Heimskringla - 14.11.1934, Page 8
8. SIÐA
ntlMSKRINGLA
WINNIPEG, 14. NÓV 1934
FJÆR OG NÆR
Séra Jakob Jónsson messar í
Sambandskirkju í Winnipeg
næstkomandi sunnudag.
* * *
Séra Guðm. Ámason messar
á Lundar 18. nóv. kl. 2. e. h.
* * *
1 morgun komu þeir dr. Rögn-.
valdur Pétursson og séra Jakob
Jónsson vestan frá Wynyard, en
þar hafa þeir verið í vikutíma.
Séra Jakob messaði í Leslie og
Wynyard s. 1. sunnudag og var
húsfyllir við messurnar. Þjóð-
ræknissamkomur voru og
haldnar á þessum stöðum með-
an dvalið var vestra og fluttu
þeir báðir, dr. Rögnvaldur Pét-
ursson og séra Jakob þar fyrir-
lestra. Voru samkomurnar mjög
vel sóttar enda var um fágæta
skemtun þarna að ræða, er þeir
er þess áttu kost hafa ekki kært
sig um að fara á mis.
* * *
Ásmundur P. Jóhannsson
fasteignasali kom vestan frá
Wynyard í gær. Var hann þar
ásamt dr. Rögnv. Péturssyni og
séra Jakob Jónssyni í erindum
fyrir Þjóðræknisfélagið og flutti
ræður í Wynyard og Leslie um
félagsmálin er var tekið hið
bezta, eins og þjóðræknismálum
yfirleitt er gert vestra.
* * *
Islenzkir drengir frá 16—18
ára aldurs ,sem ætla sér að
leika á komandi vetri, ættu að
senda nöfn sín sem fyrst til
Carls Thorlákssonar úrsmiðs.
699 Sargent Ave., eða finna
hann að máli. Hann sér um
vistun þeirra hjá félaginu “Fálk-
inn”.
HATTAR
Við tökum gamla flóka hatta
ojEf gerum sem nýja. Quinton’s
“Showerbath” hreinsun ger-
breytir þeim og eftir sttutan
tfma færðu hatt þinn til baka
stífan og spengilegan—aðeins
fyrir—
50c
SímiS 42 361 strax
Líkkistur til Sölu
Undirritaður hefir til sölu
handsmíðaðar líkkistur úr eik
og furu. Eru þær sterkar, og
frá þeim gengið á allan hátt
sem venjulegum líkkistum,
fóðraðar með silki o. s. frv.
Verð $65.00 til $125.00 hver.
Pöntunum sint samstundis.
Til sýnis að:
867 Ingersoll St. Sími 35 974
F. Hansen
Jakob Hall frá Edinburgh,
N. D. kom til bæjarins snöggva
ferð í byrjun þessarar viku.
* * *
Dr. Jón A. Bíldfell heldur
bráðlega fyrirlestur með mynd-
um um Baffin Land og íbúa
þess, hér í Winnipeg. Staður
og stund verður auglýst í næsta
blaði. Dr. Bíldfell er fyrir
skömmu komin þaðan að norð-
an, en þar hafði hann spítala-
störf með höndum fyrir sam-
bandsstjórnina.
* * *
Ásmundur Eymundsson til
heimilis í Mikley á Winnipeg-
vatni, lézt 27. október. Hann
druknaði. Hann var 56 ára
gamall, kom heiman af ís-
landi árið 1902, frá Dilksnesi í
Hornafirði ásamt foreldrum sín-
um og systkinum. Fóru foreldr-
ar hans aftur heim eftir nokkra
ára dvöl hér vestra og systkini
hins látna öll nema einn bróðir,
Stefán, er býr í Winnipeg. Ás-
mundur heitinn skrapp heim
árið 1929, en kom vestur aftur
1931. Settist hann að í Mikl-
ey þar sem hann hafði áður
verið. Hann var hagleiksmað-
ur sem hann átti ætt til og
stundaði um skeið gullsmíði. —
Jarðarförin fór fram 10. nóv.
Séra Eyjólfur J. Melan jarð-
söng.
* * *
Gamli maðurirm
raular við sjálfan sig
Nú eg ekki fer eitt fet
framar út á stræti,
inni því eg ávalt sit
einn, og sviftur kæti.
