Heimskringla - 11.12.1929, Blaðsíða 6

Heimskringla - 11.12.1929, Blaðsíða 6
6. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 11. DES., 1929 Haraldur Guðinason Söguleg Skáldsaga j ---eftir-- : SIR EDWARD BULWER LYTTON I. BÓK Edith vogaði hvorki að líta upp né segja nokkuð. “Hvernig má það þá ske,’’ sagði konung- ur, og reyndi þótt illa tœkist, að leggja nokk- urn strangleik í röddina, “að þú, barnið, sem þegar ættir að hafa lyft buga þínum hátt yfir þenna girndum hlaðna heim, og beint honum til undirgefnu og þjónustu við hina heilögu mey, skulir'standa hér berhöfðuð á almanna- færi? Það er syndsamlegt. * Stúlkan skifti litum við þessa ávítun, og mátti með naumindum verjast gráti. Loks sagði hún auðmjúklega: “Hildur amma mín bað mig að koma með sér og því er ég hér stödd.” “Hildur,1’ sagði konungur, og kom svo á hann að hann hrökkti hestinum nokkuð aft- ur á bak í götunni, “er hún hér með þér?” Hann hafði ekki orðinu sleppt fyr en Hild- ur kom í ljós uppi á hólnum, svo snögglega, sem hún hefði sprottið upp úr jörðinni. Hún gekk hröðum, léttum skrefum að hlið dóttur- dóttur sinnar, heilsaði konungi kurteislega en þó stolzlega og sagði: “Hér er ég; eða þókn- ast yður, herra, að mæla við mig?” “Nei, nei,’ sagði konungur, og var sem nokkurt fát kæmi á hann, “ekki annað en það, að ég vildi biðja þig þess að varðveita mey þessa sýknt og heilagt, svo að hana saki í engu, unz hin heilaga mær á sínum tímá kallar hana í sína þjónustu, svo sem vera ber." “Það vil ég segja þér, sonur Aðalráðs og afkomandi Óðins, að ekki ætti síðasti afkom- andi Penda¥ að eyða æfi sinni sem blóðlaus vofa, reikandi um klausturstofur. Væri sæmra að hún yrði ættmóðir ríkra hermanna. Jafn ast nú fáir menn á við forfeður sína, enda skyldi engin grein kvistuð af ættarmeið Óð- Ins, meðan nokkur útlendingur stendum föst- um fótum á saxneskri mold.” “Per la resplendar Dé,D nún djarfa frú,” hrópaði riddarinn við hlið Játvarðar, og dökkn- aði um leið í framan af geðshræringu; “þú ert helzt til hraðmál í návist konungs, og fjöl- yrðir meira um Óðinn, hundheiðið goð, en kristinni hefðarfrú sæmir.” Hildur leit drembilega á riddarann, er hvessti á hana augun, en þó var sem blandaðist nokkur ótti í svip hennar. “Barn,” sagði hún, og lagði aðra hend- ina á glókollinn við hlið sér, “þarna er maður sá, er þú munt sjá aðeins tvisvar á æfi þinni. Líttu á hann og settu hann vel á þig.” Edith leit upp ósjálfrátt, og var sem hún gæti varla af riddaranum litið, er hún hafði feshá honum auga. Hann var í skarlatsbol svo dökkum, að nálega sýndist svartur, er hann stakk af við klæði konungs, og var bolurinn bryddur breiðum borða, gullsaumuðum. Var bolurinn fleginn, svo að gjörla sá hálsinn. sterklegan og fyldan vel, líkt og rynni þar granítsúla undir höfuðið. Yfir bolnum bar hann treyju eða stuttmöttul úr loðskinni, er hékk aftur um herðarnar, svo að glögglega sá brjóstið, er svo var breitt og þreklegt, sem gæti það stöðvað heilan her á framrás. Vinstri arminum, þar sem haukurinn sat, hélt riddar- inn krepptum, og mátti gjörla sjá. undir nær- skorinni erminni, hvernig vöðvaflétturnar hnykluðu sig hversu lítið sem hann hreyfði Æirminn. Hann var litlu hærri en margir þeir í föruneyti hans voru, en svo var hauklegt yf- Irbrafeð hans, og svo stórgöfuglegur