Heimskringla - 15.01.1936, Page 4

Heimskringla - 15.01.1936, Page 4
4. SÍÐA. HEIMSKRINGLA WININIPEG, 15. JANÚAR, 1936 ! ^fTetmskriniíla (StofnuS 1S86) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Elgendur: THE VIKXNG PRESS LTD. 853 00 85S Sargent Avenue, Winnlpeg Talsímia 86 537 VerS blaðslns er $3.00 árgangurinn borgist tyrirfram. Allar bOTganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. 311 vlðskifta bréf blaðinu aðlútandi sendiat: Manager THE VIKING PRESS LTD. 8S3 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrijt til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg "Heimskringla” is publlahed and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man. Telepiione: 86 637 WINNIPEG, 15. JANÚAR, 1936 FLOTAMÁLARÁÐSTEFNAN 1 London kom flotamálráð níu stór- veldanna saman í haust einS og að und- anfömu til þess að ræða um afvopnun og takmörkun sjóhers. Það virtist nú blása ;alt annað en byrlega með þau mál þá stundina. í Afríku voru, horfur með stríðið þær að Bretlandi þótti sá kostur- inn vænstur, að hóa saman flota sínum á Miðjarðarhafinu. Og fjöllin bergmál- uðu þórdunurnar frá loftförum ítala. Við þetta gátu friðsamlega hugsandi menn eins og iþeir hafa eflaust verið, s&m á fundinum voru, heldur lítið ráðið, enda varð sú raun á, að fundurinn sá ekki leið út úr vandræðunum og lauk milli vonar og ótta. Síðast liðna viku var svo á nýjan loífc efnt til fundar. Þegar nokkrar fagrar og vel meintar ræður (höfðu verið fluttar um afvopnun, takmörkun sjóhers, frið og dygðaríkt lífemi, lýstu Japanar því mjög hógværlega en hreinskilnislega yfir, að þeir krefðust leyfis að hafa eins stóran sjóflota og Bretar og Bandaríkjamenn. Stærð flota þessara þjóða, hefir verið eftir hlutföllum 5—5—3. Japan má með öðrum orðum hafa 3 'herskip á móti hverjum 5, er Bretar eða Bandaríkin hafa. Til þessa hafa Japanar látið sér þetta lynda. En nú eru þeir. að færast í ásmegin og telja sér ósamboðið að vera eftirbátur annara, hvort sem er á sjó eða landi. Og Norður-Kína ber þess merki, að hálfu leyti, að hjá þeim sitji ekki við orðin tóm. Á sjónum hefir sóknin verið óárennilegri. En nú er svo að sjá, sem þeim ægi hún ekki heldur. En verður krafa þeirra veitt? Til þess eru litlar líkur. Og ástæða Breta og Bandaíkjamanna fyrir að synja Japönum þessa, er sú, að þeir (Japanir) hefðu þá öflugasta herinn á Kyrrahafinu. Bret- land og Bandaríkin segjast þurfa á sjón- um að verja sig úr öllum áttum. Japan þarf þess ekki nema úr einni átt, á Kyrrahafinu. Þessvegna eru hlutföll flot- anna nú talin sanngjörn, að þessar þrjár þjóðir séu fyrir þau jafnstenkar á Kyrra- hafinu, því Bretar eða Bandaríkjamenn geti aldrei haft allan flota sinn þar. Með kröfunni verða því Japanar helmingi liðsterkari þar en hvor þessara þjóða, eða sama sem einvaldir. Það er ásteitingar steinninn, sem friðar eða afvopnunartil- raununum verður að fótakefli. Með níu stórveldasamningunum var verið að reyna að leggja undirstöðu að afvopnun þjóðanna. Og hlutfallsstærð flota þriggja stærstu þjóðanna, sem var 5—5—3, var