Heimskringla - 15.07.1936, Blaðsíða 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG, 15. JÚLíf, 1936
v
FJÆR OG NÆR
Dr. Rögnvaldur Pétursson og
fjölskylda hans leggja af stað á
morgun vestur til Markerville,
Alta.; fara þau vestur til að vera
við afhjúpun minnisvarða St. G.
Stephanssonar. Dr. R. Péturs-
son flytur ræðu við athöfnina.
* * *
Messur í Vatnabygðum
iSéra Jakob Jónsson flytur
gilðsþjónustu á eftirfylgjandi
stöðum og tíma næstkomandi
sunnudag 19. þ. m.
Kristnes, kl. 1. e. h.
Leslie, kl. 4. e. h.
Mountain Standard Time.
« * *
í Sambandskirkjunni í Winni-
peg verður ekki messa næsí-
komandi sunnudag.
* * *
Séra Guðm. Árnason flytur
guðsþjónustu í Hayland Hall
sunnudaginn 26. júlí.
‘ * * *
Björg Elsabet Hallgrímsdótt-
ir McNab, dó síðast liðin mánu-
dagsmorgun að heimili sonar
síns Archibalds McNabs í Piney,
Man. Húskveðju athöfn fór
fram í Piney í gærmorgun að
mörgum bygðarmönnum við-
stöddum. Séra Philip M. Péturs-
son dóttur sonur hinnar látnu
flutti stuta ræðu, og líkið var
síðan flutt til Winnipeg, þar sem
útför fer fram í dag kl. 4. e. h.
frá Sambandskirkjunni.
¥ í
Mr. og Mrs. Guðm. Anderson,
800 Lipton St., Winnipeg, leggja
af stað þessa viku vestur til
Vancouver, B. C. Þau verða
að heiman í þrjár vikur.
* ♦ ♦
Árni S. Storm, fyrrum bóndi í
Gienboro-bygð, dó s. I. mánudag
í Winnipeg. Hann verður jarð-
sunginn frá Grundarkirkju í
Argylebygðinni kl. 2. e. h. á
morgun (fimtudag).
TIL SÖLU
Til tölu með miklum af-
föllum, 8 herbergja hús
með öllum nýjustu þæg-
indum, í grend við Almenna
sjúkrahúsið, eikargólf á
neðstu hæð, ný lofthitunar
miðstöð, rúmgóður bílskúr,
svefn svalir, í bezta á-
standi, íbúandi núverandi
eigandi. Vægir kaupskil-
málar með góðri peninga
niðurborgun.
Spyrjist fyrir hjá
The Western Shirt and
Overall Mfg. Co. Ltd.
55 Arthur St., Winnipeg
Fundur fyrir íslendinga verð-
ur haldinn í neðri sal G.templ-
arahússins fimtudagskvöldið 16.
þ. m. — Umræðuefnið: Social
Credit.
¥ * *
Guðmundur Grímsson dómari
og frú hans og bróðir Grímur,
frá Rugby, N. D., komu til bæj-
arins fyrir .helgina. Þau skruppu
norður að Gimli s. 1. laugardag.
¥ ¥ ¥
Sunnudaginn 19. júlí messar
séra Guðm. P. Johnson í G. T.
kl. 7. e. h. Fólk er beðið að
fjölmenna.
* * *
Bréf til Hkr.
Lundar, 7. júlí, 1936
íslenzku blöðunum hefir láðst
að geta um tvo efnilega íslenzka
nemendur, sem útskrifuðust úr
f jórða ári læknaskólans í Winni-
peg í maí í vor.
Þessir piltar eru þeir Arnold
W. Holm, sonur hjónanna Mr.
og Mrs. Sigurðar D. Holm, Lun-
dar, Man., og Kjartan Johnson,
sonur hinna velþektu hjóna, Mr.
og Mrs. Einar Johnson í Winni-
peg-
Báðir eru þeir hinir ágætustu
drengir og stakir reglumenn. —
Voru þeir ráðnir til læknisstarfs
frá 1. júlí, við Winnipeg General
Hospital; fylgja þeim heillaósk-
ir vina og kunningja.
Th. K. Daníelson
* * *
E. S. Jónasson frá Gimli kom
snöggva ferð til bæjarins s. 1.
mánudag.
* * * *
Ofmikill hiti
Allir stara einn á veg
Og eygja hættu búna
Því hiti er yfir .hundrað stig,
Á hverjum degi núna.