lima- burður hans, þrátt fyrir gildleikann, að svo sýndist sem hann gnæfði yfir félaga sína. Þó dró ásjóna hans enn meir að sér at- hyglina en vöxturinn. Hann var á bezta þroskaskeiði, og sýndist við fyrsta álit yngri, en hann var, en eldri, er gerr var hugað að. Bar þar til, að andlitið var nauðrakað, jafnvel rakað efrivararskeggið, er hinir saxnesku hirð- menn héldu þó enn í, er þeir höfðu annars tekið upp siði Normannanna, og gerði skegg- leysið, og nakinn hálsinn, þetta fyrirmannlega og ógnarbíldslega andlit að mun unglegra. ^Konungur í Mersíu, er var eitt af smákonungs ríkjum Engla, stofnsett á 6. öld e. Kr., og tók yfir mið-England. Varð það voldugast ríki Engil-Saxa á 8. öld, og sameinaðist Wessex snemma á 9. öld.—Þýð. D(Eg sver það) viö GuSs dýrS. Húfan sat á hvirflinum svo framhöfuðið var bert. Var hárið stuttklippt, þykkt og slétt, og tinnusvart og gljáandi eins og hrafnsvængur. Á ennið hafði tíminn markað rúnir sín- ar; voru hnyklar yfir brúnum, og djúpar rákir yfir ennið, sem var afarbreitt en ekki að sama skapi hátt. Hnyklarnir báru vott um að eig- andinn var snöggur í skapi og vanur að skipa, án þess að möglað væri. Hrukkurnar báru vott um djúpa hugsun, slungna þungum ráðum. Andlitið var breitt, og ljónstign í svipnum; munnurinn, sem var lítill og mjög fagurlega skapaður, bar vott um ósveigjanlega skapfestu og um leið skaphörku, og kjálkarnir, sem voru afar sterklegir, sem væru þeir járnbentir, báru vott um jarnharðan, þrákelkinn og ófyrirleit- inn vilja. Má sjá sh'kt granstæði á tígrisdýr- um, meðal dýra, og á líkneskjum mikilla sigur- vegara, til dæmis Cæsars, Cortesar og Na- póleons. Allur var maðurinn slíkur, að hann hlaut að vekja aðdáun kvenna og ægja flestum mönnum. En engin aðdáun blandaðist ótt- anum í svip stúikunnar, er hún horfði lengi og með eftirtekt á riddarann. Hún var sem smá- fugl, er dásvæfður og stjarfur stendur frammi fyrir höggormi, töfraður af augnaráðinu. Aldrei myndi þetta andlit henni úr minni líða; og löngu síðar bar henni það í sýn, jafnt á björtum degi, sem í draumum næturinnar. “Fagra mær,” sagði riddarinn, er þreyttist loks á því, hve stúlkan einblíndi á liann, og leið í sama bili yfir varir hans góðlátlegt bros sigurvegarans, er varpaði allri þeirri fegurð í svipinn, er andlitið átti yfir að ráða, “fagra mær, nem þú eigi þá ókurteisi af ömmu þinni i stygglyndri, að hatast við útlenda menn. Minnstu þess, er þú brátt verður kona frum vaxta, að normannskir riddarar eru svarnir hollþjónar fagurra kvenna.” Hann tók ofan húfuna, og af henni óskorinn gimstein, greypt- an í býzanzkt2) víravirki. “Kom þú með kjöltu þína, barn mitt, og er þú heyrir hrópaða út- lenda menn, þá skaltu tylla glingri þessu í lokka þína, og minnast huglátlega Vilhjálms. Normannagreifa.”3) Gimsteinninn féll til jarðar, er riddarinn sleppti honum, því Edith hafði ekki blíðkast, heldur hopað um skref við ávarp hans. Hild- ur, sem Játvarður konungur hafði mælt eitt- hvað við í hálfum hljóðum, gekk nú til og sló með stafnum hringinn úndir hófa konungs- hestsins. “Sonur Emmu, hinnar normönnsku konu, er gaf æsku þína í útlegð, troð þú fótum þessa gjöf hins normannska frænda þíns. Og sért þú maður svo sannheilagur, sem hermt er, að regin himins hafi gefið græðandi vald hendi þinni, og