Heimskringla - 08.12.1937, Síða 7
WINNIPEG, 8. DES. 1987
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
TIL SIGURHÆÐA
Frh. frá 6. bls.
tryggja mig,” sagði hann. “Guð einn veit hva
kom þér á minn fund aftur.”
Hún hallaði sér upp að honum og varpaði
öndu. “Já, hann veit það”, mælti hún blíðlega,
“ekki síður en hitt, af hverju þú hvarfst inn í
kofann til að deyja einsamall. Sama hvötin
réði fyrir okkur báðum. Skilurðu ekki?”
“Jú, eg skil,” sagði hann og vafði hana að
sér.
Þau tóku upp tal sitt og von bráðar barst
það að Kieff. “Hann var sá eini maður, sem eg
var hræddur við, í víðri veröld. Hann hafði
unda'lega og annarlega krafta, sem eg gat ekki
tekist á við. Og sá viðsjálasti maður og ó-
prúttnasti. Þegar hann reyndi að læsa klónum
í þig, þá verð eg að segja eins og er, að eg varð
skelkaður. Hann var búinn að flækja svo
marga í óláns netið.”
“Og þú heldur að Guy hefði farið öðru vísi,
ef hann hefði ekki sótt ólánið til hans?” innti
Sylvía.
“Það held eg. Eg hugsa að mér hefði tekist
að ráða við hann og halda honum á réttri leið,
ef Kieff hefði ekki verið. Hann og Piet Vrei-
boom voru þá á sama bandi og drógu piltinn
niður báðir saman. Eg gat ekkert aðgert og
Kelly ekki heldur.”
En er hann nefndi það nafn, mintist Sylvía
nokkurs, sem hún mátti ekki draga undan.
“Burke, veiztu að hann á hjá mér peninga?”
Hún hikaði, var sárt um að segja eins og var,
og láta hann vita, jafnvel nú, það sem hún
hafði lagt svo mikið í sölurnar til að hylja.
Þá svaraði hann: “Nei. Þú þarft ekki að
minnast á það. Eg veit það alt saman. Eg
lagði til peningana.”
“Burke!” Hún starfði á hann alveg hissa.
“Þú — vissir!”
Hann kinkaði kolli. “Eg gat mér til, setti
Donovan út til að gera það sem þurfti. Þú
varst svo illa haldin útaf peninga hvarfinu, svo
eitthvað varð að gera.”
“ó Burke!” sagði hún aftur.
“Guy sagði mér upp alla sögu — í morg-
un, aumur og iðrunarfullur. Svona nú! Við
skulum gleyma því öllu saman. Lofaðu mér
því að þú skulir alveg gleyma þeim leiðindum
öllum saman!” Hann talaði fljótt, rétt álíka og
Guy var vanur. Hún sá að hann tók sér þetta
nokkuð nærri. “Eg var ljóti púkinn að tor-
tryggja þig nokkurntíma. Eg vil eiga það alveg
víst, að þú hugsir aldrei um það framar —
látir sem það hafi aldrei fyrir komið og leiðir
aldrei hug þinn að því.”
Hann var alvörugefinn og augnasvipurinn
svo einlægur, að henni komu tár í augu. “Eg
skal muna aðeins eitt,” sagði hún. “Og það er
— hvað þú hefir verið góður við mig, frá byrjun
til enda.”
Hann gaf hljóð af sér til mótmæla, en hún
hélt áfram. “Því skal eg aldrei gleyma, því að
engu hefi eg mætt á lífsleiðinni eins stór-
mannlegu og gæzka þín við mig. Og segðu mér
nú, Burke, því eg má til að fá að vita það, erum
við orðin félaus?”
Hann leit við henni. “Af hverju datt þér
það í hug?”
Hún roðnaði. Eg veit ekki. Eg hefi oft
hugsað um það upp á síðkastið. Það er sama,”
og hér leit hún djarflega við honum, “eg á með
að hugsa um það, er ekki svo? Við erum fé-
lagar.”
