Heimskringla - 03.03.1937, Page 4

Heimskringla - 03.03.1937, Page 4
4. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 3. MARZ 1937 ®eimskrttt0la (StofnuO 1886) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 537 VerS blaðsins er $3.00 árgangurlnn borglst fyriríram. Allar borganlr sendist: THE VIKING PRESS LTD.___________ öll viðskifta bréí blaðinu aðlútandl sendist: Uanager THB VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrijt til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg “Helmskringla” is published and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Uan. Teleptoone: 86 537 WINNIPEG, 3. MARZ 1937 ERINDI (Flutt á Fróns-samkomu I Winnipeg 23. febrúar 1937) Eftir Gunnar B. Björnsson ------- . \ Einhver hefir sagt að það sé einkenni sumra manna að ganga áfram en horfa aftur á bak — to “move forward with averted gaze.” Okkur íslendingum hefir ekki ósjaldan verið nuddað þessu um nasir — og það kannske ekki alveg að orsakalausu. En þetta má nú segja um fleiri en íslendinga. Að gengnar kynslóðir geymi í skauti sínu, sem séreign, framkvæmd, hyggindi, hugrekki, guðrækni, ósérplægni og ótelj- andi aðrar dygðir, er yfirleitt almenn hugs- un eða hugtak. Þetta á rót sína að rekja til vanans að horfa um öxl, og þar eiga hlut að máli þjóðir, kynslóðir, einstaklingar. Nicholas Murray Butler, formaður (president) Columbia University, sagði á ferð í kringum hnöttin, í viðtali við blaða- menn í London fyrir aðeins tíu árum síðan —13. júlí, 1927: “f nudanfarin tvö þús- und ár hefir aldrei verið tímabil í sögunni að ekki hafi einhverstaðar verið uppi stór- skáld, heimspekingur eða vitsmunamaður af einhverju tæi sem yfirgnæfði samtíma- menn sína. En í dag er ekki að finna nokkurt verulegt stórmenni í nokkru landi í heiminum.” Það mætti geta þess að þegar þessi frá- bæri mentamaður sagði þetta, þá var hann rétt nýkominn frá því að heimsækja og hafa haft tal af Mussolini, hinum nafn- togaða ítalska einvalds-postula. En; vel að merkja, var það nú áður en Mussolini var búinn að eyðileggja elzta konungdóm heimsins og ganga með eldi og sverði yfir varnarlaust land, og miskunarlaust drepa og eyða bara til að geta ginið yfir stærra svið og látið lúta sér fleiri miljónir þrælk- aðra þegna. í þessu sama samtali við blaðamennina í London, bætti Dr. Butler því við, eins og til skýringa á staðhæfingunni að heim- urinn ætti engin mikilmenni á þessum tím- um, að það gæti skeð að það væri af því að mentir og þekking á síðari árum væru svo algeng, og alþýða manna væri orðin svo upplýst og á svo háu framfara stígi að miklu mennirnir sýndust ekki lengur mikl- ir; þegar að sléttlendið rís, þá lækka fjöllin. Erkibiskupinn af Canterbury, Dr. Ran- dall Thomas Davidson, þá áttatíu ára að aldri, tók undir með Dr. Butler og sagði: “Það er ekkert sem mér finst eins mikið um eins og hve fá stórmenni eru nú uppi— menn sem andlega bera höfuð og herðar yfir samtíðina, í samanburði við það sem var fyrir fjörutíu árum síðan.” Við könn- ustum öll við það sem íslenzka skáldið seg- ir: “Fjarlægðin gerir fjöllin blá og menn- ina mikla.” Máske hneigir heimurinn sig einhvern- tíma fyrir minningu Mussolini; kann vera að komandi