Heimskringla - 14.07.1937, Side 1
HELZTU FRETTIR
Þjóðhátíðardagar
Islendinga
hafa rofið vopnahlés-sættina.
Japanir eru að hrúga her
suður. Til Tientsin kom hópur
japanskra hermanna og 28 hern-
LI. ÁRJGANGUR
Það er eitthvað undarlegt við
það, að íslenzku blöðin hafa ekki
enn fengið neinar fregnir um að
Þjóðhátíðardags íslendinga verði
minst annar staðar á þessu
sumri en á Gimli og Hnausum í
Nýja-íslandi. Auðvitað er ekki
þar með sagt, að íslendingadag-
ur verði ekki hafður í einum eða
tveim stöðum vestur á Kyrra-
hafsströnd, í bygðum fsl. í Sask.
og í Chicago og víðar, eins og
undanfarið. En íslenzku blöðin
hafa vanalega um þetta leyti
verið beðin að tilkynna hátíðirn-
ar. Nú bólar ekki neitt á því.
Vonandi er þó, að feðranna
frægð sé ekki svo fallin í dá, að
íslendingadags hér verði ekki
minst, nema á þessum tveimur
áminstu stöðum.
Forseti fslendingadagsins á
' Gimli, Friðrik Sveinsson list-
málari, hefir í þessu blaði sagt
frá því sem fram fer á þjóðhá-
tíðinni á Gimli, svo að þar er
engu nýju við að bæta. En það
hefir á fleirum heyrst nú en
áður, að þeir ætli að sækja há
tíðina.
Friðrik Sveinsson, kom til þessa
lands í fyrsta stóra vesturfara
hópnum 1873. Hann var á fyrstu
þjóðhátíð íslendinga hér vestra,
sem haldin var í Milwaukee 1874
Sagði hann frá mörgu fróðlegu
og skemtilegu frá þeim degi árið
1934 á þjóðhátíðinni á Gimli.
Gæti hann margt þjóðlegt og
skemtilegt sagt okkur, á hátíð-
inni á Gimli. Og björtu og
broslegu hliðinni gleymir Frið-
rik Sveinsson ekki.
Ræðumenn á Gimli-hátíðinni
eru tveir ungir stálslegnir menta
menn vorir. Það er þess vert að
fylgjaift með því og veita því
eftirtekt, er ungir menn hér
leggja sitt pund á vogarskál ís-
lenzkra mála .
Frá Hnausum höfum vér
frétt, að þar flytji dr. B. J.
Brandson ræðu. Hann er Vest-
ur-íslendingum og raunar lönd-
um sínum hvar sem er, að svo
góðu kunnur, að á hann vilja
allir hlýða, sem því fá komið
við. Ennfremur er Hkr. frá
því sagt, að á Hnausadeginum
komi nú í fyrsta sinni fram
“Fjallkona” og “Ungfrú Can-
ada”. Alt þetta er þess vert, að
muna 31. júlí.
En auglýsingar með greini-
legri frásögn af því er fram fer
á þessum fslendingadögum að
Gimli og Hnausum, verða birtar
í næsta blaði.
Er stríð að byrja í Asíu?
Það er víst engum blöðum að
fletta um það, að stríð er hafið í
Asíu milli Japana og Kínverja.
Japanar eru nú ekki ánægðir
með að hafa unnið Manchukuo
undan Kínverjum (þó landið sé
að nafninu til lýðveldi, er það
algerlega í höndum Japana),
heldur þurfa þeir nú að herja
lengra suður og ná í nýja sneið
af Kína.
Við Yungting-ána, um 10 míl-
ur frá Peiping, sló í bardaga s.
1. miðvikudag. Var þar saman
kominn um 20,000 manna her
frá Japan. Kínverjar tóku á
móti. Stóð sú hríð ekki lengi og
var samið um vopnahlé. En nú
hafa víðar orðið skærur og
bregða hvorir öðrum um, að
aðarflugbátar um helgina. Þetta
er langt fyrir sunnan landamæri
Manchukuo og því inn í Kína.
Japanir leyfa sér flest við vesl-
ings Kíhverjana.
En hvað vantar Japani Tnikið?
Árið 1910 tóku þein Chosen
(Kóreu), land sem er< 85 þús.
fermílur að stærð og með 22
miljón íbúum. Árið 1932 taka
þeir Manchukuo-ríkið, sem nú er
kallað en var að mestu land það
er áður nefndist Mansjúría; það
er 446 þús. fermílur að stærð og
íbúatalan um 30 miljónir. Nú
virðist hugmyndin að krækja í
alt landið fyrir Pohai-flóa, sem
liggur suður af Manchukuo og
ef til vill lengra vestur en það;
auðugt land og mannmargt.