grundvöllurinn. Með kröfu Japana, er sú undirstaða hrunin. Og ihvað svo? Ekkert nema það að hver þjóð efli flota sinn eftir efnum og ástæðum. Bæti Japan við sig herskipum, eins og ekki er að efa að fyrir þeim vak- ir, gera Bretland og Bandaríkin það að sjálfsögðu einnig. Það eru fréttirnar af afvopnunarfundinum, ef ekki fer betur en nú áhorfist. ENDURMINNINGAR II. Önnnur bók af “Endurminningum” Eriðriks Guðmundssonar er nýkomin út. Er hún sérprentun úr Heimskringlu, sem fyrri bókin var, og framhald af henni, svipuð að stæð og öllum frágangi og á sama verði ($1.25). Nokkuð af fyrri hluta Endurminninga R, er að efni til frá íslandi, en síðari hlut- inn, eða alt að því tveir þriðju bókarinn- ar, eru frásagnir af því er á daga dreif og fyrir augu og eyru bar, eftir að höfundur- inn flutti til þessa lands. Endurminningar FTiðriks má telja með því skemtilegasta, sem hér hefir verið skrifað. Enginn getur sá jafnaldri höf- undarins hér verið, er ekki heyrir í þeim: —óma af lögum bot úr brögum bergmál frá æfinnar liðnu dögum— af reynslu sinni í tveim heimsálfum, svo að ekki verður á því vilst. í fyrri bók sinni, eða fyrstu, því óhugsanlegt er ekki að þær verði fleiri en tvær, lýsir Friðrik mjög skemtilega ýmsum þjóðkunnum mönnum á ættjörðinni, sem hann hefir kynst, sveitabrag, siðum og störfum, er rifjar upp marga gleymda en skemtilega minningu hjá lesandanum. í þessari síð- ari bók lýkur endurminningunum að heiman, en frásögn á því sem hér tók við hefst. Ætlum vér það eina beztu lýsinguna af reynslunni, er landans beið hér, sem vér höfum lesið. Á frásögninni ert sá æskublær, að fáum mundi til hugar koma, að háaldraður maður héldi þar á penna. En hún er auk þess svo öfga- laus, að í henni mun margt óhaggaö standa og sögulegt gildi hafa. Öldung- urinn blindi, sem til dægrastyttingar hefir verið að skrifa þessar endurminningar, og sér til hugarhægðar, en ekki til hróss, hef iri að vissu leyti numið nýtt land á sviði íslenzkra bókmenta með því skrifi sínu. Málið á Endurminningum er hreint, Upurt og kækjalaust og samfeldara nú- tíðinni, en flestir eldri menn rita. Stillinn er ör og hressandi og samband orða og hugsana gott. Vesturi-íslendingar ættu að eignast Endurminningar. Þær eru brot úr sögu þeirra og því einar af okkar þjóðlegustu ibókum til lesturs. ÁBYRGÐARSTARF Nýlega var Paul Bardal bæjarráðsmanni falin formenska nefndar þeirrar í bæjar- ráðinu, sem málefni atvinnulausra ann- ast. Það er engum vafa bundið, að ábyrgð- armeiri og vandasamari staða en þessi, er ekki til í öllu stjómarstarfi bæjarins. Sá er vel og samvizkusamlega leysir það af hendi, vinnur viðurkenningarvert starf í þágu þessa bæjarfélags eða bæjarbúa. Vandinn, sem starfinu er samfara dylst ekki. Á aðra höndina eru skattgjaldend- ur, er stöðugt krefjast sparnaðar í með- ferð bæjarfjárs, af góðum og gildum á- stæðum að sjálfsögðu, og á hina höndina atvinnulausir, er af sárri reynslu vita, a atvinnuleysis styrkurinn er ófullnægjandi og biðja um að 'hann sé hækkaður. Að gera báða aðila ánægða, er ekki