Heimskringla - 01.11.1933, Side 6

Heimskringla - 01.11.1933, Side 6
6. SíUA. ví £ II M S K R 1 N Ci I. A WINNIPEG, 1. NÓV. 195ÍJ I 1 Jane Eyre eftir CHARLOTTE BRONTE Kristján Sigurðsson, þýddi “Ranglátt! — ranglátt!” sagði vit mit.t, knúð til skerpu þá stundina, um aldur fram og eðlilegan þroska; ásetningur, að sama skapi espaður, leitaði úrræðis til að losna við óþol- andi ánauð — svo sem að strjúka, eða ef það tækist ekki, að smakka hvorki vott né þurt framar og eignast undankomu í dauðanum. í ofsalegu ofboði lifði eg þær síðdegis stundir. Allur minn hugur var í uppnámi, alt mitt hjarta í uppreisn! Og í hvílíku myrkri, við hvílíka vanþekking var það hugarstríð háð! Eg gat ekki svarað þeirri spurn, sem sífelt leitaði á innra með mér — hvers eg átti að gjalda, af hverju eg var þjáð til svona, nú eftir (eg vil ekki segja hve mörg) ár liðin, sé eg glöggt hvað til kom. Eg stakk í stúf við Gateshead Hall, eg var þar sem engin. Mér samdi um ekki neitt við Mrs. Reed eða börn hennar eða þá sem hún kaus til lags eða þjónustu við sig. Ef þeim þótti ekki vænt um mig, þá þótti mér, satt að segja, ekki vænt um þau. Engin nauður rak þau til að bera hlýjan hug til telpubarns, sem gat ekki samþýðst neinu þeirra, hjáleita skepnu þeim álvég ólíka að upplagi, skapferli og tii- hneigingum: gagnslaus til að þjóna hagsmun- um þeirra eða auka við náægju þeirra: skaðleg skepna, sem ól í brjósti sér gremju út af með- ferð þeirra og fyrirlitning fyrir vitsmunum þeirra. Eg veit, að ef eg hefði verið léttlyndur, glæsilegur, kærulaus, heimtufrækur, fallegur, fjörlegur krakki, og eins umkomulaus, og upp á þau komin eins og nú, þá hefði Mrs. Reed þózt betri af minni þarveru, börnin verið þýð- ari og vinnufólkinu síður gjarnt að hafa mig útundan. Nú tók að dimma í rauðu stofunni og rökkrið fór að síga að úti fyrir. Rigningin buldi sífelt á stiga gluggann og vindurinn þau.t í trjánum að hallar baki; eg kólnaði smám- saman upp og þá fór kjarkurinn að renna af mér. Eg var lægingum *vönust, vantrausti á sjálfa mig og beygjulegum einstæðingsskap. og þetta lagðist eins og_ væta að glóðum míns dvínandi reiðimóðs. Allir sögðu að eg væri vond og hver/veit nema þeir segðu satt: hvað hafði mér komið í hug rélt áðan nema að svelta mig í hel? Það var vitanlega ósköp ljótt, og var eg við dauðanum búin? Eða var jarðhúsið undir kór Gateshead kirkju fýsilegur samastaður? Þar var líkið af Mr. Reed látið. eftir því sem mér hafði verið sagt; og nú festist hugurinn við hann ,eftir því sem kjark- urinn þverraði og hræðslan óx. Hann var dáinn fyrir mitt minni, en eg vissi að hann var móður bróðir minn og hafði tekið mig á sitt heimili, þegar foreldra minna misti við, sömuleiðis að hann hafði beðið Mrs. Reed, þegar hann lá á banasænginni, að fara með mig eins og sín eigin börn, og því hafði hún lofað. Mrs. Reed hefir víst þózt halda það heit og það gerði hún, það má eg segja, eins vel og hún gat eftir því sem henni var farið; en hvernig gat hún felt þokka til aðskotadýrs, sem var ekki af hennar