Heimskringla - 03.07.1929, Qupperneq 5
WINNIPEG, 3. JÚLI 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
Hann er ágætur grasafræöingur. Og
hann mun eiga eitthvert mesta bóka-
safn, sem er í einstaklingseign vest-
an stórvatna i Ameriku, og aö sumu
leyti hiö alfullkomnasta, er nokkur
einstaklingur í Ameriku á. Fræöi-
menn telja að hann eigi mest og
fullkomnast safn af grasafræðisbók-
um allra Ameríkana. Sömuleiðis
fullkomnast bókasafn enskra rita, er
að einhverju leyti snerta Island. Og
1 þriðja lagi fullkomnast safn enskra
niiðaldabókmennta (síðari hlutann)
frá því um og fyrir daga Shake-
speare’s og fram á 19. öld.
Hjörtur C. Thordarson er ásamt
Stephani G. Stephanssyni, ágætast
dæmi, er vér vitum til hér vestra um
það, að sjálfmenntun getur verið
einhlít til jafns við beztu háskóla-
nienntun, þegar gáfur, athygli og
elja starfa saman að settu marki á
islenzkum grundvelli.
-------x------
Skuld Ameríku
við Island
er fyrirsögu að ritstjórnargrein í
stórblaðinir “St. Paul Pioneer Press,”
sunnudaginn 23- júní, er einn góð-
vinur blaðsins þar í borg hefir sent
°ss, og hljóðar svo:
“Næsta ár heldur Island hátíðlegt
þúsund ára afmæli þingbundins
stjórnskipulags. Fi^llljrúar mfirg^a
nkja verða viðstaddir, og Bandaríkj-
unum hefir verið boðið að senda
fulltrúa til þátttöku. Það er í mesta
Hgi viðeigandi, að þessi þjóð grípi
tækifaerið, til þess að viðurkenna
skuld sína við hina litlu eyju á jaðri
heimsskautabaugsins.
‘Gögn eru fyrir því, að einn af
hinum ótrauðu jjarmönnum henrtar,
Feifur Eiríksson, hafi verið fyrsti
hvíti maðurinn, er með vissu hefir
stigið fæti á þetta meginland. Það
er mögulegt, að landaleitir og land-
fundir íslenzkra farmanna hafi blásið
Kristófer Columbus því í brjóst, að
Hggja á dularfull og ægileg höf í leit
sinni að vesturleið til Indlands.
“Island sjálft er litið. Það er
Ju^ira en helmingi minna en Minne-
sota og öll þjóðin er tæplega mann-
fleiri en Duluth. Samt sem áður
hafa bókmenntir þess, auðugar og á-
hrifamiklar, haft áhrif á hugsun
menntamanna um viðan heim. Þess
getur og í viðskiftum, sérstaklega
landbúnaðar og sjávarafurða þess.
Fn alveg sérstaklega hefir það verið
öðrum þjóðum leiðarblys, með þvi
fyrirdæmi, er það hefir gefið um
kjark og holluStu, með meginreglum
Um frjálsræði og gott stjórnarfar.
Stofnsett á níundu öld, af norskum
innflytjendum, er reknir höfðu verið
af óðali sinu af harðstjórnarkonungi,
hefir Island barist áfram gegnum alda
langa áþján undir erlendum konung-
um, og að lokum, fyrir fáum árum
síðan, hlotið sjálfstjórn af Dana-
veldi. Sárþjakað og að velli lagt
af drepsóttum og hungursneyð, hverri
a fætur annari, hefir það jafnan rétt
við til þess að halda áfram barátt-
unni. Sjóræningjar hafa eyðilagt
hafnarborgir landsmanna (sic) en ó-
bilandi kjarkur þjóðarinnar hefir
hyggt þær á ný.
“Alþingið, eða parlamentið, er
stofnað var 930, var lagt niður um
1800, en djarfir og einbeittir Islend
ingar börðust frýjulaust fyrir endur-
reisn þess og fengu sitt fram 1843.
Stjórnarskrána, er færði þeim mörg
réttindi heim, fengu þeir af Dana-
konungi. 1874 og 1903 fengu þeir
nýja stjórnarskrá, er veitti þeim
sjálfstæði i sambandinu. Island hef-
ir gengið á undan flestum löndum með
framfaralöggjöf alla; kosningaréttur
kvenna og vínbann var hvorutveggja
samþykkt 1915-
Það er stofnun Alþingis, sem landið
minnist að ári. Vissulega er það
Minnesota, sem telur álitlegan hluta
þeirra 40,000 Islendinga er búa á
þessu meginlandi, mjög mikið áhuga-
mál, að Bandaríkin taki þátt í þess-
ari hátíð. Fyrsta sporið í áttina til
þess, að gefa Islandi hæfijega stand-
mynd” af Leifi Eiríkssyni, mætti á
mjög svo viðeigandi hátt koma frá
þessu riki.”
