Heimskringla - 01.07.1936, Blaðsíða 4

Heimskringla - 01.07.1936, Blaðsíða 4
4. SÍÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEJG, 1. JÚLá, 1936 j ^Tcimskrimila (Stofnuð 1S8S) Kemur út d hverjum míðvikudeffi. Eigeodur: THE VIKING PRESS LTD. SS3 oa S5S Sargent Avenue, Winntpeff Talsimit 86 537 VerC blaSsiní er $3.00 irgengurinn bor*l»t tyriríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.___________ EJU Tlítaklft* bréf btafilnu aSlútandl «endl*t: Uanager THS VIKINO PRSSS LTD. S53 Sargent Ave., Winnipeff Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til Htstjórans: EDITOR HSIUSKRINOLA S53 Sargent Ave., Winnipeff “Heimakringla" U publlabed and printed by THS VIKINO PRSSS LTD. SIS-SS5 Sargent Avenue, Winntpeg Uan. Telepbone: M 537 WINNIPHG, 1. JÚLÍ, 1936 NÝJA STEFNUSKRÁIN Síðast liðna viku birtu conservatívar í Manitoba stefnuskrú sína. Las leiðtogi flokksins, Mr. Errick F. WUlis bana upp á fundi í Brandon 23. júní, og gerði grein fryir efni hennar. Var boðskap þessa nýja foringja tekið mjög vel enda verður ekki annað sagt um að minsta kostii tvö eða þrjú atriði stefnuskrárinnar en að þau séu það markverðasta, sem lagt befir verið fyrir kjósendur, enn sem komið er, til viðreisnar og velferðar fylkinu á þess- um sáðustu og verstu tímum. Vér eigum við vaxtalækkunin á skuld fylkisibs, af- nám vinnulauna-skattsins og lækkun stjórnarkosnaðarins um eina miljón doll- ara. Mr. Willis var langorðastur um vaxta lækkunina. Hann tók fram, að bún væri engin gjaldþrota-yfirlýsing, heldur blátt áfram það sem heilbrigð skynsemi benti á að óumflýanlegt væri. Kvað hann fylkið nú greiða um 49c af hverjum $1. í vexti af skuldum sínum. Vextirnir næmu frá 3£% til 6%. Þeir næmu hátt á sjöundu miljón á ári. Og þeir hækkuðu með hverju ári! Hann sagði að ef vextir lækkuðu niður í 3£%, lækkuðu ársvextir um li miljón doll- ara, en um 2 miljónir ef þeim yrði komið niður í 3%, eins og hann taldi vera tak- mark sitt, þó ráð væri gert fyrir einnar miljón lækkun sem vissri í stefnuskránni. Vextirnir væru orðnir það æxli á þjóð- líkamanum, sem skera yrði burtu og því fyr, því betra. Vinnulaunaskattinn kvað hann ósann- gjarnan, auk þess sem hann bæri greini- legan vott mannúðarleysis. Um lækkun bíla-skattsins fór hafin þeim orðum, að hann óttaðist alls ekki þann stóra tekjumissir, sem stjómin biði við það, því bílanotkun mundi vaxa og hallinn með því og af meiri gas-olíu kaupum, sem stjómin tæki skatt af, mjög nærri jafna reikninginn. Bílaskatturinn bægði ofmörgum frá að nota bíla sem stæði. Að lækka stjórnarkostnaðinn um eina miljón doliara kvað hann eins auðvelt og að drekka úr kaffibolla. Með afnámi allra nefndanna, sem Brackenstjórnin hefði skipað eins og nokkurs konar lífvörð um sig, fækkun þingmanna, fækkun ráðgjafa o. s. frv. væri þetta leikur. Hann benti á að Bracken hefði oft einn skipað þrjá til fimm ráðherra sessi og jafnvel alla nema einn, dómsmálasessinn (en hann hefði hann ekki haft lærdóm til að skipa) og alt hefði gengið eins vel og áður. Hinir mörgu hálaunuðu ráðgjafar hans hefðu með öðrum orðum ekkert að gera; verk þeirra væru enda af láglaunuð- um af hendi