Heimskringla - 07.12.1932, Síða 4

Heimskringla - 07.12.1932, Síða 4
4. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINKIPEG 7. DES. 1932 Hfeimskrin^la t (Stofnuð 18S6) ) Kemur út á hverjum miSvikudegi. • Eigendur: the viking press ltd. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86 537 » ____■ • ____ i ■— Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING. PRESS LTD. RáSsmadur . TH: PETURSSON 853 Sargent Ave., Winnipeg Manager THÉ VlKING 'PRESS LTD. 8Í3 Sargént Ave:, Wínnipeg • Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Vtanáskrift til ritstjórans: EDITOR HÉIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnlpeg. "líeimskfinglá” ís published bý and printed by The Viking Press Ltd. •853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. ., ■ • 'Telephone! 86 537 ’ WINNIPEG 7. DES. 1932 ALDARAFMÆLI BJÖ.RNSTJERNE BJÖRNSON. Þess hefir verið getið áður í frétta- grein*í ■Heitnskringlu,'að í þessum mán- uði væri aldarafmæli stórskáldsins Björn- stjerrie BjÖrnson. líann var fæddur 8. desember 1832 á prestssetri litlu í Austur Noregi, þar sem faðir hans var prestur. Fyrstu kynni íslenzkrar alþýðu af Björnstjeme Björnson sem skáldi, má eflaust. j.elja sveitasögu hans Sigrúnu á Sunnnh-yoli. ..En það var fyrsta saga skáldsips, fuil af æsku og unaði, eins og kunnugt- er, Eftir það .rekur hver smá- sagai) aðra og hvert kvæðið annað, sem gimsteina;;. . méga • heita, í hókmentum heimjins. -Og síðar koma svo leikritin og lengri ;p.pgumar, er.&vo mikinn siðferðis- þrótt, og^ svo vakandi réttlætismeðvitund bera með sér^-. að fár eða enginn hefir með ritum sínum, unnið. eins að því og Björns^tjeme, að efla og þroska það sem fagurj; býr. í mannssálinni. í því er hið miklg .þlutyerk h'ans falið, í fám orðum sagt, sem rithöfundar.. í grein eftir norska konu, frk. Nulle Finsen, sem um átta ára skeið átti heima á heiiriili Björnstjerné, óg birt er í ís- lenzkri'jiýðingu f síðasta- hefti Eimreið- arinnnr', er meðal ánnars, þannig komist að orði um skáldið Björnstjeme Björn- son:• • ’ “Bjprn’son þafði mikilvæga þýðingu fyrirJpjpð sína,.,á fleiri sviðum en skáld- skaparins’. Fegursta draum lífs síns lifði hann í ellinni, þar sem hann dvaldi á stórbýíi sjpu, Aulestad, og horfði út yfir fósturjÓrðina, þar sem fólkið bjó, sem hann hafði hyatt og brýnt, með föður- lands.ást sinni og ræðum ,þrungnum eld- móði, til þess að krefjast fulls og óskor- aðs frelsis og ná því. Þaðan sendi hann mælsku. þrungnar ritgerðir út til þjóðar- innar —r eins og hann væri lifandi saiA- vizka Noregs — eða hann fór að heiman eins og hann stóð, til þess að halda ræður á ræðw ofan, fyrirlestra um stjóramál, friðarmálin, trúarbrögðin, um öll þau viðfangpsefni, sem á dagskrá voru. Það skifti ekki svo miklu, hvort menn vom honum sammáia eða ekki. Það sem skifti máli, var hrifningin, krafturinn, karl- menskan, sem ljómaði af honum, þar sem hann stóð augliti til auglitis við hlust andi manngrúann .... röddin hans fagra, sem ýmist tók með svo undarlegri varkámi á orðunum, eða þrumaði, djúp og heillandi eins og orgeltónar, hreif alla. Hann var hinn ókrýndi konungur Nor- egs . . . .” Aldarafmælis Bjömsstjerne, verður í þessum mánuði, ekki aðeins minst í Nor- egi, heldur eflaust úm öll Norðurlönd og ef til vill- víðar. “HÖLTU ENDURNAR” KOMA SAMAN. Þegar Bandaríkja þingið kemur saman eftir forsetakosningarnar, kalla gámng- arnir það “þing höltu andanna”, ef stjóm in hefir-ekki náð endurkosningu. Eins og kunnugt er, heldur fráfarandi stjóra völd um í -fjóra mánuði eftir kosningar. Og á þeim.tíma er þing