Heimskringla - 15.04.1931, Blaðsíða 4

Heimskringla - 15.04.1931, Blaðsíða 4
4 BLAÐSJÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 15. APRIL 1931. StoinuB 1S8S) Kemur (it á hverjum miBvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. SS3 og 865 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86537 Verð blaðsins er $3.00 íirgangurinn borglst fyrlrfram. AHar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD. Ráðsmaður. TH. PETURSSON iltanáskrift til blaðsirs: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Saraent Ave.. Winnivea Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til rilstjórans: EDITOR HEIYSKRINGLA S53 Sargent A je„ Winnipeg. ‘•Helmskringla” ls published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 Snrgent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEG 15. APRIL 1931.4 SIR JOSIAH STAMP. Hver er þessi Sir Josiah Stamp, sem rannsókninni stjórnar, sem hafin var í gær í Winnipeg, viðvíkjandi kornsöl-u- fyrirkomulaginu á Grain Exchange. í stuttu máli sagt, er hann einn af fremstu þjóðmegunarfra^ðingum, sem nú eru uppi. Hann er stjórnandi járnbrautarfélags er nefnist The Midland and Scottish Rail- way, og er sagt að vera stærsta jám- brautarfélagið á Bretlandseyjum. Hann er einnig annar aðalstjórnandi stóriðnaðarfélags þess, er nefnist The Imperial Chemical Industries, svo aðeins sé minst á tvö helztu störf hans. Það virðist nú sem rekstur þessara félaga, ætti að vera hverjum einum manni ærið verkefni, jafnvel þó um eins færan mann sé að ræða og Sir Josiah Stamp. En því fer nú fjarri, að öll störf hans séu með þessu talin. Hann flytur fyrirlestra um hagfræði og þjóðmegun við fjölda háskóla á Eng- landi, svo sem Oxford-, Cambridge-, Lon- don- og Wales-háskólana, og ýmsar fleiri mentastofnanir Hann er og forseti Rocke feller Social Science ráðsins. Að vinna í konunglegum rannsóknar- nefndum má heita daglegt brauð fyrir honurp. í nefnd, sem skipuð var 1919 til að rannsaka tekjuskattinn á Englandi, var hann skipaður. Eiinnig í nefnd þá, er' gera átti út um fjármálin milli Bretlands og Norður-lriands 1922. Ennfremur í skattanefnd á Englandi 1924. I>á skipaði stjórnin hann í nefnd þá, sem rannsak- aði gengishrun þýzkra peninga, og út úr þeirri rannsókn urðu bæði Dawes- og Youngsamningarnir til. Er sagt að rann- sókn Sir Josiah sé mjög að þakka, að sú hugmynd varð framkvæmanleg. Þá var hann skipaður til að rannsaka kolanámu- reksturinn 1925 af brezku stjórninni. Og í hvert skifti að heita má, sem á rann- sókn hefir þurft að halda viðvíkjandi ein- hverjum hagfræðismálum, hefir stjórn- inni fyrst dottið nafn hans í hug, er til þess hefir komið að skipa slíka nefnd. Hann er því ekki neinn nýsveinn í starfi þessu, sem hann er nú kominn hingað til að ynna af heifti. En auk allra þessara starfa í þarfir hins opinbera, hefir hann síðan 1921 skrifað og gefið út eina eða tvær bækur á hverju ári., sem að efni til hafa verið um þjóðmegun eða hagfræðismál. Er þetta gott sýnishorn þess, hvílíkur hæfi- leika og afkastamaður hann er. Hann er og einn í stjórnarráði Eng- landsbanka. Hið ógæfusama kornsölufyrirkomulag hér hefir oft áður verið rannsakað. En það mun hæpið, með tilliti til hagfræði- legrar þekkingar Sir Josiah Stamp, að Grain Exchange hafi áður horfst í augu við aðra eins rannsókn og þá, sem und- ir forustu hans fer nú fram í Winnipeg. -------------------o------ HAFA BANKARNIR NEITAÐ BÆNDUM UM LÁN? Um þetta efni birtist eftirfarandi grein í aprílhefti McLean’s Magazine. Tímarit þetta er gefið út í Toronto, og er víðlesið og eflaust eitt af skárstu tímaritum í Canada. * * * Þurfa bændur í Vestur-Canada á