leyst. Og hann kvaðst einn- ig viss um, að 40 þingmenn gætu betur leyst löggjafarstarfið af hendi en 55 nú getrðu. Mr. Willis kvað Brackenstjómina hafa lagt árar í bát. Hún hefðist ekkert orðið að. Ef á fund hennar væri leitað með ein- hver mál, væri þeim ávalt vísað til nefnda. Og á svörum nefndanna hvíldi svo öll á- birgðin. Á nefndunum bitnuðu afleiðing- amar; aldrei á Brackenstjóminni. Akuryrkju skólann, sem flestar aðrar fylkisstofnanir, kvað Mr. Willis Bracken hafa gert að pólitískri stofnun. Bændur væru hættir að hafa not starfsins, sem þar væri ætlast til að færi fram í þágu land- búnaðarins vegna þessa. Níu greinar stefnuskrárinnar eru land- búnaði beinlínis viðvíkjandi. En auðvitað má segja að flest atriðin snerti sveitimar og hag þeirra að meira eða minna leyti. Að veita sveitunum t. d. svo og svo miklls af gasolíuskattinum, léttir ekki lítið á skattbyrði þeirra. Og hið sama er að segja um lækkun vaxta á sveitaskuldum að jöfnu við vaxtalækkun fylkisskuldar- innar. Þegar Mr. Willis kom að atriðinu í stefnuskránni, er um afnám vinnulauna- skattsins fjallar, dundi við lófaklapp um allan fundarsalinn, er ekki linti lengi. Það lýsti sér mjög vel, að þar var um mál að ræða, sem hug manna stóð nærri, enda hefir engin skatta-álagning hér, fyr eða síðar borið eins greinilega á sér merki kúgunar og okurs og sá skattur. Aö hvima ofan í buddu drengsins og stúlk- unnar á hverju laugardagskvöldi eftir fá- einum ventum af vikukaupi þeirra minnir á vísubrotið hans Einars Benediktssonar: Okrarans höfuð hrokkið og grátt, hvimaði um sillur og snaga---- Hvernig sem kjósendur í þessu fylki snúast við þessari stefnuskrá Mr. Willis, ber hún það með sér, að þá sem hana hafa samið brestur ekki þekkingu á hag og ástæðum fylkisbúa. Hún kemur við þörfum þeirra. í henni er ekki eitt ein- asta atriði, sem ekki er sjáanlega brýn þörf á. Síðan stefnuskráin var birt hefir Bracken svarað henni og gagnrýnt hana. og hvað hefir hann um (hana að segja? Það eitt, að hún sé óframkvæmanleg. — Annað finnur hann henni ekki til foráttu. En hversvegna að hún sé óframkvæman- leg, er ekki reynt að gera neina grein fyrir. Hversvegna ætti að vera óframkvæman- legt, að hætta að ala heila hersveit af að- gerðalausum stjómarklíkum á almnna fé? Hversvegna ætti ekki að vera nærri því komdandi að leggja hömlur á vaxta-ránið, sem hér á sér stað? Hversvegna ætti ekki að vera framkvæmanlegt, að láta þá, sem með súrum sveita vinna sér fyrir hálfum hleif, vera óáreitta með hann? Það eru menn, sem lítils er orðið aö vænta af, sem svo eru haldnir, að sjá þarna engan veg til framkvæmda. ÞÖKK FYRIR TILSKRIFIÐ Skúli þingm. Sigfússon telur Heims- kringhi hafa flutt villandi fréttir 17. júní af þeim undrum sem í Selkirk-kjördæmi sé verið að vinna að vegabótum um þessar mundir. Fréttin sem Heimskringla flutti um þetta var, að efni til, tekin úr blaðinu Free Press. Þess var þar og getið, að þingm. Springfield kjördæmis hefði út- vegað mikið fé til vegabóta í Manitoba og að mestu af því ætti að verja í hans kjör- dæmi. Um að fé yrði lagt fram til vega norður á milli vatna, var ekki minst á einu orði, heldur ekki um nein