Heimskringla - 06.04.1938, Blaðsíða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. APRÍL 1938
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
fara fram á hverjum sunnu-
degi í Sambandskirkjunni eins
og hér segir:
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Sunnudagaskólinn kemur sam-
an kl. 12.15. — Fjölmennið við
guðsþjðnusturnar og sendið
börnin á sunnudagaskólann.
* * *
Vatnabygðir
Sunnud. 10. apríl: Kl. 11 f. h.:
Sunnudagaskóli.
Kl. 2 e. h.: Messa í Wynyard.
Kl. 3 e. h.: Fundur í þjóðrækn-
isdeildinni “Fjallkonunni. Undir-
búningsnefndin tilkynnir, að eft-
irfarandi spuming verði lögð
fram til umræðu: “Eru trúar-
brögð mannkyninu nauðsynleg?”
Mr. H. S. Axdal mun lesa upp,
og söngur mun að forfallalausu
verða á skemtiskránni. Allir eru
velkomnir á fundinn, hvort sem
þeir eru í félaginu eða ekkr. —
Kaffi verður drukkið í byrjun
fundar, og er fólk, samkvæmt
venju beðið að leggja til kaffi-
brauð. Það er löngun deildar-
innar að efna til mánaðarlegra
mannfunda meðal fslendinga.
Föstudaginn langa, 14. apríl,
kl. 2.30, hafa allir prestar í Wyn-
yard sameiginlega messu í ís-
lenzku kirkjunni. Séra Jakob
Jónsson prédikar. Söngflokkar
allra kirknanna syngja, undir
stjóm Mrs. Tarry. Þessi messa
fer fram á ensku.
Páskadag 17. apríl, kl. 11 f. h.
Páskasamkoma sunnudagaskól-
ans í Wynyard.
Kl. 2 e. h. Hátíðamessa í Wyn-
yard.
Annan páskadag 18. apríl, kl.
11 f. h. Páskamessa í Mozart.
J WIINIMPEG u
PHILHARMONIC
CHOIR
and Symphony Orchestra
Herbert J. Sadler, Conductor
PRESENTS
Sir Edward Elgar’s
“Kiné Olaf”
wlth
STEUART
WILSON
England’s Greatest Ldving Tenor
Assisted by
• Sigrid Olson
• Olga Irwin
• Paul Bardal
• Harold Scarth
• Edward Forrest
AUDITORIUM
MONDAY, APRIL 18th
Seats 50c—75c—$1.00
(All Keserved)
Box Office Opens
Monday April llth
Winnipeg Piano Co.
Kl. 2 e. h (M.S.T.) Páska-
messa í Leslie.
Jakob Jónsson
* * *
Messa í Sambandskirkjunni í
Árborg, Man., sunnud. 10. apríl
kl. 2 e. h.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Lundar n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Á Langruth sunnud. 17. apríl
kl. 2 e. h.
* * *
Þjóðræknisdeildin Frón heldur
fund í G. T. húsinu-7. apríl. Til
skemtana verður kappræða, er
fjórir taka þátt í. Ræðumenn
eru: Sigurður Helgason búnað-
arskólanemi, Einar Árnason, B.
Sc., Gizzur Elíasson dráttlistar-
maður, Thomas Oleson frá Glen-
boro. Tala þeir hver í 10—15
mínútur. Guðmundur Stefáns-
son og Hafsteinn Jónasson
syngja.
* * *
Páll fiskikaupm. Reykdal fór
s. 1. fimtudag suður til Chicago
og fleiri bæja syðra í viðskifta-
erindum; hann bjóst við að vera
rúma viku í burtu.
* * *
Fröken Halldóra Bjarnadóttir
lagði af stað s. 1. föstudag norð-
ur til Winnipegosis; hefir hún
þar sýningu á íslenzkum heima-
gerðum iðnaði n. k. mánudag.
* * *
Jón Steingrímsson frá Wyn-
yard, Sask., var staddur í bæn-
um um síðustu helgi. Hann kom
til að vera við jarðarför systur
sinnar Mrs. J. Thorgeirsson.
* * *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til sumarmála-samkomu,
sem undanfarin ár á sumardag-
inn fyrsta. Til samkomunnar
verður vandað. Nánar auglýst
síðar.
