Heimskringla - 24.02.1937, Blaðsíða 5

Heimskringla - 24.02.1937, Blaðsíða 5
WINNIPEG 24. FEBRÚAR 1937 HEIMSKRINGLA 5. SIÐA ins ritari og gjaldkeri, þeir Gísli Jónsson og Árni Eggertsson. Þá hafa tvær fyrirlestraferÓir verið farnar til deildanna í Selkirk og Churchbridge, af þeim prestun- um séra Philip M. Péturssyni og séra Jakob Jónssyni. Meginhluti allra þessara ferðalaga hefir verið farinn endurgjaldslaust. — Hafa hlutaðeigandi nefndarmenn greitt að mestu leyti ferða- kostnað sinn sjálfir. Samvinnumál við fsland Undir þessum lið hefir verið starfað svo sem tök hafa verið á. Hefir nefndin lagt fyrir sig að safna upplýsingum aðlútandi nú- verandi og væntanlegum við- skiftum íslands og Ameríku og orðið allvel ágengt. Fyrir að- stoð og milligöngu Guðmundar héraðsdómara Grímssonar voru nefndinni léð öll bréf og gögn, þessu máli viðkomandi, sem til eru í' vörzlum viðskifta og verzl- unarmáladeildarinnar í Wash- ington, D. C. (Department of Trade and Commerce). Lét nefndin afrita öll þessi plögg og sendi afritið til formanns skipu- lagsnefndarinnar Ragnars E. Kvaran í Reykjavík. Þá verða borin fram tvö mál hér á þing- inu, er skýrt verður frá á sínum tíma, er heyra undir þenna starfslið. Þá heyrir og undir þenna lið fyrirtæki er nefndin hefir ráðist í og skýrt er frá í Tímaritinu, að gefa út bók um Þjóðréttarstöðu íslands, eftir hinn alkunna lögfræðing og fs- landsvin dr. Ragnar Lundborg. Er birtur fjórði hluti þess rits í Tímaritinu þetta ár en afgang- urinn verður væntanlega að öllu forfallalausu birtur í næsta árs hefti. Er þá svo til ætlast að bókin verði þá öll gefin út sem sérstakt heildarrit og fáist í lausasölu í íslenzkum bókaverzl- unum hér og heima. Útgáfumál Á þenna lið hefi eg þegar drepið með því sem á undan er sagt. Útgáfu fyrirtæki félags- ins eru aðeins tvö, Tímaritið, sem nú er fullprentað og verður til útbýtingar á þinginu á morg- un, og bamaskólablaðið “Bald- ursbrá”. Tímaritið er með sama sniði og það hefir verið og starfsmenn við það hinir sömu, Þetta ár hafa séð um auglýsinga- söfnun þeir Jón J. Bíldfell og Ásm. P. Jóhannsson með þeim árangri að auglýsingar eru mun meiri en verið hafa, verða því tekjur töluvert meiri. Við út- gáfu Baldursbrár hafa starfs- menn verið hinir sömu og áður, dr. Sig. Júl. Jóhannesson og B. E. Johnson. Vinna þeir báðir þetta verk endurgjaldslaust, sem naumast er J?ó sanngjarnt því það er mikil vinna. Vildi eg því mega skjóta því til þingsins hvort það áliti félaginu um megn að greiða þessum starfsmönnum einhver þóknunarlaun. Minjasafn og Minnisvarðamál, eru í höndum milliþinga- nefnda, er grein gera fyrir þeim hér á þinginu, og þarf því eigi að skýra frá þeim hér. Nokkuð hefir gefist til minjasafnsins á árinu, og ber sérstaklega að þakka tveimur mönnum liðveizlu þeirra við nefndina, og gjafir, hr. Valdimar Gíslasyni að Wyn- yard og séra Sigurði ólafssyni í Árborg. Fræðslumál. Fylgt hefir verið sama fyrir- komulagi með íslenzku skólann og undanfarin ár. Skólinn er haldinn á sama stað og verið hef- ir og