Heimskringla - 15.07.1936, Qupperneq 1
#
L. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MHDVIKUDAGINN, 15. JULÍ, 1936
NÚMER 42.
KOMA LEIFS TIL AMERÍKU
SÝND í VANCOUVER
Vestur í Vancouver stendur
nú sem hæst hátíðahaldið út af
h'álfrar aldar afmæli borgarinn-
ar. í sambandi við þá miklu
viðhöfn, hafa Norðmenn og ís-
lendingar á ströndinni tekið sér
fyrir hendur að sýna komu Leifs
Eiríkssonar til Ameríku. Skrif-
ar nefndin, sem fyrir sýning-
unni stendur Heimskringlu á
þessa leið:
Norðmenn og íslendingar í
Vancouver hafa ákveðið að sýna
komu Leifs til Ameríku á hinni
miklu 50 ára afmælishátíð Van-
couverborgar sem hér stendur
nú yfir. Fer sýningin fram 25.
júlí. Að undirbúningi hennar
hefir verið unnið í nokkra mán-
uði og er honum nú lokið. Einn
af leiðtogum íslendinga í Van-
couver, Mr. G. Ólafsson, 1837
Cotton St., hefir tekið að sér
hlutverk Leifs Eiríkssonar. Með
honum verður bátshöfn eða 24
víkingar alls. Verða þeir klædd-
ir eftir þeirrar aldar sið. Vík-
ingaskipið hefir verið smíðað í
mynd og líkingu skipa, er tíðk-
uðust um þær mundir er Leifur
var uppi. Kemur skipið sigl-
andi inn The First Narrows, kl.
2.30 eftir hádegi, laugardaginn
25. /júlí. Á ströndinni koma
Indíánar til móts við þá.
En þetta er nú ekki nema
einn þáttur í skemtiskránni, sem
Norðmenn og íslendingar hafa
þarna um hönd. Þegar Leifur
og víkingar hans eru komnir til
lands, byrjar fjölhreytt skemti-
skrá í Brockton Point. Er frá
henni greint í auglýsingu á öðr-
um stað í blaðinu.
Þátttaka frændanna á strönd-
inni í þessari Vancouver-hátíð,
getur haft nokkurt þjóðjlegt gildi
því um þúsundir hátíða-gesta
má búast að verði áhorfendur
sýningarinnar.
vel flesta þessa 10 daga, hefir
hitinn verið um 100 stig, ýmist
meira, ýmist minna.
Á aðra mæla hér hefir' hitinn
verið 5—10 gráðum meiri. En
það þykir ekki í mál takandi að
segja að svo heitt hafi verið.
Það er með mælingu hita hér
sem kulda, að satt má ekki um
það segja. Það yrði þá sam.i
sagan og þaðan, sem sagt er um
að alt brenni og frjósi. Og það
mælir ekki með innflutningi.
Þegar þetta er skrifað, eru
ekki skýrslur komnar yflr
dauðsföll í Canada af hitunum.
En í Winnipeg og grendinni dóu
s. 1. laugardag og sunnudag 17
manns, of orsökum hitans. Og
21 voru fluttir á sjúkrahúsin í
bænum veikir.
Þrjátíu hestar duttu niður á
götum Winnipegborgar dauðir.
Og dýraverndunarfélagið var
mikið á ferðinni, eftir hundum,
köttum og kanínum, sem drepa
varð.
Utan úr sveitum eru Jþær
fréttir af hitunum, að margur
bóndinn geri sér ltila von um
uppskeru, hvorki úr kornakri né
klálgörðum, einkum í suðvestur-
hluta fylkisins. Ennþá er þó
vonandi, ef þessum skaðræðis-
hitum linnir, og rigna skyldi tii
muna, að betur fari en áhorfist.
honum sóttu hluta frá 12 til 16
atkvæði hver. Þeir hétu Cho-
pek, Onafreychuk og Rutko.
Mr. Lifman hefir verið odd-
viti Bifrostsveitar síðan 1933. —
Áður hefir hann bæði verið í
sveitarríáði Biifrastar og bæjar-
ráði á Gimli. Hann kom til
Nýja íslands árið 1886 og bjó
fyrstu 3 árin að Árnesi. Þaðan
flutti hann til Gimli og síðar ti!
Árborgar.
í Bandaríkjunum hafa hitarn-
ir verið ennþá meiri. Er nú
sagt að síðustu 10 dagana þar
hafi dáið af völdum hitans 982
menn alls. Hafa miðríkin og
mið-norðurríkin orðið harðast
leikin. Uppskeruhorfur eru
syðra nú orðnar þær, að búist
er við að talsvert þurfi að flytja
inn í landið af hveiti.