“Þú átt með að gera hvað sem þér þykir
gott,” svaraði hann. “Eg er ekki alveg ruddur,
en ekki langt frá því samt. Það er ekki mikið
eftir.”
Hún tók fast um hendur hans, ótrauð og
kjarkmikil sem í fyrstu. “Það gerir ekkert til,
félagi! Við skulum rétta við,” sagði hún. Okk-
ar samtök eru traust og fyrirtækið svikalaust.”
Hann faðmaði hana að sér og sagði: “Bless-
uð kjarkmikla stúlkan mín!”
Bill Merston kom, einn svertinginn var
sendur eftir honum, og það sama kveld var Guy
jarðsettur hjá höfðanum, og þar var glitrandi
blómabreiða og grængresi eftir fáeina daga, svo
langt sem augað eygði. Þá var sól að setjast en
loftið ljómaði af gulum lit og ljósrauðum og
perlugráum. Sú dýrðlega fegurð snart hjarta
Sylvíu. Merston fór með jarðsetningar for-
mála eftir siðabókinni, einfaldlega og einlæg-
lega, og henni þótti sem eftirsjá og harmur
ætti alls ekki við. Þau Burke héldust í hendur
og voru yfir jarðneska hluti hafin. Þá kom
enn að henni sú fagnaðar vissa að Guy væri
hólpinn. Líkt og orð hans hefðu ræzt, að hann
hafði öllu gleymt og byrjað að nýju.
Merston mátti ekki vera nóttina og leit
fast á Sylvíu þegar hann kvaddi. Hún rétti
honum hendina brosandi. “Eg bið kærlega að
heilsa Matthildi!” sagði hún. “Skilaðu til
hennar að eg komi bráðum að sjá hana.”
“Ekki öðru?” innti hann.
Hún kinkaði kolli. “Nei, ekki öðru. Jú —
einu til. Skilaðu til hennar að eg hafi fundið
réttu hlutföllin á endanum. Hún veit hvað eg á
við — eða ef ekki, þá skal eg færa henni for-
skriftina, þegar eg kem næst.”
“Hvaða blanda er það ?” Hann var forvit-
inn eins og karlmönnum er lagið. “Súr til að
láta í garðamat?” sagði hann og gretti sig.
Hún sneri sér undan, rjóð í framan. “Nei.
Það er hlutur sem heitir sæla. Gleymdu ekki að
skila því. Og farðu nú vel.”
“í guðs bænum komdu þá sem fyrst!” sagði
Merston og steig á bak.
Þar næst leiddust þau upp brekkurnar og
léttu ekki, þó bratt væri, fyr en þau stóðu á
hæsta kollinum. Þá var dagsljósið að hverfa og
stjörnur farnar að tindra á dimmbláma himins.
Upp til þeirra lagði niðinn af straumvatninu —
hátíðlegan hljóm sem virtist ná um víða veröld.
Sylvía horfði norður þangað sem dökkblá fjöll
gnæfðu upp af sléttunni. Þá sagði Burke:
“Við skulum komast yfir þau áður en lýk-
ur.”
Hún hélt fast um hönd hans og svaraði:
“Mig gildir einu hvert leiðir okkar liggja, ef við
erum saman.”
Hann dró lítinn böggul upp úr vasa sínum
og rétti henni. “Þetta átti eg að færa þér.”
“Burke! Hvað er það ?”
“Guy bað mig færa þér það frá sér, með
ástarkveðju. Eg lofaði að skila því í kveld.
Gáðu hvað það er.”
Hún' tók við og rakti umbúðirnar utanaf,
dálítið skjálfhent. “Ó, Burke!”
f lófa hennar lá gimsteinninn og glitraði
sem logandi eldur. “Gimsteinninn!” sagði hún
í hálfum hljóðum.
“Já, gimsteinninn,” sagði Burke. “Hann
fékk mér hann rétt áður en hann skildi við, og
bað mig skila til þín að eiga hann ekki, heldur
selja. ‘Hún á að selja hann,’ voru hans orð,
“Eg vann hann fyrir hana og hún á að njóta
hans’.”
