Heimskringla - 06.12.1933, Page 6

Heimskringla - 06.12.1933, Page 6
6. SlÐA. »1 E i M 5 K R I N C I. A WINNIPEG, 6. DES. 1933 Jane Eyre eftir CIIARLOTTE BRONTE Kristján Sigurðsson, þýddi Mikið langaði okkur til að bakast við heit- an eld þegar heim kom, en þetta var þeim smærri bannað, því að stóru stúlkurnar skip- uðu sér strax í margfalda fylkingu umhverfis báða elda í skóla stofunni, bak við þær húktu þær smærri í hnöppum og brettu upp svunt- urnar utan um magra handleggi. Mikil hugg- un var það, að í kveldskattinn var gefinn tvö- faldur skamtur af brauði — heil sneið en ekki hálf — og smér við, til þeirra hátíða brigða hlökkuðum við alla vikuna; mér tókst vana- lega að koma í mig helmingnum af þessum stórskamti, hinn varð eg æfinlega að láta af hendi. Sunnudags kveldum var varið til þess að læra kverið utan bókar og fimta, sjötta og sjö- unda kapítula í Matteusar guðspjalli, þar næst að hlýða löngum lestri; Miss Miller las og geispaði oft upp úr lestrinum, sem sýndi að hún var dösuð af þreytu. Inn á milli þessara afreka voru nokkrar smástúlkur látnar leika parta úr Eutychusi, svo yfirkomnar af svefni, að þær duttu af bekkjunum, þar sem þær sátu; þá var það ráð haft, að láta þær standa á miðju gólfi; ef leggirnir þá linuðust undir þeim, var hinum háu stólum umsjónar stúlknanna skot- ið til þeirra, svo þær gætu haldið sér í þá. Nú er að minnast á það þegar Mr. Brockle- hurst vitjaði skóla vors, það drógst vegna þess að hann var að heiman hátt upp í mánuð eftir að eg kom til skólans, ef til vill að vitja kynnis hjá vini sínum erki djáknanum; eg þarf varla að geta þess, að eg þóttist hafa ástæðu til að kvíða fyrir komu hans, og þar að rak, að loksins kom hann, þegar eg var búin að vera þrjár vikur í Lowood. Eg sat með spjaldið mitt á hnjánum og glímdi við að leggja saman tölur, einn daginn, varð litið út í glugga, og sá mann bera fyrir, háan og krangalegan og vissi strax ósjálfrátt, að nú var hann kominn; rétt á eftir stóðu allar á fætur í skóla stofunni, kennarar auk- heldur aðrir, eg þurfti ekki að líta upp til að éá að, hver kvaddur var með slíkri viðhöfn. Eg sá út undan mér hvar tveir langir leggir skálmuðu yfir stofu gólfið og námu staðar hjá Miss Temple: þar stóð sama svarta stoðin upp á endann, sem hafði spáð mér svo illu hjá hlóða steininum í Gateshead. Eg gægðist var- lega eftir þessu hrófatildri: samur var mað- urinn, í svartri yfirhöfn sem var hnept upp í háls, öllu lengri, mjórri og stirðlegri heldur en fyT. Mér voru í fersku minni fláræði Mrs. Reed, er hún gaf í skyn hvernig eg væri inn- rætt svo og loforð Mr. Brocklehurst, að vara kennarana við mínu vonda og ódæla eðlisfari, upp frá því kveið eg sáran fyrir efndum þess loforðs, og bjóst daglega við “þeim manni sem koma skal” til að segjá það til um mitt fyrra líf, sem setti mig í vondra barna hóp um alla eilífð, og nú var hann kominn. Hann stóð hjá Miss Temple og talaði til hennar í lágum róm: um mitt spilta eðli, þóttist eg vita; eg aðgætti svip hennar með kvöl og kvíða og bjóst við því þá og þegar, að hún liti sínum dökkum augum til mín, með hryilingi og óbeit. Svo fór eg að hlusta eftir því sem þeim fór á milli og með því að eg átti sæti ekki langt frá þeim, heyrði eg mest af talinu og við það fór hrollurinn að renna af mér smám saman. “Eg á von á, Miss Temple, að tvinninn sem eg keypti í Lowton, sé sæmilega hentug- ur; eg þóttist taka svo eftir, að hann væri af álíka tagi og bómullar dúkurinn í skyrtur stúlknanna og nálarnar valdi eg eftir þræð- inum. Þú mættir geta þess við Miss Smith, að mér gleymdist að setja stoppu nálarnar á listann, en hún skal fá nálabréf í