Heimskringla - 26.06.1929, Qupperneq 8
2. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. JÚNÍ, 1929
“Landinn ennv!
Vilhjálmur Baldur (“Babe”) Odd-
son frá Minneapolis, sonur Mr. og
Mrs. Sveins Oddsonar prentara, tók
nýlega þátt í hjólskautakappleikum
er haldnir voru í New York, a5 í-
þróttahöllinni niiklu, Madison Square
Garden. Oddson var yngstur allra
keppendanna um meistaratign Banda-
rikjanna í þessari íþrótt. Hann er
aSeins 17 ára a5 aldri. StóSu kapp-
leikarnir í sex daga og var tekiS jafnt
tillit til flýtis, listfengi og þols. Fór
3vo að Oddson vann þriðju verðlaun
og þykir afburða vel gert af svo
ungum manni. — Hann er einnig á-
gætur ísskautamaður og hockey leik-
ari.
Látinn þann 9. júni að heimili
stjúpsonar síns, Sigurðar Magnús-
son við Tantallon, Sask., Eyjólfina
Eyjóifsdóttir, ekkja Jóhannesar Magn
ússonar, 81 ára, ættuð frá Gilsárteigi
í Eyðaþinghá í N. Múlasýslu. Húr.
var systir Eyjólfs heitins Eyjólfsson
ar er hér bjó lengi í bænum og allir
eldri íslendingar kannast við.
Hingað kom á laugardagskveldið
Mr. Guðmundur Jónsson frá Vogar,
og dvelur hér sennilega fram undir
vikulokin. Inirt og kalt kvað liann
hafa verið þar j'tra og ekki gott út-
lit lengi, þangað til nú rétt undan-
farið, að töluverðar rigningar hefðu
bætt útlitið til muna.
Priðjudaginn 18. þ. m. voru þati
Clarence Lloyd Haney frá Winnipeg
og Guðlaug Wilhelmina Bjarnason
frá Langruth gefin santan í hjóna-
band af séra Rúnólfi Márteinssyni.
Hjónavígslan var framkvæmd á
heimili Mr. og Mrs. B. Hjörleifsson,
25 Fredrick Ave.. St. Vital. Mrs.
Hjjörleifsson er systir brúðarinnar.
Nánustu ættingjar og vinir brúð-
hjónanna voru viðstaddir og nutu
veizluíagnaðar. Heimili þeirra
verður í St. Vital.
Mrs. G. M. Jóhannsson, 443 Su-
jjerior St., Selkirk, Man., lagði nú
um helgina i skemtiför vestur að
hafi, í heimsókn til sonar sins, Wal-
ter E. Jóhannsson, í San Francisco,
Cal. Mr. Jóhannsson spilar við
leikhúsið “Le Captaine” þar í borg-
inni. Mrs. Jóhannsson býst við að
verða um tvo mánuði í burtu.
TIL STEINS H. DOFRA
Safmð af Helgit S. Stephanson,
Markcrville.
O. Sigurðson .................$1.00
Önefndur ...................... 100
Jóhann Björnson ............... 100
Björn Björnson ............... 1.00
Bjarni Jónsson ................ 100
Mrs. Þorbjörg Jóhannsson .... 1.00
Mrs. Rannveig Pétursson ..... 1.00
Mrs. öli Björnson ..............25
•Gnðrún Maxson ..................50
Mrs. S. Maxson .................50
Mrs. H. J. Jóhannsson ..........50
Mrs. Regina Olson ..............25
Guðm. Illugason .............. 1.00
Mrs. S. V. Benediktsson .........50
Guðrún Björnson .............. 1.00
G. S. Grimson ...................50
'Guðm. Sveinson .................25
B. Step.hanson ..................25
B. Brandson .....................25
Sigurður Grimson ............. 1.00
Helga S. Stephanson .......... 1.00
Samtals.....................$14.75
i. Nafna-listi
yfir rtöfn þess fólks við Hecla P.
O., Man., serrKgefið hefir til styrktar
Steini Dofra, sem nýverið missti al-
eigu sína í eldsvoðanum mikla við
Pt. Hudsons Bay Ry.
