Heimskringla - 15.07.1936, Page 2
2. SlÐA.,
!
MEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 15. JÚLÍ, 1936
KIRKJUÞING
HINS SAMEINAÐA
KIRKJUFÉLAGS ÍSLENDINGA
í NORÐUR AMERÍKU
FundargerS
Fjórtánda ársþing liins Sam-
einaða Kirkjufélags íslendinga í
Norður-Ameríku var sett í
kirkju Sambandssafnaðar í
Winnipeg þann 26. júní 1936 kl.
4 e. h.
Þingsetningin hófst með því
að sálmurinn nr. 638 í sálma-
bókinni ,var sunginn og 'þar
næst flutti séra Jakob Jónsson
bæn. Sagði forsetinn, séra Guð-
mundur Árnason því næst þing-
ið sett og las ávarp það, sem
hér fylgir:
Ávarp forsetans
Kæru kirkjuþingsmenn
og gestir:
Það er mér mikil ánægja, að
brjóða yður velkomna á þetta
fjórtánda ársþing kirkjufélags
vors. Það eru nú liðin fimm ár
síðan þing var síðast háð hér í
kirkju Sambandssafnaðarins í
Winnipeg. Vér, sem þá vorum
hér stödd, minnumst enn með
ánægju og þakklæti þeirra mjög
alúðlegu og rausnarlegu við-
taka, sem vér þá nutum af hálfu
safnaðarins.
Það hefir verið venja í ís-
lenzku kirkjufélögunum báðum
frá byrjun, að halda þing sín á
mismunandi stöðum frá ári til
árs. Þessi venja er einkar-
heppileg, því að hverju þing-
haldi fylgir uppörfun og hvatn-
ing, einkum úti um bygðir. Og
þó að langt ferðalag kosti tals-
vert fé og oft mikla fyrirhöfn,
er gagnið, sem unnið er með
þinghaldinu á þennan hátt svo
mikið, að það margborgar bæði
fyrirhöfn og kostnað; og það
gæti ómögulega orðið jafnmik-
ið, ef þingin væru ávalt haldin
á sama stað. En eins og sagt
var til forna, að allar leiðir
lægju til Rómaborgar, svo má
segja um Winnipeg, að þangað
liggja tíðast leiðir manna úr öll-
um íslenzkum bygðum í þessu
fylki og víðar að. Vér höfum
því alla ástæðu til þess að ætla
og vona, að þetta þing verði vel
sótt. Vil eg nú biðja alla þá, sem
taka þátt í störfum þingsins,
hvort sem þeir eru fulltrúar eða
ekki, að sækja fundi þess vel,
og að láta önnur erindi, sem
þeir kunna að þurfa að rækja,
fyrst ferðin féll hingað, bíða þar j
til eftir þingslit. Eg vona að
enginn misvirði það, þó að eg j
beri fram þessa ósk nú strax í
byrjun.
Þegar litið er yfir liðið ár við
hverja þingsetningu, virðast þeir
atburðirnir, sem í fljótu bragði
sýnast skifta miklu máli, oft
fremur fáir. í sögu hvers fé-
lagsskapar hlýtur starfið lengst
af að ganga sinn jafna gang,
án þess að mikilla breytinga
verði vart. En það er misskiln-
ingur að ætla, að þau tímabilin,
þegar kyrð er yfir starfinu, séu
þýðingarlítil, og að þroska sé
aðeins að vænta þegar hreyfing-
in á yfirborðinu virðist sem
mest. Hver stofnun, sem hefir
verulega fest rætur í mannlegu
félagi, og sem uppfyllir ein-
hverja þörf mannanna, styrkist
hvað mest og bezt, og afkastar
bezt sínu ætlunarverki, þegar
líf hennar er sem rólegast og
umbrotaminst. Meðan hún hef-
ir nógan lífsþrótt til þess að
verjast hnignun, meöan hún
samsvarar eðlilegri þörf í mann-
félaginu, er henni engin hætta
búin; því að líf hennar er þá
hluti af hinu stærra almenna
lífi, sem brýst fram í öllu starfi
mannanna bæði andlegu og lík-
amlegu. Það er aðeins þegar
stofnunin verður viðskila við líf-
ið sjálft, þegar hún megnar ekki
lengur að uppfylla neina þörf
eða þrá mannanna á yfirstand-
andi tíma, sem að henni fer að
hnigna, þá er hinn þurri fúi
kominn í innviði hennar, og þó
að byggingin sé enn glæsileg hið
ytra, er falls hennar ekki langt.
að bíða.