* * *
Þótt örlítið skeiki sumstaðar í þessu
máli, þá er þó mesta furða að það
skuli ekki vera meira. En sérstakt
gleðiefni hlýtur það að vera öllum
Islendingum, er nokkuð hafa gefið sig
að þjóðræknisstarfi hér vestra, að
verða var við slíkan hlýhug og skiln-
ing á islenzkum málum hjá þessu
stórblaði hins volduga nágranna vors.
Hann hefir viðar þar syðra komið í
ljós í tilefni af starfsemi Burtness og
helztu “meðhjálpara” hans. Og þó
mun betur verða, er öll gögn eru
fram komin er Heimfararnefnd Þjóð
ræknisfélagsins hefir fram að leggja
hér vestra, áður en hún hefir lokið
starfi sínu.—
---------x--------
Bréf til
Heimskringlu
1507 E. Pine St.,
Portland, Ore.
27. júní, 1929.
Ritstjóri Heimskringlu,
Winnipeg, Man.,
Kæri ritstjóri:—
því það er vafalaust rétt,. er séra
Björn Jóhannsson segir að hann hef
ir átt mjög mikinn og góðan þátt í
þvi að hrinda þessu máli til ham-
ingjusamlegra framkvæmda. En að
vísu höfum véh áður minnst Frazier
öldungaráðsmanns maklega i sam-
bandi við þetta mál; sbr. ritstjórnar
grein í Heimskringlu 24. april, 1929,
svo að eigi er þó sem hans hefði
að engu verið getið.
—Ritstj. Hcimskringlu.
----------x----------
FRÁ ÍSLANDi
Fjöllistaskólinn í Kaupmannahöfn,
(Polyteknisk Læreanstalt) heldur
hátiðlegt 100 ára afmæli sitt í lok
ágústmánaðar, og í tilefni af því
verður 18. fundur norrænna náttúru
fræðinga, og sameiginlegur fundur
norrænna verkfræðinga haldinn í
Kaupmannahöfn. — Meðal fyrirlestra
manna verður Jón Þorláksson fyr-
verandi forsætisráðherra. — Hann
flytur erindi um notkun jarðhita.
Mér þóti leitt, að verða þess var í
aukablaði Heimskringlu um samþykkt
alríkisþingsins á þingsályktunartillög-
unni um opinbera þátttöku Bandaríkj
anna í þúsund ára afmæli Alþingis
á Islandi, að þér gátuð hvergi um
þann itæka stuðning, er þessi rnála-
leitan naut frá Lynn J. Frazier, öld-
ungaráðsmanni. Fyrir meira en ári
síðan, er ég fann Frazier öldunga-
ráðsmann að máli í Washington,
vann hann mjög áþreifanlega og kapp
Asmundur Sveinsson myndhögýfvari
fcer fjórar myndir teknar á lista-
sýninguna í París
Einkaskcyti frá frcttaritara Alþýðn
blaðsins í París.
París 29. mai-
Enn hafa verið teknar fjórar mynd
ir eftir Ásmund Sveinsson á sýning-
una í listhöllinni—Grand Palais —
hér, og fengu þær mest lof allra lista
verka.
samlega að undirbúningi þessarar
þingsályktunar — og hafði einka-
ritari hans, Nelson E. Mason, safn-
að töluverðum skilríkjum, er mættu
koma þessari málaleitan að haldi.
Eg efast ekki um að framgangur
þessa máls í öldungaráðinu, er honum
að miklu leyti að þakka.
Þareð Mr. Burtness og Frazier
öldungaráðsmaður eru fulltrúar mis
munandi pólitízkra skoðana, en til-
lögusamþykktin um þátttöku í is-
lenzku hátiðinni, að vér vonum, ut-
an við allan flokkadrátt, þá hyg,g ég
að vel fari á því, að íslenzku blöðin
gaefu Frazier öldungaráðsmanni að
fullu þann skerf, er honum ber af
viðurkenningunni.
Yðar einlægur,
Björn Jóhannsson.
* * *
Oss þykir leitt, að nafn Frazier
öldungaráðsmanns skyldi falla í burtu
úr umgetningunni í aukablaðinu.
