Heimskringla - 27.02.1935, Side 8
8. SÍÐA.
WINNIPEG, 27. FEB. 1935
HEIMSKRINGLA
FJÆR OG NÆR
Wynyard. Erindi þeirra Magn-
ússons hjóna er aðallega að
Séra Jakob Jónsson heldur. leita Mrs. Magnússon læknis-
fyrirlestur í Sambandskirkjunni; hjálpar, er verið hefir lasin að
mun, undanfarandi tíma.
* * *
Jón Einarsson smiður, og
bóndi við Foam Lake, Sask, er
hingað kom snemma á tímum
í Riverton, fimtudaginn 7. marz.
kl. 9. síðdegis. Umræðuefni:
“Þjóðkirkjan á íslandi”. íslend-
ingar í norður hluta Nýja-ís-
lands, ættu ekki að sleppa þessu
tækifæri að hlusta á séra Jakob. 0g bjó hér í bæ um langt skeið
andaðist hér í bæ að 640 Agnes
St,. á föstudagskveldið var 22 þ.
m. Jón var fæddur 18. febr.
1862 og því 73 ára að aldri.
Hann var ættaður úr Hrútafirði
(Strandasýslu), og fluttist hing-
að vestur fyrir rúmum 50 ár-
um síðan. Hann var skýrleiks-
maður mikill og víðlesinn. Lík
j hans var fiutt vestur á mánu-
dagskveldið og fór jarðarförin
| þar fram á þriðjudaginn var.
Útvarps messa
Séra Jakob Jónsson messar í
Sambandskirkju næstkomandi
sunnudag á venjulegum tíma.
Home Cooking Sale
Hjálparnefnd Sambandssafn-
aðar er að efna til útsölu á
heima tilbúnum mat, laugard.,
9. marz næstk. Verður þar alls- |
konar sælgæti til sölu og við
mjög sanngjörnu verði. Salan
hefst upp úr hádegi í fundarsal j
Sambandskirkju og stendur;
fram eftir kveldinu.
* * *
Bridge and Social
Jón Sigurðsson I.O.D.E. efnir J
til spila samkomu í samkomu-l
sal Sambandskirkjunnar, mánu-
dagskveldið þann 18. marz. Er
fólk beðið að hafa þetta kvöld
í huga og athuga auglýsingu
um samkomuna er birt verður
síðar.
* * *
Allmargir gestir komu hing-
að til borgarinnar vestan frá
Saskasatchewan á laugardags-
morguninn var, 23. þ. m. Um
þessa höfum vér heyrt getið eða
átt tal við:
Mr. Magnús Hinriksson
frá Churchbridge, Sask.
Mr og Mrs. Hallgrímur Sigurðs-
son, Foam Lake, Sask.
Mrs. Anna Thorsteinsson,
Leslie, Sask.
Mr. og Mrs. Magnús O. Magnús-
Son, Wynyard, Sask.
Mrs. Matth. Friðriksson,
Kandahar, Sask.
Magnús Hinriksson og þau
hjón Mr. og Mrs. Sigurðsson
héldu heimleiðis aftur á mánu-
dagskveldið var en þau Mr. og
Mrs. Magnússon og Mrs. Frið-
riksson tefja hér um nokkra
daga. Situr Mrs. Friðriksson
Þjóðræknisþingið sem fulltrúi
deildarinnar “Fjallkonan” í
Gleymið ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
* * *
Miðvikudaginn 23. janúar síð-
astl. andaðist að heimili sínu við
Climax, Sask., fyrverandi verzl-
unarmaður og bóndi í Dakota
Magnús Stephanson frá Kjarna
í Eyjafirði. Magnús var með
þeim er hingað fluttur á fyrstu
landnáms árunum og var einn
þeirra manna er suður fóru til
Dakota og völdu þar nýlendu-
stæðið. Er hans getið í Minn-
ingarriti Dakota nýlendunnar
1928. Magnús var tvígiftur. —
Fyrri kona hans var Valgerður
Bergmann systir séra Friðriks
heitins Bergmanns. Síðari kon-
an, er enn er á lífi, er Ólöf
Sigfúsdóttir Ólafssonar einnig
ættuð úr Eyjafirði. Magnús
var fæddur 1. des. 1852. Var
því rúmra 82 ára að aldri. Jarð
arförin fór fram í Climax 27.
s. m.