vikunni sem kemur, og henni ber að gæta þess vandlega, að fá engri námstúlku meir en eina stoppunál í einu, ef þeim eru fengnar fleiri en ein> í einu, þá er hætt við að þær passi ekki eins vel uppá og týni þeim. Já, og annað til, Miss Temple, eg vildi að sokkunum væru gefnar betri gæt- ur! — Þegar eg kom hingað seinast, þá varð mér gengið að húsabaki og eg aðgætti fatn- aðinn, sem hékk á stögunum; þar sá eg all- marga svarta ullar sokka mikið fremur illa til reika, götin á þeim voru það stór, að eg þykist vera viss um, að það hQfir ekki verið tekið í þau nógu vandlega, jafnóðum og þau féllu á plöggin.” Hér tók hann málhvíld. “Þessar bendingar skulu teknar til greina, herra,” sagði Miss Temple. “Ennfremur, fröken, tjáir þvottakonan mér, að sumar af stúlkunum fái tvær erma svuntur á viku, sem er meira en vera ber, reglugerðin mælir svo fyrir, að hver stúlka fái aðeins eina erma svuntu um vikuna.” “Eg skal skýra frá, hvernig á því stendur, herra. Agnesi og Katrínu Johnstone var boð- ið til vinafólks í Lowton á fimtudaginn var, og eg leyfði þeim að fá hreinar erma svunt- ur til heimboðsins.” Mr. Brocklehurst kinkaði kolli. “Jæja, það má svo vera, ef gildar ástæður eru til, eji þess ber að gæta að slíkt beri ekki of oft við. Enn eitt kom mér sömuleiðis á óvart: þegar eg gerði upp reikninga við ráðs- konuna rakst eg á, að máltíð, brauð með osti, hefir verið tvívegis borin náms meyjunum, á síðast liðnum hálfum mánuði. Hvernig stend- ur á þessu? í reglugerðinni finn eg alls ekki slíkar auka máltíðir fyrirskipaðar. Hver tók upp á slíkum nýjungum? Og með hvaða myndugleika?” “Mér er um að kenna, herra,” svaraði Miss Temple, “morgun grauturinn var svo skemdur að nemendunum var ómögulegt að borðá hann og eg þorði ekki að láta þær vera matar- lausar til hádegis.” “Bíddu við, jungfrú, eitt augnablik. — Þér er kunnugt um þá tilætlun mína, að ala upp þessar ungu meyjar svo, að þær venjist ekki á óhóf og eftirlæti, heldur að þær verði harðar og þolnar af sjálfs afneitun. Ef svo skyldi til bera, að ánægjan af svölun matarlystar væri minni í einn tíma en annan, svo sem af því að matargerð tækist miður en venja er til og einhver réttur væri soðinn of eða van, þá ætti sá atburður ekki að engu að gerast með því að veita aðra gómsætari hressingu og þar með veita holdinu eftirlæti og ganga á bug við eða niður brjóta tilætlun þessarar stofunar, heldur ætti sá atburður að verða tilefni til andlegrar uppbyggingar nemendanna og til hvatningar að þola hraustlega þó lítið eitt kunni á að skorta um tsundar sakir. Við slík tækifæri mundi stutt ávarp ekki vera ótímabært, í hverju ráðinn og reyndur kennari mundi sæta íæri að taka dæmi af þjáningum hinna fyrstu kristnu manna, af kvölum píslarvotta sem og líka tilfæra hvatningar orð vors blessaða frels- ara ,er hann skoraði á sína lærisveina að taka kross á sig og fylgja honum, ennfremur að- vörun hans, að maður lifi ekki af einu saman brauði, heldur af hverju orði, sem fram gengur af guðs munni, svo og guðdómlega huggun hans: ef þið kveljist af hungri og þorsta fyrir mínar sakir, þá eruð þið sæl.’ ó fröken, þegar þú lætur brauð og ost í staðinn fyrir sangan graut, í munn þessara barna, þá má vera að þú kappalir þeirra fúlu líkamí en gáir ekki að, hversu þú sveltir þeirra ódauð- legu sálir!” Nú þagnaði Mr. Brocklehurst — ef til vill yfirkominn af tilfinningum sínum. Miss Tem- ple horfði ofan á gólf, í byrjun ræðunnar, en síðan beint framundan sér og varð því kaldari á svipinn sem talið stóð lengur ,einkum lagði hún fast saman varirnar, loks var andlitið h'k- ast því sem höggvið væri úr bleikum marm- ara. Mr. Brocklehurst stóð við hlóðin með hendurnar fyrir aftan bak og leit yfir hópinn með hátíðlegum alvöru svip. Þá brá honum alt í einu, líkt ög hann fengi stírur í augun af skyndilegri ofbirtu, hann snerist að forstöðu konunni og mælti hraðar en fyr: “Miss Temple, Miss Temple, hvað — hvaða stúlka er þetta með liðað hár? Rautt hár, fröken, alt í liðum?” Hann hóf á loft staf- sprota sinn og benti á þetta hryllilega fyrir- brigði með skjálfandi hendi. Það er Julía Severn,” svaraði Miss Tem- ple mjög stillilega. “Julía Severn, fröken, og hvað kemur til, að hun, eða nokkur önnur af stúlkunum, hefir alt hárið liðað og lokkað? Hvað kemur ’til að hún skuli haga sér svo veraldlega, gagnstætt ollum reglum og fyrirmælum þessarar stofn- unar — hér, í evangeliskri guðsþakka stofn- un — að snúa hreint alt hárið í liði?” Þessi stúlka er hrokkinhærð af náttúr- áður ” SVaraðÍ Miss TemPle enn stillilegar en , ... **“> vio eigum et haga okkur eftir náttúrunni: eg vil, að stulkur verði náðarinnar börn og ti’l hv< að hafa svona mikið hár? Eg hefi láti« hvað eftir annað, að eg vil ekki láta h hannu, heldur kemba það slétt, hæverí og tildurslaust. Miss Temple, það má skera alt hárið af þessari stúlku, eg skal hárskera á morgun, og eg sé aðrar með stora hárkúfa — stóra stúlkan þarna henni að snúa sér við. Segðu öllum’í oekk að snúa sér við.” Miss Temple brá klút fyrir munninn fela bros sem ósjálfrátt kom á varir h( en hu" gerði sem fyrir hana var lagt og urnar hlýddu; því var miður, að Mr. Br< hurst sá ekki framan í þær, þá hefði h s i íst, að hvað sem hann gerði við ytra I á bolla parinu, þá náði hann til innra bo, m.klu miður en hann grunaði. Hann sk bakhverfuna á þessum lifandi medalíum s ar korn, kvað svo upp þennan úrskurð: “Alla þessa flóka verður að snfða af. Miss Temple virtist malda í móinn. “Jungfrú,” svaraði hann, “ríki þess herra, sem eg þjóna, er ekki af þessum heimi: mitt ætlunarverk er að deyða, í þessum ungmeyj- um, holdsins losta; að kenna þeim að búa sig með blygðunarsemi og alvarlegri siðprýði, ekki með fléttuðu hári og kostbærum skart- flíkum, og hver og ein af þessum ungu kven- persónum, sem hér er, hefir sítt hár snúið í fléttur, sem líkast væri að hégóma girndin sjálf hefði brugðið; þessar segi eg, skulu sníð- ast af; hugsið eftir þeim tíma sem fer til ónýtis við------” Hér gengu þrír kvenmenn í stofuna. Þær hefðu átt að koma litlu fyr, til að hlusta á þessa ræðu um kvenbúninga, því að þær voru forkunnar vel klæddar.. Tvær voru ungar, milli fermingar og tvítugs, höfðu hatta úr gráleitu bjórskinni með strútsfjöðrum, eins og þá var siður og undan þeim fagra höfuðbúnaði hrundi mikið hár í vandlega liðuðum lokkum; sú elzta hafði yfirhöfn úr dýrmætu flaueli með bryddingum úr marðarskinnum, framan á höfðinu hafði hún hana kamb úr hrokknu hári, að keyptu sunnan af Frakklandi. Þetta var kona Mr. Brocklehurst og dætur þeirra; Miss Temple tók á móti þeim hæversk- lega og leiddi þær til heiðurs sæta við annan gafl skóla stofunnar. Þær höfðu komið í sama vagni og þeirra æruverða skyldmenni og höfðu haldið í rannsókn til efri lofta, meðan hann lauk af viðskiftum við ráðskonu, yfir- heyrði þvotta konu og veitti skóla stýru ofaní- gjöf. Nú hófu þær tal og umvandanir við Miss Smith, sem átti að líta eftir nærfatnaði og svefnloftum; en mér gafst ekki færi til að lilusta á þeirra skifti, því að nú fékk eg annað um að hugsa. Meðan eg hlýddi til hvað skólastýru og Mr. Brocklehurst fór á milli, hafði eg gætt þess vel, að láta sem minst á mér bera, þóttist óhult ef ekki væri tekið eftir mér; eg sat keng- bogin við borðið, lézt vera að leggja saman tölur og hélt spjaldinu fyrir