Heimskringla - 03.04.1935, Page 3
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA.
WINNIPEG, 3. APRÍL, 1935
BELLAMARHELLIRINN
Á CUBA
í>ó fá ár séu liðin síðan að
Bellamarhellirinn á Cuba fanst,
er hann orðinn heimsfrægur. —
Allir ferðamenn sem koma til
eylandsins, leita tafarlaust uppi
þessa töfrahöll undirheimanna,
og skoða dropsteina myndir
sem jafnvel hvergi eiga sína
jafningja.
Með akveginum frá Havana,
kemst maður svo að segja að
heliismunnanum, og af því inn-
gangurinn er hættulaus og auð-
veldur, borgar sig vel að eyða
einum degi frá glaumi höfuð-
borgarinnar.
Mílu vegar frá Bailen og
sunnanvert við bæinn Matanza,
er þyrping af fögrum sveitabýl-
um, heitir hún Bellamar. Af
þessum yndislega stað, dregur
hellirinn nafn sitt.
Þann 17 .apríl 1861, voru
verkamenn að sprengja kalk-
stein, vildi þá svo til er einn
þeirra pjakkaði skóflu í sprungu
í klettinum, að ekkert varð fyrir
skóflunni, maðurinn misti af
henni haldi len hún hvarf. Þeg-
ar nánar var gætt að kom í ljós
æði mikil rifa og skóflann hafði
hlaupið þar ofan um.
Að nokkrum dögum liðnum
höfðu mennirnir víkkað svo rif-
una að maður gat skriðið í
gegnum, var þá eigandinn til að
að forvitnast um hvernig hag-
aði til í neðri bygðum.
Hann seig svo niður með kindil
í hendi, og var samstundis kom-
inn í skrautlega höll. Þar voru
súlur úr blikandi kristalli, en
hvelfingin gjör úf furðulegustu
bogum er ljómuðu eins og silf-
ur. Maðurinn komst þó lekki
langt, því hætta var við hvert
fótmál af sprungum er hann
ekki gat stokkið yfir og fásinna
að bera það við því þær voru
þverhnýptar. I
Síðan hefir þetta verið endur- |
bætt, og skrautlegur sumarskóli
bygður við hellismunnann, og
þangað liggur akvegurinn.
Við hefjum hellisgönguna
mieð því að leiðsögumaðurinn
fær okkur kindla, það eru mörg
og löng vaxkerti bundin saman,
svo göngum við ofan stiga,
meðfram honum er handrið og
stendur á traustri undirstöðu,
og komum fram á gjáarbakka;
á barml hennar er handrið, svo
óhult e> að horfa fram af. Hcr
leggjum við af okkur öli óþarfa
föt, er geta tafið okkur á göng-
unni, því hér er ofsa hiti og
sumstaðar næstum óþolandi.
Héðan sem við stöndum sjáum
við um alla höllina, er hún 500
fet á lengd og um 200 fet að
meðaltali á breidd, en upj> í
hvelfinguna eru 100 fet frá
gólfi. Svo er lömpum haganlega
komið fyrir, að gott er umsjón-
ar.
Fjær&t sjást 2 dimmir blettir,
það eru munnar á tveimur að-
algongum, &em þó renn.x sam-
an, og því hægt að fara inn um
annan en koma út um hinn, en
lögun ganganna líkist róm-
versku V, en þar sem þeir koma
saman, heldur áfram einn gang-
ur og með því verður V-ið að Y
og liggur áfram og ofan á við.
Aðrir tveir gangar liggja úr
framhöllinni sem nefnd hefir
verið “Gotnieska musterið” en
lengd hellisins eru 3 mílur
enskar.
Það sem fyrst vekur eftirtekt
okkar er við göngum fram að
handriðs girðingunni við gjána
er dropsteins mynd er stendur
í miðri höllinni. Leiðsögumað-
urinn segir okkur að þetta sé
vörður mu&terisins, en þess var
raunar engin þörf, það Ieyndi
sér ekki. Kalkvatnið hafði sem
sé framleitt risavaxna mynd af
hermanni, er situr í nokkurs-
konar hásæti Gotnesku; í ann-
ari hendi heldur hann á spjóti,
hinni styður hann á mjöðm sér,’
hann sýnist líta við og horfa
framan í okkur, og þegar gul-
leitur og óeðlilegi ljósgeislinn
leikur um óglöggu andlitsdrætt-
ina, er sem maður finni ískalda
og staðkyrra augnaráðið frá
steinrunnum augunum. Okkur
detta í hug æfintýrasögurnar
frá æskuárunum, og því fremur
virðum við fyrir okkur
þessa tröllslegu og yfirnáttúr-
legu mynd með undarlegri til-
iinningu.
