Heimskringla - 15.04.1931, Side 2
2 BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 15. APRIL 1931.
Tólfta ársþin^
Þjóðrækuisfélagsins
Fundur var setttur kl. 2. e.h.
Fundargerningur lesinn upp og
samþyktur.
Var þá gengið til embættis-
mannakosninga.
Stungið var upp á eftirfarandi
mönnum til forsetastarfs: Rag-
nar E. ‘Kvaran, J. J. Bíldfell,
Jónas A. Sigurðsson, Guðmund
ur Árnason, Rögnv. Pétursson.
í>rír síðasttaldir báðust und-
an því að vera í kjöri. Var þá
kosið um hina tvo fyrstu og
hlaut J. J. Bíldfell kosninguna.
Fyrir varaforseta var stungið
upp á R. E. Kvaran og var
hann kosinn í eínu hljóði.
Fyrir skrifara var stungið upp
á Rögnvaldi Pétursson og var
hann kosinn í einu hljóði.
Páll S. Pálsson kosinn í einu
hljóði varaskrifari.
Ó. S. Thorgeirsson kosinn í
einu hljóði fjármálaritari.
B. Dalman kosinn í einu
hljóði varafjármálaritari, er
Stefán Einarsson hafði beðist
undan kosningu.
. Árni Eggertsson kosinn í
einu hljóði féhirðir.
Walter Jóhannsson kosinn í
einu hljóði varaféhirðir.
G. S. Friðriksson kosinn í
einu hljóði skjalavörður er ýms-
ir höfðu afsakað sig.
Carl Thorlaksson og Grettir
Jóhannsson voru tveir í kjöri
sem yfirskoðunarmenn og hlaut
Carl Thorláksson kosninguna.
Að afstaðinni kosningu em-
bættismanna flutti Á. P. Jó-
hannsson eftirfarandi.
Athugasemdir fjármálanefndar
við nefndarálitið í Sýningar
málinu
í sambandi við síðasta lið,
sem ólokið er að afgreiða, þá
h'tur fjármálanefndin þann veg
á, að -ekki hafi komið nein fjár-
hagsleg styrkbeiðni frá milli-
þinganefndinni, er kosin var í
fyrra, og varla kunni að vera
um neinn verulegan kostnað að
ræða á þessu ári. Starfið mun
að miklu leyti felast í bréfa-
skriftum og öflun upplýsinga
um, á hvern hátt íslendingar
muni geta tekið þátt í hinni
fyrirhuguðu sýningu, er haldin
verður í Chicago 1933.
Fyrir þá ástæðu leggur nefnd-
in til að þessi liður sé látinn
niður falla.
Á. P. Jóhamrsson
Ingvar Gíslason
B. Theódór Sigurðsson
G S. Friðriksson
Rögnvaldur Pétursson gerði
fyrirspurn um, hvort nefndinni
væri með þessu synjað um
styrk, ef hún þyrfti hans með.
Taldi hann varhugavert áð
banna stjórnarnefndinni að
leggja til styrk, ef hans gerðist
þörf, sem væri næsta líklegt
að á daginn mundi koma.
Á. P. J. taldi ekki til þess
mundi koma að til fjárs mundi
þurfa að grípa. Alt starf nefnd
arinnar væri þannig vaxið. Hins
vegar væri freistandi að eyða
fé, ef því væri beinlínis haldið
að nefndinni.
Mrs. R. Davíðsson sagði að
nefndin hefði ekki komið sam-
an þar til nú fyrir mjög sköm-
mu, sökum fjarveru formanns
hennar, en þétti sýnt að án
fjárs fengi hún ekki mikið gert
í framtíðinni. r
Dr. M. B. Halldórsson taldi
sjálfsagt, að nefndinni væri
látið í té fé eftir þörfum. Mrs.
P. S. Pálsson kvað nefndina
enn ekki hafa beðið um neinn
styrk og með því að nefndin
á næsta ári gæti naumast
meira gert en afla sér upplýs-
inga, þá væru líkindi til þess
að hún þyrfti ekki á nema
litlum peningum að halda.
