvallan heim. Svo rennur upp réttlætis-sólin. Ef andinn og vorið því haldast í hönd Mun hamingjan verma okkar framtíðar-lönd, Er sumarið stígur í stólinn. —P. B. sem gerðar hafa verið, eru hvorki svo margar né fjölbreyttar, að hægt sé að telja skóggræðslu margreynda. Og af sömu ástæðu hafa menn enn þá síður ástæðu til að álykta, að það sé því sem næst ómögulegt, eins og próf. G. H. kemst að orði. Aðaltilraunirnar til þess að græða skóg voru framkvæmdar af Dönum rétt eftir síðustu aldamót, en síðan hefir áherzlan verið lögð á að við- halda gömlum skógarleifunt og bæta þær, enda hefir fjárskortur hindrað allar frekari tilraunir. Mun vikið að því síðar hvers vegna tilraunir Dana hepnuðust ekki betur. Prófessorinn talar um skjól og á- burð sem aðalatriði fyrir trjárækt, en þannig er því tæplega varið. Próf- essor C. V. Prytz hefir skrifað á- gæta ritgerð um skógrækt á Islandi, þar sem hann tekur það skýrt fram hve vindar virðast hafa lítil áhrif á trjávöxt þar, og leyfi ég mér að vísa próf. G. H. á þá ritgerð, ef hann æsk- ir frekari upplýsinga um þetta mál*). Og áburður er heldur ekki neitt að- alskilyrði fyrir trjárækt í íslenzk- um jarðvegi, því ekki vantar frjó- semina. Hefði prófessor G. H. haft nokkra þekkingu á málinu, myndi hann hafa talið umhleypingana á vor- in og haustfrostin ásamt eðli jarð- vegsins¥,|:) aðal erfiðleikana á trjá- rækt, en áburð og skjól hefði hann talið ráð til þess að flýta þroska þeirra. Svo segir prófessorinn ennfremur, að tré sett í almennan jarðveg drep- ist, að birki undanskildu þó, en þetta er rangt, sprottið af því, hvað prófessorinn ]>ekkir lítið til þess, sem vex. Við gróðrarstöðina á Akur- eyri standa síberisk lerkitré í Holt- barði. Hafa þau aldrei notið ann- arar aðhlynningar en friðunar óg aldrei hefir áburður koniið að rót- um þeirra. Um hæð þeirra og aldur iget ég þvi miður ekki sagt að svo stöddu, en þau munu vera frá mann hæð og upp í hálfa aðra eða jafnvel meir og um tuttugu ára. Lítur út fyrir, að þau eigi eftir að vaxa mik- ið ennþá. I tilraunastöðinni við Grund i Eyjafirði stendur lika dátlítill lerki trjáalundur, sem hefir þroskast og *) C. V. Prytz: Skovdyrkninjg paa Island. Tidskrift for Skovvæsen Bd. XVII. Kbh. 1905. **) Kofoed-Hansen: Skógfræði- leg lýsing Islands, Rv. 1925. Bls. 17 og síðar. dafnað í því, sem próf. G. H. kallar almennan jarðveg. Trén munu að jafnaði vera um 3 metrar á hæð og um tuttugu ára að aldri. Allt i kring standa runnar af víði, furu, greni og ösp og eru flestir þeirra þroskalegir. Þessi tvö dæmi sýna það, að hér hefir próf. G. H. farið með rangt mál og mætti færa fram fleiri dæmi þess, að hægt sé að fá erlendar trjá- tegundir til þes sað vaxa í islenzk- um jarðvegi; en ég ætla aðeins að vísa til þess, er Sigurður Sigurðs- son búnaðarmálastjóri skrifaði í Tíniann i fyrrasumar, þar sem hann talar um tilraunastöðvar þær, er Dan- ir settu á fót: “Flest hin gróðursettu tré, sem lifðu, uxu um langt áraskeið sama sem ekkert, voru að stríða við sultarkjör og óbliða náttúru. En smátt og smátt hafa þau vanist hin- um erfiðu lífsskilyrðum og almörg þeirra sigrað í lífsbaráttunni. Og það merkilega er, að á síðustu árum liafa trén farið að vaxa álíka mikið og cðlilcgt cr við sœmilcg skilyrði. Að endingu vill prófessorinn sanna að skógrækt sé ómöguleg á Islandi vegna þess, að fyrstu tilraunirnar, sem Danir gerðu, mistókust, og af þvi að Danir eru vel að sér í skóg- rækt, þá á það heldur ekki að vera hægt fyrir aðra að gera betur. Þetta er mjög einkennileg rökfærsla og heldur léleg. En ef athugað er, hvernig stendur á því aö tilraunirnar mishepnuðust, þá verður fyrst að gæta að því, að þeir menn, sem tóku málið að sér, voru tij að byrja með, alókunnugir landsháttum og veðurfari. Þeir urðu því að þreifa sig áfram. Byrjuðu þeir með því að setja niður plöntur, er þeir höfðu með að heiman og voru álitnar harð gerðar þar. En þær reyndust ekki nógu þrautseigar, er til Islands kom, svo margar þeirra dóu út. Síðan var farið að reyna að trjátegundir úr Noregi og jafnvel Síberíu og gekk þá betur, en úr því var tilraununm hætt að mestu. Býst ég við, að prófessornum myndi þykja það lé- legt, hefðu læknavísindin lagt árar í bát fyrir tuttugu árurn og ekki að- hafst neitt síðan og ég efast um, að hann telji þá sjúkdóma, sem nú eru ólæknandi, algerlega ólæknandi um aldur og æfi. Það er sjálfsagt að halda áfram trjáræktartilraunum undir eins og fjármagn fæst og er það mikils um vert, ef Vestur-Islendingar vildu styrkja okkur með ráðum og dáð, (Frh. á 5. bls.)

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.