Heimskringla - 24.08.1932, Qupperneq 8
8 BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 24. ÁGÚST 1932.
Urvals fatnaður
KARLMANNA
á hinu sanngjarnasta verSi
bíður yðar í verzlun—
Humphries Ltd.
223 Portage Ave.
\ið Liggett’s hjá Notre Dame
FJÆR OG NÆR.
Séra Ragnar E. Kvaran flytur
guðsþjónustu kl. 2 e. h. sunnu-
daginn 28. þ. m. Verður það
siðasta guðsþjónusta hans í
Vatnabygðum á sumrinu.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar
á Lundar næstkomandi sunnu-
dag — 28. ágúst.
* * *
Mr. H. I. Borgfjörð, verk-
fræðingur, sonur Þorsteins
Borgfjörðs, sem dvalið hefir í
Calgary nokkur undanfarin ár
og veitt forstöðu byggingastarf-
semi McDiarmid félagsins, kom
með fjölskyldu sinni alkomin
aftur til Winnipeg fyrir helgina.
* * *
Jacob Vopnfjörð kona hans og
sonur lögðu af stað um síðustu
helgi til Vancouver B. C. Bú-
ast þau við að dvelja vestra,
annað hvort í Vancouver eða
sunnan landamæranna í vetur.
Vinum þessara mætu hjóna hér
getur þó Hkr. fært þá frétt, að
þau muni hafa í hyggju að
koma til baka næsta sumar.
* * *
Þessi ungmenni voru fermd
af séra Guðm. Árnasyni að
Lundar 24. júlí s. 1.: Emil
Eyjólfsson, Magnús Björnsson
og Þorsteinn Jóhannsson.
* * *
Skemtisamkoma og danz
verður haldin í Good Templar
húsinu þriðjudagskvöldið 30 þ.
m. undir umsjón Mr. Alex John-
son Jr. Hópur listamanna
(Radio Artists), skemta þar á
samkomunni. Inngangur er
50c. Búast má við húsfylli, því
mjög er vandað til skemtan-
anna.
ROSE THEATRE
Thursday and Friday
“Consolation Marriase'’
FREE TO THE LADIES
Wedgwood English Dinnerware
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHAMFSON
Garage and Reparr Service
tíanning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Sérvice
Gas, Oils. Extras. Tires,
• Batteries, Etc.
Samkoma verður haldin í Ár-
nesi 26. ágúst til arðs fyrir Jóns
Bjarnasonar skóla. Mr. A. S.
Bardal skemtir þar með hljóm-
plötum með íslenzkum söngvum
sýnir' myndir og flytur ræðu.
Einnig skemta Miss Dora Ben-
son frá Selkirk, og Mrs. Hope
frá Winnipeg með söng. Ýmis-
'egt fleira verður og til skemt-
ana. Inngangur ekki $eldur
en samskot tekin.
* * *
Ungfrú Sigríður ReykdaDog
James Henry Wright Prics,
voru gefin saman 17. ágúst í
Winnipeg af séra Philip M.
Petursson. Brúðurinn er dóttir
Mr. og Mrs. Páll Reykdal, en
trúðguminn er enskur, ættaður
frá Calgary og verður framtíðai’
heimili ungu hjónanna þar.
* * *
TIL KAUPENDA
í síðustu viku barst mér frá
íslandi ISunn, byrjun þessa ár-
gangs. Er það tvöfalt hefti og
því hálfur árgangur. Sendi eg
það tafarlaust til allra kaup-
enda og útsölumanna.
Enn eru nokkrir er skulda
fyrir síðasta árgang (eða
meirá) þeírra íslenzku tímarita
er eg sel hér vestra, og skora
eg nú á alla þá að gera mér
einhver skil hið bráðasta. Það
getur enginn til þess ætlast, að
hvorki eg eða útgefendurnir
beri á baki ár eftir ár drellir
með fleiri eða færri vanskila-
mönnum, og eins og peninga-
ástand á íslandi er nú, er út-
gefendum þar bráðnauðsynlegt,
að við landar hér vestra reyn-
umst ærlegir skilamenn. Og
þetta eru hverfandi smáar upp-
hæðir á ári hverju, ef ekki er
látið safnast fyrir til fleiri ára.