Hérna er herbergi sem
SJALFT BORGAR
LEIGUNA
. . . Það var einu slnni sú
tíðin að það var alls ekki
herbergi. Það var eigi
annað en auður geimur,
undir þekjunni. Þá kom-
umst við að þvi hve auð-
veldlega má nota þess-
konar rúm með þvi að
klæða það innan með
TEN/TEST, og við gerð-
um úr þvf skemtiherbergi.
frá þekjunni, svo aö þar
smaug enginn hiti Iengur
út. Húsið varð strax hlýrra
og notalegra og kolakaup-
En Það var eigi fyrr en
við gerðum það, að við
urðum þess vör að með
þvi að klæða það innan
með TEN/TEST höfðum
við útbygt öllum kulda
in lækkuðu.
A ári hevrju er eldiviðar
sparnaðurtnn drjúg leiga
eftir herbergið, og auk
þess höfum við notin af
herberginu.
Við slóum með þessu,
tvær flpgur I einu höggi.
— við fengum auka her-
bergi og við spöruðum
fast að þriðjungi i eldi-
við. Ekki svo illa að verið
með TEN/TEST.
Leitið allra upplýsinga og verðlags hjá
WESTERN DISTRIBUTOR
The T. R. Dunn Lumber Co., Limited
WINNIPEG, MAN.
FAST HJA ÖLA.UM BETRI TIMBURSÖLUM I LANDINU
TDIR
Tillaga fjármálanefndar var
þá borin upp og samþykt meö
28 atkvæðum gegn 24. Nefndar
álit sýningarnefndar var því
næst bocið upp með áorðinni
breytingu og samþykt.
Séra Rögnvaldur Pétursson
bað þá -um leyfi að mega leggja
fyrir þingið mál, sem flokk.i
mætti undir “Ný Mál’’ en væri
þó í rauninni gamalt og hefir
Félagið haft það með höndum
áður. Tilmæli hefði sér borist
frá einni utanbæjar deildinni,
þess efnis að Félagið á þessu
ári veitti, úr sjóði eða á annah
hátt, einhverja upphæð er þing-
inu kæmi saman um, í viður-
kenningarsleyni, fyrir vel unnið
starf, sagnaskáldinu góðkunna
J. Magnúsi Bjarnasyni í Elfros.
Áleit hann að heppilegast myndi
vera, ef félagið tæki mál þetta
á dagskrá, að það þar með
gerði tilraun til að mynda fasta
sjóð, stofnsjóð (Foundation), er
.bæri eitthvert ákveðið nafn, er
skýrði tilgang hans, og vöxtum
þessa sjóðs yrði svo varið ár-
lega til verðlauna veitingar ísl.
rithöfundum vestan hafs, en þó
þar með skilið að fyrsti veit-
ingahafi yrði skáldið góðkunna
er áður hefði verið nefnt. Sjóð-
inn gæti Félagið stofnað með
því að setja til síðu einhverja
ákveðna upphæð til þess að
byrja með ,og leita svo gjafa
í hann frá ári til árs, meða!
þeirra er styðja vildi þesskonar
fyrirtæki. Óskaði hann eftir að
þingið tæki þetta til meðferðar.
Fór hann þar næst nokkrum
orðum um ritverk J. Magnúsar
Bjarnasonar og benti á í hvaða
þakklætis skuld íslendingar
stæðu við hann.
Að máli þessu var gerður
hinn bezti rómur. Með því töl-
uðu séra Guðm. Árnason, Jóh.
Eiríksson, Ásm. P. Jóhannsson
er sagðist vera málinu með-
mæltur og ef hægt væri að
mynda sjóð á viðeigandi hátt
skyldi hann nú þegar gefa til
hans $25.00. Halldór Gíslason
spurði þá flutningsmann hvaða
nafn hann hefði hugsað sér
fyrir sjóðnum. R. Pétursson
sva/aði, að sjóðurinn mætti
heita “Bókmentasjóður Steph-
ans G. Stephansson, til styrktar
íslenzkum rithöfundum,” að
öðru leyti hefði hann ekki um
nafnið hugsað. Ásgeir Bjarna-
son mælti með sjóðstofnnu,
sömuleiðis Mrs. Byron er kvaðst
fús að leggja fram $5.00. J. K.
