Heimskringla - 27.07.1932, Page 4

Heimskringla - 27.07.1932, Page 4
4 BLAÐSfiÖA HEIMSKRINCLA WINNIPEJG 27.' júlí 1932Í Hcimakrinjla (Sto/nuB ltU) . i « i ■ • Kemur i'it 4 hverjum miOvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 153 og 155 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 36 537 VerS blaðsins er $3.00 irgangurinn borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. RáðsmaBur TH. PETDRSSON 153 Sargent Ave., Winnipeg Uanager THE VIKING PRESS LTD. 153 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 353 Sargent Ave., Winnipeg. "Heimskringla” is publisbed by and printed by The Viking Press Ltd. 353-355 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG 27. júlí 1932. ÍSLENDINGADAGURINN. I fögrum og ilmríkum skógarlundi, þar sem laufskógartré og barrviður skiftast á um að bjóða þér til sætis í skuggum sín- um, þegar þú ferð að stikna í geislum há- sumarsólarinnar í Manitoba, þar hafði ís- lendingadagsnefnd Winnipeg-manna síð- astliðinn. sunnudag, sinn síðasta sameig- inlega fund fyrir hátíðina, næstkomandi mánudag. Það var ekki af tilviljun neinni heldur, að fundur þessi var þarna hafð- ur, því það er á þessum stað í skemti- garði Gimli-bæjar, er þjóðminningardag- ur Winnipeg-íslendinga verður nú hald- inn. Ef vér hefðum nú ekki verið svo hrifnir af fegurð umhverfisins, hefðum vér get- að brugðið upp fyrir lesendunum skýrri mynd af því, hvernig íslendingadagsnefnd in hefir hugsað sér alt fyrirkomulag há- tíðarinnar, því á þessum fundi var það ítarlega íhugað. En vér vorum annars hugar og með augun annað veifið á ilm- skóginum og hitt úti á vatninu, er blasti við milii trjánna. Eftirtektin var því ekki óskift við ræðuhöld fundarmanna. En við og við vaknaði þó vitund vor, eins og þegar einn vinur vor fór af andagift að halda því fram, í sambandi við aug- lýsingamál íslendingadagsins, að þjóð- minningardagurinn hefði verið stofnaður af þeim hvötum, að vera íslenzku blöðun- um gróðalind! Oss datt í hug karl einn heima á Islandi, sem mikið hafði verið í siglingum á dönskum skipum, sem sagði tíðum, þegar honum þótti eitthvað snúa öfugt við, meðfram auðvitað til þess að láta okkur heyra, að ,hann kynni ann- að tungumál, en íslenzku: “Þetta kallar maður nú á dönsku, den omvendte Ver- den.’’. Vér höfðum til þessa ávalt haldið oss við það heygarðshornið, að íslenzku blöðin væru stoð og líftaug alls þjóðrækn- isstarfs hér, þjóðminningardagsins, sem hvers annars. En í heild sinni talað um tilhögun á hátíðinni, leizt oss hún hin bezta. Hefir forseti dagsins ekki aðeins reynst þar góður læknir, heldur ja.fnframt hug- sjóna- og listamaður. útbúnaður allur á ræðupalli og Fjallkonusýningunni, er hans hugmynd, og í raun og veru niður- röðun allrar skemtiskrár dagsins, og eig- um vér von á að þeir, sem daginn sækja, þyki þar mörgu haglega skipað. Þar gefst því ekki einungis margt að heyra, eins og menn eiga von á að jafnaði, heldur verður þar einnig fjölmargt skemtilegt að líta. Og eins vel og skemtilega og alt er útbúið í garðinum af hálfu íslendinga- dagsnefndarinnar, þá er óhætt að reiða sig á það, að ræðumennirnir, sem til vor tala á hátíðinni, eru ekki lakar af guði gerðir. Dr. B. B. Jónsson, hr. Jón J. Bíld- fell og hr. G. S. Thorvaldson, tala fyrir minnunum, allir á íslenzku auðvitað, og er þó hinn síðast taldi hér fæddur, upp alinn og mentaður, einn af yngstu kyn- slóð íslendinga. Það er ekki laust við að manni finnist nokkuð til um það, að geta sótt ræðumenn þessarar íslenzku hátíð- ar í hóp yngstu kynslóðarinnar hér. Og svo eru skáldin, sem minnin yrkja: Séra Jónas A. Sigurðsson, Bergþór