Heimskringla - 14.11.1934, Side 5
WINNIPEG, 14. NÓV. 1934
rf E I MSKRJNGLA
5. SIÐA
mál heimtar. Syndakenning-
arnar í þessu efni gerðu heil-
brigt, hreint, eðlilegt líf að við-
urstyggilegum óþverra. Sam-
band pilta og stúlkna er eins
eðlilegt og heilbrigt í mannlegu
lífi og sólin og sumarið er blóm-
um vallarins og merkurinnar.
Þegar þar er gætt heilbrigðrar
skynsemi kemur engin synd til
greina.
Samband og sambúð eijis
manns og einnar konu er eina
ráðið til þess að byggja heimili
og sælu.
En til þess að piltur og
stúlka geti átt framtíð á þeim
grundvelli verða möguleikar og
tækifæri að vera fyrir hendi til
iþess að velja; en til þess að geta
valið viturlega verður að vera
tækifæri til samfunda og kynn-
inga — þetta gildir ekki síður
í ástamálum en í vinavali og af
þeim ástæðum tel eg það nauð-
synlegt að ungt fólk hafi tæki-
færi og frelsi í þeim efnum. í
félagslífi þar sem heilbrigð um-
gengni pilta og stúlkna ætti sér
stað; þar sem þau hefðu ó-
hindrað og eðlilegt tækifæri til
þess að kynnast trúi eg því að
um engar hættur væri að ræða
— eða að minsta kosti miklu
færri en í andrúmslofti fornrar
hjátrúar og útlifaðra hindur-
vitna.
Eg gæti haldið áfram og talið
upp ótal fleiri brot sem eg hefi
framið gegn þeim siðferðfte-
kenningum sem eg- var alinn
upp við. Eg hefi slitiö mig laus-
an frá þeim einni eftir aðra og
skapað mér sjálfur siðferðislög-
mál þar sem eg hefi reynt að
gæta heiðarlegs lífernis, félags-
lega heilbrigðs og uppbyggilegs
með engum hjátrúarhöftum. En
svo skal hér látið staðar num-
ið; eg veit að eg losna aldrei
fullkomlega við þau áhrif
sem hinar fornu, fölsku kenn-
ingar höfðu á hugarfar
mitt og sálarlíf, eg veit að
foreldrar mínir og aðrir gerðu
þetta alt í bezta skyni — reyndu
að bjarga mér frá því, sem kall-
að var synd og steyptu þAU sál-
arlíf mitt -í sínu eigin móti í
þeim ásetningi að fullkomna
mig, þó það stefndi alt í öfuga
átt og stimplaði mig þeim
fingraförum sem til óheilla
Ieiddu og aldrei verða með öllu
afmáð. — En samt finst mér
að eg geti sagt það meö sanni
og talsverðu stolti að eg er
ekki lengur “góður drengur”
— eg er betri drengur. «
Sig. Júl. Jóhannesson,
þýddi.
Mér dettur í hug í sambandi
við þetta erindið hans Þor-
steins Erlingsson:
“Eg veit þó sitt bezta hver vin-
ur mér gaf,
og viljandi blekti mig enginn,
en til þess að skafa það alt
saman af
er æfin að helmingi gengin;
það verður á bók þess svo var-
lega að skrifa,
sem veikur er fæddur og skamt
á að lifa.
Þýðandinn.
1 lúterskum kirkjum er þess
víða getið, að nú eru 400 ár
liðin frá því biblían var útgefin
á öðru tungumáli en latínu og
grísku. Sá hét Marteinn Luth-
er, þýzkur sem vann það verk.
Nú er biblían útgefin á öllum
tungumálum, sem þekkjast, en
hvergi lesin á latínu og grísku,
nema í presta efna skólum.
* * *
Tíu loftför Bandaríkja stjóm-
ar flugu yfir Winnipeg í sum-
ar, norður til Alaska. Þeir
gerðu landabréf af tuttugu þús.
fermílum þess landshluta, á
þrem dögum, með sex Ijós-
myndavélum er hver hafði sex
gler, frá 16,000 feta lofthæð.
