Heimskringla - 22.07.1936, Blaðsíða 1
Li. ARUANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 22. JÚLÍ, 1936
NÚMER 43.
HELZTU FRÉTTIR
EDWARD BRETAKONUNGUR
SÝNT BANATILRÆÐI
iSú furðulega frétt barst með
símanum hingað s. 1. fimtudag
frá Englandi, að Edward Breta-
konungi hafi verið sýnt bana-
tilræði.
Fréttin kemur mönnum
furðulega fyrir vegna þess„ að
það er svo óskiljanlegt, að nokk-
ur maður með fullu viti, fyndi
hvöt hjá sér til þessa ódæðis-
verks. Enda mun lá tvennu
velta með, að sá sem það framdi
sé með réttu ráði.
Það var við hersýningu í
Hyde Park, sem morðtilraunin
var gerð. Þegar herfylkingin
fór fram ihjá stað þeim, er Con-
stitution Hill nefnist, sézt mað-
ur koma hlaupandi gegnum
mannþröngina. Þegar hann er
komin nærri fylkingarbroddi,
heldur hann upp byssu og miðar
á konunginn. Var hann þá ekki
nema um 20 fet frá konungi, en
milli hans og konungs, var ridd-
araliðið. Kona sem næst mann-
inum stóð, er sagt, að slegið
hafi byssuna úr hendi hans. En
jafnframt er þó sagt, að einn úr
riddaraliðinu hafi stokkið í
hendingskasti af baki og slegið
manninn svo í höfuðið, að hann
féll niður. Hvort sem það hefir
nú verið þessi riddari eða kon-
an, sem í veg fyrir morðið
komu, hraut byssan úr hendi
mannsins og féll niður fyrir
framan fætur hestsins, fyrir
vagni konungs. Sparkaði hest-
urinn með fæti við henni, svo
að hún hraut til hliðar. Kon-
ungur er sagt, að muni hafa séð
manninn einna fyrst, og er byss-
an féll niður fyrir fótum 'hests-
ins, hélt hann að það gæti verið
sprengja. En er svo reyndist
ekki, hélt herfylkingin áfram,
sem ekkert hefði í skorist.
IGeorge Andrew McMahon,, er
sá nefndur, sem morðtilraunina
gerði. Hann er iSkoti, 34 ára
gamall, fæst við blaðamensku,
en farnast illa. Var hann eitt-
hvað meiddur er hann var hand-
tekinn; múgurinn réðist á hann.
Maðurinn er í varðhaldi. Við
fyrstu yfirheyrslu kom í ljós, að
honum var eitthvað í nöp við
innanlandsmálaráðherra John
iSimon, fyrir að sýna fascistum
vægð, sem í London eru að vera
harðir í horn að taka á móti
Gyðingum. Hélt hann fram, að
hann hefði ekki ætlað að
myrða konunginn, heldur að
vekja eftirtekt hans, á mótmæl-
um sínum gegn framferði John
Simons. Þetta er reynt að styðja
með því að í byssuhlaupinu var
ekki skot, er hún var tekin upp;
en í geymi hennar voru 4 skot,
svo 'hún mátti heita hlaðin eða
R. W. B. Swail
þingmannsefni conservatíva
í Winnipeg
til reiðu að skjóta af henni.
McMahon var dæmdur til eins
árs fangavistar árið 1933 fyrir
erjur við lögregluna.
EFNILEGT ÞINGMANNSEFNI
G. S. Thorvaldson, lögfr.
Margt þingmannsefnið í þess-
um bæ hefir eflaust með fram-
komu sinni unnið sér fylgi kjós-
enda. En þó efumst vér um, að
eftir nokkru þeirra hafi verið
meira tekið, en íslendingnum G.
S. Thorvaldson Útvarpsræður
hans hafa vakið meiri athygli en
ræður nokkurs annars þing-
mannsefnis. Um þær hefir hvar-
vetna verið talað. Og hópar
manna og kvenna hafa vana-
lega á skrifstofu hans komið
daginn eftir til þess að tjá hon-
um persónulega þakklæti sitt
fyrir þær. Vinsældir hans og
álit er óhætt að segja, að hafi
aukist daglega, síðan kosninga-
starfið hófst.
