Heimskringla - 26.06.1929, Qupperneq 7
WINNIPEG, 26. JÚNÍ, 1929
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
Alþingishátíðin 1930.
(Frh. frá 3. siðu).
lega lítil not yröi fyrir þessi tjöld
síðar. Nefndin tók því það ráð, að
reyna að fá leigð tjöld og hefir það
tekist. Allir geta þvi fengið leigð
tjöld af þeirri stærð, sem þeir óska,
en þau verða að pantast fyrirfram,
og það sem fyrst, því að tjöldin
verða saumuð fyrir þetta tækifæri.—
Tjöldin eru af þessum stærðum: 4—
5manna, 8—10 manna og 12—15
manna og leigan fyrir allan tíman
40—60 kr. og 80 kr. eða nálægt kr
1.50 um sólarhringinn fyrir mann-
inn, því flestir munu verða 4 sólar-
hi'iniga á Þingvelli. Tjöldum fylgja
botnar, en annað ekki. 1 þessari
leigu er allt innifalið: leigan sjálf,
flutningur frá Skotlandi og til Skot-
lands aftur, flutningur frá Reykja-
vik til Þingvalla og til baka, upp-
setning og niðurtekning, og mönnum
eru tjöldin frjáls til aínota í heila
viku. Þá eru og stór samkomutjöld
eða borðsalir, þar sem 150 — 200
manns geta setið að borðum, en ná-
lega hálfu fleiri rúmast þar stand-
andi. Því stærri tjöldin eru 80 fet i
löng, en þau minni 60 feta, en hvort-
fveggja 20 feta breið. Þessi tjöla
kosta fimm og sex hundruð krónur
fyrir allan tímann, eða nálega 1 kr.
og 1.25 fyrir manninn um sólarhring
inn, ef gert er ráð fyrir þremur sól-
arhringum. Nefndin gerir ráð fyr-
ir að hvert sýslu- og bæjafélag vilji
bafa minnst eitt slíkt tjald, auk smá-
tjaldanna, sem aðallega verða svefn
tjöld. Ef nefndirnar láta hvern
mann, sem hátíðina sækir, greiða 10
br. í tjaldleigu á Þingvöllum, þá ætti
það að nægja til að greiða lika
leigxma fyrir stóra tjaldið, þar sem
þátttakan er ekki undir eitt hundrað
manns. En sjálfir fá menn ekki
að koma með tjöld, þar sem þa-
myndu verða af ýmsum gerðum og
fara illa í tjaldborginni.
Sennilega hafa allmargir mat með
sér og borða hjá sjálfum sér að ein-
bverju leyti, en nefndin mun sjá um,
að nægur matur og drykkur fáist á
staðnum. Allar slíkar veitingar,
sv0 og flutningur milli Reykjavíkur
og Þingvalla, verður undrr eftirliti
nefndarinnar, svo um ekkert okur
getur verið að ræða, sem gæti orðið
þjóðinni til vansa. Allmargir lands
menn eigu ættingja eða vini í Reykja
vik, sem myndu þrengja að sér um
þennan tima, en ráðlegt er að færa
það í tal sem fyrst. En þá er að
komast til Þingvalla og heim aftur.
Sá kostnaður fer vitanlega eftir þvi,
bvar á landinu menn búa og á hvern
hátt þeir ferðast. Nefndin mun
beita sér fyrir því, að skipafélögin
bagi ferðum sínum svo um þetta
leyti, að sem auðveldast verði að
komast til Reykjavíkur og þaðan aft-
ttr, eftir svo sem vikutíma. Um i-
vilnun á fargjöldum þorir nefndin
engu að lofa, en hún vill láta þess
getið, að henni er umhugað um, að
greiða sem mest götu landsmanna,
svo sem fæstir þurfi að sitja heima
kostnaðarins vegna. Og þegar á
það er litið, að annað eins tækifæri
fyrir landsmenn að hittast á Þing-
völlum, kemur ekki aftur fyrir í lífi
þeirra, þá er ekki óhugsandi, að
minnsta kosti æskumennirnir láti
ekki kostnaðarhliðina hamla sér frá
því að sækja hátíðina. Kostnaður-
inn fer jafnan nokkuð eftir því, hve
miklu menn vilja eyða, en dýrasta
ferðalagið er ekki ætíð það ánægju-
legasta.
FyrirkomulagiS á ÞingvöUum
1 kílometer norðaustur af Þing-
völlum eru sléttur, er Leirur nefnast.