“En í rauninni er hann þín eign,” sagði
Sylvía.
“Nei, þín”, svaraði Burke staðfastur. —
“Samt held eg hann hafi séð rétt, að þér sé
hentast að selja hann. Piet Vreiboom og Hoff-
steins hákarlar vilja fegnir ná í hann, en vita
ekki hvar hann er niðurkominn. Donovan fór
kænlega að fela ferilinn. En þeir eru vissir með
að komast að því. Þetta er ekki einn af þeim
munum sem geyma skal.”
Hún sneri sér að honum og segir: “Eig þú
hann félagi! Hann var unninn fyrir þína pen-
inga og enginn er betur að honum kominn en
þú.” — “Þút átt hann!” svaraði hann.
“Jæja,” sagði hún brosandi, ef eg á hann,
þá gef eg þér hann, og ef þú átt hann, á eg hann
með þér. Við erum félagar, erum við ekki? Er
ekki það sem Guy ætlaðist til?”
Hann svaraði brosandi: “Nú — kanske.”
Hún stakk gimsteininum í lófa hans og
krepti fingur hans að.
“Hér er um ekkert kannske að gera. Við
skulum koma gimsteininum til Donovans og fá
hann, til að selja gripinn. Og að því búnu—”
“Já?” sagði hann.
Hún stakk hendinni undir arm hans. —
“Mundi þér þykja mjög leitt, félagi, að fylgja
mér til Englands — rétt snögga ferð? Mig
langar að sjá hann pabba minn og segja honum
hve sæl eg er. Honum mundi líka að fá það að
vita.”
“Það skal eg glaður gera,” sagði hann.
Hún þrýsti að handlegg hans og bað hanr
hafa þökk fyrir. “Og svo komum við hingað
aftur. Eg vil hverfa hingað aftur, Burke. Hér
er ekki framandi manna land lengur Eg á hér
heima og rétt hér er hátindur veraldar. Á eg
að segja þér hvernig við fórum að ná hingað?”
Hann lagði arminn utan um hana.
Hún leit upp á hann og sagði: “Með trún-
aði og með elsku, yndið mitt. önnur leið er ekki
til! Svo kendir þú mér.”
Hann kysti hana heitum kossi, hrærður á
sál og líkama. “Eg elska þig af öllu hjarta,”
sagði hann. “Guð einn veit hvað mér þykir vænt
um þig!” Hún hló við lágt og blítt og hjúfrað-
ist að honum. “Veiztu það félagi,” sagði hún,
“að þetta vildi eg heyra þig segja? Mig hefir
langað og langað til þess svo fjarska lengi.
Og á þeirri stund voru þau nær stjörnun-
um sem tindruðu upp yfir þeim, heldur en ver-
öldinni sem lá fyrir fótum þeirra.
Fyrir þá sem hafa haft sögu þessarar not,
birtist hér á ný formáli þeirrar konu sem samið
hefir söguna, í þýðingu Dr. Sig. Júl. Jóhannes-
sonar:
“Þótt árunum fjölgi þig ávalt eg man”
Er hamingjutindinum hæsta þú nærð
og himnarnir blasa þér við,
þar skelfa ekki stormar né hríðar né hret,
—Þú hvílist við unað og frið.
Hvort verður það auður og virðing og frægð,
Sem veittu þér sigrandi dáð?
Nei; ástin og trúin: Þær lýstu mér leið
til lífsins — og skaparans náð.
ÆFEMINNING
- MAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusimi: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finnl á skrifstofu kl. 10—l
f. h. og 2—6 e. h.
Heimill: 46 Alloway Ave.
Talsimi: 33 15S
María Sesselja Hannesson
Hún dó að heimili sínu 5 mílur
norðaustur frá bænum Lang- J
ruth, Man., 8. júlí 1937. Bana-
mein hennar var innvortis mein-
semd er hún hafði þjáðst af í
meira en ár.