ætt og henni óvið- komandi eftir að maður hennar féll frá? Henni hlaut að vera þvert um geð að ganga í foreldra stað barni sem hún gat ekki elskað, þó aldrei nema hún lofaði því og horfa á, að þungbúnu tökubami var troðið upp á hennar barnahóp til fulls og alls. Nú fór eg að hugsa um nokkuð einkenni- legt. Eg var altaf viss um, að ef Mr. Reed hefði lifað, þá hefði hann verið góður við mig og nú er eg sat og horfði á hið hvíta rúm og dökku veggi, og rendi öðru hvoru heilluðum augum til hins skygða spegilglers, þá fór upp í huga mínum það sem eg hafði heyrt um framiiðna menn, að þeir lágu ekki’ kyrrir í gröfinni, ef þeirra síðustu fyrirmæli voru brotin, og sneru aftur til jarðarlífs til að hegna heitrofum og hefna fyrir þá sem illa voru leiknir, og nú datt mér í hug, að sál Mr. Reeds hefði ónæði af þeim rangindum sem beitt var við systurbarn hans, kynni að yfir- gefa bústað sinn — í jarðhúsi kirkjímnar eða í hinum ókenda heimi framliðinna, hvort heldur var — og birtast mér í þessari stofu. Eg þurkaði tárin og hélt niður í mér ekkan- um, því eg hálf bjóst við og óttaðist að há- vær harmalæti mættu vekja yfirnáttúrlega raust til að hugga mig, eða laða fram úr dimmunni ásjónu með geislabaug er liti niður yfir mig með óvenjulegri vorkunn. En þessi ímyndun, þó huggunarrík væri að hugsa til hennar, fanst mér skelfileg ef hún skyldi gervast (gervast: fá gervi, taka á sig ham); eg tók á öllu sem eg hafði til, að kæfa hana — eg reyndi að vera stilt. Eg strauk hárið frá augunum, leit upp og reyndi til að líta djarf- lega um hina dimmu stofu og í því bili kom glampi á vegginn. Var þetta, sagði eg við sjálfa mig, tungls geisli sem fellur inn um eitthvert op á glugga tjöldunum? Nei, tungls Ijós iðaði aldrei, en þetta hreyfðist til og frá; það færðist, meðan eg starði á það, upp í loftið og vafraði uppi yfir mér. Eg á nú hægt með að gera þá grein fyrir þessari sýn, að ejn- hver gekk um hallartúnið með ljósker í hend- inni; en þá, þegar þetta bar fyrir, var hugur minn hreldur, taugarnar riðandi af geðofsa og því hugsaði eg að hinn þjótandi geisli væri fyrirboði veruhams frá öðrum heimi. Eg fékk mikinn hjartslátt, hita í höfuðið og suðu fyrir eyrun, það hélt eg vera vængja þyt: mér fanst eitthvað vera nærri mér; mér fanst sem þungi legðist yfir mig, mér lá við köfnun; þolið brast; eg þaut til dyra og hristi lásinn, alveg hams- láus. Fótatak í hraðasta lagi heyrðist fyrir framan, lykli var snúið, Beta og Abbot komu inn. “Miss Eyre, er nokkuð að þér?” mælti Beta. “En það hljóð! Það smaug alveg í gegn- um mig!” sagði Abbot. “Takið þið mig út! Lofið mér inn í barna- stofu!” veinaði eg. “Af hverju? Gengur eitthvað að þér. Sástu nokkuð?” var spurn Betu, upp á nýtt. “Ó, eg sá ljósglampa og eg hélt andi mundi koma.” Eg náði í hendina á Betu og hún kipti henni ekki if mér. Abbot var stygg og lagði þetta til: “Hún hefir sett sér að hljóða. Þvílíkt líka öskur! Ef hún hefði kent mikið til, þá væri henni einhver vorkunn, en það var víst eitt- hvað annað, hún vildi fá okkur hingað. Eg þekki hgnnar kenjar!”