Heimskringla - 09.03.1932, Blaðsíða 1
:or/
DYKRS & CLEANERS, LTD.
Men’s Suits
$1.00
Suits
Hats
50c
CALL 37 061
DYKRS & CLEANERS, LTD.
Ladies’ Dresses
Cloth, Wool aa
or Jersey .......... 91 ■UU
CAL.L. 37 061
XLVI. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 9. MARZ 1932.
NÚMER 24
ASÍUSTRÍÐINU LOKIÐ?
Það getur nú vel verið, að
það sé ofsagt ,að Asíustríðinu
sé lokið. Svo mikið er þó víst,
að samið hefir verið um stund-
ar vopnahlé, með það fyrir aug-
um að koma á algerðum friði.
Enda mega Kínverjar heita tap
aðir og yfirunnir. Japanir gerðu
stórkostlegt áhlaup um miðja
síðastliðna viku, og hröktu
Kínverja eins langt til baka
með vopnum eins og þeir kröfð-
ust ávalt, að þeir færu. Því
fylgdi feikna mikið mannfaU
af Kínverjum, eða um 10,000
manns, samkvæmt því er Jap-
anir segja. Að vísu féll einnie
eitthvað af Japönum, en þó
ekkert svipað þessu, og líkleg-
ast ekki nema nokkur hundr-
uð í mesta lagi. Sigurinn er því
þeirra nú þegar.
Þjóðbandalagið hefir stöðugt
verið að reyna að koma á friði.
Virðast Japanir aldrei hafa gef-
ið því neinn gaum fyr en nú
Er það ef til vill meira af því,
að nú hafa þeir komið áform-
um sínum fram, en hinu, að
þeir hafi nokkru sinni ætlað
sér að láta að orðum' Þjóð-
bandalagsins, þó fréttirnar telji
þá hafa kiknað að lokum fyrir
áhrifum þess og afskiftum af
stríðinu.
En hvað sem um það er, horf-
ir nú svo við, sem stríðinu sé
lokið og eftir sé ekki annað
en að gera friðarsamningana
og bæla um leið niður óstjóm-
ina í Kína. Er sagt að róstusam
ara hafi orðið þar heima eftir
að vopnahléð komst á, en áð-
ur, og vestlægu þjóðirnar hafi
orðið að koma til skjalanna til
að halda þeim í skefjum, því
þeir yilji friðlaust berjast. Og
nema því aðeins að innbyrðis
friður komist á í Kína, er ekki
líklegt að Japanir semji frið.
BRIAND LÁTINN.
Franski stjórnmálamaðurinn
heimskunni Aristide Briand, lézt
s.l. mánudag í París. Hann var
69 ára gamall.
Hann var oft bæði forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra
Frakklands. Og síðast var hann
í ráðuneyti Lavals, er fór í vet-
ur frá völdum, þegar Tardieu
tók við stjórnarformensku. —
Varð Briand þó nokkru fyrir
stjórnarskiftin að hætta stjórn-
arstörfum heilsunnar vegna.
Friðarmálin voru mestu á-
hugamál Briands á síðari ár-
um. Var hann sístarfandi að
þeim, enda var hann “friðar-
postuli” nefndur. Briand-Kel-
logg samningurinn var eitt af
hans miklu störfum á því sviði.
Briand sótti um forsetastöðu
á Frakklandi í síðustu kosning-
um, en tapaði með litlum at-
kvæðamun. Út í frá þótti það
undrun sæta, svo mikils álits
sem hann naut hjá öðrum þjóð-
um.
VERÐBRÉF FYLKISBANKANS
í hvað var fé sparisjóðsbanka
Manitobafylkis lagt? Samkv.
skýrslu Brackenstjórnarinnar
sem lögð var fram í þinginu
nýlega, er féð niðurkomið sem
hér segir:
Hjá fylkisféhirði $350.°OíJ oe
í Manitobafylkis verðbréfum
(exchequer honds), $7,008,-
0000.00.
í Canadastjórnar verðbréfum
(refunding loan bonds) $70,-
966.50.