kennarar unnið sín verk af alúð og trúmensku, endurgjalds- laust. Sérstök nefnd hefir þetta mál með höndum og leggur hún væntanlega fram skýrslu hér á þinginu. Þá má geta þess að hafin var barnakensla í íslenzku að Mountain, N. Dak. á síðasta ári fyrir forgöngu ágætra þjóð- ræknismanna. Hefir skólinn náð miklum vinsældum. Móttaka við gesti. Fyrir þremur samsætum hefir félagsstjórnin staðið í nafni fé- lagsins, á þessu liðna ári, í til- efni af því að hingað hafa komið af ættjörðinna tveir menn í eins- konar umboði ísl. stjórnarinnar, en hinn þriðji er öldungurinn og rithöfundurinn góðkunni sr. Jón Sveinsson. Er hann á ferðalagi í kringum hnöttinn og hafði hér aðeins nokkra daga viðdvöl. — Færðist hann undan almennu veizluhaldi, sátu því til borðs með honum aðeins fáeinir menn auk forstöðunefndarinnar og forstöðunefndar klúbbsins Helga Magra. Kveldið var hið ánægju- legasta. Flutti hann langa ræðu um minningar sínar frá æskuár- unum, fyrst á íslandi og svo úti í löndum og var ræðan bæði skýr og skemtileg. Þá heyrir að geta í þessu sambandi Keimsóknar ríkisstjórans í Canada, hans göfgi Tweedsmuir lávarður, til vor fsl. á s.l. hausti. Er það önn- ur heimsókn er ríkisstjóri Can- ada gerir fslendingum sérstak- lega . Hin fyrri var sú er Duf- ferin lávarður gerði haustið 1877, eru því nær 50 ár milli slíkra heimsókna. Fyrir tilmæli sambandsþingmanns dr. Joseph T. Thorsons gekst stjórnar- nefndin fyrir því að boðað var til almenns fundar hér í bæ, með- al íslendinga, til þess að ræða um, og skipuleggja móttöku þessa virðulega gests sem sýna vildi þjóð vorri þenna sérstaka heiður. Ekki varð frá öllu geng- ið á einum fundi, svo aftur varð að boða til funda og urðu fund- irnir alls fjórir, áður öllu var lokið. Urðu samtök hin beztu um þetta mál og mun það alment hafa verið viðurkent að móttak- an að öllu leyti hafi orðið ís- lendingum til sóma. Fjármál. Frá fjárhag félagsins þarf eg ekki að skýra. Leggur féhirðir fram prentaða fjárhagsskýrslu er útbýtt verður meðal fundar- manna. Eg skal aðeins geta þess að félagið stendur efnalega allvel. Og yfir þetta komandi ár á það í vændum rífari inntektir eftir Tímaritið en verið hafa á undanförnum árum. Ætti því afkoman á Jpessu næstkomandi ári að verða með betra móti. En svo þarf það að vera. Eitt af því marga sem vinna þarf félag- inu til hagsbóta er að efla fjár- hag þess. Með bættum fjárhag getur það unnið margfalt ver'k við það sem því auðnast að gera á ári hverju. En svo skal ei meira sagt um það að þessu sinni. Læt eg þá og líka hér staðar nema. Vísa eg svo þeim málum til yðar, sem samkvæmt dag- skránni liggja fyrir og óska eg og vona að oss auðnist öllum að ráða þeim svo til lykta að fé- lagsskap vorum verði til efling- ar og þjóðflokki vorum til gagns og nytsemdar. Rögnv. Pétursson ÁRSFUNDUR SAMBANDSS AFN AÐ AR var settur sunnudaginn 7. febr. s. 1. í kirkju safnaðarins. Forseti safnaðarins dr. M. B. Halldórsson stýrði fundi. Ritari las fundargerð frá 7. jan., var hún samþykt. Við byrjun fundarins las for- seti