Óðinn
Öðinshefti er nýkomið, síðustu
blöð 24. árgangsins. I því eru, eins
og venjulega, margar rnyndir og fróð
legar greinir, kvæði og tvö sönglög.
Eru þau bæði við kvæði Þ. G. og
vígslu Laugarvatnsskólans, hið fyrra
eftir Pál ísólfsson og hið síðara eft-
ir Sigv. Kaldalóns. Fyrst í heftinu
er mynd og grein um fullveldisminn-
inguna, 1- des. síðastliðinn. Þá er
grein um Harald Björnsson leikara
með þremur myndum. I öðni hafa
oft komið myndir af leikurum og leik-
sýningum síðasta aldarfjórðunginn og
munu ekki annarsstaðar samankomnar
fleiri þessháttar myndir og eru þær
merkileg gögn, sem sjá má af ýmis-
legt um sögu leiklistarinnar hér bet-
ur en lýst verður með orðum. Þess
má einnig minast að það var í grein
í Óðni, að Indriði Einarsson setti
einna fyrst og ákveðnast fram kröf-
una um þjóðleikhús, sem nú er far-
I samræmi við þær
breytingar og fram-
farir sem orðið hafa
á síðastl. 52 árum,
hefir
DREWRYS
Er ávalt hefir bruggað
helzta bjór vesturlandsins
—haldið vinsældum sín-
um meðal almennings með
STANDAQD
LÁGER' ,
fullkomnað hef
ir verið með 52 ára
reynslu með ölgerð.
ið að framkvæma.
Óðinn hefir einnig flutt mikið af
myndum og greinum sem bókmenntir
snerta. I þessu hefti eru myndir af
þremur þjóðkunnum skáldum og
greinar um þá, en þeir eru G. G.
Hagalín, Sigurj. Friðjónsson og
Gestur Pálsson. En G. P. hefir eins
og vaknað til nýs lífs í meðvitund
manna við hina nýju útgáfu Þorst.
Gislasonar á ritsafni hans, sem orðið
hefir mjög vinsælt, enda óvenju ó-
dýr bók.
Þá eru, eins og venjulega í Óðni.
ýmsar myndir merkra og dugandi
manna úr ýmsum stéttum og greinar
um þá, um Kristján Hitardalsráðs-
(Framh. á 8. bls.)
---------x---------
Nýr Pýramídi.
Morgan œtlar að byggja pýramida
sem er miklu stœrri en Cheops-
þýramídinn.
Þrír auðugustu rnenn í heimi eru
taldir þeir Ford, Rockefeller og Mor-
gan. Og nú kemur sú fregn frá
Ameríku að Morgan ætli að gera það
að gamni sínu að reisa pýramída,
sem verður mörgum sinnum stærri en
hinn frægi Cheops-pýramídi í Egypta
landi.— Pýramídinn á að standa úti
á sléttu, skammt frá Kansasborg.
Hann á ekki að vera úr steini, eins
og egyptsku pýramídarnir, heldur úr
stáli og það á að byrja á honum 1930.
En hvað á að gera með þennan
pýramida? Það er von að menn
spyrji, enda er mælt að Morgan sé
enn ekki ákveðinn í því, til hvers
skuli nota sumar hæðirnar. En þar
á fyrst og fremst að vera listasafn.
Þar á að geyma öll þau ógrynni sem
Morgan-fjölskyldan á af forngripum
og listverkum. Þar á lika að vera
stórfenglegt bókasafn, rannsóknar-
stofur og háskóli, og það verður há-
skóli i bókstaflegum skilningi, þvi
hann á að vera á næst hæstu loftum
pýramídans. En efst uppi verður
stjörnurannsóknastöð, og hefir Mor-
gan þegar keypt voldugan stjörnu-
kíki til hennar. Auk þess á að vera
þar loftskeytastöð — eins og nærri
má geta.
Pýramídi þessi verður einhver
stærsta bygging í heimi. Hánn
verður 210 metrar á hæð, en Cheops-
pýramidinn er ekki nema 147 metrar
á hæð. (Eiffelturninn er rúmir 300
metrar á hæð). Chieops-'pýrarríídinn
er neðst 132 metrar á hvern veg, en
Morganspýramídinn verður 250 metr
ar á hvern veg. 1 Grískir sagnfræð
ingar hafa áætlað að 100,000 verka-
menn hafi verið í 20 ár að byggja
Cheops-pýranridann. En vegna
framfara, sem orðið hafa i bygging-
arlist, og véla þeirra, sem notaðar
eru, er talið að miklu færri menn
geti byggt þennan pýramida á 2)4
ári.
