Heimskringla - 07.12.1932, Page 5
WINNIPEG 7. DES. 1932
5. SÍÐA
OFVIÐRI í FYRRINÓTT
Veðrið (vikuna 6.—12. nóvem
ber) hefir verið umhleypinga-
samt og rysjótt. Fyrstu tvo
dagana var V-átt og gerði dálít-
inn snjó nyrðra. Síðan hefir
hver lægðin af annari farið
norðureftir Grænlandshafi fyrir
vestan ísland og valdið SA og
SV-hvassviðrum á víxl. Hafa
fylgt þeim hlýindi all-mikil og
stór-rigningar sunnan lands og
vestan. Norðaustan lands hefir
hins vegar mjög lítil úrkoma
orðið, en hiti oftast 8—12 stig.
Mest kvað að lægð þeirri, sem
fór hér fram hjá aðfaranótt
laugardagsins. Var hún komin
langt sunnan úr hafi, frá Azor-
eyjum, og hreyfðist heint norð-
ur eftir, og var í gærkvöldi
komin norður með Vestfjörðum.
í Rvík var veðurhæðin frá 9—
12 vindstig kl. 11/z á föstu-
dagskvöld til kl. 5 um nóttina.
Mestur varð vindhraðinn rúmir
30 m. á sekúndu. Á laugar-
dagsmorguninn gekk á með
þrumum og eldingum á tímahili.
Loftþrýsting var mjög mikil um
Bretlandseyjar og því rakin S-
átt og hlýindi um austanvert
Atlantshafið, alt norður fyrir ís-
land. —
Slys á hafskipi.
í þessu ofviðri var norska
flutningaskipið “Ingerto’’ á leið
til Reykjavíkur. Var það með
kolafarm frá Englandi til “H.f.
Kol og Salt”. Þegar það var
komið svo sem miðja vega
milli Vestmannaeyja og Reykja-
ness, um 35 sjómílur, fékk skip-
ið áfall. Kom á það brotsjór
og braut af því skipstjórnarpall
og skolaði honum fyrir borð á-
samt stýri áttavita og fjórum
mönnum sem í brúnni voru.
Mennirnir drukknuðu gllir. Var
það skipstjóri, stýrimaður og
tveir jiásetar.
Loftskeytatæki skipsins voru
ekki í brúnni og gat það sent út
neyðarmerki og bárust þau Um
miðja nótt til Slysavarnafélags
Islands. Var skipið þá í nauð-
um statt, hrakti fyrir stjórsjó
og ofviðri. Skipverjum þeim,
sem eftir voru lifandi í skipinu,
tókst þó að koma í lag stýris-
-'“búnaði, sem er aftur í skut.
Vélin var í lagi, en skipið, sem
er um 4,000 smálestir, fullhlað-
ið af kolum og afar þungt í sjó.
gat ekki annað en reynt að
verjast áföllum. Um kl. 2/z í
gærdag var það statt um 20
sjómílur suðastur-af Reykjanesi,
eða út af Selvog.
Þegar, er neyðarmerki bárust
frá því í fyrrinótt til Slysvarna^
félags íslands, reyndi Jón Berg-
sveinsson að fá danska skipið
“Dronning Alexandrine’’ sem
hér lá, að fara út til björgunar.
En svo var veðrið þá vont að
talin voru öll tormerki á því að
“Dronning Alexandrine” gæti
komist slysalaust út úr höfn-
inni, og fór því hvergi.
Um hádegi í gær var enskur
togari kominn “Ingerto’’ til að-
stoðar og rétt á eftir var von á
togaranum “Venus" þangað.
Ennfremur bar þar að togarann
“Max Pemberton’’ og varðskip-
ið ‘Óðinn", sem mun um kvöld-
ið hafa verið hér í flóanum, en
flýtti sér þegar suðureftir til að-
stoðar. “Dettifoss’’ fór frá
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld
á leið hingað. Hafði hann sam-
band við loftskeytastöðina, en
alt í einu tók fyrir það og heyrð
ist ekkert til skipsins langa
lengi. Mun loftskeytastöð þess
hafa bilað, en margir voru orðn-
ir hræddir um, að honum hefði
hlekst á. Svo var þó eigi, sem
betur fór, og un hádegi í gær
kom skeyti frá skipinu. Var það
þá statt út af Selvogi og hafði
ekkert orðið að hjá því. Mun
^ð hafa ætlað sér að vera
“Ingerto” til aðstoðar.
