Heimskringla - 27.05.1931, Side 2

Heimskringla - 27.05.1931, Side 2
I BLAÐSEDA HEIMSKRINCLA WINNIPEG 27. MAl 1931. Margrét Austmann Hún andaðist á heimili sínu á Lundar í júní mánuði síðast- liðið ár og var láts hennar get- ið í Heimskringlu um það leyti. Margrét var fædd í Hlíðar- húsum í Jökulsárhlíð í Norður- Múlasýslu 16. nóvember árið 1853. Ólst hún upp þar í sveit- inni og giftist Birni Rúnólfs- syni Austmann ánið 1888. Þau Bjöm og Margrét reistu bú á Litla Steinsvaði við Lagarfljót og bjuggu. þar fjórtán ár. Það- an fluttust þau vestur um haí árið 1901 og settust að í Álfta- vatnsbyðinni, eins og hún var þá venjulega nefnd nokkru norðar en þar sem Lundar þorpið stendur nú. Bjuggu þau þar á landnáms heimili sínu yfir 20 ár og fluttust svo, er þau brugðu búi þar sunnar í bygðina til Mary Hill, þar sem þau dvöldu nokkur ár hjá dótt- ur sinni og tengdasyni. Eftir það fluttust þau til Lundar og tivöldu þar þangað til Margrét dó. Þau hjón áttu eina dóttur, Sigrúnu að nafni, semt er gift Guðmundi Sigurðssyni, ættuð- um af Norðurlandi. Bjuggu þau Guðmundur og Sigrún all mörg ár í Hafteigi, skamt frá Mary Hill pósthúsinu, en fluttust fyr- ir rúmu ári síðan til High Prairie í Peace River héraðinu í Alberta og búa þar nú. Son- ur Björns, en stjúpsonur Mar- grétar, er Björn bóndi í Lauf- ási frá Lundar, sem er giftur Björgu, dóttur Högna Guð- mundssonar, er þar bjó lengi ásamt bróður sínum Eiríki. Er það fólk alt ættað af Fljóts- dalshéaði og Austfjörðum. Margrét sál, var myndarkona og einkar vel látin af öllum, sem hana þektu. Hún var gest- risin og vinföst, og var heimili þeirra hjóna mikið gestaheimili bæði á íslandi og hér. Hús- móðurstörf sín rækti hún í bezta lagi og var jafnan reiðu- búin að rétta öðrum hjálpar- hönd, er á þurfti að halda, enda átti hún marga vini með- al nágranna sinna og sveit- unga. í viðkynningu var hún hispurslaus og hreinskilin og fór ekki dult með skoðanir sín- ar á neinu, en var þó jafnan glöð í bragði og vingjamleg. Drjúgt við lagði hún hverju því máli, sem hún studdi; voru þau Björn og hún meðlimir únítara safnaðarins þar í bygðinni eft- ir að hann var stofnaður og studdu hann af alefli. Mestalla æfi sína var hún heilsuhraust og starfskona mikil, en rúmu ári áður en hún dó varð hún fyrir því slysi að meiðast af byltu, og eftir það lá hún rúm- föst og ósjálfbjarga. Varð leg- an henni erfið, sökum þess, að þótt hún væri nokkuð hnigin að aldri, var hún enn með fuilum lífskröftum og kunni ila við að geta ekki stigið á fæturnar. Margir urðu til þess að hlynna að henni í legunni, þar á meðal systir hennar, sem kom alla leið vestan af Kyrra- hafsströnd til þess að stunda hana. Og aðdáanlegrar um- hyggjusemi naut hún frá manni sínum, sem þó var sjálfur ant- inu lasburða og því nær blind- ur. Þau Björn og Margrét lifðu saman í farsælu og ástríku hjónabandi í 42 ár. Skömmu eftir dauða hennar fluttist hann til Björns sonar síns. Með Margréti sál e rhnigin til moldar ein af hinum eldri, íslenzku ágætiskonum, sem með starfsemi sinni, góðvilja og fórnfýsi^ hafa gefið svo mörgum íslenzkum heimilum hér vestra þann blæ, sem ósk - andi væri að hyrfi ekki með yngri kynslóðinni; því hann er eitt af því bezta, sem vér höf- um í arf tekið og með