* * *
Guðmundur verzlunarstjóri
Einarsson frá Árborg, Man., var
staddur í bænum í gær.
* * *
Dan Líndal umboðsmaður
Ford-félagsins á Lundar, var
staddur í bænum s.l. mánud. og
sótti leikinn “Jósafat.”
* * *
Kristján Kernested frá Gimli,
Man., kom til bæjarins s. 1.
þriðjudag til þes að sjá leikinn
“Jósafat”.
* * *
Dánarfregn
S. 1. laugardagskvöld andaðist
Lára Signý Vigfúsdóttir Blöndal,
707 Home St. Hún var skori-n
upp á laugard.morguninn og þó
að alt sýndist ganga eftir vonum,
og að hafa tekist vel, dó hún að
kvöldi þess sama dags.
Hin látna var dóttir Vigfúsar
Sigurðssonar og Þóreyjar
Bjarnadóttur, fædd 12. ágúst,
1874 á Flatey á Mýrum í Aust-
ur-Skaftafellssýslu og yngst af
fimm systkinum. Hin systkinin
voru Guðrún, ekkja Sigurðar
heitins bónda Johnson á Minne-
wakan, Man., Eiríkur, sem býr í
Hornafirði á íslandi. Hann er
óvkæntur. Halbera, ekkja Sig-
urgríms heitins húsasmiðs Gísla-
1
VERIÐ VELK0MIN
Á LAUGARDAGS-SPILAKVÖLDIN
SAMBANDSKIRKJUSALNUM
Næsta spilaskemtunin verður laugardagskvöldið 9.
apríl. Byrjar á slaginu kl. 8.15.
Takið eftir: Spilaðar verða 16 hendur. Þeir sem
of seint koma, tapa þeim höndum, sem búið er að spila;
fá engan uppbótarvinning. Frá þessari reglu verður
ekki vikið.
Tvenn verðlaun verða veitt á hverju kvöldi ofurlítil
(door prize) og svo þeim sem hæstan vinning hefir í
spilinu.
Að bridge-spiluninni lokinni, verður kaffidrykkja
og ýmsar skemtanir.
Inngangseyrir 25c Byrjar á slaginu 8.15 e.h.!
Umsjón þessara skemtana hefir
deild yngri kvenna í Sambandssöfnuði
sonar í Winnipeg, Þórdís, kona
Thorsteins Guðmundssonar fs-
dal, White Rock, B. C.
Þegar Signý heitin var sex ára
að aldri mistu þau systkinin föð-
ur sinn og heimili áttu börnin
ekki sameiginlegt nema stuttan
tíma úr því. Átta ára að aldri
fór hún með móður sinni til séra
Jóns Jónssonar á Stafafelli og
dvaldi þar þangað til hún var
orðin 12 ára gömul, þá Ifór
hún að vinna fyrir sér, ög úr því
sá hún um sig.
Til þessa lands kom hún alda-
mótaárið og einu ári seinna
kvæntist hún Gísla Markússyni
Blöndal. Árið 1904 fluttu þau
hjónin til Glenboro og bjuggu
þar í fimm ár, og þó fluttu þau
til Nýja íslands og settust að í
Víðir-bygðinni og dvöldu þar
þangað til 1920, að þau fluttu
til Winnipeg og áttu þar heima
úr því.
Alls áttu þau fjögur börn en
þrjú þeirra eru nú á lífi'. Fyrsta
barnið þeirra, drengur, dó
tveggja ára gamalt, úr barna-
veiki, er þá geisaði hér.
Hin börnin eru Sigríður og
Lillian Valentine, sem báðar eiga
heima hér í Winnipeg, og Gestur
Markús, sem fyrir ellefu árum
settist að í Chicago, en á heima
nú í Burlington. Iowa, og stund-
ar þar verzlun.
Signý heitin var dugnaðar
kona að öllu leyti. Hún var góð
eiginkona, og umhyggjusöm
móðir. Hún var glaðlynd,
skemtileg og þægileg í viðmóti.
Að láti hennar er söknuður.
Útförin fór fram í gær,
þriðjudaginn 5. þ. m. kl. 3 frá
útfararstofu Thomsons á Broad-
way. Jarðað var í Brookside.
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng.