Til þess að sjá risa þenna enn
betur — sem situr þarna, eins
og náttúran hefði ætlað hon-
um að halda vörð yfir huldum
fjársjóðum — stígum við ofan
þrep sem liggja í krókum ofan í
gjána, en er við komum þangað
er við fyrir augnabliki litum
töfravörðinn, er myndin horfin;
í hennar stað er kominn þyrp-
ing af óreglulegum dropsteina
myndum.
Við komum að trébrú, og
rennum þaðan augum upp í
hvelfinguna, sem ljómar af
Bri^
hi's
HERMIT
PORT and SHERRY
Diogenes var réttur!
Þegar þeir spurðu þenna gamla heim-
speking að því, hvaða vín honum þætti
bezt að drekka svaraði hann: “Það sem
aðrir eiga!” .... hvort heldur aðrir heim-
sækja yður eða þér heimsækið þá er ein-
hver ylur í því sem vermir um hjartað
þegar boðið er staup af góðu víni . . . . og
ylurinn er hlýrri ef vínið er HERMIT
PORT eða HERMIT SHERRY . . . . því
þetta eru vörur framleiddar hjá stærstu
vínyrkju stofnun Canada og sérfróðustu
vínbruggurum .... þau eru mjúk og
gómsæt er leiðir af sextíu og eins árs
langri æfingu .... VARIN MEÐ HREINU
DRUGU BRENNIVÍNI . . . . og heilsu-
bætandi eigi síður en bragðsæt.
26 oz. FLASKA . . $ .60
KASSI MEÐ 6 FLÖSKUM 3.00
tindrandi kirstöllum sem blinda
augun, og svo ofan í svart und-
irdjúpið, þá grípur okkur ónota
tilfinning, því líkust sem við
værum að troða okkur inn á
fyrirboðinn reit, og við af fljót-
færni eður léttúð værúm komn-
ir í kynni við fimtu höfuðskepn-
una: myrkrið.
Meðal þeirra súlna sem sýn-
ast halda hvelfingunni uppi, er
ein sérstaklega eftirtektaverð
vegna ógnar fyrirfierðar. Hún
er kölluð “kápa Kolumbusar”.
Nafnið fékk hún af bárunum á
yfirborðinu, er líkast fellingum
á kápu. — Kalkvatn&dropamir
höfðu bygt samtímis frá lofti
og gólfi, og mætst á miðri leið.
Þessi risa súla er 60 feta há og
20 fet ummáls. Hún er hvít
sem snjór og gegnsæ sem ala-
baster (gypstegund).
Jafnframt því að við herust-
um áfram undir risavöxnum og
voldugum bogum hallar þessar-
ar eður musteris, glóir alt um-
hverfis okkur í glitrandi ljósörv-
um, svo okkur sker í augun.
Þótt aðrir hellrar séu meiri
að víðáttu en Bellamar hellir-
inn, er áreiðanlega enginn hellir
til, aem hefir jafn mikið af
undraverðum og fögrum drop-
steinamyndunum.
Það er sem náttúran hafi
beitt öllu hugviti sínu í að fram-
leiða þessi óteljandi li&tasmíði
og dásamlegu sambönd.
Dropsteina myndimar eru
sérstaklega fagrar, þær eru á
öllum stærðum, frá kápu Kol-
umbusar ofan í myndir tæpan
þuml. á hæð; sumar ieru flatar
og gagnsæar, og sé slegið í
þær, kveður við silfur skært
klukkuhljóð, aðrar eru örmjóar
og snúnar, og stundum með
greinum sem dálithr kórallar,
sumar hanga úr lofti sem öngl-
ar eður vinda sig upp frá gólf-
inu. *
Eins og dropsteinarnlr eru í
margskonar ástandi, svo eru
þeir og í mörgum myndum,
þarna t. d. sitja þeir frosnir á
gulum veggnum, í öðrum stað
hafa þeir framleitt undarlegt
kögur eður bárur, þá líkjast
nokkrir slöngum í kindlaljósinu,
og enn er sem á veggina sé
dregið svell, eður þeir líkjast
bræðsludeiglu, geysimiklum
hornum eða blómum, er að
lögun og lit líkjast rósum.