andlitið. Þetta hefði tekist vel, ef svo illa hefði ekki viljað til, að eg misti tökin á spjaldinu með einhverju móti; það datt ofan á gólf og brotnaði með svo háum skelli, að allra augu snerust að mér; þá þóttist eg vita hvað verða mundi og meðan eg beygði mig til að tína upp brotin, herti eg hugann móti því versta. Það lét ekki standa á sér. “Gálaus stúlka!” mælti Mr. Brocklehurst og lagði við í sömu andránni — “Það er nýja stúlkan, sé eg er. Eg má ekki gleyma, að eg þarf að segja nokkur orð henni viðvíkjandi.” Svo áagði hann í hærri róm, og hversu hátt fanst mér hann hafa! “Stigi barnið fram, sem braut spjaldið!” Af sjálfs dáðum var mér ómögulegt að hrærast; eg var magnlaus, en tvær stórar stúlkur kiptu mér upp og ýttu mér til hins ógurlega dómara, Miss Temple kom á móti mér og studdi mig og hvíslaði að mér: “Vertu ekki hrædd, Jane, eg sá að þetta var óviljandi. Þér skal ekki verða refsað.” Þessi gæzkufullu orð skáru mig í hjartað. “Eftir svolitla stund fær hún að heyra, að eg sé undirförul og þá forsmáir hún mig,” hugsaði eg með sjálfri mér og við þá tilhugsun fyltist eg heiptar hug til Reed, Brocklehurst & Co. Við Helen Burns vorum ekki líkar. “Færið þennan stól hingað,” sagði Mr. Brocklehurst og benti á háan stól, sem um- sjónar stúlka hafði setið á. Stóllinn var sótt- ur. “Setjið barnið á stólinn.” Eg var tekin upp og látin á þann háa stól, en ekki vissi eg hver það gerði, því að eg vissi varla hvað fram fór; eg sá það eitt, að eg var álíka há í lofti og nefið á Mr. Bmckle- hurst, að ekki var meira en þrjú fet á milli okkar og fyrir neðan mig blikaði á gult siiki og silfur gráar fjaðrir, líkt og á skýja bólstra. Mr. Brocklehurst ræskti sig, sneri sér að kvenfólki sínu og mælti: “Dömur, Miss Temple, kennarar og börn, þið sjáið allar þessa stúlku?” Sú spurning var óþörf, eg þóttist finna allra augu, eins og bruna gler á mínu sviðna hörundi. “Þið sjáið að hún er ung ennþá, ykkur er auðséð, að hún hefir áþekt sköpulag og önnur börn; Guð hefir af gæzku sinni gefið henni sama sköpulag og okkur öllum; það sést ekki af neinum sérlegum líkamans lýtum, að henn- ar innræti er öðrum ólíkt. Hver mundi halda, að sá vondi hafi allareiðu fundið í henni þjón og erindis reka? Eigi að síður, þó bágt sé frá að segja, þá er þessu svo varið.” Hér varð málhvíld — mér rénaði æsingin og skjálptinn, eg þóttist finna, að ilt gæti varla versnað og að þessa raun mætti eg til að standast og gugna ekki. “Mín kæru böm,” mælti blágrýtis klerk- urinn með hrærðum rómi, “þetta er sorgleg og sár hörmuleg stund, því að skyldan býður mér að vara ykkur við, að þessi stúlka, þó lítil sé og þó hún hafi átt kost á að vera ein af Guðs gimbrum, er samt útskúfuð; tilheyrir ekki hinni sanntryggu hjörð heldur er augljóslega utanveltu aðskotadýr. Þið verðið að vara ykkur á henni, þið verðið að forðast hennar dæmi: ef til kemur, forðast hennar félagsskap, hleypa henni ekki að leikjum með ykkur né að samræðum ykkar. Kennarar, yður ber að hafa gætur á henni: gá að hverri hennar hreyfingu, vega orð hennar nákvæmlega, rannsaka vand- lega athafnir hennar, refsa líkama hennar til þess að frelsa sál hennar, ef vera skyldi að sáluhjálp mætti í þessu falli takast, því að (eg segi frá þessu stamandi tungu) því að þessi stúlka, þetta barn, fætt í kristinna manna landi, verri en margt heiðið barn sem biður bænir sínar til Brahma og krýpur á kné fyrir því skurðskrípi Juggemaut — þessi stúlka er — lýgin!” Nú kom langt hlé, eg var farin að hafa vita minna full not og tók eftir því, að Brock- lehurst snótirnar tóku upp klúta og brugðu þeim upp að augunum, sú elzta reri í sætinu, hinar yngri