Heimskringla - 16.11.1932, Blaðsíða 5

Heimskringla - 16.11.1932, Blaðsíða 5
WINNIPEG 16. NÓV. 1932. HEIMSKRINGla r 6 BLAÐStÐA margir líklegt að þeir muni frekar hverfa að því ráði að takmarka innflutninginn, en þó ef til vill beita bæði tollum og innflutningshömlum. Er gert ráð fyrir að fyrirætlanir stjórn- arinnar og samningar þeir, er gerðir voru við nýlendurnar á Ottawa ráðstefnunni, verði birt ar rétt áður en þing kemur saman 18. þ. m. Miðstöð ullarverzlunarinnar í heiminum, er í London. Ullin er mest seld á uppboðum og koma þangað ullarkaupmenn víðsveg- ar að. Uppboð þessi ákveða því nær alveg verðlag á ull, hvar sem er í heiminum. Ullarverð hefir aldrei verið svo lágt sem það er nú síðustu 30—40 árin. Hefir ullarverð stöðugt verið fallandi síðan 1929, en undanfarna mánuði hefir verð þó ekki fallið. Á upp- boðum þeim, sem nú stóðu yfir í London, hækkaði verðið nokk- uð, einkum á fínni ull. Er talið líklegt að um frekara verðfall verði ekki að ræða. Og þó nala gangi ennþá ákaflega treglega, virðast menn vera farnfr að gera sér vonir um að ullarverð muni frekar fara hækkandi. Sala íslenzku ullarinnar geng ur mjög treglega. Hún er mest notuð í Ameríku, en þar er á- standið engu betra en í Evrópu. Fyrra árs ullin er nú að miklu leyti seld. Salan hefir verið mjög dræm, og framleiðsla þessa árs mun því nær öll óseld. Núverandi verð á íslenzkri, hvítri vorull svarar til kr. 0.90 —1.20 per kg. eftir gæðum. Er þetta verð miðað við ullina sekkjaða í verzlunarstöðurium hér á landi. — Vafasamt er, hvort það greiðir nokkuð fyrir sölu, þó verðið sé lækkað, því kaupendur kvarta alment ekki undan því að það sé of hátt, heldur stafar sölutregðan af erf iðleikum ullariðnaðarins. Sem dæmi þess, hve ull hefir fallið mikið í verði, má geta þess að samkvæmt verðskráningu í London í sept. 1928 kostaði viss tegund af hreinþveginni, fínni ull 10 kr. kg., en samskonar ull kostar nú kr. 4.60. Verð á sér- stakri tegund af hreinþveginni grófri ull kostaði 1928 kr. 4.80 per kg., en kostar nú kr. 1.70. Húðir og skinn hafa fallið stöðugt í verði þangað til síðari hluta sumars. Þá stöðvaðist verðfallið og hefir verð hækkað dálítið síðan. Gærur eru í afar- lágu verði eins og aðrar skinna- vörur. Sala er lítið byrjuð, en það lítið sem selt er mnn svara til 40—45 aura verðs á nýjum gærum. Mikið selzt jafnan af íslenzkum gærum til Þýzka- lands og er þar oftast beztur markaður fyrir þær. Nú er vafa samt hvernig ganga muni að selja þangað, vegna örðugleika Þjóðverja með að afla sér er- lends gjaldeyris. Fyrir fjórum árum var verð fyrir útflutt kjöt helmingi hærra en það er nú, ullarverð alt að því þrisvar sinnum hærra og gæruverð um það bil fimm sinn- um hærra. í sambandi við þetta má benda á nokkur atriði, sem hafa áhrif á það, hvað framleið endur fá fyrir vörur sínar. Tilkostnaður við meðferð og verkun varanna hér á landi til að gera þær markaðshæfar er öllu hærri nú en fyrir fjórum árum. Flutningsgjöld eru alveg óbreytt. Það verður að borga jafnmikið flutningsgjald fyrir gærur, sem bændur verða að selja fyrir ca. 40 aura kg., eins og fyrir fjórilm árum, þejyar þeir fengu fyrir þær kr. 2.20. Sama blasir við þegar athug- aður er kostnaðurinn erlendis, við að gera vörurnar nothæfar handa almenningi. Sá kostnað- ur hefir lítið eða ekkert lækk- að. Englendingur sagði við mig nýlega: “Fötin sem eg geng í kostuðu 200 krónur. Ullin í þau kostar um 8 krónur. Mismunur inn, 192 krónur, eru vinnulaun og verzlunargróði.’’ — Þetta dæmi talar sínu máli. Hverjum heilskygnum manni er það ljóst að munurinn á því verði, sem framleiðendur fá fyrir vörur sínar og því sem neytendur verða að greiða, er alveg gífur- legur, og höfuð meinsemdin er, að þessi verðmunur — milliliða kostnaðurinn — teekkar lítið þrátt fyrir verðfall varanna. — Verðlækkunin bitnar því nær eingöngu á framleiðendum. Jón Árnason. —Tíminn. ALDARFJÓRÐUNGS HJÓNABANDSAFMÆLI Á mánudaginn 14. þ. m. höfðu þau Sveinn Pálmason í Winni- peg og kona hans verið gift í 25 ár. 1 tilefni af því mættu allmargir vinir þeirra og vanda- fólk í samkomusal Fyrstu lút- ersku kirkjunnar klukkan 8 að kveldinu. Var salurinn alskip- aður fólki og laglega skreyttur. Þegar litið var yfir hópinn leyndi það sér ekki að hér var um heiðursgesti að ræða, sem jöfn vináttu-ítök áttu i öllum flokkum; samkvæmið var auð- sjáanlega hvorki litað af pólitík né trúmálum. Séra B. B. Jóns- son og séra Ragnar Kvaran sátu samhliða við annan enda háborðsins og ræddu saman svo vingjarnlega að báðir hefðu getað verið prestar í sama kirkjufélagi; en séra R. Péturs- son og séra K. K. Ólafsson hvísl- uðust á og hlógu innilega hvor framan í annan við hinn endann á háborðinu. Sýnir þetta mikla framför og menningu, því slíkt hefði ekki getað átt sér stað fyrir 25 árum. Á P. Jóhannsson stjórnaði samkvæminu og fórst það prýðilega. Á meðan hann leiddi silfurbrúðhjónin til sætis lék Ragnar Ragnar brúðkaupslagið. Séra B. B. Jónsson flutti bæn og lét syngja fyrstu vers- in af sálminum: “Hve gott og fagurt og indælt er.’’ Þar næst lék Snjólaug Sigurðsson á píanó, en að því búnu var tekið til matar, því veitingar voru fram bornar vel og rausnarlega. Að lokinni máltíð kvaddi veizlustjóri sér hljóðs, talaði nokkur ávarpsorð til silfurbrúð- hjónanna og afhenti þeim stóra og vandaða klukku — “afa- klukku"; var hún fengin hjá Dingwall's og er reglulegur dýr- gripur, gengur hvort sem vill fyrir rafmagni eða án þess og þarf aldrei neitt við hana að eiga því hún vindur sig sjálf. Þá las sá er þetta ritar smá- skeyti og bréfakafla til silfur- brúðhjónanna frá fjarverandi vinum sem hér segir: J. H. Johnson, Burns Lake, B. C. frændi silfurbrúðarinnar. Jóhannesi Sveinssyni, Cali- forníu, bróður silfurbrúðarinn- ar. Sveini kaupmanni Thorvalds- syni, Riverton. Jóhanni Briem, Riverton. G. Thordarson, Brandon. Hjálmi Þorsteinssyni, Gimli. H. Anderson, Winnipeg Beach Hann las einnig upp ávarp frá viðstöddum og fjarverandi vinum og vandafólki, var það skrautritað af mikilli list; hafði það gert Sigurbjörn kaupmaður Sigurðsson að Riverton; að end- ingu las hann kvæði er hann hafði þýtt og tileinkað silfur- brúðhjónum. Næst söng frú Sigríður Ólson þetta kvæði og Snjólaug Sigurðsson lék undir: var hún kölluð fram aftur og söng þá annað kvæði enskt. Séra R. Pétursson talaði fyr- ir minni silfurbrúðgumans og Húnavatnssýslu. Mæltist honum vel og skemtilega; kvað hann það eitt áhrifa-atriðið í sögu vesturflutninganna, að