í þessum samsietta vef sem
dropsteinninn myndar ýmist úr
lofti eða gólfi, er óft ekki hægt
að greina þá sundur. Úr loftinu
geta vaxið snjóhvítar kniplinga
gluggablæjur í fegurstu gerð,
eða hanga niður sem silki tjöld,
eða mynda hreyfingarlausa
fossa úr glitrandi demöntum, ler
ná frá lofti til gólfs. 1 blaktandi
ljósgeislanum taka þeir á sig
alskonar blekkjandi gervi, og
líkjast þá nokkrir krjúpandi
mönnum frammi fyrir ímynaðri
helgimynd, eða villumönnum,
eru þeir naktir og þaktir fjöðr-
um og húka á fótum sér, eins
og þeir sætu á ráðstefnu.
Þegar við höfum gengið fram
hjá Musterisverðinum komum
við að því svonefnda “altari”.
Stendur það í rúmgóðum skáp
í hliðveggnum gegnt “kápu Kol- un
umbusar”. Það er grófgerð
stæling af altari, utan í því sýn-
ast vera myndir af blómum.
Næst fylgjum við leiðsögu-
manninum inn í vinstri göngin
og komum í gang sem heitir
“Gosbunu gangur” er hann V2
ensk míla á lengd, og ber margt
fáséð fyrir augu, öðrumegin
fáranlegustu blóm, upphleypt á
dimmum veggjunum, gotneskar
myndir og súlur. Hinsvegar
landslagsmynd frá heimsskaut-
inu, með snjóbreiðum, ísdröng-
um og ísjökum á floti. Nú
verða göngin svo lág, að við
göngum hálfbognir, svo við ekkl
rekum okkur á kalsteins nál-
arnar, er hanga niður úr þak-
inu, og stundum vierðum við að
hálf skríða gætilega meðfram
kolsvörtum gjám, þá þenst
gangurinn út aftur og verður að
yndislegu herbergi, sem ljómar
af slíkri kristallamergð, að það
er sem nóttin hafi breyst í dag.
Þar verður fyrir okkur lækur,
sem gangurinn dregur af nafn
sitt. Vatnið sýnist kristalls
tært, og fellur hann niðandi
ofan í skygnt ker af alabastri.
Með þessu erum við komnir að
hvassa horninu á V-inu og lít- j
um til vinstri handar mjúkt og |
óreglulega lagað op. Er það
gangur sá sem við eigum að
koma eftir á útleið okkar til,
“Gotnleska musterisins”.
Við lesum okkur gætilega á-j
fram milli brotinna og hang-1
andi dropsteins nála, og komum |
bráðlega að dimmum boga- j
göngum, sem heitir ‘‘bana-
kringla djöfulsins”, en áhrifin
sem fylgja nafninu, hverfa jafn
harðan, er við sjáum feikna
mikið kirkjuorgel, pípurnar eru
jafnar, og nótumar virðast bíða
eftir að einhver töfrahönd komi
og leiki á þær og fylli tónum
þessa dimmu ganga og skugga-
legu djúp er aldrei hafa borist
að nokkru dauðlegu eyra.
Skamt frá orgelinu er annar
hlutur ler hrífur mann þægilega
úr þessum hugleiðingum, það
er óvanalega fagurt dropsteina
smíði, það er holt og þunt og
mjög gagnsætt með lóðréttum
fellingum og svo kemur það
fyrir sjónir, sem það neðst 3é
glitsaumað. Þetta heitir “Glit-
saumaða nærpilsið”. Glitsaum-
urinn kemur bezt í ljós, ef ljós-'
ið 'er haft hinsvegar, og eftir
því sem Ijósið er bjartara og
efni myndarinnar gagnsærra,
því gleggri er rósin. Hér er
einnig skrautlegur legubekkur
úr íbenviði og silfri, er breytt
yfir hann klæði úr silki með í-
ofnum myndum, er sem hann
bjóði gie&tunum til austurlanda
hvíldar og unaðsdrauma, en við
verðum að berjast gegn freist-
ingunni, því margt er óskoðað
enn, og leiðsögumaðurinn
gleymir ekki að minna okkur á
að tíminn er honum peningar
þessvegna hröðum við okkur á-
fram að leita uppi ný undur.