* * *
Dánarfregn
S. 1. föstudagskvöld, andaðist
á General Hospital hér í bæ, Ingi-
björg Guðmundsdóttir Good-
mundson ekkja Gunnars heitins
Goodmundson, sem dó í Calif.,
fyrir tíu árum. Hún var ættuð
úr Víðidal í Húnavatnssýslu, þar
sem hún var fædd 24. júhí 1868.
Faðir hennar var Guðmundur
Ólafsson (f. 1830) sonur séra
ólafs Guðmundssonar á Hjalta-
bakka í Húnavatnssýslu. Systir
Guðmundar var Katrín, kona
Kristins Ólafssonar og móðir sr.%
K. K. ólafssonar.
Móðir Ingibjargar var Anna
María Friðriksdóttir,.seinni kona
Guðmundar, ættuð úr Víðidal í
Húnavatnssýslu. Þau hjónin
bjuggu á Ytrahóli í Víðidal, og
þar var Ingibjörg fædd, eins og
áður er nefnt.
Alsystur hennar voru tvær,
Halldóra, sem nú er dáin, og sem
var gift Sigurði Einarssyni, þau
bjuggu lengi- í Winnipeg. Gróa*
sem býr í Wynyard, Sask., gift
Hannesi bónda Guðjónssyni.
Hálfsystur hinnar látnu voru
Skúlína Rósamunda, sem ein er
á lífi af hálfsystrum hennar. —
Hún er ekkja Snorra Sigurðsson-
ar, og býr í Grafton, N. D. Ingi-
björg Marselía var kvænt hér-
lendum manni og bjó lengi í
Helena, Montana. Soffía Han-
sína, var gift Ragúel Jóhanns-
syni í Mozart, Sask., Þórkatla
Júlíana, var gift Jóni Jóhanns-
syni í Brekku í Húnavatnssýslu,
og ólína Bergljót var gift Ás-
geiri Þórðarsyni á Fróðá í Snæ-
fellsnessýslu.
Árið Í893 kvæntist Ingibjörg
Gunnar Júlíusi heitnum Good-
mundson, og af bömum þeirra
eru fjögur nú á lífi: Guðmundur
Freeman í San Francisco, Calif.,
ólöf, gift Sumarliða Sveinsson í
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
Ste. 1 Mall Plaza
Phone 38175
Long Beach, Calif., Adelia ógift
og til heimilis í New York og
Guðrún ógift og til heimilis í
Seattle. Wash.
Til þessarar heimsálfu fluttu
þau stuttu eftir að þau giftust,
og settust að í íslenzku bygðinni
í Norður Dakota. Á meðan að
þau dvöldu þar fluttu þau á milli
bæjanna og áttu heima ýmist í
Hamilton, Mountain, Garðar,
Cavalier og Akra.
Þau komu til Winnipeg árið
1903 og bjuggu hér í næstu 17
ár og fluttu þá til Calif. Eftir
að Gunnar sál. dó þar, 1928, bjó
Ingibjörg part af tímanum hjá
Idóttur sinni Mrs. Sveinson, en
síðustu þrjú árin hér í Winnipeg.
Hún ferðaðist tvisvar til fs-
lands, 1920 og á hátíðarárinu
1930.
Á yngri árum hennar á ísland'
lærði hún ljósmæðrastörf og
stundaði hún þau bæði heima á
ættjörðinni og hér eftir að hún
flutti til þessa lands, auk margs
annars, sem hún tók að sér að
gera, og í öllu sýndi hún dugnað
og lægni og beztu hæfileika.
Hún lærði einnig handiðn og
stundaði hana lengi fram eftir og
bjó til marga fagra og verðmæta
rnuni- sem nú liggja eftir hana,
til minningar um listfengi henn-
ar.
Árið 1903 gengu þau hjónin í
Fyrsta íslenzka únítara söfnuð-
inn í Winnipeg og unnu bæði
ætíð vel og með dugnaði að mál-
um hans, og styrktu hann á
margvíslegan hátt. Og nú á
seinni árum hennar hefir Ingi-
björg heitinn sýnt Sambands-
söfnuðinum sama hlýleik og góð-
vilja sem einkendi hana á fyrri
árum.
Hún veiktist alvarlega fyrst
nokkru fyrir jól, og fór fyrst á
Grace spítalann, en seinnn a
General spítalann 14. jan. s. 1.
og var þar úr því þangað til að
hún kvaddi þetta líf I. þ. m. hátt
á 70. aldri.