G. J. Papf jörð
* * *
Til Gimli á íslendingadaginn
þann 3. ágúst
íslendingadagsnefndin hefir
verið svo heppin, að komast að
samningum við félag hér í bæn-
um um flutning á fólki til Gimii
þ. 3. ágúst á íslendingadaginn,
á “bus”-um.
Verður ferðinni hagað hér í
bænum að morgninum sem hér
segir: Kl. 7.30 verður stanzað á
Ellice Ave., við Simcoe stræti,
svo við Banning, Sherbum og
Valour Road til Sargent og
stanzað þar. Haldið svo ofan
Sargent og stanzað við Domin-
ion, Arlington, Beverley og síð-
ast við Gnodtemplara húsið, en
þaðan leggja öll “busin” af stað
til Gimli kl. 8.
Til baka frá Gimli að kvöld-
inu geta “bus” byrjað að leggja
af stað svo snemma sem fólk
vill, en síðast verður lagt af
stað kl. 12 'á miðnætti.
Fargjald verður $1.50 fram og
til baka fyrir sætið og innifelur
það inngang í “Parkið”. Far-
seðlar eru til sölu hjá Mr. Stein-
dór Jakobssyni af 680 Sargent
Ave. Aðeins 200 farseðlar
verða seldir.
G. P.. Magnússon,
ritari nefndarinnar
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Geysir fékst ekki til að
gjósa fyrir konunginn
Rvík. 20. júní
í gær fór konungurinn og
föruneyti hans austur að Geysi
í boði ríkisstjórnarinnar.
Klukkan 10 f. h. var lagt af
stað héðan úr bænum, og voru
í förinni um 50 manns í 20 bif-
reiðum.
Um hádegisbilið var komið
að Þrastalundi og borðaður
miðdegisverður. Lagt var af
stað þaðan kl. 1£.
Klukkan 3$ var komið að
Geysi. Var þar saman kominn
mikil mannfjöldi til þess að sjá
konunginn.
Var beðið við Geysi í klukku-
tíma, en þrátt fyrir vel útilátinn
miðdegisverð í grænsápu fékst
hann ekki til að gjósa.
Var nú sezt að kaffidrykkju
í veitingaskálanum, en meðan
setið var undir horðúm kom
einhver óróleiki í hverinn og
bjuggust menn nú við hressi-
legu gosi.
Fóru nú allir upp að Geysi
aftur, en gosið var mjög mátt-
laust, aðeins smáskvettur.
Um klukkan 6 var farið frá
Geysi, og héldu konungshjónin
að Laugarvatni, en Knútur prinz
og fleiri úr föruneyti hans héldu
að Gullfossi, og var dvalið þar
um hríð.
Frá Gullfossi var svo haldið
að Laugarvatni og gist þar.
í dag skoðaði konungur Sogs-
virkjunina og lagði hornstein að
henni. Að því loknu snæddi
hann miðdegisverð að Þrastar-
lundi í boði bæjarstjórnarinnar.
—Alþbl.
¥ ¥ ¥
Vatnajökulsleiðangurinn
Kálfafellsstað
Ahlmann fór rannsóknarferð
3. júní vestur undir Grímsvötn
ásamt Sigurð og Mannerfelt og
Jóni frá Laug. Komu aftur 9.
júní eftir greiða ferð. Grófu
þeir 2 átta metra djúpar snjó-
gryfjíur niður á öskulagið frá
gosinu 1934. Jón Eyþórsson
dvaldi á meðan í tjaldbúðunum
norður af Birnudalstindi.
¥ ¥ ¥
Ólafsfirði 13. júní
10 vélbátar
í Ólafsfirði eru hættir þorsk-
veiðum og búast á síldveiðar
með herpinót. Ætla þeir að
leggja úr höfn í dag eða á
sunnudag. Væntanleg veiði
verður lögð upp lá Siglufirði
fram að söltunartíma.
—Vfsir.
MÁLFRELSI
Islendingadagurinn
I Gimli Park, Man.
MANUDAGINN, 3. AGUST, 1936
PROGRAM
Kl. 10 f. h. — 2 e. h, — Iþróttir á Iþróttavellin-
um — Verðlaun: Peningar og medalíur.
Kl. 1.40 — Fjallkona dagsins (Mrs. Björg V.