Þetta liðna ár hefir ekki ver-
ið viðburðaríkt í félagsskap
vorum. Starf vort hefir haldið
áfram föstum og jöfnum skref-
um, þótt ekki hafi verið margt
í sambandi við það, sem út á
við hef'ir vakið sérfetaka at-
hygli. Sömu starfsmenn hafa
verið að verki á sömu stöðum
að mestu leyti og næsta ár á
undan. Þess má þó geta, að í
fyrra um þetta leyti var það
ekki fullráðið, að séra Jakob
Jónsson ílentist hér vestra. En
áður en árið, sem hann réðist
hingað fyrir upphaflega, var
liðið, /(hafði hann afráðjð að
dveljast hér lengur og réðist
til safnaðanna í Vatnabygðun-
um í Saskatchewan. Kom fjöl-
skylda hans að heiman á síð-
astliðnu hausti, og vil eg nota
þetta tækifæri til þess að
bjóða hana velkomna hingað ■ enn, að sá félagsskapur hafi
fyrir hönd kirkjufélagsins. Er góðfúslega orðið við öllum sann-
There are at letast
FIVE REASONS
why every home needs a telephone... When you install
your ’?*a
OWN HOME TELEPHONE
you immediately acquire
1. PROTECTION
2. PROFIT
3. CONVENIENCE
4. PLEASURE
5. PRESTIGE
This modern convenience, whiclh. is the most
complete and lowest priced form of insurance
you can buy for the home, will bring you an en-
viable sense of security and protection which
alone is well worth the few cents a day your
Telephone will cost.
Make use of Manitoba's
Greatest Public Utility
THE TELEPHONE
Manitoba Telephone System
koma séra Jakobs og f'rúar
hans hingað vestur fyrir lengri
tíma oss öllum mikið ánægju-
efni og söfnuðum þeim, sem
þau hjón starfa hjá, óefað hið
mesta happ.
Aðrir prestar félagsins hafa
starfað á sömu stöðum og með
sama hætti og áður: séra
Eyjólfur Melan í Nýja-lslandi,
séra Philip M. Pétursson í Win-
nipeg, þjónar hann nú bæði
Sambandssöfnuðinum og Úní-
tarahöfnuðinum enska, sem not-
ar kirkju Sambandssafnaðar við
morgunguðsþjónustur; eg hefi
þjónað söfnuðum mínum á
Lundar og Oak Point, sem að
undanförnu, og sömuleiðis flutt
guðsþjónustur af og til á fjór-
um öðrum stöðum; séra Rögn-
valdur Pétursson hefir, sem að
undanförnu oft verið kallaður
til að gegna prestsverkum bæði
hér »í Winnipeg og annars stað-
ar.
j Eins og öllum, sem hér eru
! staddir, mun vera kunnugt, hef-
ir Lr. Ingi Borgfjörð lokið guð-
fræðisnámi við Meadville guð-
■ fræðisskólann f Chicago á þessu
vori með ágætiseinkunn. Hefir
kirkjufélag vort styrkt hann eft-
! ir föngum við námiö, og er
I mjög ánægjulegt til þess að
: vita, að sú hjálp, sem það hefir
látið honum í té, hefir komið að
góðum notum. Vil eg hér með
láta í ljós samfögnuð minn og
félags vors með þessum efnilega
námsmanni og óska honum og
konu hans til allra heilla, hvar
sem að starfssvið þeirra á kom-
| andi árum verður.
Stjórnarnefnd félagsins hefir
haldið marga fundi á árinu, og
hafa þeir af stjórnarnefndar-
S mönnum, sem eiga heima ptan
! Winnipeg, lagt á sig ekki alllitla
fyrirhöfn við að sækja þá. Kann
t eg þeim öllum beztu þakkir íyr-
I ir skyldurækni þeirra og áhuga.
j Starf nefndarinnar á þessu ári
! hefir að ýmsu leyti verið erfitt,
einkum vegna f járhagslegra erf-
iðleika, sem óhjákvæmilegir
voru, sökum kostnaðar, sem
Lagt var í. Og þó að því sé ekki
lokið enn að ráða fram úr þeim
erfiðleikum, þá hefir þó vonum
betur úr þeim ræzt. Annars
ætla eg ekki að ræða um fjár-
hag félagsins hér, |en vil biðja
menn, að veita því nákvæma at-
hygli, hvemig hann stendur, er
skýrslur féhirðis og fjármála-
nefndar verða lagðar fram. Það
segir sig sjálft, að félagið getur
ekki unnið starf sitt á nokkurn
viðunanlegan hátt án þess að
hafa nokkurt fé handa á milli.
