Heimskringla - 01.03.1933, Qupperneq 8
8. SlÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 1. MARZ 1933.
Úrvals fatnaður
KARLMANNA
á hinu sanngjarnasta verði
bíður yðar í verzlun—
Humphries Ltd.
223 Portage Ave.
\1ð Llggett’s hjá Notre Dame
FJÆR OG NÆR.
Sendlð gluggatjöldin yðar tll viðurkendrar krelngemingastofn-
unar, er verkið vinnur á vægu verði
PeBrlBssTanndry
55, 59 PEARL SXREET
“Verkhagast og viiinuJsegnast”
StMI 22 818
Rev. Obarles R. Joy, vara-
forseti framkvæmdaráðs Amer-
ican Unitarian Association í
Boston, flytur ræðu í Unitara
kirkjunn á horni Furby og West
minster stræta í Winnipeg,
mæsta sunnudagskvöld, 5. marz.
Mr. Joy er einn af mikilsmetn-
nstu mönnum Unitara kirkju
starfseminnar, er auk annars
ritstjóri blaðsins Wayside Pulpit
og starfsmaður blaðsins Christ-
ian Register. Prestur Unitara
kirkjunnar ensku hér, séra Phil-
ip M. Pétursson, býður öllum
sem tækifæri hafa á því, að
koma og hlýða á þennan merka
mann næstkomandi sunnudags-
kvöld.
Engin Guðsþjónusta
verður flutt í Sambandskirkj-
unni í Winnipeg á sunnudaginn
kemur, 5. marz. Safnaðarfólk
og aðrir sem guðsþjónustur
sækja þangað, eru hvattir til
þess að hlýða á kvöldmessu hjá
Rev. Charles R. Joy, vara-for-
seta American Unitarian As-
sociation, sem talar sem gestur
í Unitarakirkjunni, Westmin-
ster Ave. og Furby Str., kl. 7.
síðdegis.
* * *
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
uæsta fund að heimili Mrs. G.
Johnson, 906 Bannig St. mið-
vikudagskvöldið áttunda marz.
Spilafundur
Kvenfélag Sambandssafnað-
ar efnir til spilafundar mánu-
dagskvöldið kemur, 6 marz, kl.
8.15 síðdegis. Þess er vænst,
að mikið fjölmenni taki þátt í
spilunum og er félagsfólk alt
hvatt til að koma og taka kunn-
ingja sína með sér. Allir eru
velkomnir.
* ♦ *
Við þessa útanbæjargesti
urðum vér varir á ársþingi
Þjóðræknisf élagsins:
Frá Árborg: P. K. Bjarnason,
Mr. og Mrs. H. F. Daníelsson,
Miss S. Johnson, I. Eiríksson,
L. Bergmann og Mrs. E. L.
Johnson.
Frá Oak Point: Séra G. Árna-
son, Jón Finnsson, Mr. og Mrs.
Einar Johnson og Arna Ander-
son.
Frá Selkirk: Séra J. A. Sig-
urðsson, Bjarna Skagfjörð, Mrs.
Sigurbjörgu Johnson, Bjarna
Dalmann.
Frá Lundar: G. Sigurðsson,
Jón Einarsson.
Frá Gimli: Séra J. P. Sól-
mundsson.
Frá Winnipeg Beach: Jón
i Kemesteð.
Frá Glenboro: G. J. Oleson,
séra Egill Fafnis.
Frá Baldur: Sigurður Anton-
íusson.
* * *
í síðasta blaði varð sú villa í
fréttagreininni um tekjuhalla
Manitoba fylkisstjórnarinnar,
að hann er sagður vera 250
miljónir dala. Enn er tekju-
hallinn ekki orðin svona mik-
ill, hvað sem seinna verður. í
stað þessa átti að standa 2.5
miljón dala (hálf þriðja milj.).
H. F. EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR.
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafjelgs íslands,
verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í
Reykjavík, laugardaginn 24. júní 1933 og hefst kl. 1 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á
yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og legg-
ur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikn-
inga til 31. desember 1932 og efnahagsreikning
með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn-
arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðend-
um.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjómarinnar um skift-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþyktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðslu um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgangumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í
Reykjávík, dagana 21 og 22, júní næstk. Menn geta
fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn
á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 1. febrúar 1933.
STJÓRNIN. #/
Á föstudaginn var 24. febrúar,
andaðist á elliheimilinu Betel á
Gimli Grímur Grímsson, frá Ref
steinsstöðum í Víðidal í Húna-
vatnssýslu. Hánn var á áttræð-
isaldri. Útförin fór fram í dag
frá heimili tengdabróður hans,
Sigurðar Vídal á Hnausum.
* * *
Sunndaginn þann nítjánda
febrúar andaðist að heimil sínu
í grend við Riverton ungur og
efnilegur maður, Harold Gray
að nafni. Hann lætur eftir sig
unga ekkju, Violet Gray, fædd
Thorn. Hafa þau verið í hjóna-
bandi aðeins tæpt ár. Hans
verður eflaust nánar minst síð-
ar.
