Heimskringla


Heimskringla - 13.04.1938, Qupperneq 4

Heimskringla - 13.04.1938, Qupperneq 4
4. SÍÐA HEIMSKRINGLA FINNIPEG, 13. APRÍL 1938 WINNIPEG, 13. APRÍL 1938 KOSNINGAR Á ÍSLANDI Nýkomin blöð frá íslandi, segja þá frétt, að Haraldur Guðipundsson, atvinnu- og kirkj umálaráðherra, hafi sagt stöðu sinni lausri og sé farinn úr stjórn framsóknar- flokksins. Vegna þess hve framsóknar- flokkurinn er fáliðaður á þingi, er ekki ósennilegt að af þessu leiði kosningar á komandi sumri. Eins og kunnugt er, varð enginn flokk- urinn nægilega fjölmennur út af fyrir sig á þingi eftir kosningarnar 1934 til að mynda stjórn. En það sem að þá bjargaði málum, var að Alþýðuflokkurinn með sína fáu þingmenn hét framsóknarflokknum samvinnu. Varð það til þess að fram- sóknarflokkurinn gat tekist stjórn á hend- ur. Einn af þremur ráðherrunum var úr alþýðuflokkinum, og alt bar vott um að til samvinnu flokkanna væri efnt á grundvelli jafnréttis og frelsis; þar var ekki um neina kúgun að ræða. Um mörg aðalmál sín skilur þessa flokka heldur ekki mikið. Þeir eru báðir miðflokkar, er öfgastefnur fasista og kommúnista sniðganga. Fram- sóknarflokkurinn er fyrst og fremst sam- vinnu og bændaflokkur, en Alþýðuflokk- urinn hreinn og beinn verkamannaflokkur. Samvinna þeirra virðist á marga lund eigi óeðlileg og þó Alþýðuflokkurinn hafi stöku sinnum borið á sér ofurlítil afturhvarfs eða iðrunarmörk út af samvinnunni, hefir hún yfirleitt mátt heita sæmileg til þessa. En nú skilur leiðir. Og steinninn sem samvinnan steytti fæti á, er deila milli togara eða fiski-útgerðarmanna og verka- manna í Reykjavík. Þar hefir verið verk- fall, togarar hafa legið við bryggjumar í Reykjavík og ekki hafst neitt að svo vikum skiftir. Lausn á deiiunni var engin sjá- anleg og útgerðarmenn urðu ekki einungis af sínum títt um talaða gróða, heldur sátu verkamenn aðgerðar- og bjargarlausir heima. Þótti stjórninni ílt að við svo búið sæti og réðist í að miðla málum með því að skipa nefnd eða gerðardóm í málið. En það var það sem verkamálaráðherrann, Haraldur Guðmundsson, gat ekki sætt sig við og kvaddi því stjómina. Með þessu virðist um leið samvinnu Al- þýðuflokksins og Framsóknarflokksins slit- ið. Það er að vísu ekki óhugsanlegt, að ástæður ráðherrans hafi ekki skift svo miklu um stefnu flokksins, að samvinn- unni þurfi að vera lokið, en það er þó lík- legra, að hann hafi stigið sporið í samráði við flokk sinn. En bíður þá nokkuð annað en kosning- ar? Komi samvinna ekki til greina við neinn annan flokk, t. d. sjálfstæðisflokk- inn, virðist ekkert annað fram undan en kosningar. En þess er dæmi áður, að fram- sóknar- og sjálfstæðisflokkarnir hafi unnið saman í stjórn. Á stjómartíð Ásgeirs Ásgeirssonar, var einn ráðherrann úr sjálfstæðisflokkinunv; það var Magnús Guðmundsson. Sjálfstæðisflokkurinn virð- ist og hafa verið með stjóminni í skipun gerðardómsins. Lausn á verkfallinu var brýn. Jafnvel þó hvorutveggju aðilar hefðu einhverju orðið að slá af kröfum sínum, hefði ekki tjón sem teljandi er af því hlotist, og ekkert, borið saman við það sem orðið er af völdum verkfallsins. En þeim mun furðulegri eru samvinnuslit stjórnar- flokkanna. “Langhenda” (Þessi ágæta staka er úr Númarímum Sigurðar Breiðfjörðs) Móðurjörð hvar maður fæðist, mun hún ekki flestum kær, þar sem ljósið lífi glæðist og lítil sköpun þroska nær. VOR Það er vor í Ioftinu. Þó enn sé hálf önnur vika til sumars, eftir tímareikningi talið, hafa nú raddir vorsins kveðið hvar- vetna við um langt skeið og boðað komu “sólar og sumars”. Veturinn hefir verið svo frostmildur og góðviðrasamur, að elztu menn muna ekki