vanda- laust. Mr. Bardal var formaður Social Wel- fare Gommission bæjarins s. 1. ár. Með því starfi hefir hann fengið góðan undir- búning undir það vandasama verk, sem honum hefir nú verið falið. Og það er að líkindum meðal annars fyrir hve samvizkusamlega og vel að hann leysti það starf af hendf, sem sam- verkamenn hans hafa öðrum fremur treyst honum til að færast í fang þetta ábyrgðar-mesta og vandasamasta starf bæjarráðsins. » UM CITY HYDRO-ORKUKAUPIN Það væri hlátursefni, ef það væri ekki í aðra röndina svo alvarlega eftirtektavert hvernig bæði dagblöð þessa bæjar hafa komið fram í málinu um orkukaup þjóð- eignaorkukerfis bæjarins (City Hydro) hjá Winnipeg-raffélaginu. Winnipeg-bær gerði endur fyrir löngu samning við Winnipeg-raffélagið, að kaupa nokkuð af orku af því er kerfi bæj- arins þurfti á að halda. Samningarnir um þetta eru úr sögunni einlhvem tíma á komandi ári (1937). Bæjarráð Winnipeg- borgar hefir nú verið að íhuga, hvað það eigi að gera, hvort það eigi að endurnýja samninginn við Winnipeg-raffélagið eða auka sína eigin orkuframleiðslu í Slave Falls. Winnipeg-raffélagið fór þegar af stað og bauð bæjarráðinu að selja því orku á $14.44 hvert hestafl. Bæjarráðinu þótti það dýrt og fór nú að íhuga kostnaðinn rið að bæta við kerfi sitt. Er sá kostnað- ur talinn nema $500,000. Það er auðvit- að mikiö fé í svip, en bæjarráðið áh'tur það samt borga sig að leggja í þann kostnað vegna þess að orkan verði árlega miklu, eða alt að því tveim þriðju ódýrari með því að stækka ver sitt. Bæjarráðið hafnaði því boði Winnipeg raffélagsins fyrst um sinn. En þá fóru blöðin af stað og skrifuðu einar tvær eða þrjár ritstjórnargreinar um málið og töldu það argasta óráð af bæjarráðinu, að ætla sér að leggja út í að stækka kerfi bæjarins, eins mikið og það kostaði, er það gæti keypt orku af Winnipeg-raffé- laginu 10% ódýrara en hægt væri að framleiða ihana. Winnipeg-raffélagið hafði ávalt gefið þetta í skyn og blöðin, sem ekki voru kunnug hinni hlið málsins, flöskuðu á því. Síðast liðinn föstudag var svo málið aftur til umræðu á bæjarráðsfundi. — Skýrði þá J. W. Sanger, yfirverkfræðing- ur City Hydro, málavöxtu alla. Yrði of- langt mál hér að segja sögu hans alla. .En þess skal þó getið, að niðurstaða hans var sú, að árlegur orkukostnaður bæjar- ins, ef hann stækkaði kerfi sitt, yrði $41,700, en ef orkan yrði keypt af Win- nipeg-raffélaginu, kostaði hún árlega $144,000 eða rúmum $100,000 meira. Og þeim peningum leist nú bæjarráðinu bet- ur á að verja til að stækka kerfi bæjar- ins, exi) greiða fyrir aðkeypta orku. Þetta virðist nú ofur einfalt mál. En hvernig á því stóð, að dagblöðin tóku þá afstöðu til þess, sem raun er orðin á, og telja alt annað óvitlegt, en að kaupa orku af Winnipeg-raffélaginu, verður ekki eins auðsætt. Það er að vísu ílt til þess að vita, að leggja verði fé á þessum erfiðu tímum fram til þess, að stækka orkuver bæjar- ins, þar sem Winnipeg-raffélagið hefir um 100,000 hestöfl af orku, sem það gerir ekkert við. En eftir öllu að dæma, verð- ur nú ekki við því gert. Og