Heimskringla - 26.06.1929, Side 5

Heimskringla - 26.06.1929, Side 5
WINNIPEG, 26. JÚNÍ, 1929 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSCÐA uppruna, ættuð úr Húnavatns- og Eyjafjarðarsýslum. Var Sigurðuf bróðir Jóhannesar íshússtjóra Nor- dals í Reykjavík, föður Sigurðar prófessors Nordals. Þau foreldrar Jóhannesar heitins, Sigurður og Valgerður fluttust hing að til lands árið 1874 og settust fyrst að í bænum Kinmount í Ontario, en færðu sig svo þaðan, eftir nokkra dvöl, til Nova Scotia, og bjuggu i Lockeport. Þaðan fluttu þau til Winnipeg 1882 er bygð var lögð nið ur í Marklandi og Islendingar fluttu vestur. Árið 1884 færðu þau sig enn á ný og þá norður til Nýja ís- lands, námu land í norðurhluta hyggð arinnar og nefndu Norðtungu. Þar bjuggu þau til dauðadags. Börn teirra, er til aldurs komust voru átta: 1. Guðmundur: bóndi við Geysir i Nýja Islandi. 2. Sigurður: kvongaður Elizalæth Fielding, býr í Winnipeg. 3. Sigríður: dáin fyrir sex árum stðan. 4. Björg: gift Joseph Roy, býr austur í ríkjum. 5. Jón: kvæntur Valgerði Jósephs dóttur Schram, býr við Geysir í N. Islandi. 6. Mangrét: gift Snorra Jónssyni I Arborg. 7. Jane: gift Brynjólfi Sveinssyni t Arborg, og 8. Jóhannes, er hér getur. Jóhannes heitinn var fæddur i Norðtungu 10. apríl 1888, og ólzt þar upp til fulltíða aldurs. Hann var bráðþroska og bar snemma á þreki hans og starfslöngun. Svo hafa kunnugir menn sagt að frá því á unga aldri mætti svo að orði kveðá að honum hefði aldrei fallið verk úr hendi fram til hins síðasta. Hann var með afbrigðum verkhagur, og hraustmenni mikið. Stilltur i lund, en stefnufastur og ákveðinn og óreik- ull í ráði. En svo var viðmóti hans og skapi farið, að eigi aflaði hann sér óvinsælda þó eigi sveigði hann til fyrir annara skoðun er þvi var að skifta, enda eigi til þess ætl- ast af honurn. Hann var igreindur vel, framsækinn og frjálslyndur í skoðunum og naut trausts og hylli allra er honum kyntust. Arið 191?, 17. apríl„ kvongaðist hann Jóhönnu Karitas, dóttur Jósefs Jóhannssonar Schram frá Egg í Hegranesi og Kristínar Jónasdóttur Irá Harrastöðum i Dalasýslu. Reistu þau bú við Geysir og bjuggu þar fram að síðastliðnu hausti, að þau fluttu til Árborgar. Þau eignuð- nst tvær dætur, Ingunni og Kristinu, er þau misstu 4 ára gamla. Á síðastliðnum vetri fann Jóhann- es heitinn fyrst til heilsubilunar. en fjarri var það skapi hans að láta slíkt á sig fá, gekk hann því að sama verki og hann hafði stundað, en er leið fram að febrúarlokunt var svo úr þrótti hans dregið að hann matti ekki á fótum vera. 12. marz var hann fluttur in á almenna sjúkra húsið hér í bænurn og þar andaðist hann 3 dögum siðar. Lík hans var flutt norður til Árborgar og fór jarðarförin fram frá kirkju Sam- bandssafnaðarins í Árborg. Við útförina fluttu ræður þeir séra R. Pétursson frá Winnipeg ag séra Þor- geir Jónsson frá Gimli. Til hvíldar var hann lagður í grafreit Geysis- byggðar þar sem foreldrar hans og dnnur ættmenni hvíla. —R. P. --------x--------- Frá Gimli ■ Ávarp til séra SigurSar ólafsson og konu hans og barm. 14. júní 1929 Að verðugleikum heiðraði og vænt umþótti vinur séra S. Ölafsson! Saknandi, og með þannig ávarpi