oss flutt frá ættjörðinni í hin nýju heim kynni vor hér evstra. G. Á. Steinunn Rafnkelsson Þann 4. apríl síðastliðinn and aðist á heimili sínu á Oak Point, Man., konan Steinunn Rafnkelsson 85 ára gömul. Hún var fædd árið 1846 á Vindborðiá Mýrum í Austur- j Skaftafellssýslu. Foreldrar hennar voru Jón bóndi og; hreppstjóri Jónsson, sem lengi j bjó á Hofi í Öræfum, og kona hans, Sigríður Gísladóttir, ætt- uð úr Skaftártungum. Stein- unn dvaldist hjá foreldrum sín- um þar til hún giftist árið 1879 eftirlifandi manni sínum, Eir- íki Rafnkelssyni frá Holtum í Hornafirði. Þau Eiríkur og Steinunn bjuggu fyrst á Hofi sjö ár, það- an fluttust þau að Holtum í Hornafirði og voru þar tvö ár. Að þeim liðnum fluttust þau vestur um haf árið 1888 og settust fyrst að í Mikley. Það- an fluttust þau í ísafoldarbygð ina í Nýja-íslandi og bjuggu þar 12 ár; síðan fluttust þau evstur að Manitobavatni og bjuggu þar all mörg ár, fyrst í greiid við Lundar og síðan n >rðar Taeð vatninu að vest- anverðu, nálægt Asham Por.it, síðu-tu níu árin áttu þau heim a á Oak Foint. Böm þeirra hjóna eru fimm: Sigríður, kona Sigfúsar Borg- fjörðs á Oak Point; Jón, bú- settur á Oak Point, giftur Guðrúnu ólafsdóttjr, ættaðri úr Borgarfirði; Rafnkell, bú- settur að Stony Hill, giftur Halldóru Sveinsdóttir, ættaðri af Síðu; Jón, búsettur að Sil- vel Bay, giftur Jónínu Þorvarð arson, og Gísli, ókvæntur, sem dvalið hefir heima með for- eld'um 'íijum. Steinunn sál, var mesta af- bragðskona. í umgengni var hún látlaus og rólynd; heimili sitt stundaði hún með frá- bærri alúð og skyldurækni með- an kraftar entust; hún var greind vel og all vel hagmælt, þótt hún léti b'tið á því bera; minni hafði hún ágætt og kunni frá mörgu að segja frá yngri árum. Frásögn hennar var blátt áfram og látlaus, eins og hún var sjálf, og var skemti legt að heyra hana segja frá ýmsum siðum -og háttum, sem tíðkuðust í umhverfi hennar þégar hún var ung. Lengst af æfinni var hún heilsuhraust og sinti öllum venjulegum heimilisstörfum eftir að hún var komin yfir áttrætt. Fyrir næstum þremur árum misti hún sjónina og eftir það fór helsu hennar að hnigna. Seinustu sex mánuðina, sem hún lifði, var hún rúmföst. Steinunn sál. tilheyrði hinni eldri kynslóð Islendinga, sem fluzt hafa hingað vestur, þeirri kynslóð, sem nú er óðum að hverfa. Hún hafði ýms einkenni þess tíma, sem hún ólst upp á. og þess landshluta, sem hún var uppalin í, svo sem festu og trygð við fomar endurminning- ar og óbeit á öllum flysjungs- hætti. Starf íslenzkra kvenna á hennar aldursskeiði hefir alt ver ið bundið við heimilin; en þótt starfssviðið hafi ef til vill verið nokku ðþrengra en nú gerist, var skyldurækni og stöðuglyndi þeirrar kynslóðar þeim mun meiri; enda var þeirra kosta þörf í afskektum héruðum á íslandi, þar sem erfiðleikar voru margir og miklir, og ekki síður á frumbýlingsárunum hér í landi, meðan flestir áttu við fremur erfiðan kost að búa. En endurminningin um þá menn og þær konur mun lifa í þakklátum hugum afkomenda þeirra. G. Á. Endurminningar Eftir Fr. Guðmundsson. TIL ÍBÚA WINNIPEGBORGAR STEYPUKOSTNADUR Hver notar steinstéttina, sem þeir sem með strætisvögnum ferðast borga fyrir og halda snjólausum á vetrum? Þar sem einfalt vagnspor er lagt, verð- ur