. Þá heyrðist önnur raust, sem tók af öll tvímæli: “Hvað er um að vera hér?” Mrs. Reed fetaði eftir göngunum, svo gustmikil að kappinn reis við á höfði hennar og það skrjáfaði í pilsunum af fasinu. “Abbot og Beta, eg hélt eg segði til, að Jane Eyre æt.t.i að vera kyr í rauðu stofunni, þangað til eg sækti hana sjálf.” “Miss Eyre hijóðaði svo hátt, frú mín!” bar Beta fyrir sig. “Slept ’enni!” var svarið. “Sleptu hend- inni á Betu, barn; þú mátt ekki vonast til, að þú sleppir út með þessu lagi, vertu viss um það. Mig hryllir við hræsibrögðum, ekki sízt hjá börnum; það er mín skylda að sýna þér, að brögðum verður ekki við komið; nú skaltu vera hér einni stundu lengur; þá færðu að fara út því að eins, að þú gefist alve'g upp og látir ekkert á. þér béra.” “Ó, vorkendu mér! Fyrirgefðu mér! Eg afber það ekki, láttu mig taka út einhverja aðra hegningu! Það verður bani minn, ef-----” “Segðu ekki meir! Öll þessi oflæti eru meira en leið,” og vafalaust fanst henni svo vera. Frá henni að sjá var sem eg fremdi látalæti langt um fram það sem hæfði mínum aldri; það var hennar einlægt álit, að eg væri sambland af heiptugum ástriðum, lítil- mannlegu innræti og hættulegu undirferli. Beta og Abbot höfðu sig strax burtu, Mrs. Reed leiddist angist mín og áköf grátsog, hún skotraði mér inn fyrir og læsti að mér, orða- laust. Eg heyrði skrjáfið er hún fetaði hraðan í burt; rétt á eftir fékk @g nokkurskonar að- 1 svif, þykist eg vita. Eg mundi ekki til mín upp frá því. 3. Kapítuli Þegar eg raknaði við, fanst mér sem eg hefði verði troðin hrylliiegri möru, og eg sá framundan mér hræðilegar eldsgleéður með svörtum stöngum fyrir, krosslögðum. Eg heyrði manna mái líka, líkt og deyft af stormi eða straumvatns nið, eg vissi ekki í þennan heim né annan fyrir óttalegri skelfinu. Þegar lítið leið frá varð eg vör við, að einhver var að taka á mér, lyfta og hagræða mér svo eg sæti uppi, og það mjúklegar en eg hafði nokkru sinni fundið fyr. Eg haliaði höfðinu á kodda eða handlegg og fanst fara vel um mig. Lítiili stundu seinna rann mókið af mér. Eg skildi glöggt að eg lá í rúminu mínu og að rauða roðann lagði frá hlóðunum í barna- síofunni. Það var komin nótt, á borðinu brann kertaijós; Beta stóð við fótagaflinn með skál í hendinni, og maður sat á stól við höfðagaflinn og horfði á mig. Mér létti ósegjanlega, sefaðist og þóttist varin og örugg, er eg vissi af ókunnugum manni í stofunni, utan heimilismanni, óskyld- um Mrs. Reed. Eg sneri mér frá Betu (þó miklu síður væri mér hvumleitt að hún væri hjá mér en Abbot til dæmis) og virti fyrir mér manninn; eg kannaðist við hann, það var lyf- salinn, Mr. Loyd, Mrs. íteed lét stundum sækja hann ef eitthvað gekk að vinnufólkinu; tii sjáifrar sín og barnanna lét hjín vitja læknis^ “Veiztu hver eg er?” spurði hann. Eg nefndi nafn hans og rétti honum hend- ina um leið, hann tók í hana og sagði brosandi, “okkur batnar bráðum.” Svo lagði han^to mig útaf og sagði við Betu, að gæta þess vandlegá að eg yrði