annað eins síðast liðin 40 til 50 ár. Allur síðari hluti þessa vetrar má heita að hafi verið óslitið vor, stillingar og hægviðri dag eftir dag, viku eftir viku. En hvernig er með vorið hið innra — í mannsálinni ? Við því hefði mátt fyllilega búast, að einnig þar hefði vorað, að í brjóstum mannanna byggi' nú von og vor, sem guð hefir verið svo góður. Ekki verður það þó sagt um alla. Okið er eins þungt á herðum margra og það hefir nokkru sinni verið, hversu óeðíilegt sem það kann að virðast, og þó það sé þýngst á þá lagt, eins og St. G. St. segir, af bræðrum þeirra. En það væri ekki eðlileg vorhugsun, að gera sér enga von um, að því éli mannfé- lagsóskapnaðarins geti ekki' létt, sem öðr- um. Mennimir fæðast ekki og deyja eilíf- lega andlega blindir fyrir því að þeir eru bræður. Það er vorröddin sem vonandi á eftir að hljóma æ hærra og hærra í brjóst- unum. Eins og hinir erfiðu tímar há einstakl- ingnum svo hafa þeir einnig náð til félags- lífsins. Og að þeir hafa ekki nú þegar kipt fótum undan félagssamtökum íslendinga hér, er næsta eftirtektavert og sannfærir oss um það, hvað víðtækar rætur þau eiga í þjóðfélaginu yfirleitt, þó okkur hætti oft við að líta á þau sem sérmál, eða það sem þjóðlífinu komi ekki við. Það er eins og tímamir, hinir erfiðu, eigi síður en þá er vænlegar horfir, sannfæri okkur um það, að þó við glötum því, sem íslenzkt er, sé oss ekkert borgnara, sem þegnum þessa lands, nema síður sé. Fram koma ljóð þau er löngu voru sunginn, stendur einhversstaðar, og minnir þertta á það, og þá eigi síður á hitt, að það hafi ekki alt verið út í hött sagt, sem haldið hefir verið fram um þörfina á viðhaldi íslenzkrar tungu og annara andlegra erfða hér vestra. Mönnum finst nú ef til vill ekki um vor að ræða í þjóðernismálum íslendinga hér, og mun það á vissan hátt til sanns vegar 'mega færa. En eigi að síður vildum vér minna á, að jafnvel það, sem gerðist hér síðast liðna viku, svo ekki sé lengra um seilst, er nokkur ástæða til að benda á, sem vorboða. Fyrst og fremst eigum vér þar við íslenzka leikinn, sem sýndur var af Leikfélagi Sambandssafnaðar tvo fyrstu daga vikunnar og sem stór hlutverk voru leikinn í af hér fæddum ungutn íslending- um. Annað, sem von vekur um sumar í þjóðræknisstarfinu, er að á Frónsfundi s. 1. fimtudag héldu þrír fslendingar hér fæddir og mentaðir ræður á íslenzku og vafðist ekki tunga um tönn. Á þessum atvinnuleysis og sinnuleysis tímum hikum vér ekkert við að nefna þetta vorboða. Þessi íslenzku áhrif sem þetta meðal annars ber vott um vitum vér hváðan spottin eru. Þau eru starfi Þjóðræknisfé- félagsins að þakka, félagsins, sem þann lofsverða tilgang hefir á skjöld sinn skráð, að færa íslendingum, í sérstökum skilningi talað, — íslenzkt vor. Staka Um hjónin eða hjónaleysin Þorra og Góu, er eftirfarandi vísa kveðin. Eins og eldri íslendingar muna, var Þorri tileinkað- ur bændum og fyrsti Þorra-dagur kallaður bóndadagur. Varð bóndi að fara snemma á fætur þennan dag og heilsa Þorra meðal annars með því að ganga eða hoppa hálf- nakinn þrisvar sinnum umhverfis hús sín; jafnvel þegar kaldast var, mátti ekki fara nema í aðra buxnaskálmina meðan á þessu stóð, en hina varð að draga á eftir sér. Hvað sem tautaði varð að taka keifar- laust á móti Þorra. Góa var tileinkuð kon- unni og fyrstr dagur hennar var “konu- dagur” nefndur. En börn þeirra Þorra og Góu voru Einmánuður og Harpa, sem eru síðasti vetrar- og fyrsti sumarmánuður. Er sagt að yngismenn og yngismeyjar hafi fagnað komu þessara mánaða. En eldri menn kunna betur frá þessu að segja, svo vísan skal hér koma: Þorri og Góa, grálynd hjú, gátu