skýrslu sína, gat hinna helstu viðburða ársins, á starf- sviði safnaðarins og mælti nokk- ur hvatningarorð til unglingafé- lagsins. Þá var gengið til kosningu. — Var nefndin endurkosin í einu hljóði. Safnaðarnefndin er því skipuð þessum mönnum: Dr. M. B. Halldórsson, ólafur Péturs- son, Capt. J. B. Skaptason, Þor- steinn Borgfjörð,' Steindór Jakobsson, Þorleifur Hansson og Jón Ásgeirsson. Yfirskoðunarmaður reikninga Safnaðarins var endurkosin Mr. P. S. Pálsson. Gæzlumenn við guðsþjónustur voru og endur- kosnir: Mr. Friðrik Sveinsson og Guðmundur EJyford. í hjálparnefnd voru allir kosn- ir sem starfað höfðu í henni síð- asta ár, og tveimur bætt við. f nefndinni eru því þessir: Mrs. J. B. Skaptason, Mrs. Gróa Brynj- ólfsson, Mrs. Kristín Johnson, Mrs. Jónína Gíslason, Mrs. P. S. Pálsson, Miss Elín Hall, Miss Hlaðgerður Kristjánsson, Dr. R. Pétursson, séra Philip M. Pét- ursson. Að þessum störfum loknum, var fundi frestað til sunnudags- kvöldsins 14. febr. Ársfundi sfanaðarins var svo haldið áfram í fundarsal kirkj- unnar sunnud. 14. febr. Eins og tvö undanfarin ár, við þetta tækifæri, höfðu yngri konur safnaðarins reist borð, og hlaðið vistum, gengu þær um beina, og veittu af rausn mikilli. Að lok- ínni máltíð var tekið til fundar- starfa, Forseti las þá bréf frá fjárm.- ritara safnaðarins, Mr. Þorst. Borgfjörð, sem að gefnu tilefni, gat ekki verið viðstaddur. Flutti bréfið hamingju og heillaóskir til safnaðarins. Var Mr. Borg- fjörð greitt þakklætisatkvæði með því að allir risu úr sætum sínum. Mr. ólafur Pétursson las þá skýrslu f jármálaritara og féhirð- is. í sjóði frá fyrra ári 967.44 Inntektir á árinu ....... 3,348.60 Alls .................$4,316.04 Útgjöld á árinu .........$3,942.37 í sjóði 7. febr. 1937.... 373.67 $4,316.04 • Skýrslu sunnudagaskólans las Miss Margrét Pétursson: í sjóði frá fyrra ári....$ 33.67 Inntektir á árinu ......... 75.18 Alls...................$108.83 Útgjöld .................$ 68.33 í sjóði 7. febr. 1937 ..... 40.50 $108.83 Skýrslu hjálparnefndar Ias þá Mrs. J. B. Skaptason. í sjóði frá fyrra ári....$ 17.45 Inntektir á árinu .......’ 163.69 Alls..................$181.14 Útgjöld ..................$135.69 í sjóði 7. febr. 1937 ..... 45.45 $181.14 Þá las prestur safnaðarins, sr. Philip M. Pétursson skýrslu sína. Síðastliðið ár hafði hann flutt 76 prédikanir í kirkjunni. Aðrir prestar og leikmenn héldu 12 ræður. útvarpað hafði verið 3 á árinu. 15 hjónavígslur höfðu verið framkvæmdar. 27 ung- börn verið skýrð og 14 útfarir farið fram. Nöfn safnaðarmeð- lima og styrktarmanna sem dáið hafa á síðasta ári, eru sem hér segir: Mrs. Guðrún Stefánsson, Gimli Eiríkur Sigfússon Simpson, Piney, Man. Theobaldi Árnason Anderson, Gimli, Man. Sigríður Ásta Sigurbjörg Thórð- arson, Winnipeg Björg Elízabet Hallgrímsdóttir, Winnipeg Stefán Jónsson Scheving, Wpg. Aurora Laufey Una Johnson, Baldur, Man. Bergþór K. Johnson, Winnipeg Anna Þórdís Eggertsdóttir Eldon, Winnipeg Kristjana Gísladóttir Þorsteins- son, Winnipeg Hildur Jakobsson, Winnipeg Presti safnaðarins, séra Philip M. Péturssyni var greitt þakk- lætis atkvæði fyrir skýrsluna og ágætis starf fyrir söfunðinn. Skýrslu kvenfélagsins las Mrs. Jakob Kristjánsson, gaf hún ná kvæmt yfirlit yfir alt star? þess á árinu. í sjóði frá fyrra ári...