• Hverju ósamlyndi eða inn-
byrðis óeining getur ollað, er ef
til vill hvergi ljósari stöfum
skráð en í Kína. Það er vegna
sundurlyndis og samtakaleysis
Kínverja, að ríki þeirra og þeir
sjálfir eru sem óðast að verða
öðrum þjóðum að bráð. Mon-
golía, kommúnista-rkið, er eins
háð Rússlandi og Manchukuo er
Japan, þó það eigi að heita
sjálfstætt.
íbúatala japanska keisara-
dæmisins er nú orðin um 100
miljónir. Vald þessarar þjóðar
er því orðið mikið og á eftir að
að eflast ennþá.
George VI. kon. og
stjórnin ósammála
Ritið News Review á Englandi
sagði frá því s. 1. miðvikudag, að
í brýnu hefði slegið milli George
Bretakonungs og stjórnarinnar
út af því að konungur hafði á-
kveðið að heimsækja fátækra-
hverfin í Wales um miðjan júlí-
mánuð. Ráðuneytið eða stjórn-
in aftraði honum frá því; tjáði
honum, að með alt það í huga
sem af því hefði hlotist, að bróð-
ir hans hafi farið þangað, væri
bezt að hann gæfi hugmyndina
frá sér.
En konungurinn var ekki á
því. Sagði hann, að hann færi
hvert sem bróðir sinn hefði far-
ið, og að reyna að aftra því,
væri árangurslaust.
Stjórnina kvað ritið einnig á-
hyggjufulla útaf för konungsins
til Skotlands 23. júlí, aðeins
tvær vikur eftir Orange-hátíða-
höldin í minningu um orustuna
við Boyne, sem nálega ávalt
fylgdu alvarleg uppþot.
Skrifstofu Lewis lokað
Lögreglan og varðlið Banda-
ríkjastjórnar í bænum Massil-
on, O., lokaði s. 1. mánudag skrif-
stofu verkamanna-samtakanna.
Ástæðan var sú, að þar, sem víð-
ar í bæjum syðra, lenti í skær-
milli lgöreglu og verkfallsmanna
við stálframleiðslu. Voru tveir
menn drepnir, en 15 meiddir í
uppþotinu.
Verkfall þetta hófst í stál-
gerðarhúsum víðsvegar um
Bandaríkin 27 maí.' Var mesti
fjöldi mana sem tók þátt í því.
Stendur þannig á verkfallinu,
að foringi verkamanna, John L.
Lewis, krafðist þess, að ráðning
verkamanna væri skrifleg, og
verkveitendur skrifuðu undir
samning er þeir réðu mennina.
Stálgerðarfélögin neituðu því;
kváðu það ónauðsynlegt eins og
WINNIPEG, MEÐVIKUDAGINN,14. JÚLÍ 1937
verkamanna löggjöf landsins
væri.
Um vinnulaun, vinnutíma og
viðurgerning yfirliett, ber ekk-
ert á milli. Verkamenn eru á-
nægðir með það alt saman. En
það er þessi skriflegi samningur
við ráðninguna, sem, Lewis
krefst, sem verkfallinu veldur.
Flestar verksmiðj urnar hafa aft-
ur tekið til starfa. En sættir
hafa þó ekki náðst.
í uppþotum sem orðið hafa af
þessu víða í bæjum, hafa nokkr-
ir látið lífið, eða um 15 alls.
Hvort af fleiri skrifstofum
verkmannaforingja (Commit-
tees of Industrial Organization,
sem skammstafað er C. I. O.)
verður nú lokað, er eftir að vita.
Franco neitað um lán
Franco, uppreistarforinginn á
Spáni, hefir þessa daga verið að
reyna að fá lán í Englandi til
þess að geta haldið uppreistinni
áfram. Fjárhæðin nemur 100
miljón dölum. Þetta hefir alt
farið fram fyrir lokuðum dyrum,
svo um veðið veit enginn. En
nú hefir það orðið hljóðbært, að
lánið fáist ekki. Og eins hefir
farið um 250,000 dala lánið, sem
hánn kvað hafa beðið Frakka
um.
Undanfarna daga hefir Fran-
co verið að fara halloka í grend
við Madrid. Kvað þar nú um
vörn en ekki sókn að ræða af
hálfu uppreistarseggjanna. —
Stjórnarsinnar kváðu sækja all-
hart á þá. Og Madrid hefir svo
verið víggirt, að hún verður ekki
í hasti tekin.
