Heimskringla - 06.04.1938, Blaðsíða 1
THE PAR-T-DRINK
mt
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
r*i
AVENUE
Dyers & Cleaners
Fatahreinsun vor er þess
verð að reyna hana.
Hvergi betri.
SÍMI 33 422
658 St. Matthews
LII. ÁRGANGUR
WINNIPEXx, MHDVIKUDAGINN. 6. APRfL 1938
NÚMER 27.
HELZTU FRETTIR
Hitler tekur ofan!
Hitler hefir skipað svo fyrir,
að Þjóðverjar í Bandaríkjunum
skuli ekki gerast félagar í Naz-
istfélögum. Sendiherra Þjóð-
verja í Washington, tilkynti
Bandaríkjastjórn þessa fyrir-
skipun Hitlers nýlega.
Roosevelt græðir
á skrifum sínum
Eins og kunnugt er, hefir
Roosevelt forseti skrifað heil-
mikið undanfarna mánuði í blöð
og tímarit. Er sagt að honum sé
goldið fyrir það af einu félagi
(United Features) um $30,000.
Fyrir orðið í greinum sínum í
Liberty, eru honum greiddir $3.
Var nú ekki minna úr þessum
gróða gert en ástæða var til, svo
Rossevelt þótti vissara að lýsa
því yfir að þessum ágóða yrði
varið til ýmsra félagsmála al-
menningi í hag. Eitthvað af á-
góðanum hlýtur að fara til Sam
Rosenman dómara, sem aðstoð-
að hefir Roosevelt við ritstarfið.
En hvað sem um það er, halda
kunnugir því fram, að Roosevelt
muni ekki veit^ af fé þessu
sjálfum, því það sé oft lítið eftir
af launum hans þegar öllum
þjóðfélagskvöðunum séfullnægt.
Búðarhringarnir berjast
Buðarhringarnir (chain stores)
í Bandaríkjunum þykjast sjá
sína sæng út breidda með breyt-
ingu, sem stjórnin er að gera á
Patman lögunum svonefndu og
sem ef samþykt verður sem lík-
legt er, gerir hringunum ókleift
að færa kvíar sínar út fyrir
fylkið, sem þær telja sig eiga
heima í. Skatturinn sem á við-
skiftin má leggja í framandi
fylki, er svo hár, að hann er sama
og verzlunarbann. Hringarnir
hafa verið skæðir með að setja
vöruverð niður og hafa oft gert
bændum ógreiða með því, sem
ekki hafa getað kept við þeirra
stórframleiðslu á búnaðarvörum.
Til þess að berjast á móti sam-
þykt þessara laga stjórnarinnar,
ætla hringarnir að taka sig sam-
an og setja «f stað heljarmikmn
auglýsinga áróður með kjörorð-
um á þessa leið: “Meira fyrir
peninga yðar."
Leynibruggun víns
Víngerðarfélag í Bandaríkjun-
um eru sífelt að krefjast þess af
stjórninni, að hún uppræti leyni-
bruggun á víni. Kveður svo mik-
ið að leynibrugginu, að það er
talið að nema 60 miljón gollónum
á ári. En framleiðsla víngerða-
félaganna, sem leyfi hafa og
skatt greiða auðvitað, nemur 100
miljón gallónum. Það skortir
ekki mjög mikið á að leyni-
bruggararnir selji eins mikið og
þeir sem víngerðarleyfi hafa. —
Stjórnin viðurkennir sjálf, að
leynibruggunin nemi 40 miljón-
um. En svo ber nú þess að gæta,
að stjórnin er að hækka skattinn
á víngerðinni um 25 cents á gall-
ónuna. Til þes að mótmæla
henni, eru þeir að benda á Ieyni-
bruggið í og með og telja að með
hækkuðum skatti fari öll vín-
gerðin í hendur lögbrjótanna.