í Manitobafylkis sveitaverð*
bréfum (registered stock, bonds
and debentures), eftir mati síð- !
ustu ársskýrslu $3,327,288.78.
í Winnipegborgar verðbréf
um (registered bonds and
stocks) $486,182.14.
í þjóðbrautakerfis verðbréf-
um (bonds and registered
stock) $1,945,353.93.
í Manitoba bændaláns verð-
bréfum $2,117,412.65.
Alls nema þessi verðbréf $15,-
503,081.21.
Vegna þess að mjög er lík-
legt, að á verðbréf þessi verði
minst í kosningununi, er fvrir
höndum eru í þessu fylki, þótti
rétt að sýna mönnum til minn-
is, í hverju þau eru fólgin.
FRÁ ALMENNA FUNDINUM.
Hann var haldinn samkvæmt
því, sem auglýst hafði verið, í
efri sal G. T. hússins þann 4
þ. m., til að ræða um íslend-
ingadagshald á komandi sumri.
og nefndin fyrir árið sem leið
skilaði þar af sér til almennings
skýrslum og reikningum.
Forseti nefndarinnar, séra R
Marteinsson, stjórnaði fundin-
um, og G. P. Magnússon, ritarí
nefndarinnar, skrifaði fundar-
gerning.
Prentuð fjárhagsskýrsla frá
nefndinni var afhent fundar-
mönnum, og sýndi hún tekju-
afgang, þá er allar skuldir voru
borgaðar.
Forsetinn gaf heildaryfirlit
yfir starf nefndarinnar á árinu
og kvað búskapinn ekki hafa
gengið svo illa, er nefndin gæti
sýnt tekjuafgang, þrátt fyrir
alla þá örðugleika, er hefðu
mætt henni á árinu og þá
kreppu, sem landið væri í fjár-
munalega. Kvaðst hann hafa
góða von um framtíð dagsins,
ef fólk vildi sýna dálítinn áhuga.
á málinu og aðstoða nefndina
í verki hennar.
Ákveðið var að halda Islend-
ingadag á komandi sumri. —
Komu fram raddir um það að
tilhlýðilegt væri að færa daginn
til og halda hann þann 26. júní
í stað 2. ágúst, eins og að uir1
anförnu. Urðu deildar skoðanir
í því máli, og margir tóku til
máls með og móti hugmynd-
inni. Ekki tók fundurinn neina
ákvörðun, en skildi málið eftir
í höndum væntanlegrar nefnd-
ar. Hefir því nefndin óbundnar
hendur til að ráða, hvorn dag-
inn hún tekur fyrir íslendinga-
dagsþald á komandi sumri.
Þá lá fyrir að kjósa sex
menn í nefndina fyrir yfirstand
andi ár, í staðinn fyrir þá, sem
búnir voru að vera tvö ár í
nefndinni, en það voru þeir'
Séra R. Marteinsson, séra J. P.
Sólmundsson, Ágúst Sædal,
Einar HaraJds, Stefán Einars-
son og Fred Swanson.
Það var mælst til að þessir
menn yrðu áfram í nefndinni.
en þeir séra R. Marteinsson,
Fred Swanson og Ágúst Sædal,
báðust undanþágu, og voru svo
þessir kosnir í þeirra stað: Th.
Hansson, Guðjón Hjaltalín og
Ásbjörn Eggertsson. Skipa því
fslendingadagsnefndina fyrir yf-
irstandandi ár þessir:
Dr. A. Blöndal
Dr. J. T. Thorson
G. S. Thorvaldson
G. P. Magnússon
Jón Ásgeirsson
Bj'örn Pétursson
Séra J. P. Sólmundsson
Th. Hansson
Stefán Einarsson
Guðjón Hjaltalín
Ásbjörn Eggertsson
Einar Haralds
Nefndin tekur strax til starfa
SÉRA MAGNÚS J. SKAPTAS0N dáinn
Séra Magnús J. Skaptason lézt í gær (þriðju-
dag) um kl. 2 e. h., að heimili tengdasonar síns,
dr. M. B. Halldórssonar, í Winnipeg. Hann veikt"
ist fyrst s.l. laugardag, en var á fótum á sunnudag-
inn. Á mánudag klæddist hann ekki. Þótti þá auð-
séð til hvers draga mundi, því jafnvel hans nánustu
rak ekki minni til, að séra Magnús hefði ekki
fötum klæðst, enda þótt heill heilsu væri ekki. -
Hann var karlmenni, sem hann átti kyn til.
