Heimskringla - 14.07.1937, Page 3
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
WINNIPEG, 14. JÚLf 1937
eindina, eins og fyrrum, sem ó- ,
deili eða smæsta öragnarhluta
hvers frumefnis, er hún nú skoð-1
uð sem efniseining, er saman-
stendur af enn smærri eindum
(rafeindum og öreindum), og að
hvert frumefni hafi sérstakt
frumeindar byggingarlag, líkt
og hver dýrategund hefir sína
sérstöku líkamsbyggingar-
frumlu. Álitið er, hvað bygg-
ingarlagið snertir, að hver frum-
eindin sé annari lík að þessu
leyti: Fyrst, hver frumögn hefir
kjarna; annað, kjari hverrar
fumagnar er umkringdur af öðr-
um samböndum; þriðja, hver
hlutur hverrar frumagnar er svo
náskyldur hver öðrum, að til
samans mynda þeir eitt starf-
andi frumagnarkerfi.
Rafeindarkenningin grund-
vallast á þeirri skoðun, að frum-
eindin samanstandi af óendan-
lega smáum ögnum, sem skipa
sér niður á sérstakan hátt. Vér
getum vitanlega ekki beinlíms
skynjað hve smáar rafeindirnar
eru, en vér getum rannsakað eðli
þeirra og áhif; og vér getum
skynjað slíka vélasamsetning
sem frumeind, er samanstendur
af rafeindum og öreindum í mis-
munandi hlutföllum í hverju
frumefni. Á slíkum skynjunum
byggist efnafræði og eðlisfræði
nútímans, og eru, sem sálar-
þrekvirki,, engu torveldari fram-
kvæmdar en skynjun alheimsins,
víðátta hans og veraldamergð.
Efnismagn i-afeindarinnar er
einn átján hundruð fertugasti
og sjötti partur af efnismagni
vetnisfrumeindarinnar. Þeir sem
óvanir eru að hugsa um svona
óendanlega litlar smæðir fá
næsta litla hugmynd um gildi
þeirra. Til skilningsauka hafa
vísindamenn því borið efnismagn
rafeindarinnar saman við efnis-
magn smápenings, sem allir hér
kannast við — silfurpeninginn
“dime” (einn tíunda úr ame-
rískum dollar). Efnismagn hans
er um hálft þriðja gramm. En
efnismagn vetnisfrumeindar-
innar, á sömu vog, er einn og
sextíu og sex hundruðustu deilt
með miljón. miljón, miljón, milj-
ón, sem er talan tíu margfölduð
með sjálfri sér tuttugu og fjór-
um sinnum, og er því 1.66X10-24
grömm. Er efnismagn penings-
ins því, með einfaldri reiknings-
aðferð, hér um bil 3X10—27 eða
þrjú þúsund miljón, miljón,
miljón, miljón meira en efnis-
magn rafeindarinnar.
Efnismagn öreindarinnar er
eitt þúsund átta hundruð fjöru-
tíu og fimm sinnum meira en
efnismagn rafeindarinnar.
Hve mikinn þátt þær stall-
systur, Lærdómsáætlun og Til-
raun, hafa hvor um sig átt í
vexti og framförum vísindanna
læt eg ósagt. En það mun flest-
um auðsýnilegt, að hvorug getur
án aðstoðar hinnar verið; hvor-
ug er einhlít. Þó tilraunin sé
ekki alblind, þá er hún mjög nær-
sýn — sér aldrei lengra en nef
hennar nær. Án aðstoðar glögg-
skygnar lærdómsáætlunar, sem
sér torfærur og hindranir afar-
langt frá sér og sannleikann í
hillingum, stæði reynslan ávalt
:í sömu sporum. Aftur á hinn
bóginn, kæmist lærdómsáætlun-
in skamt á leið væri hún ekki
borin á herðum sterkrar en nær-
sýnnar tilraunar; án þeirrar að-
stoðar gæti hún ekki aðgreint, í
þeim fjarska sem hún sér hlut-
ina, tálmynd frá virkileika.
Ámi S. Mýrdal
—Point Roberts, Wash.
4. júlí 1937.
Tony Dimo kafari gerði um
daginn verkfall, og það er líklega
fyrsta verkfallið, sem gert hefir
verið niðri í vatni.
Hann átti að gera við leiðsl-
urnar niðri í Lake Superior, en
þegar hann var kominn niður á
botn símaði hann upp og sagðist
ekkert vinna og ekki koma upp
fyr en sér yrði lofað launahækk-
un.