ÍSLENDINGUR DRUKNAR
G. S. THORVALDSON FLYTUR
RÆÐU f ÚTVARP Á MORGUN
Á morgun (fimtudag) flytur
G. S. Thorvaldson lögfr. ræðu í
útvarpið (CJRC) kl. 9.15 að
kvöldinu. Eftir því er hann
greindi frlá s. 1. fimtudag í út-
varpsræðu sinni, verður um-
ræðuefnið vinnulaunaskatturinn
o .fl. Síðast liðinn fimtudag
ræddi hann um stjórnarferil og
fjármálaóreiðu Bracken-stjórn-
arinnar og var það ein hin
skarpasta ádeila, er enn hefir
verið flutt í þessunPkosningum.
Hefir margur þrýst hönd Mr.
Thorvaldsonar síðan fyrir vikið
og ræða hans vakið mikla at-
hygli. Þegar Mr. Thorvaldson
hefir gert grein fyrir starfi nú-
verandi stjórnar og hag fylkis-
búa, snýr hann umræðuefni
sínu að stefnuskrá og fyrirætl-
unum conservatíva. En það
verður gert í þriðju og síðustu
útvarpsræðu .hans 23. júlí. Þeir
sem á skarpa ræðu vilja hlýða,
ættu að muna, að snúa viðtæk-
inu á, kl. 9.15 annað kvöld.
Að Hnausum varð það hörmu-
lega slys 7. júlí að Kristjón
Finnsson, unglingsmaður frá
Víðir druknaði. Hann fór með
nokkrum ungum mönnum frá
Árborg austur að vatninu. -
Lögðu félagar hans þegar til
sunds, en þegar þeir voru all-
fjarri landi, tóku þeir eftir að
Kristjón sem var á eftir þeim,
átti í erfiðleikum. Og áður en
þeir gátu komið til hjálpar,
hafði hann sokkið í síðasta
sinni. Líkið var veitt upp eftir
tvo klukkutíma.
Kristjón var 23 ára, sonur Mr.
og Mrs. Sigurðar Finnsson á
Víðir.
SALOME HALLDÓRSSON
ÞINGMANNSEFNI f
ST. GEORGE
Á útnefningarfundi social cre-
dit-sinna í Eriksdale s. 1. mánu-
dagskvöld, var ungfrú ISalome
Halldórsson kjörin til að sækja
um þingsætið í St. George-kjör-
dæmi fyrir hönd flokksins. Hún
var ein í vali.
Ungfrú Halldórsson hefir um
mörg ár verið kennari á Jóns
Bjarnasonar skóla. Hún er með
bezt mentuðu íslenzkum konum
hér vestra og virt og mikilsmet-
in bæði sakir mannkosta og
hæfileika sinna.
ÍSLENDINGADAGURINN f
SEATTLE, WASH.
BRÖGÐ f TAFLI?
Blaðið Chicago Evening Am-
erican birti í gær frétt af því,
að það væri verið að sækja mál
á hendur ónefndum manni fyrir
það, að hafa spýtt deyfingarlyfi
í vinstri handlegginn á Joe Louis
daginn sem hann háði hnefa-
leikinn við Max Schmeling. Lyf-
ið átti að vera í því fólgið að
verja blóðþrýstingi, en nú er
haldið að það .hafi dregið svo
mátt úr handleggnum, að Joe
Louis hafi alls ekki haft vanaleg
not hans. Það ber margt vott
um að einhver brögð hafi verið
í tafli í þessum síðasta hnefa-
leik.
107 ÞINGMANNSEFNI
KOSTAR 500 LÍFIÐ
Tala þingmannaefnanna sem í
fylkiskkosningunum í Manitoba
sækja, var í gærmorgun alls
107. Eru 47 úr stjómarflokki,
33 úr conservatívaflokki, 15 úr
C. C. F. flokki, 6 social credit
sinnar og 6 óháðir.
Útnefningu lýku.r 17 jjúlí. —
Munu þrír fyrst töldu flokkarnir
ekki bæta mörgum þingmanna-
efnum við úr þessu, eða ekki
nema einum eða tveimur. En
það er social credit, sem mörg-
um bætir við. Ekki munu þeir
þó hafa mann í hverju kjör-
dæmi eins og fyrst var frá skýrt.
í Winnipegbæ kváðu 4 ætla að
í sækja, en í sveitakjördæmunum
24, eða 28 alls.