haidið og lög sam- in, eins og ekkert hafi í skorist. En þar sem þingið er þannig í höndum stjórnar, og ef til vill fjölda þingmanna, er beðið hefir ósigur í kosningunum, hefir því ver- ið gefið þetta nafn — í skopi auðvitað. Þing þessi þykja vanalega ekki afreka- stór. Þeim hefir í því efni verið líkt við söng deyjandi svariar. Stjómendur þeirra líta eflaust svo á, sem þeir hafi litla heimild til að vera þarna, þvert á móti vilja kjósenda, þó lögin skipi sVo fyrir. Hafist þingið eitthvað að, er nokkru máii skiftir, er heldur ekki takandi fyrir að stjórnendur þess fengju að heyra það. Eitt af þessum þingum stendur nú yfir í Bandaríkjunum. Kom það saman s. 1. mánudag. Mörg mál liggja fyrir, er skjótrar úrlausnar krefjast. Eru skuldamál Bretlands og Evrópu- þióðanna, eflaust hin mikilvægustu af þeim. En nú-er afstaða Hoovers kunn í þeim. Er hætt við, að á þessu þingi verði ekki breytt um stefnu. Að vísu horfa þau öðruvísi við en áður, þar sem Bretland hefir nú tjáð Bandaríkjastjórninni, að það sreti ekki orðið við kröfu hennar um ereiðslu á skuldunum. Mun alment litið svo á, sem Bretar eigi ekki þægilegt úr- kostar, er þeir fara fram á gjaldfrest eða uppgjöf skulda sinna. Sem stendur nemur skuld Evrópuþjóð- anna, eins og hún er skráð hjá fjármála- ráðherra Bandaríkjanna,- $11,229,968,706 (þ. e. rúmlega ellefu og einn fjórði biljón doilara). Af skuldum sínum hafa nú Bandaríkin innheimt $2,627,580,897 (eða rúmlega tvær og hálfa biljón). En af bessari upphæð hafa Bretar borgað rúm- lega heiminginn. Það verður því ekki sagt að það hafi skirst við að standa í skilum til þessa. En svo er einnig að líta á ástæður Bandaríkjastjórnarinnar. Hún hefir lán þessi tekið hjá þegnum sínum og á auð- vítað ekki gott rrteð að neita að standa f skilum við þá um þau, nema að lýsa sig gjaldþrota. En auðvitað kemur það ekki til máia. Hinn er sá kosturinn, að lánveitendur hennar gefi eftir skuldirnar. En hverjir em þessir lánveitendur? Geta það ekki verið bankar og félög, sem í vörzlum hafa haft almennings fé, er þann ig hefir átt að ávaxta? Það verður gam- aniaust fyrir Bandaríkjastjórnina að gera upp á milli sinna eigin þegna og lánþeg- anna í Evrópu, þó að hitt sé að vísu ekki neitt auðséð, hvernig og hvenær þessi j gífurlega skuld Evrópuþjóðanna, verður | greidd að fuilu. Þegar þess er gætt, að I stefna Rðosevelts, nýkjörins forseta, er j önnur í þessum skuldamálum en núver- andi stjórnar, er líklegt, að í þeim verði ekki neitt gert fyr en í marz, að Roose- velt tekur við löggjafarmálunum. Áfengislöggjöfin er annað málið, sem eflaust verður mikið rætt um á þessu þingi. Áhugi vissra manna að fá vínbann- ið afnumið, er ósegjanlega mikill. En að því er ekki eins auðhlaupið og látið var fyrst eftir kosningarnar. Þá var talið víst að ölsala yrði byrjuð um jól. Við nánari athugun er það nú orðið ljóst, að á jóla- pelann sinn verður ekki hægt að kaupa að lögum. Um breytingarnar á Volstead- lögunum til þess að koma á reglulegri ölsölu, kemur mönnum ekki saman. Og Borah, þingmaður öldungadeildar og bann vinur mikill, heidur því fram, að breyt- ingar á Volsteadlögunum sé ekki hægt að taka upp í þinginu. Telur hann Volstead- lögin í heild sinni þurfa að verða afnum- in með aln^ennings atkvæði, en breyting- ar á þeim séu ómögulegar. Breytingin, er gert hefir verið ráð fyrir, er í því fólgin að styrkieiki ölsins sé ákveðinn 4%, í stað þess að hann nú er 1%. Þá er og afstaða Hoovers. Hann hefir verið á móti ölsölunni, og er svo kunnur fyrir það, að bannmenn bera fult traust til hans í þeim efnum. Þó að hann