Séra Magnús er fæddur 4. febrúar 1850, að
Hnausum í Húnavatnssýslu á Islandi. Hann var því
fullra 82 ára að aldri. Foreldrar hans voru Jósep
Skaptason liéraðslæknir og Anna Margrét Bjöns-
dóttir (Olsens á Þingeyjum) Hann gekk 4 ár á
lærða skólann í Reykjavík og 2 ár á prestaskólann
og vígðist 1875. Árið 1876 giftist hann Valgerði
Sigurgeirsdóttur, Jónssonar, prests frá Reykjahlíð.
Komu þau hjón til Ameríku ásamt þrem börnum
sínum árið 1887. Hann var lengi starfandi prestur
Únítara hér vestra, og um þriggja ára skeið rit-
stjóri Heimskringlu.
Kona hans dó fyrir 26 árum síðan, en af börnum
þeirra lifa: Ólöf, gift dr. M. B. Halldórssyni, Anna
(Mrs. Adams), Fanney (Mrs. Cook) og Jósep, öll
hér vestra.
Jarðarförin fer fram frá kirkju Sambandssafn-
aðar á föstudaginn í þessari viku, kl. 2 e. h.
Á æfistarf séra Magnúsar er hér ekki tækifæri
til að minnast. í því komu fram bæði skarpar gáf-
ur og sterkt viljaþrek. Það væri nóg efni í heila bók
að rita um
bréfum, með 6% prósent vöxt-
um. Innan þriggja klukkustunda
nam upphæðin, sem menn
höfðu skrifað sig fyrir, 20 milj-
ónum dala, eða fjórum sinn-
um meira en farið var fram á.
og hefir ákveðið sinn fyrsta
fund miðvikudaginn 9. þ. m.
G. P. Magnússon,
ritari.
ÝMSAR FRÉTTIR.
Líberal flokkurinn nýstofnaði
í þessu fylki (Liberal League of
Manitoba) hefir lýst því yfir,
að hann ætli að hafa þing-
mannsefni í hverju einasta kjör-
dæmi í fylkinu í næstu kosn-
ingum.
* • •
Barn Lindbergh’s hjónanna
hefir enn ekki fundist. Ræn-
ingjunum hefir í blöðunum
bæði verið heitið fé (um $50,-
000) og frelsi, ef þeir skili því.
en ekkert hefir frá þeim heyrst
og enginn veit hvar þeir eru
niðurkomnir.
* * *
Ákveðið hefir verið að opna
Friðargarðinn, suður af bænum
Boissevain í Manitoba, 14. júlí
næstkomandi. Verður því sam-
fara viðhöfn mikil. Stórmenni
hefir verið þangað boðið, svo
sem prinsinum af Wales, Hoo-
ver forseta, R. B. Bennett, öll-
um forsætisráðherrum fylkj-
anna í Canada og ríkisstjórum
Bandaríkjanna. — Friðargarður
þessi er gerður af Canada og
Bandaríkjunum til minningar
um hina löngu og friðsamlegu
sambúð landanna.
DAGLEGAR FERÐIR UM
ÍSLAND MILLI AMERÍKU
OG EVRÓPU
Norðurleiðin sigrar.
Samkvæmt skýrslum frá Ot*
tawa, voru tekjur sambands-
stjórnarinnar yfir 11 mánuði.
talið til loka febrúar 1932,
$298,008,394. Á sama tíma ár-
ið áður voru þær $322,729,407.