KaupiS Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
HAUST-HREGG
Þegar fjálgast yndið er,
úlfur nálgast sauðinn.
Af oss tálgast auður fer,
öllu sálgar dauðinn.
Harma æðir alda mörg
örlaga þræði bundin,
kyljan næðir hof og hörg,
hjartans blæðir undin.
Feigð má hér á flestu sjá,
flemtur lér og dauða.
Hörmung er að horfa á
hauðrið bera og auða.
Hárra vinda hamfarir
harm um strindi leiða,
ama lyndi ófarir
yl í skyndi deyða.
Haustið strangan legst í leik
lífs forganga notin,
visnuð hanga blöðin bleik,
iblóma angan þrotin.
Jarðargróður allur er
undir flóði meina,
svanur hljóður situr hver
sorgaróð að kveina.
Líksöng drynur dauða-blær,
deprast hlynur auður.
Sólar skinið færist fjær,
fjúk á dynur hauður.
Færast svell í freðna jörð
frosta-smellir duna,
á fjöllum skella fjúkin hörð
fannir um velli bruna.
Foldar skrúðans yndi autt
er nú knúð til dómsins,
þrumar um rúða rjóðrið snautt
röddin lúöur-hljómsins.
Því er milda vonin veik
völlur hildar bleikur,
lífs í tryldum trölla leik
titra gildar eikur.
Þó um stund hér eyði ís,
alt líf blundi í högum,
upp úr grund það aftur rís
al-lífs bundið lögum.
Þannig líðum líka vér
lífs nær tíð er þrotin,
löngu stríði lokið hér.
—lukkuskíðin brotin.
En hvort rísum aftur, því
örlagadísir ráða,
mér eg kýs að una í
andans-hýsi þráða.
Út á sæinn eilífðar
einhvern daginn förum,
eftir haginn hérvistar,
—harms, að nægja kjörum.
M. Ingimarsson
FRÁ ÍSLANDI
Eftir “Vísi”
Úr Dýrafirði
14. okt.
Frá Núpi í Dýrafirði símar
fréttaritari útvarpsins, að þar
um sveitir hafi að undanförnu
verið sífeld votviðri. Talsverð
hey eru enn úti í Önundarfirði
og víðar. Ógæftir eru til sjávar.
Mikil snjókoma var þar í nótt
og í dag. — Núpsskóli var sett-
ur í gær, nemendur eru 31.
* * *
Vegurinn um SiglufjarðarskarS
Siglufirði 14. okt.
Enn er framhald af söfnun
gjafadagsverka til vegarins yfir
Siglufjarðarskarð, og hafa nú
safnast loforð um yfir 3000
dagsverk.
* * *
Fjárskaðarnir í fyrra mánuði
14. okt.
Úr Skagafirði símar fréttarit-
ari útvarpsins, að í síðustu
göngum, sem eru nú nýlega um
garð gengnar á afréttum Skag-
firðinga, hafi fundist talsvert
af ræflum af sauðfé, er farist
hafi í fönn í norðanhríðinni
seint í fyrra mánuði. — Þess
varð vart að margt fé hafði
skriðið úr fönn og ekki sakað.
Öll síld, er söltuð var á Sauð-
árkóki til útflutnings, hefir nú
verið flutt út. Síldin var 11,000
tunnur og þykir mikil tekju-
grein fyrir þorpsbúa. Flutninga-
skipið Steady hefir tekið fisk
til útflutnings af Sauðárkróki
og Hofsós, og átti að íeggja af
stað til Englands í gærkveldi.
Von var á Sindra í dag, til
þess að taka bátafisk úr Skajp-
firði. — Afli hefir verið sæmi-
legur undanfarið.
* * *
Kirkjuvígsla
14. okt.