SKAÐRÆÐIS HITAR
FYá 3 júlí og til hins 13 hafa
verið svo miklir hitar í Canada.
að engar sögur fara af öðru eins
áður.
Á mælir búnaðarskólans eða
stjórnarinnar, var hitinn sagð-
ur s. 1. laugardag 108 gráður (á
Fahrenheit). Er það sagður sá
heitasti dagur, sem sögur fara
af í Manitoba. En marga, jafn-
Hitarnir undanfarna viku eða í
raun réttri frá byrjun þessa
mánaðar hafa kostað 500
manns lífið í Ontario-fylki. Létti
mestu ósköpunum s. 1. mánu-
dag þar sem hér. En svo segja
læknar, að við megi búast, að
fleiri deyi af afleiðingum hit-
ans en þegar eru dánir og eins
þó hitarnir réni. Hitarnir hafa
verið skæðastir gamalmennum
og börnum.
B. J. LIFMAN ÞINGMANNS-
EFNI STJÓRNARINNAR
f GIMLI KJÖRDÆMI
Á fundi sem liberalar og pro-
gressívar héldu á Gimli um helg.
ina, bæði til að kjósa kosninga
starfsnefnd og velja þingmanns-
efni sitt, var B. J. Lifman frá
Árborg kjörinn þingmannsefni.
Af 114 atkvæðum alls hlaut
hann við fyrstu talningu 68 at-
kvæði. Hinir þrír er á móti
DR. B. B. JÓNSSON D. D.
fer í fyrirlestr?iferð vestur
á Strönd.
Sunnudaginn 2. ágúst 1936
verður íslendingadagurinn hald-
in að “Silver Lake,” Wash.
Kæru Islendingar!
Nefndin sem kosin var til að
hafa umsjón yfir þessum íslend-
ingadegi býður yður hér með
alla velkomna til “Silver Lake”,
annan ágúst.
Enn á ný ætlum vér að kojna
hér saman til að minnast ís-
lands, þjóðar vorrar og tungu,
og í tíunda sinni á þessum sama
stað, þessi staður er því orðinn
okkur kær, hann er einskonar
vermireitur íslenzkra hugsjóna,
enda er útsýni hér svo undra
fagurt og minnir á íslenzka
náttúrufegurð fremur öllu, sem
vér höfum séð í þessari álfu, —
fjallasýn á tvær hliðar, Olympic
fjöllin í vestur átt, en Cascade
fjöllin í austri, skemtistaðurinn
er umkringdur lágum furu-skógi
með hringmynduðu stöðuvatni,
“Silver Lake”, í miðju, þar
standa gistiskálar og danshallir
alt í kring, ennfremur sundklef-
ar skemtibátar af mörgum teg-
undum. Umhverfið alt hefir
það seiðmagn, að hver, sem eitt
sinn sækir hingað skemtimót,
þráir að líta staðinn á ný.
Nefndin hefir eins og að und-
anförnu útbúið fjölbreytta
skemtiskrá fyrir dagin, lærðir
menn og skáld flytja ræður og
kvæði, íþróttir af ýmsum teg-
undum sýndar, góð verðlaun
gefin þeim sem fram úr skara,
íþróttir unglinga byrja kl. 11. f.
h., hátíðin sett af forseta dags-
ins kl. 2. e. h., framhald íþrótt-
anna eftir þann tíma, fátt getur
verið meira upplífgandi og end-
urnærandi fyrir líkama og sál,
en koma saman á heiðskírum
sumardegi, út í fögrum skógar-
lund, mæta þar ættingjum og
vinum, rifja upp minningar og
atvik, frá liðinni tíð, og spá fyrir
hinu ókomna. Nú vill svo til að
þessi sunnudagur ber upp á
mánaðardaginn annan ágúst,
sem er merkisdagur í sögu þjóð-
ar vorrar, þá sáust fyrst skýja
skil í lofti í frelsisbaráttu ís-
lands, eftir langnætti og myrk-
ur, þegar Kristján konungur IX.
færði íslendingum stjórnar-
skrána annan ágúst 1874.
Það er því ein af ástæðunum
fyrir því, að búast má við fjöl-
menni að “Silver Lake”. — Þess
utan verður meira um ferðafólk
austan yfir fjöll um þetta leyti
en nokkru sinni áður. Íslend-
ingar hér á ströndinni hafa því
gott tækifæri að mæta kannské
gömlum vinum, sem þeir hafa
ekki séð í fleiri ár, hver veit? —
enginn nema sá sem reynir:
nú dáinn. Hinn var stunginn í
brjóstið, en ekki hættulega. Það
var við læknisskoðun á föngun-
um sem Svertingin framdi verk-
ið. Hnífurinn var notaður til
að spretta saumum á post-pok-
um í vinnudeild fangelsins og
þar náði fanginn honum.