afreks- verk íslenzku þingmannanna. Heims- kringlu þótti ílt til þess að vita, ef íslenzku bygðimar yrðu enn sem fyr skágengnar og minti íslenzku þingmennina á þetta. Nú gerist það, eftir að Free Press flytur þessa frétt, að Bracken stjórnin fer ólm af stað að láta vinna að vegabótum í fylk- inu. Hún hafði þá afráðið að kosningar færu fram. Og það er, eins og gamall bóndi norðan úr Nýja-íslandi sagði, eini tíminn sem Bracken opnar hjarta sitt fyrir þörfum okkar. En raunin er ávalt sú, bætti hann við, að botninn dettur úr þessu öllu eftir kosningar. Á þessar fjár- veitingar sem Skúli þingmaður talar um, hafði ekki verið minst í ensku blöðunum en vitneskju um þær hefði ekki annar staðar fremur verið að vænta. Til sönnunar orðum Ný-íslendingsins skal benda á brautarstúfinn milli Árborgar og Komarno. Hann hefir verið í smíðum frá því að Brackenstjómin kom til valda. En að þeirri vegabót hefir nálega aldrei verið unnið nema tíma og tíma fyrir kosningar. Beitan ‘hefir legið í salti þess á milli. Og hún á auðsjáanlega að koma að haldi við að endurkjósa Brackenstjórnina eitt kjör- tímabilið ennþá áður en lokið verður við hana. Skúli þingmaður getur þess að mikið fé verði nú lagt í vegabætur í St. George kjördæmi. Auðvitað ætlast hann tjl, að sér (eða íslenzku þingmönnunum) verði þakkað það. Þó Hkr. þyki fyrir að verða að segja það, dettur henni ekki í hug að þakka þeim það. Það er eins víst og að 2 og 2 eru 4, að sú branda hefði ekki verið að borði dregin, ef fylkiskosningar hefðu ekki vofað yfir. Hkr. er Skúla þingm. þakklát fyrir þær upplýsingar sem hann getur gefið henni um vegabætur í St. George. En það em aðrir sem einnig vita nokkuð um þær. Menn sem í kjördæminu búa hafa stund- um skroppið til Winnipeg. Hafi skúr komið úr loftl um nóttina, hafa þeir orðið að bíða þerris til að geta komist heim aftur vegna veganna. Það mun vandfund- in bygð í þessu fylki jafn nærri Winnipeg, sem verri vegi hefir en St. George, þrátt fyrir öll undrin sem þar hefir verið unnið á tíð Brackens og Skúla þingmanns! Skúli þingm. minnist einnig á veitingar sambandsstjórnanna til Selkirk-kjördæm- is. Ætli nokkur þingmaður hafi gert bet.- ur fyrir það kjördæmi en James H. Stitt gerði á einu kjörtímabili? Og það er að sjá sem Kingstjórninni hafi þótt nóg um það, því á brúna hjá Selkirk, sem Skúli minn- ist á, hefir hún lagt toll til þess að ná í eitthvað af því fé aftur. Það eru einu af- skiftin sem liberal-stjómin hefir haft af þeirri brú og þau hneyksla nú Skúla þing- mann sem aðra. Skúli þingmaður lýkur grein sinni með þessum orðum: “Vinsamlega vil eg enn benda á það, að eg er viljugur að gefa Hkr. upplýsingar um velferðarmál rníns kjördæmis. . . .” “Á móti upplýsingum hefir “Hkr.” ekkert frá þeim sem þær hafa, aflögu. En hitt er víst, að hún mun gera hæfilegan mun á fréttum og kosn- inga-auglýsingum.” Og það eru upplýs- ingar St. George þingmannsins í síðasta Lögbergi; þær eru slepjulegt kosninga- skrum. Eða flýtur nú alt orðið í hunangi norður þar? Annað hefir sungið við hjá þeim er þar búa og vér höfum átt tal við. Hvað Brackenstjórnin og búrkettir hennar, liberalar hafast að á