það væri ó- sanngjarnt, að kenna bæjarráðinu um það, að Winnipeg-raffélagið hefir nú meiri orku, en það hefir þörf fyrir. Það barist fyrir því sjálft, að ná í Sjö systra- fossana til virkjunar, sem nú virðist ekki hafa verið því eins nauðsynlegt og einu sinni var látið, en ekki bærinn eða City Hydro. En málið var nú ekki útrætt á bæjar- ráðsfundinum á föstudag, en verður að öllum líkindum til lykta ráðið á næsta fundi (17. jan.). Lítill efi er á því talinn, að bæjarráðs- menn iséu flestir með því að bærinn stækki kerfi sitt. Verkamannaflokkur- inn, sem í meiri hluta er í bæjarráðinu, mun eindreginn með því. Aðrir bæjar- ráðsmenn ihafa heldur ekki andmælt hug- myndinni. Fresturinn um afgreiðslu máls- ins um eina viku, sem þeir fóru fram á, á síðasta fundi, svo þeir gætu betur ikynt sér alla málavöxtu, á ekki nauðsynlega neitt skylt við andúð gegn stækkun kerf- isins. , Fyrirhuguð stækkun kerfisins, er eitt “unit” eða um 12,000 hestöfl. Með þeirri viðbót hefir bærinn næga orku um nokk- ur komandi ár. SJÓN ER SÖGU RÍKARI Fréttaritari blaðsins Winnipeg Free Press, Miss Cora Hind, hefir undanfarnar vikur verið að ferðast um ýms lönd Ev- rópu með það meðal annars fyrir augum, að íhuga möguleika þar á sölu fyrir cana- diskt hveiti. Flutti nefnt blað frétt um það s. 1. laugardag hvers hún hefði orðið vísari, og farast fréttaritaranum þannig orð: “Eg hefi nú ferðast um Noreg, Svíþjóð, Þýzkaland, Pólland, Rúmaníu, Jugóslavíu, Ungverjaland, Austurríki og Czecho-sló- vakíu og kynt mér möguleika á því að selja þeim canadiskt hveiti. Eg get ekki dregið fjööur yfir það, að eg hefi orðið fyrir miklum vonbrigðum í því efni. Áður en eg fór frá Canada, hélt eg, eins og margir fleiri, að með stjórnar- skiftum þar og minni tollahöftum, væri gátan ráðin í viðskiftum vorum við Ev- rópu. Eg er nú /komin að þeirrl niður- stöðu, að þau viðskifti séu ekki eins auð- fengin og ætlað var.” í Noregi, segir fregnritarinn, að keypt sé að vísu dáh'tið af canadisku hveiti og mjöli. En stjórnin þar hefir strangt eftir- lit með innflutningi á því. Er hveiti- mjölið látið í poka með nafni stjómar- deildarinnar, en aðeins með smáu letri á þeim er gefið til kynna frá hvaða korn- mölunargerð í Canada það sá. Kommöl- unarhús í Canada eru beðin um sýnis- horn og verð, áður en nokkuð er keypt. Séu gæði hveitisins og verðið betra en annara, eru kaup auðvitað við þau gerð. En svona er varfærnin mikil í kaupunum. Noregur framleiðir ekki alt það hveiti, sem hann þarf með, en um það er kostað kapps af stjórninni, að auka hveitifram- leiðsluna og hlunnindi veitt þeim, er á það leggja stund. Stjómin greiðir oft kostn- aðinn við að hreinsa landspildur og búa undir ræktun. Svfþjóð hefir ávalt haft hveiti til út- flutnings þó í smáum stíl sé. En það hefir stundum keypt canadiskt hveiti til þess að bæta með hveiti sitt. Á síðari árum Ihefir þó minna verið keypt, en á vísindalega vísu verið unnið að því, að bæta heimaræktað 'hveiti. Og síðast liðið ár var ekki nema 10% af hveitinu sem Svfþjóð keypti frá öðrum löndum frá