Hitler fer til ítalíu í maí
Því hefir verið opinberlega
lýst yfir í Berlín, að Hitler muni
fara í heimsókn sína til ítalíu í
fyrra hluta maí-mánaðar. Á
meðan hann dvelur í Róm, mun
hann gista í Quirinal-höllinni, en
þar hefir engin ókonungborinn
gestur áður verið látinn gista.
ÁLIT MITT Á ÞINGINU
Þingið er rofið.
Manni verður fyrst á að spyrja
hverju hefir nú verið komið til
leiðar? Og maður neyðist til að
svara — afar litlu.
Aðal atriðið var að Winnipeg-
bæjarstjórnin var koniin í svo
mikla peningaþröng að hún vissi
ekki hvert hún átti að snúa sér
og lagði þessvegna mál-sitt fyrir
þingið. En því miður var í tómt
að grípa, því eg kalla það ekki
úrlausn þó að bæjarstjórnin öðl-
aðist rétt til að leggja þyngri
skatt á bæjarfólk, sem nú þegar
að áliti Graham Towers, forseta
Canada-bankans, hefir of þunga
byrði að bera.
Þingmennirnir stungu upp á
ýmsum nýjum sköttum. En það
var ekki fyr búið að kunngera
þær uppástungur, en hópur
manna — einn daginn 600 —
lögðu leið sína til þinghússins
til að andæfa þeim.
Mér datt oft í hug hvort þetta
fólk hugsaði nokkurntíma um
peningamálin, svo sem hvað pen-
ingaringar væru; hvar þeir ættu
uppruna sinn; hvernig þeir kæm-
ust í umferð; hvort það væri
nokkur regla á því hvað miklir
peningar kæmust í umferð; og
^hver eða hverjir réðu þeirri upp-
hæð. Mér fanst það sem þetta
| fólk sagði' bera mjög lítinn vott
um skilning á þessum málum.
En vel þektur kaupmaður hér
í bænum sem var að hafa á móti
i
ihækkun á verzlunarökattinum,
sagði oft svo vandræðalega: —
“There must be something
wrong.” Helst gat hann þess til
að of miklum peningum væri
varið til mentamála, og að fólk
væri ekki látið svelta ef það gæti
ekki' unnið fyrir sér. ^
Annað mál sem miklum tíma
var eytt í að ræða, var raunsókn
út af stjórn á geðveikrahælinu í
Selkirk. Sú rannsókn var hafin
af fyrverandi dómara Lewis St.
George Stubbs. Margt var talið
til sem orsakir að óánægju um
meðferð á vinnufólki og sjúkl-
ingum. En að mínu áliti var
hægt að rekja næstum alla þá
óánægju til einnar orsakar >—
peningaskorts. Sjö manna néfnd
var skipuð til að rannsaka málið
frekar.
| Eg efast ekki um að þing-
mennirnir yfirleitt séu áfram
um að • leysa úr erfiðleik-
um almennings eftir skilning og
eftir mætti. En því miður er í
of mörgum tilfellum skilningur
sljógur og máttur lítill.
| Það eru peningamálin sem
mest áhrif hafa á velferð al-
mennings. Mér finst að það sé
'skylda allra þeirra sem nokkra
'ábyrgð hafa á stjórn landsins,
|að skilja þau mál til hlítar. En
; það er svo langt frá að svo sé.
iÞað er ekki nema fyrir mjög
skömmu að almenningur eða
kjörnir fulltrúar þess, hugsuðu
nokkurn skapaðan hlut um þau
mál. Sumir hafa jafnvel lýst
undrun og tortryggni þegar eg
segist vera að “nema social
credit. Það var ekki siður að
nema neitt viðvíkjandi peninga-
málum. Það var hlutfall bank-
anna að hugsa um þau. Og
þegar maður íhugar það, að nú-
verandi forsætisráðherranum í
Canada, Mr. King, og hinum fyr-
verandi forsætisráðherra, Mr.