$ 26.12 Inntektir á árinu ....... 415.40 Samtals ..............$441.52 útborgað á árinu ........$403.33 f sjóði 7. febr. 1937 .... 38.19 $441.52 Skýrsla leikfélags Sambands- safnaðar var lesin af Mrs. B. E. Johnson. f sjóði frá fyrra ári...$ 38.10 Inntektir á árinu ....... 441.50 Samtals ..............$479.60 Útgjöld .................$460.46 f sjóði 8. febr. 1937 .... 19.14 $479.60 í stjórn félagsins þetta ár eru: Miss Elin Hall, forseti Mrs. B. E. Johnson, féhirðir Mr. J. Ásgeirsson, ritari Mr. Björn Hallsson, eignavörður Mr. P. S. Pálsson, leikstjóri Skýrsla Ungmennafélagsins var lesin af Miss Helgu Reykdal. var gerð góð grein fyrir öllum störfum félagsins á liðnu ári, og taldar nokkrar fyrirætlanir þess á næsta ári. Inntektir á liðnu ári voru $33.06. útborgað $21.97. í sjóði 7. febr. $11.09. í stjórn félagsins eru: Forseti: Mr. Leo Barnes Vara-f.: Edward Halldórsson Ritari: Miss Helga Reykdal Vara-r.: Miss Jóna Goodman Féhirðir: Mr. Jónas Þorsteinsson Meðstjórnendur voru kosnir: Miss ólöf Sigmundsson, Miss Hrefna Ásgeirsson, Miss Helen Halldórsson, Mr. Art Edwards, Séra Philip Pétursson skýrði frá störfum Skátafélagsins, kvað það vel vakandi, meðlimir 15. Skýrsla frá þeim var ekki fyrir hendi. Voru þá allar skýrslur lesnar og samþyktar. Þakkaði forseti dr. M. B. Halldórsson öllum fyrir vel unnið starf, mintist sérstak- lega kennara sunnudagaskólans. Nokkrar ræður voru fluttar, og þakklætis atkvæði greidd, fyrst söngstjóra, Mr. Pétri Magnús. Sólóist Mrs. K. Jóhann- esson og organista Mr. GVnnari Erlendsson og söngflokknum öllum. Mr. Steindór Jakobsson fyrir starf hans sem leikstjóri leikfélagsins síðastliðin þrjú ár. Þá mintist Dr. Rögnv. Péturs- son með nokkrum orðum, frú Guðrúnar Stefánsson, sem and- ast hafði á liðnu ári, tryggari vin og styrktarmann kirkju vorri til handa, getur ekki í sögu þessa safnaðar. Var þá fundi slitið. M. B. Halldórsson, forseti Jón Ásgeirsson, ritari “TÖLUM MEÐAN TIMINN LEYFIR” Eftir brjálæðiskastið 1914— 1918 virtist sem herguðinn væri lamaður, hann lét tiltölulega lít- ið á sér bera; meira að segja þeir, sem honum höfðu þjónað trúlegast vöfðu sig yfirborðs friðarblæjum. En eins og Þjóða- bandalagið svonefnda sýnir og sannar með atferli sínu, hafa það einungis vérið látalæti. Og nú er sá gamli kominn á kreik aftur, miklu magnaðri en nokkru sinni áður. Þó eru til bæði einstaklingar og félög manna sem berjast móti þessum ófögnuði. Vegna þess að ekki er annað fyrirsjáanlegt en verið sé að búa þjóðina undir stríð, er það skylda allra frið- elskandi manna að láta til sín heyra meðan tíminn leyfir. Nú sem stendur er ekki hægt að banna málfrelsi um þetta efni, en þegar stjórnendurnir hafa tapað vitinu og brjálast af stríðsæði, þá er hver einasti frjáls penni brotinn og