Heimskringla - 18.03.1936, Qupperneq 1
NÚMER 25.
L. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 18. MARZ, 1936
HELZTU FRETTIR
Við dánarfregn íslenzkrar landoámskonu
Þeirn fækkar ört sem fremst á verði stóðu
á frama, vegs, og manndáöanna braut,
sem undirstöður okkar giftu hlóðu
og áttu geymda í hjörtum fagra sjóðu,
er hver og einn í hiúsum þeirra naut.
Sú auðlegð fluttist upp að þessum ströndum,
var erfða-fé er móðir tágn þeim gaf.
Þó vextir auðs þess öðrum greiðist löndum,
er innstæðan þó samt í þeirra höndum
sem þora að brúa bróður-þelsins haf.
P. S. P.
6.3.36.
Herskylda
Ræðismaður Þýzkalands í
Canada fékk skipun um það fará
Hitler s. 1. miðvikudag, að alMr
Þjóðverjar í þessu landi á 19 til
21 árs aldri, skrásettu sig hjá
honum, þvtf þeir yrðu kallaðir
til þjónustu í hernum heima á
œttjörðinni ef á þyrfti að halda.
Þetta nær auðvitað ekki til
þeirra þjóðverja, sem eru cana-
diskir þegnar. Skrásetningunni
á að vera lokið 31 marz. Hve
Imargir þeir eru, sem þetta her-
iboð nær til, gat ræðismaðurinn
ekki að svo komnu veitt neinar
upplýsingar um.
Giftingarmál
Giftingar-mál Edwards VIII.
Bretakonungs, kom til umræðu
á þingi s. 1. miðvikudag. Á-
stæðan fyrir þvtf var sú, að verið
var að íhuga fjárveitinguna til
konungs. Hafði stjómarfor-
manninum, Stanley Baldwin
iborist beiðni frá konunginum
um að draga ekki undan veit-
ingu til drotningarinnar. Álitu
margir að þarna hefði nú feng-
ist svarið við spurningunni, sem
svo oft hefir verið spurð, ekki
aðeins innan Bretaveldis, held-
ur út um allan heim, bvort Ed-
ward VÚI. ætlaði ekki að gift-
ast.
Um leið og fjárveitingin til
drotningarinnar var nefnd á
þinginu, stóð einn fulitnúi verka
manna óðara upp og spurði
hvort fullnaðar sönnun væri
fyrir því, að konungurinn ætlaði
að fara að gifta sig.
-Fjárveitingin til drotningar
heflir ávalt verið innfalin í veit-
ingunni til konungsins á Eng-
landi. Af því að nú stendur
svo á, að konungur er ógiftur,
hefir þótt vissara að taka það
fram. Gátan um það hvort
konungurinn ætli að giftast, er
eins óráðin fyrir þessu.
Nuddið
Á fylkisþingi Manitoba hefir
frumvarp verið til umræðu um
það, hvort veita skildi nudd-
læknum sömu viðurkenningu og
réttindi og öðrum læknum. Er
þetta eina málið á þinginu, sem
fjörugar umræður hafa spunn-
ist um; önnur mál, sem þar
hefir verið hreyft, og ekki hafa
verið annað en orðamunur
gerður á ýmsum æfagömlum
mygluðum lagagreinum, hafa
ekki einu sinni vakið aðfinslur
stjórnarandstæðinga, og fylgis-
menn stjórnarinnar hafa bara
sofið rólegir undir lestrinum.
Marcus Hyman kallaði nudd-
lækningar “húmbúgg”. Wlilliam
Ivens sagði mörgum þykja gott
að láta nudda sig, og þe-tta væri
orðið að vana og yrði ekki lagt
niður; það mætti því alveg eins
viðurkenna það. S. J. Farmer
sagði nuddið ekki skaðlegra, en
sum lyf, sem þömpuð væru og
enginn vissi hvaðan kæmu. En
fjöldi þingmanna mótmælt.i
frumvarpinu; þeirra á meðal
var Sanford Evans, er taldi það
að saka á klónni í læknisfræði,
að telja nuddið þar með. W. C.
McKinnell, vildi að nuddarar
fengju að minsta kosti að bera
doktors-nafn. En því mótmælti
Hon. I. B. Griffith, heilbrigðis-
mála-ráðherra algerlega. Þann-
ig gekk þetta þar til atkvæði
voru greidd, og voru þau 13
með frumvarpinu, en 30 á móti.
