Heimskringla - 10.06.1936, Síða 1
L. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MILVIKUDAGINN, 10. JÚNÍ, 1936
NÚMER 37.
HELZTU FRETTIR
Bardals-slagur
eftir LúSvík Kristjánsson
Hann Arimbjöni fæddist á Fróni
og flestum varð aldurinn þyngri.
Og hann er nú sjötugur sagður,
en sýnist þó helmingi yngri.
Hver man eftir sjálegri sveini,
Þótt svipist þeir gömlu til baka
um bekki, í sveitinni sinni?
Þeir sjá hvergi Arinbjörns maka.
Og tvítugur álitu allir,
að allra bezt kvæði hann rímur.
Og samtímis frægð hans var fléttuð
við formensku, reiðmensku og glímur.
i
Því tíæring stórum hann stýrði
og stundaði hákarlaveiðar.
Og norðanlands ótemjur allar,
gat Arinbjörn þjálfað til reiðar.
Tólf útlaga í Ódáðahrauni,
hann eitt sinn í fjallgöngum lagði;
en þó festi enginn sín augu
á Arinbjörns kænlega bragði.
Svo fluttist hann vestur til Vínlands
og verður þar útfararstjóri.
Og aldrei þorðu á hann að ráðast
nein áleitin skotta né móri.
Þar lærði hann Mkin að smyrja-
svo landarnir rotnuðu eigi,
því vel gæti lýtt þá að liggja
í leir fram að upprisu degi.
Og njóttu ennþá heilsu og hylli
ií hundnað ár, Bardal minn góði.
Og þá færðu atvinnu uppbót
úr eih'fðar verðlaunasjóði.
Undirbúningskosn-
ingar 24. júní
í Norður-Dakota sækja þessir
íslendingar í undirbúningskosn-
ingunum í Bandaríkjunum sem
fara fram 24. júm'.
Um dómarastöðu í annari
dómþinghá Norður-Dakota rík-
is, sækir Guðm. dómari Gríms-
son í Rugby, gagnsóknarlaust.
í dómþinghá þessari eru 11 hér-
uð (countie^). Mr. Grímson
hefir nú verið ríkisdómari í tíu
ár og hefir sakir dugnaðar, rétt-
Isýni og mannúðar hlotið hvar-
vetna í Bandaríkjunum mikinn
orðstír fyrir starf sitt; það mun
orða sannast, að hann eigi fáa
sína líka. í þessa dómarastöðu
er kösið til sex ára.
Um lögsóknara-stöðuna 4 Ca-
valier County, sækir J. M.
Snowfield, frá Langdon. Lög-
sóknarar eru kosnir til tveggja
ára. S)ækir Mr. Snowfield nú í
sjöunda sinni og gagnsóknar-
laust.
í Pierce County lögsóknar-
umdæmi sækir Einar Johnson
frá Rugby. Sækja þar alls þrír.
Tveir af þeim er flest atkvæði
fá, sækja í almennu kosningun-
um þriðja nóvemþer 4 haust.
Um Renville County lögsókn-
arastöðuna sækir G. V. David-
son. Eru þrír alls í vali um
hana.
1 Bottineau County sækir Os-
car B. Benson í Bottineau um
lögsóknarastöðu. Hann hefir
haldið þeirri stöðu tvö kjör-
tímabil. Einn keppir nú við
hann. Verða báðir í vali í kosn-
ingunum í haust.
Um friðdómarastöðu í Walsh
County sækir Bggert Erlend-
son.
Um lögsóknarastöðu ff Pem-
bina County sækja Helgi Jó-
hannesson og F. S. Snowfield.
Tveir aðrir keppa og þar. Um
þá tvo er flest atkvæði hljóta,
verður greitt atkvæði í kosn-
ingunum í haust.
Um Sheriffs-stöðuna í Pem-
bina County sækja: H. K. Han-
neson, iStone Hillman, T. L.
Hanson og John A. Snydal. —
Sækja 14 aðrir eða 18 alls um
emlbættið. Þeir tveir er hæst-
an hlut atkvæða ganga með frá
borði, koma til mála við kosn-
ingarnar í haust.
Um County Commissioners stöð
una (í öðru Commissioners um-
dæmi) í Pembina, sækja J. J.
Erlendson, A. F. Hall, H. W. Vi-
vatson. Alls sækja þar fjórir.
Tveir af þeim hlutskörpustu við
atkvæðagreiðsluna, keppa í
haust.
í Pembina County sækir S.
M. Melsted um efrimálstofu-
sæti rtfkisins, af háifu republika.