EF TIL STYRJALDAR
KÆMI NÚ—
segir Dan Rogers, fréttaritar j
United Press, í einni af mörgum
greinum, sem U. P.. hefir sent
fréttastamböndum sínum um
höfuðmenn álfunnar á sviði
hernaðar og landvarna — yrði
yfirstjóm landvama Breta í
höndum þriggja manna, sem
hafa samtals verið í herþjónustu
138 ár. Georg konungur VI. er
að vísu æðsti maður landhers,
flota og flughers, og ríkisstjóm
með forsætisráðherrann í broddi
fylkinga. tæki. ákvarðanir um
stefnur og fengi ótal vandamál
til meðferðar og úrlausnar, en
stjórn landhers, flugliðs og sjó-
liðs í baráttunni við óvinaliðið,
yrði í höndum þeirra manna,
sem hér verður frá sagt, af Dan
Rogers.-----
Sir Alfred Ernle
Montacute Chatfield
var skipaður aðmíráll yfir breska
flotanum árið 1935. Hann hefir
því það starf með höndum sem
Jellicoe hafði á heimsstyrjaldar-
árunum og síðar Beatty.
Chatfield gerðist sjóliði, er
hann var aðeins 13 ára. Hann
er af gamalli sjóliðsmannaætt og
var faðir hans aðmíráll. Chat-
field vakti þegar eftirtekt á sér.
er hann var sjóliðsforingjaefni,
og var fremstur í flokki sínum.
Hann hefir verið starfandi í
brezka sjóliðinu í hálfa öld og er
nú 63 ára að aldri. Hann var um
tíma forstöðumaður skyttuskóla
flotans og varð herskipaforingi
1909. Hann hafði yfirstjórn
með höndum á herskipinu Med-
ina, sem flutti Georg V. og Mary
drotningu til Indlands, er Georg
konungur var krýndur keisari
Indlands. Hlaut Chatfield þá
titilinn “Commander of the
Royal Victorian Order” og síðar,
fyrir störf sín í heimsstyrjöld-
inni 1914—1918 titilinn “Com-
mander of the Bath” og ýms
önnur heiðursmerki, m. a. fyrir
þátttöku sína í orustunni við
Jótlandsskaga. Árið 1919 var
hann aðlaður.
Chatfield var “flagg-skip-
stjóri” Beatty aðmíráls öll
heimsstyrjaldarárin, á herskip-
unum Lion og Queen Eli^abeth,
og tók þátt í sjóorustunni við
Helgoland, Dogger Bank-sjóor-
ustunni og sjóorustunni við Jót-
landsskaga.
Chatfield aðmíráll er þeirrar
skoðunar, að Bretum sé brýn
nauðsyn að hafa sem öflugastan
flotá og það er hans' bjargföst
sannfæring, að í öllum stórorust-
um sé mest undir stóru orustu-
skipunum komið, en ýmsir hafa
haldi því fram, að dagar stóru
orustuskipanna væri taldir, og
leggja bæri höfuðáherzlu á smíði
lítilla herskipa. Chatfield skilur
gerla hver gagnsemi er að þeim,
en sagði eitt sinn, að “Ford-
skip” væri gagnslaus eins í stór-
orustum, en, undir beitiskipum
og bryndrekum væri oft komið
hver skjöldinn bæri að lokum í
styrjöldunum og færði þjóð sinni
sigur.
Chatfield aðmírál er þannig
lýst, að hann sé maður skarpleg-
ur á svip, með hátt hvelft enni
og fagureygður. Allur ber svip-
urinn þreki og viljafestu vitni.
Chatfield er maður rólyndur og
er illa við alt lof. íþróttir stund-
ar hann ekki, nema golf. Hann
er maður kvæntur og á einn son
og tvær dætur.
Sir Cyril John DeveriII .
mundi, ef til styrjaldar kæmi,1
gegna því starfi, sem French
hafði með höndum í heimsstyrj-
öldinni og síðar Sir Douglas
Haig. Deverill marskálkur er
forseti herforingjaráðs Breta-
véldis og hefir gegnt því starfi
frá því í fyrra snemma árs. —
Hann er nú 62. ára að aldri og
hefir verið í hernum síðan er
hann var á unglings aldri. Hann
hefir hlotið fjölda titla og heið-
ursmerkja fyrir ströf sín í hern-
um. Á heimsstyrjaldarárunum
gegndi hann herforingjastöfum í
Frakklandi og eftir vopnahléð
var hann yfirmaður norðurhers
brezka setuliðsins í Þýzkalandi.