Og fé getur það ekki haft ann-
að en það, sem söfnuðimir
| leggja Því til. Tillög þeirra hafa
j heldur farið minkandi þessi síð-
i ustu ár„ sem stafar af fjárhags-
j örðugleikkum þeirra sjálfra; en
| vonandi er, að í framtíðinni
. greiðist nokkuð fram úr þessu
og að tillögin geti aftur orðið
nokkuð ríflegri en þau eru nú.
Eins og að undanförnu hafa
útvarpsmessur þær, sem fluttar
hafa verið á árinu frá Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg, ver-
j ið mjög vinsælar. Br í mínum
: huga enginn vafi á því, að þær
j eru eitt hið bezta útbreiðslu-
! meðal fyrir frjálsar trúarskcð-
j anir meöal Vestur-íslendinga.
Er vel farið, að til þeirra hefir
verið vel vandað og á bæð;
prestur Sambandssafnaðar í
Winnipeg og söngflokkur þakk-
! ir skyldar fyrir starf sitt við
j undirbúning þessara guðsþjón-
! usta. Hitt er rétt að taka fram
I hér, að það er ekki, eins og
margir virðast halda, Sam-
I bandssöfnuður í Winnipeg, sem
ber kostnað af útvarpinu;
kirkjufélagið gerir það og hefir
haft þó nokkurn kostnað af því.
Eins og að undanförnu, hefir
the American Unitarian Associ-
ation styrkt starfsemi vora hér
með sínu alkunna örlæti og vel-
vild í garð frjálstrúarhreyfing-
arinnar meðal Vestur-íslend-
inga. Hefir það aldrei brugðist
gjörnum og skynsamlegum til-
mælum frá vorri hálfu. Vil eg
hér með leyfa mér að benda öll-
um safnaðafulltrúum á það, að
áfar áríðandi er, að öll viðleitni
sé sýnd í því að skifta sem rétt-
ast og að standa í skilum við
the American Unitarian Associ-
ation. Á einum nefndarfundi
félags vors' í apríl var rætt um
það, að æskilegt væri, að félag i
vort gæti sent erindsreka á maí
fundi A. U. A. í Boston þetta ár.
Var auðvitað ekki hægt að kjósa
neina beinlínis til þeirrar farar,
þar sem að félagið sjálft var
engan vegin fært um að taka
þátt í ferðakostnaði erindsreka,
en hann er óhjákvæmilega
nokkuð mikill. En útkoman af
þessari ráðagerð varð þó sú, að
við dr. Rögnvaldur Pétursson,
fórum austur., Áttum við löng
samtöl við embættismenn og
meðlimi stjórnamefndar A. U.
A. og skýrðúm þeim frá aðstöðu
safnaðara vorra hér vestra og
starfi þeirra. Er það að mínu
áliti bæði vel við eigandi og
nauðsynlegt, að einhverjir full-
trúar frá kirkjufélagi voru sæki
þessa árlegu fundi sem allra oft-
ast að því verður við komið. —
'Hafa venjulega liðið allmörg ár
á milli þess að nokkrir héðan að
vestan hafi sótt þá. Yfir höfuð
vil cg mæla með því eindregið,
að félagsskapur vor standi í
sem nánustu sambandi að hægt
er við A. U. A., ekki aðeins að
því er snertir fjárhagsleg við-
skifti, heldur líka hið persónu-
lega samband við þá ágætu
menn, sem þar veita málum
forstöðu. Alt sem gæti miðað
til þess að veikja það samband
væri oss í óhag. Vonandi verð-
ur kleift að standast þann
kostnað, sem slíkar ferðir hafa
í för með sér.
Eg vil hér minnast þess, og
láta í Ijós þakklæti stjórnar-
nefndavinnar og fulltrúa, að þeir
dr. Rögnvaldur Pétursson og
Mr. Svemn Thorvaldsson hafa á
þessu ári hlaupið mjög drengi-
lega undir bagga með stjórnar-
nefnd félagsins og lánað henni
ELECT Ald. PAUL BARDAL
LIBERAL CANDIDATE
An expe r i e n ce d,
c a p a b I e< iadmin-
istrator, pledged to
serve the interests
of the p e o p I e of
Winnipeg.