Emil Johnson og Sveinn læknlr Björnsson frá Árborg. Er Bergþór annar ungur maður hér fæddur, sem á hátíð þessari flytur mál sitt á íslenzku — og meira að segja í bundnu máli. Öll eru skáld þessi svo kunn, að þeim þarf ekki hér að lýsa. Og trúað gætum vér því, að einhverjum yrði heitt undir kvæði hins fyrstnefnda — of- an á heitan dag — því sjálfan vitum vér hann dálítið meira en hálfvolgan íslend- ing innan rifja. Komið hefir það fyrir, að þeir, sem íslendingadagsræður hafa hlýtt á, hafa ekki þózt njóta þeirra, vegna þess að þeir hafi ekki komist nógu nærri ræðu- mönnunum, til þess að heyra vel til þeirra. Við þessu hefir nú verið séð með þvi, að hljóðberar verða til og frá um garðinn, svo sá sem fjarst er, getur heyrt sem hinn næsti. Þetta er mjög mikilsvert atriði, þegar ræður eru flutt- ar undir beru lofti. . Um sönginn, bæði karla- og barnakór- anna og hljómsveitarinnar verða menn að lesa á öðrum stað í blaðinu. Þegar á alt er litið verður ekki annað séð en að undirbúningur hátíðarinnar sé með fullkomnasta móti. Og þegar þar við bætist þessi ágæti staður, sem hún fer fram á, ætti það að vera ljóst, að þarna eiga íslendingar kost á ágætri ís- lenzkri skemtun, um leið og þeir minn- ast ættlands síns og þjóðar. Ekki má því gleyma, hve rífan skerf þeir menn, sem í íslendingadagsnefnd- inni eru frá Gimli, hafa lagt fram til þess að hátíðin verði sem fullkomnust. Vegna þess að þeir eiga heima þar, sem hátíð- in fer fram, hefir margt handtakið, sem unnið hefir verið, á þeim leiit. Eftir beztu horfum að dæma um að- sókn á íslendingadaginn, og skýrslur um það eru að minsta kosti ekki óáreiðan- legri en skýrslur blaða eru oft um upp- skeruhorfur, er búist við þúsund manns frá Gimli og grendinni. Hvað niargir verða frá Winnipeg er eftir að vita. Á- stæðulítið væri nú að gera ráð fyrir færri þaðan, þar sem íslendingar eru þar lang- fjölmennastir saman komnir vestan hafs. Þessi dagur verður, eins og aðrir þjóð- minningardagar, aem hér hafa verið haldnir, prófsteinn á því, hve ant Winni- peg-íslendingum er um hátíðina. Afsak- anirnar fyrir að sækja hana ekki nú, eiga, þegar til alls kemur, rætur sínar að rekja til hins sama og þess, er hún hefir verið illa sótt í Winnipeg. Og þar hefir hún á síðari árum illa verið sótt, því er ekki hægt að neita. Þess vegna var riú reynt að hafa hana út úr bænum, eins og mörg félög í Winnipeg hafa skemti- daga sína, með betra árangri, en ef í bænum væru. MENNINGARÁSTAND ÞJÓÐANNA OG KREPPAN. Eins og allir vita, er menningarástand þjóða mjög misjafnt. Það er iðulega talað um að þessi eða hin þjóðin sé komin svo og svo langt í menningu, en hin skamt. En fyrir hinu, er jafnvel á þessum kreppu- tímum, ekki eins oft gerð ljós grein og ætla mætti, hvaða áhrif sá munur á menn ingarstigi þjóða hefir á viðskiftin, og á mikinn þátt í yfirstandandi kreppu, eigi síður en öðrum er á undan hafa farið. Það má gera ráð fyrir að íbúatala heimsins sé nú um tvær biljónir. í Japan eru um 70 miljónir, Kína 450 miljónir, Indlandi 325, Java 40, og Síam, Manilla, Súmatra o. s. frv. um 50 miljónir. í hinni eiginlegu Aijsturálfu, Asíu, er því sem næst biljón manna, eða helmingur allj mannkynsins. í Evrópu eru um 450 miljónir, í Norður Ameríku 140 miljónir manna. Önnur ó- nefnd lönd austan Asíu, fylla hina biljón- ina. Til þess að gera sér grein fyrir lifnað- háttum, framleiðslumagni og viðskiftum þessara þjóða, er vélanotkun þeirra viss- asti mælikvarðinn talinn. Þær þjóðir sem minst létta sér vinnuna með nútíðar vinnuvélum, framleiða bæði minna en hinar og lifa fáskrúðugra lífi. Vinnulaun þeirra eru lægri og hrökkva ekki