Safnað og sent af J. Stefánsson og
G. Kjartansson.
Jón Sigurgeirsson ........... $1.00
Márus Brynjólfsson ........... 1.00
Gústaf Sigurgeirsson ............50
H. W. Sigurgeirsson .......... 1.00
G. Tómasson .................. 1.00
H. Magnússon ............. 1.00
Mr. og Mrs. C. Tómasson ...... 2.00
'G. Guðmundsson ...................25
M. Sigurðsson ...................50
Mrs. C. P. Paulson ..............30
Mr. og Mrs. Stefánsson ....... 1.00
Stanley Stefánsson ........... 1.00
A. Amundson .....................50
Mrs. J. Halldórsson .............50
G. Halldórsson ............... .50
H. Halldórsson .................50
G. Olson ..................... 1.00
Márus Doll ................... 1.00
Mr. B. Kjartanson ............ 2.00
Jón Guðjónsson ..................40
Steini H. Sigurgeirsson ...... 1.00
Sigurgeir J. Sigurgeirson .... 1.00
Bogi Sigurgeirson ........... 1.00
Mr. og Mrs. Jón A. Kjartanson 5.00
Miss S. Grímólfson ........... 1.00
Mr. S. W. Sigurgeirson ..........50
Mr. og Mrs. P. Bjarnason ..... 1.00
Mrs. Guðlaug Eggertsson ........ 50
Mrs. Sigríður Torfason ..........50
Helgi Ásbjörnsson ...............50
Ingólfur Pálsson ............. 1.00
Vilhjálmur Ásbjörnsson ..........50
Mary Cherbanusky ................50
Mrs. B. W. Benson ...............50
Önefnd ..........................30
Mrs. H. Tohnson .................30
Mrs. J. Stefánsson .......... 1.00
Mrs. M. Helgasón ................25
Vigl. Guðmundsson ...............25
Eggert Sigurgeirsson ............50
Samtals .............. $34.0I5
Jón Eggertson, Winnipeg ...... $1.00
Sveinn Björnsson, Markham.... 2.00
Áður tekið á móti ........... $51.25
ALLS ................ $103.05
Steinn H. Dofri
Herra ritstjóri!
Vér undirritaðar biðjum vður að
birta þessar linur í blaði yðar; ásamt
gjafalista þeim, sem hér fylgir. Vér
erum yður þakklátar fyrir að hafa
vakið máls á því í Heimskringlu, að
styrkja fræðimanninn Stein Dofra
í nauðum hans. Hann dvaldi hér á
Mikley í nokkur ár,— fór héðan
burtu a ðokkur minnir, 1907—1908.
Hann var til heimilis hjá annari okk
ar (G. Kjartansson) allan þann
tima, sem hann dvaldi hér á eynni.
Var það sökum frændsemi. Hann
styrkti félagsskap Mikleyinga með
því að tala oft á samkomum. Okkur
er það kunnugt, að hann lagði afar
hart að sér í fræðigrein sinni.— sat
oft við skrift og lestur, jafnvel næt-
urnar út. — Virtist helzt, að þar
væri liann allur og óskiftur, og flest
verk önnur honum óeðlileg og fjar-
læg. Nú er hann hniginn að aldri,
og starfstíminn fer að styttast. Þó
er enginn efi á því, að mikið gæti
hann gert enn ef hann losnaði við
áhyggjurnar fyrir því að sjá lifi
sínu borgið, að fötum og fæði, því
nautna-maður er hann enginn. Eins
og kunnugt er, leikur enginn vafi
á því, að í sinni ment er St. Dofri
skapaður visindamaður. Hann hefir
í fórum sinm afar mikið af íslenzk-
um fróðleik, sem íslcnck menning má
ekki við að missa, — ofan á allt
fyrri alda tap i fornum fræðum. Við
þekkjum Dofra svo vel, persónuleiga,
að okkur kæmi ekki á óvart, þótt
hann léki sama bragð í hinsta sinn,
eins og Egil! Skallagrimsson, sem
hann rekur ætt sína til, að hann
sökkti kistum sinum í fen nokkur,
svo enginn hefði þeirra not; áliti
það maklega hefnd fyrir skeytingar-
leysi Islendinga á fróðleik hans, og
væri slíkt illa farið.
Af þessari ástæðu langar okkur
til þess, að biðja yður, ritstjóri góð-
ur, að skrifa itarlega um Stein Dofra;
ástæður hans nú, og afstöðu til ís-
lenzkrar menningar. Hvort þér
kjósið heldur að snúa yður til nienta-
ráðs íslands, eða skrifa í blað yðar,
þessu viðvikjandi, sjáið þér betur en
við. Annað væfi jafn nauðsynlegt;
að ná Dofra utan úr óbyggðum þess-
um, áður en hann sveltur þar í hel.