Þær eru 27 hektarar* að stærð. I*ar
verður tjaldborgin reist. Er áætlað
að þar sé tjaldstæði fyrir 27,000
manns. Tjöldin verða reist í skipu
legri hverfingu, með stigum, vatns-
leiðslum, frárensli, o. s. frv. Tjöldin
eru öll af sömu gerð, með íslenzku
bæjarburstasniði, öll sex feta há og
8 feta breið, en 10—13 og 20 feta
löng. Fastir læknar verða á Þing-
völlum, lyfjabúð póstafgreiðsla,
bankaafgreiðála, lögreglustöð, sím^-
stöðvar, o. s. frv. Vegur fimm
metra breiður verður lagður milli
tjaldborgarinnar otg hátíðasvæðisins
¥66.7 ekrur
og ganga þar bifreiðir fram og aft-
ur allan daginn, ætlaðar þeim, er erf-
itt eiga með að ganga þessa leið.
Gangvegur verður og greiðfær. Hest-
um er ætlaður staður á norðurbakka
Almannagjáar, þar er graslendi mik-
ið og svo á Laugarvatnsvöllum og
loks á Hofmannaflöt, ef með þarf.
Allt verður þetta afgirt. Bifreiða-
torg verður gert rétt við inngang-
inn í Almannagjá og stíga þar allir
úr bifreiðunum, því engin bifreiða-
umferð verður um Þingvöll meðan
á hátíðahöldunum stendur.
Samgöngttr milli Reykjavikur
og Þingvalla
Lagður hefir verið nýr vegur til
Þingvalla og verður hann farinn
austur, en garnli vegurinn til baka.
Verður þessu stranglega fylgt, svo
umferðin gangi igreiðara og síðara
sé hætt við slysum. Gert er ráð
fyrir, að um 500 bifreiðar verði til
taks og er allmikið af þeim vöru-
flutningabifreiðir, sem útbúnar verða
til fólksflutninga. Eigi að síður tek
ur það heilan sólarhring að flytja
20,000 manns hvora leið. Fargjald
mun vera kr. 7.50—10.00 hvora leið,
því bifreiðarnar verða að fara tóm-
ar aðra leiðina.
Hvcrnig vcrSttr hátiSint
Hátíðin hefst á hinum gamla helg-
unardegi Alþingis, fimmtudaginn í
11. viku sumars, sem næsta ár ber
upp á 26 júní. Hátíðin stendur yfir
í 3 daga, (fimnttudag, föstudag og
laugardag, 26., 27. og 28. júni). Há-
tiðin hefst með guðsþjónustu, og er
ætlast til þess að allir viðstaddir
prestar verði í skrúða, en konur í
skautbúningi eða upphlut, þær, sem
þá búninga eiga. Að guðsþjónust-
unni aflokinni verður gengið í skrúð
göngu að Lögbengi, sýslu- og bæjar-
félög, svo og ýms félög, ganga þar
undir fána eða merki. Þá verður
hátiðin sett af forsætisráðherra, há-
tíðaljóðin sungin, Alþingi sett af
konungi, hljómleikar haldnir og Is-
landsglíman háð. Of fljótt og ó-
þarft að fara frekar út í dagskrána
nú. Því verður svo fyrir komið
með hátölurum, að allir geti heyrt.
Fyrir utan aðaldagskrána verður
haldið uppi allskonar skemtunum á
kveldin, svo sem með: söng, rímna-
kveðskap, bændaglimu, vikivakadansi,
dansi og hljóðfæraslætti. Þá er og
ætlaður tírni til héraðsmóta eða funda
halda. — — —
Höfttm viS cfni á aS halda slíka
hátíS?
Það hefir þegar verið hafinn
nokkur undirbúningur til þess að afla
tekna og er allt útlit fyrir að tals-
vert fáist upp í kostnaðinn, en þótt
svo væri ekki,, er óhætt að fullyrða,
að hátíðahöldin verða alltaf óbeinn
gróði fyrir landið á ýmsan hátt, og
það er jafnvel lítill vafi á því, að
meira fé kemur inn í landið en út
úr því fer. Kostnaðurinn liggur
mest í allskonar undirbúningi hér
heima, en þær krónur fara úr einum
vasa i annan innanlands. Það má
þvi fiekar segja, að við höfum ekki
efni á að láta þeta tækifæri óno‘að.