yrði að skrifa undir frumvarp um breytingu á Volsteadiögunum, hefir hann látið þá skoðun nýlega í ijós, að hann mundi neita að skrifa undir hana sem lög, þó frumvarpið yrði samþykt í þinginu. Það er sagt að Hoover hafi í huga að sækja um forsetakosningu aftur 1936. Og þó fylking bannmanna sé nú talsvert riðluð, veit hann að hann græddi ekki á að bregðast þeim nú. Þriðja málið, sem hreyft mun verða á þessu þingi, áhrærir núverandi þingfyrir- komuiag. Hefir frumvarp áður verið bor- ið upp í þinginu um það, og staðfest af mörgum ríkjirm, að þessi þing “höltu andanna” séu lögð niður, en að þingið komi saman í byrjun janúarmánaðar og sé þá skipað hinum nýkosnu þingmönn- um, en stjórnin, sem ekki hefir náð kosn- ingu leyst af hólmi strax eftir kosning- ar. Með fylgi þingsins í þessu rnáli, er skoðað auðveldara að fá ríkin til þess að samþykkja það, því um þörf þessarar breytingar á grHiulvallarlögunum biand- ast fáum hugur. FÆÐUSKORTURINN í RÚSSLANDI. Síðastliðinn fimtudag birtist rítstjórn- argrein í blaðinu Free Press í Winnipeg, með ofanskráðri fyrirsögn. Er grein þessi birt hér í íslenzkri þýðingu, án þess að nokkuð sé aukið við hana eða úr henni felt: Nokkra síðustu mánuðina hafa fregn- ir verið að berast frá Rússlandi um vax- andi fæðuskort þar í landi. Fregnriti blaðsins New York Times birtir nú, að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar muni ekki hafa nægilegt að bíta og brenna á kom- andi vetri, og að viðurværið, sem við verði að búa, verði nálega eingöngu brauð kartöflur og kálmeti. Þessi fæðuskortur snertir að minsta kosti eitt hundrað milj- ónir manna. Hann nær bæði til bæjar- búa og sveitalýðsins, og ekki síður til hinna síðarnefndu. Með þetta alvarlega ástand fyrir augum, verður ekki hjá því komist, að minnast á iðnaðar-, hagfræðis- og stjórnmál Rússlands. Þessir erfiðu tímar eru prófsteinn á 5 ára áætlun Rússlands. Að ýmsu leyti má segja að áætlunin hafi fyllilega hepnast. Um 75% af henni komst í framkvæmd. Nýr námu- og verksmiðjuiðnaður hefir þotið upp víðsvegar um landið. En það sem ekki hefir farið í vöxt, er framleiðsla á fæðutegundum. Hún er nú tilfinnan- lega miklu minni en hún var fyrir fimm árum. Þegar talað er um fyrirkomulagið á Rússlandi, er ekki hægt að ganga fram hjá bændavöru framleiðslunni, því að hún var innifalin í áætlun þeirra, með því að jarðirnar voru gerðar að þjóðeign. í áætl- uninni var tekið fram, að einn þriðji allra bænda-jarðeigna, ætti að vera orðinn að þjóðeign árið 1933. Og sannleikurinn er sá, að þær eru nú helmingi fleiri en það og fjórir fimtu alls ræktaðs lands er þjóð- eign. En erfiðleikarnir liggja í þessu,. að bessi þjóðeignarhugmynd jarða hefir mis- hepnast, af því að bændur hafa ekki samið sig að henni. Þegar stjórnin tók rekstrinum, fóru bændur að hægja á framleiðslunni. Þeir fækkuðu búpeningi og hættu að framleiða meira en nægði líðandi stund. Séreignar viðskifti og iðn- rekstur dóu drotni sínum á sömu stundu og áður en stjórn hins nýja samvinnu- fyrirkomulags var komin svo á laggim- ar, að geta tekið við af því. Áður en langt um leið fækkaði búpeningi, og nú er helmingi færra af honum, en fyrir fimm árum síðan. Áætluninni fylgdi það, að 1,800,000 dráttarvélar (Tractors) hafa fiuzt inn í landið, en 10 miljón hestum hefir verið slátrað. Blöð stjórnarinnar við- urkenna, að tala búpenings sé ekki full 60% af því, sem hún var fyrir 5 árum, að mjólkurkýr séu helmingi færri, og að afföll eða vanhöld á ungviði hafi verið afar mikil; einnig að fjós og skepnufóður enn sem komið er á þessu hausti, nægi ekki þörfinni nema