Magnus Peterson,
313 Horace St., Norwood, Man.
* * *
Iðunn
1—2 hefti — 1932 — nýkom-
in og er efnið þetta:
A.H. :Heimskreppan
Jóhannes úr Kötlum: Arð-
ránsmenn (kvæði).
Friðrik Á. Brekkan: Ungir rit
höfundar
Hnut Hamsun: Drotningin frá
Saba (saga).
V. B. Metta: Helypidómar í
vestrænni sagnritun.
Þóroddur Guðmundsson: —
Blaðasalinn á %Austurbrú.
Sefán frá Hvítadal: Vermenn
(kvæði).
Halldór Kiljan Laxness: Inn-
gangur að Passíusálmunum.
Jón Magnússon: Nýjasta staf
setningin.
Magnús Peterson: Þrír ís-
Vnzkir bændur í Canada (3
myndir).
Dýri: Vonbrigði (staka).
Vigfús Guðmundsson: Sam-
vinnubú.
Indriði Indriðason: Um tvent
að velja (saga).
Dýri: Tvær stökur.
Kristinn E. Andrésson: Nýtt
skáldrit.
Arnold Överland: Kvöld eitt
seint í ágúst.
tsölumaður: Magnús Peterson
313 Horace Ave. Elmwood, Man.
* * *
4 þ. m. , voru eftirfylgjandi
meðlimir stúkunnar “Skuld’’,
nr. 34. af I. O. G. T., settir í
embætti af umboðsmanni henn-
ar G. M. Bjarnason.
FÆT—Ingólfur Gíslason
ÆT—Guðm. P. Johnson
VT—Steina Thorarinson
Kap.—Guðbjörg Brandsson
Ritari—G. H. Hjaltalín
AR—Gunnl. Jóhannsson
D-—Minnie Anderson
AD—Súsana Guðmundsson
For. Ritari—Sefán Baldvinson
GK—Magnús Johnson
IV—Th. Thordarson
ÚV—Ásd. Jóhannesson
Píanist—Hilda Holm
Skrá setjari—-Gunnl. Jóhanns-
son G. H. H.
* x *
Eftirfylgjandi nemendur Guð-
rúuar S. Helgasonar tóku þróf
við, Toronto Conservatory of
Music:
Piano.
Associateship, A.T.C.M., Solo
performers (pass) Marion D.
Gladstone
Intermediate: Herman Eyford
(pass).
Junior: Jean Bruce (pass).
Primary: Florence Johann-
son (honors).
Elementary: Jean Bruce
(First Class Honors).
Introductory: Evelyn Frið-
finnson (Honors).
Theory
Junior Harmony: Winnifred
Hardiman (Honors).
Junior Counterpoint: Rutli
McClellan (Honors) W. Hardi-
man (Honors).
Junior History: C. Thorlak-
son, W. Hardiman (Honors).
Primary Theory: Herman Ey-
ford (First Class Honors).
Elementary Theory1 Florence
Johannson (First Class Hon-
ors); Ruth Benson (Honors).
Þessir nemendur voru undir-
búnir á einu kensluári (níu
mánuðum). Solo Performer á
tveimur.
* * *
Vinnu kona óskast á íslenzkt
sveitaheimil í Sask. (nú þegar)
þrifin og lireinlát og sem kann
vel hússtörf. Tiltaki aldur og
kaup. Box 29,
Churchbridge, Sask.
* * *
Innihald nýútkominnar Eim-
reiðar — II heftis (apríl—júní
1932) er sem hér geinir:
Við þjóðveginn.