Símabilanir.
Miklar símabilanir urðu í of-
viðri þessu, bæði á Suðurlandi
og Vesturlandi.
I gærmorgun náði símasam-
band frá Reykjavík ekki lengra
H E ) MSKRLNGLA
FRÁ ÍSlANDI
austur á bóginn en að Seljalandi
undir Eyjafjöllum. Er óvíst
hvað símabilanir eru miklar þar
fyrir austan, en þegar voru
menn gerðir út af örkinni til
þess að gera við þær.
í Mosfellssveit brotnuðu sjö
símastaurar skamt frá Korpúlfs
stöðum, og 5 símasturar brotn-
uðu hjá Hamri í Borgarfirði
(skamt fyrir ofan Borgarnes).
Sambandslaust var við Stykkis-
hólm, en við Akureyri var sam-
band á einni línu, og dugði það
í gærdag.
Margar smærri bilanir urðu á
landsímanum.
Loftskeytasstöðin bilar.
Ofviðrið sleit niður loftnet
loftskeytastöðvarinnar á Melun-
um. Tókst í gær að gera við
bað til bráðabirgða.
Sæsímaslitin.
Fyrir nokkrum dögum slitn-
aði sæsíminn milli Færeyja og
íslands. Viðgerðarskip er kom-
ið á Seyðisfjörð og var búist
við að sæsíminn kæmist í lag í
gær. En svo varð ekki, því að
kioið ligguv veðurtept í Seyðis-
firði.
Síðan sæsímaslitin urðu, hafa
■íkeyti héðan verið send loftleið-
ina. Hefir útvarpsstöðin komið
þeim til Thorshavn í Færeyjum.
”>g hefir stöðin þar sent þau
lengra áleiðis.
Bátur hverfur
Engin slys urðu hér í höfn-
inni í fyrrinótt, en vélbáturinn
“Vega’’, sem lá inni á Klepps-
vík, hvarf. Bátur þessi var 25
smál. og mun hafa verið eign
Útvegsbankans. Enginn maður
var þar um borð, og er haldið að
báturinn hafi sokkið.
Togara hrekur.
Togarann Kára Sölmundar-
son, sem lá mannlaus fyrir fest-
um inni á Eiðisvík hrakti norS-
ur sundið mílli Viðeyjar og
Geldinganess, þangað til hann
var kominn á móts við hina svo
kölluðu “plíubryggju” í Viðey,
og staðnæmdist þar í miðju
sundinu. í gærkvö’di var hafn-
arbátur Reykjavíkur sendur
bangað inn eftir til þess að
íæra skipið í lægi aftur.
Togarann “Ver’’, sem lá und-
an Kleppi, hrakti þaðan norður
sundið og alt upp undir Kríu-
sand í Viðey. Þar staðnæmdist
hann og mun vera alveg ó-
skemdur.
Mörg fleiri skip, sem lágu
inni í sundum, hrakti talsvert
en ekki varð neitt slys að.
■ wr r'virywrr wy ypyip
Flóðbylgja.
Frá Grindavík var símað í
gær að aldrei í manna minnum
hefði verið þar eins mikið brim
eins og þá um nóttina. Gekk
flóð bylgja á land og sópaðist
lengst upp á túnin í miðju þorp-
inu.
Hjá Viðey var afskaplegt haf-
rót. Gekk sjórinn þar upp á há-
ey, en olli þó ekki neinum
skemdum. En veðrið braut þar
gersamlega niður fiskiskúr, sem
stóð niður við ströndina, og var
ekkert eftir af honum annað en
sundurmalin timburhrúga.
“Ingerto” á leið til Reyjavíkur.
Um klukkan 5 í gærkvöldi
barst hingað skeyti frá “Inger-
to’’. Var skipið þá statt um 5
sjómílur undan Reykjanesi á
leið hingað.
Við áfallið, sem skipið fekk,
hafði það mist alla áttavita sína,
og stýrið í sk«it var eitthvað í
ólagi fram eftir deginum. Vél
skipsins var í lagi, og þegar
tókst að koma stýrinu í lag, var
lagt á stað til Reykjavíkur.
Þurfti skipið ekki á því að halda
að annað skip tæki það í eftir-
drag, en fekk “Max Pemberton”
til að sigla á undan sér til
Reykjavíkur, og stýrði í kjölfar
hans og sigldi eftir Ijósum hans.