strætisvagnafélag yðar að borga fyrir steypu strætisins, 7 fet 8 /i þumlung að breidd og þar sem tvöföld sporlagning er 16 fet og 5 þumlunga. Flutningsvagnar og bílar slíta þessum strætum. Að halda við og gera þessar strætisbætur kostaði árið 1929, $130,584.55. SKATTAR 1 hvert skifti sem þú feðast með sporvagni borg- arðu bænum skatt. Arið 1929 borgaðirðu með sporvagnferðalagi þinu i sköttum, $445,963.62, sem hér fylgir: I Winnipe gfasteignaskatti $ 40,169.57 Utan Winnipeg 11,327.95' Winnipegborgar virðingarskattur 49.500.00 Winnipeg tekjuskattur 165,648.26 .Winnipegborgar vagnaleyfi 6,700.00 Til Manitobafylkis (Corp’n Tax) . 6,630.00 Sporlínaskattur í bænum 22,210.78 Að halda við og steypa stræti 130,584.55 Ymsir Skattar 13,193.51 Ársskattar alls $445,963.62 Tekjuskatturinn (gross earnings) og steypuskatturinn á strætunum, sem að ofan er syndur, er sérstaklega óréttlátur. Þeir voru lagðir á þegar tímar voru alt aðrir en nú. Til þess að hægt væri að bæta sporvagnaflutninginn, ætti að breyta þessum sköttum eftir því sem kringumstæð- ur breytast. Eitt meira. Winnipeg rafmagnsfélagið hefir ekki notið sömu réttinda og önnur félög. í 20 ár hefir Winnipeg Hydro verið undan þegið því að borga skatt samkvæmt fólksfjölda bæjarins, en ekki tekjum, sem félag vort hefir borgað. Það er nú fyrst með byrjun þessa árs, að Winnipeg Hydro byrjar að borga þennan skatt. Það er tvent í sambandi við þetta sem vert er að athuga. Allar tekjur Winnipeg Hydro félagsins eru helmingi meiri en en tekjur Winnipeg sporvagnafélagsins. Þessvegna ætti Win- nipeg Hydro að greiða tvöfalt á við það sem strætisvagnafélagið borgar. Ef þess væri nú kraf- ist að Hydro borgaði hlutfallslega eins og stræt.isvagnafélagið að þessu leiti, væri það stór sum- ma af fé, sem það skuldaði Winnipegborg og upphæðin sem Hydro var upp á lagt að borga 18 maí, sem er um $150,000.00, væri ekki nema lítið brot af allri skuld þess til bæjarins. Auk þessa er Winnipeg Hydro undan þegið tekjuskatti og flykisskatti, þó sporvagnafélagið borgi þessa skatta. Alt sem vér gerum kröfu til, er að jafnt gangi yfir alla, en enginn hljóti sérstök hlunnindi. Frh. Margir hafa heyrt talað u'm drauginn á Núpi í Axarfirði,— hinn svokallaða Núpsdraug, — og var hann mikilvirkastur allra drauga í Þingeyjarsýslu. Hans athafna tímabil hefir hlotið að vera einhverntíma á árunum 1850—60, þvi að Árni föðurbróðir minn var farinn að búa á Skógum í Axarfirði, og mig minnir að hann væri orð- inn hreppstjóri í sveitinni á uppivöðslutíð draugsins. Mig minnir að eg heyrði svo frá sagt, að Árni hefði gift sig sumarið 1849, og eitthvað hef- ir hann verið búinn að taka þátt í opinberum sveitamálum áður en hann var gerður að hreppstjóra. Um þegsar mundir bjó á Núpi maður sá, er Friðrik hét, vel látinn og vinsæll, og tók alla í sveitinni sárt til þeirra hjóna. Ekki man eg hvað kona Friðriks h$t; en sonarsonur beirra, Sigurður feð nafni, fór til Ameríku, og hefi eg heyrt að hann hafi búið í Nvja ís- landi. Skamt frá bænum á Núpi er tjörn ein, sem börn þeirra hjóna höfðu gaman af að leika sér við og köstuðu þá oft steinum út í tjömina, eins og baraa er siður. Eina nótt seint á sumri, dreymir konu Friðriks það, að til hennar kem úr kona, henni