Heimskringla - 05.10.1932, Side 8
8 BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 5. OKT. 1932.
Orvals fatnaður
KARLMANNA
á hinu sanngjarnasta verði
bíður yðar í verzlun—
Humphries Ltd.
223 Portage Ave.
við Uggett’s hjá Notre Dame
FJÆR OG NÆR.
Séra Ragnar E. Kvaran flyt-
ur Huðsþjónustu á Gimli á
sunnudaginn kemur, 9. október
kl. 2 e. h., og í Sambandskirkj-
unni í Winnipeg kl. 7 síðdegis.
* * *
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
sinn næsta fund á miðvikudags-
kvöldið 12. október að heimili
Mrs. H. J. Líndal, 912 Jessie
Avenue.
* * *
Hr. Pétur Árnason, sem nú
býr vestur í San Diego, Calif.,
%n áður átti heima við Lundar,
Man., kom í vikunni sem leið
hingað til bæjarins úr íslands-
ferð. Til íslands fór hann í vor
og dvaldi þar í sumar. Ferð-
aðist hann allmikið um land og
dvaldi um tíma í átthögum sín-
um norður í Húnavatnssýslu.
Af ferðalaginu lét hann hið
bezta, en erfiðleika kvað hann
vera bæði til sveita og kaup-
staða, verðfall á innanlands-
vöru og viðskiftakreppu, þar
sem annarstaðar. Hann lagði
af stað héðan heimleiðis á laug-
ardagskvöldið var.
* * *
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu HeimskringlU með af-
falls verði, námsskeið við helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaðsins.
* ♦ *
Fjögur hundruð manns komu
fyrir lögregluréttinn í Winni-
peg í gær. Höfðu 236 af þeim
brotið umferðalögin, og 132 af
þeim ekki greitt bifreiðaskatt
borgarinnar.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repatr Service
Banning and Sargem
Sími33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Conipletr í
Garage Service
Gas. Oils, Extras, Tire*
Batteries. Etr
Til samkomu Kvenfélags Sam-
bandssafnaðar, sem auglýst er
á öðrum stað í blaðinu, hefir
vel verið efnt. I>eir sem góðrar
skemtunar vilja njóta, ættu að
. koma þangað. Inngangur er ó-
keypis en samskot verða tek-
in. Ættu menn að meta það að
verðugu, að mönnum er eng-
inn kostnaður á herðar lagður
með því að sækja þessa skemt-
un. Það ætti að vera metið
bæði á þann hátt að fjölmenna
og þeir sem fjárráð hafa, að
,sjá það við kvenfélagið á sinn
hátt. Sá er þetta ritar, var ný-
lega úti í sveit, þar sem tvæi
þakkargerðar samkomur voru
haldnar, sem þessi. Inngangs-
eyrir var 50c og húsfyllir á báð-
um stöðum. Sækið samkomu
Kvenfélags sambandssafnað á
mánudagskvöldið kemur þann
10. þ. m.
* * *
Steindór Árnason frá Árborg,
Gunnlaugur Hólm og W. Eyj-
-Mfsson frá Víðir P. O. komu
til bæjarins í bifreið s.l. mánu-
dag. Þeir kváðu kornuppskeru
bafa orðið allgóða norður þar,
og afkoma manna væri eftir
vonum. Erfiðleikarnir væru
mest í því fólgnir, að öll bænda-
vara væri verðlaus, og peninga-
ráð þar af leiðandi afar lítil.
Þeir héldu heimleiðis daginn
eftir.
* * *
Stefán Einarsson kom um síð
ustu helgi vestan úr Argyle-
bygð, þar sem hann hefir verið
! um vikutíma í erindum þessa
| blaðs. Fer hann í dag norður
til Nýja íslands, einnig í erind-
um Heimskringlu. Argylebúum
biður hann blaðið að færa hin-
| ar beztu þakkir fyrir góðar við-
I tökur.
* * *
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundinum við Mo-
zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
* * *
Hr. Páll G. Johnson trúboði
lagði af stað héðan úr bænum
á laugardaginn var vestur til
Saskatoon, þar sem hann gerir
ráð fyrir að stunda nám í vet-
ur, við prestaskóla lúterskan,
sem þar er fyrir skömmu stofn-
aður. Að loknu náminu gerir
hann ráð fyrir að hverfa hing-
að austur á bóginn aftur.
* * *
Athugasemd.