son og dóttur eina: Einmánuð, sem bætti’ ei bú, blíðu Hörpu’, að sjá og reyna. NÝ UPPGÖTVUN Nýja uppgötvun hefir bandarískur maður gert, sem talin er ein hin mikilsverðasta. Hún er lampi, sem gefur frá sér aðeins últra-fjólubláann geisla, sem drepur gerla á svipstundu. Uppgötvarinn heitir Harvey C. Rents- chler, bandarískur vísindamaður af þýzk- um ættum. Hann hefir vísindarannsókn- ir með höndum hjá Westinghouse raffé- láginu í Bandaríkjunum. Bylgjulengd geislans er talin 2.537 (Ang- ström) einingar. Ekki er hann svo sterkur að menn saki, en sýkla bráðdrepur hann. Uppgötvunin er nefnd rentschlerization eftir höfundinum (sbr. heiti á uppgötvun- um Röntgents og Pasteurs o. fl.) Uppgötvunin hefir verið reynd af Ameri- can Institute í New York. Hún'sýndi ótví- rætt, að geislinn heldur fæðu frá skemd- um með því að hann drepur gerlana, sem í hana komast; sár eru og varin skemdum með þessu og borð-áhöld á hótelum, mat- söluhúsum og heimilum, er auðvelt að gerilhreinsa með þessari aðferð. Eftirtektaverðasta tilraunin sepi gerð var með þessari uppgötvun, var í Duke University Hospital er gerð var af yfir- lækni stofnunarinnar Dr. Deryl Hart. Allir vita hve skurðlæknum og hjúkrunarkonum er umhugað um að halda lofti í uppskurð- arherbergjum, höndum sínum, fötum og áhöldum geril-fríum. En jafnvel með hversu mikilli gætni sem viðhöfð er, svo sem í handaþvotti, í að klæðast hvítu og í að sótthreinsa verkfærin, kemur samt sem áður fyrir, að skemd hleypur í sár eftir holdskurð. Dr. Hart skýrir frá því að með því að gerilhreinsa uppskurðarherbergi með geisla þessum, sé alveg fyrirbygt, að skemdir geti hlaupið í sár. Og afleiðingin af reynslu hans hefir orðið sú, að aðferð þessi er nú þegar notuð í uppskurðarher- bergjum 1 Mayo Clinic, the New York Medical Centre, Perth Amboy, N. J. Hospi- tal og víðar. En uppgötvunin er spáð að brátt verði víðar notuð en í uppskurðarstofum lækn- anna. Hún kvað vera svo ódýr, að auðvelt sé að komast yfir hana. Að hún komist jafnvel inn á hvert heimili með tíð og tíma efa menn ekki, sem kunnugir eru þessu. Almennum gistihúsum hlýtur brátt að skiljast hversu mikilsverð hún er. Að geta geril-sneitt alla fæðu og loft í her- bergjum eða öllu húsinu, hvort sem um gistihús eða heimili alment er að ræða, er of mikilsvert til þess að því verði ekki brátt gaumur gefinn. Kunningi þinn t. d. heimsækir þig. Hann hefir kvef og hóstar meðan hann stendur við. Alt sem gera þarf til þess að smitast ekki af honum, er að geril-hreinsa stofuna sem hann var í meðan hann stóð við og kvefið berst þá ekki frá manni til manns. Fæða sem gerilhreinsuð er frammi í eldhúsi og hnífapör, diskar og allur borð- búnaður, helzt hreinn og laus við gerla í matstofunni að minsta kosti meðan étið er, í vanalega loftræstuðu húsr. í veg fyrir tíða smitun er talið víst að megi komast með því að menn hreinsi andlit, hendur og föt sín er þeir koma heim af samkomum eða öðrum stöðum, sem menn sækja oft í smitandi sjúkdóma. Kjöt er t. d. hægt að geyma í kæliskáp- um án þess að það skemmist. En það er sagt að deyfast og missa bragð við það. Með þessari nýju aðferð við að halda því ó- skemdu, kvað það ekki eiga sér stað. Með það fyrir augum sem nú hefir verið bent á, virðist hér um merkilega uppgötv- un að ræða. Spurning: Heimskringla sæl! Viltu gera svo vel og segja mér hvernig á því stendur að yfirstandandi vika er kölluð dymbil- vika? Lesandi. Svar: Þrír síðustu dagar þessarar viku eru nefndir dymbildagar og dregur vikan nafn af því. Dymbildagavika mun hún hafa verið kölluð, þó í almanökum sé nú nefnd dymbilvika. Orðið er komið af