Stæði næst Þjóðræknisfélagi íslend-
inga i Vesturheimi, að ná honurn
þaðan og geyma hann i góðu yfir-
læti, þar til Islendingar heima kæmu
með sínar ráðstafanir til liðs honum.
Er þar gott tækifæri fyrir það (Þj.-
ræknisfél.) að sýna viljann í verki.
Ættfræði og annar forn-fróðleikur
er einn sterkasti þáttur þjóðernis
allra landa. Þjóð, sem glatar for-
tíð sinni, er eins og maður, sem tap-
ar minni á sinni liðnu æfi; þó að
hann geti tekið þátt í líðandi tíð,
verður hann samt aumingi ög utan-
veltu.
Hér dugar ekkert kák. Annaðhvort
er maðurinn þess virði að Islend-
ingar geti fætt hann og klætt, þau
ár, sem hann á eftir að lifa, eða þá
langlæzt er að láta hann deyja þar
norðurírá, og minnast svo aldrei á
hann framar, þar sem islenzk tunga
er töluð! En vantraustsyfirlýsing
verður það, engu að síður, á íslenzka
þjóðmenning, bæði austan hafs og
vestan, ef slikt eftirminnilegt óhapp
kæmi fyrir.
Með vinsemd og virðing,
Guðrún B. Kjartanson
Jakobína J. Stefánsson.
20. júní, 1929.
Hecla P. O., Man.
ROSE
Victor M'cLaglen Kilkenny risinn.
leikur í æfintýrinu “Mother Mach-
ree” við Rose næstu viku. Með
honum er Belle Bennett. Efni leiks
ins er móðurást, og verður sýnt á
mánu- þriðju- og miðvikudag. Þessa
viku, föstu- og laugardag, verður
sýnd myndin “The Flying Fleet,”
raddmynd og ein með þeim beztu.
HEIMKOMA V.-ÍSLENDINGA
1930
Á að nota Alþingishátíðina til þess
að ginna íslendinga til nýrra-
vcsturfcrða?
Svo sem kunnugt er, hefir nú í
nieir en ár staðið yfir hörð rimma
í blöðum Vestur-íslendinga í Kana-
da í sambandi við Alþingishátíðina
1930. Rimman hófst, þegar kunn-
ugt varð þar vestra, að stjórn Heim-
fararnefndar Þjóðræ’knisfélagsins
hafði sótt um stjórnarstyrk til heim-
fararinnar. Varð þekktur Islend-
ingur í Winnipeg, dr. B. J. Brandson,
fyrstur til að mótmæla styrkbeiðni
þessari opinberlega, en síðan hafa
ýmsir mætir menn vestra tekið í sama
strenginn.
I “Löigbergi” 25. apríl síðastl. fer
dr. Brandson enn á stúfana, og ger-
ir harða árás á stjórn Heimfarar-
nefndarinnar. Birtir hann mörg
bréf, sem farið hafa á milli J. J.
Bildfells, formanns Heimfararnefnd-
arinnar, og stjórnarformanns Mani-
tobafylkis, Mr. John Bracken. Þyk-
ist dr. Brandson leggja fram full-
komnar sannanir fyrir því, að stjónj
arstyrkurinn sé veittur með því skil-
yrði, að hann verði notaður til þess
eins að auglýsa Manitoba á tslandi.
Og óneitanlega leiðir dr. Brandson
sterk rök að þessari fullyrðing sinni,
þar sem hann birtir bréf, er farið
hafa á milli Heimfararnefndarinnar
og stjórnar Manitoba, en í bréfum
þessum er það tekið fram, að styrk-
Winnipeg Electric Power bygg-
ingin, þar sem raf-áhalda sýningin
fer fram sem auglýst er í blaðinu.
er ein af hinum vönduðustu verzl-
unarbygginguni er reistar hafa verið
hér í bænum. Stíllinn er einfaldur
en virðulegur. Rafáhaldadeild fél-
agsins verður komið fyrir á neðsta
gólfi. Útsöludeild þess er hin full-
komnasta í Kanada og ef til vill í
Ameríku. F.kkert hefir verið til
sparað að gera hana sem bezta. Sýn-
ingin ætti því að draga að sér fjölda
manns. Sérstakar skemtanir hafa
verið undirbúnar er fólki finnst til
um og þess verðar að horfa á Ödl
hugsanleg gas og raftæki verða til
sýnis, og sýnt hversu þau eru notuð.