Bennett, kemur ekki saman um
eitt aðal atriðið í stefnu bank-
anna — nefnilega það, hvort það
sé undir bönkunum komið hvað
miklir peningar komast í um-
ferð — þá er varla við því að
búast að margir af okkar Mani-
toba þingmönnum hafi aflað sér
mikinn skilning á þeim málum,
enda er ekki svo.
Tímarnir eru að breytast, og
löggjöf, sérstaklega viðvíkjandi
peningamálum, verður að breyt-
ast með ef vel á að fara. En
eins og oft kemur fyrir á slíkum
tímamótum, eru of margir sem
sætta sig við að lifa og hugsa
algerlega í liðna tímanum. Þeir
geta ekki séð eða vilja ekki sjá
framgang þess nýja. Þeir eru
eins og þeir menn sem vildu
aftra Christopher Columbus frá
að leggja út á hafið, þegar hann
ýtti úr vör og fann Vesturheim,
vegna þess að þeir héldu að hann
dytti út af röndinni á flatri jorð,
og eins og þeir sem ráku Louis
Pasteur í útlegð fyrir að koma
upp með nýjar hugmyndir í
læknisfræði; og eins og allir sem
eiga bágt með að sjá fram í tím-
ann.
Ef skilningur á málinu væri til
hjá almenningi og ’ fulltrúum
þess, þá yrði ekki langt að bíða
þangað til væri hægt að laga svo
til að þessi peningaskortur
standi ekki alstaðar í vegi þó nóg
sé til af öllu því sem kaupa
mætti fyrir peningana,- En nú
sem stendur, eftir túlkun yfir-
réttarins í Alta. lögunum, hefir
fylkið lítið áð segja yfir peninga-
málum og verður að vera upp á
miskun Ottawa stjórnarinnar
komið.
En hvort sem það er Ottawa-
stjórnin eða fylkisstjórnin sem
hefir ráð yfir peningamálum, þá
ætti það samt að vera hlutverk
fylkisstjórnarinnar að miða pen-
inga upphæð sem er í umferð
við framleiðsluna í fylkinu —
svo menn geti haft skifti hvor
við annan — bæjarmaðurinn við
bóndann — fylki við fylki — og
sjá um að slík viðskifti séu ekki
hindruð fyrir peningaskort.
Undir núverandi fyrirkomu-
lagi getur hvorug stjórnin komið
meiri peningum í umferð nema
með því að hleypa landinu í ó-
borganlegar skuldir. Það ætti
að vera svo að stjórnin sjálf
hefði ráð á að gefa út peninga án
þess að hleypa sér í skuld, og
miða þá við framleiðsluna.
Vegna þess að þetta er ekki
gert, sitja menn á þingum svo
mánuðum skiftir á ári hverj u, án
þess að bæta hag landsins að
nokkrum mun. Og svo mun þa<)
ganga, þangað til fólkið sjálft í
gegnum fulltrúa sína á þingun-
um, hefir ráð yfir stefnu bank-
anna.
Það var skemtilegt með köfl-
um að sitja á þinginu. En það
reyndi á þolinmæðina að vita að
þörfin var svo mikil en kraft-
arnir svo litlir, margt smávegis
var rætt og gert. En varla er
hægt að segja, að það hafi verið
hreyft við' því máli sem mest
snertir velferð almennings.
Salóme Halldórsson
Sjónleikurinn (Jósafat), sem
sýridur hefir verið tvö undanfar-
in kvöld í Sambandskirkjusaln-
um, hefir verið vel sóttur og
reynst svo vinsæll, að hann mun
verða leikinn hér í þriðja sinn.
Ennfremur hafa Leikfélaginu
borist beiðnir frá Selkirk, Gimli,
Riverton og víðar um að hafa
leiksýningar á þessum stöðum.
Hvað í þessu verður gert, verður
auglýst síðar.