ókunn, og bið- ur hana að sjá um, að börnin hennar hafi það ekki að leik á daginn, að kasta steinum í tjöraina, því að mikið ilt geti hlotist af því. Draumurinn var skýr og hún man hann vel, þegar hún vaknar, en tekur ekki mark á þessu rugli, og svo fer því sama fram. Litlu seinna kom draumkon- an aftur til húsfreyju í svefni, og bar sig illa yfir því, að hún tæki ekki ósk sína og viðvör- un til greina, og bað hana að sjá um að börin héldu ekki þessum leik áfram að kasta steinum í tjörnina, því að þau spiltu veiði sinni og gætu skað VISS MERKl k " ............... 136 Bezta meðalið til þess að losast við bakverk, nýrna- og blöðrusýki, eru Gin Pills. Þær bæta heilsuna á þann hátt að þæ rhreinsa nýrun svo að. þau getah reinsað blóðið eins og vera á. Dósin kostar 50c hjá lyfsalanum. að húsfreyja tekur ekki mark á þessu draumarugli. — Þá kemur draumkonan hið þriðja sinn, og er sjáanlega reið og segir, að nú sé svo komið, að ekki verði fyrir goldið, því aö í dag hafi börnin hennar hand- leggsbrotið eitt sitt barn, og muni hún nú sjálfa sig fyrir hitta. Næsta dag eru böra hús- freyju að leika sér úti í góðu veðri. Sjá þau þá að eftir veg- inum kemur kona gangandi, og þykjast þau þekkja þar frændkonu sína, sem heimsótti þau annað slagið, og kom þeim saman um það, að hlaupa á móti henni. En þegar þau áttu enn eftir dálítinn spöl til henn- ar, þá sáu þau að þetta var ekki frænka þeirra og stönzuðu við. En ókunna konan urraði og stappaði niður fótunum framan í börnin, svo að þau hlupu hrædd heim og sögðu móður sinni frá þessum at- burði, og er það hið fyrsta, sem draugsins á Núpi varð vart, og voru þetta sögð tildrög til draugagangsins. Verulega byrjaði þó drauga- gangurinn ekki fyr en í októ- ber um haustið. Þá var það seint á degi, er allir voru komn ir til baðstofu og seztir að kvöldvinnu, stúlkur við kambat og rokka og karlmenn rökuðu sauðargærur, og ljós loguðu á sínum stöðum í baðstofunni, að tekið var til að kasta mold fram undan rúmunum og inn á baðstofugólfið. í fyrstu (hélt Friðrik að börnin væru völd að þessu, en brátt var gengið úr skugga um að þau voru sak- laus, og að enginn maður á heimilinu gat verið valdur að að börnin sín. Fer nú sem fyr, þessu; og ekkert sást né heyrð ist, þó að vandlega væri að gáð nema moldausturinn inn á gólf ið. Upp frá þessxi hafði fólkið raunar aldrei frið nætur né daga, fyr en loks seinni part vetrarins, að húsbændurair af- réðu að flýja heimilið með alt sitt bú, og var þá Árni í Skóg- um, sem var góður smiður. fenginn til að gera við alt það á heimilinu, sem var brotið og bramlað eftir drauginn. Næsta sumar flutti annar maður á jörðina, og varð þá ekki fram- ar vart við draug þenna. Margar smásögur heyrði eg af þessum draug, sem eg hirði ekki um að segja frá; en tvær af þeim voru þó svo sérstakar í sinni röð, að eg vil lofa mönn um að heyra þær. Draugurinn HREINLÁTASTA OG HOLLUSTUMESTA MJOLKURSTOFN- UN I WINNIPEGBORG Eign Winnipegbúenda og rekin af þeim. Hreinlæti í meðferð allra afurða og stjórnsemi. Veldur framgangl vorum og vexti. SfMI 201 101 E. Anderson President WINNIPEG ELECTRIC COMPANY. “Þér getið slegið rjómann — en ekki skekið mjólkina." MODERN DAIRY LIMITED

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.