Heimskringla - 09.11.1932, Page 3
WINNIPEG 9. NÓV. 1932.
HEIMSKRINGLA
3 BLAÐSIÐA
The Marlborouáh
Helzta Hotel Winnipeá-boréar
SJTERSTAKUR MIÐDAGSVERÐUR FYRIR KONUR 40c
Framreiddur á miðsvölunum
BEZTI VERZUUNARMANNA MIÐDAGSVERÐUR I BÆNUM 60c
Rejmið kaffistofuna. — Vér leggjum oss fram til að standa fyrir
allskonar tækifærisveizlum.
F. J. HALL.ráðsmaður.
Phone 22 035 Phone 2T> 2».
HOTELCORONA
26 KooraH With Bath
Hot and Cold Water in Every
Room. — $1.60 per day and up
Monthly and Weekly Rates
on Request
Cor. Main * Notre Dame East
WINNIPEG, CANADA
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR
LÁTIN
1846—1932.
Þann 3 júní s. 1. andaðist
þessi kona í bygð íslendinga í
Swan River dalnum í Manitoba
eftir langvarandi ellisjúkdóm.
Var hún fjörgömul, hafði um
sex ár yfir áttrætt. Þóra var
fædd á Hvarfi í Barðardal í
Þingeyjarsýsiu 1846. Þar bjuggu
foreldrar hennar Jón Jónsson
og Bóthildur Björnsdóttir. Fað-
ir hennar dó er hún var 5 ára
gömul. Tveimur árum síðar gift-
ist Bóthildur aftur Ásmundi Sæ-
mundarsyni og var sonur þeirra
hinn nafnkunni íslenzki blaða-
maður og rithöfundur Valdimar
Ásmundarson. Þóra ólst upp
með móðir sinni og stjúpa til
fullorðins ára, en fluttist þá
með þeim til Þistlifjarðar, þar
var hún á ýmsum stöðum í
nokkur ár áður en hún giftist
1876 Gottskálki Pálssyni; byrj-
uðu þau búskap á Bogastöðum
í Þistilfirði, og munu og hafa
verið um stund í Flögu. 1887
fluttu þau til Canada og námu
land í Nýja íslandi og nefndi
Gottskálk bæ sinn Svalbarð; er
það vestur frá Kjalvík í Víðines-
bygðinni. í Hólabygðina í
Cypress sveitinni fluttu þau
1892 námu þar land og bjuggu
þar til 1899 að þau fluttu til
Swan River, námu þar enn land
vóru með fyrstu frumherjum
þess bygðarlags. Gottskálk var
harðsnúin maður og duglegur
og drengur góður, hann dó 31.
octóber 1919. Systkyni Þóru
eru öll dáin. Nefni eg þau eftir
aldusröð (1) Björn bjó á Sviðn-
ingi í Víðinesbygðinni í Nýja-
Islandi, Guðný hét kona hans. |
(2) Sigurveig, maður hennar
hét Guðjón Halldórsson, þau
fluttust til N. Dakota og dóu
þar. (3) Abigael fyrri kona
Ólafs M. Jónssonar hreppstjóra
á Kúðá á Þistilfirði er vestur
fluttist og dó í, Hólabygðum (4)
Friðrikka síðari kona Ólafs M.
Jónssonar, hún dó í Swan River
dalnum fyrir nokkrum árum.
Þetta voru alsystkini. Hálf-
bróðir átti hún aðeins einn sem
getið er hér að framan. Þau
Gottskálk og Þóra eignuðust
þrjú börn, drengi tvo og eina
stúlku, annar drengurinn Kristj-
án að nafni dó í æsku, hin eru
á lífi og búa í Swan River daln-
um: Gunnar giftur Þórdísi
Helgadottur og Kristín gift hér-
lendum manni Roy Sedore að
nafni.