Brynjólfur Stefánsson: Þjóð-
arbúskapur og tölur.
Guðm. Finnbogason: séræf-
ing og samæfing.
Richard Beck: Lárviðarskáld-
ið John Masefield.
Herdís: Við lestur nýrra
kvæða Davíðs Stefánssonar.
. Jakob Jóh. Smári: Skýjaborg-
ir.
Svanhildur Þorsteinsd.: Kol-
finna (smásaga).
Benjamín Kristjánsson: Trúin
á manninn.
Herdís: Leiðin mín.
Guðm. Böðvarson: Tvö kvæði
Árni Jakobsson: Skáldskapur
og ástir.
Oddur Oddson: Þegar eg varð
myrkfælinn.
Leo Tolstoy: Kreutzer-sónat-
an.
Raddir.
Ritsjá.
Útsölumaður: Magnús Peterson
313 Horace Ave. Elmwood, Man.
x- * *
TIL SÖLU
Miðstöðvarhitunarvél, næstum
eins góð og ný. Brennir við. —
Hitar stórt hús. Ofninn er Nr.
50 “New Idea”. Ennfremur
“Pipeless Furnace’’, jafngóður
og nýr. — Spyrjið um verð
hjá C. Goodman & Co., Toronto
og Notre Dame.
Kommúnistum slept
Eftir læknisráði var Einari
Olgeirssyni slept úr varðhaldi í
fyrrakvöld. í gærmorgun var
Indíönu Garibaldadóttur slept
úr varðhaldi, vegna þess að þá
hafði hún setið þar í 5 daga
við vatn og brauð. Og í gær
var þeim Stefáni Péturssyni og
Jens Figved einnig slept, enda
þótt þeir hefði ekki játað neitt,
þar sem ástæða var til að ætla
að þeir myndi ekki heldur gera
það, þótt þeir væri lengur inni,
og það er nú vitað að málið
mun upplýsast hvort sem þeir
vilja segja nokkuð eða ekki og
rannsókn mun hægt að lúka án
þess að til þeirra kasta þurfi
að koma.
SAMNINGAUMLEITANIR
VIÐ NORÐMENN
Frá því hefir verið skýrt hér
í blaðinu, að norska stjórnin
hafi fallist á, að hefja á ný samn-
ingaumleitanir um kjöttollsmál-
ið og önur verslunarmál
og viðskiftabúningur að samn-
ingum þessum verður í höndum
nefndar er í eiga sæti hvar full-
trúar frá hvoru ríki. í nefnd
þessari eiga sæti frá Norðmönn-
um þeir Anderson-Rysst fyrv.
ráðherra og Jóhannessen verzl-
unarráð, og af hálfu íslendinga
þeir Ólafur .Thors alþm. og Jón
Árnason framkvæmdastjóri.
Norsku fulltrúarnir eru væntan-
legir hingað með Lyru á morg-
un.
Það er fleira en kjöttolls-
málið, sem nefndin fær til með-
ferðar. Svo sem kunnugt er
hefir íslenska stjórnin, að fyrir-
lagi Alþingis, sagt upp gildandi
verslunar- og siglingasamning-
um við Noreg. Verður nú sam-
ið um þessi mál að nýju. Einn-
ig verður rætt um samvinnu
milli þjóðanna um saltfisksölu,
en slík samvinna getur haft
stórmikla þýðingu fyrir bæði
ríkin. Hér hefir verið lagður
grundvöllur að slíkri samvinnu
með myndum fiskisölusam-
bandsins.
Vonandi rætist nú vel úr þess-
um málum. Viðskiftastríð milli
frændþjóðanna getur ekki leitt
til annars en tjóns fyrir báða
aðilja. — Mbl.
NÝ ELDNEYTISBLANDA.
Lundúnum í júni.