Jónasson mælti með málinu en
áleit heppilegast að ekkert nafn
væri við sjóðinn tengt að svo-
stöddu. Jónas Jónasson talaði
með málinu og hét sinni að-
stoð. Séra J P. Sólmundsson
mælti með en kvaðst ekki fella
sig við orðalag flutningsmann^
að öllu leyti. Jón Jónatans tal-
aði um nafnið, vildi að sjóð-
urinn yrði nefndur “Viðurkenn
ingarsjóður.” Árni Eggertsson
sagðist álíta heppilegast að fá
þetta mál 3 manna nefnd er
hefði það með höndum að
minsta kosti fyrsta árið. Til-
laga Ásg. Bjarnason og Halldór
Þægileg leíð
til Islands
Takið yður far heim með eimskip
um Canadian Pacific félagsins.
þá verðið þér samferða mörg-
um íslendingum. Þér mun-
uð njóta ánægjulegrar
ferðar, góðrar þjónust.
Agætra máltíða, og
allra þæginda er hið
volduga flutninga
félag hefir til
að bjóða.
Skrifið eftir upplýslngum um far-
bréfaverð til Evrópu er innifelur
allan kostnað.
Gerið fyrirspumir til umboðs-
manna á staðnum eða til W. <).
CASEY, Gen. Pass. Agent, C.P.R.
Bldg., Winnipeg, Phones 25 815,
25 816.
CANADIAN PACIFIC
STEAMSHIPS
Gíslason að kosin sé þriggja
manna nefnd er færi með mál-
ið til næsta þings. Jón J.
Bíldfell benti á að fyrst væri
að ganga frá bendingu flutn-
ingsmanns um að stofna sjóð,
lagði til að þingið aðhiltist þá
bendingu og ákvæði að stofna
slíkan sjóð, og setti fyrir honum
reglugerð um hversu með hann
skyldi farið. * Samþykt. Ásm.
P. Jóhannsson gerði þá breyt-
ingart'illögu við þá er fram var
komin að vísa málinu að svo
komnu til stjórnarnefndar.
Stutt af Guðj. Friðriksson og
samþ. Ó. S. Thorgeirsson vakti
máls á því, hvort ekki væri við-
eigandi að vekja athygli íslands
stjórnar á máli þessu. Á Egg-
ertsson gat þess að hann hefði
minst á þetta mál í sumar og
því verið vel tekið.
Fyrir hönd fræðslumálanefnd
ar flutti J. J. Bíldfell eftirfar-
andi álit: •
Það blandast víst engum hug-
ur um það, að fræðslumálin,
eru eitt af ’aðal verkefnum
Þjóðræknisfélagsins. Á sama
tíma og þau eru hið göfugasta
hugsjónarmið hjá félaginu
sjálfu og öllum öðrum, sem
að því styðja á einn eða annan
hátt, að vekja hugi og hjörtu
eldri og yngri Vestur-íslendinga
til þess sem fegurst er og bezt
í fari íslenzku þjóðarinnar.
Verkefni þau sem Þjóðrækn-
isfélagið, eða deildir þess hafa
sérstaklega haft með hndum á
áirinu er Jslenzk kensla og
framsögn á íslenzku af börnum
og unglingum. Hvoru tveggja
þetta hefir tekist ágætlega vel
á árinu og eiga allir hlutaðeig-
endur þakkar skilið fyrir áhuga
sinn í þeim efnum og vel unnið
verk.
í sambandi við fræðslu mál-
in, vill nefndin benda á, að,
fræðslu málun, utan Þjóðrækn-
isfélagsins hefir verið sint all
rækilega í sömu átt og Þjóð-
ræknisfélagið er að vinna og
starfa. Má þar til nefna söng-
kenslu Brynjólfs Þorlákssonar
sem er óendanlega mikils virði
fyrir Þjóðræknisstarfið, því það
er ef til vill ekkert, sem nær
jafn vel til sálar unglinganna
eins og töfra regn söngtónanna.