BARDAL, PAUL
1
Support all city Liberal candidates in order of preference
Safnaðarfulltrúar:
Frá Sambandssöfnuði í Win-
nipeg: dr. Magnús B. Halldórs-
son, hr. Ólafur Pétursson, Miss
Elín Hall, hr. Jón Ásgeirsson.
hr. Friðrik Sveinsson. (Varafull-
trúar, Miss Sigríður Jakobsson,
Miss Hlaðgerður Kristjánsson,
hr. Thorvaldur Pétursson, hr.
Gunnar Erlendsson, Miss Guð-
björg Sigurðsson).
Fulltrúar annara safnaða:
Stephan B. Stephansson, Pin-
ey; Mrs. Guðrún Johnson, Ár-
nes; Mrs. Lily Bjamason, Lang-
ruth; Mrs. Guðrún Mathews,
Oak Point; Miss Kristín Benson,
Gimli; Guðm. Björnsson og Mrs.
Guðm. Björnsson, Riverton;
Finnbogi Johnson, Christian
Johnson, Mrs. Júlíus Bjarnason,
Wynyard; Björn Björnsson og
Mrs. Björg Björnsson, Lundar;
Kristján P. Bjarnason og Jón
Nordal, Árborg.
Fulltrúar sunnudagaskóla:
Miss Evelyn Jónasson og Miss
Elsie ■ Thorfinnsson, Wynyard;
Miss Helga Árnason, Lundar;
allmikla fjárupphæð, sem óhjá-1 Guðm. Ó. Einarsson, Árborg.
Gestir
kvæmilegt var að fengin yrði,
vegna þess mikla aukakostnað-
ar, sem lagðist á félagið, eins
og skýrsla féhirðis mun sýna.
Þeir hafa fengið aðeins lítinu
hluta þessa f'jár endurgoldinn;
en vonandi verður hér á þessn
þingi bent á einhverja mögu-
ieika til þess að greiða það að
fullu.
Að svo mæltu vil eg segja
þetta fjórtánda ársþing hins
Sameinaða Kirkjufélags ís-
lendingar í Norður-Ameríku
sett, og biðja embættis-
menn þess og fulltrúa að taka
til starfa. Látum oss alla vinna
fúslega og með alúð að fyrir-
greiðslu þeirra mála, sem hér
verða borin upp. Megi eining
og samvinna ríkja í fyrirætlun-
um vorum og framkvæmdum.
MYs. Asta Sigurðsson,
Lundar; Mr. og Mrs. Hannes
Björnsson, Mountain, N. Dak.,
Kristájn Indriðason, Mountain;
Mrs. Mekkin Guðmundsson,
Lundar.
iStjórnarnefnd Sambands
kvenfélaganna og fulltrúa kven-
félaga áttu sæti á þinginu og
teljast í fundarskýrslu Sam-
bandsins.
Þá gerði dr. S. Björnsson til-
lögu um að dagskrárnefnd væri
skipuð. Tillagan var studd af
séra Jakob Jónssyni og sam-
þykt.
Forseti nefndi þessa í dag-
skrárnefnd: séra Philip M. Pét-
ursson, K. P. Bjarnason og J.
Nordal.
Dr. Rögnvaldur Pétursson
bað sér hljóðs. Talaði hann um
Að því búnu var fundi frestað
til Sunnudagsmorguns.
Þing Sambands kvenfélag-
anna var haldið á laugardaginn
þann 2. Byrjaði það að morgni
og stóð allan daginn. Skýrsla
I um störf þess verður birt á öðr-
1 um stað.
I Á laugardagskvöldið flutti
séra Guðm. Árnason erindi, er
hann nefndi ‘‘Heimspeki ofbeld-
isins”. Verður það sennilega
birt á prenti síðar. Var fyrir-
lesaranum greitt þakklætisat-
kvæði fyrir erindið..
iKlukkan ellefu á sunnudags-
morguninn þann 28. fór fram
guðsþjónusta á ensku í kirkj-
unni, séra Sydney P. White-
house frá Belfast á írlandi pré-
dikaði. Er séra Whitehouse á
ferðalagi um Bandaríkin og
Canada og víðar, ásamt konu
sinni. Þjónar hann únítarasöfn-
uði í Belfast.
j Eftir hádegi á sunnudag var
farin skemtiför út í skemtigarð
bæjarins í St. James, City Park.