aldir hampi Hitler sem hetju og mannvini sinnar tíðar. En slíkt skeður ekki nema með svo feldu móti að aldirnar óbornu striki yfir alla viðreisnar viðleitni heimsins á því sem okkur nú þóknast að kalla þróunar og þroska skeið mannkyns- ins, sem ónýtt “frelsis fimbulfamb.” Eg las í tímariti ekki alls fyrir löngu grein um Mussolini þar sem hermt er efti.r honum að hann hafi átt að segja: “Frelsi! Frelsi er bara úldið hræ!” (“Liberty! Liberty is nothing but a stinking corpse!”) Það má með alvöru spyrja hvort þetta sé dómur, álit, ályktan, þessara síðustu tíma á úrslitum frelsis-baráttu kynslóðanna. — Ekki ólíklegt að svo sé—ef dæma má af því sem nú sýnist að vera efst á teningnum í orðum og gerðum þjóðhöfðingja hér og þar í heiminum. Þegar að maður villist í þoku eða blind- byl er sagt að maður gangi í hring, og það er reynsla margra sem þetta hefir hent, og sem hafa verið svo heppnir að komast af— að þeir, eftir langa mæðu, finna sig komna til baka til þess staðar þar sem þeir hófu göngu sína. Er heimurinn á þesskonar hring-göngu nú? Eru leiðtogar þjóðanna að leiða fólk- ið í hringférð? Okkur hefir fundist að við altaf vera að fara áfram, áfram í áttina að takmarkinu. Hefir okkur 'verið gerður gerningur, er eitthvað ósjálfrátt við þetta alt saman ? Eru nornir einveldis, kúgunar, ófrelsis og ómennsku að seiða okkur að ströndum þeim þar sem endur fyrir löngu ríktu öfl sem réðu láði og lýð eftir eigin geðþótta; ströndum þar sem lýðveldi á að bíða ósigur fyrir einveldi! Það var ræðusnillingurinn Patrick Henry sem sagði í hinni heimsfrægu ræðu sinni: “Eg hefi aðeins eitt Ijós sem lýsir fótum mínum og það er ljós reynslunnar. Eg kann ekki að dæma um framtíðina nema með tilliti til fortíðarinnar”. Það er alt annað að reyna að starfa í ljósi reynslunn- ar eða að gera að dýrðlingum þá sem hafa starfað og strítt á undanfarinni tíð. Sagan sýnir að það er ekki allra með- færi að fara vel með völdin. fslenzku»- málsháttur segir að “fáir kunni eitt barn að eiga”. Það er víst alveg eins satt að fáir kunna með einveldi að fara. Menn- irnir hafa altaf verið að berjast á móti ein- veldi í einhverri mynd. Það eru víst fáir sem einvaldir hafa verið sem ekki hafa freistast til að nota það vald sér og sínum í hag. Það er svo auðvelt að telja sjálfum sér og öðrum trú um að það sem eykur manns eigin tign og völd og dýrð auki að jöfnu frama og velgengni lands og þjóðar, kirkju og guðsríkis. Að reisa musteri sjálfum sér til dýrðar í nafni drottins er hreint ekki fágætt í sögu heimsins. Einveldi hefir margar klær í frammi þegar að til þess kemur að ná tökum á almúganum. Stjórnendur ryðja sér til rúms og seilast eftir meiri og stærri völdum og ríkidæmi sjálfum sér til frama og uppgangs, og nota svo hjátrú, oftrú, föðurlandsást og annað því um líkt í fari almúgans, sem vopn í baráttunni gegn þeim sem vinna verður á ef ásælni og á- girnd eiga að ná sínu sérplægnis takmarki. Þetta kennir sagari okkur, kennir okkur það með óendanlegum endurtekningum. En hvað er sagan ? Án þess neitt að fara út í þá sálma dettur mér samt í hug það sem einn mesti ritsnillingur íslendinga í samtíðinni sagði ekki alls fyrir löngu í einni bókinni sinni: “Sagan er sorphaugur aldanna.” Þetta má skilja og skýra á fleira enn einn veg. En sleppum því. Ef sagan er sorphaugur, þá má þó æfinlega nota þann sorphaug sem aðra sorphauga; nota hann sem áburð á akurlendi nútímans til að auðga jarðveginn og margfalda, ef til vill, framtíðar framleiðslu. Lengra eða skemmra aftur í fortíðina horfa allir hugsandi menn, öll þjóðbrot, allar þjóðir. Fyrir handan fjöll tímans, hinumegin við tjaldið sem aðskilur “þá” og “nú” ljómar af sól liðinna gullalda. Tíminn vefur sigursveig úr árunum og leggur hann á höfuð fornhetjanna — skap- ar stundum hetjur úr þeim sem ekki skip- uðu það háborð í samtíðinni. f huga fjöldans skipar það sem “var” oft æðri sess en það sem “er”. En tíminn jafn- ar alt, hann kemur með lögmál launanna— og “er” verður að “vaF’ Hvert augnablik færir líðandi stund yfir takmörkin sem að- skilja það liðna frá því líðanda, og keðja kynslóðanna er greidd fyrir borð hlekk af hlekk, og sekkur óslitin í haf aldanná, tengjandi hið liðna við nútímann, kyn við kyn, frá eilífð til eilífðar. Það er hægt að sýna of mikla og líka of litla rækt við fortíðina—það er hægt að lifa of mikið í því liðna, og líka er hægt að sinna of lítið því sem sagan kennir. Ætli við þekkjum ekki öll bæði menn og konur sem hafa komið hingað til þessa lands á yngri árum æfi sinnar, lifað hér mest all- an sinn aldur, en aldrei farið frá íslandi? Náttúrlega er nú þetta sagt í óeiginlegri merkingu, en mikið er samt satt í því. Hjá þeim sem svona er ástatt fyrir er alt gott sem öldur aldanna eru búnar að pólera, fægja við strendur tímans. En svo er það nú k&nnske alt gott og blessað. En hvaða erindi hafa nú þessir sundur- lausu þankar á þjóðræknisþing? Eg veit að sú spurning bergmálar í huga ykkar. Því ekki að tala bara um gullið sem aldirn- ar geyma, því ekki að tala bara um “ást- kæra, ylhýra málið”, því ekki að verja stundinni til að skoða hina “konungbornu” fslendinga í skuggsjá fomrar (að eg segi ekki horfnar) frægðar? Til forna, stungu menn sér fyrir borð með gullkistur sínar og lögðust svo á gullið og urðu að feikna stórum ormum sem varðveittu auðinn. Hefir ekki þetta sína endurtekningu í því að steypa sér fyrir borð samtíðarinnar með stúfana í hand- föngum gullaldar kistunnar, og verða svo að ormi sem hringar sig um horfna frægð ? Nema að gullið komist í einhverri mynd í veltu veruleikans er það lítils virði. Það þarf að taka gullið úr kistunni og gera það starfandi áður en það getur orðið að veru- legum notum. Meistarinn talaði ekki út í hött þegar hann sagði: “Lát þá dauðu grafa sína dauðu,” og bætti svo við hvötinni um að fara út á starfsviðið meðal verkamannanna og taka þátt í lífs-starfi lifandi manna. Spekingurinn Ralph Waldo Emerson, hinn frumlegi, mikilhæfi rithöfundur og prédikari, sagði að það væri miklu meira varið í það að framleiða það sem sagnritar- ar gætu svo notað sem söguefni síðar meir, en að einblína á myndir í gerðabók liðinna alda—að minsta kosti var hugtakið hjá honum þetta þó orðavalið væri öðruvísi. Þetta ljúfmenni, sem var ljós og lampi í andans heimi samtíðar sinnar, reiddi samt til höggs þann Mjölnir sem braut veggi vanans og ruddi veg nýjum hugsjón- um—vakti úr