Alt í einu komum við í feg-
ursta hólf hellisins, það er
“blessaða herbergið” og nefnt
svo eftir sögunni, að katólskur
biskup nokkur sem hafði komið
að skoða hellirinn, varð svo
töfraður hér af fegurðinni, að
hann í ofurmagni guðrækilegr-
ar hrifningar á handaverkum
drottins vígði og blessaði hellir-
inn við Bellamar. Þessi skraut-
lega höll er um 40 fet á hæð, 40
fet á lengd og 25 feta breið. —
Fegurðin er framúrskarandi á
drifhvítum og gljáandi drop-
steinsmyndunum, — súlurnar
þráðbeinar og fagrar, gólfið
spegilskygnt, þetta alt til sam-
ans gerir stað þenna að eftir-
læti ferðamanna. Þegar við
göngum inn, sjáum við hjólandi
læk á hægri hönd sem fellur í
vatnsþró og er sem vatnið end-
urkasti neistum milli hinna ó-
teljandi dropsteinsnája. Yfir
vatnsþróuni, er liggur út undir
klettinn er rósaflötur og kastar
endursþeglum af staðkyrru
vatninu frá honum. Rétt við
lækinn er fögur kristallamynd-
sem nefnd er “kápa jóm-
frúarinnar”. — Er hún afar
skrautleg og líkist hvítri silki
kápu skrautsaumaðri með silf-
urþræði, perlum og demön'tum.
Óteljandi dropsteina stönglar
hanga niður frá hvelfingunni,
og líkjast flestir þeirra alabasti.
Þegar leiðsögumaðurinn veifar
kindlinum yfir höfði sér, kastar
hvert ljós frá sér þúsundum
skrautlegra neista himinbláum,
gullnum og purpurarauðum að
lit. Það eru töfra lampar sem
einn logandi demant kveikir á.
Þó akarar ein dropsteins
myndin fram úr öðrum, og vek-
ur sérstaka eftirtekt. Við verð-
um að þræða leftir hlykkjóttum
göngum, þau heita “Lundúna
göngin” og nemum staðar þar
sem nefnt er “Don Cosmes
lampinn”, í höfuðið á Havana
Frh. á 7. bls.
Öruggar peninga sendinga
Þegar þú sendir peninga með pósti,
þá notaðu Royal Bank ávísanir. Það
er greiðast og öruggast. Peningaávís-
anir fást í hverju útbúi bankans
hvort heldur sem vill í dollurum eða
sterlingspundum.
T H E
ROYAL BANK
O F CANADA
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Árnes..............................................F. Finnbogason
Amaranth............................J. B. Halldórsson
Antler....................................Magnús Tait
Árborg................................H. O. Einarsson
Baldur..........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.............................Björn Þórðarson
Belmont..................................G. J. Oleson
Bredenbury..............................H. O. Loptsson
Brown...............................Thorst. J. Gíslason
Calgary.............................Grímur S. Grímsson
Churchbridge........................ Magnús Hinríksson
Cypress River......................................Páll Anderson
Dafoe..................................S. S. Anderson
Elfros.............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale.......................................ólafur Hallsson
Foam Lake.........................................John Janusson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir...........................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland...............................Sig. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa................................Gestur S. Vídal
Hove...........................................Andrés Skagfeld
Húsavík...........................................John Kernested
Innisfail..........................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar..............................S. S. Anderson
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Kristnes............................... Rósm. Ámason
Langruth............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar.................................. Sig. Jónsson
Markerville....................... Hannes J. Húnfjörð
Mozart...........................................Jens Elíasson
Oak Point......................................Andrés Skagfeld
Oakview.............................Sigurður Sigfússon
Otto............................................Björn Hördal
Piney................................. S. S. Anderson
Poplar Park.......................................Sig. Sigurðs&on
Red Deer...........................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík..........................................Árni Pálsson
Riverton..............................Bjöm Hjörleifsson
Selkirk...............................G. M. Jóhansson
Steep Rock.......................................Fred Snædal
Stony Hill.......................................Björn Hördal
Swan River....................................Halldór Egilsson
Tantallon........................................Guðm. Ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir..............................................Aug. Einarsson
Vancouver...........................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................................
Winnipeg Beach.....................................John Kerne&ted
Wynyard.................................S. S. Anderson
í BANDARIKJUNUM:
Akra..................................Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash......................John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier..............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg...................................Jacob Hall
Garðar................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson............................ Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif...Thorg. Ásmundsson, 3314 Sierra St.
Milton................................ F. G. Vatnsdal
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain.............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold...............................Jón K. Einarsson.
Upham................................E. J. Breiðfjörö
The Viking Press, Limited
Winnipeg Manitoba