bráðabyrgðarláni að halda? Hafa bankarnir neitað þeim um það? Hvaða áhrif hefir það á rekstur land- búnaðararins í ár, ef bankarnir lána ekki bændum? Getur afleiðin af því orðið sú að bóndinn verði að ganga á bústofn sinn og brytja hann niður til framfærslu sér og fjölskyldu sinni? í einu orði ságt, fullnægja bankarnir ekki þörf V^ptur-Canada nú eins og þeir hafa gert og búast mætti við af þeim með allri sanngirni? Um þessar spurningar hefir orðið tíð- rætt í sléttufylkjunum í seinni tíð. Virð- ist þar fáum blandast nokkur hugur um, að lánfyrirkomulag bankanna sé, sem stendur, aðfinsluvert. Fulltrúar. Vestur- Canada í sambandsþinginu hafa meira að segja gert ákveðnar tilraunir til þess að draga athygli að þessu. í stuttu máli eru aðfinslurnar við bank ana fólgnar í þessu:. í byrjun uppskeru- ársins 1930, lítur út fyrir að bankaúti- búin hafi, annaðhvort af sjálfsdáðum eða eftir skipun stjórnarráðs bankanna, á- kveðið að hætta að lána bændum í Vest- urlandinu fé, án nokkurs tillits til hvort tryggingin væri góð eða ill fyrir láninu. Og afleiðingin af þessu er talin sú, að fjöldi bænda, sem annars er vel fjáð- ur talinn að jörðum, búpeningi, áhöldum, húsum og vátryggingum, á erfitt með að reka búskapinn, vegna þess að þeir geta ekki fengið skilding lánaðan, gegn veði á neinu af eignum sínum. Þeir verða því að sverfa á kaupmann sinn, sem ekki má við því, að lána sér það sem með þarf til fæðis og klæðnað- ar um lengri tíma, en skattar eru ógreidd ir og í ekkert er hægt að ráðast, vegna þess, að fyrir það sem unnið er, er ekki hægt að borga í peningum. í tveimur ræðum, sem Hon. Robert Weir hélt nýlega, aðra í Toronto og hina í Montreal, skelti hann skuld' á bankana fyrir það, að hafa neitað bændum um lán, þó næga tryggingu gætu gefið, og hann kvaðst ekki geta rengt sjálfan sig um það, að það liti svo út, sem bank- arnir ætluðu að hætta að lána Vestur- Canada nokkurt fé. Svar bankanna. Stjórnendur helztu bankanna í Can- ada fundu sig knúða til þess að svara þessari ákæru. Lýstu þeir því strax yfir að reglugerð þeirra fyrir lánveitingum væri sú sama í Austur- og Vestur-Can- ada, og sú sama í dag og í gær og hefði ávalt verið. Hvorir fara með satt mál, bankamir eða ráðherrann, hefir enn ekki verið rannsakað. Það hafa engar áreiðanlegar skýrslur verið lagðar fram, er skeri úr því, hvo.rt bankavaldið sé sekt um þetta eða saklaust. En síðan máli þessu var hreyft af ráðherranum, hefir bréfum rignt til sambandsstjórnarinnar í Ottawa frá í- búum Vestur-Canada, er mál ráð- herrans styðja. Vér höfum yfirfarið bréf þessi og verð ur ekki á því vilzt, segir höf. greinarinn- ar, að megn óánægja er ríkjandi meðal íbúanna í Vestur-Canada út af framferði bankanna í þessu efni. Og bréfin eru held ur ekki öll skrifuð af bændum, sem sér- staklega eru óánægðir með hag sinn. Því fer fjarri. Hörðustu ákærurnar koma frá læknum, prestum verzkmarmönnum og fjármálamönnum í smærri bæjum sléttu- fylkjanna. Mikið af þeim er einnig frá þingmönnum, og bera það með sér, að í bygðum þeirra hafa menn snúið sér til þeirra með umkvartanir sínar, vegna stöðu þeirra, og því væntanlegra áhrifa í þá átt að fá bætt hér eitthvað úr skák. Öll lýsa bréfin því, að skoðun þeirra, er þau skrifa, sé sú, að núverandi banka- fyrirkomulag, fullnægi ekki þörf búnað- arástandsins í Vestur^Canada. Kenna sum þeirra bönkunum um það, en nokkur þó stjórnmálunum eins mikið og bönk- unum. Mörg af þessum bréfum sýna einnig. að bréfritararnir virðast smeykir við að láta skoðanir sínar í ljós um þetta mál. Níu af hverjum tíu biðja um að birta ekki nöfn sín. Það virðist sem sú trú sé mjög ríkjandi hjá almenningi, að