Undirstaða pýramídans verður
ekki ósvipuð undirstöðu Eiffelturns-
ins, því að hann á að hvíla á fjórum
griðarmiklum stöplum úr steinsteypu
og» vega þeir rúmlega 14. milj kg.
Það er talið, að byg.gingin sjálf
muni kosta 3)4 miljón dollara að
minnsta kosti, eða um 16. milj. kr.
Eiffel-turnsinn kostaði ekki nema
6)4 miljón króna.
—Lesb. Morgunbl.
Innköllunarmenn Heimskringlu
Árnes ...........
Amaranth.........
Antler...........
Árborg .........
Ashern ..........
Baldur...........
Belmont .........
Bella Bella.......
Beckville .......
Bifröst ........
Brown.............
Calgary...........
Churchbridge ....
Cypress River ..
Ebor Station .. ..
Elfros..........
Eriksdale ........
Framnes..........
Foam Lake .. ..
Gimli.............
Glenboro .........
Geysir...........
Hayland...........
Hecla.............
Hnausa..........
Húsavlk.........
Hove............
Innisfail ........
Kandahar .........
Kristnes.........
Keewatin..........
Lesiie...........
Langruth .........
Lonely Lake ......
Lundar ..........
Markerville ......
Nes..............
Oak Point.........
Oak View ........
Ocean Falls, B. C.
Poplar Park .. ..
Piney ...........
Red Deer .........
Reykjavlk .. .. ,
Riverton .........
Silver Bay ......
Swan River .. ..
Selkirk...........
Siglunes.........
Steep Rock .......
Tantallon.........
Thornhill........
Vlöir.............
Vogar ...........
Winnipegosls .. ..
Winnipeg Beach .
Wynyard...........
í CANADA:
.. F. Finnbogason
.. Björn Þórðarson
.. .. Magnús Tait
.. G. O.. Einarsson
. Sigurður Sigfússon
.. Sigtr. Sigvaldason
......G. J. Oleson
.. . . J. F. Leifsson
.... Björn Þórðarson
Eiríkur Jóhannsson
Thorst. J. Gíslason
Grímur S. Grímsson
. Magnús Hinriksson
.. .. Páll Anderson
.. .. Ásm. Johnson
J. H. Goodmundsson
... . Ólafur Hallsson
. Guðm. Magnússon
,. .. John Janusson
.. .. B. B. Ólson
.. .. G. J. Oleson
.. Tím. Böðvarsson
.. Sig. B. Helgason
Jóhann K. Johnson
.. F. Finnbogason
. .. John Kernested
.. Andrés Skagfeld
Hannes J. Húnfjörð
. .. F. Kristjánsson
. .. Rósm. Árnason
.. Sam Magnússon
. Th. Guðmundsson
ólafur Thorleifsson
.. Nikulás Snædal
..... Björn Hördal
Hannes J. Húnfjörð
.... Páll E. Isfeld
.. Andrés Skagfeld
Sigurður Sigfússon
. .. J. F. Leifsson
. .. Sig. Sigurðsson
. .. S. S. Anderson
Hannes J. Húnfjörð
.. Nikuláfi Snædal
.. Björn Hjörleifsson
.... Ólafur Hallsson
, .. Halldór Egilsson
.. B. Thorsteinsson
. .. Guðm. Jónsson
...... Fred Snædal
, .. Guðm. ólafsson
Thorst. J. Gfslason
. ... Aug. Einarsson
.. .. Guðm. Jónssom
, .. August Johnson
. .. John Kernested
. .. F. Kristjánsson
í BANDARÍKJUNUM:
Bantry.................................Sigurður Jónsson
Chkago..........................................Sveinb. Árnason
Edinburg...............................Hannes Björnsson
Garðar.................................S. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson .. .............................Jón K. Einarsson
Hensel.................................Joseph Einarsson
Ivanhoe........................... .. ... G. A. Dalmaön
Milton...................................F. G. Vatnsdal
Mountain...............................Hannes Bjömsson
Minneota.................................G. A. Dalmann
Pembina...............................Þorbjöm Bjamarson
Point Roberts......................Sigurður Thordarson
J. J. Middalt 6723—21st Ave. N. W........Seattle, Wash.
Svold..............................................Bjöm Sveinsson
Upham..................................Sigurður Jónsson
The Viking Press, Limited
Winnipeg, Manitoba
MACÐONALD'S
Eitte Cut
Bezta tóbak í heimi fyrir þá,
sem búa til sína eigin vindlinga.
Gefinn með
ZIG-ZAG
pakki af vindlingapappír
HALDID SAMAN MYNDASEDLUNUM
131