HéraSshátiSir
Net'ndin hefir orðið þess vör, að
talsverð hreyfing er viða um land
fyrir því, að haldin verði hátið heima
í hverju héraði á sama tíma og Al-
þingishátíðin. 1 fyrsta lagi yrði
það til þess að draga úr aðsókninni
að Alþlngishátíðinni og í öðru lagi
yrðu þessi mót svipminni en þau
þyrftu að vera, ef þau færu fram á
sama tíma, því ekki er ólíklegt, að
einmitt þeir menn væru á Þingvöll-
um, sem annars væru líklegastir til
að gangast fyrir slíkum héraðshátið
um og bera þær uppi. Nefndin vill
þvi einhuga reyna að aftra því, að
slikar héraðshátíðir fari fram á sama
tima og Alþingishátíðin. Aftur á
móti vill hún benda á og rnæla með
því, að þessar héraðshátíðir verði
einskonar leiðarþing, sent haldin
verði þá heim er komið af Alþingis-
hátíðinni. Gæti það þá jafnvel orð
ið einn liðurinn i skemtuninni að
sagðar yrðu fréttir þaðan. Um 1.-
000 Vestur-lslendingar sækja hátiða
höldin. Að þeim loknum dreifast
þeir unt landið til átthaga sinna;
héraðshátiðir gætu þá orðið einn
þáttur í móttöku þeirra heima fyr-
ir.
Þótt Alþingishátíðin, sem haldin
er á hinuni forna þingstað sé haldin
á sjálfan afmælisdaginn, þá er eng-
in ástæða til þess, að héraðshátíðir
séu einmitt á sama tíma. Nefndin
væntir þess því fas lega, að þær
nefndir, sem kosnar hafa verið víðs-
vegar um land fyrir hennar tilstilli,
fallist á þetta og beiti sér fyrir þvi
—Vísir.
Þátttaka crlendra rtkja
FB. 6. júní
Eins og áður hefir verið frá skýrt
hafa forsetar Alþingis boðið þingum
ýmissa ríkja- að senda fulltrúa á Al-
þingishátiðina, sem haldin verður á
Þingvöllum í júnílok næsta sumar.
Svör við bréfuin forsetanna eru
komin frá ýmsum ríkjum.
Danmörk:
Forsetar beggja málstofna þitigr,-
ins í Danmörku hafa þakkað boð
forseta Alþingis og tilkynt, að það
sé þegið, og verði síðar tilkynt,
hverjir valdir verði til fararinnar.
SvíþjóS:
Forsetar beggja málstofna þings-
ins i Svíþjóð hafa þakkað boð for-
seta Alþingis og hafa sömuleiðis til-
kynt, að það sé þegið, en seinna
verði tilkynt hverir komi á hátiðina
sem fulltrúar þingdeildanna.
Noregur:
Forseti Stórþingsins hefir þakkað
boð forseta og tilkynnir, að það sé
þegið, og að síðar verði skýrt frá,
hverir valdir verði til fararinnar.
Þýskaland:
Forseti þýzka þingsins, Löbe, hef
ir skrifað forsetum Alþingis og þakk
að fyrir boðið á Alþingishátíðina
og kveðst vona, að hægt verði að
senda tvo fulltrúa af hálfu þings-
ins.
Italta:
Fulltrúadeild þingsins í ítalíu hef-
ir með bréfi, dagsett 17. maí, þakk-
að boð forseta Alþingis og tilkynnir,
að deildin muni senda fulltrúa á Al-
þingishátíðina.
Bclgía:
Báðar deildir belgiska þingsins
hafa tilkynt, að tekið verði til athug-
unar að senda fulltrúa á Alþingishá-
tiðina og boðið þakkað.
Manitoba:
Forsætisráðherra Manitoba hefir í
bréfi, dags. 13. apríl, þakkað boð for-
seta Alþingis með mjög hlýjum orð-
um. Minnist hann á það í bréfi
sínu hve mikið Manitoba eigi Is-
lendingum og fólki af íslenzkum ætt-
um að þakka, frá því Manitoba hyigð
ist, og hafi íslenzkir menn þar ávait
getið sér hið ágætasta orð. Forsætis
ráðherrann drepur á það, að sá
“Manitoban,” sem heimskunnastur sé,
sé Islendingurinn Vilhjálmur Stef-
ánsson. Þakkar forsætisráðherrann
fyrir hönd fylkisstjórnarinnar og
Manitobabúa þann heiður, sem Mani
toba sé gerður með boði forsetanna.og
kveðst huga til þess að mikilli á-
nægju að verða, ef ástæður leyfi,
fulltrúi Manitobafylkis á Alþingis-
hátíðinni.
Nortli Daktoa:
Boð forseta Alþingis er þakkað í
bréfi, dags. 15. marz. 1 bréfinu er
svo að orði komist, að ef til vill hafi
engrar þjóðar menn reynst betur í
North Dakota en Islendingar, og
myndi North Dakota vera stolt yfir
því að veita hverskonar viðurkenn-
ingu fyrir þeirri staðreynd. Mr. Cox,
formaður nefndar þeirrar, sem hafði
boð forseta Alþinigis til athugunar,
hafði orð fyrir nefndinni í þinginu,
og mintist íslands og Islendinga
mjög hlýlega, og lagði til, fyrir hönd
nefndarirfnar, að þingið samþykkti
að þiggja boðið á Alþingishátíðina,
og var það samþykkt í einum rómi.