bank- arnir muni reyna að koma fram hefndum á þá, sem dirfast að finna að einhverju í starfi þeirra. Og það leynir sér heldur ekki, að bréf- ritararnir eru mjög ófúsir til að kenna bankastjórum útibúanna um þetta, því þeir bera þeim undantekningarlaust vel söguna. Ástæður tilfærðar. Það eru ekki til neinar opinberar skýrslur er sýni viðskifti bankanna síð- ustu átta mánuðina í Vestur-Can- ada, svo að af því verði nokkuð ráðið, hvort bankarnir hafi takmarkað lánveit- ingar sínar til bænda. En hér á eftir fara nokkur dæmi, úr áminstum bréfum, er íbúar Vestur-Canada benda á máli sínu til sönnunar um þetta: 1) Bóndi nokkur í Norður-Saskatche- wan á 4,500 ekrur af landi, sem hann keypti á $44,000. Hann borgaði $15,000 út í hönd og $5000 árlega af afgangi verðsins skilvíslega. Á jörðinni er um $1700 virði af búnaðaráhöldum, sem borguð -eru að fullu. Bóndinn á skuld- laust 100 nautgripi, 40 hesta, 50 sauð- kindur og 200 svín. Hann æskti að taka lán til þess að borga með þreskingar- kostnað sinn að fullu s.l. ár og jafnframt til að kaupa nokkrar fleiri kýr. Hann fer til þriggja banka. Tveir af þeim tóku honum vel og ætluðu að veita lánið, en því var neitað af höfuðbóli bankans í Austur-Canada. Þriðji bankinn var ekki í héraðinu, en stjórnandi hans kvaðst ó- fús að byrja viðskifti við menn, sem heima ættu í annari sveit, sem bankar væru starfandi í. Bóndinn fékk því ekki lánið. 2) Bóndi nokkur í Norður-Saskatche- wan fékk góða sprettu 1930, en hveitið skemdist af regni og snjó. Þegar hann seldi það, fékk hann 9 cent fyrir mælir- inn, að frádregnu burðargjaldi og korn- hlöðukostnaði. Þetta var tveim centum minna en þresking kostaði, og hann hafði ekkert fé til þess að borga þeim, Sem hjá honum unnu að uppskerunni, né búðarskuldir, né skatta, né vátrygging- ar. Hann beiddist láns hjá banka til næsta vors til þess að standa í skilum með þetta, en var neitað ium það. Bóndi þessi segist að vísu vita, að bankinn álíti lán- töku þessa ekki bráðnauðsynlega en sann leikurinn sé þó sá, áð hann neyðist held- ur til að iáta landið úr hendi sér ganga og hætta búskap, en að láta þá, sem hann skuldar, bíða óhag af því, ef hann ekki fær neins staðar lán. 3) Maður sem fjármálastörf hefir með höndum í smábæ í Suður-Saskatchewan, skýrir frá því, að í sinni sveit þurfi bænd ur alment á láni að halda, er nemi $200 —$500 yfir veturinn. En þegar þeir fóru síðastliðið haust fram á slíkt lán við bankana, var þeim neitað um þau. Þeim var sagt, að valdið til þess að veita þessi lán, væri ekki hjá bankastjórum útibú- anna, heldur hjá aðalskrifstofunum. 4) Þetta er bóndi í norðurhluta Sas- katchewanfylkis. Hann á 960 ekrur af landi, sem verðlagt er á $25,000. Aðrar eignir hans nema um $20,000. Sú eina skuld, sem á eignum hans hvílir, er 1200 dollara skuld í banka í sveitinni. Hann sótti um lán meðan hann var að koma uppskerunni í peninga. Bankin nneitaði að veita það. Og eins gerðu lánfélög, er hann bauð eignina að veði fyrir slíku láni. 5) Bóndi í norðurhluta Saskatchewan- fylkis, á 480 ekrur af landi, metnar á $11,500. Hann skuldar $4000 á eigninni og $1100 í banka. Hann gat ekki fengið lán, er svaraði til framfærslukostnaðar hans og fjölskyldunnar til vorsins. 6) Bóndi í norðurhluta Saskatchewan- fylki á 800 ekrur af landi skuldlausar og þess utan í verðbréfum $10,000 virði Lánstraust hans hjá bankanum hefir verið ótakmarkað undanfarin ár, eða hefir leikið á eins miklu og $15,000. Hon- um var neitað um lán s.l haust um upp- { grein Þessari- hefir Mr- Weir farið fram á það, að eitthvað af þeim séu rannsakaðar/og lof ast haiin til að bréfin skuli verða lögð fram, ef til slíks skerutímann, þó hann skuldi ekki bank- anum eyrisvirði. 