ekki fyrir neinu ónæði það sem eftir væri nætur; hann sagði til um eitthvað fleirá, lézt mundu koma aftur og fór svo. Mér fanst eg njóta skjóls og vinsemdar meðan hann sat á stólnum við höfðalagið mitt, og undireins og hann lét aftur hurðina dimnidi yfir stofunni og óumræðileg hrygð lagðist á hjarta mitt. “Finst þér þú geta sofnað, Miss?” spurði Beta fremur þýðlega. Eg þorði varla að svara, eg kveið svo fyrir að næsta ávarpið yrði hrottalegt. “Eg skal reyna.” “Vantar þig að drekka eða hefirðu lyst á nokkru að borða?” “Nei, þakka þér fyrir, Beta.” “Þá ætla eg að fara að hátta, það er kom- ið fram yfir miðnætti; þú mátt kalla til mín ef þig vanhagar um eitthvað.” Þetta var svo óvenjuleg kurteisi, að eg dirfðist til að spyrja: “Beta, hvað gengur að mér? Er eg veik?” “Þþr varð ilt í rauðu stofunni, af gráti, hugsa eg; þér batnar senn, á eg von á.” Beta hvarflaði inn í næstu stofu, til stúlk- unnar sem bjó um og sópaði. Eg heyrði hvað hún sagði: “Sarah, komdu inn í barnastofu og sofðu hjá mér í nótt, eg þori ekki að vera þar ein með þessu aumingja barni, eg veit ekki nema hún skilji við í nótt; það er varla alminlegt, að það skyldi líða yfir hana: ,mig skyldi ekki furða, þó eitthvað hafi borið fyrir hana. Hús- móðirin var heldur hörð í horn að taka.” Sarah kom með henni og háttaði hjá henni; svo hvísluðust þær á góða stund, áður en þær fóru að sofa. Eg heyrði ávæning af talin uog skildi mjög vel hvað þær fóru. “Eitthvað hvíttklætt kom að henni og hvarf svo.” — “Og stór hundur ,svartur, fylgdi honum.” — “Þrisvar barið á stofuhurðina, þung högg.” — “Ljós, beint upp af leiðinu hans,” o. s. frv. ‘ Þar kom, að báðar sofnþðu; eldurinn dvín- aði, kertið þraut. ^Eij eg hlaut að vaka þá löngu og ógurlegu nótt, við ofheyrnir, ofsjónir og hugraunir, sem börnunum eru svo sárar. Þessum atburði í rauðu stofunni fylgdu ekki nein líkamleg veikindi, heldur sálarleg ofraun, sem eg hefi fundið eftirstöðvar af fram á þlnnan dag. Já, Mrs. Reed, þér á eg upp að unna hryllilega hugraun. En eg ætt.i að fyrirgefa þér, því að þú vissir ekki hvað þú gerðir. Þú hélzt að þú værir að uppræta hjá mér vondar tilhneigingar, en þá sleistu mína hjarta strengi. Um hádegi daginn eftir var eg komin á fætur og klædö og sat við stofu hlóðin vafin innan í sjal. Mér fanst eg vera mjög óstyrk og biluð til líkamans heilsu, en ósegjanlega miklu aumari á sálinni, eg feldi tár af volæði, undir eins og eg var búin að þurka einn saltan dropa af vöngunum, þá kom annar og annar til í sífellu. Samt hugsaði eg, að eg ætti að vera sæl og ánægð, af því að enginn af Reed börnunum var heima, þau voru öll farin út i vagpi með móður sinni; Abbot var við sauma í annari stofu og Beta var til og frá að tína saman gull og raða til í skúffum; hún ávarpaöi mig öðru hvoru óvenjulega þýðlega. Þetta mátti líkjast himnaríkis sælu fyrir mig, sem var engu vön nema sífeldum aðfinningum og snuprum og snúningum, sem voru illa þakkað- ir, en það sanna var, að hugur minn var svo hreldur, að hann gat ekki huggast af