Klukkan 8 í gærkvöldi voru
skipin framundan Sandgerði og
var búíst við því að þau myndi
koma hinsað laust eftir mið-
nætti. — Mbl.
Frh. frá 1. bls.
ekki annað fyrir þá að gera en
að hafa sig í burtu.
Fóru nokkrir þeirra út um
austurdyr hússins. Var þeirra á
meðal Jakob Möller. Er hann
kbm út á götuna gerði hópur
manna aðsúg að honum, elti
hann með ópum og óhljóðum og
reyndi að berja hann niður. —
Féll hann snöggvast í götuna,
en reis fljótt við aftur, enda
kom honum brátt liðsinni. —
Hruflaðist han nlítið eitt á and-
litinu, en sakaði annars ekki.
En ólátalýðurinn, sem inni var,
sá að nokkrir bæjarfulltrúarnir
voru komnir út á gðtuna. Þustu
bá ýmsir úr þeirra hóp út á
götuna, en meiri hluti þeirra
varð þó eftir inni.
Nokkru 'síðar, er Maggi Magn
ús bæiarfulltrúi ætlaði að ganga
frá húsinu, gerðu kommúnist-
ar þröng um hann og hröktu
hann að húsinu aftur. Urðu lög-
reglumenn að vernda hann og
komst hann inn um norður-
dyrnar. Fékk hann síðan það
verkefni að annast um tvo lög-
regluþjóna, er fengið höfðu á-
verka, og voru þar. uppi á lofti
— síðar komst hann óhindrað-
ur leiðar sinnar.
En slagurinn hélt áfram í
fordyri hússins, milli lögreglunn
ar og. lýðsins, og eins inni í
salnum. Fengu óróaseggirnir
barefli allmikil úr borðum og
stólum, er þeir brytjuðu njður
eftir því sem þeim þótti henta
Lét nú lögreglustjóri svp um
mælt við lögregluliðið,. að ryðja
skyldi öllu fólki út úr húsinu.
Tók það nokkra stund, en gekk
greiðlegar en menn hefðu getað
búist við. Er lögreglan hafðj.
rutt húsið, rak hún og aít árás-
arliðið af lóð hússins.
Nokkrir af lögreglumönnum
hefðu fengið áverka, er hér
var komið, m- a., Margrímur
Gíslason. Hann ,-fékk steinkast
í höfuðið er hann var í fordyri
hússins. Svo og Björn Vigfús-
son. Hann fékk alvarlegt högg
í kviðinn.
Er lögreglan hafði rutt út úr
húsinu og af lóðinni, kom lög-
reglustjóri að innan og gekk
út að mannþyrpingunni. Fór
hann fram á það við þá, sem
þarna stóðu í hnapp, að þeir
færu ,á brott. En þeim orðum
hans var ekki *sint. Sagði hann
þá við lögreglumennina að nú
færi hann í gegnum mannþyrp-
inguna, og ætlaðist hann til
þess, að þeir fygdu honum.
En við það að lögreglumenn-
fóru frá húsinu, opnaðist of-
beldismönnunum leið til þess
að ráðast að lögreglunni aftan
frá og gerðu þeir það þegar í
stað.
Og þá hófst hinn alvarlegasti
bardagi.
Tókst árásarliðinu að um-
kringja lögreglumennina hvern
af öðrum og koma aftan að
þeim. — Var liðið, sem þeir áttu
í höggi við, með lengri barefli
og þyngri, en hinar léttu kylfur
lögreglunnar. Fengu nú margir
lögreglumenn áverka mismun-
andi mikla. Gat blaðið ekki í
gærkvöldi fengið fyllilegt yfir-
lit yfir meiðsli þeirra og líðan.
Um áverka þessara lögreglu-
manna hefir blaðið frétt:
Magnús Eggertsson var bar-
inn niður, svo að hann var bor-
inn meðvitundarlaus til Ólafs
Þorsteinssonar á Skólabrú. —
Hann hafði fengið sár á höfuð-
ið.
Sömuleiðis Sigtryggur Eiríks
son. Hann var í gærkvöldi tal-
inn allmikið veikur.
Þeir Geir Sigurðsson og Matt-
hías Guðmundsson voru hand-
leggsbrotnir.
Matthías kom við þriðja mann
til hjálpar Magnúsi Hjaltested,
þar sem nokkrir af óróaseggj-
unum höfðu umkringt hann,
barið hann niður í götuna og
spörkuðu síðan í hann þar sem
hann lá. í þeirri viðureign hand-
Vargsbrotnað? Matthías.