Cunard-eimskipafélagið hefir
á undanförnum mánuðum látið
framkvæma víðtækar tilraunir
um blöndun koladufts og olíu til
eldneytis. Kolin eru mulin salla-
smátt og blönduð olíu með að-
ferðum, sem haldið er leyndum.
Eldneytisblanda þessi var ný-
lega reynd í tilraunaferð, sem
skipið “Scythia” fór. Var engu
eldsneyti öðru en þessu brent
undir fjórum kötlum skipsins.
Reyndist eldsneytisblandan að
vonum. — Þrír af sérfræðingum
félagsins hafa haft með höndum
tilraunir í þessu sambandi frá
því í september síðastl. Kunnugt
er, að hlutföllin í eldneytisblönd
unni eru 60% olía og 40% kola-
salli, mjög smátt mulinn.
Þegar Bretar hurfu frá gull-
innlausn jukust útgjöld Cun-
ardlíunnar fyrir olíu afarmikið.
Sérfræðingum félagsins var þá
falið að gera tilraunir til þess að
finna upp eldneytisblöndu, sem
hægt væri að nota án þess að
gera breytingar í vélarúmum og
á vélum skipa félagsins. Víð-
tækar tilraunir voru gerðar,
áður en “Scythia’’ fór í reynslu
ferðina, sem fyrr um getur, og
leiddu þær í ljós, að hitamagn
eldsneytisblöndunnar var meira
en olíu og að eldsneytisblandan
myndi verða ódýrari í notkun.
Að reynsluferð “Scythia” lok-
inni lýstu sérferæðingar yfir
því, að þeir væru ánægðir með
árangurinn. Þessar tilraunir
munu vafalaust hraða því mik-
ið, að kolaiðnaðurinn fari aftur
að rétta við að mun. — Alþbl. '
NÓTTIN MEÐ
LOKKINN LJÓSA
Jóhann Sveinson frá Flögu.
Nóttin með lokkinn ljósa
líður frá sólarinnum,
gullhlað er yfir enni,
árroð á ljósum kinnum.
Lýsir úr augum ungum -
ástríki, tign og friður.
Gulllitað hárið hrynur
herðar og brjóstin niður.
Skautar hún geislaskúfi,
skýr þar af ljómi stendur
breiðir út bjarta arma,
Fjórðungs aldar þjónusta
í tuttugu og fimm ár, síðan félagið var stofnað
1906, hefir bændunum í Vesturlandinu reynst það
vel, að skifta við United Grain Growers Limited.
Tuttugu og fimm ára reynsla, hefir stöðugt sann-
að, að félagið hefir verið þess megnugt, að vera
viðskiftavinum sínum til gagns.
1 tuttugu og fimm ár hefir skapast það álit, er knýr
fram traust.
Heilbrigt, tryggt og sterkt, er félagið þess megnugt
að veita yður góða þjónustu.
UNITED GRAIM Growers E-
Winnipeg - Regina - Saskatoon - Edmonton - Calgary
blessar hún dali og strendur
Blessar hún bóndans iðju,
bátinn á fiskimiði.
Leysir hún líf úr dróma,
lofar hún ári’ og friði.
Nóttin með lokkinn ljósa
líður frá Múspellssölum,
birtir á breiðum vogum,
birtir í skuggadölum.
Hræðist nú húmið svarta,
hopar og íiot'ann velur;
vágestir vetrar hljóðna,
vofurna'’ skríða i l'ohn
Kærust þín koma verður
kotungs í ranni lágu,
skammdegis þar sem skuggar
skefldu oft börnin smáu.
Ókeypis ljós þitt ljómar,
lokkfagra gyðjan bjarta,
ókeypis eld þú kyndir
öreigans dapra hjarta.
i
Þú átt þér víðlent veldi,
volduga Norðurs drottning,
fyrir þér bænarbljúgur
beygi eg kné í lotning.
Reika’ eg í ríki þínu,
reika’ eg um helga dóma;
af altari þínu angar
iimur frá vörum blóma.