stjómar- ráðsfundum eða yfir soðpottinum og ekki er birt, er Hkr. ókunnugt um. En vega- bæturnar, sem Skúli þingmaður minnist á, efumst vér um að í ráði hafi verið, er' Free Press reit fréttina af vegabótunum í Norðaustur-Manitoba, nema að blaðið hafi talið þær svo ómerkilegar og í svo varhugaverðu skyni unnar, að það hafi ekki viljað birta þær. Það er einnig hugs- anlegt, því Free Press veit nokkuð um ráðabrugg Brackens eins og Skúli þing- maður. En það veit einnig hvenær góður tími er til að auglýsa. Og að segja frá því að Breckenstjómin væri nú að ausa fé í vegi, gæti ekki boðað annað en að nú ætti að fara að beita kosninga-öngul- inn og ginna kjósendur. Þar sem hér var um stjórn að ræða, sem ekkert hefir hafst að svo langt sem menn muna, var þetta og laukrétt hugsað hjá blaðinu. Með þökk fyrir tilskrifið. F. D. ROOSEVELT Hugir manna voru ekki skiftir um það á flokksþingi demokrata, sem haldið var s. 1. viku í Philadelphia, hvern velja ætti fyrir forsetaefni í kosningunum á kom- andi hausti. Fylgi Franklins Delano Roosevelts var svo ákveðið að Al. Smith frá New York og aðrir, sem Roosevelt ætluðu að grafa gröf með slagorðum eins og þeim að kjósa góðan eða ekta demokrata, fékk ekki áheyrn og fylgis- mönnum hans var sópað út; þóttu ekki í húsi hæfir. Annar en Roosevelt kom ekki til mála. Og um leið og nafn hans var nefnt af Jóhn E. Mack dómara frá New York, kváðu við lófaklöpp og ærusta full- an klukkutíma. Tillöguna um útnefn- ingu Roosevelt studdu svo 65 menn með ræðum. Roosevelt var með öðrum orð- um kosinn einum rómi áður en atkvæða- greiðslan fór fram. 1 stefnskrá demokrata, sem þarna var samin, er ekki minst á “The New Deal”, en í henni eru greinar, sem fjalla um samvinnu fylkjanna og landsins og sem svo líta út, sem breytingu eigi að gera á stjórnarskránni, er viðreisnarstarfinu mun eiga að bjarga. Þetta er ekki nefnt stjórn- arskrá breyting, en að því einu virðast þó ákvæði þessi lúta. Helztu mótmælin sem andstæðingar Roosevelts beita gegn honum er fjáreyðsla hans. Republikanar telja óumflýjanlegt, að landið verði gjaldþrota, ef stefnu hans og áformum sé fýlgt. En Roosevelt brosir að þessu. Og hann má vel brosa að því. Ef satt er að hann hafi um 6 biljónir dala í gulli og silfri í fórum ríkisins og geti gefið út peninga er nálega svara öllu fé, sem í umferð er í landinu, án þess að skerða gildi dollarsins, virðist fjárhagur ríkisins ekki í stórri hættu. Fjármála- stefna hans virðist ekki á þeirri grunn- færni bygð, sem andstæðingar hans eru að reyna að sýna fram á að hún sé. Það er engin furða þó hann ibrosi — þessu óviðjafnanlega og alt sigrandi brosi, að fjármálamasi andstæðinga sinna. Það hefir ávalt mátt færa Bandaríkja- þjóðinni það til innleggs, að hún hefir þekt sína beztu menn. Sálarlíf hennar hefir verið og er heilbrigt. Þegar Roose- velt kom til valda, var það engum efa orpið, að eins nærri byltingu lá þar og í nokkru öðru landi hefir nokkru sinni gert. En þjóðin beið eigi að síður örugg þeirrar trúar, að fram kæmi sá foringi á meðal hennar, er þeim örlögum gæti aístýrt. Og henni varð að þeirri trú sinni. Roosevelt forseti hef- ir leitt þjóðina út úr