ró né glýjast af neinu til gleði. Beta fór niður í eldhús og kom aftur með köku snúð á fallega máluðum postulíns diski með mynd af paradísar fugli sem sat á lilju og rósa knöppum; sá diskur þótti mér svo ljóm- andi fallegur, að eg hafði oft beðið um að lofa mér að halda á honum til að skoða hann betur, en aldrei þótt eiga það skilið hingað til, að fá þá ósk uppfylta. Þessi dýrgripur var nú settur á kjöltu mína og mér boðið blíðlega að' éta hið nýbakaða sælgæti sem á honum var. Þó fér hér eins og vant er um gæði sem lengi er skotið á frest og oft ósitað eftir, að þau koma of seint o£ reynast fánýt! Eg hafði ekki lyst á kökunni og fjaðra skraut fuglsins og lita skart blómanna sýndist undarlega fölnað; eg setti diskinn með kökunni frá mér. Beta spurði hvort mig langaði ekki til að líta í bók; eg raknaði við þegar eg heyrði nefnda bók og bað hana að sækja “Gulliver’s Travels” í bóka- stofuna. Eg hafði lesið þá bók upp aftur og aftur og haft yndi af. Eg hélt að í henni væri sagt frá sönnum atburðum og miklu fanst mér hún merkilegri en huldufólks sögur; álf- anna hafði eg leitað undir blöðum og blóma klukkutn, undir gorkúlum og í viðjum sem teygðu sig í fléttum yfir veggja slpot, og þegar eg fann þá ekki, gerði eg mér í hug, að þeir hefðu allir leitað burt af Englandi til hrjóst- ugri landa, þar sem bygð er stjálari og skóg- ar þéttari, en í þeim löndum, sem segir frá í “Gulliver’s Travels,” (Lilliput og Brobdingnag) hélt eg vera fast undir fæti og var sannfærð um, að ef eg tæki mig upp einhvern daginn til langferðar, þá gæti eg með eigin augum séð akra, húsa og trjáa krílin, hið dvergvaxna fólk, fé, kýr og fugla ríkisins, svo og hitt landiÖ þar sem komstengur finnast háar sem tré, tröíl- stórir rakkar og risavaxnir kettir. Nú þegar mér var fengin þessi uppáhalds bók.—Þegar eg fór að fletta í henni blöðunum og leita þess yndis í hennar furðúlegu myndum, sem aldrei hafði brugðist mér, — þá var alt ömurlegt og ægilegt; risarnir voru horaðir draugar, dverg- •arnir illilegir og óttalegir púkar, Gulliver aum- asti flækingur í hræðilegum og háskalegum eyðilöndum. Eg lét afur bókina, því að eg hafði ekki kjark til að lesa í henni og lét hana á borðið hjá kökunni, sem eg hafði ekki smakkað á. Beta lauk við sín smávik, þvoði sér um hendurnar, liipti út draghólfi litlu, sem var fult af ljómandi fallegum afklippum úr silki og flosi, og tók til að sauma höfuðfat á brúðu sóm Georgiana átti. Þá byrjaði hún að kveða: Léli sér dátt hin snotra snót sniðin víðu og þröngu, bar í dansi fiman fót, fyrir æði língu! Þennan brag hafði eg oft heyrt áður og altaf haft gaman af, því Beta hafði sæt hljóð, — svo fanst mér að minsta kosti. En þó að hljóðin væru þýð sem fyr, þá fanst mér kveöandin óumræðilega döpur. Hún hafði allan hugann á verkinu og öðru hvoru tók hún upp aftur yið lagið lágt og hægt, “fyrir æði löngu” þangað til það hljómaði eins og daprasta útfarar ljóð. SíÖan tók hún til við aðra rímu, sú var reglulega sorgleg. Þreytast mér limir og þrútna mér fætur, þungfær