Sjö sinnum var hans minst sér-
staklega í heiðurs skyni í opin-
berum tilkynningum heims-
styrjaldarárin. Deverill gegndi
um mörg ár herforingjastöðu í
Indlandi og var yfirmaður Ind-
landshers 1930—31. Deverill er
mikill maður vexti og sterklegur
og er annálaður fyrir hversu
skjótur hann er að taka ákvarð-
anir, þegar mikið liggur við. —
Hann er kvæntur og á tvö börn,
son og dóttur.
Sir Edward Leonard EUington
flugmarskálkur er yfirmaður
breska flughersins. Hann er 59
ára að aldri og ókvæntur. Ell-
ington er sagður maður fulggáf-
aður og hefir getið sér hið besta
orð sem flugmaður og flpgliðs-
stjórnandi. Hann var í land-
hernum framan af og lærði að
fljúga árið 1912 og Royal Aero
Club skírteini hans er númur
305. Hann fór til Frakklands
þegar í ágústmánuði 1914 og var
þrívegis minst í heiðursskyni í
opinberum tilkynningum. Hann
starfaði lengi í hermálaráðu-
neytinu og hefir haft með hönd-
um yfirstjórn brezka flugliðsins
í Egyptalandi, Indlandi og Iraq
o .s. frv. 1929 varð hann fulg-
marskálkur og yfirmaður breska
flughersins og yfir-marskálkur í
janúar 1933.—Vísir.
MENNING
AUSTURLANDA
Austrænir þjóðflokkar hafa
jafnan gefið líkamlegri menning
lítinn gaum. Um þá siðmenn-
ingu, sem í aðalatriðum er mið-
uð við tímanlega vellíðan, láta
þeir Vesturlandabúa eina um.
Á Vesturlöndum úir og grúir
alt í læknum, sem leika listir sín-
ar á líkama fólks, — en í Asíu
morar alt í sálarlæknum, sem
gefa sig eingöngu að andlegum
lækningum.
f meðvitund Austurlandabúa
er Buddha hinn mikli meistari, er
með sjálfstamningu sinni dreg-
ur úr áhrifum tilfinningalífsins
og þokar mönnum með því nær
hinu eftirsótta óminni, eða al-
gleymisástandi — inn á það svið
meðvitundarlífsins, þar sem
þrautir og þjáningar, nautn og
sæla eru óþekt fyrirbrigði.
Þegar betur er aðgætt eru
Asíumenn á ýmsa lund miklu
frjálslyndari í trúarskoðunum
sínum en við, sem í vestrinu bú-
um, og trúum. í Kína er það t.
d. algengt, að í hofunum séu
helgimyndir af Krist, Muhamed,
Buddha, og fleiir trúarbragða-
höfundum. Og Kínverjar færa
öllum þessum guðum fórnir, af
því það er skoðun þeirra, að allir
þessir menn hafi unnið menn-
ingu allra þjóða mikið gagn. —
Hið sama á sér stað um Japani,
Malay-búa, og marga aðra þjóð-
flokka þar eystra.
Indverjar eru aftur á móti
töluvert íhaldssamir í trúarskoð-
unnm sínum, því þar hefir Mu-
hameds-trúin ná(5 svo mikilli út-
breiðslu og tekið þjóðina alla
svo föstum tökum — en eins og
kunnugt er, þá er Múhameds-
trúin allra trúarbragða ein-
strengingslegust. Muhameds-
trúar menn halda því beinlínis
til streitu að allir aðrir en þeir
séu villutrúarmenn, sem eigi að
útrýma af jörðinni með blóði og
brandi.
Evrópumenn, sem koma í
fyrsta sinn til Japan, undrast
það mjög, að Japanir, sem kosta
kapps um að afla sér, og inn-
leiða heima fyrir, vestræna
menningu, skuli enn vera “ása-
trúarmenn”, eða skurðgoðadýrk-
endur. En sé þetta athugað bet-
ur niður í kjölinn, þá er guðstrú
Japana öllu fremur trúin á for-
feðurna og sálir hinna framliðnu
en tilbeiðslu guðanna sjálfra.