bölvaldsmátt tungu þinni, þá skaltu nú græða land þitt og bölva útlendingnum.” Hún beindi réttum hægri armlegg á Vil- hjálm. Svo stórmannleg var ástríðan í orð- um hennar og yfirbragði, meðan hún mælti, að öllum ægði. Hún dró hettuna fram yfir höfuð sér; gekk seint og tígulega upp hólinn, og nam staðar fyrir framan líkneski Þórs. Þar stóð hún nokkra stund teinrétt, og hrær- ingarlaus, eins og steinstytta. “Ríðum áfram,” sagði Játvarður og gerði krossmark fyrir sér. “Það sver ég við bein hins helga Valde- mars,” sagði Villijálmur, eftir nokkra þögn, er hann hafði tekið eftir að skuggi féll á hina mildu ásjónu konungsins, “að ég undrast eigi all lítið í einfeidni minni, að jafn sannheilagur maður skuli reiðilaust mega hlýða á svo ó- drottinhollt og greylegt hjal. Veit það trúa mín, að hefði ríkasta frú í Normandíi (og hygg ég það að vísu húsfreyju Vilhjálms Fitzos- borne hins ríkasta af barónum mínum) ávarp- að mig þannig......” “Þú myndir hafa gert hið sama og ég, bróðir,” greip Játvarður fram í fyrir honum, “beðið Drottinn vorn að fyrirgefa henni og rið- ið’ leiðar þinnar í meðaumkvun.” Varir Vilhjálms titruðu af bræði, en þó tókst honum að stöðva svar það, er fram á þær var komið. Hann horfði fast á konung og var þó meiri aðdáun en fyrirlitning í tilliti hans. Því enda þótt Vilhjálmur hertogi væri ofsa- fenginn og miskunnarlaus, þá var hann þó ó- venju einlægur trúmaður. Stöfuðu áf því vinsældir hans hjá Játvarði, og sveigði á hinn bóginn Vilhjálm til ósjálfráðrar og hjátrúar- blandinnar lotningar fyrir þessum manni, er svo mjög reyndi að sníða aðhafnir sínar eftir trú sinni. Er svo oft um óþjála menn og örgeðja að þeir dragast til einkennilegrar ástsemi við hina, er auðmjúkastir eru að lunderni. Verð- 2) Byzantium—Konstantínópel.— 3> Þaö er eftirtektarvert aö hertogar Normanna kölluöu sig ekki greifa eöa hertoga af Normandíi, held- ur kenndu sig til Normanna; og aö fyrstu konung- arnir af ættlegg þeirra allt aö Ríkaröi fyrsta, kölluðu sig konunga Englendinga en ekki Englands. Bæöi í saxneskum og normönnskum sögnum er Vilhjálmur venjulega kallaöur greifi (Count, af latneska orðinu Comcs), en hér veröur 'hann yfirleitt kallaöur her- togi, með því aö þaö nafn er oss kunnugra.—Höf.— ur ekki á annan hátt skýrð sú eldmóðuga hollusta, er undirgefni frelsarans blés hin um norrænu vígamönnum í brjóst. Stóðust oft á, hlut fallslega, vígagrimmd þessara hermanna og ást þeirra á hinni guðdómlegu fyrirmynd, frelsaranum, er þeir grétu yfir þjáningum hans og hefðu talið sig auðvirðilegasta allra manna, ef þeir hefðu fylgt í æsar hinu einstaka fordæmi sáttfýsis og fyrirgefningar, er hann hafði þeim eftir látið! “Það sver ég við heilaga guðsmóður, að ég ann þér og virði þig, Játvarður,” hrópaði hertoginn, í meiri hreinskiln: en hann var vanur við, að hafa; “og væri ég þegn þinn. þá skyldi hvorki karli né konu þolast að blaka að þér tungu, né banvænum anda. En hver er Hildur þessi? Er hún frændkona þín? — Því ekki myndu aðrir en konungbornir •menn mæla svo djarflega?