* * *
S. S. Anderson frá Piney,
Man., var staddur í bænum
yfir helgina.
* * »
Systkinin Miss Anna Th. Stef-
ánsson hjúkrunarkona og Páll
Th. Stefánsson frá Framnes,
hafa verið í bænum nokkra
undanfama daga. Kom Páll
til að leita sér lækninga við las-
leika í baki, er þjáð hefir hann.
* * *
íþróttafélagið Fálkinn biður
að draga athygli félagsmanna
og annara vina að því, að árs-
fundur félagsins, sem vanalega
hefir haldinn verið um þetta
leyti árs, verður nú ekki hald-
inn fyr en í aprílmánaðar byrj-
un. Dagurinn verður auglýst-
ur síðar.
* * *
Jarðarfór Kristbjargar Jó-
hannesdóttur á Gimli fór fram
föstudaginn 24. febr. Krist-
björg heitin var móðir Mrs. G.
Benson á Gimli: var hún há-
öldruð, komin yfir nírætt er
hún lézt. Sr. Ragnar E. Kvar-
an jarsöng.
* * *
Sigurður Vigfússon Dalmann
[ lézt s. 1. miðvikudag í Winni-
: peg. Hann var um áttrætt.
Fæddur var hann á Kleif í
Fljótsdal á íslandi. Árið 1882
flutti hann til Ameríku, með
Jóni bróður sínum prentara.
j Settist að í Winnipeg og átti
j þar heima ávalt síðan. Sigurð-
| ur var giftur Ingibjörgu Jó-
| hannsdóttur Borgfjörð. Áttu
þau fjóra sonu og eina dóttur,
! sem nú eru öll fulltíða fólk.
Sigurður vann um 40 ár fyrir
j C. P. R. Félagið í Winnipeg, bjó
j fyrir norðan járnbraut og kynt-
ist því lítið íslendingum.
* * *
G. T. Spil og Dans.
| á bverjum þriSjudegi í G. T.
húsinu, Sargent Ave. Byrjar
stundvíslega kl. 8.30 að kvöldi.
jjimmie Gowler's Orchestra. —
[ Þrenn verðlaun fyrir konur og
í Þrenn fyrir karla, að upphæð
j $5, $2 $1.
* * *
100 ÞINGMENN HNEFTIR í
VARÐHALD
WONDERLAND ♦
Föstudag og laugardag
3-—i marz
“DEVIL IS DRIVING”
| ‘HERITAGE OF
THE DESERT”
Mánudag og þriðjudag,
6—7 marz
‘UNDERCOVER MAN*
MiSvikudag og fimtudag,
8—9 marz
“THE RINGER”
Borðbúnaðar verðlaunakvöld,
miðv. og fimtud. Einnig fimtud.
nónsýning.
Efrimálstofa Bandaríkjaþings-
ins, hefir samþykt frumvarpið
um fjárveitinguna til herflotans.
Nemur hún $308,669,00. (nærri
þrjú hundruð og níu miljónum).
ÍSLENDINGAMÓT
Brennið kolum og sparið peninga
BEINFAIT, Lump .... ........... $5.50tonnið
DOMINION, Lump ............... 6.25 —
REGAL. Lump .................. 10.50 —'
ATLAS WILDFIRE, Lump ......... 11.50 —
WESTERN GEM, Lump ............ 11.50 —
FOTTHILLS, Lump ............. 13.00 —
SAUNDERS CREEK “BIG HORN”, Lump 14.00 —
WINNIPEG ELECTRIC KOPPERS COKE 13.50 —
FORD or SOLVAY COKE .......... 14.50 —
CANMORE BRIQUETTS ............ 14.50 —
POCAHONTAS Lump .............. 15.50 —
MCpURDY CUPPLY f0. I TD.
V/Builders’ |3 Supplies V^ar|d iuCoal
Office and Yard-—136 Portage Avenue East
94 300 • PHONES • 94 309
Eldur var lagður í stjórnar-
bygginguna á Þýzkalandi s.. 1.
mándag. Skemdist hún svo
mikið að stjórnar- eða þing-
störf fara þar ekki fram fyrst
um sinn.
Kommúnisti einn kvaðst vald
ur að verkinu og gaf sig lög-
reglunni á vald. En þykir þó
líklegt að margir hafi verið um
verkið.
Hitler lét hneppa 100 kom-
! múnista-þingmenn í varðhald.
I Einnig var bönnuð útgáfa blaða
vinstrimanna-flokksins og kom-'
múnista.
Kosningar fara fram á Þýzka-
j landi næstkomandi sunnudag.
Er þetta verk álitið að vera unn-
ið í sambandi við þær.
Stjórnarbyggingin gamla
(Reichtag) kostaði 6 miljónir
dollara ný. Hún var 50 ára
gömul. Er talið að taka muni
fult ár að gera við hana.
Frh. frá 1. bls.
Næst skemti Mr. Alex John-
son með einsöng. Þótti gest-
um ánægja í að heyra hann
syngja og kölluðu hann fram í
annað sinn, en Mr. Johnson
hafði ekki búið sig undir að
syngja nema eitt lag.