Mér hefir verið bent á kafla
úr opnu bréfi Mrs. M. J. Bene-
dictsson, er birtist í Heims-
kringlu 17. febrúar s. 1., þar
sem hún fjölyrðir um meinlaust
og marklaust tal víndrukk
ins manns um borð í skipinu
Minnedosa, er Ve%tur-íslending-
ar héldu heimleiðis úr Alþingis-
hátíðar förinni. Frúin bætir við:
Allar aðgerðir unnar PE,,TCD*C meðan þér bíðið
Opið frá kl. 8. f. h. I I!i 1 Eil\ »3 til kl. 7 síðdegis
ALLAR SKÓ-AÐGERÐIR ÁBYRGSTAR
814 St. Mathews Ave. við Arlington
Karlm.skór hálfsólaðir og hælaðir, allar þyktir ................ $1.00
Kvenskór hálfsólaðir og hælaðir, allar þyktir ................. .85
Auk þess allskonar aðgerðir aðrar á vægu verði
Peninguin skilað til baka ef þér eruð ekki ánægðir.
UM ÞETTA LEYTI ÁRS, ÞEGAR
TEKIÐ ER AÐ HAUSTA AD—
REYNIÐ
Dominion Lump
$6.25 tonnið
“Vestur-íslendingur sagði mér
að honum hefði orðið svo mik-
ið um viðskilnaðinn heima, að
hann ætlaði að fleyja sér í sjó-
inn, en var hindraður af sögu-
manni mínum, er sá hvað hon-
um leið,” o. s. frv.
Sagan er tilefnis- og tilhæfu-
laus. Maðurinn gerði enga til-
raun til þess að fleyja sér í
sjóinn, og honum datt það víst
alls ekki í hug.
Ingvar Gíslason.
* * *
Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar
4. bindi þeirra er nýkomið út
og voru mér send fáein eintök
til sölu hér vestra. Þetta bindi
er eingöngu álfa- eða huldu-
fólkssögur, og er yfir 280 bls.
í stóru broti. Verðið hér er $2
að meðtöldu póstgjaldi.........
...Útgefandinn segir að næsta
vor komi út 5. bindið af þessu
verki, og verða það einkum sög-
ur af afburða mönnum. Þessar
þjóðsögur verða feikna mikið
safn, og nemur það, sem út er
komið, meira en þúsund blað-
síðum.
Magnús Peterson,
313 Horace St., Norwood P.O.,
Man., Canada.
* * *
Tilkynning til kaupenda Heims-
kringlu í Víðisbygð.
Eg undirritaður býst við að
fara í kring og innkalla fyrir
blaðið Heimskringlu í kringum
20. október. Væri mjög gott
að kaupendur hefðu þá til borg-
un fyrir blaðið, ef þeim er það
mögulegt, svo að ekki þurfi
að fara margar ferðir í þeim
erindum.
Víðir 29. sept. 1932.
August Einarsson.
EF ÁTTU HUGSJÓN.
Ef áttu hugsjón, herra minn,
og henni reynist trúr,
og fórnir getur fært, ef þarf,
þó forða tæmist búr —
svo verði kauplaus vist hjá þér
— eg virði þig sem mann;
og þegar vinir víkja á braut,
sem vini þér eg ann.
Ef áttu hugsjón, herra minn,
og hana svíkur brátt,,
er framsókn heimtar fórn af þér
— þú falla í gleymsku átt. —
Þú liðhlaupari! landráð köld
þig leiða í bjargið inn;
þar svartálfarnir sitja þing,
sem sjá ei himininn.
J. S. frá Kaldbak.
íslenzkur hestur vekur athygli.
Á ensku Derby veðreiðunum
síðustu bar svo við, er hlaupin
stóðu sem hæst, að Iítiil íslenzk
ur hestur kom skeiðandi inn á
hlaupabrautina, staðnæmdist á
grasflötinni fyrir innan og
horfði stórum augum á hest-
ana, sem voru að þreyta hlaup-
in. Hesturinn vakti svo mikla
eftirtekt ,eða dró svo athygl-
ina frá kappreiðunum, að lög-
regluþjónn var sendur til þess
að hirða klárínn og teyma hann
eitthvað burtu.
Dýraverndarinn
GAMAN OG ALVARA.
Siggi Skagfield syngur vel,
sízt eg honum gleymi.
Heillagest hann hjá oss tel
hér í Vesturheimi.
Eins og Caruso kappinn er
kynjarómi gæddur;
íturvaxinn vel sig ber
og virðist alls óhræddur.
Öxlum undir brjóstum ber,
með bandi frítt af snurðum.
Álnir tvær hann taldist mér,
tröll því er að burðum.
Kær sá meyjum ungum er
Ef eg rétt að gái —
Hann þær bera á höndum sér,
hvað þeim ekki lái.
Lukkan ætíð leiði hann
á lífs óförnum vegi.
Vel eg þekki þenna mann,
þó eg ei nafn mitt segi.
Búi.