f'l þín, er ég þess fullviss, að hver °g einn efnasti maður og kona í þessum söfnuði, og í öllum söfnuð- um þínum, myndi við burtför þína 'héðan frá Gimli, hugsa til þín á sama hátt, og myndi persónulega vilja segja við þig, og þína góðu, Qg jafn an þér samhenta konu í öllu fögru og góðu,—með kæru þakklæti fyrir það ullt, sem hér fer á eftir: þennan allt of stutta tíma, sem þú ert búinn að þjóna í þessu víðlenda umdæmi þínu, °g kenna, eins og þér var upp á lagt “veginn til iguðs.” Og hann hefi’- þú af alúð dyggilega kennt. Ekki einasta með orðum, og af bókum, held ur jafnframt og jafnmikið, og máske mikið meira, með allri þinni ljúf- mannlegu framkomu, grandvarleika og viðeigandi hluttekningu við alla, sem á einhvern hátt voru hennar þurfandi. Og hverja stund, sent þú gazt sloppið frá þínu stöðuga ann- ríki, notaðir þú til að kenna þann- ig. Qg þessi játning okkar allra gildir bókstaflega um þína góðu, og jafnan þér samhentu konu. Og ekki má gleyma hinum fagra, og undur- hugljúfa blómareit ykkar, sem þið nú farið með frá okkur, og sem við einnig horfuni saknandi á eftir.—Það eru börnin ykkar, þau smærri og stærri.—Þau voru og eru, einnig kennintenn, án þess að þau vissu nokk uð af þvt sjálf. F.kki ósvipað þvi, sem að einn gríski spekinigurinn segir um sakleysið: “Sakleysi!” Það ertu aðeins á nieðan þú ekki þekkir þig sjálft. Og sá, sem er kennari. eða kennimaður, kennir oft bezt, þeg ar hann eða hún veit ekki af því að kennsla stendur yfir.—Þegar ég hefi verið svo heppinn að kynnast hinum ungu vinum, börnum ykkar hjón- anna, sem við nú einnig erum að kveðja—hvort sem það hefir verið inni í stofunni, þar sem ég, sem gestur, hefi einstaka sinnum drukkið kaffi,—eða hvort sem ég hefi mætt þeim drengjum og stúlkum ykkar úti á stræti,—hefir mér jafnan fund ist það nokkurskonar auka-góðgæti. —Alúðin og kurteisin frá þeirra hlið hefir verið svo fögur og náttúrleg, að mér hefir fundist að ég vera læri sveinninn, en þau kennarinn, og hef- ir sú tilfinning í hvert sinn glatt mig og gert ntér mikið gott. Og svo nú að skilnaði óskum við öll þér, séra S. Ölafsson og konu þinni og börn- um allrar guðs blessunar og ástgjafa um tínia og eilífð. —Og vottum nú öll þakklæti okkar og söknuð, með því að standa upp. Gimli 14. júni, 1929. J. Brient. Kæri herra Ritstjóri! Eins og þér sjáið er aðalefni greinar þessarár ávarp frá mér, per- sónulegt ávarp til séra S. Ölafsson- ar, við burtför hans héðan frá Gimli, sem ég ætlaði að lesa upp x samsæt- inu, en honum var haldið hér í kirkjunni 14. þ. m. En þegar ég var búinn að skrifa það, datt mér í hug: jafnvel þó að þetta sé persónu- legt ávarp, og í santhljóðan og til- finningu allra safnaða, ag safnaðar- manna hans, og okkar allra hér á Betel, þá samt gæti einhverjum, eða mörgum fundist þetta nokkurskonar framhleypni af mér, sem ekki væri líklega á nokkurn hátt, neitt sant- tengdur neinum söfnuði, nema ef það kynni að vera Betel, í Betelsöfnuði. —En svo vildi nú til að sama kveld- ið, sem samsætið var haldið hér í kirkjunni, var ég hálflasinn og gat ekki farið, og sleppti því að flytja ávarpið þar. —Þóttist ég einnig vita að þar yrði svo rnikið af safnaðar- fólki, bæði héðan frá Gimli, og úr hinum ýmsu öðrum söfnuðum, og mikið mannval til að segja ýmislagt fallegt,— að enginn myndi sakna min, til að vera þar nærstaddur, til að sitja og hlusta. Um þá sam- kontu ætla ég því ekkert að skrifa hér. Það kernur efalaust í blöðin frá niér, miklu betri mönnum, sem þar hafa verið, og átt hlut að máli.