Um þingmensku í fulltrúadeild-
inni sækir Theo. Thorleifsson
af hálfu democrata.
í Ramsay County sækir
Christ Halldórson um þingmen-
sku í fulltrúa-deildinni af hálfu
republika.
Tolmie kosinn,
Auka-kosning til sambands-
þings fóru fram í Victoria, B. C.
s. 1. mánudag. Sóttu þrír um
þingsætið: Hon. S. F. Tolmie,
fyrrum forsætisráðherra, fyrir
hönd conservatíva. Prófessor
King-Gordon fyrÍD C.C.F. og C.
J. McDowell undir merki liber-
ala. Mr. Tolmie var kosinn;
liberalinn fékk fæst atkvæði.
Þingmaður kjördæmisins D. B.
Plunkett dó í vetur; af þvtf fór
þarna kosning fram.
Kína fer af stað
Það hafa verið að berast
fréttir um það, að Ktfna væri að
sameinast um það, að leggja af
stað í stríð á móti Japan. Eitt-
hvað hefir orðið úr þeim ásetn-
ingi, því s. 1. mánudag lögðu
um 200,000 hermenn af stað frá
Suður-Kína norður á landa-
mæri. Er það um 600 mtflur
vegar og fara hermennirnir fót-
gangandi. Það getur verið að
hermaskínu Japana stafi hætta
af þessu göngumóða liði, en á
það munu þó fáir sterktrúaðir
aðrir en Kínverjar.
Japan hefir um nokkur ár
haft svo mikinn yfirgang í
frammi í Norður-Kína og er
þegar búið að hrifsa þar svo
mikið land, að Kínverjar eru
farnir að h'ta á það sem byrjun-
ina að því, að hremma alt land-
ið. En líklegast hafa þeir þó
ekki út í þessa herför lagt nema
að ráðum Rússa.
Mongólía á að heita kínverskt
kommúnista lýðveldi. Gæta
Rússar þess sem sjáaldur auga
síns. Og á landamærum Mon-
góMu er það sem skærurnar
hafa flestar orðið milli Rússa
og Japana.
Fari nú Kínverjar af stað
austur við haf tf Peiping, Tient-
sin, munu Rússar koma tU sög-
unnar í Mongólíu. Japanar hafa
einhver yfirráð í Ytri-MongóMu.
En þar gæti þeim að minsta
kosti orðið hætt, ef Kínverjar
megna nokkurs eystra.
í Kína er nú sagt hungur og
hallæri og má nærri geta hvaða
mátt það hefir í sér til að ala
hermennina eða búa þá út eins
og nútíðar hemaður krefst.
Er Otto prins að ná völdum?
Meiri líkur eru nú sagðar fyr-
ir því en nokkru sinni fyr, að
Otto prins af Hapsborgarætt,
nái völdum í Austurríki.
Miðríkin, Norður- og Suður-
Slavía og Rúmenía sitja ótta-
slegin á ráðstefnum út af þessu.
Kurt Schushnigg kanzlari í
Austurríki og Mussolini voru
nýlega á ráðstefnu, sem talið er
víst, að lotið hafi að því, að
mynda eitt samband milli
gömlu isamherjanna, ítalíu,
Þýzkalands og Austurríkis.
Otto prins kvað sitja í Sviss
og vera reiðubúinn er kallið
kemur, að taka við völdum.
Frakkland er í Mið-ríkja sam-
bandinu (The Little Entente)
sem slavaríkin bæði og Rú-
menía eru í. Og það er auðvit-
að á móti því að Otto taki viö
völdum í Austur-ríki.
En það mun þó bragðlð sem
MussoMni ætlar sér að nota, ef
Frakkland eða nýja stjórnin þar
sýnir sig mjög fjandsamlega
ítah'u.
Regn
Það sem af er hefir þetta vor
verið þurkasamt. Það hefir að
vísu verið kalt, en þó var jörð
orðin svo þur, að gróður var
farinn að skrælna. Útlitið með
haga fyrir skepnur og korn-
gróður, var víða orðið mjög
slæmt og margir voru farnir að
örvænta.
En svo kom regnið um síð-
ustu helgi og jörðin varð á ein-
um degi hvanngræn. Og nú
iblasir Mf og gróður við augum
hvert sem litið er. Auk þessa
er spáð skúrum og skini til
skiftis á þessu sumir, svo veðr-
áttan syggir nú ekki á eða
glepur gleði manna og vonir.