(Þessar vísur voru ortar þegar
S. S. var hér í Winnipeg.)
“HAZELVIEW”
Garðurinn, sem þolir 10 stiga
frost.
Blómagarðurinn einkennilega
fagri, sem er fyrir framan hús-
ið númer 309 á Victor St., Win-
nipeg, hefir ætíð vakið undrun
mína og aðdáun. Öll blómin
eru tálguð úr tré og máluð svo
fallega og eðlilega, að maður
trúir naumast öðru en að það
séu lifandi blóm. Þar má sjá
flestar blómategundir, er heim-
urinn á. Innan um blómin eru
flögrandi fiðrildi, margar teg-
undir fugla, og í útskornum
kerum synda ffekar. Alt er
þetta skorið út af sömu list-
fengi.
Lítið hús er þar einnig, sem
stendur á stólpum. Þar hafa
lifandi spörfuglar gert sér hreið
ur.
Á hárri stöng þar skamt frá
blakta fánar flestra þjóða. Þar
ofarlega er íslenzki fáninn.
Á suníudögum og öðrum frí-
dögum á sumrin, streyma gest-
ir að úr öllum áttum til þess
að skoða þenna undragarð. f
gestabókinni, sem liggur á hillu
rétt við hliðið, hafa 400,000
menn og konur ritað nöfn sín.
Þar eru nöfn frá öllum lönd-
um, frá syðsta odda Afríku til
nyrztu stranda Noregs.
Nafn listamannsins er þetta
hefir gert, er E. K. Sam Hazell.
Hann er fæddur í Lundúnum á
Englandi. Flutti hingað til lands
með fjölskyldu sína fyrir átta
árum. Var fyrst þrjú ár í Sas-
katoon, Sask., en flutti svo til
Winnipeg og hefir dvalið hér
síðan.
Hazell hefir altaf þótt gam-
an að blómarækt. Þegar hing-
að til lands kom þótti honum
veturinn kaldur og langur, og
erfitt að rækta blóm. Samt
hafði hann lítinn garð framan
við hús sitt. Einn dag er hann
kom heim úr vinnu, hafði ærsla
fullur krakki slitið upp öll blóm
in. Gafst Hazell þá alveg upp
við blómaræktina, en fór að
tálga með vasahnífnum sínum
allskonar útflúr. úr tré. Hugs-
aðist honum þá að búa til garð,
sem hvorki mölur né ryð fengi
grandað, eða með öðrum orð-
um, hvorki krakkar eða frost.
Fór hann nú að tálga hverja
frístund, sem hann hafði. Síðan
eru liðin fjögur ár.
Með hverjum degi hefir garð-
urinn hans úr tré stækkað og
fullkomnast, fólkinu til ánægju
en borginni til frægðar. Hafa
nú þegar verið teknar myndir
af garðinum af tveimur kvik-
myndafélögum, auk mynda er
hafa komið út í ýmsum blöð-
um og tímaritum, innan lands
og utan.
Hazeil er bláfátækur maður.
“Eg geri þetta aðeins að
gamni mínu,’' segir hann.
Hvenær sem hann hefir tíma
er hann reiðubúinn að sýna
gestum garðinn sinn. Ánægja
gestanna eru hans einu laun.
Þetta er aðeins ófullkomin
lýsing af þessum listagarði, sem
á engan sinn líka í víðri ver-
öld, og sem enginn getur met-
ið að fullu, nema sjá hann sjálf-
ur með sínum eigin augum.
I. B. Arnar.
MCfURDY CUPPLY f0. I TD.
Builders' I^Supplies \^and LCoal
Einum þumlung undir sex
ætla eg fetum vera.
Honum ekki í augum vex
afreksverk að gera.
Office and Yard—136 Portage Avenue East
04 309 * PHONES ■ 94 309
Klæðum beztu klæddur er,
kurteis, hýr og glaður.
Þú án allra þrauta sér
að þetta er gentlimaður.
SKRÍTLUR
Frúin: “Okkur mun koma vel
saman — eg er ekki svo kröfu-
hörð.”
Nýja vinnukonan: “Það þótt-
ist eg vita, þegar eg sá mann-
inn yðar."
á
SMART
CLOTHES ^
FOR MEN & *0MEN
KING’S
k.
1
DEFERRED PAYMENTS
Þær litlu systurnar Elín og
Gréta voru inni í baðherberg-
inu og heyrist til þeirra hljóð
og grátur.
“Af hverju ertu að gráta,
Elín?’’ kallar manna þeirra.
“Hún Gréta braut brúðuna
mína.”
“Hvernig vildi það til?’’
“Brúðan brotnaði, þegar eg
barði Grétu í hausinn með
henni.