DUKE-FINGARD
LÆKNINGASTOFNUNIN
fyrir, séu þeir- ekki aðal orsök
sjúkdómsins.Þeir, segir hann eru
eldkveikjan, en eldiviðurinn er
í fyrri viku veittu bæði dag- langvarandi bólga í slímhimnu
blöðin hér í Winnipeg óvenju | ondunarfæranna. Taugarnar í
mikið athygli lítilli- lækninga 1 slímhimnunni særast af bólgunni
stofnun er sett var hér á lagg- svo J,ær verða of næmar fyrir
irnar á haustinu sem leið. Er öllum áhrifum og af því komi
hún nefnd The Duke-Fingard In- iandateppann. (Þetta hefir verið
halatión Glinic og er að 64 Bal-1 mar8' sannað í mörgum ritgerð-
moral Place, Winnipeg. Hún er! um 1 helztu læknatímaritum
kend við uppfinnendur þessarar |Bretlands). Hver sem hafi heil-
lækninga aðferðar, J. Duke og
David Fingard og er notuð vrð
bólgusjúkdóma í nefi, hálsi, eyr-
um, lungnapípum og lungum. —
Hugmyndin um þessa lækningar
aðferð fékk fyrst af öllum mað-
ur að nafni J. Duke. Hann var
um tíma hér í Vesturheimi en
hvarf héðan til Heildelberg í
Þýzkalandi' og fór þar að gera
tilraunir með þessa aðferð. Þang-
að kom til hans héðan frá Win-
nipeg, þar sem hann var upp-
alinn, frændi hans, David Fin-
gard og var hjá honum í nokkur
ár þangað til J. Duke andaðist.
Hélt þá Fingard verkinu áfram
og hætti ekki fyr en hann var
búinn að finna þá lyfja sam-
brigða slímhimnu í nefi, hálsi og
lungnapípum sé ekki næmur fyr-
ir áhrifum nokkurs hlutar og
fái aldrei andarteppu. En lang
bezta lækningar aðferðin við
slímhimnubólgunni og um leið
andarteppunni sé innöndunin. —
Þetta hefir sannast af fjölda-
mörgum tilfellum á Englandi,
þar sem þðssi aðferð hefir verið
notuð nú í fjögur ár, (Winnipeg
blöðin segja tvö ár, en það er
misskilningur) og sama ‘ hef ir
reyndin verið hér í Winnipeg
þannan stutta tíma sem hún
hefir hér verið notuð og það er
alveg spánýtt eins og áður var
sagt að sjá sjúklinga sem í mörg
ár hafa þjáðst af andarteppu fá
setningu er honum líkaði og véljfullan bata á fáum vikum.
til að nota hana. j Þannig vár það um mann sem
Lyfið er olíublanda búinn til heitir McMillan og vinnur fyrir
ur creosote, joði, karbolsýru,
geirlauksolíu, glycerine og við-
Free Press. Hann háfði þjáðst
af andarteppu í full fimtíu ár og
smöri. En vélin sem notfærir I hvergi fengið bata. Hann kom
það er þannig útbúin að stutt til Duke-Fingard stofnunarinnar
pípa leiðir loft inn í herbergið í haust er leið og svaf þar á nótt-
þar serp hún er, en rafmagns unni í sex vikur og var þar svo
loftskrúfa (electric fan) heldur !stöðugt í tvær vikur. Hannfékk
uppi jafnri hreyfingu þess. — fullan bata, og get eg borið vitni
Fyrst streymir loftið yfir trog um það því eg skoðaði hann fyrir
með klór-kalki (calcium chlor- j skömmu síðan og var hann þá
ide) og dregur kalkið úr því alla með heila og óskaddaða slím-
vátnsgufu. Þá er það hitað upp himnu í nefi, hálsi og lungnapíp-
í 70—80 stig Fahrenheit og um, enda laus við alla andateppu.
streymir svo síðast yfir tólf trog Þessi sjúklingur er sýndur á
með lyfinu í, og verður þá full- myndinni í Tribune.