En það verður þá eitt til þess,
ef ekki annað. Á sama tíma
og guð sendir regn af himni
jörðinni til frjóvgunar og mönn-
unum til blessunar, fara korn-
hlöðurnar í Chicago, Winnipeg
og Liverpool til verks og fella
hveitið í verði. Svona fer það
oftast, þegar guð léttir okið, að
mennirnir reyna sjálfir að
þyngja það.
Verkfallinu á
Frakklandi lokið
Eitt af fjrrstu verkum Leon
Blum forsætisráðherra Frakk-
lands, var að koma sættum á í
verkfalli, sem staðið hefir yfir í
14 dagak Um 1 miljón manna
tók þátt í verkfallinu og útlitið
var orðið ískyggilegt. “Geri
hann þetta,” sögðu fascistar,
“tökum við ráðin í okkar hend-
ur”. ‘‘Verði hann ekki með
okkur” sögðu kommúnistar,”
setjum við af stað byltingu.”
En Blum gerði ekki að vilja
þessara flokka. Hann samdi við
verkveitendur og jafnaðarmenn
og íhugaði með þeim af skarp-
leik og einurð hvert atriði í
kröfum ibeggja unz þeir urðu
að viðurkenna, hvað væri rétt
og hvað ekki. Að vísu unnu
verkfallsmenn oftast sigur, en
þeir unnu fyrir það, að iþeir
höfðu afiburða mann fyrir sig
sem sáttasemjara þar sem Blum
var.
Verkamenn fóru fram á
kauphækkun vegna hækkandi
vöruverðs frá 7—15%. Þeir
unnu þar. Þeir báðu um 40
daga vinnuviku; þeim hlotnað-
ist hún. Þeir ibáðu um viku
hvtfld á ári með kaupi og var
veitt það. Ennfremur um við-
urkenningu á samtökum þeirra
og á því stóð ekki.
Þegar Blum skýrði frá samn-
ingunum var þeim óspart fagn-
að af þúsundum sem biðu úr-
slitanna úti fyrir stjórnarhöli-
inni.
Vatnavextir í B. C.
í British Columbia fylki hljóp
vöxtur í allar ár í hitunum
s. 1. viku. Varð það í suður
hluta fylkisins 5 manns að
ibana. Skemdir námu og miklu
fé á uppskeru og öðrum eign-
um.
Nokkru síðar fréttist einnig
frá Mayo í Yukon héraði að þar
og í grendinni hefði orðið alt að
því miljón dollara tjón af vatna-
vöxtum. Þar var snjókyngi á
fjöllum er ihitar byrjuðu. Um
manntjón er þar ekki getið. í
spítala í áminstri borg var verið
að hlúa að sjúkum á efsta gólfi,
en inn á neðsta gólf flæddi.
60 ára minning
Keewatin-bygðar
Sextíu ára minning Keewat-
in-bygðar verður haldin háttfð-
leg dagana 6—11 júlí n. k. Hef-
ir vel verið efnt til hátíðarhalds-
ins og er búist við að fjöldi
fólks að austan sunnan og vest-
an noti Iþetta tækifæri til að
sjá stöðvarnar fögru við Lake
of the Woods.
I
Mrs. Forlong dáin
Mrs. Orace Anne Forlong,
kona J. A. Forlong, en dóttir
Alexander MacdonaJds, heild-
söluhöldsins alþekta, dó s. 1.
sunnudag á heimili sfnu suður
í Florida. Hana liflr maður
hennar og 3 börn. Það var út
af erfðamáli þessarar konu, sem
Stubbs dómari misti stöðu sína.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Dulskeytamálið
Jónatan Hallvarðsson lög-
reglufulltrúi kvað í morgun upp
dóm yfir sjö mönnum, sem mál
hafði verið höðfað gegn fyrir
dulsyektasendingar til togara
um ferðir varðskipanna.
Geir H. Zoega var dæmdur í
10,000 kr. sekt og til vara í 7
mánaða einfalt fangelsi og Már
Benediktsson í 2,500 kr. sekt og
til vara í 70 daga einfalt fang
elsi.
Þorgeir Pálsson var dæmdur
í 8000 kr. sekt og til vara í 6
mánaða einfalt fangelsi.
Stefán Stephensen var
dæmdur í 8,000 kr. sekt og til
vara í 6 mánaða einfalt fangelsi.
Pétur ^Slafsson var dæmdur
í 8,000 kr. sekt og til vara í 6
mánaða einfalt fangelsi.
Ólafur Þórðarson var dæmd-
ur í 2500 kr. sekt og til vara í
70 daga einfalt fangelsi.