öngþveiti, einu því ægilegasta öngþveiti er hún hafði nokkru sinni komist í. Og það mun vafi leika á því í hugum margra, hvort að nokkur maður hafi fyr eða síðar leyst af hendi meira þrekvirki, en Roosevelt forseti hefir gert. En auðvitað sker sagan úr því síð- ar, hver veriö hafi mestur stjórnmálamaður þessarar miklu þjóðar og skal því ekki hér leiða neinar frekari getur að því. Það er enda viðkvæmt mál, að reyna að gera nokkurn saman- burð þeirra mörgu mikilmenna, sem í Bandaríkjunum hafa kom- |ið fram. Hvernig sem kosningar fara i Bandaríkjunum, er af útkomu þessa flokksþings nýafstaðna að dæma, ekkert líklegra, en að Roosevelt forseti njóti óskoraðr- ar og verðugrar hylli og fylgis þjóðar sinnar. “ISLAND” Eugen Diederiche Verlag, Jena (Jón Dúason, íslenzkur lög- fræðingur, sendir Heimskringlu eftirfarandi greinar til birtingar. Hann er staddur í Kaupmanna- höfn, er hann skrifar, og mun hafa starfað erlendis um skeið, í Svíþjóð og Danmörku. Hann mun eigi að síður nokkrum Vestur-íslendingum kunnur fyr- ir ýmislegt er hann hefir ritað — ekki sízt fyrir mjög ítarlegar greinar um Grænlandsmálið. — Heimskringla þakkar honum fyrir þessar fróðlegu greinar. — Hún er þess fullviss, að þær verða lesendum hennar kær- komnar. Ritstj. Hkr.) Svo Iheitir tímarit, sem Is- landsvinafélagið á Þýzkalandi er farið að gefa út á þýzku. Ritstjóri er formaður félagsins dr. Reinhard Prinz í Plön í Hol- stein. Dr. Prinz var sendikenn- ari við Háskólann í Reykjavík 1923—26 og gat sér mikinn orð- stýr. “ísland” kemur út í 4 heft- um á ári, hvert hefti er ca. 70 síðuir. 1 fyrsta árganginum 1934 eru þessar greinar: “Þýzkaland og ísland” eftir Reinhard Prinz. — “Listin í íslendingasögum” eftir Jón Leifs. “Islendingar sem 'bændur os sjómenn” eftir Hans Kuhn. “íslenzk bænda- höfuð” eftir Wolfgang Mohr. — “Halldór Kiljan Laxness” eftir Stefán Einarsson. “Ingólfshöfði” eftir E. M. Tadtmann. “Á skíð- um og sleðum yfir Vatnajökul, frásögn um tvær landfræðis- ferðir: yfir Vatnajökul og upp á Snæfell í júní-júlí 1932” eftir Helmut Verleger. ‘‘Vatnajök- ulsgosið 1934 og rannsókn þess” eftir Helmut Verleger. “Um á- stand innanríkismála á íslandi” eftir Sverri Þorbjörnsson. “ís- lendingasögur, einasta stórfeld lýsing á forngermönsku lífi” eftir prófessor Hans Naumann. “ísland sem menningarheimur” eftir Reinhard Prinz. “Didrik Pining keppir um ísland” eftir Hans Friederich Blunck. “AI- þingiskosningarnar 24. júní 1934” eftir iSverri Þorbjömsson. “Þýzk-íslenzk viðskifti” eftir Björn Kristjánsson. “Gelding f elstu íslenzkum lögum” eftir Hans Kuhn. “U|m Ura-Linda Chronik” eftir Gustav Neckel. “Vísindastörf Paul Hermanns” eftir W. Heydenreich. “Hátíð- arljóð til þúsund ára afmælis- ins” eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskó&i. “Frelsisbarátta Is- lands” eftir Reinhard Prinz. — “Síðasti bikarinn”, skáldsaga eftir Sigurð Nordal. “Úr ís- lenzku stúdentalífi” eftir Alex- ander Jóhannesson. “Þýzk ný- lenda á íslandi” eftir Ernst Fresenius. “Norræn ættamenn- ing og kynþáttamálið á Þýzka- landi” eftir dr. Jón Alfred Mjöen. Dánarminningar Guð- mundar G. Bárðarsonar og Finns Jónssonar. Ritdómar. — Fréttagreinar. í