sterkt til inntökunar þeim sem Eg gat þess í byrjun þessarar
óvanir eru en maður venst því greinar að dagblöðin hér í Wmni-
fljótt, og áhrifin fyrir þá er peg hefðu veitt þessari litlu
þeirra þarfnast eru svo mikil og (íækningastofnun óvanalega mik-
góð, að öll óþægindi er því'jg athygli síðusut viku, og er
fylgja gleymast fljótlega. jorsökin til þess sú að David Fin-
Engir verða jafn þakklátir 'gard, sá er fullkomnaði aðferð-
þessum áhrifum sem þeir er ina er hér í þeim tilgangi að
andateppu hafa, er oft og tíðum jstofna lækningastofnun þar sem
eftir margra ára þjáning fá á ^umkomulausir líðendur geta
fáum vikum fullan bata. Og er fengið ókeypis bót meina sinna.
það mikið gleðiefni að hafa nú 'Hefir hann nú þegar fengið
loksins eithvað við hendina sem jflesta peningamenn þessa bæjar
bætt getur þann leiða og þján-,til að gangast fyrir þessu með
ingarfulla kvilla. isjálfan Bracken í bróddi fylking-
Andarteppan og orsakir hennarj ar, svo það eru öll líkindi til þess,
hafa frá upphafi' vega veriið
hinn mesti leyndardómur. Alt!
fram að byrjun þessarar aldar
og jafnvel lengra, hafði ekkert
verið gert til að rannsaka orsak-
ir hennar; menn bara pústuðu
og púuðu þangað til lungu þeirra
voru öll úr lagi tognuð, en eng-
inn vissi hvers vegna. En svo
að þessari stofnun verði hér
bráðlega komið á fót. Umsókn
um lækningu má nú þegar senda
til stofnunarinnar að 64 Bal-
moral Place, og verður þeim sint
við fyrsta möguleika.
Fylkið hefir nú þegar keypt
vél til að nota við heilsuhælið í
Ninette, því þessi aðferð hefir
tóku menn eftir því að sumirjeinnig orðið til mikils góðs við
gátu ekki tekið upp kött án þess berklaveiki.
að fá andarteppu, aðrir máttu j Tribune kom fyrst með grein
ekki koma inn í hesthús eða | um þetta á miðvikudaginn 24.
nærri hestum á nokkurn hátt, án |marz, með mynd af lækningar-
þess að verða yfirkomnir af vélinni, nokkrum sjúklingum og
sama kvilla; enn aðrir fengu
andarteppu af ýmsum fæðuteg-
undum. Þá var fundið upp á því
að gera húð-prófun (skin tests)
til að finna fyrir hvaða hlutum
andarteppu sjúklingar væru
næmir (sensitive). En það var til
lítils gagns. Sumir voru næmir
fyrir svo mörgu að það hefði
helst þurft að hafa þá stöðugt í
glerkassa til að halda frá þeim
öllu því er þeim var saknæmt.
Um fjögur hundruð hlutir fund-
ust sem orsakað gátu andarteppu
á þeim sem næmir eru fyrir á-
hrifum þeirra.
Fingard neitar þessu þverlega,
segir að þó menn geti fengið
andarteppu af því að koma nærri
öðrum viðkomandi. Free Press
kom með það sama daginn eftir,
og síðan, á föstudaginn með
fregn beint frá Lundúnum, frá
fréttaritara sínum í þeirri borg,
sem segir frá hvað læknar eru
farnir að sannfærast um ágæti
þessarar aðferðar og að mót-
spyrna gegn henni fari minkandi
dag frá degi. Prentar blaðið
aftan við þessa fregn bréf sem
eg nýlega fékk frá sex nafn-
frægum enskum læknum um það
hvað vel þessi' aðferð hafi
reynst og að þeir allir væru henni
fylgjandi.