Sannfæringin um “lífið eftir
dauðann” er þar miklu rótgrón-
ari skoðun en í Vesturlöndum,
og þessi feðratilbeiðsla er til ó-
metanlegs gagns fyrir innbyrðis
samheldni og alt þjóðlíf Japana.
f hinu stórglæsilega Shinto-
hofi í Osaka hanga í lofthvelf-
ingum þess 122 ljósker til minn-
ingar um þá 122 keisara, sem
talið er, að setið hafi á veldisstóli
í Japan. Og í allar þær aldir,
sem logað hefir á þessum ljós-
kerum er talið fullsannað, að
aldrei hafi sloknað á neinu þess-
ara ljósa. Enda er þolinmæði
og þrautseigja Austurlandabú-
ans yfirnáttúrlegt fyrirbrigði á
mælikvarða okkar Evrópu-
manna, — og ljóskera keisarans
mun framvegis verða vandlega
gætt um margar ókomnar aldir.
En þó þessi sálnagæsla í Aust •
urlöndum gangi fyrir er þó síð-
ur en svo, að læknavísindunum
sé þar enginn gaumur gefinn. í
lyflæknisfræði standa Austur-
landabúar okkar skör framar.
Þeir hafa öldum saman kunnað
að búa til lyf, sem við höfum
ekki þekt fyr en á allra síðustu
árum. Fyrir nokkrum áratug-
um hefðum við ekki hikað við
að segja, að áhrif hinna aust-
rænu lyfja væru hreinustu galdr-
ar. En nú þekkjum við þau sjálf
af eigin reynd.
f klaustrum Buddha-trúar
manna hafa austræn læknavís-
indi átt flesta sína færustu
menn.
Radium og áhrif þess hafa
Autsurlandabúar þekt um þús-
undir ára — og tígrisdýrsklóin,
tákn hinnar buddhisku bannfær-
ingar, er í eðli sínu ekkert annað
en tígrisdýrskló, eða heil loppa,
sem útgeislunarefni, blandið rad-
íum, hefir verið komið fyrir í.
Þessari eitruðu kló læða svo
prestarnir að næturþeli og koma
fyrir yfir fleti “hins ölvaða
manns”, þannig, að útgeislunin
fellur á brjóst hans og veikir
með því alla starfsemi líffær-
anna. Af þessu kemur rauði J
bletturinn á brjóstið — en það
er tákn eilífrar útskúfunar.
Hinir fjölmörgu örkumla
munkar Buddha-klaustranna,
sem eru með visna og skrælnaða
fingur, hendur og handleggi,
bera þess ljósan vott, að innan
klaustursveggjanna eru þessi út-
geislunarefni höfð mikið um
hönd. Þessara einkenna er þeg-
ar farið að gæta á vestrænum
læknum, sem fengist hafa við
radium.
í japanskri lyfjabúð eru krús-
irnar færri en í evrópiskum
lyfjabúðum. En innihald hinna
austurlenzku lyfjakrúsa er þeim
mun sterkara og áhrifameira en
en þau lyf, sem við eigum að
venjast.
Hin rómuðu “patent”-meðul
Englendinga, sem lækna jafnt
líkþorn, magaveiki og krabba-
mein, svipar nokkuð til austur-
lenzkra lyfja — en austurlenzk
lækningalyf eru mest megnis
hægðameðul, sett saman úr deyf-
andi og kvalastillandi efnum.
Eins og mönnum er hulinn
uppruni mannlegra dygða og sið-
gæða þessa synduga heims, vita
þeir líka fátt eitt um uppruna
sjúkdóma sinna — og sennilega
eru flestir þeirra ímyndun ein.
Til að vinna bug á slíkum, í-
mynduðum kvillum gera “pat-
ent”-meðulin alla jafna mest
gagn og það eru þau sem mesta
aðdáun hljóta. Auglýsingar
slíkra meðala annast neytend-
urnir sjálfir, framleiðendunuro
að kostnaðarlausu.
Þó margar kínverskar og jap-
anskar konur fái nú mentað upp-
eldi, þá trúa þær eigi að síður á
seiðmagn lyfjanna og að fyrir
tilverknað þeirra fæði þær
hrausta mannvænlega syni, svo
þær haldi ástum manna sinna.
Eru því lífsveigar og ástamjöður
þar stöðugt í miklu áliti meðal
kvenþ j óðarinnar.
Hið andlega viðhorf austurs-
ins er okkur mjög fjarlægt. Þó
Evrópumaður umgangist kín-
verska eða japanska stúlku ár-
um saman getur hann aldrei
krufið til mergjar þetta órann-
sakanlega hyldýpi, /bem augu
hennar búa yfir. f okkar með-
vitund eru augu þeirra kvenna
eins og óendanleg veröld tilfinn-
inga og djúpsæi, sem hlaðist
hafa þar á einn stað kynslóð
fram af kynslóð, öld eftir öld, ef
til vill um miljónir ára aftur í
tímann.