Þjóðverjar og ítalir hafa kall-
að herskip sín heim frá Spáni.
Hefir þá sjáanlega hag Franco
tekið að hnigna.
Eftir að Bilbao var unnin,
sneru uppreistarmenn sér að
borginni Santander. En nú hafa
þeir þar horfið frá og herforing-
inn sem er ítalskur, hefir nú
verið sendur til Cordova að
reyna að ná í Almedan-silfur-
námurnar. Ef þær næðust yrðu
ítalir brátt einir um kvikasilfur-
sölu í Evrópu.
FRÉTTAMOLAR
✓
Við fréttirnar vestan úr suð-
urhluta Saskatchewan fylkis s. I.
viku um að 9 miljón ekrur af
sáðlandi væri gereyðilagt vegna
þurka, hækkaði hveitiverð og
bætti ofurlitlu við gróða korn-
kaupmannanna. Verðið á hveiti
fór yfir $1.50.
* * *
Hæstiréttur í Ontario kvað
fyrir skömmu upp dóm í málinu
uni orkukaup Ontario-stjórnar
af Beauharnois og fleiri orku-
félögum. Hepbum neitaði, sem
kunnugt er, að greiða fyrir orku,
sem ekki var notuð. Nú telur
hæstiréttur, að fylkinu sé samt
sem áður skylt, að greiða orku-
félögunum um sex hundruð þús-
und dollara.
* * *
Þegar rússnesku flugmennirn-
ir komu til Bandaríkjanna norð-
ur-heimskautaleiðina fyrir
skömmu, hélt Vilhjálmur Stef-
ánsson þelm samsæti í New
York. Sendi Tweedsmuir lá-
varður, landstjóri Canada, Vil-
hjálmi Stefánssyni á,varp, sem
hann bað hann að flytja flug-
mönnum frá sér. Var ávarpið
fult aðdáunar út af afreksverki
flugmannanna.
* * *
f fyrradag setti maður að
nafni Pat O’Hara í San Fran-
cisco gúmmí-slöngu á eiturlofts-
pípuna (exhaust pipe) í bílnum
sínum og festi hinn enda slöng-
unnar uppi í bílnum. Nábúi
hans, sem eftir þessu tók, gerði
lögreglunni aðvart, því hann
hélt að maðurinn ætlaði að
drepa sig. Þegar lögreglan kom,
spurði maðurinn hvað það ætti
að þýða að banna sér þetta;
Bíllinn hefði verið morandi í
lús eftir tvo flakkara, sem sváfu
í honum um nóttina, og hann
hefði ætlað að drepa lýsnar með
þessu.
Kosningaurslitin á
Islandi
(Ekki er komin vestur enn
endanleg frétt af ^osningunum á
íslandi. í Morgunblaðinu, dag-
settu frá 21. til 24 júní, er skýrt
frá hvernig kosningar fóru í öll-
um kjördæmum landsins nema
tveimur, Eyjafjarðarsýslu og
Suður-Þingeyjarsýslu. En þar
er aðeins gefin tala kosinna þing-
manna eftir fyrstu talningu, en
ekki uppbótarþingmanna. Enn-
fremur er sýnd atkvæðatala
hvers flokks, í öllum kjördæm-
unum nema tveimur. — Fara
fréttirnar hér á eftir.)
f gær (23. júní) voru kosn.úrslit
kunn í 25 kjördæmum, og var
atkvæða- og þingmannatala
flokkanna þá, eftir því sem næst
verður komist, þessi:
Sjálfstæðisflokkur 23,071 atkv.
12 þingmenn
Framsóknarflokkur 11,808 atkv.
16 þingmenn.
Alþýðuflokkur 10,180 atkv.
5 þingmenn
Kommúnistaflokkur 4,417 atkv.
1 þingmann
Bændaflokkur 2,814 atkv.
1 þingmann
úrslitin í Oinstökum 'kjör-
dæmum eru þessi:
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Þar var kosinn ólafur Thors
(S) með 1504 atkv.; Sigfús Sig-
urhjartarson (A) hlaut 593 at-
kvæði, Haukur Björnsson (K)
58 og Finnbogi Guðmundsson
(Þ) 118. Landlisti Bænda-
flokksins hlaut 19 atkv. og land-
listi Framsóknarflokksins 86.
V est ur-Skaf taf ellssýsla
Þar var kosinn Gísli Sveinsson
(S) með 436 atkv.; Helgi Lárus-
son (F) hlaut 289 atkv.; Lárus
Helgason (B) 105, Ármann
Halldórsson (A) 32. Landlisti
kommúnista hlaut 16 atkvæði.