Útgjöldin voru yfir þetta tíma-
bil nú $319,170,507, en ári áður
$331,243,180. Tekjurnar eru
með öðrum orðum rúmum 24
miljónum dala minni en árið
ur, og útgjöldin um 12 miljón-
um dala lægri.
• • •
Skuld Canada var 29. febrú-
ar $2,336,680,273. Á sama tíma
árið 1931 var hún $2,207,895,-
964.
* * *
Um 3000 atvinnulausir menn
gerðu í gær aðsúg að Ford
verkstæðunum í Dearborn í
Detroit. Varð bæði bæjar- og
ríkislögreglan að koma til sög-
unnar, að skakka leikinn. Lauk
onum þannig, að 4 af upp-
hlaupsmönnum voru drepnir. —
Nokkrir meiddust einnig úr liði
hvorstveggja, og voru 8 af þeim
lögreglumenn. Hvernig á því
stendur að atlögunni var beint
að Fordfélaginu, er ekki ljóst,
en fána báru þó uppþotsmenn,
er á var letrað: “Vér krefjumst
vinnu”. Fylgir sögninni, að
nokkrir alkunnir kommúnistar
hafi verið með í förinni.
♦ * *
Albertafylki rejmdi síðast-
liðna viku að taka 5 miljón
dala lán, með sölu á fylkisverð-
Guðmundur Grímsson dómari
frá Norður-Dakota, kom hing-
að um daginn með Brúarfossi,
ásamt frú sinni.
Erindi hans hingað er að fá
leyfi til þess hjá þingi og stjórn
að ameríska flugfélagið Trans-
American Airlines Corporation,
megi byggja hér flughöfn, loft"
skeytastöð og allan hinn fuli-
komnasta útbúnað fyrir flug-
ferðir.
Fái félagið slíkt leyfi hér og
jafnframt leyfi hjá dönsku
stjórninni til að gera flughafn-
ir í Grænlandi og Færeyjum,
þá er ákveðið að hefja dag-
legar flugferðir milli Bandaríkj
anna og Evrópu þessa leið.
Um erindi Guðmundar Gríms
sonar hingað, og fyrirætlanir
flugfélagsins, hafa honum far-
ist orð á þessa leið í viðtali við
Morgunblaðið.
Vilhjálmur Stefánsson er
frumkvöðullinn.
Fyrir löngu síðan hefir Vil-
hjálmur Stefánsson bent á, að
mjög væri vel hægt að halda
uppi flugferðum í norðlægum
löndum. Hann hefir í ritum
sínum fært sönnur á, að flug
gæti eins komið að notum í
norðlægu loftslagi, eins og þar
sem veðráttan er mildari, og
þar sem reynslan hefir sýnt, að
flugsamgöngur eru til hins
mesta hagræðis.
En Vilhjálmur hefir jafn-
framt bent á þá augljósu stað-
reynd, að vegaleyndin milli
Bandaríkjanna og Evrópu er
ekki meiri þegar farin er norð
urleiðin um hafið, en þegar
farið er yfir þvert Atlantshaf.
En noðurleiðin er, að því leyti
aðgengilegri, að hægt er að
hafa marga viðkomustaði á
þeirri leið, því enginn áfangi
yfir hafið er lengri en 500
enskar mflur.
Smátt og smátt hafa menn
farið að veita þessum bending-
um Vilhjálms Stefánssonar
eftirtekt.
Rannsóknir Trans-American
Airlines Corporation.
Öllum er í fersku minni flug
Cram'ers í sumar, er iþann
flaug yfir Grænlandsjökla, og
hingað, en fórst nokkrum dög-
um seinna við Orkneyjar. Það
var þetta félag, Trans-Ameri-
c.an Airlines Corporation, sem
gerði Cramer út. Seinna sendi
sama félag Preston til að rann-
saka þessa flugleið. — Preston
fór aldrei lengra en til Norður-
Canada .Stjórn félagsins fanst
óþarfi að láta hann fara
lengra, því Cramer hafði fært
sönnur á, að leiðin væri fær.