Óskar Gunnar Jóhannsson
var dæmdur í 5000 kr. sekt og
til vara í 4 mánaða einfalt fang-
elsi. —
Rannsóknum í dulskeyta-
málinu er ekki lokið og má
vænta frekari málshöfðana.
—Vísir, 20. maí.
* * 9
Þrjá menn tók út—
einn druknaði
Norðfirði, 14. maí
í veðurofsanum Austanlands
í fyrrinótt misti vélbáturinn
“Hekla” út þrjá menn, en tókst
að bjarga inn tveimur þeirra.
Þriðji maðurinn, — Ólafur
Tryggvason, druknaði.
Skipstjóri á “Heklu” er Ein-
ar Björnsson.
Veðrið skall á svo skyndilega
að allir bátarnir frá Fáskrúðs-
firði töpuðu meirihlutanum af
lóðum stfnum og sumir öllum.
Á mánudaginn var aifli sæmi-
legur og komu bátar til Fá-
skrúðsfjarðar með 7—9 skpd.
J. MAGNÚS BJARNASON
SJÖTUGUR
I.
Nýlega var þess getið í Hkr,
að skáldinu J. Magnúsi Bjarna-
syni hefði verið haldið veglegt
samsæti á sjötugsafmæli hans
24. maí. Þetta er missögn. En
með henni hefir ritstj. komið
orðum að ósk, sem vafalaust
bjó í ibrjóstum allra íslendinga
iþennan dag. Ekkert hefði verið
betur viðeigandi en fjölment
samsæti, og mér er ólhætt að
fullyrða, að ef til slíks hefði
komið, mundu “landamir” hafa
flykst til Elfros þennan dag, svo
að þar hefði vart orðið þverfót-
að um götur ibæjarins. En af
ástæðum, sem taka varð til
greina, gat ekki af þes&u orðið;
þó að Magnús sé ávalt hinn
hressasti og leiki við hvern sinn
fingur, mun honum falla betur
að þurfa ekki að lenda í nein-
um svaðilförum, það sem eftir
er æfinnar. Hinum yfirlætis-
lausa og hógværa manni mundi
hafa verið nóg boðið að sitja
sem miðdepill allrar athygli í
stórri veizlu, meðan tugir
manna hefðu haldið eina ræð-
una á fætur annari um hann
sjálfan. En bæði vinir, ná-
grannar og aðdáendur Magnús-
ar nær og fjæjr kröfðust þess
að fá að sýna honum einhvern
þakklætisvott og viðurkenn-
ingu; þess jþurfti aðeins að
gæta, að þvtf væri fundið iþað
form, sem honum yrði ánægja
að, en ekki kvalræði. Er nú
ekki að orðlengja það, að Þjóð-
ræknisdeildarinnar í Wynyard
og Leslie ásamt ýmsum vinum
og nágrönnum úr Elfros og öðr-
um Vatnabygðum og síðast en
ekki sízt Þjóðræknisfél. Isl. í V,-
heimi tóku málið í sínar hend-
ur. I Vatnabygðunum var mynd-
uð undirbúningsnefnd; formað-
ur hennar var dr. Kristján Aust-
mann í Wynyard.
n.
Dagurinn 24. maí rann upp,
heiður og fagur. Nokkru eftir
hádegi bar gesti að garði hjá J.
Magnúsi Bjarnasyni og konu
hans. Voru það tveir fulltrúar
frá Þjóðræknisfélagi íslendinga,
komnir alla leið frá Winnipeg,
Gísli Jónsson skáld og Árni
Eggertsson fasteignasali. Þá
voru þar og nokkrir menn frá
nefnd þeirri, sem fyr var getið,
dr. Kr. Austmann, form. nefnd-
arinnar, Jón Jóhannsson for-
maður þjóðræknisdeildarinnar í
Wynyard, Páll Guðmundsson
form. þjóðræknisdeildarinnar í
Leslie, Árni Sigurðsson, Árni
Eggertsson lögfr. og Jakob
Jónsson prestur.
Dr. Austmann hafði fyrstur
orð fyrir komumönnum, skýrði
frá því, að þeir væru þar komn-
ir í umboði vina og samlanda
skáldsins víðsvegar um Vestur-
heim, til að þakka honum starf
Frh. & 4. bls.
Frá Riverton-Skóla
HandiðnaðarsýningJ
Drengir
smíða-bekk
Myndirnar hér að ofan sýna ýmsa húsmuni sem gerðir
hafa verið á handiðnaðar-skólanum í Riverton. Séra Eyjólf-
ur J. Melan veitir ungmennunum tilsögn við smíðina.