Nuddarar, sem hópur var af á
áheyrenda-svölunum, yptu öxl-
um, en aðrir læknar, sem þar
voru einnig, kýmdu í barminn.
Lækkað í sjóðnum
Árið 1921 stofnaði bæjar-
stjórnin í Wpg., sjóð, er greiða
átti þjónúm borgarinnar eftir-
laun úr, er elli eða sljófgun
færðist yfir þá. Lögðu þjón-
arnir í sjóðin ákveðna fúlgu
af launum sínum, en ibærinn
eða hæjarstjómin annað eins að
minsta kosti til að byrja með.
iStröng lög voru samin um að
fénu yrði ekki til annars varið,
en eftirlauna. En nú er svo
lækkað í sjóði þessum, sem
bæjarstjórnin hefir alt eftirlit
með, að þar er $1,407,200 minna
en á að vera. Bæjarstjómin
hefir í viðlögum verið að greiða
fé til annars úr sjóðnum, unz
svona er komið. Þetta hefir
gengið lengi, byrjaði 1929 eða
fyr. Nú hafa tveir menn sótt
mál á hendur bæjarstjórninni
fyrir þetta. Eru báðir starfs-
menn bæjarstjórnar. — Nöfn
þeirra eru Alfred Hall, raffræð-
ingur, er fastavinnu hefir hjá
bænum og Herbert Bailey,
skrifstofuþjónn, nýlega settur
á eftirlaun. Krefjast þeir, að
bæjarstjórnin greiði fé þetta til
ibaka í sjóðinn, er úr honum
hefir verið eytt, með áföllnum
vöxtum. Það sem þeim g^ngur
til, er að til tals hefir komið,
að beinast væri að biðja Mani-
toba-þingið, að létta þessum
borgunar-ákvæðum á bænum
og í þvtf felist, að eftirlaunin
verði lækkuð. En það telja þeir
lagabrot gagnvart þeim 1569
manns sem í sjóðinn leggi af
launum Sínum. Nú fá 133 menn
eftirlaun úr sjóðnum.
Það fer að verða gamanlaust,
að geyma fé hér.
Fjárhagsreikningur
Bracken-stjórnar
Fjárhagsreikingur fylkis-
stjórnarinnar í Manitoba, var
lesinn upp í þinginu s. 1. mánu-
dag af fjármálaráðherra, Hon.
E. A. McFherson, K.C., og eru
helztu atriðin þessi:
Fjárhagsáætlun fylkisins fyr-
ir árið sem fer í hönd og sem
lýkur 30. apríl 1937, er sem hér
segir: Tekjur $13,802,319.36,
en útgjöld $14,097,549.04.
Við meiri tekjuhalla en þama
er sýndur er þó búist, vegna
þess, að stjórnin virðist hafa
fengið einhvern eftirþanka af
því, að fjárhagsskýrslan flytji
ekki mikinn fagnaðarboðskap
og hún gerði því dálitla breyt-
ingu á vinnulaunaskattinum; er
hún í því fólgin, að giftir menn
er árslaun hafa svo að nemur
$1200 á ári, eru undanþegnir
skatti. Áður var undanþágan
miðuð við $960 árstekjur. Á
ógiftum er skatt-undanþágan,
sem áður miðuð við $480 árs-
tekjur. ■ En af þessu leiðir tekju
rýrnun fyrir stjórnina, er nem-
ur um $400,000 á ári. Váð
tekjuhalla er þó ekki búist
meiri en $295,000. Því ýmsar
aðrar tekjur hafa aukist og eru
að aukast svo sem af vinsölu,
bensínsölu o. s. frv., sökum
breyttra og betri tíma.
Öll sikuld fylkisins er nú við
lok janúarmánaðar á þessu ári
$123,525,649.42. Á síðast liðnu
ári jókst hún um $2,352,649.72.
Alt fé til styrktar atvinnulaus-
um, er að láni tekið og bætt við
skuldina. Af 14 miljón dollara
árstekjum fylkisins er ekki
hægt að spara eitt einasta cent
til þess.
Vextir, sem greiða verður af
fylkisskuldinni, ásamt smá-
reikningum (sem ekki er sagt í
fjárhagsskýrslunni hvað miklu
nema) eru $6,501,164.45. Þetta
er langstærsti útgjaldaliðurinn,
Sá næsti er dómsmáladeildin
með $1,996,070.30 útgjöld, —
mentamáladeildin með $1,744,-
013.60 og deild opiuberra verka
með $1,217,246.79.