G. J.
* * *
“Silver Tea” til minningar um
afmælisdag séra Jóns heitins
Bjarnasonar verður haldið :
fimtudagskvöldið (15. nóv.) í
þessari viku. Samkoman stend-
ur yfir frá kl. 8. til kl. 11 að
kvöldinu. Um kl, 9. flytur Dr.
Björn B. Jónsson stutta ræðu
um séra Jón. Skemt verður
einnig með söng. Allir eru
velkomnir. Tekið verður á móti
gjöfum til Jóns Bjarnasonar
skóla.
* * *
Fimtudaginn, 1. nóv., voru
þau Jóhann Friðrik Elíasson
frá Selkirk, Man., og Mabel
Gróa Johnson frá Peguis, Man.,
gefin saman í hjónaband af
séra Rúnólfi Marteinssyni að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður í Winnipeg.
* * *
Messuboð
Þann 18. nóv. messar séra
Sigurður Ólafsson á eftirfylgj-
andi stöðum:
Hnausaukirkju kl. 11. síðd.
Geysis kirkju kl. 2. síðd.
Víðir kirkju, kl. 8.45 síðd.
* * *
Ein deild Kvenfélags Sam-
Bandssafnaðar heldur “Demon-
stration Tea” í somkomusal
kirkjunnar á föstudaginn kem-
ur kl. 2.15 eftir hádeg.. !Fyrir-
lestur um matreiðslu verður
haldinn af nafnkunnri mat-
eiðslukonu. Verðu matreitt þar
á staðnum og aðferðir sýndar.
Þeir sem koma hafa tækifæri
að fá verðlaun. Fríar veitingar
fyrir alla, en aðgengur að sam
komunni er 15 cent.
Mrs. Jessie Maclennan
sem sækir um kosningu í bæjarráðs-
stöðu í 2. deild, er kona sem vel er
þekt fyrir opinber störf sín í Winnipeg.
Hún var kosinn fjörgur ár í röð sem
skólaráðsmaður og hlaut flest atkvæði
þeirra er kosningu hlutu.
Nú sækir hún um meira og víðtækara starfssvið, bæj-
arráðsstöðu. ..Aðal áhugamál hennar er betri húsakynni
og atvinna fyrir handverksmenn.
Hún hefir trú á því, að menn og konur sem reynslu
hafa, geti gert mikið og þarft verk í stjórn þessa bæjar
á þessum tímum.
Hún álítur einnig að fylkisstjórnin geti borið meira af
skattbyrði þessa bæjar, en hún gerir og létt byrðinni á
bæjarbúum.
Hún álítur ennfremur nauðsynlegt, að konur sé f
bæjarráðinu.
Mr. og Mrs. Konráð Jóhannes-
son, 723 Alverstone St., Winni-
peg komu s. 1. miðvikudag
sunnan frá Detroit. Fóru þau
þangað í eigin flugvél Mr. Jó-
hannessonar,. er yfirlíta þurfti
eins og allar flugvélar, eftir að
vissa vegalengd hefir verið flog-
ið í þeim. En meðan á skoðun-
inni eða viðgerðinni stóð í De-
troit, skruppu hjónin til Chi-
cago. Ferðin gekk eins og -í
sögu, enda er Jóhannesson í
fremstu röð flugmanna þessa
lands. Með þeim kom til baka
frá Chicago Mrs. Guðný Paul,
er dvelur nokkra daga í bænum.
* * *
Ein deild Kvenfélags Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg, efn-
ir til spilakvölds (Bridge Party)
í samkomusal kirkjunnar næst-
komandi miðvikudagskvöld 21.
nóv. Við ágætri skemtun er
búist.
* * *
Egilsína Guðlaug Doll, dóttir
Eyvindar Doll í Riverton, dó s.
1. föstudag á berklahælinu á
Ninette.
* * *
I. O. G. T.
Þessi börn og ungmenni voru
sett í embætti s. 1. laugardag í
ungtemplara og barnastúkunni
Gimli nr. 7.:
FÆT—Evelyn Torfason
ÆT—Guðrún Johnson
VT—Margrét Johnson
D—Margrét Lee
AD—Eleanor Stevens
K—Guðrún Thomson
R.—•Haraldur Benson
AR—Laugi Helgason
FTl—Jón Einarsson
G—Jóhann Tergesen
V—Harold Helgason
Hið árlega Hallowe’en masque-
rade party stúkunnar fór fram
í Parish Hall, 31. okt. Verðlaun
voru gefin fyrir bestu búninga.