Menn veita því alment ekki
eftirtekt, að leiðin milli Chi-
cago og London er um það
bil hálfnuð, þegar flugmenn-
irnir leggja upp-'frá Ameríku-
strönd yfir til Grænlands.
En um leið og rannsökuð er
norðurleiðin milli Ameríku og
Evrópu, er og rannsökuð norð-
urleiðin milli Ameríku og Asíu.
— Lindbergh hinn frægi fór
norðurleiðina til Asíu í sum-
ar.
Um 50,000 dollara hefir fé-
lag þetta eytt í að rannsaka
flugleiðir þessar, og skilyrði
fyrir flugsamgöngum þessa
leið.
Og nú er þeirri rannsókn svo
langt komið, að félagið telur
fullvíst ,að flugsamgöngurnar
séu framkvæmanlegar. tT~"
félagið valið Vilhjálm Stefáns-
son sem einn meðráðamann
sinn viðvíkjandi flugferðum
þessum.
Það kom til orða, að hann
kæmi hingað, til þess að leggja
þetta mál fyrir þing og stjórn.
En hann hafði ekki tíma til
þess, er til kom.
Rannsóknum lok’ið.
Nú er flugfélagið tilbúið til
verklegra framkvæmda til und-
irbúnings flugferðunum milli
Bandaríkja og E\TÓpu, um
Canada, Grænland, ísland og
Fræeyjar. Undir eins og feng-
in eru leyfi þessara landa til
að byggja flughafnir, verður
byrjað á að gera hafnimar og
önnur nauðsynleg mannvirki.
Búist er við því að flugferð-
irnar geti hafist þessa leið,
eftir 2—3 ár.
Leiðin.
Flugleiðin á að vera þessi:
Frá Detroit, skamt frá Chi-
cago, norður eftir Canada,
beina leið, langt frá austur-
ströndinni, yfir Hudsonsund,
Baffinssund, yfir Davissund til
Grænlands, yfir Grænlands*
jökul nokkru norðar en ís-
land, til íslands, Færeyja og
Shetlands, en þar eiga leiðir
að greinast til Englands og
Noregs, en aðalleiðin fær enda-
stöð í Höfn. Er Höfn valin
sem endastöð, vegna þess hve
miðsvæðis hún liggur við ferð-
um til meginborga álfunnar.
Með því að leggja leiðina
norður Canada, langt frá aust-
ur ströndinni og nokkuð norð-
arlega yifir Grænland, Josna
flugmenn svo vel sem unt er
við þokur.
Millistöðvar
Ætlast er til, að leið þess-
ari verði skift milli 10 áfanga-
staða, og verði fullkomin flug-
höfn á hverjum stað, með öll-
um þeim útbúnaði, sem að
gagni getur komið. Veður-
stofur verða bygðar, þar sem
þær eru ekki fyrir, og loft-
skeytastöðvar. Ætlast er til
þess, að skift verði um flug-
vélar og flugmenn í hverri
stöð, svo hver flugmaður fljúgi
aðeins einn áfanga.
Frá veðurstofunni fá flug-
menn veðurfregnir meðan þeir
eru á flugi, enda verða þeir í
stöðugu loftskeytasambandi
við stöðvar félagsins.
Ætlast er til, að ávalt sé
flugvélar til taks á hverri stöð
til hjálpar, ef einhver flugvél
þarf að setjast milli áfanga-
staða. — Vélarnar verða með
þrem mótorum, og með flot-
holtum, þær sem yfir sjó fara,
en með hjólum og skíðum, þær
sem fara yfir land. Að sjálf-
j sögðu verða aðeins notaðar
hinar öflugustu og bestu flug-
vélar, og alt gert sem hægt
er, til þess að sjá farþegum og
flutningi sem best borgið.
Daglegar ferðir.
Flugferðir þessa leið eiga að
verða daglegar, þannig, að
fluga leggi upp á hverjum degi
frá hverri endastöð. Flugið
milli Detroit og Hafnar, á að
taka um 48 klst. En ef það
Frh. á 5 bls.