— Við þetta tækifæri, sem ég nú sendi yður, herra ritstjóri, þessa litlu grein: Frá Gimli, ætla ég ekki að gleyma því, “að við gamalfólkið hér á Betel sendum kæra kveðju okkar allra,'—og þakklæti fyrir tiu dollara gjöf.. Sumargjöf, sent að þau heiðurshjónin Mr. og Mrs. Wal- ter Johnston, Shipawa, Ont., sendu okkur gamla fólkinu, um sumarkomu leytið, til að gleðja okkur með. Þó að tíðarfarið væri þá nokkuð kalt, sáum við fljótt að kærleikur þeirra hjónanna var ekki nálægt þvi að kulna, heldur andlega hugsað og sagt: “Þar var sumar í sveitum, sumar í brjóstum heitum.” Vel sé þeim, og margfaldar þakkir fyrir það, eins og fyrir allt annað, sem hefir upptök sin frá uppsprettu kær- leikans. Fólkið hér á Betel, bæði það fólk sem fór til kirkjunnar, og hitt, sem að heima var, og ekki gat komist á samsætið, þakkar séra S. Ólafsson, fyrir allar hinar hugljúfu stundir, sern það hefir haft af allri nærveru hans hér á Betel, og óskar honum, og öll- um hans, allrar blessunar, oig heilla. Gimli 15. júní 1929. J. Briem. PHILIP M. PETURSSON (Frh. frá 1. bls.) tveir eða þrír, sem engin deili feng- ust á. Glæpsamlegt var þetta fólk ekki að innræti, aðeins ólánsbörn samtíðar og umhverfis, sem þrátt fyrir hvorutveggja voru þó að reyna að klóra í bakkann. Vor og sumar 1927 stýrði Philip sunnudagaskóla Fyrstu Unitarakirkju í Chicago. Það haust, veturinn og vorið 1928 stýrði hann sunnudaga- skóla Unity Church, Unitara kirkju! í Norðurhverfi Chicagoborgar. r Siðasta háskólaárið, frá því í okt- óber í haust þangað til í júní í vor, var Philip “námsprestur’, (Studemt Pastor) við litla kirkju í Hobart, Indiana, bæ með um 1000 íbúa, níu mílur frá Gary “stálmylnuborginni” við suðurenda Michiganvatns. Vann hann öll prestsverk þar á hverjum sunnudegi, að þvt undanteknu, að all- ir prófessorar guðfræðisskólans pré- dikuðu þar einu sinni eða tvisvar hver í vetur, og prédikaði forstöðu- maður iguðfræðisskólans, dr. SnoKv þar við síðustu messugjörð Philips. Þetta reynslunám guðfræðisnentend- anna er þeim ómetanlega nytsamt, að fá færi á að gegna ábyrgðarstarfi, hæfilegu viðfangs, t algerlega ókunnu umhverfi, áður en þeir verða fyrir alvöru að leggja út á lífsbrautina. Svo vel fór Philip þetta starf úr hendi, að einmitt fyrir það var hann sæmdur verðlaununum fyrir frarnúr- skarandi utankirkjuþjónustu, sem getið var urn hér að framan. Haustið 1926, áður en Philip fór til Chicago, gekk harín að eiga heitmey sína, ungfrú Ixtreyju Gíslason, dóttur Sigurgritns heitins Gíslasonar og eftirlifandi ekkju hans, er býr enn að 640 Agnes stræti hér í borginni. Fór frú Þórey með manni sínum til Chicago og hefir verið þar annað veifið síðan, en að hálfu með móðttr sinni hér, eða síðasta árið að mestu leyti. Eins og áður er getið er Philip nú alkominn aftur hingað norður, til þess að skapa sér hér verksvið. Byrjar