þegar hingað kæmi, “næði fólkið sam- an’’ úr ýmsum héruðum lands- ins. Eitt aðaláhugaefni margra íslendinga hefði lengi verið það, að tengja saman þau hér- uðin, sem fjöll og firnindi hefðu aðskilið. Þetta væri nú komið I framkvæmd; en áður en það varð, kvað hann þau Svein Pálmason og konu hans hafa tengt saman tvö helztu og blóm legustu héruð landsins — Húna vatnssýslu og Borgarfjörð. — Sveinn er Húnvetningur, en kona hans er úr Borgarfirði. Ekki jók það lítið ánægju þessarar gleðistundar, að John Waterhouse hljómfræðikennari og kona hans ásamt hinum fræga hljómfræðingi Hubichi, voru þar gestir og skemtu tvisvar um kvöldið með hljóm- leikum. Hefir Waterhouse kent Pálma syni brúðhjónanna, en Pálmi hefir aftur kent Pearl systur sinni. Næst talaði J. J. Bíldfell. — Lagði hann áherzlu á það, að ef menn væru alment eins vand- aðir í lífi sínu og Sveinn Pálma- son hefði æfinlega verið, þá væri þessi heimur öðruvísi en hann nú er. Séra Ragnar E. Kvaran söng þýzkt kvæði, en Ragnar Ragnar lék undir. Var hann kallaður fram aftur og söng þá kvæðið “Sprettur" eftir Hannes Haf- stein, með lagi Sveinbjörnssons. Veizlustjóri kallaði þá næst fram séra K. K. Ólafsson. Tal- aði hann stutt, en svo skemti- lega, að hlátur og gleði tóku fullum tökum flesta þá, sem viðstaddir voru. Jón skáld Kernested hafði ver ið beðinn að yrkja silfurbrúð- kaiipsminni; flutti hann það kvæði sjálfur og verður það birt hér í blaðinu. Þá talaði G. M. Bjarnason málari fyrir minni silfurbrúður- innar. Var góður rómur gerður að orðum hans. Valgerður Sigurðsson frá Hnausum talaði næst. Var ræða hennar lærdómsrík og einkar fögur. Á eftir henni talaði Jón Jóns- son bróðir hennar. Flutti hann innihaldsríka ræðu og eftirtekt- arverða. Þau Valgerður og Jón eru móðursystkini silfurbrúð- urinnar.. Hefðu ræður þeirra beggja átt að vera prentaðar; þær eru þess fyllilega verðar. Að síðustu töluðu silfurbrúð- hjónin bæði, og fórst þeim það óvenjulega vel -p fólki verður oftast orðfátt við slík tækifæri, en þau höfðu J)æði þannig stjórn á hugsun og tungu, að allir dáðust að. — Eina setningu er Sveinn mælti, ætla eg að setja hér, mér þótti hún svo undur falleg: “Eins og allar bænir felast í Faðirvorinu, þann ig felast öll gæði í móðurást- inni.’’ Þetta er spakmæli, sem halda ætti á lofti. Vinsældir þeirra hjóna komu greinilega í ljós við þann fús- leika, sem allir sýndu í því að taka þátt í þessu gleðimóti. Vel hefði mátt taka sér í munn orð Ingersolls á mánu- dagskvöldið og segja: “Tíminn til þess að gleðjast er einmitt nú. Staðurinn til þes sað gleðj- ast á, er einmitt hér, og aðferð- in til þess að gleðjast, er ein- mitt sú, að gleðja aðra." Eg þori að fullyrða að allir veizlugestir áttu glaða stund í þetta skifti, og sú gleði stafaði áreiðanlega af því, að geta glatt vini, sem þess voru virði, að gleðja. Þess skal getið að silfur- brúðurinni var afhentur falleg- ur blómvöndur. Gerði það fjögra ára gömul dótturdóttir Ingi- bjargar Magnússon, systur silf- urbrúðarinnar; litla stúlkan heitir Valgerður, dóttir Þor- steins Sigurðssonar. Sig. Júl. Jóhannesson. landareign þessa frá forfeðrum sínum, hollenzkum að ætterni, hét James Roosevelt, fjórmenn- ingur við Teddy Roosevelt. — Móðir hins