Canada. Um sölu á canadisku hveiti þar, er því ekki að ræða. Þýzkaland er lokað. Hin gamla fræga hafnarborg, Ham- borg, er svo aðgerðalaus að manni finst, sem maður sé þar um hádag aðj ganga um borgir í Canada á nætur-þeli. Korn- verzlarar sögðu að um kaup á canadisku hveiti væri ekki að ræða, nema Canada keypti skip af þéim. .Stjórnin sannfærði mig um það, segir fregnritinn, að Þýzkaland vinnur sleitulaust að því, að framleiða alt það hveiti, sem það þarfnast. Pólland kaupir ekkert hveiti og er ekki h'klegt til að gera það framvegis. Færi svo að það samt sem áður þyrfti þess, verður það af pólitízkum á- stæðum keypt af nágrannalönd- unum. Pólland seldi hvéiti út úr landinu, svo að nam 73,000 metra-tonnum á s. 1. ári. Þar er engin sjáanleg von um sölu á canadisku hveiti. Það einkennilega bar við í Rúmem'u, að daginn sem eg kom til Bukarest, auglýsti hveitirannsóknarstofa stjómar- innar í blöðunum, að henni hefði tekist að framleiða eins gott hveiti og númer eitt harð- hveiti í Manitoba! Þari hefir þetta verið reynt um mörg ár. Uppskera var þar allgóð og var í fyrstu Ibúist við, að 'nokkuð væri hægt að selja út úr land- inu. En ótíð rýrði hveitið, svo af því er ekki sagt að verði. Fyrir sjálfa sig hafa þeir að minsta kosti nóg. Ungverjaland hafði ágæta uppskeru. Þar hefir verið reynt að blanda hveitið með Mar- quis-hveiti og hefir tekist ágæt- lega. Það hveiti gefur mjög lítið eftir canadisku hveiti að gæðum. Ungverjar hafa reynt að rækta hréint Marquis-lhveiti, en bændur þykjast ekki fá fyrir- höfn sína eins borgaða með því og með ræktun blandaðs hveit- is. Fjrir þeim vakir eins og Rúmeningum, að framleiða eins gott hveiti og beztu tegundir í Manitoba. Ungverjar hafa tals- vert af hveiti til útflutnlings í ár. Jugo-slavía flytur út talsvert af hveiti. Sala á canadisku hveiti þangað kemur ekki til mála. í Czecho-slóvakíu er nú þannig ástatt, að landið hefir frá 50,000 til 80,000 metra-tonn (milli 5 eða 6 miljón mæla) af hveiti fyrirliggjandi, sem það hefir engan markað fyrir. Þar hefir ekki um mörg undanfar- in ár fengist leyfi til að flytja einn einasta mælir af hveiti inn í landið. Fregnritinn bendir á, að ó- hagstæður gjaldeyrir sumra þessara þjóða, hefti að nokkru innflutning til landanna. En jafnvel þó um það væri ekki að ræða, greiddist gatan ekki með innflutninfe á hveiti, af þeirri einföldu ástæðu, að þjóðirnar leggja svo mikla áherzlu sjálfar á framleiðslu þeirrar vöru. Það er því hætt við, af frétt þessari að dæma að það þurfi oftar en einu sinni að kjósa lib- eral stjóm, til þess að selja þessum þjóðum canadiskt hveiti. JÓN SIGURÐSSON ALÞ.MAÐUR Ástæðuna fyrir því, að Hon. J. G. Gardiner var skipaður akuryrkjumálaráðhérra King- stjómarinnar, telur blaðið “Manitoiba Commonweath” þessi orð hans í ræðu er hann flutti í Ridgetown, Ont. 7. sept.: “Það væri góð auglýsing fyrir íbúa Vestur-Canada, að selja hveiti sitt sér í skaða.” Á síðastl. hausti 20. sept. andaðist að Haukagili í Hvítár- síðu Jón bóndi Sigurðsson og fyrverandi alþingismaður. Sök- um þess að þessa hefir