hver ein- asta tunga, sem af viti talar, svift öllu sjálfræði. Mig langar til að þýða tvent, sem eg hefi nýlega lesið í sam- bandi við stríðsmálin. Annað er örstutt grein í óbundnu máli, hitt eru nokkur erindi í ljóðum. Finst mér þetta hvorttveggja orð í tíma talað og tel það eiga erindi til vor íslendinga. Mætti svo fara að það festist í minni þeirra og bergmálaði þar þegar stríðsandinn leggur bölvun sína yfir þjóðina. Eg hefi meira að segja þá trú að það geti haft þau áhrif að halda einhverjum frá þeim hála ís er mörgum varð að falli í síðasta stríði. I. Jæja, við erum þó lausir við þá. (Þýtt úr Readers Digest) Fáir munu þeir vera, sem svo séu tilfinningalausir eða heimsk- ir að þeir haldi því fram að stríð séu góð og æskileg í sjálfu sér. Hitt fullyrða sumir að þau séu til þess — séu nauðsynleg til þess — að koma í veg fyrir of mikla mannfjölgun. Það er dýrðleg hugsun eða hitt þó heldur! En látum oss líta á skýrslurn- ar. frá síðasta stríði og skoða þetta atriði nákvæmar út af fyr- ir sig. Það kostaði $25,000 — (tuttugu og fimm þúsund dali) að drepa hvern einstakling í síð- asta stríði. Það er verðið á hverri tékrossaðri gröf á Frakk- landi samkvæmt skýrslum stjórnanna. Væru þessir $25,000 settir á vöxtu með 5% gæfu þeir af sér árlega $1,250 (tólf hundruð og fimtíu dali). Meðal tekjur eða kaup fjölskyldufeðra í Banda- ríkjunum (og Canada) eru um $1,000 (eitt þúsund dalir); í öðr- um löndum er það minna. Það er því auðsætt að e*_ki hefir mann- kynið grætt á þessum kaupum — þeim kaupum að borga tuttugu og fimm þúsund dali fyrir að drepa hvern mann. — Nei, vév höfum borgað of mikið til þess að losna við þær 17,000,000 (seytján miljónir), sem drepnar voru. Má vera að sumum finnist sem þeim hafi verið ofaukið, en ástvinir þeirra flestir líta öðru- vísi á málið. Nú berast þjóðirnar óðfluga í áttina til annars stríðs. Og í því stríði verður það gjafverð — regluleg kjörkaup — að borga $25,000 fyrir að drepa hvern mann eða senda hann niður í jarðneskt helvíti. Og 17,000,000 drepinna manna verður ekki nema aðeins byrjun á drápunum. En ægilegar tölur og harma- grátur yfir síðasta stríði afstýra ekki því næsta. Það eina, sem komið getur í veg fyrir það er ef takast mætti að vekja fólkið í heild sinni til meiri og sterkari samvinnu og uppreistar gegn stríðum en nokkru sinni hafa átt sér stað, fá það til að rísa upp og neita þátt- töku í stríðum. Látum oss taka saman hönd- um með alvöru til þess að út rýma allri stríðsheimskunni. — Skynsamlegar tilraunir í þá átt eru mögulegar og vér verðum að rísa upp í einhuga mótmælum. II. Wilson MacDonald Langfremstur allra núlifandi skálda í Vesturheimi er- maður. sem Wilson MacDonald heitir. — Hann er hálærður maður og fjöl- mentaður, en hefir átt við ein- kennileg kjör og kringumstæður að búa. Hann hefir fengist við alls- konar störf, og var lengi bláfá- tækur maður. Allsleysið svarf svo að honum um tíma að hann var blátt áfram flakkari og beiningamaður. Nú eru bækur hans seldar og lesnar um allan hinn enskumæl- andi