útförin fór fram á múnudag
4. þ. m. frá Sambandskirkjunni
hér i bæ, að fjölda /nöigum vin-
urn viðstöddum. A S. Bardal
sí um útförina Sérr Philip M.
Pétursson jarðsöng; jarðað var
5 B’oiksfde.
* * *
Til bæjarins komu s 1. viku
þær systurnar Mrs. ólöf Sveins-
son frá Long Beach, Calif.
Adelia Goodmundson frá New
York og Guðrún Goodmundson
frá Seattle, Wash., til að vera
við útför móður sinnar, Ingi-
bjargar Goodmundson, sem fór
fram frá Sambandskirkjunni í
Winnipeg s. 1. mánudag, 4. þ. m.
* * *
Jóhannes skáld H. Húnfjörð,
kom norðan frá Árnesi í gær;
hann sótti leikinn Jósafat er í
Sambandskirkjusalnum var
sýndur í annað sinn í gærkveldi.
* * *
Sunnan frá Dakota komu 17
manns s. 1. mánudag til þess að
vera á leiknum Jósafat. Eru
nöfn þeirra þessi:
Th. Thorfinnsson, Mountain,
Mr. og Mrs. A. V. Johnson og
sonur þeirra Marino og dóttir
Norma frá Mountain, Mr. og
Mrs. H. J. Hallgrímsson, Moun-
tain, Mr. og Mrs. Roseman Gísla-
son og dóttir þeirra Margrét frá
Mountain, Mrs. B. Olgeirsson frá
Mountain, Miss Pauline Johnson
(frá San Francisco), Sigmundur
Laxdal frá Garðar, Jón Magnús-
son frá Akra, Mrs. V. Hannesson,
Mrs. H. Björnsson og Helgi
Björnsson öll frá Mountain.
* * *
Heimskringla er beðin að
vekja athygli á hljómleika sam-
komu í Auditorium í Winnipeg,
er haldih er af Winnipeg Phil-
harmónic Choir. f flokkinum
eru 160 raddir. “King Olaf”
syngur þar frægur enskur tenór-
söngvari Steuart Wilson. Við
hljómleika þessa syngja og frú
Sigríður Olson og Paul Bardal.
Söngurinn fer fram mánudag-
inn 18. apríl, byrjar kl. 8.30 e. h.
ÞJóÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir íslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
TJÖLBREYTTA SKEMTUN
heldur G. T. stúkan “Skuld”
miðvikudaginn 13. apríil kl. 8 e.
h. að I. O. G T. Hall, Sargent
Ave.
SKEMTISKRÁIN: Upplestur,
einsöngur og hljóðfærasláttur.
Einnig afar spennandi gam-
anleikur:
“Frá einni plágu til annarar”
Sjónleikur í 4 þáttum eftir dr.
Sig. Júl. Jóhannes'son.
Að endingu verða stignir
gamlir og nýir dansar.
Veitingar verða seldar á staðn-
um.
Inngangur aðeins 25c.
Allir velkomnir.
* * *
Stefán Brandson hér í bænum
liggur á Grace spítalanum; hann
býst við að verða skorinn upp.
Veikin er ekki hættuleg.
* * *
Swift-Canadian félagið í Win-
nipeg hefir ákveðið að koma sér
upp tveggja miijón dollara bygg-
ingu í St. Boniface. Á bygging-
unni er þegar byrjað.
MESSUR og FUNDIR
1 kirkju Sambandssa/naOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaOarnefndin: Funalr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrato
mánudagskveld í hverjum
mánuði. *
KvenfélagiO: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki íiöng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, ki. 12.15 e. h.
FÆÐINGAFÆKKUNIN
mótar mannkynssöguna
Frh. frá 7. bls.
ekki sé alveg árangurslaust að
vekja með áróðri þann hugsunar-
hátt, að það fólk, sem börn á, sé
fremri þjóðfélagsþegnar en hitt,
sem að sjálfráðu forðast að inna
þessa grundvallarskyldu af
hendi.
En hinar ástæðurnar, þær, sem
stafa af áhyggjum um afkomu
foreldra og barna, er vafalaust
hægt að nema að nokkru leylj á
brott eða draga úr þeim.