Austurríki:
Báðar málstofur hafa þakkað boð
forseta Alþingis og ákveðið að senda
fulltrúa á Alþingishátíðina.
Holland:
Fiorseti neðri málstofu hollénsíka
þingsins hefir með mjög fögrum orð-
um þakkað boð forseta Alþingis, en
þingsköp ekki að sendir séu fulltrúar
á hátíðina.
skýrt frá því, að því miður heimili
Isle of Man:
Landsstjórnin á Mön, sem einnig
er forseti Manarsafnsins, tilkynnir,
að hann ætli að leggja þá tillögu
fyrir þingið (Tynwald), að forseti
“The House of Keys” (hins forna
þings eyjarinnar), verði valinn sem
hinn opinberi fulltrúi Tvnwald á AI-
þingishátíðinni. En um leið fór
hann þess á leit, eins og áður hefir
verið frá skýrt, þar sem þessi hátíð
hafi sérstaka þýðingu fyrir Mön, að
senda mætti þaðan þrjá fulltrúa. Var
tilmælum þessuni svarað á þá leið,
að með því að engu þingi væri boðið
að senda fleiri en tvo fulltrúa, þættl
rétt að halda fast við þá ákvörðun.
samræmis vegna. Hinsvegar var
landstjóranum tilkynnt, að Alþingi
væri ljúft að veita viðtöku tveimur
fulltrúum frá Mön.
T ékkó-Slóvakía.
Þakkarbréf hefir borist frá þinginu
í Tékkó-Slóvakíu og tilkynnt í því
að það ætli að senda fulltrúa á A1
þingishátíðina,—Vísir.
450 ára afmælishátíð.
Kaitpniattnahafnarháskóla
Reykjav. 2. jún:
Prófessor Agúst H. Bjarnason
er nú í Kaupmannahöfn til þess
að taka þátt í 450 ára afmælishátíð
háskólans þar, fyrir hönd Hásikóla
Islands. 1 viðtali við hann, sem
blaðið Politiken flytur, segir pró-
fesosrinn, “að íslenzkir fræðimenn
séu i mikilli þakkarskuld við dönsk
vísindi, og því sé það ánægjulegt að
fá tækifæri til að sýna háskólanum (í
Kaupmannahöfn) nokkurn þakklætis
vott. Hafi því nær allir helztu at-
kvæðamenn íslenzkir ritað undir á-
varp til háskólans, lögfræðingar,
guðfræðingar, læknar, kennarar,
stjórnmálamenn, vísindamenn af öllum
stéttum og verzlunarmenn,— menn af
öllum stéttum og stigum þjóðféalgs-
ins hafi glaðst af því, að fá tækifæri
að þakka háskólanum fyrir hin ham-
ingjusömu og árangursmiklu náms-
ár, sem þeir hafi dvalið þar. Sömu-
leiðis munu ungir íslenzkir náms-
menn, sem nú dvelja við háskólann.
neyta tækifærisins til að þakka fyrir
sig. —(Ur sendiherrafregn.
(Tilkynt frá sendih. Dana.)
5. júní
450 ára afrnælishátíð háskóþins
hófst á föstudagskveld með stórri
blysför frá Christiansborg í gegnum
borgina og til Frue Plads. 200 yngri
og eldri stúdentar tóku þátt í blys-
förinni. Prófessorar háskólans tóku
á móti þeim á tröppum háskólans
Var þá sunginn blysfararsöngur eftir
dr. Jóhannes V. Jensen, en Goll rik
islögtnaður hélt ræðu fyrir háskólan-
uni. Þeirri ræðu svaraði prófessor
Hjelmslev, rektor háskólans. I>á var
rektor afhent 35 þús. króna gjafar-
bréf frá ungum og gömlum háskóla
stúdentum og á að stofna með þessu
styrktarsjóð fyrir stúdenta, sem hafa
sérstaklegar vísindalegar gáfur.
Seinna bauð bæjarstjórn til næt-
urveizlu og dansleiks í ráðhúsinu og
voru þar rúmlega 2000 gestir.