að hálfu leyti. Bændur hafa í miljónataii orðið að yf- irgefa jarðirnar, vegna framleiðsluskorts- ins, og fiutt til bæjanna og iðnaðarút- vegsins nýja (construction camps), sem stjórnarblaðið “Pravda” bendir ávalt á, sem dæmi af velgengni Rússlands, en sem auðsjáanlega hefir þroskast á kostnað frumiðnaðarins. Samfara sögum um skortinn á mat- vælum í búðum, ganga nú sögur um mat- vælaþjófnað svo miklar, að stjórnarblöð- in eru farin að benda á hann, sem þjóð- armein og hættu. Árieðanlegir fregnritarar segja ekki hallæri vofa yfir Rússlandi. En skortinn á matvöru telja þeir eigi að síður alvar- legan. Ef menn ekki tapa trausti á stefnu og starfi stjórnarinnar, er ekki ó- mögulegt að þjóðin standist þetta áfali, því að henni er ekki nýtt að þurfa að lifa við sult og seyru. Hitt virðist þó auðsætt, að Soviet fyrirkomulagið verð- ur að stefna að öðru en því, sem það hefir hingað til gert, ef það á að halda veíli. Það verður að leggja að minsta kosti eins mikia rækt við iandbúnaðinn og verksmiðjuiðnaðinn. Það er ekkert talað nú í Moskva um nýja og betri fimm ára áætlun fyrir komandi tíma. Nú er aðeins talað um að kippa því í lag, sem úr hömlu hefir hrokkið. En af því verk- efni er aimenningur ekki eins hrifinn og hann hefir verið af sumum verkefnum stjórnarinnar áður. Það virðist skifta mestu máli fyrir framtíð fyrirkomulags- ins, að þjóðin tapi ekki því trausti á því, sem hún hefir haft. En nokkur vafi mun vera á, að því sé að heilsa þessa stund- ina, því í sjálfum verksmiðjuiðnaðinum, þar sem fyrirkomulagið hefir reynst bezt, er verið að breyta því, og meta vinnuna og launa eftir verkhæfni einstaklingsins, í stað þess að vinnulaun allra séu jöfn, eins og áður. Ein- staklings eðiið og einstak- lingshyggjan hefir þarna gert vart við sig. Og hjá bænda- eða sveitalýðnum er hún vanalega ríkari, en hjá öðrum stéttum mannfélagsins. Það er skerið, sem Soviet-skútan hefir rekist á. Takist ekki að stýra henni hjá því betur en gert hefir ver- ið, er hætt við að hún geti iaskast. BRÉF TIL HEIMSKRINGLU. Seattle 26. nóv. 1932. Herra ritstjóri Hkr.! Eg var beðin að segja frá silfurbrúðkaupi, — en get ekki stilt mig um að nefna fyrst, hvað sólin skín glatt og fagurt f dag; og að eg er nýbúin að sækja út stóran vönd af haust- blómum. Það hefir að vísu rignt og blásið við og við, en aðeins fáa morgna sést héla á jörð. Þann 21. okt. s. 1. komu rúmt hundrað manns saman, að heim ili Mr. og Mrs. J. J. Middal, til þess að samfagna þeim á 25 ára hjónabandsafmæli þeirra. — Lestrarfélagið Vestri, ásamt ná- grönnum og vinum, stóð fyrir framkvæmdum. Af fjarkomnum gestum tók eg eftir nokkrum skyldmennum brúðhjónanna frá Point Roberts, Wash. Alt fór fram eftir viðteknum reglum við slík tækifæri. Séra A. E. Kristjánsson forseti fé- iagsins Vestri, stýrði samsæt- inu með lipurð og fyndni. Hann flutti inngangserindi og lét syngja brúðkaupssálm. Ágætt brúðhjónaminni flutti séra K. Sæmundsson, en séra K. K. Ól- afsson og Hallur Magnússon i fyndnar tækifærisræður. Eitt af hirðskáldum Vestra, Jón Magnússon, flutti brúðkaups- kvæði, sem fylgir bréfi þessu og talar fyrir sig sjálft. — Þrjár konur ávörpuðu brúðurina — Mrs. .1. Magnússon, Mrs. S. Thompson og undirrituð. Á milli voru sungnir íslenzk- ir söngvar undir stjórn Gunn- ars Matthíassonar, en Mrs. Thora Hines lék á hljóðfærið. •—Síðan voru gjafir afhentar til minja — og brúðhjónin bæði mæltu vinhlýjum þakklætisorð- um til gestanna. Ekki parí að taka það fram, að rausnarlega stóðu konur fyr- ir veitingum þetta kvöld. — Ó- þvinguð glaðværð ríkti í húsum þó regn