Hin nýja kirkja í Vík í Mýr
dal var vígð í dag, með mikilli
viðhöfn af biskupi íslands og
þjónuðu við vígsluna allir prest-
ar Vestur-Skaftafellsprófasts-
dæmis og einn úr Rángárvalla-
prófastsdæmi. Að athöfninni
lokinni flutti Gísli Sveinsson
sýslumaður erindi um sögu
kirkjubyggingarmálsins í Vík.
<* * *
Frá Akranesi
Akranesi 9. okt.
Fiskþurkun er nú lokið hér
á Akranesi. Síðasta fiskinn tók
Haraldur Böðvarsson þurran í
hús 29. f. m. Fiskþurkun gekk
sæmilega þó sumarið væri’ vot-
viðrasamt. Sjaldan rigndi á
breiddan fisk, en stundum varð
að taka saman þegar breiðslu
var lokið eða fyr.
Heyfengur er talinn góður hér
á Akranesi og í nærsveitum og
nýting var allgóð.
Síðasti Akranesbáturinn hætti
síldveiði í reknet í Jökuldjúpi
30. f. m. Á tímabilinu frá 20.
júlí til þess tíma var síldveiði
Akranesbátanna sem hér segir:
Ver 1203 tunnur, Bára 564
tunnur, Aldan 445 tunnur, Víðir
765 tunnur, Sæfari 92'/2 tunna,
Sjöfn 841/4 tunna, Hafþór 282>/2
tunna. — Öll þessi síld hefir
verið fryst hér á Akranesi og
geymd til beitu á næstu vertíð.
Auk þess hefir Hafþór lagt á
land í Keflavík 180 tunnur síld-
ar. — Ver hefir lengst af í sum-
ar stundað dragnótaveiðar og
aflað vel og selt afla sinn til
Reykjavíkur.
Barnaskólinn hér á Akranesi
var settur 1. þ. m. Starfar hann
í 7 deildum, þar af tveim tví-
skiftum. Skólaskylda barna var
nú færð úr 10 ára aldri til 7 ára
aldurs. Innrituð voru 220 börn.
Unglingaskóli í tveim deildum
var settur 4. þ. m. Honum er
ætlað að starfa í 4 mánuði.
Nemendur eru 28, og er aðsókn
þetta mest. Kennaralið barna-
skólans skiftir með sér kensl-
unni.
* * *
Þorst. Þ. Þorsteinsson
skáld, sem lengi hefir dvalist
vestan hafs, hefir nýlega gefið
út “frásögn í sögustíl”, er hann
nefnir Kossa. Vísir spurði höf.
að því, hvort þetta væri skáld-
saga. “Það eru bara Kossar”,
sagði skáldið, “og það er alls
ekki víst, að stúlkurnar hér í
Reykjavík eða aðrir þurfi á
minni tilsögn að halda”. Var
auðheyrt að hann bjóst heldur
við því, að fólk hér kynni kossa-
listina, engu síður en aðrir. —
Þ. Þ. Þ. er löngu kunnur af rit-
störfum sínum. Hann gaf út
tímaritið “Sögu” um sex ára
skeið, meðan hann dvaldist í
Winnipeg og ráðgerir að hefja
útgáfuna af nýju hér í Rvík.
um næstu áramót — “Saga”
var afarfjölbreytt að efni, eins
og getið mun hafa verið um
hér í blaðinu á sínum tíma.
* * *
Bátabraut á Ólafsfirði
16. okt.
Ólafsfirðingar hafa nú lokið
við bátabraut sína, og var fyrsti
báturinn settur í land þann 4. þ.
m. Ennþá er aðeins rúm fyrir
10 báta, en með litlum kostnaði
má stækka brautina eftir vild.
Hægt er að taka alt að 30 smá-
lesta skip.