Próf. Richard Beck frá
Grand Forks, vara-forseti Þjóð-
ræknisfélagsins kom hingað til
bæjar í byrjun vikunnar til þess
að sitja Þjóðræknisþingið. -
Dvelur hann hér fram í vikulok-
in.
10 GOOD REASONS
Why You Should Traln at
Success Business College - Winnipeg
1.
Through superior service, the Success Business College of Winni-
peg became the largest private Commercial College in Westem
Canada. v
2.
More than 43,000 young men and women have enrolled for
Success Courses. Hundreds of these are now employers and their
preference for "Success-trained” office help creates an ever
increasing demand for Success Graduates.
3.
The Success is the only Business College in Winnipeg that has
been accredited by the Business Educators’ Association of Canada.
This Association admits only the best Commercial Colleges into
its membership.
4.
Students of the Success Business College are entitled to the
privilege of the B. E. A. examination system. B. E. A. standarda
represent the highest degree of efficiency in Canadian Commercial
education.
5.
The Success Business College employs only teachers of advanced
Scholarship and long successful teaching experience. The Success
system of individual and group instruction insures quick and
thorough results.
6.
The Employment Department of the Success Business College
places more office help than any other Employment Agency in
the City of Winnipeg. The service of this Department is available
only to Success students.
7.
The Success Business College admits only students of advanced
education and favorable personal characteristics.
8.
The Success Business College premises are well equipped and
comfortable. The College is located in the heart of the business
section of Winnipeg, where employers can conveniently step into
our office and employ “Success Graduates.”
9.
The Success Business College has no branches; it operates one
efficient College in which the principal and his staff devote their
best efforts and all their time to thorough instruction and careful
supervision of students.
10.
The majority of Commercial teachers in Winnipeg received their
business training at the Success Business College. It pays to at-
tend the College that is known as “The Teacher of Teachers.” Our
high standards attract the best young people in Westem Canada.
Wrlte For Free Prospectus
Individual Instruction At The College Home Study Courses By Mail
BUSINESS COLLEGE Portage Ave. at Edmonton St. WINNIPEG
BREYTING Á
SAMKOMUHALDI
ÞJÓÐR. ÞINGSINS
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins barst með símtali frá
Chicago á mánudaginn var (25.
þ. m.) sú leiðindafrétt er rask-
ar að mun samkomuhöldum
þingsins, út frá því sem auglýst
hefir verið. Gat fréttin þess að
Dr. Peston Bradley, mælsku-
maðurinn þjóðkunni er hingað
var von þann 27. þ. m. og beitið
hafði nefndinni að flytja hér
erindi á fimtudagskveldiði hefði
snögglega veikst á sunnudags-
kveldið var og væri því eigi
væntanlegur. Samkoma þessi
átti að haldast í Fystu lútersku
kirkju og var fyrir henni búið
að gera allar nauðsynlegar ráð-
stafanir. Varð nefndin því að
gera aðrar ráðstafanir Hefir
hún nú ákveðið að halda sam-
komu þessa í Goodtemplarahús-
inu á þeim tíma sem auglýstur
var og samið við Prófessir R.
Beck að flytja þar fyrirlestur á
íslenzku. Efni fyrirlestursins er:
Skáldið Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi. Auk fyrirlestursins
verður þar margskonar fleira
haft til skemtunar, svo sem
| söngur Karlakór íslendinga, upp
lestur, ávörp og gamankvæði.
Að skemtiskránni lokinni fara
fram þingslit. Eru allir boðnir
og velkomnir að njóta þessarar
kveldskemtunar eftir því sem
húsrúm leyfir. Samkoman bjrj-
ar kl. 8. e. h.
Nefndin.
* * *
Rósmundur Árnason frá Leslie,
skrifari deildarinnar “Iðunn” í
Leslie, Sask., kom hingað til
bæjar á mánudaginn og dvelur
hér fram yfir Þjóðræknisþing.
* * *
Betel tuttugu ára
Á föstudaginn í þessari viku
er tvítugs afmæli elliheimilisins
Betel. Verður þá haldin almenn
skemtisamkoma í Fyrstu lúter-
sku kirkjunni í Winnipeg til
minningar um tvítugs afmæli
stofnunarinnar. Hefir verið al-
veg sérstaklega vel vandað til
skemtiskrárinnar, meðal ann-
ars með ágætum söng. Mrs.