Frá sambandsstjórninni eru
tekjur fylkisins $1,716,484.18.
Annars eru hæstar tekjur í
deild sveitamálastjóra; þær
nema $6,606,000.00.
Lánið veitt
Alberta-fylki sótti nýlega um
lán til Sambandsstjómar til þess
að greiða með skuld, er fellur í
gjalddaga 1. apríl á þessu ári.
Lánið nam $3,858,000 og er sagt
að sambandsstjóminni værtf um
tíma um og ó að verða við þess-
ari bón. Eitt meðal annars er
þar kom til greina, og sem ekki
mýkti hug samlbandsstjómar,
var yfirlýsing Mr. Aberharts um,
að fjármálanefnd frá samband-
stjórninni skyldi aldrei neitt
hafa yfir Alberta að segja, en
stofnun slíkrar nefndar eða
ráðs, hefir Mr. King haft í huga.
En s. 1. mánudag lýsti þá Mr.
Dunning því yfir, að lán þetta
væri Alberta veitt.
Innan 10 daga er sagt að
þingið í Alberta muni krefjast
þess, að allir sem fylkið skuldar
komi með verðbréf sín og fái
þau endurnýjuð. Af þeim nýju
bréfum á aðeins að greiða 2.75
eða 3% rentu og spara fylkinu
með því um $7000 á dag eða
sem næst 2£ miljón dali á ári.
Vatnsagi
Vatnsagi varð svo mikill í þíð-
um og rigningum s. 1. viku, að
talsvert miklu tjóni olli í bæj-
um á norðurströnd Ontario-
vatns. Mestar urðu skemdir í
bæjunum Port Hope og Belle-
ville. Mat hvor borg skaða
sinn um $100,000. Kjallarar
fyltust og undirstöður húsa
skemdust. — Vatnagangurinn
ibraut víða skörð í þjóðvegi og
stöðvaði umferð algerlega milli
nokkra staða. Á stöku stað voru
hús umlukt svo djúpu vatni, að
á báti var róið að þeim að
sækja þá er í þeim bjuggu. í
grend við Brighton skolaöist
C. P. R. brautin burtu á nokkr-
um spotta. Um manntjón get-
ur ekki.
Fjölskylda myrt
í námabæ í British Columbki
fylki er nefndur er Osoyoos, bjó
maður er K. Júlíus Martinsen
hét, danskur að ætt. Á mið-
vikudagskveldið s. 1. viku, er
koimið var í hús hans lá hús-
bóndinn, konan og 3 ungar dæt-
ur hjónanna skotnar til bana á
gólfinu. Er ætlað að faðirinn
hafi myrt konuna og börnin og
sjálfan sig á eftir. Sjúkleiki
þjáði fjölskylduna. Húsbónd-
inn hafði stöðuga atvinnu.
Engin vegagerS
Það hefir verið bent á það
áður, að námurekstur þessa
fylkis væri talsvert erfiðari og
kostnaðarsamari vegna þess, að
engir vegir lægju út í námu-
héruðin. Ennfremur er hald-
ið fram að sumstaðar, t. d. fyrir
austan Winnipeg-vatn, sé
byggilegt land, sem ekki komi
að notum vegna samgöngu-
leysis og sé því óbygt. Bar
þetta á góma á Manitoba þing-
inu s. 1. fimtudag. Hafði Hon.
J. S. McDiarmid náma-ráðherra
áður gefið til kynna í ræðu, að
fylkisstjórnin gæti ekki orðið
við kröfum hvers námueiganda
á Portage Ave., og Main St., í
Winnipeg, um að leggja vegi út
að hverri námu. Mótmæltu
nokkrir þingmenn þessu harð-
lega og kváðu það stjóminni til
skammar og fylkinu til skaða,
að ekki hefði verið unnið að
þessum vegabótum, þrátt fyrir
það þó langt væri síðan að
námureksturinn hefði byrjað.
En ráðgjafinn sat við sinn keip
og kvað ekkert verða af vega-
gerð þessari fyrst um sinn.
Manntjón af flóðum /
Síðari fréttir af flóðunum í
Austurfylkjum Canada geta
þess, að í þorpinu St. Tites des
Caps í Quebec, hafi hús flotið
af stað og þeir farist er í því
voru, en það var kona og þrjú
börn hennar.