Það er í rauninni afskaplegt,
að hugsa til þess, að það fólk,
sem gefur þjóðunum þeirra
bestu eign, skuli af þeim sökum
verða að setjast í nokkurskonar
lægri flokk. Konan, sem er að
inna þetta nytjastarf af hendi,
fær þau laun, að hún verður að
fara á mis við bæði hvíld og
hressingu, sem aðrar konur taka
sér með því að sneyða hjá þess-
ari skyldu. Og maðurinn, sem
sér um heimilið, verður að horfa
á félaga sína, sem barnlausir
eru, hafa allar ástæður rýmri. —
Haim fær þau laun, að sjá heim-
Hið miður rækt, konuna eldast
um aldur fram og allan þorra
lífsnauðsynja vanta.
Það væri nær, að hafa þetta í
huga og reyna að bæta úr því,
heldur en hlaupa þegar í stað í
áróður um takmarkanir á fæð-
ingum, fóstureyðingar og annað
því um líkt.
í þessa átt starfa ýmsar þjóð-
ir, og þó að árangurinn sé mis-
jafn, þá er enginn efi á, að með
því getur málið unnist.
Þjóðfélagið á á allan hátt að
hlynna að barnmörgu heimilun-
um, með skattívilnunum, auka-
tekjum, hjálp til húsnæðis, að-
stoð fyrir mæðumar bæði við
heimilisstörf og frí, verðlaunum
og öðru því, sem getur jafnað
þann hróplega rangláta mun,
Wonderland
THEATRE
Fri. Sat. & Mon. April 8, 9, 11
“WELLS FARGO”
Joel McRea—Frances Dee
BOB BURNS
Added: 2-reei comedy and
POPEYE CARTOON
“SOS Coastguard”—Chapter 2
(Fri. night and Sat. Mat. only)
Mon.—Country Store Night,
20 Prizes
Tue. Wed. & Thu. Apr. 12, 13, 14
GRETA GARBO in
“CONQUEST”
with Charles Boyer
‘THINK FAST, MR. MOTO’
PETER UORRE
Paramount News
Thursday—Country Store Nlght
20 Prizes
sem nú er í öfuga átt á kjörum
þörfustu þjóðfélagsþegnanna og
hinna, sem skorast viljandi und-
an frumskyldu sinni við þjóðfé-
lagið.
Á hinn bóginn er ekki nema
rétt, að það fólk, sem viljandi
velur þá leið, að njóta þæginda
barnleysisins, borgi fyrir þau
þægindi eins og önnur.
Hér eiga þjóðirnar líf sitt og
afkomu að verja, og það rétt-
lætir eindregnar og áhrifamiklar
ráðstafanir.—Lesb. Mbl.
Vörumerkið
Verðgilda
,STARi
jAbciaL^
Söluverðið eingöngu, gefur
ekki til kynna verðgildið. Til
þess hluturinn beri með sér
sérstakt verðgildi verður
hann að vera betri að efnis-
gæðum en söluverðið gefur
til kynna.
Stjörnumerkt verðgildi
sterndur skör ofar. t>að
táknar beztu efnisgæðin sem
fáanleg.eru á því verði.
Stjörnumerkið táknar að
hluturinn hefir sérstaklega
verið valinn, til þess að sýna
hæzta verögildi sem fáanlegt
er fyrir það verð. Stundum
er hann keyptur sérstaklega
I þeim tilgangi. Stimdum
sérstaklega færður niður á
verðið. Avalt er hann ofanaf-
fleyta allra verðgilda á
hvaða sídu sem hans getur.
—Samanburðurinn sannfærir
yður að stjömumerkta varan
skarar fram úr.
EATONS
Veitið sérstakt athygli
MISS GUÐNÝ V. EINARSSON,
Ste. 9 Granton Apartments
Sími 73129
er veitt hefir fo«rstöðu og verið kennari við helztu
snyrtingartsofur Winnipeg-bæjar, tilkynnir að hún
hefir nú stofnað á eigin reikning nýtízku snyrt-
ingarstofu með öllum nýjustu og fullkomnustu
tækjum.
Sérstakt kjörverð á “Permanent Waving”
Tekið á móti viðskiftafólki að kveldinu.