dumbur, segir Finnur Jónsson; getur einn- ig hafa orðið til úr enska orðinu dumb- aell, sem er sömu merkingar. Dymbill er trékólfur, sem settur var í kirkju-klukkur þessa daga, svo að enginn hávaði stafaði af þeim. í skýrslum yfir góz kirkna frá fornu fari, er dymbillinn talinn með eign- unum. Á föstudaginn langa er sagt að siður hafi verið sumstaðar á íslandi, að húsbændur refsuðu börnum fyrir misgerð- ir þeirra á árinu. Orðtakið, líður að dym- bildögum eða koma dymbildagar á við þetta, eða að refsingin sé vís. ÓSÝNILEG EFNI Eftir Arthur E. Morgan* Eigi er auðið að gera ráð fyrir almennum nægtum hér í Ame- ríku. Þó að margt sé til af hin- um nauðsynlegu efnum, svo sem mikil náttúru auðlegð og full- komnum tækjum til hagkvæmi- legrar framleiðslu, þá fást eigi þau efni sem skorta með laga- ákvæðum né nýrri tegund af hagfræðilegri stjórnarskipun. — Aðferðin sem nauðsynleg er til að framleiða þessi ósýnilegu efni og áhrif er eins flókin og erfið eins og breyta ætti fávísri og ó- siðaðri mannveru í mentaðann, félagslyndann og siðfágaðann borgara. Efni þau, sem auð- sýnilega eru nauðsynleg til að framleiða voldugt kvæði eru penni, blek og þekking og reglur fyrir skáldskap. Samt, þrátt fyrir miljónir smálesta af pappír og bleki og þúsundir af áhuga- sömum höfundum þá hefir til- tölulega lítið af merkum kvæð- um verið framleitt. Hráefni þau sem hér eru ti reiðu við skáldskapargerð eru auðsæilega ófullnægjandi eða lít- ils virði í samanburði við þau hin ósýnilegu efni sem alger skortur er á. Vér sjáum ótæmandi auðlegð og framleiðslutæki, og oss furð- ar á hvers vegna vér höfum eigi allsnægtir. Efnisleg auðlegð og framleiðsla hafa nákvæmlega sama gildi fyrir gott þjóðskipu- lag eins og pappírinn, blekið og penninn höfðu til að framleiða mikilvægt kvæði. Engu síður mikilvæg er siðfáguð menning, fjölhæf þekking og göfug á- kvörðun, og til samanburðar verða hin sýnilegu efnin aðeins aukaatriði. Það gæti vel átt sér stað, að hefði maðurinn komið fram á strönd Cambrian-hafsins, að hann hefði getað andað að sér loftinu umhverfis sig og hefði getað melt lifandi skelfiska og krabba er soguðust að landi með briminu, og að hann hefði getað lifað á þann hátt. Ef til vill hafa öll hráefni til viðhalds mannlegri tilveru verið til þá. samt hljóta hundrað miljón ára að líða hjá og hin hægfæra breytiþróun og margbrotna líf- fræðislega myndun að eiga sér stað áður en mannkynið kemur fram á sjónarsviðið; ennþá lengra tímabil líður hjá áður en Isaiah og Shakespeare koma fram. Það fólk er fremur grunn- hyggið sem heldur, að fyrir þá sök að til eru á meðal vor flest af þeim hráefnum í ríkum mæli, sem þörf er á fyrir gott þjóð- skipulag, þá þurfum vér ekkert annað en lög og stjórnarbylting- ar til að koma því skipulagi á. öllum tálmunum, sem hindra framþróun, ætti að ryðja úr vegi að svo miklu leyti sem auðið er, en miklar og góðar vonir um endurreisn sem ^tjórnarbylting- ar veiti, verða venjulega von- brigði, eins og t. d. á Rússlandi og Þýzkalandi. Umbótafrömuð- irnir lofa þjóðum venjulega miklu, en kraftaverkin reynast vanalega ekki mjög endingargóð. Þessir nienn, sem lofa þjóð- * Höfundur ritgerðar þessarar, Dr. Arthur E. Morgan er heimsfrægur verkfræðingur. Hann er forseti og yfirumsjónarmaður yfir "Tennessee Valley Administration” (T.V.A.), hinu stærsta og umfangsmesta fyrirtæki. sem Bandarikin hafa ráðist í. Dr. Morgan var forseti Antioch CXillege, mentaskólans nafnkunna, er Horace Mann, uppeldisfræðingurinn þjóðkunni stofnaði, snemma á öldinni sem leið. Antioch College er eina hærri menta- stofnunin í Bandaríkjunum sem fylgt hefir því fyrirkomulagi