íslendingum þarf ekki að gera
Mr. G. S. Thorvaldson kunnug-
an. Þeir vita allir að hann er í
tölu gervilegustu yngri manna
þjóðar vorrar. Hann byrjar hér
ungur og óþektur lögfræðis-
starf, er svo árar, að hinir eldri
og reyndari eiga í vök að verj-
ast og vinna að minsta kosti
ekkert á. En þetta viðskifta-
starf 'Mr. Thorvaldsonar hefir
eflst og vaxið eigi að síður. —
Heyrðum vér einn stéttarbróður
hans segja um það, að svo hefðu
fleiri getað gert ef þeir hefðu
verið gæddir dugnaði þessa ís-
lendings. En þessa er hér minst
vegna þess að vér höfum ávalt
álitið það meðmæli með þing-
manni, að hann hafi getað
stjómað sínu eigin starfi.
Vinni conservatívar í þessum
kosningum, er Mr. G. S. Thor-
valdson viss með ráðherrastöðu-
Það er skilningur þeirra, sem
um það mál hafa hér mest að
segja. Að líkindum yrði það
dómsmála-embættið, sem þá
yrði hér í annað sinn skipað ís-
lendingi.
Kosningar vita menn að vísu
ekki fyrirfram hvernig fara
muni. En margt hefir ólíklegra
skeð en það, að Bracken stjórn-
in falli nú. Ef íslendingar
hefðu þá ekki átt sinn hlut í að
sjá um að Mr. Thorvaldson væri
kosinn, væri þjóðflokki vorum
í heild sinni eftirsjá í því.
En nú eru tveir íslendingar í
vali svo um öll atkvæði þéirra
skal ekki biðja öðrum til handa.
En þeir sem á annað borð greiða
löndunum atkvæði mættu eins
vel greiða þeim fyrsta og ann-
að á víxl. ,
En sá dem atkVæði greifSir
með Mr. G. S. Thorvaldson, get-
ur með því ekki aðeins gert sér
sjálfum þann greiða að af-
nema vinnulaunaskattinn með
öðrum umbótum í stefnusjkrá
conservatíva, heldur getur svo
farið að hann vinni þjóðflokki
vorum hér sérstaka sæmd með
því. Landar góðir, athugið það!
SÝNISHORN
Hér verður ekki gefið nema
sýnishorn af því, hvernig Mr.
Willis, foringi conservatíva
hugsar sér að færa stjórnar-
kostnaðinn niður. Bracken hef-
ir verið að skora á hann að gera
þetta og Willis hefir orðið við
því. En 'alla þá upptalningu
endumst vér ekki til að skrifa,
svo sýnishorn verður að nægja.
Á síðast liðnu ári eyddi Brack-
enstjórnin í bíla, gasolíu og
ferðalög $228,344.29. Þetta seg- j
ir Mr. Willis $150,000 of mikið.
Fyrir skrifföng og skrifstofu-
áhöld var eytt $108,378.91. Það|
segir Willis $50,000 of mikið.
Tap á verðbréfasölu og öðru
fyrir handvömm $296,178.00.
í deild auðslinda fylkisins var
$381,432 útborgað. Þar kvað
Willis hægt að spara fyllilega
$50,000-00.
í lögfræðisstörf utan dóms-
máladeildar voru greiddar •—
$90,000.00. Þar segir Willis
spara megi $60,000.
Kaup á vélum og áhöldum
námu $146,909. Þar mætti
spara $75,000.
Fyrir frímerki voru greiddir
$36,124.80. Mr. Willis álítur
það $15,000 of mikið.
Tal- og ritsíma gjald nam
$37,628.35. Það telujr Wfllis
$20,000 of mikið. Mikið af þessu
fé var eytt til pólitískra þarfa
stjórnarinnar.
Auk þessa er gert ráð fyrir
tugum þúsunda sparnaði með
því að uppræta þessar nefndir,
sem hver stjórnardeild hefir en
eru gersamlega óþarfar.
Alderman James A. Barry
þingmannsefni conservatíva
í Winnipeg
ÖNNUR ÍSLENZK KONA
SÆKIR UM ÞINGMENSKU
Á útnefningarfundi social
credit flokksins í Árborg s. 1-
viku, var íslenzk kona úr þess-
um bæ, Mrs. Ásta Oddsson kosin
þingmannsefni fyrir Gimli kjör-
dæmi. Maður nýkominn norð-
an úr þessu kjördðemi sagði þar
alt ótt í social credit, sem er
gott fyrir Mrs. Oddsson og
kanske bezt fyrir alla.