Þóra var greind kona sem
systkini hennar öll ,hiin var
mannkostum búin en fáskiftin
um annara hagi. Hún var mynd-
ar kona og þótti vænn kvenn-
kostur er hún var upp á sitt
besta, en heilsuleysi stríddi á
hana tímum saman. Áttu þau
hjón við fátækt að stríða fram-
an af og ýmsa örðugleika sem
gefur að skilja þar sem þau
voru frumbýlingar í þremur ís-
lenzkum nýbygðum, en hagur-
inn batnaði með árunum fyrir
dugnað og þrautsegju. Þóra
var gestrisin og hjartagóð, fór
enginn fátækur frá hennar hús-
um kaldur eða svangur. Getur
sá sem þetta skrifar um það
borið af eigin reynslu. Hún var
trygglynd og hjartagóð, en laus
við hégómagirnd. Það sem hún
gerði liirti hún ekki að auglýsa
fyir öllum lýð. — Það er víð-
áttumikið íslenzka landnámið:
um heimsálfu þessa alla eru
þeir dreifðir, en nú fækkar þeim
óðum; með ári hverju ganga
þeir til moldar eftir dagsverk
unnið en eftir er að eins minn-
ingin um þá og baráttu þeirra
sem útlaga í framandi landi,
barátta þeirra fyrir velgengni og
sóma sinna afkomenda og fyrir
þá hugsjón lögðu þeir og þær
alt í sölurnar — líf og krafta.
Því er það skylda kynslóðarinn-
ar í dag að halda merkinu hátt,
og tryggja það sem best að
hugsjónir þeirra verði virkileg-
leiki. Fjöldinn af frumherjun-
um eru ekki þjóðkunnir en hver
og einn, karl og kona á smá-
sögu, sína æsku drauma og sína
fómfærslu á altari skyldunnar
og fórnarstalli þjóðfélagsins, og
við gröf þeirra mega þeir sem
eftir lifa standa með álút höfuð
í þögulli bæn. Ástvinirnir
harma Þóru, hún var ástrík og
skyldurækin móðir og allir þeir
sem þektu hana og lífsstríð
hennar og starf, beygja höfuð
sín í samúð við gröf hennar.
Guð blessi minningu hennar.
Jarðarförin fór fram 5 júní,
innlendur prestur framkvæmdi
útfararathöfnina a^ viðstöddu
talsverðu fjölmenni. Syni
hennar er hann gekk frá gröf-
inni féil eftirfylgjandi stef af
munni.
Eg veit að vinir finnast, það
vonarljós mér skín,
þá er svo margs að minnast,
þá móðir hverfur sýn,
nú signir sól á heiði, þín síðstu
stig um vor,
frá þínu lága leiði, liggja mín
þyngstu spor.’’
G. J. Oleson.
HITT OG ÞETTA
Þann dag fyrir 10 árum hélt
Mussolini liði sínu til Róm.
BöSullinn drap sig.
Enski böðullinn John Ellis
stytti sér aldur nýlega. Hann
hafði líflátið yfir 200 manna.
Árið 1924 tók hann konu að
nafni frú Thompson af lífi. Hún
hafði myrt mann sinn á eitri.
Eftir aftöku hennar gat böð-
ullinn aldrei sofið rólega eina
nótt, unz hann sagði af sér
starfinu og setti upp rakara-
stofu í Rochdale.
Útflutningsverðlaun í írlandi,
Fríríkisstjórnin hefir tilkynt,
að hún ætli að veita bændum,
sem rækta stórgripi til útflutn-
ings, fjárhagslega aðstoð, með
því að greiða útflutningsverð-
laun, sem nema 12j/2% af yfir-
lýstu verðmæti, þegar gripirnir
eru fluttir út fyrir landamæri
fríríkisins, en 10%, þegar þeir
eru fluttir út fyrir landamæri
fríríkisins og Norður-írlands. —
Fjárhagsaðstoð þessa veitir frí-
ríkisstjórnin bændum, til þess
að gera þeim kleift að halda á-
fram að flytja út stórgripi, þrátt
fyrir hömlur þær, sem Bretar
hafa lagt á innflutning stórgripa
frá fríríkinu.
—Úr ísl. blöðum.
LISTAVERK RIKARÐS
Carbo.
Hylli Gretu Garbo meðal
kvikmyndagesta kemur fram
með ýmsu móti. í Portsmouth
í Virginia hefir maður einn
safnaíi blaðaúrklippum um Gar-
bo og blaðamyndum af henni.