Hún var fædd 15- febr. 1887
og var því nokkra mánuði yfir
fimtugt er hún lézt. Hin látna
fæddist að Tungufelli í Lunda-
reykjadal, Borgarfjarðarsýslu.—
Foreldrar hennar voru Ólafur
Þorleifsson frá Svartagili í Þing-
vallasveit, (nú dáin fyrir liðug-
um þremur árum), og kona hans
Sesselja Guðbjörg Guðnadótitr
frá Haga í Grímnesi, Árnes-
sýslu, (nú 86 ára, er til heimilis
hjá syni sínum Guðna og tengda-
dóttur Eyjólínu).
Þegar hin látna var þriggja
mánaða fluttu foreldrar hennar
til Ameríku, en af því að í þá
daga dóu svo mörg börn á leið-
inni yfir hafið, var henni komið
fyrir hjá vinfólki, þeim hjónum
Halldóri Daníelssyni, (fyrrum
Alþingismanns, er bjó að Lang-
holti í Bæjarsveit í Borgarfirði)
og konu hans Marínu Bjarna-
dóttur. Ólst hún upp hjá þeim
hjónum þar til að 13 ára fluttist
hún með þeim til Ameríku og
fór þá til foreldra sinna er bú-
sett voru á Big Point, fimm míl-
ur austur þaðan sem nú er Lang-
ruth. Sesselja sál. stundaði nám
á Big Point alþýðuskóla, og þrátt
fyrir það að hún kunni ekki orð
í hérlendu máli þegar hingað
kom, fleygði henni svo fram með
skólanám að eftir tæp 3 ár út-
skrifaðist hún úr 8. bekk. Þar
næst gekk hún á æðri skóla í
Winnipeg og fullnumaðist svo að
hljóta kennaraleyfi.
Kendi hún svo alþýðuskóla í
nokkur ár, þar til haustið 1912.
giftist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum, Hallgrími Árnar
syni Hannesson, sem nú býr um
5 mílur austur af Langruth. —
Hallgrímur er sonur þeirra mætu
hjóna Árna Hannessonar (nú
dáin) og konu hans Guðrúnu
Hallgrímsdóttir, frá Björnúlfs-
stöðum í Húntvatnssýslu.
Þau Sesselja sál. og Hallgrím-
ur lifðu í ánægjulegu og frið-
sömu hjónabandi í nærri 25 ár.
Á þeim tíma eignuðust þau 7
börn sem öll eru á lífi, sem nú
skal telja:
Árni Wilfred, giftur Irene
Branford, af hérlendum ættum,
til heimilis hjá föður sínum.
Arthur Marino, ógiftur, einnig
til heimilis hjá föður sínum.
Guðbjörg Marjory, gift Pálma
Johnson, búsett í Big Point bygð.
Tómás Ingimar, ógiftur, til
heimilis í föðurhúsum.
Jacob F. Bjaniason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Momng
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annafit allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
margaret dalman
tbacher OF PIANO
*S4 BANNINO ST
Phone: 26 420
Winnifred Guðrún, ógift, Dor-
othy og ólafur Leonard, öll í
föðurhúsum. öll eru börnin
mannvænleg í fylsta máta.
Sessleja sál. var fullkomlega
meðalkona að hæð, og samsvar-
andi í byggirigarlagi. Hún var
fríð sýnum, gáfuleg, einarðleg og
skemtileg mjög í framkomu. —
Glaðlynd var hún, skynsöm mjög
og ræðin.
Mikin þátt átti hún í félags-
skap bygðarinnar, bæði í fram-
kvæmdarnefndum og á skemti-
skrá. Er hennar því saknað eigi
all-lítið af þeim er í samverkum
voru í félagsskap bygðarinnar.
Hún var ástrík og umhyggju-
söm móðir og stundaði vel sín
heimilisstörf.