Miskliðin í Evrópu
Það hefir Mtið þokast s. 1.
viku í áttina til samkomulags
milli Þjóðverja og Frakka út af
innrás Þýzka hersins í Rínar-
héruðin. Það fyrsta sem
Frakkinn gerði, var að senda
herlið til móts við Hitler á
landamærunum. Munaði þá
eikki hársbreidd að í stríð færi.
En blóðið kólhaði um stund í
Frakanum og hann fór að huga
að þvtf, hvað Bretinn myndi
gera. Og niðurstaðan sem hann
komst að var sú, að Bretar
yrðu eins líklegir til að fylgja
þeirri þjóðinni að málum, sem
ráðist yrði á, þvi Bretinn má
ekkert aumt sjá. Af þessum á-
stæðum sætti Frakkinn sig við,
að leggja misklíðarefnið fyrir
Þjóðabandalagið. En tillögur
Frakka þar urðu þær, að Þjóða-
bandalagið teldi Hitler hafa
framið brot gegn alþjóðalögum
og rétti, með innrásinni í Rín-
arhérað. Hótuðu Frakkar að
stökkva úr Þjóðbandalaginu, ef
þessi hefnd yrði ekki kveðin
upp yfir Þjóðverjum.
Þjóðabandalagið varð nú að
heyra málavöxtu, áður en það
kvað upp þennan dóm. En
frakkar vildu ekki inn í það
'hús koma, sem> Þjóðverji væri í,
að minsta kosti ekki fyr en
Þjóðabandalagið lýsti Hitler
brotlegan við Locamo saflm-
ingana.
Meðan í þessu stappi stendur,
tala Bretar um fyrir Hitler og
fer hann þá að bjóða frið, með
því að nýr Locarno-samningur
sé gerður og Þjóðverjar njóti
fyllilega jafnréttis í alþjóðamál-
um heimsins við aðrar þjóðir.
Var kallað til fundar í London
af Þjóðabandalaginu, en hvað
þar gerðist veit enginn. En
eftir það ber Mr. Eden utan-
ríkismálaráðherra Breta upp til-
lögur um það, að dómur skuli
feldur á Þjóðverja fyrir brot á
Locamo-samningunum, en frið-
artillögur hans skuli teknar til
greina. En fréttir í morgun frá
Evrópu bera með sér, að
Frakkar sitja við sinn keip og
segjast fyr yfirgefa Þjóðabanda-
lagið, en að hlusta á nýja frið-
arsamningsgerð frá Hitler, sem
að þvtf lúti, að eyðileggja alla
gerða samninga svo sem Ver-
salasamninginn, Locamo-samn-
inginn og jafnvel stofnun eða
tilveru, sjálfs Þjóðabandalags-
ins.
Þegar Frakkanum rann mesta
reiðin, benti Þjóðabandalagið á
það, að rannsaka þyrfti ástæður
Hitlers fyrir að hafa farið með
Iherinn inn í Rínarhéruð, en
hún væri sú, að samningar
Frakka og Rússlands, væru brot
á Locarno-samningunum. .—
Frakkar neita þessu og telja
þann samning vináttusamning,
en ekki koma Þjóðverjum við.
Af ræðunum sem Litvinoff held-
ur nú móti Þjóðvérjum, er þó
að heyra, sem ancjinn sé ekki
góður í Rússum til Þjóðverja,
og að samningarnir séu jafnvel
fyrir það til orðnir.
En þannig standa sakir í
þessu miskliðarmáli í dag.
ÞAKKARÁVARP TIL
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
Eg hefi nýlega rekist á nafn
mitt með gullnu letri í Grand
Forks Herald og Heimskringlu,
og er ykkur þakklátur fyrir
heiðurinn, og vona, ef ykkur
tekst eins vel að velja, sóma
menn, eins framvegis í þessa
heiðursstöðu eins og í þetta
sinn þá sé framtíð félagsins
borgið um ókominn ttfma, en
sínum augum Mtur hver á silfr-
ið.
'Gamla Kringla færði fréttir,
Flestir urðu á svipinn grettir,
Og hrylti við að hafa þær ‘ettir’.
“Káinn er með sóma sönnum
settur á bekk með heiðurs
mönnum,
náungarnir nístu tönnum.”
Fæstir þeirra skensið skildú
Skynseminnar boðum fylgdu,
Þjóðræknina vemda vildu.
Höfðingjarnir saman sátu
—iSvona ræð eg þessa gátu—
Dauð uppgefnir drukku og átu.