* * *
Fulltrúi: “Jæja, nú held eg
að við höfum fundið konuna
yðar, sem hljópst í brott að
heiman á mánudaginn.
Eiginmaður (dapur í bragði) :
“Jú, átti eg ekki á von. En hvað
segir hún?”
“Hún fæst ekki til að segja
eitt einasta orð.”
Eiginmaður (Glaður): ‘“Ó,
þá er það ekki hún Karólína!”
* * *
“Svo þú ert að hugsa um
að skilja við konuna?”
“Já, hún elskar mig ekki.”
“Þess þarf ekki. Maður elsk-
ar góðan mat og kampavín, en
maður býr með konu sinni.”
Ritstjórinn í myrkrinu.
Frh. frA 7, bla.
öllu að halda og sem réttilegast
með að fara. Mér finst að eng-
inn íslendingur ætti að bera
þann þjóðræknislega kinnroða,
með því að halda uppi hlífi-
skildi yfir svikum og prettum,
jafnvel þó einhver sleikja fáist
í staðinn úr stjórnardallinum.
Það að vinna á móti betri sann-
MESSUR OG FUNDIR
1 kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnaðamefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld i hverjum
mánuði.
Hjálpamefndln. Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
færingu, er að selja sál sína —
ef nokkur er — í glötun.
Það sem er hér megin málið,
er það, að mér finst fslendingar
stefna í áttina til glötunar, því
ekki er að sjá að oddamenn ís-
lenzkrar þjóðrækni, sem hafa
stígið á stokk að fornum sið
og strengt þess heit, að gera
íslendinga að góðum borgurum
í þessu landi, hafi mikið aðhafst
til þess að efna heit sitt.
Því þrátt fyrir skrumið og
grobbið um ríkidóm og vel líð-
an hér, má fjöldinn lúta svo
lágt að beiðast ölmusu af sveit-
um og ríki; og með því er sóma-
I tilfinningu, sem þeir áttu í
fari sínu, glötuð.
Að verjast sveit á Islandi
þótti heiður og sómi, og er svo
enn, að mörgum er prívatlega
hjálpað til þess að forðast þá
niðurlægingu að verða sveitar-
þurfi.
“Maður, líttu þér nær, liggur
I í götunni steinn.” í staðinn
fyrir að íslenzku blöðin hér og
foringjar þeirra, lýsa velþóknun
og blessun sinni yfir þeirri
stjórnarfarslegu háðung, sem
felst í auðvaldsverndun annars
vegar og kúgunarvaldi á alþýðu
hins vegar. Ættu þau að líta
sér nær, ef ske mætti að fund-
in yrði leið til eflingar íslend-
ingum í Vesturheimi. Því nógu
hraðfara sýnist alt vera í eyði-
leggingaráttina, og tími til kom
inn, að tekið sé í strenginn, ef
ver á ekki að fara.
Helgi Sigurðsson
frá Vík.
SKEMTISAMKOMA
OG KAFFIVEITIKGAR
ÞAKKARGERÐARDAGINN, MÁNUDAGINN 10. OKT.
undir umsjón Kvenfélags Sambandssafnaðar
f KIRKJU SAFNAÐARINS
Sargent og Banning St.
SKEMTISKRA:
1. Vocal Solo ................ Mrs. K. Jóhannesson
2. Violin Solo .............. Miss H. Jóhannesson
3. Ræða ....................... Mrs. Jórunn Lindal
4. Piano Solo ............. Miss Snjólaug Sigurðsson
3. Upplestur .................. Ragnar Stefánsson
6. Vocal Solo .............. Séra Ragnar E. Kvaran
7. Kvæði ...................... Kristján S. Pálsson
8. Duette .................... Mrs. K. Jóhannesson
Séra Ragnar E. Kvaran
9. Instrumental Duette ......... Gunnar Erlendsson
Pálmi Pálmason
10. Kaffiveitingar .......... 1 fundarsal kirkjunnar
Inngangur ókeypis, en samskota verður leitað. —
Samkoman verður sett uppi í kirkjunni og byrjar kl.
8.15 síðdegis.
FORSTÖÐUNEFNDIN.
Announcing the New and Better
MONOGRAM
LUMP . $5.50 Ton
COBBLE . $5.50 Ton
STOVE . $.475 Ton
SASKATCHEWAN’S BEST
MINEHEAD
LUMP ... $11.50 Ton
EGG ... $11.50 Ton
PREMIER ROCKY MOUNTAIN
DOMESTIC COAL
Wood’s Coal Company Limited
590 PEMBINA HIGHWAY
45 262 PHONE 49 192
WEST END BRACH OFFICE (W. Morrls)
670 Sargent Ave.—Phone 29 277