Suður-Múlasýsla
Þar voru kosnir Eysteinn
Jónsson (F) með 1124 atkv. og
Ingvar Pálmason (F) með 1000
atkv.; Magnús Gíslason (S)
hlaut 684 atkv., Kristján Guð-
laugsson (S) 627 atkv^ Jónas
Guðmundsson (A) 563 atkv.,
Friðrik Steinsson (A) 409 atkv.
Arnfinnur Jónsson (K) 332 atkv.
og Lúðvig Jósefsson (K) 243
atkv.
Norður-Múlasýsla
Þar voru kosnir Páll Zophon-
iasson (F) með 723 atkv. og
Páll Hermannsson (F) með 696
atkv.; Árni Jónsson (S) hlaut
585 atkv. og Svenin Jónsson (B)
564 atkv. Landlisti Alþýðu-
flokksins hlaut 4 atkv. og land-
listi Kommúnistafl. 4.
Norður-Þingeyjarsýsla
Þar var Gísli Guðmundsson
(F) kosinn með 539 atkv.; Jó-
hann Hafstein (S) hlaut 183
atkv., Benedikt Gíslason (B) 85,
Oddur Sigurjónssn (A) 48 og
Elísabet Eiríksdcjtt(ir !(K) 34
atkv.
Norður-fsafjarðarsýsla
Þar var kosinn Vilmundur
Jónsson (A) með 759 atkv.; Sig-
urjón Jónsson (S) hlaut 694
atkv. Landlisti Bændafl. hlaut 6
atkv. og landlisti Kommúnistafl.
1. Auðir og ógildir 26.
Ámessýsla
Þar hlutu kosningu Jörundur
Brynjólfsson (F) með 1295 atkv.
og Bjarni Bjarnason (F) með
1243 atkv.; Eiríkur Einarsson
(S) hlaut 1075 atkv., Þorvaldur
Ólafsson (B) 989 atkv., Ingimar
Jónsson (A) 170 atkv. og Jón
Guðlaugsson (A) 127 atkv. —
Landlisti kommúnista hlaut 8
atkv. Auðir og ógildir 26.
Skagafjarðarsýsla
Þar hlutu kosningu Pálmi
Hannesson (F) með 1072 atkv.
og Steingrímur Steinþórsson
með 1069 atkv.; Magnús Guð-
mundsson (S) hlaut 983 atkv.
og Jón Sigurðsson (S) með 972
atkv.; landlisti Alþýðufl. hlaut 1
atkv. og landlisti Bændaflokks-
ins 8.
Strandasýsla
Þar var Hermann Jónasson
(F) kosinn með 631 atkv.; Pálmi
Einarsson (B) hlaut 311. Á
landlista AJþýðufl. 2. Kom-
múnistafl. 4 og Sjálfstæðisfl. 4.
Vestur-fsaf jarðarsýsla
Þar var kosinn Ársgeir Ás-
geirsson (A) með 490 atkv.;
Gunnar Thoroddsen (S) hlaut
411 atkv., Jón Eyþórsson (F)
255. Landlisti Bændafl. hlaut 8
atkv., og landlisti Kommúnista-
fl. 1.
Dalasýsla
Þar var kosinn Þorsteinn
Briem (B) með 404; Hilmar
Stefánsson (F) hlaut 322, Jón
Sívertsen (U) hlaut 2 atkv.;
landlisti Sjálfstæðisfl. 16. atkv.
og landlisti kommúnista 1 atkv..
Snæfellsness- og
Hnappadalssýsla
Þar var Thor Thors (S) kos-
inn með 752 atkv.; Þórir Stein-
Þórsson (F) hlaut 433 atkv., Kr.
Guðmundsson (A) hlaut 222 at-
kv. og Eiríkur Albertsson (B)
65 atkv.; landlisti kommúnista
hlaut 7 atkv.; auðir og ógildir 26.
Austur-Skaftafellssýsla
Þar var kosinn Þorbergur Þor-
leifsson (F) með 337 atkv.;
Brynleifur Tobíasson (B) hlaut
248 atkv., Eiríkur Helgason (A)
23 atkv.; landlisti Sjálfst.fl.
hlaut 4 atkv.
Barðast randarsýsla
Þar var Bergur Jónsson (F)
kosinn með 565 atkv.; Gísli
Jónsson (S) hlaut 406 atkv.,
Sigurður Einarsson (A) 290.
Halgr. Hallgrímsson (K) 62;
landlisti Bændafl. hlaut 8 atkv.
Reykjavík
Kosningunni í Reykjavík var
lokið laust ■ eftir miðnætti (22.
júní) og höfðu þá greitt atkvæði
alls 18,331 manns.