árganginum 1935 eru: ‘Ts- lenzkt landslag” eftir Reinhard Prinz. “Kórmakur skáld” eftir Wolfgang Mohr. “Jakob Bjarna- son á Illugastöðum” þýtt af Hans Kuhn. “íslenzkur frum- herji í vorri samtíð, próf med- Guðmundur Hannesson (rit- stjómargrein), “ísjland, Jalntl listamannanna” eftir Jón Leifs. “Island-saga” (ein Musik- drama) eftir Ernst Wleiskam. “Tvö kvæði” eftir Einar Bene- diktsson. “Menningarafrek ís- lands’ ’eftir Jóhann Jónsson. — “Kynstofn íslenzku þjóðlariinn- ar” eftir Eið S. Kvaran. “Heim- þrá” eftir Þorgils gjallanda, þýdd af R. Prinz. “Fyrirbrigði málara á Islandi” eftir Kathar- ina Wallner. “íslenzkar heim- ildir um Didrik Pining” eftir Hildegard Bonde. “Aldarafmæli Matthíasar Jochumssonar” eftir Kristján Albertsson. “Andreas Heusler 70 ára” eftir Hans Kuhn. “Athugasemd við land- fræðislega ferðasögu” eftir Hel- mut Verleger. “Lofsöngur” eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. “Nýjar íslenzkar bókmentir á Þýzkalandi” eftir Reinhard Prinz. “Island frá landlagslegu sjónarmiði” eftir H. Verleger. “Vatnajökulsgosið 1934” eftir Karl Schmid, Laup- heim. “Staða íslenzka sendi- herrans í Kaupmannahöfn inn- an sendimannaflokksins” eftir dr. Ragnar Lundborg. “Islenzka landsbókasafnið” eftir Hilde- gard Bonde. “Hið óþekta Is- land”. Æfiminning Jóns Þor- lákssonar. Ritdómar. Frétta- greinar. Efni tímaritsins er þannig harla fjölbreytt. Ritgerðirnar eru vandaðar að hugsun og fjörlega skrifaðar á fögru og léttu máli. Ef litið er á höf- undatalið, leynir það sér ekki, að tímarit þetta er ekki aðeins opið fyrir Þjóðverja, heldur er því ekki síður ætlað að vera rit- völlur þar sem Islendingum stendur opið að láta í Ijós skoð- anir sínar á heimsmáli. En greinar þýzku höfundanna gefa ekki síður efni til umhugs- unar. Það vita allir, að þýzku íslandsvinirnir eru íslands beztu vinir. Hugur þeirra til íslands er heill og hreinn. Það er sagt svo, að ást hylji lýti. Það kann að vera svo. En víst er, að ást finnur fegurð, kosti og lífsgildi, sem án ástar eru augum hulin. Vart mun þessi sannleiki nokkru sinni sýna sig1 betur en í grein- um Þjóðverja í tímariti þessu um ísland og íslendinga, um sögu og menningu þjóðar vorrar fyr og síðar. Þar er brugðið upp fyrir okkur fögrum og djúp- tækum myndum af því bezta, sem lifir eða hefir lifað í ís- lenzku þjóðerni og íslenzkri menningu. Það kann nú að vanta í þessar myndir ýmsar skuggahliðar, en er þeim er brugðið upp fyrir okkur, verð- um við að játa tvent: að þær eru í meginatriðum sannar, og að þær hefðu ekki verið séðar svona með líslenzkum augum. Þýzku íslandsvinirnir eru Norð- urálfumenn. Þeir hafa annan og jafnvel víðari sjóndeildar- hring en við. Þeir sjá það, sem fyrir okkar augum er svo sjálf- sagt, að það er okkar augum hulið. Og þýzku íslandsvinirn- ir eru Þjóðverjar, er bæði líta á manngildi þjóðar vorrar frá öðr- um hliðum og mæla á annan mælikvarða en Bretar og Ame- ríkumenn. Þessar myndir, sem vinir okk- ar við RJn og Saxelfi bregða upp fyrir okkur, gætu verið harla mikilsverðar fyrir uppeldi, and- lega framför og lífsbaráttu

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.