Hún var framúrskarandi
myndarleg í verkum, víðlesin og
fróð um flest er almenning varð-
ar, eðlileg afleiðing af því and-
rúmslofti er hún naut á æsku-
árum þar sem þjóðarmál voru
rædd iðulega, og fróðlegar bæk-
ur á heimilinu nógar.
Hana syrgja ástríkur eigin-
maður, börnin, sem fyr eru upp-
talin og systkini þrjú, Hólmfríð-
ur (Mrs. S. B. Olson) í Lang-
ruth, Man., Guðni í Langruth,
Man., og Anna (Mrs. Geo. Lamb)
í Winnipeg, Man., og fjöldi af
vinum og vandamönnum.
Æfin var alt of stutt. Það
erfiðasta má segja var afstaðið,
og framundan virtist blasa frið-
samur og ánægjúlegur seinni
hluti æfi dagsins, er hún var
kölluð burt. Hún var jarðsungin
9. júlí frá lútersku kirkjunni í
Langruth, og hvílir í Langruth
grafreit. Séra Carl Olson jarð-
söng og flutti hjartnæma og til-
finningaríka ræðu, eins og hon-
um er lagið.
Guð gefi henni þæga vistar-
veru í sínu dýrðlega ríki, í sam-
ræmi við það sem hún svo fast-
lega trúði.
S. B. O.
DÓMURINN
f fletinu var furðu heitt—
Fjandinn stóð með rökinn!
Þessi átti ekki neitt
Annað en þrælatökinn.
Jak. J. Norman
Er hamingjutindinum hefir þú náð
og himininn nánar þér færst
og einstjklings draumarnir horfið sem hjóm
en heimsdraumar skapast og lærst.
Hvort mun hún þá heilla þig móðir vor jörð
og mannlífið jarðbundna hér?
Nei, upp mun eg líta og leita að sál,
sem lofaði að bíða eftir mér.
Því flestum, sem hamingju hátindum ná
finst heimsdýrðin lítilsverð öll
hjá rimunum sterku sem stigu þeir á
í stiganum upp á þau fjöll;
og mér finst sem auður og metorð og frægð
sé mönnunum hvikult og valt: 1
í trúnni og ástinni gæfa þeim gefst,
með guðskrafti sigra þeir alt.
G. S. THORVALDSON
B.A.. LL.B.
Lög/reedingur
702 Confederatlon Llfe Bldg
Talsíml 97 024
w. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
tSLENZKlR LÖGFRÆÐINOAR
á öðru gólfl
325 Main Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnlg skrifatofur að
°e Gimli og eru þar
að hJtta, fyrsta mlðvlkudag f
hverjum mánuði. ^
M. HJALTASON, M.D.
ELMENNAR LÆKNINOAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lsetur ÚU meðöl i viðlögum
ViStalstímar kl. 2_4 «. h
7—8 að kveldinu
Sími 80 857 666 vlctor gt
, A. S. BARDAL
selur líkklstur og annaat um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besU —
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnisvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE 8T.
Phone: 66 607 WINNIPEO
Dr. S. J. Johannes.ion
218 Sherburn Street
Talsími 30 877
VlOtalstimi kl. 3—5 e. h.
Dr. D. C. M. HALLSON
Physiclan and Surg'eon
264 Hargrave (opp. Eaton’s)
Phone 22 775
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 04 054
Presh Cut Flowers Daliy
Plants in Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
lcelandlc spoken
thl watch shop
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watcheo
Marriage Lic.enses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
ISLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Wlnnlpeg
Gegnt pósthúslnu
Slmi: 9« 21» Heimilit: 33 3U
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental. Insurance and Financial
Agentt
Slmi: 94 221
600 PARIS BLDQ.—Wlnnlpeg
Gunnar Erlendsson
Pianokennari
Kenslustofa: 701 Victor St.
Sími 89 535
Orric* Phoni Res. Phoiu
87 293 72 40»
Dr. L. A. Sigurdson
109 MKDICAL ART8 BUILDINQ
Omc* Hoprs :
13 - 1
4 P.M. - 6 P.M.
AMD BY APPOINTMBNT