í öðru lagi er það CHoral
Society, sem mikla stund hefir
lagt á að æfa íslenzk sönglög
og breiða töfra mátt söngsins
út á meðal fólks.
Og í þriðja lagi, er það Jóns
Bjarnasonar skóli sem í 17 ár
hefir verið að vinna að því að
kenna íslenzka tungu og inn-
ræta íslenzkum nemendum
þekkingu á, og virðing fyrir ís-
lenzkum bókmentum og bók
vísi. Alt þetta starf miðar í
sömu áttina og Þjóðræknisfé-
lagið vill stefna. Ber oss því
að viðurkenna það, meta og
þakka. Enn fremur hefir hér
nokkur rækt verið lögð á
jónleika, sem einnig ber að
minnast með þakklæti á. Á
séra Ragnar E. Kvaran víst
mestan þátt í því starfi.
Með alt þetta í huga, leyfir
nefndin sér að leggja til:
1. Að íslenzkri kenslu verði
lif&ldið áfram og aukin ef hægt
er, á þessu ári.
2. Að framsögn unglinga á
íslenzku sé haldið áfram af
alefli, og að Þjóðræknisfélagið
styðji það starf, á sama hátt
og verið hefir.
3. Að stjórnarnefnd Þjóð-
ræknisfélagsins, og aðrir félags
rnenn og félagskonur séu beðin
að aðstoða hr. Brynjólf Þorláks
son við væntanlegar söngsam-
komur, sem hann hugsar til að
halda í vor. og að þingið veiti
hr. Þorláksson $25.00 úr fél-
agssjóði sem ofurlítinn þakk-
lætisvott fyrir starf sitt.
4. Að þingið viðurkenni
starf Choral Society með því
að veita því $25.00 úr sjóði.
5. Að þingið sýni viðurkenn-
ingu sína fyrir starf það sem
Jóns Bjarnasonar skóli og
starfsmenn hans hafa verið
að vinna með því að veita
skólanum $100.00 úr félags-
sjóði.
J. J. Bíldfell
Fred Swanson
B. E. Johnson.
Miss H. Kristjánsson lagði
tii og J. Jónatansson studdi,
að nefndarálitið væri rætt lið
fyrir lið Samþykt.
Fyrsti, annar og þriðji liður
samþyktir. Er kom að 4. lið,
spurði Mrs. Byron hvort unt
væri að samþykkja hann án
þess að vísa honum fyrst til
fjárhagsuefndar.
W. G. Jóhannsson áleit ekki
viðeiganii al rninnast ekki
karlakórsins íslenzka, ef annað
samskonar félag væri styrkt
með fjárframlögum. Gerði hann
þá breytingartillögu við liðinn,
að Choral Society, Male Voice
Choirs og Choral Society of
Selkirk yrði skrifað v!5urfeenn-
ingarbréf, en fjárveitingin væri
látin lalla niður. Tillagan var
studd af Árna Eggertsron og
samþykt.
Miss H. Krisrjánsson taldi
fjárveitinguna í 5. lið of háa.
Eftir nokkurar umræður var
Lðurinn samþyktur.
Fundi var nú í'restað til kl.
8. SíðJegis og ákveðið að þing-
slit færu fram á eítir skemti-
samkomu þeirri, sem i'ram átti
að fara um kvöldið.
Fundur var settur kl. 8 síð-
degis og hófst með því að J.
J. Bíldfell sýndi íslenzkar mynd
ir og útskýrði, en þess á milli
hlýddu menn á nýjustu íslenzk-
ar hljómplötur.
Að skemtun þesari lokinni var
fundargerningur lesinn upp og
samþyktur.
Rögnvaldur Pétursson gerði
tillögu um að Þjóðræknisfélag-
ið sýndi herra’ bókaverði Árna
Pálssyni í Reykjavík þá sæmd
að gera hann að heiðursfélaga.