til, ef taka ætti upp lifnaðarhætti þjóðanna, er framleiðslu reka í stærri stíl. Það er stundum á það minst nú, að það sem með þurfi, sé að leggja niður allar vinnu- vélar, vegna þess að þær svifti verka- lýðinn atvinnu, sem afli honum viður- væris. Þetta er satt að öðru leyti en því að viðurværið yrði ekki hið sama án vélanna. Það eru þær, sem lifnaðarhætt- ina hafa bætt svo, að þeir eru ekki ber- andi saman við tímana, áður en notkun vélanna hófst. En hvar er þá vélanotkunin mest? í Bandaríkjunum og Canada er um $23 virði af vélum á hvern mann. Næsta landið er England, með $11 virði á hvern mann. Þar næst er Þýzkaland með $9, þá Frakkland með $4 virði. En þegar til Asíu kemur, verður í Kína og á Indlandi ekki nema 50c virði af vélum á hvern mann. Hvort sem það verður nú viðufkent af þeim, sein þetta lesa, eða ekki, að menningarástandið f öllum greinum fari eftir vélanotkun þjóðanna, mun hitt sönnu næst, að hagur almennings og lifnaðarhættir fari mjög eftir því. Og sé svo, er líklegast viðurgerningur alþýðu, víðast í heiminum Iakarí en í Norður- Ameríku. En nú kunna menn að segja, og það er íhugunarvert einnig, hver munur sé á því að svelta í allsnægtum, og að hungra vegna framleiðsluskorfte. Munurinn er auðvitað enginn, ef menn á annað borð svelta. En að hinu leytinu segir það sig sjálft, að með allsnægtir í forðabúrum á næstu grösum, er hægra við því að sjá, að ekki reki upp á sker hallæris og mannfellis, en þar sem algerður skortur er. En nú erum vér komnir að efninu, er fyrir oss vakti, eða þessu, hvort munur á menningarstigi þjóðanna eigl ekki nokkurn þátt í kreppunni. Eftir því sem lifnaðarhættir batna hjá einni þjóð, gerir það henni erfiðara að reka viðskifti við þjóðir, sem henni standa lægra. Frum- iðnaðinn, sem þær þjóðir reka, er ofur- auðvelt fyrir þjóðimar með meiri menn- ingu að starfrækja. Hann hækkar því ekkert í verði. En það sem þjóðimar, er á háu menningarstigi standa, fram- leiða, hefir hækkað í verði, af því að mat vinnunnar er hærra; vinnulaun eru þar með öðrum orðum hærri. Þetta virðist oss að menningin hafi nú rekið sig á. Fá- tækt og getuleysi margra þjóða heimsins nú, að kaupa framleiðslu annara þjóða, sem nægtir hafa, er að leggja hömlur á störf og framfarir þjóðanna, sem á hærra menningarstigi standa. Og það er að gera meira. Það hefir tekið svo í tauminn, að algert aðgerðaleysi ríkir og framfarír heimsins yfirleitt hafa numið staðar um stund. Eymdin og allsleysið og sulturinn í Kína og víðar, og gnægt óseldra vöru- birgða annara landa, sannfæra menn um að þessu sé þannig farið. En hver er lækningin? Sú, að út- breiða þá þekkingu, sem visindin í fram- faraheiminum hafa komist yfir. Ef allar þjóðir heimsins gætu notfært sér þá þekkingu jafnt, hyrfu erfiðleikarnir að miklu leyti. Á fundi nokkurra vfsindamanna í Bandaríkjunum nýlega, komst einn þeirra þannig að orði: “Við erum hér saman komnir um 250 manns alls, víðsvegar að úr heiminum, til þess að hugleiða vís- indalegar niðurstöður, sem heimurinn verður einskis áskynja um fyr en að 5 eða 10 árum liðnum, og í framkvæmd munu þær ekki alment komast fyr en eftir 10 til 15 ár. Þannig gengur það með störf vor, sem heiminum eru öllu nauðsynlegri. Væri það ekki farsælla fyrir heiminn, að vér hægðum nú á oss í leitinni að nýjum sannindum, en ynn- um í þess stað að útbreiðslu þeirrar þekkingar, er vér höfum komist yfir? Starf þjóðmála- og viðskiftamanna, hef- ir orðið oss vonbrigði í þessu efni og mannkyninu í heild sinni til tafar á fram- farabraut sinni.’’ Vér skulum ekkert um það segja, hvort þessi orð vísindamannsins hafa átt við það efni, sem hér hefir verið dregin at- hygli að. En hitt er víst, að þau eiga við muninn, sem enn er á menningar- stigi þjóðanna. Og eins og hann er þar til óheilla, er hann það einnig innan hvers þjóðfélags. Fyrirkomulagið, sem skapar þar fátækt og allsleysi á aðra höndina, en auð og allsnægtir á hina, er jafn óheilladrjúgt fyrir velferð og fram- farir mannkynsins, og þó í víðtækari skilningi eigi sér stað. Það er með öðrum orðum jöfnuðurinn í sann-menningarlegu tilliti, sem bæði heimafyrir og út á við, innan eins þjóð- félags, sem á meðal alls mannkynsins, verður að vera gróðursettur með þjóð- fyrirkomulaginu, sem mennimir eiga við að búa. BRÉF MERKRA MANNA. Hið ágæta blað Lögrétta birti fyrir hálfu ári síðan eða meira, safn af göml- um bréfum merkra manna, sem ekki höfðu áður verið birt. Segir blaðið um þau meðal annars: “Bréf merkra manna ættu að geta gefið margvíslegar upp- lýsingar um menn og málefni þess tíma, sem þau fjalla um og verið nytsamur sögulegur fróðleikur, auk þess sem þau geta verið skemtilestur.’’ Á öðrum stað hér í blaðinu birtist eitt þessara bréfa, sem sýnishora aðeins, og 3 eða 4 önnur birtast síðar. Vonum vér að margur hafi fróðleik og skemtun af lestrinum. ÞRÍR SJÓNLEIKAR * 1 f WASHINGTON. — Strandafréttir. — . Niðurl. III. Seattle. Undanfarna áratugi hafa menn verið að flækjast vestur um haf, til Ameríku. Ennþá eru margir þessir vesturfarar á vesturleið. Stöðugt fjölgar þeim er lejð sína leggja — vestur á i Strönd. Þar er blítt veður og allfrjó jörð. Þar er Seattle — tiltölulega ungur hafnarbær, vöxtulegur og vel til fara, bygð- ur á einum sjö hæðum eins og Róma. Þar hefir Islendingum fjölgað í seinni tíð og faraast vel. Því að tímar voru hér góð- ir fram á árið 1930, þótt krepp- an væri komin í algleyming í hveitiheiminum Austanfjalls, þegar skömmu eftir stríðslok. íslendingar í Seattle eru í aðalatriðunum alveg eins og íslendingar í öðrum og eldri bygðum hvar sem er um álf- una. Þeir eru margir, fyrst og fremst mjög svo “vandlátir guðs vegna’’, eins og Páll post- uli kemst að orði, og forðast að samneyta öðrum en sínum lík- um. Fyrir því standa þeir sundr aðir og, sökum fámennis, oft- ast nær aflvana, til þess menn- ingarlífs, er þeir virðast hafa eðli til, mörgum öðrum þjóð- flokkum fremur. Meinbugi fá- mennis og sundrungar leiðir kreppan greinilega í ljós. Ef þeir hins vegar stæðu saman um sameiginleg verðmæti, þjóðern- isleg. og önnur, yrðu þeir sjálf- um sér til sóma og mannkyn- inu til nytsemdar, svo að um munaði. Hitt er þeim þó enn sem komið er tamara — að fjandskapast um það, sem þeir hafa minst vit á, og gefa sér hvorki tíma til né jafnvel þora að kynna sér, þ. e. trú og heim- speki. Torsótt eru stórvirkin fátæku fámenni. Líklega er Winnipeg eina íslendingabygðin, sem er nógu stór til þess, að þar þríf- ist tveir eða fleiri andstæðir flokkar, er haldi uppi sjálfstæðu félagslífi, svo að verulega kveði að. Flestar bygðirnar verða því að neita sér um allar meiri- háttar jákvæðar framkvæmdir. Hitt verður þá líka fyrir mörg- um aðalframkvæmdin, þótt nei- kvæð sé, að sperrast gegn þvi, að “hinn flokkurinn” fái vaxið eða unnið sér nokkuð verulegt til fjár eða frama. Og með þrautseigju og árvekni tekst þetta víðast hvar. Og alt er þetta skæklatog unnið af ein- skærri óeigingirni og sjálboða- legri fórnfýsi. Það kostar stór- fé og fyrirhöfn. Skýringin er sú að alt er það gert guði til dýrðar. Því að beisk guðfræði- leg vandlæting liggur þar til grundvallar. Eða svo er sagt. “Málefnið’’ græðir lítið á hvor- uga hliðina. En ósýnilegur púki þjóðeraislegrar úrkynjunar (er skyggnir menn sjá þó vel), fitnar