7) Bóndi í norðurhluta Saskatchewan fylkis, sem búnaÓ* rekur á 1600 ekrum, hefir óumtalað hingað til fengið að hleypa skuld sinni hjá bankanum upp $4000. Síðastliðinu baust hlaut hann 30 cents fyrir mæli '-n af hveiti að frá- dregnu burðargjaldi og kornhlöðukostn- aði. Hann galt bankanum það sem hon- um bar, en hafði ekki nóg eftir til að greiða vinnulaun, skatta og nokkra búð- arskuld. Honum var neitað um lán. , 8) Hér er dæmi frá Albertafylki. Bóndi þar á 800 ekrur af landi og rekur stórt nautgripabú. Hann er skuldlaus. Hann fékk stundum 3000 dollara lán í einu hjá banka. En nú í haust skorti hann peninga og leitaði á náðir bankans, sem hann skuldaði ekki eyri. Hann fær $200 lán. Eina ráðið, sem hann sér nú, er að færa saman búskaparkvíarnar, minka höfða- tölu skepna sinna. 9) Líkt dæmi er af öðrum bónda í grend við bæinn Calgary. Hann rekur gripabú. Eignir hans eru metnar $100,- 000. Hann skuldar á þeim $2000, auk $6000 bankaláns. Hann fór í haust fram á $1000 lán. Því var neitað. Hann sér ekki hvernig hann geti rekið svo stórt bú, sem hann hefir, án þess að fá við og við nokkurt lán til þess að greiða bóndi á óðali sínu, og er eign hans metin á $97,000. Hann á $18,000 lífsábyrgð, borgaða að fullu. Hann skuldar banka um $2000. Og allar aðrar skuld ir hans nema ekki meira en $5000. Hann sótti um $500 bankalán, sem hann ætlaði ti! fóðurkaupa handa skepnum, er hann ætlaði að fita til frálags, en var neitað um þetta lán. 11) Bóndi í Saskatchewan- fylki sendir með bréfi sínu ti! Ottawa eiðsvarna skýrslu, út- færða af bankastjóranum í sveit sinni um hag sinn. Eignir hans eru metnar á $52,123. Allar skuldir nema $14,949. Skuld- laus eign hans er því $37,174. Bankastjórinn í héraði hans sá ekkert í vegi, að hann gæti fengið lítilsháttar lán, er hann fór fram á, en samt fór það svo, að honum var neitað um það frá aðalskrifstofu bankans í Austur-Canada. Fleiri dæmi. Þetta er nú sagan, í bréfum þeim, sem stjórninni hafa bor- ist frá Viestur-Canada 'um af- stöðu bankanna gagnvart land- búnaðinum. Um hana er ekkert frekar að segja. Hún þarf engr- ar skýringar við. En við hana mætti bæta því, er F. Eliason. ritari hjá einu bændafélagi í Vestur-Canada, skýrir frá, og að þessu sama lýtur. Hann seg- ir þá sögu frá Wynyard, Sask., að velmegandi bóndi þar hafi sótt um $75 lán meðan á þresk- ingu stóð í fyrrahaust, og hafi verið neitað um það. Annar bóndi þar, þolanlega efnum bú- inn, sótti lum $60 lán til þess að kaupa fóður handa naut- peningi og svínum, sem hann ætlaði að fita og senda síðan til markaðar. Hann bauð banka stjóranum að láta senda hon- um alt andvirði skepnanna. beina leið frá sláturfélaginu, en ekkert dugði, og honum vav neitað um þetta lán. Mr. Elia- son minnist á þriðja atvikið, en það er í því fólgið, að bóndi bað um $21 lán til þess að borga með bindaratvinna, en var neitað um það af bank- anum. Frá sjónarmiði bankanna! “Mark vort og mið er,’’ skrif ar stjórnandi einn|ar ba'nka- stofnunarinnar í Canada, “að íhuga sem samvizkusamlegast allar ástæður viðskiftaivina vorra og að hjálpa hverjum ein- asta bónda, sem hjálpar er verður, alt sem unt er. Vér göngum ekki hart eftir greiðslu á lánum á þessum tímum, vegna þess að oss er það íull kunn- ugt, að fyrir bændum er nú yfirleitt svo ástatt, að þeir geta ekki greitt lánsskuldir sínar jafnóðum og þær falla í gjald- daga.” En með tilliti til umkvartana þeirra, sem á hefir verið bent 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. —- Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið þangað. þingið, um rýmra og betra lán- fyrirkomulag í