Á laugardaginn voru 26 menn frá
hinum fimm Nctrðurlömlum gerðir
að heiðursdoktorum við háskólann,
þar á meðal Bjarni Sæmundsson
Var það sérstaklega hátíðleg athöfn
og var konungur þar viðstaddur, kon
ungsfjölskyldan og fulltrúar háskól-
anna í Finnlandi, Islandi, Noregi
og Svíþjóð. Fulltrúi háskóla Is-
lands var Agúst H. Bjarnason pró-
fessor.
Á laugardagskveld sátu hinir nýju
heiðursdoktorar veizlu hjá háskóla-
prófessorunum á “Skydebanen.”
Á sunnudaginn lauk hátíðahöldun-
um með morgunveizlum hjá öllum
deildum háskólans. —Vísir.
Frá Islandi.
Kaupm.h. 2. júní
S ö ngflo kkurinn
íslenzki kom með “Gullfossi” til
Kaupmannahafnar síðastl. miðviku-
dagskveld, og fékk hinar glæsileg-
ustu móttökur. Var mikill fjöldi
Islendinga í Kaupmannahöfn þar sam
an kominn, og var sendiherra Islands
ásamt konungsritara og frúm þeirra,
þar fremstur í flokki.— Þegar skipið
lagði að landi söng flokkurinn
er et yndigt Land,’
svaraði með árnaðaróskum og bauð
söngflokkinn velkominn. Fararstjóri
(cand. jur. Björn E. Árnason) og
Sig’fús Einarsson þökkuðu móttök-
urnar.—I viðtali við blaðið “Politik-
en” lýsir hr. Sigfús Einarsson ánægju
sinni vfir þvi, að koma til Danmerk-
ur með jafn marga söngmenn í
flokki, og hafi margir þeirra eigi
komið þar fyr. Fyrir mörgum ár-
um hafi hann stjórnað íslenzkum
söngflokki í Kaupmannahöfn, en sið-
an hafi margt breyst. Fyrrum hafi
það aðeins verið stúdentaflokkur,
sem hann stjórnaði, en nú komi hann
með menn úr öllum stéttum þjóðfél-
agsins,—það sé öll íslenzka þjóðin,
sem nú syngi.—Daginn eftir var söng
flokkurinn i boði hjá sendiherra ís-
lands. i Kaupmannahöfn.
(Úr sendiherrafrétt.)
* * ¥
Kaupmannah. 3. júní
Eftir konsertinn í konunglega leik
húsinu var boð í ráðhúshöllinni.
Hafnarblöðin skrifa að Islandskórinn
sé úrvalsflokkur með aðdáanlegum
sópranrödduni. Söngur hans svo
fagur, að ekkert tók honum fram
Þúsundir áheyrenda í Forum og Kgl.
berg faðmaði tónskáldið.
Þórólfur Bcck
skipstj óri
andaðist hér i bænum í gær eftir
stutta legu. Hann veiktist í síð-
ustu hringferð Esju og var fluttur
hingað mjög þungt haldinn.
Vestmanneyjum 1. júní FB.
Slys
I nótt hrapaði maður til bana i
Geirfuglaskeri. Var hann í eggja-
leit. Maðurinn hét Sigurður Ein-
arsson, ættaður úr Norðurgarði hér,
kvæntur, lætur eftir sig konu og tvö
ung börn. Var þrjátíu og þriggja
ára að aldri.
ÞorvarSur Þorvardsson,
prentsmiðjustjóri í Gutenberg varð
sextugur 23.' þ. m.
Forstjóraskifti viS Eimskipafél.
Emil Nielsen hefir beiðst lausnar
frá starfi sínu sem forstjóri Eim-
skipafélags Islands frá næstu ára-
mótum og er ráðin neftirmaður hans
Ölafur Benjamínsson, stórkaupmað-
ur.
TÍMARNIR SKÁNA
EF BAKAÐ ER MEÐ
Vertu viss um að hafa alltaf
nægar birgðir af
HEITU VATNI
Fáðu þér
RAFMAGNS VATNS-HITARA
Vér vírum og setjum inn einn þeirra
Fullbúinn fyrir
AÐEINS QQ ÚT f HÖND
Afgangurinn gegn auðveldum skilmálum
Hotpoint Vatns-Hitari .$20.50 í peningum
Red Seal Vatns-Hitari .$19.00 í peningum
Brösun
að auki
ef þarf
WumipeöHifdro, si
55-59
PRINCESSST.
mi
848 132
848 133
BEZTU MATREIÐSLUKONUR f WINNIPEG NOTA NÚ
Ekkert kaffi er bragðbetra en
“BLUE RIBBOr
f rauðri könnu með opnara.
Der hljómsveitin stóð upp eftir Islands-
en mannfjöldinn ^ musik Sigfúsar, hyltu kór og Höe-