jafnt og þétt á óvild og illu skrafi hinna frónsku bræðra. Neikvæða hliðin á félagslííi voru er ómótmælanleg. F(okk- arnir tálma hver öðrum og úti- loka átök samvinnunnar. En jafnframt líður vitjunartími ís- lenzks þjóðernis óðfluga hjá. Jákvæða hliðin er hins veg- ar líka til staðar, og all-mikil- virk. Guðsþjónustuhald, ung- mennafræðsla, söngiðkun, leik- störf, fundarhöld, samkvæmis- líf, líknarstörf, lestrarfélags- störf o. s. frv. — alt er þetta sú hræring samlífsins, er beint og óbeint miðar til menningar, þótt eigi sé hálft við það, er framkvæma mætti, ef sundr- ungin spilti því ekki. Og — rétt stöku sinnum verða menn þreyttir á úlfúðinni einni saman. Jafnvel prestarnir eru hættir að leyna því, að þeir sjái hVer ánnan á mannamót- um. Stöku sinnum bregður fyr- I fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bakverk, gigt og blöðru sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þar eru til sölu 1 öllum lyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang- að. ir örlitlum glampa menningar- legrar samvinnu. — Einstakir menn úr öðrum flokkum rétta hinum hjálparhönd. Þetta kem- ur jafnvel fyrir í Blaine, og það þótt við liggi sektir og bann færingar. Því að Blaine er göm- ul bygð og methafi í guðfræði- legri alvöru. Fyrir því liggur allvænn íslendingadagssjóður á vöxtum, árum saman, en eng- inn þorir að minnast á íslend- ingadagshald sökum áfloga- hættu. Seattle er yngri, sem íslend- ingabygð, og meiningafestan þar ekki eins ósveigjanleg. Þar hafa landar nú árum saman ögrað kreppunni og tekið hönd- um saman um íslendingadag. Svo getur farið að þeir haldi því áfram fram yfir miðja öld, •— ekki sízt ef tímar batna og fólkið heldur áfram að flytja vestur, og Seattle tekur við af Winnipeg svo sem höfuðsetur frónskra manna vestan hafs. eins og sumir spá. * * # Loks komum vér þá að efn- inu! í Seattle brá fyrir merk- um og sjaldgæfum samvinnu- glampa, síðastliðinn vetur, er safnaðarmenn fríkirkjunnar þar gengust fyrir því þrekvirki að æfa og sýna “Skuggasvein’’. Nutu þeir ástúðlegrar samvinnu ekki aðeins safnaðarlausra manna, heldur og lúterskra safnaðarmanna. Útkoman varð, eins og vænta mátti, félagslegt afrek. Sameinaðir stöndum vér og sigrum! Að rekja efni Skugga-Sveins eða tilgreina höfund hans, er með öllu óþarft gagnvart þeim, er Heimskringlu lesa. Hitt er heldur að fara fáeinum orðum um afdrif hans í höndum Se- attle-manna. í Seattle léku þeir þrisvar — fyrir fullu húsi hið fyrsta sinn og síðar við slangurs-aðsókn. í Blaine fór leiksýningin fram hinn 9. apríl, og segir sagan að íslenzkir Blainebúar og ná- grenni hafi enga samkomu betur sótt, árum saman. T. d. kom um 40 manns frá Point Roberst, 40 mílur vegar; margt frá Bellingham og nokkuð frá Vancouver. Ennþá eru íslenzk- ar hugðir og minningar svo vel við líf og heilsu hér vestra, að þjóðlegir kjörgripir, slíkir sem “Skugga-Sveinn’’, koma mönn- um á flug, svifta þeim um stund úr bóndabeygju kreppunnar, og leiða þá um langa vegu og tor- færa. Allir þeir er vér höfum átt tal við, þeir er langt sóttu, og hinir er leikinn fengu “fluttan heim’’, segja það eins, að þeim þótti mikið til koma þessarar leiksýningar, og voru Seattle- mönnum þakklátir fyrir tiltæk- ið og komuna. Að vísu eiga menn svó margar sérkennilegar og kærar minningar um með- ferð hlutverka í Skugga-Sveini, að dómarair litast af þeim. — Einn er viss um það, að Har- aldur hafi aldrei verið, og verði aldrei, betur leikinn en á Akur- eyri ; Annar veit að Skuggi bef- ir verið bezt gerður í Ólafsvík undlr Jökli; þriðji, að enginn 4 \ \

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.