Hann á að sögn um 7000 blaða-
myndir af henni og blaðagrein-
ir um leiklist hennar og einka-
líf. Hann byrjaði að safna árið
1925.
Hámark gleymsku.
Kona var á ferð með járn-
brautarlest í Austurríki. ,Hún
var með drenghnokka með sér.
Hún þurfti að skifta um lest.
Þá gleymdi hún að taka dreng-
inn með sér. Stöðvarþjónn setti
hann í geymslu þar sem geymd
ir eru gleymdir munir. Drengur-
inn komst til skila.
Tvisvar á æfinni.
í heilbrigðisskýrslu læknis
eins á Jótlandi, kvartar hann
yfir því, hve fólk baði sig sjald-
an. Baðklefar hafa verið settir
í mörg mjólkurbú til almenn-
ings nota. En örsjaldan, til þess
að gera eru böðin notuð. Segir
læknirinn, að karlmenn þar um
slóðir baði sig að jafnaði tvisv-
ar á æfinni — þegar þeir eiga
að fara í herþjónustu — og áður
en þeir gifta sig.
Fascisminn.
í ítalíu er 10 ára í þessum
mánuði. Verður mikið um dýrð
ir í ríki Mussolini. Hann gengst
fyrir því að haldnar verði sýn-
ingar á ýmsum verkum, sem
snerta atvinnulíf þjóðarinnar.
Eiga þær að sýna allar þær
framfarir, sem orðið hafa í
landinu þetta 10 ára skeið. —
Aðalhátíðin fer fram 28. okt.
Nýlega heimsótti eg Rikard
Jónsson listamann og fékk að
sjá ýms af listaverkum þeim, er
hann hefir gert svö tíðustu ár-
in, eftir að bókin með myndun-
um af gripum hans kom út og
eftir að hann skar út Arnar-
hvolshurðina og gerði fleiri á-
gæta gripi vorið 1930. Jafn-
framt áttum við langt viðtal um
gripina, og skal hér sagt frá
því helsta, sem eg varð vísari
það kvöld.
í apríl 1930 fór Rikarður utan
til lækninga og kom ekki heim
aftur fyrri en rétt fyrir jól. En
ekki þarf lengi um að lítast í
vinnustofu hans til þess að sjá,
að hann er í afturbata og hefir
ekki verið aðgerðalaus.
Svo sem alkunnugt er hefir
Rikarður sérstaklega lagt stund
á andlitsmyndagerS og gert
mörg meistaraverk í andlits-
myndum.
Þegar hann kom úr ríkis-
sjúkrahúsinu í KaupmannahÖfn
biðu hans þau verkefni að gera
5 andlitshöggmyndir, sem hann
var beðinn um, og við þær
lauk hann allar, af veikum
mætti þó, áður en hann fór
hingað heim. Myndir þessar
voru af Knud Krabbe, sem er
einn af helztu taugalæknum
Dana. Hann er bróðir Þorvalds
vitamálastjóra. Þá var tví-
mynd (tvöföld mynd), af Erik
Kiærbye útvarpstækjasmið og
konu hans. Fjórða var af presti
nokkrum, séra Kæstel, og fimta
af ungfrú Ebbu Christensen,
yfirhjúkrunarkonu í ríkissjúkra
húsinu. Auk þessa gerði Rík-
arður allmikið af teikningum í
utanförinni.
Eftir heimkomuna hefir hann
gert .þessar höggmyndir:
Fyrst gerði hann rismynd
(upphækkaða mynd) af Guð-
mundi skáldi á Sandi, þá brjóst-
líkneski af skáldinu Einari
Hjörleifssyni Kvaran. Bjarmar
af sál skáldsins í svipnum, og
er líkneskið hið mesta meist-
araverk. S. 1. vor gerði Ríkarð
ur mynd fyrir samband ung-
mennafélaganna af sundgarp-
inum Lárusi Rist. Fjórða er
líkan af Aðalsteini Sigmunds-
syni kennara og ritstjóra Skin-
faxa. Það er eins og Aðalsteinn
sé þar sjálfur kominn, þegar
horft er á líkneskið. Svo er
myndin lík honum. Fimta mynd
in er af Hannesi Thorsteinsson
fyrrum bankastjóra. Hefir hún
þegar verið steypt^ úr eir og
mun eiga að greypa hana á
legstein hans. í sumar dvaldi
Ríkarður nokkurn tíma í Grinda
vík og gerði þá rismynd af tón-
skáldinu Sigvalda lækni Kalda-
lóns. Er sú mynd ein af góð-
myndum Ríkarðs. Síðan hann
kom úr Grindavík, hefir hann
enn lokið við eina andlitsmynd.