að nemendur hafa unnið fyrir sér gegnum alt nám- ið, með því að skólatímanum er skift milli bóknáms og iðnæfinga, um á- kveðna mánuði sumar og vetur. Jafn- framt því sem nemandinn vinnur fyrir nægilegu kaupi til að kosta sig yfir námstímana lærir hann ýmsar iðn- greinar, skrifstofuhald, bókhald, verzl- un o. fl. Ritgerðin er tekin úr timariti skól- ans: "Antioch Notes.” fræðislegum kraftaverkum, eru eyðslubelgir á þjóðarauðinn. Að vekja brigðular vonir með því að lofa almennum nægtum með skyndibreytingu á félags- legu og stjórnfræðislegu skipu- lagi, er óþarfa eyðsla fyrir þá sök að með því að gefa til- finningunum lausann tauminn, er bæði tíma og hæfileikum eytt frá varanlegri framþróun. Þeg- ar hugmyndirnar um fullkomið skipulag hafa náð hámarki sínu, er úti um raunveruleikann. Ein staðhæfingin leiðir til annarar. Þegar loforðin hafa verið gerð nægilega glæsileg, og einhver bendir á mikið erfiði og stjálf- stjórn nauðsynlega fyrir fram- þróun og raunsæileg afrek, þá er hann skoðaður sem óvinur þjóðfélagslegra heilla, og sá er særi eftirvæntingar fjöldans. — Þessir leiðtogar, sem vekja hjá fólkinu þrá eftir hagfræðisleg- um kraftaverkum, vinna óþarfa verk. Þeir valda meinsemdum í þjóðfélaginu, sem erfitt er að lækna. Fylgi fjöldans við þær hug- myndir að hægt sé að stofnsetja gallalaust þjóðríki, nokkurskon- ar Utopíu, getur orðið svo ákveð- ið að leiðtogarnir séu fúsir að leggja í sölurnar grundvallarlög góðrar stjórnar og þjóðskipu- lags. Á þann hátt getum vór átt á hættu að fá í staðinn fyrir lýð- ræði' einræði af mismunandi teg- undum, góðum hæfileikum er fleygt fyrir borð og í staðinn tekið til greina flokksfylgi. í stað hreinlyndis og réttlátr- ar afstöðu eru blekkingar og undirferli látin ráða. Við að sjá ofsjónir getur auð- veldlega farið svo, að vér glötum hinni' hægfara framþróun er unnist hefir í áttina til góðs þjóðskipulags. Þjóðfræðilegar umbætur eru nauðsynlegar til góðs skipulags og ávinnast oft eigi nema með áhættusamri sam- kepni. Þó, nema oss skiljist, að þjóðmenning er aðallega sál- rænnar tegundar: skapferlis, sjálfstjórnar og skilnings, getur vel átt sór stað að vér komum auga á hýðið, en yfirsjáist að gefa gaum að kjarnanum. Mað- urinn er eins og jurt eða dýr, sem getur aðeins dregið úr um- hverfinu vissar tegundir efna og notað þau á þann hátt, sem eðli hvers eins krefur. Þjóðskipulag vort getur að- eins orðið fullkomið með þeim hætti', að innbyrðis hjá því verði hin sálræna þróun fullkomin. Að gera sér fulla grein fyrir þessu og leitast við að ná slíkri þróun, eru þjóðfræðisleg hyggindi. Gb. S. þýddi TVÆR VÍSUR eftir Jón Pálsson Vídalín Jón eldri, sonur Páls Vídalíns hafði mentast erlendis, en kom hingað til lands sumarið 1724 og “varð heyrari á Hólum í Hjalta- dal veturinn eftir og eins næsta veturinn, sem var 1725—26”. Jón kvongaðist þar á Hólum Helgu dóttur Steins biskups Jónssonar. Um sumarið (1726) var hann settur sýslumaður í Vaðlasýslu, en varð úti á Hjalta- dalsheiði' snemma í október þá um haustið, “ásamt tveim piltum og fanst ei fyrr en um vorið snemma”. Jón var skáld sem faðir hans og hafa nokkrar vísur hans varðveitsL Svo er að sjá, sem lann hafi grunað, að hann yrði ekki langlífur og illa hefir lagst í hann ferðin norður um Hjalta- dalsheiði um haustið, er hann ætlaði til sýslu sinnar. “Áður Jón riði frá Hólum norður kvað hann (er hann reið úr hlaði): Ykkur kveð eg öll í senn af því nú verð fara; hingað kem eg aftur enn, ef mig guð vill spara.” Þá er sagt “hann kvæði vísu þessa við konu sína, er þau skildi síðast:

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.