Sjö manns druknuðu í Rauð-
ánni og Assiniboine-ánni innan
Manitobafylkis yfir síðustu
helgi.
Afhjupun minnisvarða
St. G. St.
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
KAUPIR NÝTT SKIP
Afhjúpun minnisvarða skálds-
ins Stephans G. Stephanssonar
fer fram sunnudaginn 19. júlí.
Úr Alberta og nærliggjandi fs-
lenzkum bygðum, er búist við
að fjöldi manns verði viðstaddur
þá athöfn og einhverjir að sjálf-
sögðu lengra að. Dr. Rögnvald-
ur Pétursson flytur ræðu við af-
hjúpun minnisvarðans.
Andrés Daníelsson frá Blaine,
Wash., biður Hkr. að geta þess,
að Islendingar vestur á Kyrra-
hafsströnd, hafi samið við dr. B.
B. Jónsson, D. D., í Winnipeg
um að koma vestur og flytja
nokkur erindi þar. Leggur dr.
B. B. Jónsson af stað upp úr
næstu helgi. Flytur hann fyrsta
fyrirlestur sinn á “Miðsumars-
móti” Islendinga í Blaine 26.
júlí. í Bellingham flytur ,hann
og fyrirlestur á ensku um bók-
mentir og listir íslendinga og
verður það auglýst síðar. Eftir
það verður farið norður eftir
ströndinni og erindi flutt þar.
Mrs. dr. Jónsson verður og í
förinni vestur.
Hver, sem skilur heilbrigt
hjartalag,
helgar minning íslands þennan
dag,
metur gull í gömlum ættar sjóð,
guð sinn finnur þar, sem vagg-
an stóð,
þar sem fyrst hann heyrði móð-
urmál,
milt og Ijúft og hreint og tnaust
sem stál,
svo er gott að finna handtök
hlý;
hitta vini og frændur enn á ný.
(fyrir hönd nefndarinnar)
H. E. Magnússon
Mr. og Mrs. Dionne, foreldr-
um fimmburanna, fæddist son-
ur s. 1. fimtudag.
Tveir varðmenn í Kijngston
fangelsinu í Ontario voru
stungnir með hnífi s. 1. laugar-
dag, af einum fanganna; voru
þeir fluttir á sjúkrahús. Var
annar vörðurinn illa meiddur,
stunginn í kviðinn og er hann
í ráði er að Eimskipafélag ís-
lands bæti einu skipi við skipa-
stól sinn. Stendur svohljóðandi
fregn um það í Morgunblaðinu
23. júní:
Nýtt fafþegaskip, er rfáðgert
að Eimskipafélagið láti byggja,
samkvæmt heimild sem sam-
þykt var á aðalfundi félagsins
s. 1. laugardag; á það að vera
hraðskreitt mótorskip — geta j
farið 16 mílur á vöku. j
“Fossarnir” fara nú að jafn-'
aði 12£ mílu á vöku. Skipið á
að geta tekið 100 farþega á I. '
farrými og 60 á II. og kostar um I
2\ miljón, og er það sama verð
og “Goðafoss” kostaði.
Guðmundur Vilhjálmsson —
framkvæmdastjóri Eimskipafé-
lagsins lagði þetta mál fyrir
fundinn og flutti í því sambandi
ræðu.
í umræð’unum, sem fram fóru
um málið á fundinum, kom ým-
islegt fram, sem skýrði enn bet-
ur, hvað það er, sem vakir fyrir
félagsstjórninni.
Stjóm Eimskipafélagsins
hugsar sér, að sjripið verði í
ferðum milli Kaupmannahafnar,
Leith og Reykjavíkur. Því er
fyrst og fremst ætlað að annast
farþegaflutninga yfir
mánuðina.
Skipið á að fara 14. hvern
dag frá Reykjavík og Kaup-
mannahöfn og því gert ráð fyrir,
að það afkasti í einni ferð sama
og Gullfoss gerir nú í tveimur
ferðum.
Þótt skipið sé fyrst og fremst
hugsað sem farþegaskip verður
lestarrúm þess þó meira en
nokkurs annars af skipum Eim-
skipafélagsins, og verður m. a.
útbúið með frystitækjum. Hið
nýja skip verður m. ö. o. full-
komnasta farþega- og flutninga-
skip.