Er hún af Árna Thorsteinsson
tónskáldi. Mun hún ekki verða
talin sízt þessara mynda, þótt
allar séu þær snildarverk.
Haustið 1930 gerði Rikarð-
ur höggmyndir af Eggerti Ste-
fánssyni söngvara, Teiti Þor-
leifssyni bónda á Vatnsleysu-
strönd, nú í Hafnarfirði, — er
var áttræður þegar myndin var
gerð, — og Óskari Gunnarssyni
bókara. —
í Grindavíkurför sinni í sum-
ar gerði Ríkarður yfir 30 hraun-
búa-teikningar. í myndum þess-
um hefir Ríkarður tekið hraun-
ið sér til fyrirmyndar. Sér hann
í því allskonar tröll og vætti,
sem hann leiðir svo fram á
pappírinn meira og minna stíl-
færð. Ríkarður segir að ekki
verði þverfótað í brunahrauni
fyrir/allskonar myndum og séu
margar þeirra frábærlega ein-
kennilegar. Þessi myndagerð —
hraunbúateikningarnar — er
alveg ný. Að vísu hafði Ríkarð-
ur fengið þá hugmynd fyr, að
teikna eftir íslenzku hraunun-
um, svo sem myndabók hans
sýnir. En í Grindavíkurförinni
hefir á ný aukist að mun áhugi
hans á því.
Á þessu tímabili hefir Rík-
arður einnig gert margskonar
útskurðarsmíði. Má þar til-
nefna veggskildi þrjá, sem all-
ir eru skornir úr hnotviði. Var
liinn fyrsti þeirra gjöf frá Sig-
urði Guðmundssyni skrifstofu-
stjóra til Emil Nielsens áður
framkvæmdastjóra Eimskipa-
félagsins. Á skildinum sést vík-
ingaskip á siglingu, en í baksýn
er Berufjörður. Þar sté Emil
Nielsen fyrst fæti á íslenzka
grund, og ann hann Berufirði
jafnan síðan hann dvaldi þar.
Annar skjöldurinn er glímu-
skjöldur, er knattspymufélagið
glímubyrjun í reyniskógarrjóðri.
Hinn þriðji er knattspyrnu-
skjöddur, er knattspyrnufélagið
Valur gaf norðlenzkum knatt-
spyrnumönnum. Gerði Ríkarður
þann skjöld í sumar.
í öðru lagi eru blekpallar
þrír. Er þar fyrst að telja fag-
urlega útskorinn grip, er gefinn
var Einari Gíslasyni trésmið á
Eyrarbakka. Er á bakhlið palls-
ins upphleypt mynd af smið,
sem er að hefla, en umhverfis
liann eru skrautrósir, gerðar í
líkinug uppþyrlaðra hefilspóna.
Annan blekpall hefir Ríkarður
einnig gert nú nýlega. Var sá
gefinn Friðrik Ásmundssyni
Brekkan rithöfundi. Gáfu nem-
endur Friðriks honum gripinn.
Á pallþilinu er svanaharpa, um-
vafin birkilaufi. Hinn þriðja
gerði Ríkarður síðastliðið vor.
Var sá gefinn Sigge Jonson
kennara. Gaf róðrarflokkur
Sigge honum blekpallinn. Á hon
um sjást menn í kappróðri og
íslenzk fjöll í baksýn. Líka gaf
“Ármann” Sigge Jonson bikar
mikinn, er Ríkarður gerði einn-
ig-
Þá hefir hann ennfremur
smíðað tvo forkunnar fagra út-
skorna gripi, sem eru í eigu
Óskars Gunnarssonar bókara
og konu hans. Er það borðfána-
stöng mikil og eski.