Vestur-Canada. Hvernig sem um mál þetta fer, á Mr. Weir miklar þakkir skilið, fyrir að hafa vakið at- hygli á því, og þá ekki síður fyrir lipra meðferð þess. Hann- heldur því ekki fram, að bank- arnir eigi skilyrðislaust að lána fé það, sem þeim er trúað fyr- ir. Og hann segir ekki, að þeir hafi neitað þeim um lán, sem óyggjandi tryggingu geti gefið gefið fyrir láni sínu. En hann kveður bankana verða að gera grein fyrir afstöðu sinni við- víkjandi umkvörtunum íbúa vesturfylkjanna, ^vo ,*bændur viti framvegis hvernig þeir eigi að snúa sér í sambandi við lán er þeir þurfi á að halda. Án þess að vera það fullkomlega Ijóst, viti þeir ekki hvert stefni með búskapinn. Bændurnir, seg ir hann að einnig ættu að láta í té allar þær upplýsingar, sem hægt sé viðvíkjandi bankavið- skiftum þeirra. Hann segir ennfremur, að fá- ist bankarnir ekki til að lána bændum í Vestur-Canada, með þeim skilyrðum er því sé sam- fara, verði að leita annarsstað- ar fyrir sér með þau lán, því sá hluti landsins geti ekki rekið sínar iðngreinar án þeirra, fremur en aðrir hlutar lands- ins. BJARTSÝNI. kæmi. Mun hann hafa farið fram á þetta við bankana. Beaudry Lemon, forseti can- adiska bankafélag «ins, segir, að jafnvel þó að hægt sé að benda á einstöku dæmi, er beri ef til vill vott um of mikla var- færni af bankanna hálfu í lán- veitingum sínum, sé reglan sú. að þeir séu, sanngjarnlega á allar ástæður litið, fúsir til að veita lán, og hafi meira aö segja yfirleitt verið mjög ör- látir á lánveitingar til búnaðar- reksturs í Vestur-Canada. Einn af stjórnendum banka- stofnunar þeirrar, er mest við- skifti hefir við bændur í vest- urfylkjunum, heldur því fram, að lánveitingar til bænda á ár- nu 1930 hafi verið eins mikl- ar o§ árið 1928, og meiri en árið 1929. Þarna er þá sýnishorn af skoðunum beggja aðila í þess- ari bankalánsdeilu. Að órann- sökuðu máli verður auðvitað ekkert fullyrt um, hvorir hafi meira til síns máls. En bænda- íélögin í Vesturfylkjunum hafa erið að viða að sér upplýsing- um í málinu, og er mælt að vinnufólki sínu kaupið. 10) Þetta óviðjafnanlega dæmi er frá !þau séu að undirbúa tillögur til norðurhluta Saskatchewanfylkis. Þar býr þess að leggja fyrir sambands- Mynd af framtíðinni bregður upp fyrir hugskotssjónum mín- um. Eg sé landið okkar — Banda- íkin — alskipað farsælum heim ilum, þar sem ánægjan ríkir við arninn — fremsta land heimsins. Eg sé heim, þar sem kórónur eru hrundar og komungar orðn ir duft. Aðall iðjuleysisins er horfin naf jörðinni. Eg sé heim þrælalausan. — Maðurinn er , loksins orðinn frjáls. Vísindin hafa beizlað öll náttúruöflin og knúð þau í þjónustu mannkynsins. Eg sé heim, þar sem friður- inn skipar öndvegið; heim full- an af fögrum listum og unaðs- legum söng, sem fyllir manns- sálirnar með gleði og unan, — heim, þar sem ást og sannleik ur drýpur af vörum mannanna, heim, þar sem enginn skóg- armaður stynur; enginn fangi grætur. Heim, þar sem skuggi gálgans fellur ekki fram á veg- inn. Heim, þar sem daglauna- maðurinn uppsker fullan ávöxt af starfi sínu; þar sem vinna og verðmæti haldast í hendur: þar sem fátæka stúlkan, sem vinnur sér inn brauð með nál- inni — nálinni, sem nefnd hef- ir verið naðran í brjósti hinna snauðu — sé ekki lengur neydd til þess að stytta sér stundir með því að lifa í glæpum og svívirðingu. Eg sé heim, lausan við bein- ingamanninn; við hin gnístandi augu nurlarans; hinar bleiku varir lýginnar, og hin grimmu augu fyrirlitningarinnar. Eg sé kynslóð, lausa við alla sjúkdóma holds og sálar, fag- urlimaða og bjarta, samræmi forms og athafna. Og á meðan eg horfi, lengist

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.