RÁÐGJAFAR BRACKENS FÁ
EKKI AÐ TALA
Á fundi þingmanna-efna
Brackens í þessum bæ í Walker-
leikhúsinu í gærkveldi, fékk Mr.
Major, dómsmálaráðherra ekki
að tala nema í 4 mínútur vegna
iháreisti sem gerð var út af
hverju orði sem hann sagði. —
Annað þingmannsefni Brack-
ens, Rice-Jones, bæjarráðsmað-
ur, fékk heldur ekki lokið máli
sínu.
YFIRLÝSING
í fregn sem að blaðið Free
Press flutti 17. þ. m. af útnefn-
ingarfundi Liberal Progressive
flokksins, sem haldinn var í
Eriksdale þann 16. er sagt að
einnig hafi dr. Hjálmarsson ver-
ið útnefndur, en að hann hafi
dregið sig í hlé og skorað á kjós-
endur að styðja Skúla Sigfús-
son.
Þessi staðhæfing er algerlega
ósönn. Eg lét ekki ganga til at-
kvæða um nafn mitt, vegna þess
að eg hafði verið beittur ósann-
girni og rangindum bæði af
flokkstjórninni og Skúla Sigfús-
syni.j Og eg skoraði ekki á
kjósendur að ljá honum fylgi
sitt.
Þessa yfirlýsingu vildi eg
biðja þig hr. ritstjóri að birta í
blaði þínu sem fyrst.
Vinsamlegast,
N. Hjálmarsson, M.D.
—Lundar, Man.,
20. júlí, 936.
Col. R. H. Webb
þingmannsefni conservatíva
í Winnipeg
FRÉTTIR ÚR ST. GEORGE
Norðan úr St. George-kjör-
dæmi hafa þær fréttir borist
síðan síðasta blað kom út, að
Skúli Sigfússon hefði hlotið út-
nefningu af hálfu liberala, sem
nú eru allir Bracken sinnar. —
Andstæðingur hans er social
credit sinni, ungfrú Salome
Halldórsson. Engir frá hinum
flokkunum eru þar í vali. Þing-
mannsefnin eru því bæði Islend-
ingar.
Þó leitt sé nú ávalt að þurfa
að gera upp milli landa sinna í
kosningum, verður vegna hinna
ólíku stefna, sem hér um ræðir
ekki hjá því komið.
Annað þingmannsefnið fylgir
þeirri stefnu, sem hér á ef til vill
[ eftir að myndast stærri flokkur
um, enn nokkra aðra. Dæmum
vér þar eftir reynslu, en ekki
draumum. Nægir að benda á
það sem í Albertafylki 'hefir
gerst, því til sönnunar. Hvaða
misskilningi, sem reynt er að
blása mönnum í brjóst um
social credit, er það ákveðin um-
bótastefna. Og umbóta gætum
vér hugsað, að væri hér þörf og
jafnvel norður í St. George! Að
minsta kosti munu þeir vera þar
til, sem álíta lífið í öðru fólgið
en því að verða grjótpálar í
kosningavegagerð Bracken-
stjórnarinnar. Þingmannsefnið,
sem umbótastefnunni áminstu
fylgir, er ungfrú Salome Hall-
dórsson. í bréfi frá merkri og
gáfaðri konu í iSt. Goerge kjör-
dæmi er oss skrifað, að ungfrú
Halldórsson hafi haft nokkra
fundi og að þeir hafi boríð
mentun og víðsýni ungfrú Hall-
dórsson gott vitni. — Á því
eiga þeir og von hér, er hana
þekkja. Oss er ennfremur sagt,
að hún hafi brugðið fyrir sig
frönsku á fundum í bygðum
Frakkanna og að það hafi
mælst þar hið bezta fyrir. Það
væri hverju kjördæmi sæmd að
slíkum fulltrúa, sem ungfrú
Halldórsson er.