Bjöm Vigfússon, er fékk
högg í kviðinn, sem þjáði hann
mikið er blaðið vissi síðast.
Um fleiri meiðsl og áverka-á
lögreglumönnum hafði blaðið
ekki fétt í gærkvöldi, nema að
ýmsir aðrir hefðu fengið skrám
ur og hnjask.
Eitthvað um tólf af upphlaps
seggjum leituðu læknis aðgerð-
ar hjá Ólafi Þorsteinssyni lækni.
En enginn þeirra hafði meiðst
alvarlega, svo vitað sé. Um aðra
er blaðinu ekki kunnugt.
Mbl.
Á HLUTAVELTU
Eftir Böðvar frá Hnífsdal.
1.
Illutavelta! Eitt af þessum
tiltölulega nýju orðum í ís-
lenskri tungu. Fornmenn þektu
ekki aðrar hlutaveltur en það,
þegar þeir veltu hlutunum um
koll, er þeir ruku saman í illu,
sem komið gat fyrir. Nú er
orðið hlutavelta algengt í mál-
inu, svo algengt, að hvert ein-
asta mannsbarn veit hvað það
þýðir, alt frá smákrakkanum.
sem sleikir spýtubrjóstrykurinn
sinn, kaupmönnunum til gagns
og gleði, og til örvasa gamal-
mennis, sem hlustar á messurn-
ar gegnum útvarpstækið sitt og
skilur ekkert í blessuðum prest-
inum, þegar truflanirnar ætla
alt vitlaust að gera.
Já, víst er um það, ,að allir
vita hvað orðið þýðir, en þar
með er ekki sagt, að allir skil-
greini það á sama hátt.
Ef einhver spyrði mig til
dæmis: Hvað er hlutavelta?, þá
mundi eg svara og segja: Hluta-
velta er það, þegar hlutirnir
velta undan, á meðan núllin
flækjast fyrir fótunum á manni.
Enginn maður skyldi fara á
hlutaveltu til að sækjast eftir
hlutum, það er að segja dauð-
um hlutum, en allir menn
skyldu þó fara á hlutaveltu,
þegar hún býðst, einkum þeir,
Sem annað hvort eiga gamlar
konur eða engar, því að hver
veit nema þeir lendi í því sama
og eg.-------
2.
Einn mo.rgun, þegar eg vakn-
aði í rúmi mínu, var eg lifandi.
— Það er ekki gerandi grín að
sví. Eg hefði alveg eins getað
verið dauður. Og nú hefi eg
þann sið að lesa altaf eitthvað
fallegt, fyrst þegar eg vakna á
morgnana. Þar af leiðir, að eg
náði í gleraugun og leit yfir
“Morgunblaðið’’. Þar sá eg aug-
lýsingu um hlutaveltu.
Svo fór eg nú á fætur eins og
lög gera ráð fyrir, og eftir því
sem leið á daginn varð eg á-
kveðnari í því, að fara á þessa
hlutaveltu. Hún var nefnilega
haldin til styrktar góðu málefni.
''Hvenær eru hlutaveltur haldn-
ar til styrktar öðru en góðum
málefnum?)---------Nú, og ef eg
lenti á þessum stóru dráttum.
Þarna voru peningar, haframjöl,
kjötskrokkar — af kindum, og
fleira af góðum gripum, sem
hverjum manni er nauðsynleg-
ast í kreppunni.
Nokkru eftir að hlutaveltan
hófst, labbaði eg af stað og
gekk meðfram Tjörninni. Eg sá
fólk, sem var að koma út úr
Iðnó, og eg sá nokkra smá-
drengi, sem gerðu heiðarlegar
en árangurslausar tilraunir til
þess, að láta bát einn lítinn sigla
í logninu. Að því er frá er sagt
í gömlum sögum og rímum, þá
gátu menn fengið byr hvert sem
þeir vildu, en til þess þurftu þeir
að kunna galdra. Nú eru garldr-
arnir gleymdir, að minsta kosti
í þeirri mynd, og eg er hrædd-
ur um að hið eina, sem þessir
smádrengir unnu fyrir erfiðið,
hafi verið það, að blotna í fæt-
urna.