Stúkan vottar þakkir öllum sem
hjálpuðu til að gera þessa kveld
stund ánægjulega.
* * *
Ungfrú Kristín Sölvadóttir
Jónsson, sem til Winnipeg kom
1930 heiman af íslandi og hér
vestra var víða kunn meðal
annars fyrir góða leiklistarhæfi-
leika, er hún sýndi er hún lék
Dóru í íeikriti E. H. K. “Hall-
steinn og Dóra”, er komin til
Reykjavíkur, að því er Alþbl.
hermir frá 26. október.
* * *
Takið eftir
Tombóla og dans til arðs fyr-
ir sjúkrasjóð St. Heklu nr. 33
verður haldin í G. T. húsinu,
mánudagskveldið 19. nóv. 1934.
Margir eigulegir munir verða á
boðstólum svo sem matvara,
“Electric Pad”. V^corð af við
frá Mr. Fredrickson. Inngangur
og einn dráttur 25c, byrjar kl.
8. e. h. Dansinn byrjar kl. 10
ágætis music. Komið og fyllið
húsið og styrkið gott málefni.
* * *
G. T. Spil og Dans
verður haldið á föstudaginn 1
þessari viku og þriðjudaginn í
næstu viku í I. O. G. T. húsinu,
Sargent Ave. Byrjar stundvís-
lega kl. 8.30 að kvöldinu.
Ágætir hljóðfæraflokkar leika
fyrir dansinum. — Lofthreins-
unar tæki af allra nýjustu gerð
eru í byggingunni.
Fyrstu verðlaun $15.00 og
átta verðlaun veitt þar að auki.
Allir velkomnir.
FRÁ ÍSLANDI
Um 17 þúsundir manna sóttu
heilsufræðisýninguna
Rvík. 24. okt.
Heilsufræðisýning Læknafé-
lags Reykjavíkur var opin í
Landakotsspítalanum 6—21 okt.
1934.
Aðsókn var mikil alla dagana,
svo að um 16—17,000 manns
munu hafa séð sýninguna, eftir
því sem næst verður komist.
Þar eð aðgangur var ókeypis
| næstsíðasta daginn og aðsókn
jþá gífurleg, er erfitt að segja
| með vissu hversu margir sýn-
ingargestir hafa alls verið. —
Skólar höfðu allir ókeypig að-
j gang, utan- sem innanbæjar-
skólar, þeir, sem til náðist, svo
I og flokkar manna eftir beiðni.
í kvikmyndahúsunum voru
i sex sýningar á myndum heilsu-
fræðilegs efnis auk skólasýn-
inga. Með kvikmyndunum
fluttu læknar skýringar —
(Hannes Guðmundsson, Gunnl.
Claessen, Niels Dungal, Lárus
Einarsosn, Helgi Tómasson).
í útvarp fluttu fyrirlestra á
vegum Læknafélagsins þeir próf
Guðm. Hannesson um skipulag
bæja, dr. med. Gunnl. Claessen
um Rauða kross íslands, próf.
Niels Dungal um nytjagerli, ól.
Helgason læknir lýsingar á sýn-
ingunni.
Á sýningunni sjálfri voru flutt
stutt erindi fyrir almenning um
farsóttir á íslandi (próf. Guðm.
Hanensson), berklaveiki (próf.
Sig. Magðnússon), meðferð
ungbarna (Katrín Thoroddsen
læknir), meltinguna (dr. med
Halldór Hansen), hjálp í við-
lögum (Þórður Þórðarson lækn-
tr), andlega heilbijigði (dr.
med. Helgi Tómasson), heilsu-
vernd bamshafandi kvenna
(próf. Guðm. Thoroddsen),
tenumar (Jón Jónsson læknir),
heyraina (Ólafur Þorsteinsson
læknir), krabbamein (próf. N.
Dungal), skipulagsuppdrætti
(próf. Guðm. Hannesson).
Auk þess fluttu læknár og
læknanemar daglega skýringar
fyrir gestunum í öllum deild-
um sýningarinnar og skátar
sýndu lífgunartilraunir.
í Læknafélagi Reykjavíkur
flutti gestur félagsins, dr. Per-
nice yfirlæknir frá Berlín fyr-
irlestur um þjóðemiskend Þjóð-
verja og sýndi auk þess kvik-
mynd sérfæðilegs efnis.