heyrðist falia á þak og þrep. Jónas Jónsson Middal, er ætt- aður úr Miðdölum í Dalasýslu á íslandi, og Mildríður Sigfús- dóttir Goodman, ættuð úr Húna vatnssýslu, voru gift í Victoria, B. C. í Canada, 21. okt. 1907, en hafa búið hér í Seattle síð- an. — Af 9 börnum, sem þeim hafa fæðst, lifa fjögur, og prýða hið myndarlega heimili, sem kunnugt er fyrir góðgerðasemi og glaðværðarblæ. Jónas Mid- dal hefir fleiri ár verið ritari “Vestra" — og hinn dyggasti embættismaður í sinni röð. Auk þess er hann vinsæll mjög fyrir gamankvæði á fundum, því að honum er hagmælskan eðlileg- ur arfur frá gamla Fróni. Gesta hópurinn samfagnaði hjóriunum af einlægum hug, og óskar þeim framtíðar heilla. Gamlir vinir Mrs. Mekkin Sveinsson Perkins, hafa beðið mig að þakka henni og manni hennar komu þeirra hingað frá Washington D. C. Foreldrar hennar (bæði , dáin) Gunnar Sveinsson og Kristín Finnsdótt- ir, voru mestu greindarhjón og mörgum kunn, bæði hér vestra og í Manitoba. Mr. og Mrs. Per- kins eiga heima í höfuðborg iandsins, og hafa í fleiri ár starfað á stjómarskrifstofu þar — því að þau eru bæði með af- brlgðum lærð í nútíðar tungu- málum. — Áður en þau hurfu heim, hafði Mrs. Perkins kvöld- boð fyrir aila elztu vini sína og foreldra sinna, að heimili systur sinnar, Mrs. L. Hansen. t fullan aldarfjórðung hafa Dodd’» nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bakverk, gigt og blöðm sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang- að. Stundin leið altof fljótt, því margs var að minnast frá lið- inni tíð — og margt nýtt að heyra — ekki sízt um það, sem mest vakti athygli Mrs. Per- kins á íslandi 1930. Og ekki var síður ánægjulegt að finna, hve Mr. Perkins fylgdist vel með máli og málefnl, þó hann væri ekki með í íslandsferðinni. Hlýjar kveðjur fylgdu þess- um merku hjónum á braut — og þó meginlandið aðskilji, mun þeirra oft minst, og ætíð með virðingu og alúðarhug. Síðsurriars heimsótti landa sína hér á ströndinni, söngvar- inn Siguröur Skagfieid. Hann söng hér í Icelandic Liberal Church að kvöldi hins 30. ág. — Þó áheyrendahópurinri væri fámennari en verið hefði í betra ári, var söngnum vel fagnað, I enda var söngskráin fjölbreytt og hrífandi, — og hin mikilúð- lega, en um leið mjúka og hreimfagra rödd sörigvarans, mun okkurTengi minnisstæð. Vinsamlegast, Jákobína Johnson. * * * Til Mr. og Mrs. J. J. MIDDAL f silfurbrúðkaupi þeirra, 21. okt. 1932. Hann Columbus sókndjarfur sæ- garpur var og sigldi af mikilli list. En dómendur sögunnar dæmt hafa þar, að Dalamenn komu hér fyrst. Mikið er enn um þá Miðdala- bygð, af manndáð og frumherja þrá, og sterkustu ást sem tálleysi er trygð, svo tímirin ei vinnur þar á. Úr Miðdölum Jónas í framaleit fór, og ferðaðist víða um lönd. Hann kom loksins fram, þar sem Kyrrahafssjór og kvöidroðinn biðu við strönd. Meira að segja, hún Mildríður beið, og margþráðu kossana hlaut. Svo hafa þau samferða lagt sfna leið á lífsbraut og sigrað í þraut. Með samkvæmi viljum við vitna hér rétt og virðingar unna þeim glöð. — Fyrst tízkunnar afl hefir tímamót sett við tuttugu og fimm ár í röð. — Það starf sem þau vinna er víð- tækt og djarft, af vinsældum eru þau rík. Hve rhjón eiga gott sem að gera eitthvað þarft, og geta þá verið svo lík. En landinn skal muna í lengd og í bráð, að Iífið á samhygðar blæ, og kostur er bæði á kærleik og náð — menn kasta því ekki á glæ. Því ekki er hópurinn héma um of, að heiðra ykkar veglega starf. Nú hljótið þið maklega mann- félags lof og Miðdalafrægðina í arf. Jón Magntreson.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.