Jæja, nú hélt eg áfram, uns
eg kom að K. R. húsinu, því að
þar átti hlutaveltan að fara
fram. “íþróttahús", stóð með
stórum, fagurlitum stöfum á
framhlið hússins. — Jú, jú,
hugsaði ég, — enginn vafi á
því, að það er meiri en lítil í-
þrótt að fara á hlutaveltu og
draga eitthvað annað en núll.
Svo hélt eg áfram þangað,
sem aðgöngumiðai* voru seldir,
keypti mér einn og fór inn í sal-
inn.
3.
“....leiddi hann með sér upp
á ofurhátt fjall, og sýndi hon-
um öll ríki veraldarinnar og
þeirra dýrð.’’ Þessi setning flaug
mér fyrst í hug, þegar eg kom
inn og rendi augunum í kring-
um mig.
Borð voru meðfram þvergafli
salsins og báðum langhliðum. —
Voru þau hlaðin af hverskon-
ar munum. Þar að auki voru
inir og aðrir munir hangandi
upp um öll þil. Yfirleitt var alt
til sýnis nema núllin, en þau
fékk eg að sjá, þegar eg nú dró
tvo miða, til þess að styrkja
öetta góða málefni.
Eg hélt áfram að draga og á
endanum náði eg í miða, sem
einhverjir tölustafir voru á. Eft-
ir nokkra leit fanst hinn góði
gripur, sem hamingjan hafði
fyrirhugað mér. Það voru nokk-
ur póstkort af Zeppelin greifa,
sem sýndu hvernig hann átti að
fljúga á Alþingishátíðinni, en
ekki hvernig liann flaug.
Einhver framúrskarandi lip-
ur afgreiðslustúlka rétti mér
þessar fögru myndir, og af svíþ
henrar varð ekki annað ráðið
en að eg fengi þarna miljóna-
vert listaverk eftir Rembrandt.
Svona á afgreiðslufólk að vera.
Og úr því mér datt afgreiðslu
fólk í hug, þá er bezt að segja
dálítið frá því. Má þá fyrst taka
það fram, að á bak við alt
draslið, sem á borðunum var,
sátu eða stóðu yndislegar ung-
meyjar, sem brostu eins og
þeim væri borgað fyrir það, þeg
ar einhver kom með tölusettan
miða.' Á svipstundu fundu þæy
svo hlutinn og réttu eigandan-
um, og því ómerkilegri sem
hluturinn var, þeim mun meiri
töfra knúðu þær fram í brosi
sínu og látbragði. Slík af-
greiðsla er góðra gjalda verð,
því þegar menn horfa á stúlk-
urnar, taka þeir ekki eins eftir
ruslinu, sem að þeim er rétt.
En afgreiðslustúlkur eru líka
menn, og það er þreytandi að
standa svona til lengdar og lifa
af brosum einum. Þetta höfðu
stjórnendur hlutalveltunnar séð,
og þess vegna sett nokkuð af
ungum mönnum þeim til að-
stoðar innan við borðin. Voru
tvær flugur slegnar í einu höggi
— því að sennilega hafa af-
greiðslusveinarnir haft sams-
konar áhrif á kvenkynið, sem
að borðunum kom með miða
sína. Annað veifið lék hljóm-
sveitin danslög, og einu sinni
sá eg afgreiðslumey og af-
greiðslusvein skjótast út í horn
til að fá sér innilegan snúning.
Á gólfinu kringum mig hring-
snerist fólkið með dýrgripi sína
í höndunum.
“Manni! Viltu kaupa skóhlíf-
ar, góði?” Eg leit við og sá
ungan Reykvíking, sem stóð
fyrir framan mig og hélt á
kvenskóhlífum í hendinni. —
“Hvað ætti eg að gera við þær?
anzaði eg. — “Jú, ef þér viljið
skifta.’’ og eg rétti honum eitt
hefti af “íslenzku fornbréfa-
safni", sem eg hafði dregið. —
“Hvað er þetta?’’ sagði hann.
“Ætli það sé góð sögubók?” —
“Vafalaust,’’ svaraði eg, því að
bókin mun að flestra dómi góð
og söguleg. Maðurinn leit nú á
skóhlffarnar og bókina á víxl.
Svo hristi hann sitt gáfaða
böfuð og gekk í burtu. Hann
hefir sennilega áætlað, sem rétt
var, að hægra mundi að fá eitt-
hvað út á skóhlífarnar á mark-
aðnum, heldur en bókina.