nýkosna forseta heitir Mrs. Sarah Delano Roose velt, og er enn á lífi, áttatíu og tveggja ára. Franklin D. Roosevelt er á- litinn að hafa einhvem hinn allra hreinasta stjómmála feril af núlifandi stjórnmálamönn- um hinna sameinuðu Banda- ríkja. Sem stúdent við Harvard ætlaði Roosevelt sér að ná í herforingjastöðu; en móðir hans kom honum til að lesa heldur lög, og gekk hann því búnu á Columbia háskólann. Og á því tímabili kvongaðist hann. 1910 var hann útnefndur og kosinn til efri málstofu hins sameinaða þings (senator) frá Dutchess County, N. Y. Eftir að hafa gegnt því embætti þrjú ár var hann gerður að æðsta hermálaskrifara. En á því tíma- bili var hann útnefndur sem varaforsetaefni 1920. Ríkisstjórakosningu vann Franklin D. Roosevelt 1928, og var endurkosinn 1930. Kona hans heitir Anne Elea- nor, og hefir vakið athygli á sér fyrir skólakenslu og rit- störf. Forsetahjón þessi eiga þrjá uppkomna sonu og eina dótt- ur, gifta Curtis Dall lögfræð- ingi. Og þau hjón eiga eina dóttur fimm ára og son þriggja ára. E. J. FJÆR OG NÆR. WEBB FYRIR Borgarstjóra Greiðið atkvæðí með Ralph H. Webb, er lætur sér hugað um að öllum stéttum sé sýud jafnrétti og sanngirni. Má segja í því sambandi: Oft er þörf, en nú er nauðsyn, að með limir standi saman. Þessir með- limir voru settir í embætti á síðasta fundi: FÆT — G. Sgurðsson ÆT — J. Th. Beck VT — L. Gillis FR — S. Gíslason G — S. Jakobsson R — S. Eydal AR — C. Gunnarsson K — H. Jónsson D — V. Magnússon AD — J. Sigurðsson" V — L. Thompson FRÁ ÍSLANDI UMSÖGN Tekin úr Los Angeles Examiner Hinn nýkosni forseti Banda- ríkjanna, Franklin D. Roose- velt, er fimtíu ára að aldri, fæddur 1882, í forfeðrahöll sinni við Hudson River, er tilheyrðu 5Ö0 ekrur af landi, og er höll þessi talin heimili hans enn í Friðrik Abrahamsson frá Leslie, Sask., sem verið hefir í bænum undanfarnar tvær vik- ur til lækninga, er nú orðinn heill heilsu, og fer heim til sín aftur í þessari viku. * * * Jón Kernested, lögreglumað- ur frá Winnipeg Beach, Man., var staddur í bænum á mánu- dag og þriðjudag í þessari viku. ¥ ¥ ¥ Karlakór Íslendinga í Winni- peg er að undirbúa skemtisam- komu að kvöldi þess 5. des- ember n.k. — Verður þar margt til skemtunar og eru íslend- ingar beðnir að muna eftir kvöldinu. Nánar auglýst síðar. ¥ ¥ * Messur í Vatnabygðum verða fluttar sem hér segir: Sunnudaginn 20. nóvember, kl. 11 f. h. í Elfros. Kl. 2 e. h. í Foam Lake. Kl. 7.30 e. h. í Leslie. G. P. Johnson frá prestaskól- anum í Saskatoon talar á öll- um stöðunum. Allir eru velkomnir. * ¥ ¥ Athygli. Þar sem á þessum vetri að Stórstúkan I. O. G. T. hér um slóðir hefir starfað í fimtíu ár, þá er ákveðið að mynda starf- sjóð í tilefni af þessu 50 ára afmæli, og verður því höfð hlutavelta og dans til arðs fyr- ir fyrirtækið, mánudaginn 5. desember 1932. Nánar auglýst síðar. ¥ ¥ ¥ Eftirfarandi stúkusystkini eru í vali fyrir fulltrúaT. O. G. T. fyrir komandi ár. Kosning fer fram á Skuldarfundi föstudags- kvöldið 2. desember 1932. J. Th. Beck Mrs. S. Backman G. M. Bjarnason S. Eydal Á. Eggertsson S. Gíslason E. Haralds. G. Jóhannsson Rósa Magnússon J. Ólafsson. H. Skaftfeld G. H. Hjaltalín ¥ ¥ ¥ Þar sem nýr ársfjórðungur fer í hönd, væri æskilegt að