B. H. Olson syngur einsöngva
og fleira ágætt söngfólk skemt-
ir þar. Kaffiveitingar fyrir
alla sem koma. Inngangur verð-
ur ekki seldur, en samskota leit-
að, og gefst fólki hér ágætt
tækifæri, að sýna velvild sína
til hins vinsæla elliheimiiis. —
Kvenfélag Fyrstu lúterska safn-
aðar stendur fyrir samkomunni
og er það við því búið að taka
á móti fjölda fólks og vonar að
þar verði fjölmenni samankom-
ið.
Samkoman verður í Fyrstu
lútersku kirkju í Winnipeg,
föstudagskveldið í þessari viku,
hinn 1 marz og hefst kl. 8.15.
* * *
Thorst. J. Gíslason frá Brown,
Man., kom til bæjarins á mánu-
daginn. Hann er fulltrúi deild-
arinnar “ísland” og dvelur hér
fram yfir Þjóðræknisþing.
* * *
För mín til landsins helga og
Egyptalands, heitir ferðasaga
sem er nýkomin út eftir Sigfús
S. Bergmann. Er þók þessi
auglýst hér á öðrum stað í
blaðinu. Saga þessi er með
mörgum myndum og skemtileg
til aflestrar.
* * *
Jón Sigurðsson I.O.D.E. fé-
lagið mætir að heimili Mrs. S.
Jakobsson, 676 Agnes St., næsta
þriðjudagskveld 5. marz kl. 8.
¥ * *
Hr. Valdimar K. Bjömsson,
biaðamaður frá Minneota, Minn.
kom til bæjarins á sunnudags-
morguninn var. Flytur hann
erindi á “Frónsmótinu” mið-
vikudagskvöidið 27. þ. m. ,eins
og auglýst hefir verið. Með
honum kom þaðan að sunnan,
aldraður maður, hr. Guðl. Stur-
laugsson til þess að leita sér
hér lækninga við sjóndepru. __
Valdimar gerir ráð fyrir að tefja
hér um viku tíma í heimsókn
til settingja og vina.
Finnur Einarsson frá Foam
Laks, Sask., kom hingað til bæj-
ar á föstud.morguninn, var hann
að vitja föður síns, Jóns sáluga
Einarssonar er þá var við and-
lát. Finnur fór heimleiðis aftur
með lík föður síns á mánudags-
kveldið var.
* * *
Frá Mountain, N. D., komu
hingað til bæjar á mánudaginn
var í bíl, Kristján Indriðason og
Thorl. 'Thorfinnsson. Dvfelja
þeir hér nokkra daga og sitja
þing Þjóðræknisfélagsins. —
Magnús Hillman frá Mountain
kom með þeim.
* * *
Hr. Jónas K. Jónasson frá
Vogar, Man., kom hingað til
bæjar fyrir helgina. Dvelur hann
hér fram yfir Þjóðræknisþing.
* * *
Til bæjarins komu hingað á
laugardaginn var, þeir bræður
Ragnar og Ámi G. Eggertsson
lögfræðingur frá Wynyard, í
heimsókn til föður síns Áma
Eggertssonar fasteignasala. —-
Þeir dvöldu hér um nokkra
daga.
» * *
Sólberg S. Sigurðsson, sonur
Stefáns heit. Sigurðurssonar,
á Hnausum andaðist á laugar-
daginn var á Almennaspítalan-
um Jrér í bænum. Útför hans
fer fram á Hnausum 6. marz
næstk. kl. 3. e. h. Minningarat-
höfn verður höfð við Riverton
kl. 1. áður en líkið verður flutt
til Hnausa.
ÁSSKÝRSLA
SAMBANDSSAFNAÐAR
Ársfundur Sambandssafnaðar
var settur í kirkju safnaðarins
að lokinni guðsþjónustu, sunnu-
dagskvöl'dið 3. feb. 1935.
Forseti þakkaði safnaðarlim-
um fyrir þá samvinnu er þeir
höfðu veitt nefndinni, þrátt fyrir
erfiðar kringumstæður. Skýrði
hann því næst frá ráðstöfunum
nefndarinnar um prestþjónustu
og vottaði Dr. Rögnv. Péturs-
syni þakklæti safnaðarins fyrir
ágætlega rekið erindi á íslandi
síðastliðið sumar. Lýsti hann
einnig ánægju safnaðarins yfir
starfsemí séra Jakobs Jónsson-
ar og þakkaði honum vel unnið
verk.