Fréttaritari útvarpsins á
Akureyri segir, að allur útbún-
aður bátabrautarinnar sé hinn
vandaðasti, og hafi mannvirki
þetta þó ekki kostað nema
16,000 krónur. Útgerðarmenn
sjálfir hafa lagt fram fé til fyr-
irtækisins. Brautin er í aðal-
atriðum sniðin eftir bátabraut á
Akranesi, en þó að ýmsu leyti
aukin og fullkomnuð. Svein-
björn Jónsson byggingarmeist-
ari hefir staðið fyrir verkinu.
Bátabraut þessi er til mikils
hagræðis fyrir Ólafsfirðinga,
þar sem þeir hafa áður orðið
að setja báta sína á Akureýri.
* * *
Af Snæfellsnesi ....
16. okt.
Haustvertíð er nýbyrjuð í Ól-
afsvík. Gæftir eru góðar og
sæmilegur afli. Hilmir hefir ver-
ið þar undanfarið og tekið báta-
fisk til útflutnings. Einn bátur
úr Ólafsvík býr sig nú á drag-
nótaveiðar.
Á höfninni á Sandi hefir
verið dálítil síldveiði undanfarið.
Síldin er höfð til beitu.
Heyskapur gekk vel á utan-
verðu Snæfellsnesi í sumar.
Mikil uppskera varð úr görð-
um á Sandi í haust og ekki bar
á jarðeplasýki. Hinsvegar ó-
nýttist að mestu leyti uppskera
úr görðum í Ólafsvík vegna
jarðeplamyglu, nema hjá þeim
sem notuðu Kerrs og Stóra
Skota til útsæðis, en næstum
ekkert bar á jarðeplamyglu í
Ólafsvík í fyrra.
Skarlatssótt hefir gengið í
Ólafsvík í alt sumar en virðist
nú vera í rénun.
* * *
Brúarstæði á Skjálfandafljóti
Húsavík 18. okt.
Árni Pálsson verðfræðingur
hefir undanfarið verið að mæla
brúarstæði á Skjálfandafljóti
undan Skriðulandi. Við botn-
rannsókn þar reyndist 3.70
metrar niðui' á fastan grundvöll
austan fljóts, en litlu dýpra að
vestan. Lengd brúarinnar
sjálfrar er áætluð 190 metrar.
Auk þess garður frá vestari brú-
arsporði að bakka 90 mtr. —
Sýslunefnd kaus sérstaka fram-
kvæmdanefnd í þetta mál á
síðasta vori, og hefir hún sótt
til Alþingis um fjárveitingu til
brúargerðarinnar.
* * *
Vélbátur strandar
Isafirði 20. okt.
Vélbáturinn Svend strandaði
á sandinum í Bolungarvík í gær
kveldi er hann var að koma úr
róðri. Mannbjörg varð.
* * *
Húsavíkur-bryggja
20. okt.
Bryggjan á Húsavík er nú
nothæf til síldarsöltunar, og
segir fréttaritari útvarpsins í
skeyti þaðan, að gufuskipið
Drangey hafi verið afgretit við
bryggjuna, og láti skipstjórinn
hið besta af því.
Bryggjan er nú komin 200 m.
í sjó fram, og geta síldarskip
nú lagst við hana. Dýpi viö
byggjuhaus er 5 metrar
með fjöru. Þó á að lengja
hana enn um 20 metra, og bæta
þar við steinnökkva. — Bryggj-
an kostar nú um 230 þús. krón-
ur, sem er að mestu leyti láns-
Frh. á 7. bls.
HEIMBOÐ
Frh. frá 1 bls.
mikill burgeis í sínu ríki og sáu
uppá þokkalegar meyjar leika
listuga dansa.
Enn héldu þeir fram ferðinni
um Manchuriu, sem nú nefnist
Manchuoko, til Mukden, sátu
veizlu upp á kínverskan móð,
hjá býjarstjóra með venjuleg-
um ræðu og minna flutningi,
sáu spítala mikinn og hallir
þær sem konungur af Manchu
kyni bjuggu í til forna, svo og
kola námu þar, sem kolin eru
ekki grafin l'xr jörð, heldur er
kolastálið eins og lágur hamar,
sem blasir við ofanjarðar.