Margt fleira hefir Ríkarður
gert á þessu tímabili í teikn-
ingum og útskurði, þótt hér sé
ekki talið.
Meðal þess, sem enn er ótai-
ið, er teikning ein mikil, sem
ekki má gleyma að minnast á.
Þá teikningu gerði Ríkarður
fyrir frú Þórdísi Egilsdóttur á
ísafirði, og ætlar hún að sauma
teppi eftir teikningunni. Þar
getur að líta íslenzkan sveita
bæ og umhverfi hans, tún og
fjöll. Á túninu er fólk að hey-
vinnu, — rakstri, bindingu og
heimflutningi heysins. Ýms hús-
dýr sjást hér og hvar umhverfis
bæinn, og á hlaðinu eru menn
og hestar. Úthýsi og kofar sjást
einnig á myndinni, og uppi um
brekkur eru kindur á beit. —
Aðra teikningu fyrir þessa sömu
konu gerði Ríkarður fyrir nokk-
þer sem
notið
TIMBUR
KAUPIÐ
AF
The Empire Sash & L ‘oor Co., Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Bkrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA,
urum árum. Var það mynd af
baðstofu, og inni í henni var
fólk við ýmiskonar heimilis-
vinnu. — Hafði Þórdís lokið
við að sauma teppi eftir þeirri
teikningu fyrir sýninguna 1930.
Teppið var selt til Ameríku. —
Það er ánægjulegt að sjá
listaverk Ríkarðs og kynnast
þeim. Og nú er kostur á að sjá
hinar sérkennilegu hraunteikn-
ingar hans í Hressingarskálan-
um. Myndabók hans gefur sýn
yfir fyrri verk hans, og von-
andi á hann eftir, þegar stund-
ir líða, að gefa út aðra slíka
bók til viðbótar.
Guðm. R. ólafsson
úr Grindavík.
—Alþ.bl.
kom hún til kirkjunnar. Prest-
ur sér hana og segir við hana:
“En hvað þú gast farið að koma
núna.” “Já,’’ segir kerling, “það
var ekki eina erindið að heyra
til yðar í dag, mig langaði til
að sjá svínið áður en eg dæi.”
Blanda.
KENNARANÁMSKEIÐ.
Nýjung í íslenzkri leðurvinnu.
Að frumkvæði Lúðvígs Guð-
mundssonar, gagnfræðaskóla-
stjóra á ísafirði, hefir undanfar-
ið verið haldið kennaranáms-
skeið í Austurbæjarskóla Rvík-
ur í handavinnu og teikningu.
Stóð námsskeiðið yfir þrjár vik
ur. Sóttu það 43 barnakennar-
ar, þ. á m. margir héðan úr
Reykjavík, en einnig sóttu kenn
arar til þess víðar að. Kennarar
á námsskeiðinu voru ungfrú
Weimen, kennari við gagnfræða
skólann á ísafirði, og Pruller
teiknikennari. Eru þau bæði
Þjóðverjar. Á námsskeiðinu var
kend teikning, meðferð lita, og
ýmiskonar pappírs og pappa-
vinna. M. a. voru æfingar í
töfluteikningu með litkrít.
Sú var meginregla í kensl-
unni, að ekkert af þessum verk
um væri gert sem stæling á
öðru, heldur reynt að sjá og
læra af náttúrunni og skapa
gerðir og litbrigði eftir eigin í-
hugun.
Nám þetta á að geta orðið til
almennra nota við kenslu barna
— ekki einungis í teikni- og
handavinnu-stundum, heldur
einnig t. d. við náttúrufræðis-
kenslu o. fl. ,og jafnframt er það
tilgangur þessarar kenslu að
efla smekk nemenda og auka
fegurðartilfinningu þeirra.
Á námsskeiðinu voru m. a.
gerðir lampahjálmar úr pappír
með ýmiskonar litum, og er þar
með stefnt að því, að kennar-
arnir, sem námsskeiðið sóttu,
geti kent börnunum að gera
slíka gripi^til heimilisnotkunar.