ekki ver- ið getið í blöðunum hér, en þrjú systkini hans eru búsett hér í álfu, — Jóhannes Sveins- sion húsasmiður og fyrverandi verzlunarmaður, ibúsettur í Monrovia, California; Ingibjörg kona Magnúsar Magnússonar útgerðarmanns við Hnausa, og Gróa kona Sve'ins Pálmasonar byggingameistara í Winnipeg, — vill Heimskr. birta útdrátt úr æfiminningu hans, eftir Bene- dikt Sveinsson alþingismann, er út ltom í Morgunblaðinu í Rvík. 31. okt. síðastl. Jón fæddist í Hvammi í Hvít- ársíðu 13. des. 1871. Hann var fæddur utan hjónabands en ólzt síðar upp með föður sínum að Haukagili. Hann var af góðu bergi brotinn í allar ættir. Faðir hans var sonur Jóns prests Benediktssonar á Svaibarði og síðan á Hrafnseyri við Arnarf jörð. Kona séra Jóns var Helga föðursystir Jóns Sig- urðssonar forseta. Móðir hans var Þorgerður Jónsdóttir frá Svarfhóli í Stafholtstungum Halldórssonar fræðimanns og sagnritara Pálssonar. Þorgerð- ur var móðursystir Guðmund- ar sýslumanns í Borgarnesi og nokkuð nákomin Þórði háyfir- dómara Sveinbjömssyni. Árið 1900 fluttist Jón á Akra- nes og tók þar við hreppstjórn, en fjórum árum síðar fór hann aftur að Haukagili, tók þar við búsforráðum og bjó þar góðu jbúi til dauðadags. Árið 1912 ; kvæntist hann Hildi Guðmunds- dóttur frá Kolstöðum, af Húsa- fellsætt. Áttu þau 5 börn er lifa og flest uppkomin. Áður en jjón kvæntist eignaðist hann dóttur er Svava heitir og er irit- ari á skrifstofu Alþýðusam- bandsins í Rvík. Jón var afburðamaður að afli og vexti, vitsmunamaður, glæsi- legur ræðumaður, og hafði f'á- I gætt vald yfir íslenzku máli. Er deilt var um “Sambands- J málið” 1908 bauð hann sig fram j við alþingiskosningar af hálfu I Sjálfstæðismanna. Sat hann á þingi sem fulltrúi Mýramanna i 1909 og 1911. Ekki var hann í kjöri eftir það. Hreppstjóri Hvítsiðinga var hann frá 1906 i til dauðadags. Jörð sína bætti j hann stórum, sléttaði túnið og 1 stækkaði, reisti fbúðarhús og öll útihús og hlöður, girti tún og engjar, og vann margt fleira til umbóta. Jón yar heilsuhraustur alla æfi. iSíðastl. vetur tók hann að kenna hjartveiki. Fékk hann nokkrum sinnum kvalaköst, síðast lá hann rúmfastur. Hann ráðstafaði þá ýmsum hlutum, meðal annars, að ekki skyldi færa sig í líkklæði heldur grafa sig í sparifötunum. Síðasta daginn, er læknir var sóttur til hans tók Jón honum vel, kvaðst vita erindi hans: að hjálpa sér inn í eilífðina. Síðar um kveld- ið sagði hann við konu sína og lækni, að næst þegar hann sofnaði myndi hann ekki vakna aftur. Þetta varð. Jarðarför Jóns fór fram 2. okt. fylgdi honum til moldar, mikill fjöldi sveitunga og vina. iNý hreyfing hefir risið meði franskra bænda. í hinum nýj samtökum eru þátttakendur ui 3 miljónir. Foringi þessar. 'bændasamtaka er Dorgéres. - Hann sagði nýlega: “Eg er sannfærður um, að e gerð væri einbeitt og óhlutdræ rannsókn á málefnum franskr. þingmanna, myndu 200 þeirr, vera komnir í tugthúsið á einr viku”. Bændasamtök þessi vinna al því, að bæta lífskjör sveita fólks, efnalega og andlega.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.