Kostnaður við sýninguna hef-
ir verið mikill, en vegna hinnar
ágætu aðsóknar og stuðnings
margra góðra manna og stofn-
ana hérlendis og erlendis, og
síðast en ekki sízt allra helztu
blaðanna í Reykjavík, eru þó
horfur á, að nokkur tekjuaf-
gangur verði af sýningunni. —
Hefir félagsstjórain í undirbún-
ingi tillögur um hvemig fé
þessu verði bezt varið í al-
menings þágu.
—Alþbl.
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu með af-
I falls verði, námsskeið við helztu
I verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaðsins.
* * *
I
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundinum við Mo-
i zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
! Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Funóir 1. íöstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsita
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
AFBRAGÐ
í Þýzkalandi verða allir (og
Hitler líka?) að bera á sér
merki til að sanna af hvaða
kynstofn þeir géu, og helzt langt
í ættir fram. Sá er bezt kynj-
aður, sem þýzkastur er og þýzk-
astur er sá ,sem hefir minst af
“útlendu” blóði í æðum sínum.
* * *
Einvígi háðu tveir franskir
nálægt París einn daginn, báðir
ríðandi, berir ofan að mitti,
með brugðnum sverðum, þeir
hleyptu hvor á móti öðram ogj
börðust þangað til annar féll
af baki og var fluttur á spítala.
Hinn særðist og báðir hestarair.
með
Handbróderingu
Þetta luncheon setti sýnir hæfi-
leika þína í sinni réttu mynd,
með J. & P. Coats’ Mercer-Cro-
chet — þessu ágæta bródering
garni, sem ekki litast upp og
fæst í ótölulega mörgum litum.
Sendið beiðni um fyrirmyndina
sem hér er sýnd.
J. & JP. Conts9
MEIiCER-
CROCIKET
Búið til í Canada af framleiðendum
Coats’ og Clark’s Spool Cotton
Notið ávalt Mllward’s-nálar, frægar
síðan 1730.
The Canadian Spool Cotton Co.,
Dept. HI-34B, P.O. Box 519,
MONTREAD, P. Q.
Gerið svo vel að senda mér frítt fyrir-
mynd af bróderingu þeirri, er hér er
sýnd.
Nafn ...........................
Heimilisfang ...................
Fremst að
vinsældum
Þúsundir halda
fram að White
Seal bjór sé
þeirra uppáhalds
drykkur. Þeim
fellur keimur-
inn — þeim fell-
ur styrkleikinn — þeir meta
gæðin — þeir dást að skær-
leika hans.
Iteynið eina flösku af White
Seal; nú á sínu gamla verði;
berið þetta saman við annan
bjór og þá skiljið þér vinsæld-
ir hans.
■USffSK?
Fæst i áfengissölubúðum
fylkisins í pappakassa með leð-
urspennum, á sveitarhótelum, í
veitingastofum og á klúbbum.
Til heimilisnota.
PHONE2OH70
Auglýsing þessi er ekki birt að skip-
un áfengissölunefndar stjómarinnar.
Nefndin ber enga ábyrgð á þeim
staðhæfingum sem gerðar em um
gæði vörunnar sem auglýst er.
Fyrir Borgarstjóra
er atkvæðis yðar óskað af
bæjarráðsmanni
J. A. McKerchar
Hans miklu hæfileikar og hagkvæm þekking, er
velferð þessarar borgar ómissandi.
Sem skólaráðsmaður, sem bæjarráðsmaður, sem
formaður fjármálanefndar í tíu ár, hefir hann vakið þá
eftirtekt á sér, að borgararnir munu fáum betur treysta
en honum fyrir málum bæjarins.
SETJIÐ TÖLUNA 1 VIÐ NAFN HANS
Á ATKVÆÐASEÐLINUM
Brennið kol og si )ari ið
9 it Premier Cobble (Sask. Lignite) Dominion Cobble (Sask. Lignite) Wildfire Lump (Drumheller) Western Gem Lump (Drumheller) Foothills Lump Bighorn Lump (Saunders Creek) Michel Koppers Coke Semet-Solvay Coke .$6.50 per ton . 5.90 “ .11.35 “ .11.35 “ .12.75 .13.25 .14.00 .14.50
All coal stored in Weatherproof sheds and delivered by our own trucks
Phones: 94 309—94 300 McCurdy Supply Co, Ltc 1.
j r r j Builders’ Supplies and Coal 49 NOTRE DAME AVE. E.