Um hitt þingmannsefnið,
Skúla Sigfússon, er verið hefir
fulltrúi kjördæmisins í 18 ár,
dettur oss ekki í hug að segja,
að kjördæmið eigi ekki ýmis-
legt að þakka. En hann á því
og sjálfur dálítið að þakka. —
Hefði því ef til vill ekki verið ó-
sanngjarnt, að hann hefði nú
bæði gefið sjálfum sér og kjör-
dæminu hvíld. En hvað sem því
líður, horfir nú svo herfilega
orðið við með Bracken-stjórn-
ina, sem hann fylgir, að það má
neyðarkostur heita hverjum
góöum manni, ems og eg tel
flesta íslendinga vera, að veita
henni að málum. Það er á allra
vitund, að þeir sem styðja þing-
mannaefni Brackens, gera það
gegn betri vitund, eru knúðir
til þess af einhverju kosninga-
málum óviðkomandi- Óhugur-
inn til Brackenstjórnarinnar er
svona víðtækur orðinn. Hann
liggur í loftinu, berst um með
blænum, knýr á hlustirnar. Þú
verður hans var, hvar sem þú
ert. Það er ilt til slíks að vita,
er saklausir landar gjalda þess.
En auðvitað verður dómurinn
að ganga yfir þá sem aðra.
Manitoba á stjórn
En þess fylkis stórfóm:
Óstjórn!
Bættur seint mun skakkinn
Brattur er þó hnakkinn
Brakkinn.
Málugur og munnstór
Mörgum sýnist stórþjó’r
Majór. I
Frá Ottawa kom auðféð
Óvandlega fór með
Dermeð.
“Aukinna skulda er von,
Engra bóta er hér von”.
Ferson.
Lásta og menta Jói
Langnef jaður spói
Hói-
M.
Gen. H. D- B. Ketchen
þingmannsefni conservatíva
í Winnipeg
í grein í Free Press í gær, er
minst á að samsteypu-stjórn,
svo sem conservatíva og social
credit sinna, geti ekki blessast
og því sé um að gera, að gefa
Bracken fullan meiri hluta. —
Blaðið virðist bæði óttast, að
Bracken-stjómin tapi og að con-
servatívar og social credit flokk-
arnir geti náð í nægilega mörg
þingsæti til að mynda stjóm!
Ungfrú Thelma Guttormsson
í Winnipeg hlaut við próf er hún
tók nýlega í píanóspili og hljóm-
fræði hæsty, einkun í fylkinu.
Prófin fóru fram undir umsjón
Toronto Conservatory of Music.
Foreldrar hennar eru Björn
Guttormsson og Mrs. Helga
(Kernested) Guttormsgon í
Winnipeg. Thelma er 17 ára.
S K R Á
yfir nöfn þeirra er sækja um
þingvnensku í Manitoba í
kosningunum 27. júlí
(x fyrir framan nafn merkir
núverandi þingmaður kjördæm-
isins).
ARTHUR
x-J. R. Pitt, Lib.-Prog.
J. A. Ross, Cons.
ASSINIBOIA
J. L. Morton, Lib.-Prog.
Dr. H- P. McPhail, Cons.
James Aiken, C.C.F.
William Sanders, Social Credit
BEAUTIFUL PLAINS
x-A. J. M. Poole, Lib.-Prog.
Dr. J. S. Poole, Cons.
J. H. Duffy, Social Credit-
BIRTLE
F. C. Bell, Lib.-Prog.
W. C. Wroth, Cons.
W. Cameron, Social Credit.
BRANDON CITY
Dr- H. O. McDiarmid, Lib.-
Prog.
x-George Dinsdale, Cons.
H. Spafford, C.C.F.
CARILLON
x-E. Prefontaine, Lib.-Prog.
C. J. McBurney, Cons.
CYPRESS
x-J. L. Christie, Lib.-Pro.
Dr. R. G. Hurton, Cons.
DAUPHIN
x-Robert Hawkins, Lib.-Prog.
E. M. McGirr, Cons.
Ronald Moore, C.C.F.
DELORAINE
R. Barrett, Lib.-Prog.
Errick, F. Willis, Cons.
DUFFERIN
x-J. A. Munn, Lib.-Prog.
J. S. Lytle, Cons.
EMERSON
x-R. F. Curran, Lib.-Prog.
H. M. Podolsky, Ind.-Far.
Walter W. Wachna, Social
Credit-
H. H. Wright, Ind.
ETHELBERT
x-N. A. Hryhorczuk,, Lfb.-Rrog
William Lisowsky, Social
Credit
FAIRFORD
x-iS. S. Garson, Láb.-Prog.
(accl.)
FISHER
x^N. V. Bachynsky, Lib.-Prog-
A. Hopgood, Ind., Farmer.
F. Romanchych, C.C.F.
Frh. á 5. bla.