Fjármálaritari P. S. Pálsson
las yfirskoðaða skýrslu er sýndi
itekjur $2,703.24.
Skýrsla féhirðis S. B. Stefáns-
sonar sýndi útgjöld $2,814.85 og
sjóð við áramót $386.89.
Skýrsla Hjálparnefndarinnar
bar að 28 fjölskyldum hefði ver-
ið hjálpað á árinu.
Var þvínæst gengið til kosn-
ingar og hlutu þessir embætti:
Safnaðamefnd:
Capt. J. B. Skaptason
Dr. M. B. Halldórsson
Steindór Jakobsson
Jón Ásgeirsson
Ólafur Pétursson
Thorst. S. Borgfjörð
Jakob Kristjánsson
Djáknar:
Stefán Scheving
Guðm. Eyford
Hjálpamefnd:
Mrs. Guðrún Skaptason
Mrs. Kristín Johnson
Mrs. Gróa Brynjólfsson
Mrs. Jóna Gíslason
Mrs. Sesselja Gottskálksson
Miss Elín Hall
Miss Hlaðgerður Kristjáns-
son
Y f irskoðunarmaður:
Sigurður Sigmundsson
Að kosningum loknum var
fundi frestað til næsta sunnu-
dags.
Fundur var aftur settur í
samkomusal safnaðarins sunnu-
dagskvöldið 10. febr.
Nokkrar konur höfðu myndað
nefnd til að standa fyrir veit-
ingum við þetta tækifæri og
veittu þær fundarmönnum
rausnarlega. Að lokinni máltíð
kvaddi forseti sér hljóðs og tjáði
konunum þakkiæti fundarins
fyrir ágæta veizlu.
Mintist hann einnig að P. S.
Pálsson og S. B. Stefánsson er
starfað hefðu sem fjármálarit-'
ari og féhirðir safnaðarins um '
mörg ár hefðu kosið að fá lausn
frá embættum sínum og færði
hann þeim þakkir safnaðarins
og nefndarinnar fyrir alt það er
þeir höfðu starfað fyrir söfnuð-
inn á liðnum árum.
Skýrslur vou síðan lesnar frá
sunnudagaskólanum, kvenfélag-
inu, leikfélaginu og C.G.I.T. —
Báru þær vitni um að allar
þessar félagsdeildir hefðu unnið
mikið starf og fjárhagur þeirra
góður.
Kvenfélagið hafði haldið 10
starfsfundi og tvo skemtifundi,
annast veitingar fyrir tvö sam-
sæti, haldið þrjár samkomur
| og einn spilafund. Auk þess
j höfðu deildir þess haldið sam-
| komur, spilafundi og útsölur.
j Tekjur félagsins voru $566.85
; en útgjöld $612.66. Sjóður í
árslok $39.90.
Leikfélagið hafði sýnt einn leik
; — “Drengurinn Minn” og æft
annan sem sýndur var eftir árs-
lok félagsins. Ágætur rómur
var gerður að báðum þessum
leikjum og aðsókn sérstaklega
góð að þeim síðari. Tekjur fé-
lagsins voru $170.74 en útgjöld
$186.32. Sjóður við áramót
$24.94.
C.G.I.T. flokkurinn byrjaði
starf sitt 26. sept. með 12 með-
limum og 4 höfðu bæzt við síð-
an. Fimm stúlkur sem ekki
hafa náð aldri til að gerast með-
limir taka þátt í starfinu og
sýna mikinn áhuga. Eina sam-
komu hefir flokkurinn haft og
er nú að undirbúa aðra.
Sunndagaskólinn gaf þá
skýrslu að innrituð við skólann
væru 50 börn og 8 kennarar. —
Skólasókn til jafnaðar yfir ár-
ið 80%. Fjárhagur skólans var
í bezta iagi. Inntektir á árinu
námu $132.87 en ýmisleg út-
gjöld, við skemtiför skólans á
síðastl. vori jólahátíðar sam-
komu auk fleira námu $88.87.
Séra Jakob Jónsson gaf því
næst stutt yfirlit yfir starf sitt
síðan hann kom hingað í októ-
ber. Guðsþjónustur höfðu verið
17, skímir fjórar og útför ein.
Einnig hafði hann flutt 12 fyr-
irlestra, þrjá í kirkjunni og níu
á ýmsum öðrum stöðum. Gat
hann þess að kirkjuræknin
hefði sérstaklega glatt sig og að
hann áliti að fátt gæti hjálpað
presti við verk sitt, betur en
kirkjurækni.