Voru margir í förinni og skemtu
menn sér hið bezta, enda var
veður ágætt. Fóru matar- og
kaffiveitingar, sem kvenfélag
Sambandssafnaðar hafði undir-
búið, fram úti í garðinum.
I
Að kvöldi klukkan sjö fór
fram guðsþjónusta aftnr í kirkj-
unni. Séra Jakob Jónsson pré-
dikaði. Fjöldi fólks var við-
staddur. Flutti séra Jakob gagn-
orða og skörulega ræðu við
þetta tækifæri. Kirkjusöngurinn
undir stjórn hr. Péturs Magnúss
var ágætur. Framh.
og megi þessar samverustundir j Heimskringlu, fjárhag blaðsins
vorar hér næstu dagana færa og útgáfu-erfiðleika og styrk
oss öllum mikla ánægju og þann, sem blaðið veitti málefni
verða hvatning til meira og ein- kirkjufélagsins; hvatti hanr.
lægara starfs fyrir málefni vort. menn til þess að kaupa blaðið
og lesa. Þá mintist hann á
Dr. Rögnvaldur Pétursson ; ræðu eftir séra E. J. Melan, sem
gerði þá tillögu og dr. Sveinri ■ hefði verið prentuð á kostnaö
F R ÉTTIR
af alheimsþingi kvenna í Wash-
ington, D. C., 31. maí til 6. júní.
Eftir frú Andreu Johnson
Björnsson stunddi, að förseta sé
falið að skipa kjörbréfanefnd.
Tillagan var samþykt og nefndi
forseti þessa í nefndina: dr. R.
Pétursson, hr. Guðmund Björns-
son og hr. Björn Björnsson. —
hr. Sveins Thorvaldssonar og
yrði útbýtt ókeypis. á þinginu,
kvað hann ræðu þessa ‘‘Leyfið
börunum til mín að koma”
vera þá beztu ræðu um sunnu-
dagaskólamál, sem hann hefði
Þegar nefndin hafði lokið starfi séð, og hvatti til þess að henni
sínu, lagði hún fram eftirfylgj-'
andi nöfn embættismanna fé-
lagsins, /ulltrúa og gesta, sem
hún lagði til að væri veitt þing-
réttindi.
Embættismenn og prestar:
Séra Guðm Árnason, sér.a
Philip M. Pétursson, séra Eyjólf-
ur J. Melan, séra Jakob Jónsson,
séra Rögnvaldur Pétursson, hr.
Sveinn Thorvaldson, kapt.
Jósep B. Skaptason, hr. Guðm.
Eyford, dr. Sveinn E. Bjömsson,
hr. Páll S. Pálsson.
yrði komið út meðal foreldra og
annara, sem létu sig sunnu-
dagaskólamál einhverju skifta,
eins víða og unt væri.
Séra Jakob Jónsson bað sér
hljóðs. Gat hann þess að ein-
mitt þessa daga væri presta-
stefna haldin á íslandi, og væri
vel við eigandi, að þingið sendi
þjóðkirkju íslands árnaðar-
skeyti. Lagði hann til að for-
seta væri íalið að senda skeytiö.
Tillagan var studd af dr. R. Pét-
urssyni og samþykt.
Framh.
iSeinni fundurinn var ekki
eins fróðlegur, þar sem flest
löndin höfðu nokkurn veginn
sama stríðið og hér er í Mani-
toba. Fólk úr bæjunum sent út
á land með fáeinar skepnur og
ögn af peningum til að kaupa
matvöru fyrir. Eg held að ef
landblettur væri lagður til
handa þeim þá kanske gengi
þetta betur, þau myndu vera
stolt af að gera sem mestar um-
bætur til að gera litla heimilið
sitt vistlegra og framtíð barna
sinna 'svolítið bjartari.
I Einum erindreka frá íhverju
landi var lofað að ávarpa á sínu
eigin máli í útvarpið á mánu-
' daginn. ísland hefir ekki geng-
ig í Sambandið og var Iþess
vegna engin íslenzk kveðja. Eg
| var áreiðanl^ega eina íslenzka
i konan á þessum mikla fundi og
| hefði mér verið ánægja að fá
að ávarpa mína íslenzku vini,
^ en fyrir þessar kringumstæður
var það ekki gert.
Næsta dag voru lesnar skýrsl-
ur frá tilheyrandi félögum og
; voru þau mörg og mismunandi.