-” “Vilhjálmur, bien aimé,”4) sagði konungur, “að vísu er Hildur — megi allir heilagir fyrirgefa henni — konunga- ættar, þótt eigi sé hún í frændsemi við oss. Menn óttast,” bætti hann við, lágri röddu, “að þessi vesæla kona hneigist meira að siðum heið- inna forfeðra sinna, en að siðum kirkju; enda mæla það og nokkrir menn, hún hafi af binum leiða óvini numið nokkur þau töfrabrögð eða formála, er kristnum mönn um ber hvað helzt að forðast. Látum oss þó fremur virða á þann veg, sem óhamingja henn- ar hafi truflun valdið á geðsmunum hennar.” Konungur andvarpaði og einnig hertog- inn, þótt andvarp hans bæri einungis vott um óþolinmæði. Hann leit aftur fyrir sig, til Hildar, hörðum fyrirlitöingaraugum og sagði ómjúklega: “Konungsættar mun hún vera, en það vona ég, að þessi Óðinsnorn eigi hvorki syni né frændur, þá er ásælast vildu kórónu Sax- anna.” “Hún er sifkona5) Gyðu, konu Guðina,” svaraði konungur, “og er það helzt varúðar- vert um hagi hennar; því hinn útlægi jarl gerði aldrei tilkall til ríkisins, eins og þú veizt, þótt ekkert nægði honum minna en að sölsa undir sig öll yfirráð þjóðarinnar. Konungur rakti síðan fyrir hertoga upp- runa og æfisögu Hildar, en svo mjög var sú frásögn blandin hjátrú og hleypidómum, og lit uð af vanþekkingu konungs á mönnum, atburð um og sögu samtíðar hans á Englandi, að vér hirðum eigi að rekja hana hér, heldur leitum sannari heimilda um hina norrænu völu. II. KAPtTULI Afburðakyn var að þessum norrænu mönnum, er nútíðar sagnaritarar rétt aðeins geta lauslega, í skrifum sínum um fornöldina og kalla einu nafni Dani. Þeir drápu að vísu niður menningunni í þeim löndum, er þeir óðu yfir, en á rústunum reistu þeir aftur margt hið ágætasta í menningu allra alda. Svíar, Norðmenn og Danir voru í einstöku atriðum sundurleitir, en einn meginþáttur var þeim sameiginlegur. Þeim var öllum í brjóst lagið hið sama takmarkalausa framtak og harð- fylgi; sama frelsisástríða, einstaklega sem þjóð félagslega; sama glæsilega einsýni frægðar- þorsta og “persónulegs heiðurs.” En umfram allt var meginstyrkur þeirra til siðmenntunar fólgin í því, hve auðveldlega þeir samlöguðust siðum þeirra þjóða, er þeir yfirstigu, og runnu saman við þá. Þetta er höfuðeinkenni þeirra, samanborið við hina þrályndu Kelta, er eigi vilja öðrum blandast og allra manna eru sein- færastir til umbóta. Frankes erkibiskup skírði Göngu-Hrólf; og tæpum huridrað árum síðar voru niðjar hinna vígtrylltu víkinga hans,er hvorki þyrmdu klerklýð né ölturum, orðnir lang fremstu for- vígismenn kristinnar kirkju; höfðu týnt hinni fornu tungu sinni, (að undanteknum örfáum mönnum í Bayeux); breytt nöfnum forfeðra sinna6^ (að undanskildum örfáum helztu höfð- 4>ástkæri; (orgrétt; vel elskaðij; Höf. slæðir á stöku stað frönskum eða normönnskum orðum inn í tal Normannanna, til þess að gefa ræðu þeirra nokk- uð frábrugðinn lit.— 5)blóðtengd; frændkona.—Þýð. ®) Astæðurnar fyrir því að Normannar týndu nöfnum sínum, er að leita í kristnitöku þeirra. Er þeir voru skírðir, gáfu Frakkar, guðfeður þeirra, þeim ný, frönsk nöfn í skírninni. Þannig var það í skil- malum Karls hins einfalda, Frakkakonungs við Göngu-Hrólf, að Hrólfur skyldi breyta sið sínum (trú) og nafni og nefnast síðan Robert.—Höf.— ingjum) í franska titla, svo að nú var Norð- mönnum lítið sem ekkert eftir skilið af nor- rænum ættararfi í háttum og menningu annað en ósigrandi hreystimenska og harðfengi. Líkt hafði farið frændum þeirra, er rudd- ust inn á Engil-Saxa, með ránum, manndráp- um og allsherjar eyðileggingu. Þeir höfðu ekki fyr fengið lönd af Elfráði hinurn ríka7 * *), en þeir urðu einhverjir hinir voldugustu og á- reiðanlega ek"ki hinir ódrottinhollustu þegnar engil-saxneskir.