dróma hálf sofandi hermi- krákur á sviði ameríkanskra bókmenta á fyrri hluta nítjándu aldarinnar. Rithöfundar Ameríku, upp að þeim tíma, höfðu bara elt og apað alt evrópiskt. Það var lítið framleitt sem kallast gæti í eðli sínu innfætt, ameríkanskt. Leiðtogar í andlegum efnum sátu við fætur Evrópu, og sniðu alt sem þeir bjuggu til eftir útlendri fyrirmynd. Það var þessi “afturganga” sem Emerson lagði fram alla lífs og sálarkrafta til að kveða niður. Dóm- ar hans voru oft ómildir og ómjúkum hönd- um fór hann um það sem honum fanst miður sæma, eða vera þjóð sinni til vansa. Hann var prestlærður og prestvígður en enginn snoppungaði sumar erfikenningar kirkju og klerka meir en hann. Það var ekki af því að hann vantaði lotningu fyrir því sem var háleitt og heilagt. Hugur hans stefndi ætíð áfram, og sál hans leitaði jafnan upp á við. En það sem varði mestu var að frelsa mannsandann frá hégiljum, hjátrú, hræsni, kreddum og kveifaraskap. Að ná sál mannsins undan fargi vanan3 var fyrir hugskotssjónum hans eitt af því allra nauðsynlegasta, ef ekki það eina nauðsynlega. “Vertu það sem þú ert”, var texti lífs hans, orð sem mætti set5a sem einkunarorð yfir alt hans starf. Burt með hræsni, burt með tál, burt með alt sem þvingar, lamar, þrælkar sál. Vertu ekki hræddur við að verða sjálfum þér eða játningarkerfi þess flokks sem þú tilheyrir ósamkvæmur—heimskuleg samkvæmni er bara gríla smásálna, smárra stjórnmála- manna, smárra heimspekinga og smárra klerka! Svo sagði vor góði, fróði, gagn- orði Emerson. Eg held að það sé einkenni, þó ekki sér- kenni íslendinga, að vilja vera frjálsir í hugsun, vilja reyna, prófa, rannsaka mál og staðhæfingar og ekki bara taka í trú og blindni við því sem að þeim er rétt. Ef við rennum huganum yfir sögu fs- lands frá landnámstíð til þessa dags, þá verðum við að kannast vlð það, að sem rauðan þráð má rekja frelsis-þrá og sjálf- stæðis viðleitni þjóðarinnar. Það hefir margt drifið á daginn fyrir litlu þjóðinni okkar. Hvar í heimi mundum við finna þjóð, eða kannské réttara sagt, þjóðbrot, sem betur hefir ávaxtað sitt pund enn ein' mitt þjóðin okkar? Að tölu hafa íslend- ingar æfinlega verið fáir. Aldrei hafa verið á landinu í einu fleiri íbúar en sem svarar þeim mannfjölda sem byggir eina smáborg í Ameríku. Borgin ykkar, Winnipeg, hýsir helmingi fleiri innbyggjendur en alt fsland. Tvíbura borga-umhverfið í Minnesota, þar sem eg á heima, geymir alt að tíu sinnum fleiri íbúa en alt fsland. Já, sannarlega er þjóðin fámenn þjóð; en það er ekki æfinlega alt komið undir fjöldanum. Margur er knár þó hann sé smár, hermir gamall íslenzkur málsháttur, og sannast það á þjóðinni sjálfri. Eg spyr: Hvar í heimi er þjóð sem þolað hefir eldraun örðugleikanna í þúsund ár að jöfnu við ísland ? Hefir ekki íslenzka þjóð- in þurft að þola drepsóttir, eldgos, hallæri, ís og ánauð að meira og minna leyti kyn- slóð af kynslóð ? Hafa ekki öfl eyðilegg- ingarinnar tekið höndum saman til að reisa rönd við allri framsókn, bæði and- legri og líkamlegri ? Stormurinn hefir lam- að, snjórinn hefir kvalið, sjórinn hefir gleypt, og eldfjöllin hafa spúð eitri og dauða. Samt hefir ísland lifað, samt hefir þjóðin þroskast, samt