Vér viljum hvetja lesendur vora til
þess að heimsækja þessa sýningu.
Það er margt af henni að læra. Hún
byrjar 4. júlí.
Kjallarinn verður einnig notaður
fyrir sönm deild, W. E. félagsins.
Eru þar sýnd fyrirmyndar eldhús,
þvottahús o. s. frv. Húsráðendur
geta haft gagn og skemtun af að
skoða allt þetta.
urinn sé veittur með fyrgreindu skil-
yrði.---------------
Öþarft er að láta mörg orð fylgja
samningi þessum, er stjórn Heimfar
arnefndar Vestur-íslendinga hefir
igert við stjórn Manitobafylkis ,í Kan
ada. Og þó að bak við kaupsamn-
inginn liggi sá einlægi ásetningur
beggja aðila, að ætla að nota Al-
þingishátíðina 1930 til þess að ginna
íslendinga að nýju til Vesturheims-
ferða, mun árangur þeirrar kaup-
mennsku lítill verða. Vér Frónbú-
ar munm fagna því, að bræðrum vor
um og systrum vestanhafs líður vel,
og að land þeirra er gott og byggi-
legt. En vér erum jafnframt þess
fullvissir, að heimkoma Vestur-Is-
lendinga 1930 muni sannfœra þá um
það, að ísland er ekki framar land
flóttamanna, heldur land framtíðar-
innar, sem hefir ótakmarkaða mögu-
leika til þess að láta íbúunm líða vel.
Heimkoma Vestur-lslendinga 1930
ætti því fremur að verða til þess að
fá þá til þess að hverfa aftur heim
til átthaganna.
En þótt þessu sé nú þannig varið,
er hitt með öllu óverjandi, að ætla
að nota afmælishátíð Alþingis til
þes að ginna íslendinga til nýrra
Vesturheimsferða.-—Morgunblaðið.
Frá Islandi.
um Málvcrk Guðntundar
Einarssonar
Hér fara á eftir dómar nokkurra
þýzkra blaða' um sýningu Guðmundar
Einarssonar, sem hann hélt í Mun-
chen í vor, og áður hefir verið get-
ið í Vísi.
Bayerischc Staatsccitung, 16. apr-
íl 1929, farast svo orð;—
Guðmundur Einarsson er íslend-
ingur, ferðanáttúra og skapandi vilji
hafa ákveðið örlög hans. Eftir að
hann hafði gert sínar fyrstu tilraunir
á sviði listarinnar í Reykjavík og
Danmörku, kom hann til fullnaðar-
náms til Munchen. Hér vann hann
sem myndhoggvari hjá prófessor
Scbwegerle í fjögur ár; auk þess
lærði hann svartlist (Graphik) og
Freskó-málverk.
I Galerie Paulus sýnir hinn ungi
listmaður nú, hvað hann hefir málað
og “raderað” síðustu þrjú árin. Mál
verk hans sýna ættland hans, landslag
þess og eldfjallanáttúru — öfl úr
basalti og hraunbreiðum — alvarleg
og stórkostleg, sem eru andstæðui
annara reginafla, íssins og jöklanna,
sem senda frá sér strauma mjólkur-
litaðra jökulvatna, með fölgrænum og
gulleitum tónum — þar sem þau fylla
igamla gíga, — “hvít vötn.”
Þessi náttúruöfl Heklu og Vatna-
jökuls-eyjarinnar notar G. Einarsson
með eiginlegum litum og línum, ein-
göngu ástin til æt'Jlandsins getur
formað slíkt.
Járnfjall Scheffels í hafinu og
“Riff” Plebbels, þar sem títninn
stendur kyr, og maður drekkur blóð
um leið og maður andar, þar eru
skáldleg, hugræn æfintýri, sem til-
heyra fornöldinni. Málarinn bland
ar engu slíku í liti sína, hann tekur
form og liti þá, sem náttúran býður
og notar hvorttveggja til að vekja
alvarlegar og sterkar tilfinningar, og
það án þess að færa í stílinn eða
umskapa. Hinn sterki og skraut-
legi “tónn” málverka hans er eigin-
Neðsta
Verð
Á HINUM BEZTU
ENDURBÆTTU ELDRI
BfLUM
Veljið bílinn sem þér viljið,
á því verði sem þér viljið, úr
hinu mesta upplagi af endurbætt-
um eldri bílum í Wininpeg, er
til sölu eru á verði sem verk-
smiðjur aðeins geta sett. Kom-
ið Oig skoðið fyrir yður sjálfa,
á þeim stöðum er hér segir.