Isfeld) leggur blómsveig á Landnema
Minnisvarðann
Sungið — “ó, guð vors lands”.
Kl. 2. — Skemtiskrá í Gimli Park
1. “O, Canada” — “ó, guð vors lands”
2. Fjallkonan flytur ávarp.
3. Forseti dagsins, hr. G. S, Thorvaldson, ávarp
4. Ræður frá heiðursgestum.
5. Minni Islands:
Kvæði—hr. Páll Guðmundsson
Ræða—hr. Hjálmar Björnsson, frá Min-
neapolis, Minn.
6. Kantata Jóns tónskálds Friðfinnssonar við
hátíðarljóð Daviðs Stefánssonar, sungin
af blönduðum kór frá Winnipeg undir
stjóm Paul Bardal (fyrri hluti).
7.
8.
9.
Minni Canada:
Kvæði—hr. Guttormur J. Guttormsson
Ræða—séra Philip M. Pétursson.
Kantata Jóns tónskálds Friðfinnssonar (síð-
ari hluti).
God Save the King — Eldgamla Isafold.
Að kveldinu hefst samsögnur (alþýðusöngv-
ar) undir stjóm hr. Paul Bardal.
Hljómsveit og dans í Gimli Pavilion — að-
gangur 25c.
Samið hefir verið við "Grey Goose Bus” fé-
lagið um flutning á þeim er sækja hátiðina frá
Winnipeg — kostar farið fram og til baka $1.50.
1 því er innifalið aðgangur að garðinum, sem er
25c.—Farmiðar verða til sölu í búð hr. Steindórs
Jakobssonar, 680 Sargent Ave.
Þessi fertugasta og sjöimda þjóðhátíð Is-
lendinga er haldin að tilhlutun Winnipeg, Gimli
og Selkirk Islendinga.
Frh. frá 7. bls.
minsta kosti, séu birt og rædd
frá hinum ýmsu sjónarmiðum
manna, svo sannleikurinn í
hverju máli, heill og allur, megi
sem næst vitrast. Hvert það
mál, sem ekki leyfist að rann-
saka og rökræða til hlítar, er ó-
útkljáð og heldur áfram að vera
ásteytingarsteinn og úlfúðar-
j kveikja, eftir sem áður. Viss-
asta og fljótasta aðferðin til að
afvopna óheilar skoðanir er sú,
að draga þær fram í dagsljósið.
Réttmætar skoðanir hafa því
ekkert að óttast. Bann og myrk-
ur er hinsvegar nauðsynlegt fyr-
ir það, sem eitthvað hefir að
hylja.
Stjórnir blaðanna sjálfra hafa
j margsinnsis ítrekað hve nauð-
synleg þau séu til viðhalds þjóð-
jrækninni og því sem íslenzkt
er; ennfremur, að þau séu hið
eina málgagn og nálega hinn
eini fræðireitur þeirra, sem lesa
eingöngu íslenzkt mál. Og það
mun satt vera. En því sjálfsagð-
ara er að allir litir núlegra skoð-
ana fái þar að koma til greina.
Einungis með því móti fær
skilningur lesendanna þróast til
réttdæmis á þeim umfangsefn-
um og þrætumálum, sem fyrir
liggja og örlög mannkynsins eru
látlaust að umskapa. Viðhorf
ritstjórans eins, er alt of ein-
skorðað til þess að endurspegla
þær sveiflur hugrænnar iðju,
sem atvikin og kringumstæð-
umar eru sífelt að vekja, og
sem varpa sí-dýpri og djarfari
skilning á það, sem til friðar
mannanna heyrir. Og fáir munu
þeir vera, að minni hyggju, sem
ætlast til þess að blöðin séu
aðallega til þess kjö-rin að segja
alþýðunni fyrir verkum í skoð-
analegu tilliti og verja hana fyr-
! ir villikenningum hinna óþjálli
meðbræðra sinna.
Ef til vill hugsa nú einhverjir
að rúmskortur blaðanna komi
1 hér til greina. En það nær ekki
nokkurri átt. Fullur þriðjungur
blaðanna er oftast tekinn upp
fyrir smáfréttir og þjóðsögur frá
gamla landinu, skrítlur, bað-
stofuhjal og því um líkt, sem lít-
ið erindi virðast eiga og einkar
auðvelt væri að klippa niður svo
um munaði, þætti rúmsins þörf.