Þeir grunuðu mig um græsku
og hrekki,
Gletni þeirra og brögð eg þekki,
Og heiðruðu skálkinn, svo hann,
skaði þá ekki.
“Þá var eg fljótur og þá var
eg reiður, og margir hlógu að
þeim askota,” var Einar í
Rauðhúsum vanur að segja,
þegar hann var að ljúga ein-
hverjum frægðarsögum af sjálf-
um sér. Eins má eg segja:
“Margir hlógu að þeim askota.”
K. N. Júlíus
—Mountain, N. D.
3. marz, 1936.
ÚR BRÉFUM UM ÚTVARPIÐ
8. MARZ
Frú Andrea Johnson frá Ár-
iborg, Man., skrifar:
Dr. R. Pétursson, Winnipeg
Kærti herra:
Innilegt þakklæti eiga þessar
línur að færa þér fyrir þinn
mikla fróðleik og skemtun sem
þú réttir okkur ijyrir hönd
“Adult Training” á sunnudaginn
var, álít eg að svona fyrirlestr-
ar hljóti að hafa góðan árang-
ur. Sömuleiðis viljum við þakka
fyrir guðsþjónustuna um kvöld-
ið.
Frá Lundar, Man., er skrifað
9. marz.
Dr. R. Pétursson, Winnipeg.
Kæri vinur:
Eg hlýddi með öðrum á út-
varpið frá Sambandskirkju 8.
marz og þótti ofekur bæði ræða
og söngur framúrskarandi gott.
Einnig heyrðum við vel útvarpið
eftir hádegi og samræður ykk-
ar um “My Neighbor, the Ice-
lander” og geðjaðist það einnig
ágætlega.
Þennan sama sunnudag vor-
um við einnig við messu hjá
séra G. Árnasyni, svo það var
m'ikill dagur fyrir okkur í gær.
Vinsamlegast,
B.
Úr bréfi frá Montain, 9. marz:
Dr, R. P.
Eg hlustaði á ykkur með að-
dáun í gær og gærkveldi;
Iheyrðist ágætlega, betur en í
kirkjunni. Eg þafcka þér fyrir
lesturinn eins og þeir gerðu
heima.
Vinsamlegast,
K. N.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Kristján konungur
kemur í júní
Khöfn, 25. feb.
Það hefir nú verið ákveðið að
Kristján konungur og Alexand-
rine drotning leggi af stað til
íslands þ. 8. júní. Konungur
kemur aftur til Kaupmanna-
hafnar þ. 30. júní.
Konungur ferðast með kon-
ugsskipinu “Dannebrog.” En
eftirlitsskipið “Ingolf” fylgir
konungsskipinu.—Mbl.
* * *
Sæmundur Bjarnhéðinsson,
læknir látinn í Khöfn.
Rvík. 25. feb
í gær andaðist í Kaupmanna-
höfn próf. Sæmundur Bjam-
héðinsson, er um langt skeið
var yfirlæknir við holdsveikra-
spítalann í Laugamesi.
Próf. Sæmundur Bjarnhéðins-
son lét af embætti sínu sumar-
ið 1934, eftir að hafa gegnt því
í 36 ár, og fluttist til Kaup-
mannahafnar í ágústmánuði
það ár, og hefir átt þar heima
síðan.—Mbl.
ALÞINGI SETT
Rvík. 16. febr.
Alþingi var sett í gær. Voru
þá 4 þingmenn ókomnir til
þing, þeir Gísli Sveinsson, Páll
Hermannsson, Páll Þorbjörns-
son og Jóhann Þ. Jósefsson. —
Þrír hinir fyrst töldu voru vænt-
anlegir í gær, en Jóhann Jósefs-
son dvelur í Þýzkalandi á veg-
um ríkisstjórnarinnar.
Eins og venja er til hófst
þingsetningar-athöfnin með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
Séra Garðar Þorsteinsson í
Hafnarfirði steig í stólinn og
prédikaði.
Hann lagði út af þessum orð-
um í fyrra Korintubréfinu:
“Vakið, standið stöðugir í
trúnni, verið karlmannlegir,
verið styrkir. Alt hjá yður sé
í kærleika gert”.
Séra Garðari mæltist vel og
skörulega. Beindi hann ein-
dreginni ósk til þingmanna, að
vinna einhuga og í bróðemi að
lausn vandamálanna, því aldrei
væri meiri nauðsyn en nú, að
öll þjóðin stæði saman. Hann
Frh. á 8. bla.