Talning atkvæða hófst þegar
að kosningu lokinni og stóð til
kl. 7(4 um morguninn.
Atkvæðin féllu þannig á flokk-
ana, að meðtöldum landlista-at-
kvæðum:
Alþýðuflokkur ..........4,135
Bændaflokkur ..............59
Framsóknarflokkur ......1,047
Kommúnistaflokkur.......2,742
Sjálfstæðisflokkur ....10,138
NÚMER 41.,
Auðir seðlar voru 113 og ó-
gildir 97.
Kosningu hlutu að þessu sinni
4 menn af lista Sjálfstæðisfl.,
einn af lista Aþýðuflokksins og
einn af lista Kommúnistaflokks-
ins. Þessir hlutu kosningu:
Magnús Jónsson (S) .....10,138
Jakob Möller (S) .........5,069
Héðinn Valdimarss. (A) .. .4,135
Pétur Halldórsson (S) ... 3,379^
Einar Olgeirsson (K) .....2,742
Sigurður Kristjánss. (S) 2,534i/2
Hafnarf jörður
Þar urði^ úrslitin þau, að
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins, Bjarni Snæbjörnsson var
kosinn með 996 atkv., Emil Jóns-
son (A) hlaut 935 atkv. Auðir
og ógildir seðlar voru 29.
fsafjörður
Þar var Finnur Jónsson (A)
kosinn með 754 atkv.; Bjarni
Benediktsson (S) hlaut 576 atkv.
Landlisti Kommúnistafl. hlaut
18 atkv. Framsóknarfl. 8 Bænda-
fl, 5; auðir og ógildir seðlar voru
25.
Akureyri
Þar urðu úrslitin þau, að
frambjóðandi Sjálfstæðisfl. Sig-
urður E. Hlíðar, var kosinn með
913 atkv.; Steingr. Aðalsteins-
son (K) hlaut 639 atkv.; Árni
Jóhannsson (F) 528ogJón Bald-
vinsson (A) 258. — Landlisti
Bændafl. hlaut 4 atkv.; ógildir
og auðir seðlar 27.
Seyðisfjörður
Þar urðu úrslitin þau, að Har-
aldur Guðmundsson (A) var kos-
inn með 288 atkv.; Guðm. Finn-
bogason (S) hlaut 199 atkv.;
landlisti kommúnista hlaut 10
atkv;. Framsóknarfl. 10 og
Bændafl. 2; auðir og ógildir 9.
Vestmannaeyjar
Þar var frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins, Jóhann Þ. Jó-
sefsson kosinn með 879 atkv.;
ísleifur Högnason (K) hlaut 487,
Páll Þorbjörnsson (A) 289 og
Gugl. Br. Jónsson (U) 11. Á
landlista Bændafl. féll 1 atkv. og
Frams.fl. 40.
Borgarfjarðarsýsla
Þar var Pétur Ottesen (S)
kosinn með 744 atkv. Sigurður
Jónasson (F) hlaut 421 atkv.,
Guðjón B. Baldvinsson (A) 280,
Ingólfur Gunnlaugsson (K) 8.
Landlisti Bændafl. hlaut 40 atkv.
Auðir og ógildir seðlar 17.
Mýrasýsla
Þar var Bjarni Ásgeirsson (F)
kosinn með 516 atkv.; Þorst.
Þorsteinsson (S) hlaut 412 atkv.
Einar Magnússon (A) 21. Land-
listi Bændafl. 15 og Kommún-
istafl. 8; auðir og ógildir 13.
Vest u r- H úna vatnssýsla
Þar var Skúli Guðmundsson
(F) kosinn með 435 atkv.;
Hannes Jónsson (B) hlaut 364
atkv.; landilsti Sjálfst.fl. hlaut
14 atkv. og Alþ.fl. 1.
Austur-Húnavatnssýsla
Þar hlaut kosningu Jón Pálma-
son (S) með 428 atkv.; Hannes
Pálssön (F) hlaut 318, Jón Jóns-
son (B) 261, Jón Sigurðsson
(A) 94, Pétur Laxdal (K) 2
(bæði á landlista) ; auðir og ó-
gildir 7.
Rangárvallasýsla
Þar hlutu kosningu Svein-
björn Högnason (F) með 946
atkv. og Helgi Jónasson (F) með
934 atkv.,; Jón ólafsson (S)
hlaut 895 og Pétur Magnússon
(S) 891 atkv. Landlisti Alþýðu-
fl. hlaut 3, Bændafl. 4 og Kom-
múnistafl. 4; auðir og ógildir 12.