sögðu í hálfum hljóðum: “Hrylli- legt!” Mr. Brocklehurst tók til aftur: “Þessa varð eg vís af konu sem gerði á henni kærleiks verk, þeirri frómu og elsku- ríku kvenpersónu sem tók hana munaðar- lausa, fóstraði hana sem sitt eigið barn, en þetta vesala stúlkubarn galt hennar gæzku og göfuglyndi með vanþakklæti svo miklu, svo hræðilegu að hin ágæta húsmóðir hennar og athvarf mátti til með að koma henni burt frá sínum eigin börnum, af því að hún óttaðist að þeirra sakleysi spiltist af hennar vonda eftír- dæmi. Hún hefir sent hana hingað til lækn- ingar rétt álíka og Gyðingar forðum sendu vanheila til hinnar kraumvellandi Bethesda, og eg bið yður þess, skólastýra og kennarar, að þér látið ekki vatnið staðna ná Iygnt vera. í kringum hana.” • Með þessum háleita hnykk hnepti Mr. Brocklehurst efsta hnappnum á yfirhöfn sinni, mælti nokkur orð í hljóði til kvenfólks síns, sem stóðu upp og kvöddu Miss Temple með hneigingu og síðan fetaði sú fagra fylking út af stofunni, með prýðilegu látæði. Sá sem dæmdi mig sneri sér við í dyrunum og mælti: “Það er bezt hún standi á þessum stól hálfri stundu lengur og að enginn tali orð við ’ ” öcm naiui eg gmti ekki hugsað til að standa á mínu eigin fótum á miðju skóla gólfi, var nú sett forsmánar stalla í allra augsýn. Tilfinningu mínum get eg ekki með orðum lýst, en ré þegar þær voru að brjótast upp til að tal fyrir kverkar mér og kæfa andar dráttin kom að stúlka og leit við mér um leið og hí gekk hjá. En það ljós sem skein af þei: augum! Undarlega varð mér við þann augr geisla! Sú tilfinning sem hann vakti í mé reisti mig við! Það var því líkt sem písla vottur eða hetja gengi hjá þræl eða fórn: lambi og veitti því kjark og orku um leið. E bældi niður þá ofkend sem stríddi á mig c stoð stöðug og upplits brött á stólnum. Hele urns gekk sína leið og talaði til Miss Smitl sem snupraði hana fyrir að rápa með hégón iegt ermdi; þegar hún fór til baka brosti hú við mer. Hvílíkt bros! Eg man það enn c veit nu að það stafaði frá forkunnar viti c sannri hugprýði. Hún var skarpleit og mögu graeygð og mneygð, en andlitið ljómaði eir og engil^ svipur af brosinu. En þó hafði Hele urns þa stundma “sóða merkið” á hanc eggnum og rúmri stundu fyr hafði eg heyi Miss Scatcherd dæma hana til vatns o bvauðs i miðdegis niatinn næsta dag fyrir a ski a miður þokkalega útlítandi stfl. Svo c hlín°mrn ^ maimeSkjan f eðli sínu, slíki sfmtlrf TT JafnVel á SkærUStu stjö™um o umt foik (ems og Miss Scatcherd) er fund dæ 1 Íl"r mÍnStU gal’a en sjónlaust á þan æilega ljoma er af stjörnunum stafar. , —yar siiuo og ailar i matsalar að fá sér bita. Þá áræddi sknða af stólnum og settist á gólfii norm; þa var farið að rökkva. Sá töfi ur sem hafði stutt mig tók að þrotna 0g unnn að vakna þangað til eg lagðist á og gret. Helen Burns var ekki viðstödd Var athvarf’ eS var ein 0g gafst upp,’ sjálfa mig og tár mín vættu gólfið. E, ætlað mer að vera svo góð, að gera svc i Lowood, að eignast sVo marga vini, í og goðvild. Eg var komin vel þann sama morgun var eg sett efst nunum bekk, Miss Miller hafði hrósað framförum, Miss Temple samþykti því andi, lofaði að kenna mér að teikna c mig læra frönsku ef eg héldi sömu fran i tv0 manuði til; skólasystur mínar lél vel eg var tekin fyrir jafningja af þei. voru a minum aldri, og ekki áreitt af n< nu var svona komið fyrir mér að eg lá ■ ír'"og/ótum troðin: «a* ^ n°kk“'-: nsið við aftur? ‘Aldrei,’ ’hugsaði eg með mér og heitt og hjartanlega að mega fá að dey er eS barðist við ekkann með þessum hi um, kom Helen Burns gangandi til míi kaffibolla og brauðbitann minn.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.