Eftir sumarmánuðina er ætl-
ast til, að skipið verði í hægari
ferðum, en að það sigli til sömu
staða. Ekki er ráð gert, að skip-
ið sigli til hafna út um land.
Stjórn Eimskipafélagsins tók
það skýrt fram„ lá fundinum, að
ekki yrði ráðist í að byggja
þetta nýja skip nema áður sé
trygt, að ríkið styrki félagið ríf-
lega við rekstur skipsins.
Félagsstjórninni er það ljóst,
að það verði tap á rekstri svona
skips. En hún lítur svo á, að
ríkið muni græða mikið, beint
og óbeint við það, að slíkt skip
yrði í ferðum, sem myndi taka
mikinn farþegaflutning milh
landa. Þessvegna telur stjórn
Eimskipafélagsins sjálfsagt, að
ríkið muni styðja þetta mál
með ríflegum fjárstyrk.
Ef ekki tekst nú þegar að
hrinda þessu stórmáli í fram-
kvæmd, má fullyrða, að erlend
skipafélög hefjist handa og setji
skip inn á þessa siglingaleið, því
að þau hafa orðið þess vör, að
farþegaflutningi til Islands er
nú mjög ábótavant.
Það upplýstist á fundinum,
að erlend skipafélög eru þegar
farin að hreyfa þessu máli og
hafa m. a. nýlega sent hingað
mann þessara erinda.
En það veltur fyrst og fremst
á ríkisstjórninni íslenzku, hvort
úr framkvæmdum getur orðið.
Vill ríkisstjómin styrkja
þetta þjóðþrifafyrirtæki — eða
ætlar hún, að láta erlend félög
annast farþegaflutningana?
ÍSLANDS-FRÉTTIR
14 íslenzkir íþróttamenn
fara á Olympsleikana
íslendingar ætla að taka þlátt
í Olympsleikunum í Berlín í
sumar. Það mun nú þegar ráð-
ið að sendur verði þangað flokk-
ur sundknattleikara, 7 aðal-
menn og 3 til vara og ennfrem-
ur fjórir keppendur í frjálsum
íþróttum.
Þessir hafa verið tilnefndir:—
Sigurður Sigurðsson frá Vest-
mannaeyjum, til að keppa í þrí-
stökki; Kristján Vattnes, til að
keppa í spjótkasti; Karl Vil-
mundarson, í tugþraut, og
Sveinn Ingvarsson í 100 metra
hlaupi.
Allir þessir íþróttamenn eiga
að fara héðan með “Dettisfossi”
15. júlí.
En þar að auki hafa Þjóðverj-
ar boðið héðan 30 íþróttakenn-
urum og íþróttafrömuðum til
sumar- þegg að kynna gér oiympsleik-
ana og alþjóða íþróttirnar.
Væri það íslenzku íþróttalífi
ómetanlegt gagn að sú för gæti
tekist og orðið til þess að upp-
fylla þá ósk, sem bjartsýnustu
íslendingar báru í brjósti um
framtíð íslenzkra íþrótta og í-
þróttamanna, fyrir 25 árum.
Nokkurt fé skortir þó enn til
þess að íþróttamennirnir, sem
utan eiga að fara hafi þann út-
búnað, sem þeir þurfa.
Sú skömm má oss aldrei
henda, að vér gugnum á síðustu
stundu, þegar annað eins tæki-
færi eins og þetta er lagt upp í
hendur vorar.
Væri það nú mannsbragur ef
einhver byði þessum hópi það
fé, sem enn vantar. Það er ekki
ýkja mikið. Og verði enginn
einn til þess„ þá verður leitað til
íslenzkrar alþýðu um styrk. —
Þessum styrk mun hún ekki
neita, þótt hart sé í ári, þegar
sómi Islands liggur við.
Mbl. 16. júní.
SMÆLKI
Blaðið Free Press reynir í
langri ritstjórnargrein í gær að
mæla vinnulaunaskattinum bót
með því, að hann sé ekki nefnd-
ur réttu nafni; það sé ekki
vinnulauna-skattur heldur tekju
skattur. Hver sér muninn, eins
lengi og skatturinn er tekinn af
vinnulaununum?
* * * *
Mr. Bracken segir að án
vinnulaunaskattsins hefðu 80,-
000 atvinnulausra manna beðið
bana af hungri í þeissu fylki.
Samt er hver eyrir af fénu til
styrktar atvinnulausum af hálfu
stjórnar hans, enn í skuld, og
verður — vittu til — í skuld
meðan Bracken ei; við völd.