®) Urn það leyti er saga vor hefst sátu nor- rænir menn, er einu nafni voru kallaðir Danir, friðsamlega að búum sínum og löndum í ekki færri en fimmtán héruðum á Englandi,9) og fjöldi af höfðingjum þeirra bjó í borgum og bæjum handan landamæra þeirra héraða er einu nafni voru kölluð Danalög. í Lundúnum voru þeir fjölmennir og áttu þar sérstakan grafreit, enda höfðu þeir og nafn gefið borg- arráðstefnum þar, úr sínu eigin máli og köll- uðu Húsþing. Oft hafði fylgi þeirra á þjóð- þinginu, Witan,10> ráðið úrslitum um konungs- kosningu. Þannig höfðu þessir niðjar her- skárra yfirgangsmanna friðsamlega sameinast innbornum mönnum,u)þótt nokkuð skildi á lög þeirra og mállýzku. Og enn þann dag í dag, eru óðalsbændur, kaupmenn og bændur í meira en þriðja hluta Englands, og einmitt í þeim héruðum, er öllum vitanlega eru í fylk- ingarbrjósti allra framfara, komnir af saxnesk- urn mæðrum og norrænum feðrum. í raun réttri var náinn skyldleiki milli hinna nor- mönnsku riddara og hinna saxnesku óðals- bænda í Norfolk og Jórvík (York) á dögum Hinriks I. Að móðurinni munu báðir oftast hafa verið komnir af saxneskum ættum, en ætt legg feðra þeirra hefði að jafnaði mátt rekja til Norðurlanda. 7>Alfrecl the Great (871—901).—Þýö. ®)Það voru aöallega Danir í Aus'tur-Anglíu, er áriö 991 veittu haldkvæmt viönám harösnúnum vikinga- flokkum, er herjuöu á Englandi; og Britlinoth, er saxnesk skáld rómuöu svö mjög sem saxncska þjóö- hetju, er ölluni framar heföi veriö sverö og skjöldur þjóöar sinnar, var sennilega af dönskum ættum; Mr. Laitig, er þýtt hefir Heimskringlu Snorra Sturlusonar, segir í formálanum meö sanni, “aö uppreisnirnar gegn Vilhjálmi bastaröi og eftirkomendum hans, viröast ávalt háfa hafist og fengiö meginstuöning sinn í þeim héruöum er byggðu afkomendur hinna dönsku vík- inga, en ekki meðal Engil-Saxa sjálfra.” Nokkur hluti Mersíu, er samanstóð af borgunum Lancasterj Lincoln, Nottingham, Stanford (Stafna- t’urðu) og Derby, varð danskt konungsriki áriö 877; — Austur Anglía, er samanstóö af Cambridge, Suffolk, Norfolk og Ely-eyju, 879—80; og Norðimbraland, er náöi yfir allt svæðiö fyrir noröan Humru (Humber) norðttr að FirÖi (Firth of Forth), 876. En utan þess- ara héraða voru Danir dreifðir um allt England sem lendir ntenn.—Höf. 9)Essex, Middlesex, Suffolk, Norfolk, Herts, Cam- bridgeshire, Hants, Lincoln, Notts, Derby, Northamp- ton, Leicestershire, Rucks, Beds, og i öllu hinu við- lenda Norðinrbralandi.—Höf. 10> fleirtölumynd af engil-saxneska oröinu nnta, spekingttr, eða ráögjafi.—Þýö. 41> Lög þau, er Játvarður hinn góöi lét skrásetja, og sem svo oft er vitna’ö til á síöari timum, eru mörg frá Dönum, þau er vinsælust uröu meöal Engil-Saxa. Mikið af þeim lögttm, er rakin eru til Normanna, eiig'a í raun réttri rót sína aö rekja til hinna ensku Dana, og rekst maöttr stundum á þau í Normandii og á Norö- urlöndum enn þann dag i dag.—Höf. Hver kona kannast við að soðinn Hafra- mélsgrautur er hin bezta næring fyrir unga og gamla __ • Rpbin Hood apíd Oats HEZT því það er ofn-þurkað heilagrar að

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.