heim og hann græðir á þeim stórfé. Helztu ritdómarar beggja megin hafsins kalla hann Whit- mann hinn nýja í Vesturheimi, telja þeir sum kvæði hans með því allra bezt sem til sé í enskurn bókmentum fyr og síðar og segja að ekki sé um það að villast að hann taki langt fram öllum nú- lifandi skáldum hér í álfu. Af tíu bókum, sem Phelps taldi beztar, sem út komu árið 1936 voru tvær eftir þennan höf- und. Síðasta bók hans heitir: “The Song of the Undertow”. Er það eiginlega æfisaga hans í ljóðum. f þeirri bók eru þó nokkur önnur kvæði og þar á meðal eitt, sem hann nefnir: “The Song of the New Jesus.” Eg hefi snúið því lauslega á íslenkzu. Þess þarf ekki að geta hér að kvæðið er ekki ádeila á nokkur trúarbrögð heldur er þar sýnt miskunarlaust hvernig kristnir prestar gerðu sig seka gegn kenningum Jesú. JESÚS VORRA TÍMA Eftir Wilson MacDonald Skínandi feitir flytja prestar fagnaðarboðskap öllum lýð: “Meistarinn hefir mjög”, þeir segja: “mannast og breyzt á vorri tíð. Friðarruglið, sem flutti hann áður —Fjallræðuna—hann burtu skóf; hann er nú orðinn herforingi, herklæddur—tók í stríði próf. Horfið á Jesú!—Hógvær Jesús herskipi stjórnar—asnan gleymd hersöngva ber í báðum vösum, byssa hlaðin við mjöðm er geymd. Símon Pétur það sér hvar fer hann, segir: “Því hefði ei trúað neinn! Tvenna hann lifði tíma síðan Táradalinn er gekk hann einn!” Jesús alt brezka liðið leiddi —lýgur biskup sé það ei rétt— Stjórn á keisarans hestum hafði (hann var karl, sem gat tekið sprett!); „ allar hersveitir allra -þjóða allstaðar leiddi sigursnjall: Þjóðverja, Rússa, Belga, Breta (brögðóttur var sá galdrakarl!) “Blessaðir eru bljúgir”, sagði hann. — Breyzt hefir margt frá þeirri tíð. Talar hann nú í kristnum kirkj- um, kallar og eggjar menn í stríð. “Sverðið sliðraðu, Símon Pétur!” sagði hann áður—þá frið hann kaus— Nú er hann æðstur allra í hern- um— (Einhversstaðar er skrúfa laus!) “Gjaldið þið ílt með góðu!” sagði hann, (Gat það verið í keskni sagt?) Blessar nú sverð og byssu kjafta, brennandi gas að fólki lagt. Ástúð og sorg í andlit honum alþjóðaletri skrifað stóð. Veitir nú sína aðstoð alla einni, sérstakri valdri þjóð. Horfið á Jesú—Hógvær Jesús herskipi stjórnar—asnan gleymd— Hersöngva ber í báðum vösum, byssa hlaðin við mjöðm er geymd. Símon Pétur það sér hvar fer hann, segir: “því hefði ei trúað neinn! Tvenna hann lifði tíma síðan Táradalinn er gekk hann einn. Sig. Júl. Jóhannesson Konan er altaf kona Gufuskipið var alveg að sökkva. Ármann kom hlaupandi inn í klefann til konu sinnar og hrópaði óttasleginn: — Þú verður að flýta þér, góða mín, skipið er að sökkva. Frúin var að laga á sér björg- unarbeltið fyrir framan spegil- inn og svaraði: — Eg verð nú líklega að gefa mér tíma til að láta björgunar- beltið líta sæmilega út. * * * Von henni sárnaði! — Þér hafið ekki lengur fal- legu vélritunarstúlkuna, sem var hjá yður. — Nei, hún firtist við mig og rauk úr vistinni einn daginn þegar hún sá mig kysas konuna mína.—Vísir.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.