er leið yfir fjöll og um hjarn; dagur er liðinn og niðdimmar nætur nálgast með skedfing hið einmana barn. t i • Hví var mér stefnt yfir klungur og kletta? — klifrandi fótur er sársaukagjarn. Menn eru grimmir, en guðsenglar létta göngunnar stríð fyrir einmana barn. I Mildur er blærinn — um himinsins hvelfing heiðstjörnur tindra sem neistar um'arn; heilagur drottinn í hörmung og skelfing huggar og styrkir sitt einmana barn. Skriki mér fótur á ferð yfir gilin, förlist mér áttir um skóg eða hjarn himneskur faðir með hjartræna ylinn huggandi faðmar sitt einmana barn. Það skal eg muna — þó mátturinn þrotni — munaðarlaus yfir klungur og hjarn, heimili mitt er á himnum hjá drotni, hann á að vini hvert einmana barn. “Vert ekki að gráta, Miss Jane,” sagði Beta, þegar hér var komið. Hún mátti rétt álíka segja við edinn: “logaðu ekki,” en hvernig gat hún gert sér 1 hug þá hugsýkis kvöl, sem stríddi á mig? Litlu síðar kom Mr. Lloyd aftur. “Hvað, komin á fætur?” sagði hann, þeg- ar hann gekk í stofuna. “Nú, nú, fóstra, hvernig líður sjúklingnum?” Beta sv’araði að mér liði mikið vel. “Þá ætti hún að vera hressari í bragði. Komdu hérna, Miss Jane, þú heitir Jane, er ekki svo?” “Já, herra, Jane Eyre.” “Jæja ,þú hefir verið að gráta, Miss Jane Eyrs, geturðu sagt mér, hvað kemur til? Kennir þig til nokkurs staðar.” “Nei, herra.” % Ó, eg þori að segja að hún er að skæla af því að hún fékk ekki að fara út í kerrunni með húsmóðurinni,” sagði þá Beta. “Ó, sei, sei, nei! Hún er víst vaxin upp úr að firtast af svóleiðis smámunum.” Það hélt eg líka; mér þótti virðingunni fyrir sjálfri mér misboðið1 með þessari ósönnu aðdróttun ,svo eg svaraði strax: “eg hefi aldrei skælt af öðru eii^s á æfi minni; mér reglulega leiðist að fara akandi í vagni. Eg skæli af því eg á bágt.” “Ö, tarna er ekki fallegt, Miss,” sagði Beta. Sá sgóði lyfsali virtist ekki vita hvað hann átti að halda. Eg stóð frammi fyrir honum; hann horfði stöðugt á mig, gráum augum held- ur smáum, þau voru ekki sérlega1 skír, en eg þykist skilja nú, að þær sjónir voru í hvassara lagi, skarpleitur maður en sómagóður. Hann virti mig fyrir sér í tómi, spurði svo: “Af hverju varztu veik í gær?” Hun datt,” svaraði Beta fyrir rhig. “Datt hún! Nú hvað er að tarna, eins og kornbarn. Kann hún ekki að bera fyrir sig fæturna ,átta eða níu ára gamalt bamið.” Nú fékk metnaðurinn í.mér sáran sting upp á nýtt, svo eg segi snöggt eins og var: “Eg var barin, því datt eg,” bætti svo við. meðan Mr. Lloyd tók í nefið: “en eg varð ekki veik af því.” Þegar hann var að troða bauknum í vestis vasann hringdi bjalla vinnufólkinu til máltíðar, hann vissi hvað leið, því hann óagði: “Þetta er fyrir þig fóstra, þú mátt; fara eg skal lesa yfir Miss Jane, þangað til þú kemur aftur.” Beta vildi heldur vera kyr, en fór þó, því að engum Ieiðst að láta standa á sér til mál- tíðar í Gateshead Hall. “Þér varð ekki ilt af byltunni, heldur hverju þá?” spurði Mr. LIoydr þegar Beta var farin.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.