meðlimir stúkunnar Heklu sæki Blönduósskólinn. Ætlast er til að þar séu náms- meyjar flest 32. En sakir mik- illar aðsóknar að skólanum, hef ir verið ákveðið að þar yrðu 34 námsmeyjar í vetur. Nokkr- ar fleiri hafa sótt um inntöku í skólann, en fá ekki inngöngu fyr en næsta ár. ¥ ¥ ¥ f daufara lagi er nú á hinu forna biskupssetri Hólum í Hjaltadal. Þar var sett ur búnaðarskólinn á þriðjudag- inn var yfir 10 nemendum bún- aðarskólans, 6 í eldri deild og 4 í yngri deild. En fyrir skömmu var einn af kennurum skólans á ferð á Sauðárkróki. Þeir eru víst 5 alls. Þá vissi hann ekki til að neinn hefði sótt um inn- töku í unglingadeild skólans. ¥ ¥ ¥ Landlækni hefir boðist ferðastyrkur frá Heilbrigðismáladeild Þjóðbanda- lagsins til þess að ferðast í alt að 6 mánuði um þau lönd, er hann óskar, í því skyni að kynn ast heilbrigðismálefnum þeirra. Styrkurinn nemur öllum far- gjöldum, auk ríflegra dagpen- inga til að standast annan kostn að. Helzt er óskað að byrjað verði að nota styrkinn þegar á þessu ári, en ef það er ekki unt, þá einhverntíma á næsta ára. Ef landlæknir getur ekkl notað styrkinn sjálfur, er hon- um heimilt að senda mann í sinn stað. — Fyrverandi land- læknir hafði unnið að því að Island gæti orðið aðnjótandi slíkra ferðastyrkja er Heil- brigðismáladeild Þjóðbandalags- ins á yfir að ráða. Forstöðumað ,úr serum stofnunarinnar dönsku Thorvald Madsen, er einn af ráðunautum heilbrigðisdeildar- innar, og er styrkurinn veittur fyrir hans milligöngu. * * * Prestkosning. Þ. 9. þ. m. (okt.) fór fram prestkosning til Grundarþinga í Eyjafirði. í kjöri voru tveir kandidatar: séra Benjamín Kristjánsson og Gunnar Jó- hannesson. Talning atkvæða fór fram á skrifstofu biskups í gær. Höfðu 399 kjósendur af 600 neytt atkvæðisréttar sfns. Séra Benjamín Kristjánsson hlaut 229 atkvæði, en Gunnar Jóhannesson 165. Þrír seðlar voru auðir og tveir ógildir. — Kosningin var lögmæt. Kona nokkur átti mann, sem Bjarni hét. Hann var lítilfjör- lega banghagur. Eitt sinn heyrði hún menn ræða um, hvort hann mundi geta smíðað eitthvað, er þeir ákváðu, og ætluðu, að hann mundi ekki geta það. “Geta það’’, mælti konan, “hann hefir gert það, sem meira er, hann Bjarni minn, að skapa sjálfur börnin sín.” ¥ ¥ ¥ Kona nokkur í Bjarneyjum á Breiðafirði misti mann sinn í sjóinn, og er hún vissi, að svo hafði að borið, mælt hún: “Það var auðvitað, að feigð kallaði að honum í morgun, því skratt- inn minti hann á að taka þann eina nýja skinnstakkinn, er hann átti, og fara til fjandans með hann.’’ Blanda. uVölturnar,, á hinum Sjálfundnu Karlmannaúrum dag. Faðir hans, er einnig erfði f sig veðrið með fundarsókn. Sjálfundin úr með svissnesku gangverki. Það er erfitt áð hugsa sér laglegri, eða kærkomnari gjöf handa karlmanni en eitthvert þessara nýtízku úra. Og þau eru nýmóðins — frá hinum yztu umbúðum og inn að hinum fínustu hjólum í gangverkinu. Með 15-steina Sviss-gangverki — er hvílir á fíngerðustu stálkúlum svo að úlnliðs- hreyfingin vindur upp sjálft úrið, svo að það gengur í 30 kl.tíma hvar sem það er lagt. Með Chromium skifu. $30.00 Ef í gulum kassa. $32.50. I gullfangadeildinni, Aðalgólfi við Donald EATON C9, LIMITED

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.