í vetur ætlar Pruller kennari
að liafa á hendi hér í Reykja-
vík kenslu í gerð handtaska o.
fl. gripa úr íslenzku leðri, og
að móta myndir og íslenzkar
gerðir (munstur) í leðrið. Er
fyrst hugsað til heimanotkunar
gripanna, en ekki er ólíklegt
að þeir geti bráðlega 'orðið
markaðsvara. — Jafnframt grip
um þeim er gerðir höfðu verið
á námsskeiðinu, og kennarar
og fleiri fengu að skoða í gær,
var kven-handtaska, er Pruller
hefir gert — sýnisgripur af fag-
urlega róssettu, íslenzku leðri.
Mun mörgum þykja íslenzka
leðrið ásjálegt orðið, þegar það
hefir verið svo glæsilega um-
myndað.
G. R.
—Alþ.bl.
Smábakningar*
GJÖRÐAR MEÐ MAGIC
AFLA FVRSTU VERÐLAUNA
FRÚ JEANNE McKENZIE
“Magic hefir jafn-
an reynst mér ó-
brygðult”, segir fnl
Jeanne McKenzie í
Toronto, er hlaut
þrjú fyrstu verðlaun
in á. Canadian þjóð-
sýningunni 19 3 1.
“Sem sagt kæmi mér ekki til hugar
að nota annað lyfti duft.”
"Eg nota Magic í allar mínar bakn-
ingar. Hefði eg ekki gert það, þá er
eg viss um að eg hefði ekki hlotið
ivo mörg verðlaun. Magic er bragð-
bætir i öllum bakningum og lyftir
brauðinu svo það er í flokki út af
fyrir sig.”
Magic Baking Powder er notað
einvörðungu af meira hluta fæðu-
fræðinga, matreiðslufræðinga og hús-
ráðenda í Canada. 1 sannleika selzt
Magic langt framyfir allar aðrar
tegundir lyftidufta.
* Verðlaunaforskrift
Mrs. McKenzie fyrir
FÍNUSTU BAKNINGA
% bolli af 2 teskeiðar
smjöri Magic Baking
2 bollar aldina Powder
sykur Hvíta úr 6
% bolli mjólk eggjum
3 bollar köku 1 teskeið af
mjöl almond lög
Sláið upp smjörið og bætið i
sykrinu. Sigtið saman mjölið og
lyfti duftið nokknwm sinnum. Bæt-
ið mjölinu og mjólkinni á víxl í
smjör og sykur stöppuna. Bætið
3vo eggjahvítunni í og sláið alt
saman. Bætið í almond leginum.
Látið helming soffunnar á smá-
köku diska og bakið i meðalheit-
um ofni, um 375° F. í 20 minútur.
Látið helmingin sem eftir er í
flatar bókunar pönnur og bakið i
meðal heitum ofni, um 375° F. i
40 mínútur. Eftir að það er orð-
ið kalt, skerið með kökuskera i
ýmsar gerðir. Hennið yfir það,
eins og myndin sýnir, steyttum
sykri, skornum hnetum, sykruðu
orange hýði, Jelly, Cachous, Mara-
schino Cherries, o. s. frv.
Chatelainc lastitute
,7A, j
Chttfrlarnt .Maoarine S
aiiMt tííI ftlfin*’
Þe.HHÍ HtnDhætinu
hverjum bnuk
er ytSur* trygKinc
fyrlr .þvj . aft
M n k i c Bakingr
Powder er lauxt
%i« fllAn og önn-
ur Nknlileg efni.
Prestur nokkur keypti svín
og hafði heim til sín. Þetta
fréttist brátt um sóknina, og
fjölmenti fólk venju framar við
kirkjuna, eftir það svínið kom.
Kerling ein var í sókninni svo
hrum, að prestur hafði í nokk-
ur ár orðið að ómaka sig til að . » r m >
þjónusta hana heima, en nu ontario.
ÖKEYPIS MATREIÐSLI BÓK—Þeg-
ar þér gerið heima bakning þá notið
yður hinar ýmsu aðgengilegu for-
skriftir í the Magic Cook Book.
Skrifið til Standard Brands Ltd.,