Höfuðborg þessa nýja ríkis
heitir Hsin-King og þar voru
ferðamenn leiddir fyrir þann
sem nú kallast keisari með
nafninu Pu Yi, síðan lestaðir
til Harbin. Þá fór sumt að
heltast úr lestinni af þreytu og
kvillum. Þeir sem stóðust volk-
ið, héldu til Yokohama og sátu i
lokaveizlu með mikilli kæti hjá
konsúl Bandaríkjanna, stigu á
skip við veifandi fána og dynj-
andi hornablástur og knúðu
rastir heimleiðis. Þótti þeim
viðtökurnar hinar beztu og veit- !
ingar með vinsemd' og miklu ör-
læti framreiddar. .
Á nýlega afstöðnum ársfundi
hinnar meþódisku biskupa
kirkju í Bandaríkjunum var j
þetta samþykt meðal annars:
1. Að vinna sem harðast að
því að banna vínsölu.
2. Að víta blöðin fyrir að
flytja auglýsingar um brenni-
vín.
3. Að aftaka kvikmynda sýn-
ingar sem sýna og ýta undir
holdsins breyskleika.
4. Að skora á stjórnina að
taka að sér vopnasmíði, til að
draga úr manndrápum í stríðs-
hættu. — Félögin sem búa til
vopnin, meinast etja þjóðum
saman ,til þess að selja sem
mest af sínum skæða vamingi
og græða svo mikið, jafnvel
meðan svonefndur friður helzt,
að þeim eru flestir vegir færir.
Fyrnefndur fundur lýsti því,
að nú væri mikil brennivíns öld
í Bandarkjunum, og leynibrugg
og prang með drykkjarföng
engu minni en fyr, meðan sölu-
bannið stóð.
* * *
Launum af Nobels verð-
launasjóði var í ár skift milli
þriggja lækna í Bandaríkjun-
um “fjrrir lifrar lækningar í
blóðleysis veikindum”. — Þeir
heita Dr. Whipple í Rochefeter,
Dr. Minot, háskólakennari í
Harvard og Dr. Murphy í Bo-
ston. Tveir þeir síðarnefndu
hafa um æði langan tíma gefið
blóðvana sjúklingum lifur inn,
til að vinna á móti veikindum
þ’eirra. Ekki er þess getið, hvort
ráð þeirra séu óyggjandi, þó
væntanlega sé til einhverra
bóta. Launin voru 162.607 kr.
92 aur eða sem næst $41,000.
Friðarlaunin af sama sjóði er
sagt að Norman Angell muni
fá óskift. Hann hefir skrifað
bækur um stríð, herbúnað og
fjámál, mjög víðlesnar..
Þér sem notið—
TIMBUE
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Blrgöir: Henry Ave. Ea»t
. Sími 95 551—95 552
Skrtfstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
BUSINESS
EDUCATION
>»\
A. í°' cgerytKin4 \
\
avrung„ vnC \
extbooL. Wu ^ (or
;la5Se5 L ryrefcr nxrúon m l
°U' UreCir>
roorrxs. Cit? st^lenö
f°r 0UVi0S á«.r«A Don’t
„rranged '1 . rortK«Cotn-
PU' corrsyo^
inionP'°5Par be rnek-
notkin&.«n „^srds <
i Ttud*
f0 R/
compute
PROSPrctUS
To tKe Secretary:
Dominkm Business College
Winnipeg, Manitobe
WitKout obligation, please send me full particulars
of your courses on“Streamlin«" business training.
Address
^cDominion
BUSINES^ COLLEGE
’ ÖM IHt MAlí • WINNIP^G -
ÞÉR GETIÐ REITT YÐUR Á
RJÓMAN 0G MJÓLKINA
HJÁ 0SS
REYNIB
MODERH
VÖRUR 0G VIÐSKIFTI
SIMI 201 101