Samkvæmt beiðni forseta á-
varpaði Dr. Rögnv. Pétursson
fundinn. Kvað hann það hið
mesta heillaspor er tekið hefði
verið í kirkjumálum hér, þegar
Únítara- og Tjaldbúðarsöfnuðir,
sameinuðust. Sagði hann það
byrjun á nýrri hreyfingu í
kirkjumálum sem síðan hefði
náð mikilli hylli bæði í Canada
og Bandaríkjunum. Hinn fyrsti
Sambandssöfnuður íslendinga í
Winnipeg hefði verið fyrsti
söfnuður er þannig var mynd-
aður, en að nú bæru árbækur
allra frjálslyndra kirkjufélaga
vitni um að Sambandssöfnuðum
fjölgaði með hverju ári.
Gleðjast sagðist hann yfir að
félagsskapurinn ætti ágæta
talsmenn á íslandi — þar á
meðal fjóra fyrverandi presta
Sambandskirkjufélagsins og
tveir af þeim þjónandi í þjóð-
kirkjunni heima. Mikils góðvilja
sagði hann félagsskapinn vera
aðnjótandi innan þjóðkirkjunn-
ar og gat þess að biskup hefði
MESSUR og FUNDIR
í Mrkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e. h.
SafnaOarnefndin: Funóir 1. f&stu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsf*
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
KvenfélagiO: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
látið í ljósi við sig að hann ósk-
aði að starf safnaðarins mætti
vaxa og blómgast. Einnig
mintist hann þeirra ítaka sem
söfnuðurinn ætti í öllum bygð-
um íslendinga hér í álfu og
stórborgum víðsvegar um land.
Að lokum mintist hann
tveggja kvenna er látist höfðu á
árinu, Mrs. Maríu Bjömsson og
Miss Björgu Hallsson.
Mrs. Sigríður Swanson, S. B.
Stefánsson, Mrg. T. S. Borg-
fjörð, Friðirk Sveinsson, B. E.
Johnson, Dr. M. B. Halldórsson,
Mrs. Guðlaug Ander^on og G.
E. Eyford fluttu þvínæst söfn-
uöinum árnaðaróskir og Þor-
bergur Halldórsson og Mrs. Sig-
urðsson lýstu samhug og þakk-
læti fyrir hönd utansafnaðar-
fólks er fundinn sat.
Var síðan sungið “Eldgamla
ísafold” og “God Save the
King” og samsætinu slitið.
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundinum við Mo-
zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
* » *
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu með af-
falls verði, námsskeið við helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaðsins.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Phones: 95 328—91 166
H0TEL C0R0NA
NOTRE DAME Ave. East
at Main Street
J. F. BARRIEAU
Manager Winnipeg
NÝ ÚTKOMIN BÓK
För mín til Landsins
Helga og Egyptalands
eftir Sigfus S. Bergmann
með 15 myndum
Fróðlegar ferðalýsingar
Verð í kápu $1.50
Pöntunum með pósti sint greið-
lega ef andvirði bókarinnar fylg-
ir pöntuninni. Send póst fritt.
Sendið pantanir til
G .P. Magnússon
596 Sargent Ave., Winnipeg
FÆÐI OG HÚSNÆÐI
íslenzkt borgningshús
139 Hargrave St.
Guðrún Thompson, eigandi
Máltíðir morgun og miðdagsverður
15c hver
Kvöldverður 20c
Herbergi 50c; á þriðja gólfi 25c,
yfir nóttina. Mátíðir góðar, rúm-
in góð, staðurinn friðsæll. Allur
aðbúnaður vandaður. Islendingar
sérstaklega boðnir velkomnir.
FYRIRLESTRASAMKOMA
I ÁRB0RG
Séra Jakob Jónsson flytur fyrirlestur í Árborg fösfcu'-
daginn 8. marz næstk. kl. 8.30 síðdegis. Auk þess verð-
ur þar ýmislegt fleira til skemtana. Fyrir samkomunni
stendur Kvenfélag Sambandssafnaðarins í Árborg.
Fyrirlesturinn “Um þjóðkirkju íslands” er afar fróð-
legur og skemtilegur og ættu engir að missa af tæki-
færinu að hlusta á hann.
Inngangur 25c