Sumt af því er maður verður
var við í sambandi við þessa að-
ferð er í mesta máta undrunar-
leysi. Tvo menn hefi eg séð við
þessa stofnun hér sem mikinn
bata hafa fengið eftir margra
ára heyrnarleysi og vakti það
mér mikla undrun sem nærri má
geta. Annað er þau áhrif hún
hefir á sinnuleysi og brjálsemi.
Þúsund vitfirringar á enskum
spítala voru rannsakaðir á vís-
indalegan hátt og kom þá í ljós
að þeir allir höfðu langvarnadi
bólgu í nasholum og batnaði yfir
fjögur hur\druð af þeim svo mik-
ið að bólgan var læknuð, og það
varð óhætt að senda þá heim til
ættingja sinna. Enn annað er
húðsjúkdómar. Lítill drengur
sem blöðin prentuðu mynd af í
fyrri víku, hafði húðsjúkdóm
sem var að batna jafnframt
andarteppunni, og sama sagan
kemur frá öðrum stofnunum.
Læknar, eins og vant er, taka
þessari aðferð mjög misjafnlega.
Þeir víðsýnni slá engu föstu en
láta reynsluna vísa sér veg. Hin-
ir þrönsýnu, sem ekkert sjá, en
aðeins trúa því er þeim áður var
kent að berjast á móti þangað
til alt er ofaní þá rekið og þeir
verða að drattast með hvort sem
þeir vilja eða ekki.
M. B. H.
FJÆR OG NÆR
þeim hlutum sem þeir eru næmir vert; svo sem bata á heymar-
Pétur Anderson, kornkaupmað-
ur og frú og dætur þeirra tvær
komu s. 1. mánudag sunnan frá
Florida, þar sem þau hafa dvalið
nokkra mánuði.
* * *
Mrs. Hallfríður Guðrún Thor-
geirsson kona Jóhanns G. Thor-
geirssonar að Ste. 8. Gordon
Apts. Winnipeg, lézt s. 1. laug-
ardag (2. apríl). Hún var 74
ára. Jarðarförin fór fram frá
Fyrstu lút. kirkju í gær. Hin
látna var eyfirsk að ætt.
* * *
Pétur Herman frá Mountain,
N. D. kom í gærkvöldi til bæjar-
ins; hann kom til að vera á leikn-
um “Jósafat”, sem sýndur var í
annað sinn í gærkvöldi í Sam-
bandskirkjusalnum við góða að-
sókn, sem á mánudagskvöldið. í
för með Mr. Herman voru þrír
eða fjórir aðrir. Hafa þá nokk-
uð yfir 20 manns komið frá
Dakota til að sjá leikinn.
* * *
Jón Hólm frá Mountain, N.
D., kom til bæjarins í gær til að
sjá leikinn Jósafat.
* * *
Gjafir til sumarheimilis
íslenzkra barna á Hnausum
Mr. og Mrs. Gísli Johnson $5.00
Mrs. Julius Sigurd,
Riverton, Man.......... 1.00
Til minnis um Mr. og Mrs.
Peter Ólafson:
Jón Pálmason, Keewatin .... 1.00
Mrs. Kristín Júlíus, bækur 1.00
Guðrún Johnson Árnes...... 1.00
Mrs. Fred Somila, Árnes, 2 ullar
teppi og 2 kodda.
Arðdr af samkomu í Wpg. 60.00
Arður af teppi' gefið af
Helgu Bjanason, Wynyard 32.00
Með innilegu þakklæti fyrir
hönd nefndarinnar,
Mrs. H. v. Renessee
* * *
Dakota-íslendingarnir, sem
hér voru á ferð fyrripart þess-
arar viku að sjá leikinn Jósafat,
gátu þess, að hin nýja þjóðrækn-
isdeild á Mountain væri að efna
til mikillar samkomu á sumar-
daginn fyrsta.
* * *
Marteinn Jónasson, póstmeist-
ari í Árborg, Man., kom til bæj-
arins í gær ásamt Mrs. Jónasson
til þess að sjá leiknin Jósafat,
eins og fleiri góðir íslendingar.