ber Fjallkonan ægishjálm í augum. Þegar tillit er tekið til örðug- leika, tálmanna, fátæktar og fá- mennis, þá spyr eg—hvar á bygðu bóli hafa framkvæmdir verið meiri en einmitt á íslandi? Þegar við tökum til íhugunar ástandið heima við byrjun þess- arar aldar sem við nú lifum á, og berum það saman við ástand í öðrum löndum á sömu tíð, og berum svo saman hina andlegu og verklegu framför sem hefir átt sér stað á þessum fáu árum heima og annarstaðar, þá finst mér að hver sanngjarn maður verði að kannast við að fram- sókn, framleiðsla, framför, verk- leg afköst yfirleitt, hafi heldur verið meiri á íslandi en annar- staðar. í byrjun aldarinnar var ísland ekki tengt sjósíma við önnur lönd, átti engin skip sem til út- landa sigldu, engir ökuvegir, eng ir ökuvagnar að heita mætti, flest þægindi stórþjóðanna ó- þekt. Nú á þessum fáu árum, aðeins þriðjung aldar, er þetta alt gerbreytt. Landið er nú tengt útlöndum með síma og út- varpi, bifreiðar þjóta, að segja má, um land alt á þolanlegum akbrautum, landið á skipa-stól ágætan; heimili, húsakynni, hafa tekið svo miklum framför- um að varla er saman berandi við það sem var fyrir hálfum öðrum mannsaldri; ágætt lýðskóla fyr- irkomulag, fallegar skólabygg- ingar á mörgum stöðum á land- inu, háskóli (university) í höfuð- staðnum; Reykjavík orðin svip- mikil smáborg með tízku sniði útlendra stórborga. Þetta alt, og svo margt og margt annað fleira sem telja mætti ef tíminn leyfði og þörf væri á. En því er eg að segja þetta, því er eg að túlka þetta mál fyrir fólki sem veit miklu meira um alt þessu viðvíkjandi en eg? Jú, víst er eg að bera í bakka- fullan lækinn—það bæði skil eg og veit. En eg hefi ástæðu sem eg ætla að leyfa mér að koma með. Hún er sú að draga athygli að fram- kvæmdarsemi, hugsjónum og yfirburða hæfilegleikum þeirra manna sem hafa leyst landið úr dróma og leitt þjóðina inn á nýja stigu, þeirra manna sem hafa endurreist hina fornu * frægð, þeirra manna sem á tuttugustu öldinni hafa sýnt að þeir eru ekki eftirbátar hetja tíundu aldarinnar. Hið unga fsland sem nú er risið úr ösku aldanna á skilið að sitja í öndgvegi and- spænis landi Gunnars, Héðins og Njáls. Eg kannast við það að eg er stoltur af hinni fornu frægð fs- lands. Mér finst mikið um stór- menni þau sem öld af öld hafa skapað hina æfintýra-ríku sögu þessa fræga sögulands. f gegn- um heitt og kalt, sætt og súrt, hefir hver öldin sem liðið hefir yfir fsland fært í skauti sínu andans stórmenni meir en hlut- fallslega við önnur lönd. Og nú á þessum “síðustu tímum” byggir landið þjóð sem sannarlega þarf ekki að standa með kinnroða frammi fyrir nokkrum samtíða lýð. Það er bæði gagn og gaman að vita að maður þurfi ekki að sækja aftur í löngu liðnar aldir þjógar einkenni, frægð og frama sem maður getur notið yndis og ánægju af. Það er æfinlega varhugavert að nafngreina lifandi menn, og eg ætla ekki að stranda á því skeri. En eg vil minna á það að við Vestur-íslendingar höfum haft þá ánægju á undanförnum síðustu árum að njóta heim- sóknar ýmsra leiðandi manna að heiman. Við höfum séð þá um- gangast hérlenda menn, tala máli þessa lands, flytja erindi sem vakið hafa eftirtekt bæði á þeim sjálfum og