Nú hafði eg skemt mér um
stund við að horfa á afgreiðslu-
fólkið og munina. Mér fanst eg
vera skyldugur til þess að draga
miða í viðbót — og gerði það.
— Hnossið, sem eg hlaut var
handónýt reiðhjóladæla. Til
allrar hamingju kom eg auga á
nokkra drengi, sem eg þekti, og
einn þeirra gerði mér þann
greiða að þiggja dæluna »ð
gjöf.
------Altaf fjölgaði fólkinu á
núllaveltinu, og altaf varð hóp-
urinn mislitari og mislitari. •—
Tveir eða þrír aldraðir menn
með alskegg rásuðu þar gegn-
um fylkingar, eins og víkingar
að strandhöggi. Einn þeirra sá
eg taka upp fépyngju sína,
vinda utan gf henni >> gúmmí-
teygjuna taka upp pening og
kaupa tvo miða. Hann var svo
heppinn, að það var númer á
öðrum miðanum. Eg sá hvar
hann sneri að borðunum í leit
að vinningnum. Jú, liann fékk
grammófónplötu, sem líklega
hefir ekki verið leikin í útvarp-
ið áður. Verra gat það verið. —
Menn á ölluna aldri hópuðust
saman umhverfis kassana til
að draga, menn með yfirvarar-
skegg og skegglausir, menn
Frh. á 8 bls.
MISS ETHEL CHAPMAN
gerir þessa óviðjafnanlegu
LUXOR CAKE
með
MAGIC
BAKING
POWDER
“Háðlegging mín til ailra hús-
mæðra, bæði þeirra, sem vanar eru
og óvanar hússtörfum, er þessi: —
Notið Magic Baking Powder. Þá er-
uð þér ekki í neinni óvissu um bök-
unina,” segir Miss Ethel Chapman,
ritstýra heimilisdeildar blaðsins On-
tario Farmers.
Þessi ummæli Miss Chapman eru
eftirtektarverð, ekki sízt þegar þess
er gætt, að ráðleggingum hennar er
fylgt af flestum betri hUsmæðrum.
Aðrir alkunnir sérfræðingar í þvl
er að tilbúningi hollrar og góðKar
fæðu lýtur, eru Miss Chapman sam-
mála um gæði Magic. Flestir þeirra
— ásamt meirihluta húsmæðra —
nota eingöngu Magic. Engin furða
þó meira sé selt af Magic einu, en
öllum öðrum tegundum af lyftidufti.
Miss Chapman’s formúla
fyrir LUXOR CAKE
1 bolli rasp. sykur
1 teskeið vanilla
% bolli af eggjarauðu
J/2 bolli af volgu vatni.
% teskeið Magic Soda
1% bolli pastry-mjöl (eða 3 spæn
um minna af brauðmjöli)
2 teskeiðar Magic Baking Powð-
er
% teskeið salt.
Sigtið sykurinn. Mælið 2 mat-
skeiðar og hellið yfir vanillalögin
og setjið til síðu. Bætið svo við
vatni, sóda og eg^jarauðu. Sláið
með eggjaþeytara þar til froðar.
Bætið smám saman sykri í og slá
ið vel. Bætiö kryddsykri við og
sláið. Sigtið svo saman mjöl^ iyfti-
duft og salt. Veltið gætilega. ofan
í hræringinn. Látið á pönnu án
feiti. Bakið í ofni við 350° F. i
40—45 mínútur. Takið þá pönnuna
út og vefjið utan um hana og lát-
ið kólna, og þá mun brauðið losna
við pönnuna. Losið svo um við
barmana og skerið í þrjú lög.
Smyrjið á milli með Lemon Cream
Filling. Smyrjið að ofan og hliö-
amar með Marshallow Seven Min-
ute Froeting. Káðlegging um fryst
ingu og fyllingu er í Magic Cook
Book — sjáið frítt tilboð hér á
eftir.
■Lanst vt» *!«■»
Þessi NtHfthæfliiK
A hverjum bauk
er y«ur trygKi*K
fyrtr .l>vf a*
MikIc Baklng
Povider er lu«at
rl® fllftn og ftnn-
ur akableg efui.
ÖKEYPIS MATREIÐSLUBOK—JÞeg-
ar þér geriö heima bakning þá. notið
yður hinar ýmsu aðgengilegu for-
skriftir í the Magic Cook Book.
Skrifið til Standard Brands Ltd.,
Fraser Ave. & Liberty St., Toronto,
Ontario.