Mælti hann nokkur orð um
ferð Árna Pálssonar og starf
hans vor á meðal. Á. P. Jóh-
annsson studdi tillöguna og var
hún samþykt með því að þing
heimur reis úr sætum sínum.
B. E. Johnson lagði til að
þingið vottaði fráfarandi vor-
seta, Jónasi A. Sigurðsson
þakklæti sitt fyrir vel unnið
starf. Tillagan var studd aí
Árna Eggertsson og samþykt
með því að þingheimur reis
úr sætum.
Forseti þakkaði með nokkrum
völdum orðum.
Fundargerð lesin og samþykt
og sleit hinn nýkjörni forseti
J. J. Bíldfell, þinginu með
stuttri ræðu.
J. J. BÍLDFELL, forseti.
R. E. KVARAN, ritari.
VISS MERKI
Bezta meðalið til þess að losast við
bakverk, nýrna- og blöðrusýki, eru
Gin Pills. Þær bæta heilsuna á þann
hátt að þæ rhreinsa nýrun svo að
þau getah reinsað blóðið eins og
vera á.
Dósin kostar 50c hjá lyfsalanum.
Opið bréf til Hkr.
Tileinkað vinum mínum, Mrs. Rósu
Casper í Blaine, Wash., og K. N.
skáldi á Mountain, N. D.
Frh.
Skemtiferð um Skagafjörð.
Kl. 7 s.d. riðum við fjögur af
stað fram um hérað — þau
Brimneshjónin og við ferða-
langarnir, með einn hest undir
trússum—töskum okkar Mörtu
— og komum að Framnesi um
kl. 9 og gistum þar. Þar búa
systkini, Bjarni og Helga —
því miður hefi eg ekki tekið
niður föðurnafn þeirra, búist.
við að muna það. En minnið er
svikult orðrð. Þau eru af Svaða
staðaætt og skyld mér, sam-
kvæmt framanskráðri ættar-
tölu. Ekki var því samt hreyft
neitt. — þess þurfti alls ekki.
Þau systkini tóku þeim Brim-
neshjónum vel, og okkur auð-
vitað líka. Sigurlaug og þau
systkin eru náskyld og feunn-
ingjar frá barndómi.
Á Framnesi er ágætlega hýst
— steinsteypuhús og vel um
gengið úti og inni. Bróðir
þeirra ungur, en þó eldri en
Bjarni, Sigtryggur að nafni,
druknaði í Héraðsvötnum. Var
hann að vinna við Héraðs -
vatnabrúna. Einhver annar
verkamaður við brúargerðina
féll í ána. Sigtryggur steypir
sér strax á eftir honum og nær
honum fljót'ega, og kom upp
Það eru
AUKA árin að endingunni til
1
2
3
4
Made of Copper-
Bearing Four One
Minute Wire
sem teljast
Ef til vill mun hvaða
girðingarvír sem þú kaup
ir endast sæmilega lengi
og nægja full vel, en—
“OJIBWAY"
Girðinga vír
er þannig gerður, að end-
ast margfalt lengur —
og tryggja yður æfilanga
girðingu er kostar þó
ekkert meira.
"OJIBWAY"
ABÆRILEGUSTU KOSTIRNIR er tryggja yður
“auka ending sem öllu varðar” eru:
Allur “OJIBWAY” girðingarvír er Zincvarinn svo að hann þolir
hina fjórföldu Preece-raun.
Hvert fet af þessum vir, er af fullri stærð No. 9 Galvaniserað,
Eirvarin brögðin, úr hreinu stáli.
Hver rúlla af fuUri lengd.
“OJIBWAY” ábyrgstur gegn sliti. Verzlunarmaðurinn mun sýna
yður að þetta er hin fylsta trygging, sem fylgir nokkrum girð-
ingavír, sem nú er á markaðnum.
Búa elnnig til ApoIIo og ApoIIo Keystone
Copper Steel Brands og Galvanized Sheets—Tin Plates.
Canadian Steel Corporation, Limited
Mills and Head Offlee: Ojibway, Essex County, Ontario
Warehouses: :Hamilton, Winnipeg, and Vancouver
27