Ljóst er nú um að litast,
logar í vestra brenna,
árroði og aftanbjarmi
í einingu saman renna.
Ómar í mínum eyrum
indælla vatna suða.
Blómálfar bjartir, ljúfir
blíðlega á skjáinn guða.
Sætleika svefnsins nýt eg
sveipaður örmum þínum.
Rænir mig ýta enginn
unaðardraumum mínum.
Loks er eg legst að bólstri,
lífs þegar stundir dvína.
Nóttin þá lokkinn ljósa
legðu á hvílu mína.
Lesb. Mbl.
TIL
R. ST. í HEIMSKRINGLU
—Stökur.—
Kennarinn fékk hatt sinn hengt
hér á breytni landans. —
“Alt sem var við ættland tengt”
— eygir á leið til fjandans.
í Winnipeg fann veislu spjöll,
og verður af því stúrinn
þá “Nefndin’’ fór með áhöld öll,
útfyrir borgar múrinn.
MESSUR 0G FUNDIR
f kirkju Sarubandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegf
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundlr 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálpamefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
Á það bent skal ættlands vin,
og íslendingadagsins —
Nú varð dags þess skærast skin
og Skrúðið, unaðs-bragsins.
Bezt er svo að hafa ei hátt
“hér er margt á glugga’’,
þá sem gráta og glata mátt,
gott er nú að hugga.
G. H. H.
Glímuflokkur frá Ármann.
Frh. frá 1. bls.
þeir muni fara mikla frægðar-
för til Svíþjóðar, þar sem í-
þróttir standa þó á mjög háu
stigi.
Þeir sem fylgst hafa með
utanförum íslenskra glímu-
manna á undanförnum árum,
vita það, að þær hafa orðið ís-
landi og íslenskri þjóð til frama
og frægðarauka. Og íslenska
þjóðaríþróttin hefir vakið að-
dáun meðal hinna fremstu í-
þróttamanna erlendis, og verið
dæmd sem hin glæsilegasta,
drengilegasta og fjölbreyttasta
íþrótt.
Það hefir verið hljótt um
þessa utanför íþróttamann-
anna, en þeim mun meira hefir
verið unnið að því, að hún takist
sem best. Það er forgöngu-
nefnd íslensku vikunnar í Stokk
hólmi, sem hefir boðið glímu-
mönnunum að koma þangað.
Hún hefir líka beðið Önnu Borg
um aðstoð hennar til þess að ís-
lenska vikan geti orðið sem
best. Á nefndin skilið þakkir
íslendinga fyrir það hve vel hún
vill vanda til viðkynningar
þeirra með Svíum.—Mbl.
Minningarhátíð
Árdalssafnaðar
í ráði er að Árdalssöfnuður í Árborg, Man.,
haldi hátíðlegt þrjátíu ára afmæli sitt, þanu
11. sept. næstkomandi og byrjar hátíðin með
guðsþjónustu í kirkju safnaðarins kl. 1. e. h.
þann dag, en verður svo framhaldandi í
samkomuhúsi Good Templara. Er hérmeð
öllum meðlimum safnaðarins að fornu og
nýju ásamt vinum og stuðningsmönnum
starfsins vinsamlegast boðið að sækja af-
mælishátíð þessa. Þeir sem í fjarlægð búa
eru góðfúslega beðnir að gera skrifara safn-
aðarins, Mr. S. A. Sigurðsson aðvart, ef þeir
hafa í hyggju að vera viðstaddir.
Safnaðarnefnd Árdalssafnaðar.
Jóns Bjarnasonar
Academy
652 Home St., Winnipeg.
* *
Talsími 38 309
*
Miðskólanum að meðtöldum 12. bekk
*
*
HIÐ 20. STARFSÁR HEFST
MIÐVIKUDAGINN 14. SEPT.
R. MARTEINSSON
skólastjóri