hann með því að flytja há- degisguðþjónustu á ensku í Sam- bandskirkju sunnudaginn 7. júlt næst- komandi. Mun tilætlunin vera sú, að halda því áfram til hausts að minnsta kosti og njóta þá meðlimir ensku All Souls kirkjunnar prests- þjónustu hans um leið, en þeir hafa verið prestlausir nú unt undanfarið skeið. Mun hann þá jafnframt að- stoða við að skipuleggja safnaðar- starfsemi meðal hinna yngri meðlima Sambandssafnaðar. Er góðu einu óhætt að spá um framtíð þeirrar starfsemi, bæði sökum þeirrar ágætu reynslu, er Philip hefir þegar aflað sér, og þá ekki siður sökum þess, að hann er vinmargur og óvenju ást- sæll meðal jafnaldra fólks hér. Ber þar og til að hann er góður íþrótta- maður, auk þess sem hann er sjald- gæfur mannkostamaður, svo að ein- mæli er, meðal þeirra, er bezt þekkja hann, að hann megi eigi vanim sitt vita. Oskar Heimskringla honum og þeim hjónurn báðum allrar ham- ingju og blessunar við l'ramtíðar- starfið. UM SKÓGRÆKT (Frh. frá 1. bls.) Síst af öllu er ásta^Sa til þess að legjast á móti því og kemur það enn undarlegar fyrrir sjónir, þar sem G. H. stakk upp á því fyrir fáum ár- um, að stofna landbúnaðardeild við Háskólann. Þá mun þó aukin rækt un landsins hafa vakað fyrir prófess- ornum, en nú virðist hið gagnstæða uppi á teningnum. Heimur versn- andi fer! Þess ber umfrant allt að gæta við allar framtíðartilraunir, að afla fræs þaðan, sem staðhættir, veðurfar, jarð vegur, og yfirleitt öll skilyrði likj- ast sem mest íslenzkum staðháttum. Er ekki ósennilegt að slíkir staðir finn ist á suður- og vesturströnd Alaska. Þar eru víða skógi-vaxinn landflæmi. þar sem hiti og kuldi, vor og haust- frost ásamt úrkomu líkjast því, sem gerist á Islandi. Einnig er ástæða til þess að ætla, að jarðveginum svipi til íslenzks jarðvegs, því mikili hluti landsins er af líkuni uppruna og Island. Þar vaxa stórir skógar af Sitkagreni, svonefndu. Er það sú trjátegund sent bezt gefst á Fær- eyjum og hugsanlegt að það geti þrifist á suðaustur-landi, því það vex bezt nálægt sjó og þolir 240 regn og þokudaga á ári. Þar vex einnig hvítgreni, og líkur eru til, að það gæfist betur, heldur en það hvítgreni, sem reynt hefir verið til þessa, því það mun flest ættað úr miðri Norður- Ameríku, þar sem skilyrðin eru öll önnur. Þarna vaxa líka fleiri barr- og lauftré, sem of langt yrði um að ræða, en ástæða er til að reyna. Ef Vestur-Islendingar vildu flytja ein- hverjar tegundir heim með sér 1930, ættu þeir að beina athygli sinni að þessum stöðum. Nóg eru verkefnin, sem bíða heima á íslandi og vantar bara fjármagn til þess að hefjast handa, svo um muni. Það þyrfti að reyna hvort Til Viðskifta Grciðslu SJERSTAKT f ÞRJÁ DAGA AÐEINS 300 Fit Rite Skraddara KLÆÐNABUR Venjulega á $30, $32, $35 $38 Sérstakt í þrjá daga aðeins $24.50 STILES & HUMPHRIES 261 PORTAGE AVE. Rétt við Dingwalls A New Thrill In Motoring Graham-Paige HAUG MOTORS LTD. 267 Maryland St. -- Winnipeg skógur getur vaxið, þar sem víðlend- ar mýrar eru núna. Eins þyrfti að græða upp örfoka mela og berar skriður. Og á svæðum þeim, sem nú er verið að hefta sandfok á, þyrfti að fá kjarr eða skóg til að vaxa, þvi enginn gróður hlífir jarð- veginum betur