Og að ætla að sannfæra Aust-
urlandabúann um gildi nýrrar
trúarstefnu er eins og að stang-
ast við stuðlaberg! Hann tekur
þó ekki illa í neitt, og afneitar
engu. Heldur segir hann, ósköp
hæversklega: Þetta er fögur
kenning, ljómandi falleg trú, sem
eg gæti vel aðhylst. En fyndist
yður hin nýja trú þess virði, að
eg ætti að varpa frá mér trúai-
vissu minni á gildi hinnar gömlu-
þjóðgrónu trúar.
Hverju á að svara slíkri spurn-
ingu? Að áliti kristins manns er
austræn sálna- og skurðgoða-
dýrkun ekkert annað en villutrú.
En Austurlandabúinn setur sína
“villu”Jtr<ú ofar öllum öðrum
trúarskoðunum, enda þótt hann
viðurkenni fúslega ágæti annara
trúarbragða. Lífsskoðanir þess-
ara tveggja manna eru svo ólík-
ar — að þeir eiga enga samleið.
Eða eins og Kipling orðar það:
Austíið er í austur og vestrið
í vestur, og austrið og vestrið
mætast hvergi.—Lesb. Mbl.
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Blrgðlr: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrlfstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
Þjónustumenn páfa öfluðu sér
einu sinni mikils fjár á þann
hátt að selja fólki gömul föt af
páfa.
Dag nokkurn kom tigin kona
frá Frakklandi í heimsókn til
Píusar IX., kastaði sér fyrir fæt-
ur hans og lét með mörgum fögr-
um orðum í ljóg þaklæti sitt yfir
því, að það væri honum að
þakka, að henni hefði batnað
slæm gigt.
— Nú, hvernig víkur því við?
spurði páfi.
— Jú, sagði konan. Eg náði í
sokk, sem yðar hátign hefir átt.
Eg fór í sokkinn á gigtveika fót-
inn og batnaði strax.
—Kona góð, sagði páfinn og
gat ekki varist brosi. Þér hafið
vissulega verið heppin. Yður
hefir batnað af því að vera í
einum sokk. En eg, sem geng
altaf í tvennum sokkum, hefi
ekki getað losnað við mína gigt.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................k. J. Abrahamson
•frnes............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg...............................q.. o. Einarsson
Baldur.................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.......................................Björn Þórðarson
Belmont.................................... j oieson
Bredenbury.............................H. O. Loptsson
Brown.............................. Thorst. J. Gíslason
Churchbndge.........................Magnús Hinriksson
Cypress River.......................... Pán Anderson
..................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man....................k. J. Abrahamson
®^ros................................. S. S. Anderson
Elriksdale.............................ólafur Hallsson
Foam Lake...............................John Janusson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir...............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................q. J. Oleson
Hayland..............................sig. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa................................Gestur S. Vídal
H9ve.................................Andrés Skagfeld
Húsavík................................John Kernested
Innisfail..........................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar...............................s. S. Anderaon
Keewatin............................................Sigm. Björnsson
Kristnes................................Rósm. Árnason
Langruth.................................b. Eyjólfsson
Reslie..............................................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville........................Hannes J. Húnfjörð
Mozart.................................s. S. Anderson
Oak Point.............................Andrés Skagfeld
Oakview.............................Sigurður Sigfússon
Otto.............................................Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer...........................Hannes J. Húnf jörð
Reykjavík.................................Árni Pálsson
Riverton.........................................Björn Hjörleifsson
Selkirk............................... G. M. Jóhansson
Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock.......................................Fred Snædal
Stony Hill.......................................Björn Hördal
Swan River...........................Halldór Egilsson
Tantallon.........................................Guðm. ólafsson
Thornhill..........................Thorst. J. Gíslason
Víðir............................................,...Aug. Einarsson
Vancouver..............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................................Ingi Anderson
Winnipeg Beach.....................................John Kernested
Wynyard.................................S. S. Anderson
I BANDARIKJUNUM:
Akra..................................Jón K. Einarsson
Bantry...................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash.................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier..............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg...................................Jacob Hall
Garðar.................................S. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel............................ „..J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton..................................F. G. Vatnsdal
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.^....John S. Laxdal, 736 E 24th SL
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold................................Jón K. Einarsson
Upham.................................E. J. BreiðfJörO
The Viking Press Limited
Winnipeg; Manitoba