því málefni sem þeir hafa túlkað, og þá að sjálf- sögðu á eyjunni litlu í úthafinu kalda. Við Vestur-íslendingar erum dreifðir um hálfa heimsálfu og getum því ekki haft heildar á- hrif nema innan vissra takmark- aðra vébanda. Við erum samein- aðir hérlendu félagslífi, tengdir hérlendum starfsrekstri—þegn- ar, borgarar, þessa lands. Við eigum víða í þessum feikna geimi Vesturheims dugandi menn og konur af íslenzku bergi brotin sem hafa með ötulleik, vitsmunum og kappsemi rutt sér til rúms á ýmsum sviðum bæði í því andlega og verklega. Hvarvetna standa landar okkar innlendum samtímismönnum sín- um á sporði. Eins og áður var sagt dugir ekki að nafngreina einstaklinga í þessu sambandi. En benda má á að eðlið íslenzka haslar hér völl og ræður oft úrslitum. Það eru til þeir landar sem henda gaman að frelsis-hjali fs- lendinga, og sannarlega er hægt að fara í öfgar með það eins og annað. En hvað hefir betuj; skapað, mótað eðli fslendinga, en einmitt frelsisþráin, frelsis- baráttan, frelsis-stríðið ? Þjóð- in, á undanförnum öldum, hefir lifað við ánauð og böl, stjórnar- farslega, verzlunarlega, andlega. Stjórn, viðskifta-líf, trúarbrögð — þessu öllu hefir verið í einn tíma og annan þröngvað á þjóð- ina af útlendum drottnum. Alt hefir verið gert til að móta hugs- un og lífshætti fólksins að'geð- þótta útlendra yfirvalda, bæði í veraldlegum og andlegum effl- um. • Baráttan á móti þessu hefir biðið ósigur bæði oft og átakan- lega, en stríðið hefir stælt kraft- ana, aukið jírána, skapað eðlis- far, ef svo má að orði komast, beint hugsun og hugarfari í sjálfstæðis áttina. Að brjótast fram á móti storminum er íslendingum ekk- ert nýnæmi; frá blautu barns- beini þjóðar og einstaklings hef- ir það verið áskapað hlutverk. Það er engin furða þó að Hannes Hafstein, hetja hins unga, end- urrisna íslands, setti fremst í kvæðabókina sína ljóð til stórms- ins: “Þú þenur út seglin og byrðing- inn ber og birtandi, andhreinn um jörð- ina fer, og loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur og lífsanda starfandi hvarvetna vekur. Og þegar þú sigrandi’ um foldina fer, þá finn eg að lífsþróttur eflist í mér; eg elska þig kraftur, sem öldurn- ar reisir, eg elska þig kraftur, sem þok- una leysir.” Eitt það fyrsta sem eg man eftir frá samtali og umræðum íslendinga, sem eg hlustaði á sem unglingur í nýlendunni í Minnesota, var hve oft það kvað við — að “hugsa fyrir sig sjálf- an”. Þeim var illa við það frum- byggjendum þar að láta tyggja upp í sig. Þeir vildu hugsa sín- ar eigin hugsanir, trúa því sem þeim þótti trúanlegt, hafna því sem þeim reis hugur við. Sjálfstæði í hugsunum, orðum og verkum — það var aðal þungamiðja alls hjá þeim. Þetta er íslenzkt. Þetta er einkenni þjóðarinnar. Svona er- um við íslendingar. Okkur er sagt að í fornöld hafi feður vorir trúað á mátt sinn og megin. Sú trú var að nokkru Ieiti gerð landræk þegar kristni var lögleidd. En það er eitt að gera einn eða eitthvað landrækt og annað að koma honum eða því úr landi. Það er hægt að búa til bannlög. en þau ná aldrei yfir huga og sál mannsins. “Og samt snýst hún”, sagði Galileo rétt eftir að búið

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.