LlHeil Cnr Lot—iSO:» Main St.
UHeri Car Shouroom—210 Fort St.
t'neri Car Lot—Marylanri nnri
Portajfe
McLaughlin
Motor Car
Co. Ltd.
Á HORNI PORTAGE OG
MARYLAND
OG
216 FORT STREET
(AJSal VerkHmlííju tjtlbfi)
leiki hinnar íslenzku náttúru.
Framh. i næsta blaði.
ROSE
THEATRE
THURS—FRI—SAT.,
THIS WEEK
RAMON NAVARRO in
“THE FLYING FLEET”
WITH SOUND and MUSIC
Extra Added:—
“Mis-lnfoiímation”
An excepttonally entertaining
100 per cent Talking Comedy.
—AND—
“The Lash”
A short Talking Drama with
a real Moral.
MOJV—TUBJS—WED
JVEXT WEEK
A Picture that will stir the Hearts
of audiences.
“MOTHER MACHREE”
with the beautiful theme song in
SOUND
Starring—
BELLE BENNETT
NEIL HAMILTON
VICTOR McLAGLEN
—ALSO—
A 100% Talking Featurette
and other talking short subjects
RETRIBUTIONS
Don’t Miss These Two
Great Pictures
Okkar verð
er lœgst
Ástæðan er sú, at5 allir eldri bíl-
ar eru keyptir þannig ab vér
getum stabist samkeppni hinna
undursamlegu nýju Ford Bíla,
sem seldir eru svo ódýrt.
Berió saman þetta verÓ vitf
þab sem abrir bjóóa:
FORDS
Touring ...............$ 40
1923 Touring ..........$210
1927 Touring ..........$290
1928 Model A Phaeton ..$490
1928 Model A Phaeton ..$525
1928 Model A Roadster .$565
Tudor Sedan ...........$160
1925 Tudor Sedan ..... $235
1928 Model A Tudor Sedan . 625
1924 Coupe ............$235
1925 Coupe ............$250
1926 Coupe ............$335
1928 Model A Sport Coupe $660
VÆGIR SKILMÁLAR
DOMINION
Motor Co. Ltd.
FORT & GRAHAM 87 316
EVENINGS 87411
$
að vera gestir vorir
er vér opnum hina nýju og
fögru rafáhalda vörudeild
WINNIPEG ELECTRIC FJELAGSINS f
THE P0WER BUILDING
\
\
%
^ HINN 4. JÚLf NÆSTKOMANDI KL. 2.30 E. H. ^
Staðurinn er á Portage Avenue, rétt austan við Hudson’s Bay búðina.
Hljómlista leikflokkur
verður þar til
staðins
MESTA RAFÁHALDA
SÝNINGARSTOFA f
CANADA
%
SYSTURNAR SJÖ
VERÐA ÞAR SJÁLF-
AR OG MYNDIR AF
ÞEIM TEKNAR AF
THE JUNIOR CLUB
Allar tegundir raf og gas tækja verða þar til sýnis er gefst tækifæri á að skoða.
SÖGULEGT MÓT SEM ÞJER ÆTTUÐ EKKI AÐ MISSA AF.
OG SVO ENDURTÖKUM VJER BOÐIÐ
WIWNIPEC ELECTRIC COMPAMY
“Tryggið yður góða þjónustu’’
DOUBLE PROGRAM! "‘WonderlanD Winnipeg’s Coziest Family
THUR—FRI—SAT MON—TUES—WED RIN-TIN-TIN in NextWeek. Theatre
DOORS OPEN “THE MILLION DOLLAR ^EN „ rm 1 ad>' THE LAWLESS LEGION” OULI-AK RALPH FORB.ES and —and— MARCELLINE DAY in
Daily 6.30**11
Saturdays 1 to 11 “OPENING NIGHT” “RESTLESS YOUTH” DON’T MISS IT!