gegn uppblæstri en trjágróður. A hverjum bæ þyrfti að kom upp trjá- og blómgarði, til þess að gera heimilin hlýlegri, og foreldr- ar ættu að taka upp þá venju, að gróðursetja tré i hvert skifti, sem þeim fæðist barn; og svo þegar barn ið sjálft kenist til vits og ára er tréð falið umsjá þess. A þann hátt yrði almennur áhugi vakinn fyrir skóg- ingar geta gert móðurjörð sinni, er að stofna skógræktarsjóð, sem varið væri til þess að klæða landið! Blöð íslendiniga vestan hafs eru vinsamlega Iteðin aö birta þessa grein. Kaupmannahöfn í apríl 1929. Hákon Bjarnason. WONDERLAND Er nú undir nýrri stjórn. Eins og auglýsingin ber með sér verða sýndar til að byrja með, myndirnar frægu Rin-Tin-Tin i “The Million Dollar Collar,” og Clara Bow, “Three Week Ends.” Fyrri myndin, sem rækt og mun þá íara svo að lokum að: "brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex i lundi nýrra skóga.” Og það bezta, sem Vestur-Islend- alkunnugt er, er einkar fögur og lærdómsrík fyrir unglirnga, hundurinn frægi, sem er aðal leikhetjan hrífur bæði börn og fullorðna með snilld sini og viti. Hin myndin er eink- um fvrir ungt fólk, sannnefnt ástar- æfintýri fullt af fjöri og lífsgleði. Hvers Virði Eru Fætur Yðar? Það er erfitt að svara því finnst yður ekki ? Þær erfið;’ þó nteira en flestir aðrir hlutar líkamans, svo einhvers virði hljóta þær að vera. Vanalegast hirðum vér minna um þær en vera ber, þangað til eitthvað ber út af. En þegar þær fara að hnýta, koma á þær líkþorn, fleiður, o. s. frv. þá vekja þær sjálfar athygli á sér. Verjast má flestum þessum meinsemdum eða bæta þær ef það er fgert i tíma, áður en of langt er komið. Hvernlgi menn fara að því, og hvernig þér getið gert það er útskýrt í bæklingnum “The Care of the Feet.” Bækling þennan sendum vér ókeypis til allra er þess óska. Notið eyðublaðið hér að neðan eða simið oss, 29201. MacDonald Shoe Store 494 Main Street Winnipeg, Man. MacDonald Shoe Store, 494 Main St., Winnipeg, Man. Please send your free booklet — “The Care of the Feet,” withcmt obligation, to: Nante .. Address I IS--Heilsu Vörður Barnsins Ismaðurinn er ötulasti þjónn barnsins og ísskápurinn er borg hans og vígi. Fæðutegundir, svo sem mjólk, egg, garðávextir, fuglasúpa, þurfa að geymast í kæliskáp, svo þær séu lystugar, ó- skemdar og nærandi. “Barn á heimilinu er uppsprettulind gleðinnar.” Martin —Farquhar Tupper. Er nokkurt heimili til, er á þvi láni að fagna, að hafa barn innan sinna veggja að ekki játi það sannindi þessara orða? Hvaða foreldri eru það, sem ekki reyna að uppfylla skyldur sínar gagnvart smælingjanum, sem þeim er fenginn til fósturs'? Ef þér hafið ekki kæliskáp til þess að geyma í fæðuefni barns- ins, þá látið oss senda yður þenna, ásamt ís, með skilmálum er veita yður ókeypis ís í tíu daga. SlMIÐ OG VJER SENDUM HANN! Little Favorite Með hvitgleruðum geymsluhólfum. Stærð: Hæð: 39)4, breidd 23)4 dýpt 16)4 Verð mánaðarlega með nýju borgununum ásamt 12)4 pd. af ís á hverjum degi til 30. sept. $3-50 Fæst í eikarlit aðeins. The Arctic Ice & Fuel Co. Ltd. Rcfrigcrator Headquarters 439 PORTAGE AVE., OPP. H.B.C. PHONE 42 321

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.