í sannleika er það svo ábærilegt
að mér finst á tíðum að hinir
skörpustu kinnhestar, sem að
mér hafa verið réttir, séu þeir,
að þurfa að lesa það, sem út-
bolað hefir sumum handritum
mínum.
iStundum hefir því verið
hreyft að blöðin ættu að samein
ast í (Bparnaðarskyni; en þá
hefir því verið borið við, að það
myndi skerða málfrelsið og gera
ritstjórnarstefnuna of ein-
strengingslega. Eg hefi enga
ákveðúa skoðun í því máli; en
fyrirbáran, sem nefnd var, virð-
ist mér af veikum rökum bygð.
Það er ætíð erfitt að skerða það,
sem ekkert er.
Fúslega skal játað að eg veit
næsta lítið um tildrög og stefnu
þá, sem hér ræður. Álit mitt
byggist eingöngu á eigin
reynslu og þær hugmyndir, sem
hún hefir vakið; svo verið getur
að eg sé að fara með einbera
sleggjudóma. Afkvæmi mín
eiga máske engan rétt á sér
vegna vankanta. Sé svo mun
hver sá, er betur veit, láta orð
mín sem vind um eyrun þjóta og
standa óhallur “ið sama”. Hver
segir til sín.
—P. B.
LEIF ERIKS0N
and 24 of his sturdy Vikings
will land atBrockíton Point,
Stanley Park, Vancouver, B.C.,
iSaturday, July 25th, at 2:30 p.m.
THE NORWEGIAN-ICELAND-
IC JUBILEE COMMITTEE
will sponsor the following pro-
gram under Vancouver’s Golden
Jubilee:
The re-enacting of Leif Erik-
son’s landing in North America.
Immediately after the landing
the following program will be
rendered froim the big open air
stadium at Brockton Point,
Stanley Park:
Symphony Orchestra,
........... 47 Instruments
M, Malmin, Director
Songs by mixed Norwegian Jub-
ilee Choir........75 voices
H. Worsoe, Director
Vocal Solos by Mrs. Thora
Thorsteinson Smith
Songs by the Norwegian Male
Chorus...........80 voices
Folk Songs and Dances by teams
from Vancouver, New Westmin-
ster and North Vancouver.
Athletics by a team led by In-
structor J. Mathiisen.
Hear the Norwegian Male
Chorus in Grieg’s.
“LANDKJENNING”
Assited by Symphony Orchestra
and J o h n Christensen in the
solo part.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Measur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
ménudagskveld i hverjum
ménuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
J. WALTER JOHANNSON
Umboðsmaður
New York Life Insurance
Company
Kaupið Heimskringlu
Annast um aðgerðir á
Radios, set upp aerials,
einnig sel ný og gömul
Riadio.
TH. VIGFÚSSON
Sími 39 359 559 Furby St.
• The Truth about the
Brewery Sítuation •
IN APRIL 1936
SHEA’S—DREWRYS—PELLISSIER’S—KIEWEL’S
Formed
Brewery Products Limited
with the sole iciea of reducing the
price of Beer
Within one month after this company was formed
Brewery Products Limited applied to the Provincial
Government for a reduction in the prioe of Beer. They
were successful and you have them to thank for this
reduction.
Increase in Employment
Since this company was formed instead of a decrease in
employment there has actually been an increase, thus
before the formation of the company 310 people wera
given work and today 338 people are being employed.
Atleast 1,500 people are dependenton Brewery PToducts.
Increased Payroll
The monthly payroll prior to the formation of this new
company aggregated $32,465.62. Today the monthly
payroll has reached the total sum of $39,055.64, an in-
crease of $6,590.02 per month, all paid to Manitoba
citizens who spend it in Manitoba.
THIS SPEAKS FOR ITSELF
Patronize Home Industries
•Dial 96-361 DiaU
Vote for the
LIBERAL CANDIDATES
In Winnipeg
ALD. PAUL BARDAL ALD. C. RICE-JONES
MRS. MARY DYMA
HON. W. J. MAJOR HON. J. S. McDIARMID
ALL WINNIPEG IS ONE CONSTITUENCY
Each Candidate is running in the whole of the City of
Winnipeg. Vote for them 1, 2, 3, 4, 5. You decide
the order of preference, but vote for them all.
Issued by
The WINNIPEG LIBERAL & PROGRESSIVE ELECTION
COMMITTEE
Great West Permanent Building
356 Main Street