Flutti Dr. Sig. Júl. Jóhannes-.
son þá næst kvæði frumort;]
eitt af hans snildarverkum í
kveðskap og vonum vér að
doktorinn birti það kvæði í ís-
lenzku blöðunum svo almenn-
ingi gefist kostur á að lesa það.
Þá komu fram níu karlmenn
og sungu undir stjórn Mr.
Brynjólfs Thorlákssonar. Mun
það trauðlega ofsagt, þó eg
segði að fólk hefði getað setið
og hlustað á þessa níu menn
syngja það sem eftir var af
nóttinni.
Þá var sunginn einsöngur
af manni sem ennþá er lítið
kunnur meðal Íslendinga á sviði
söhglistarinnar, Mr. Ólafur N.
Kárdal. Er hann nemandi Mrs.
B. H. Olson, og dylst það eng-
um, sem heyrt hefir Mr. Kár-
dal syngja, að þar er efni í
listamann.
Næsta og síðasta stykkið á
skemtiskránni var ekki langt,
en mun það þó hafa snortið
hjarta-strengi tilheyrendanna
eins mikið og nokkuð annað
sem fram fór þetta kvöld þegar
Mrs. Guðrún Helgason kom
fram á pallinn klædd í íslenzk
an skraustbúning og spilaði hið
alkunna lag “Tárið” og síðar
rokkvísuna “Úr þeli þráð að
spinna.”
Að því loknu baö forseti gest
ina að gera svo vel og fara
ofan í neðri sal hússins og njóta
þar hressingar — það biði þeirra
kaffi og pönnukökur, rúllupilsa
og hangikjöt ásamt öðrum góm-
sætum réttum.
Vegigr salsins voru skreyttir
hinu fagra málverki af Al-
mannagjá og Þingvöllum eftir
listamanninn Friðrik Swanson.
Borðin voru prýdd með kertum
rauðum að lit á miðju borði
svo hvítum og bláum útfrá til
beggja handa. Niður með kert-
unum í kertastjakana var svo
stungið íslenzkum flöggum
tveim í hvern stjaka. Þegar
svo búið var að kveikja á kert-
unum var það tilkomumikil sjón
að sjá yfir borðin alsett mat
og aldinum mitt í ljósa dýrðinni.
Að þessum undirbúning öllum,
unnu af kappi og dugnaði
nokkrar konur, sem eiga sér-
stakar þakkir skilið frá þjóð-
ræknisdeildinni “Frón”.
Að máltíðinni afstaðinni fóru
gestirnir upp í efri salin aftur,
byrjuðu þá sumir að dansa en
aðrir skemtu sér við spil. ís-
lendingamót þetta stóð yfir þar
til kl. 2 eftir miðnætti að hald-
ið var af stað heim til að njóta
nokkrar hvíldar það sem eftir
var nætur. Allir virtust á-
nægðir og létu í ljós að skemt-
un hefði verið góð og veitingar
gómsætar. Deildinni “Frón”
bættust nýir meðlimir það
kvöld og vonandi er að margir
fleiri komi á eftir. — Það ættu
allir íslendingar að tilheyra
Þjóðræknisfélaginu.
G.
MESSUR 0G FUNDIR
f kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. Og 4.
fimtudagskveld i hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldtnu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverju^v
sunnudegi, kl. 11 f. h.
fSLAND SEM FLUGSTÖÐ
MILLI AMERÍKU OG EVRÓPU
Frh. frá 5. bls.
búast við mörgum nýjungum
og hröðum framförum.
Alt er verið að gera til þess
að koma flugferðum á milli
álfanna, á sem tryggastan fót.
Eg býst við að Pan-American
Airways, British Imperial Air-
ways, Luft Hansa og hið vold-
uga Hollenzka flugfélag vinni
öll í sameiningu að þessu. Og
eins og nú horfir verður það
norðurleiðin með ísland sem
millistöð, sem notuð verður til
þess að tengja saman flugleiðis,
heimsálfurnar tvær.
Eftir verði á hinum
Betri Eldivið
og Kolum
LeitiS upplýsinga hjá
Biggar Bros.
SÍMI 21 422
Þegar þér símið spyrjið
eftir L. Holm
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Reparr Servioe
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
'I
“Vertu viss með að legga
R0YAL BANK
peninga ávísan innan í”
Notið Royal Bank peningaávísanir þegar þér
viljið senda peninga áhættulaust með pósti. Þær
eru gefnar út á öllum stærðum upp í $100. og
borganlegar allstaðar í Canada, Bandaríkjunum
og Brezku eyjunum — í dollurum eða pundum.
Fáaniegar i öilum útbúum bankans
The Royal Bank
of Canada
HÖfuðstóll og varasjóður $74,155,106
Samtals eignir yfir $700,000,000
SENSA TIONAL
SALE
'B!
: O
of ali withdrawn
Victor Records
Regularly 65c
NOW
RED SEAL
RECORDS
from
$-|.00 to $0.00’
NOW
39cto 89 c
\
Make your choice while our Stock is complete
SJM&k
__ Limited
§argent Ave. at gherbroolo
Phone 22 688 Open till 11 each evening