Heimskringla - 13.04.1938, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 13. APRÍL 1938
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
Fyrir mig ber hún þungan þrótt
þrifleg menjagerður;
hesturinn kemur heim í nótt,
hvað sem um mig verður.
Sagan segir, að Jón hafi lagt
handgull sitt undir tungurætur
sér, er hann sá hvað verða vildi
— að hann mundi bera beinin
þar á Hjaltadalsheiði. Það er
sagt, að faðir Jóns, Páll lögmað-
ur, hafi látið svo um mælt, “að
lækur rynni undir knésbætur
hans, sem og reyndist, þá hann
fanst um vorið”.—Vísir.
SÖNGLIST OG MENTUN
í menningarsögu vorri er fátt
eins einkennilegt eins og hnign-
un sönglistarinnar.
Grikkir skoðuðu hana sem feg-
urðar menninguna í háskóla-
menfun sinni. Á skáld og hetju-
öld Frakklands var hún skoðuð
sem mikilvæg félagsleg list. —
Sömu augum var litið á hana á
endurreisnaröld ítalíu og á Eng-
landi á ríkisstjórnartímabili'
Elisabetar drotningar. í stjórn-
artíð Viktoríu Englandsdrotn-
ingar var sönglistin skoðuð sem
göfug endurminning eða þjóð-
siðir liðna tímans.
Hér í Ameríku á vorum dög-
um myndi engum koma til hug-
ar að staðhæfa, að sönglist hefði
verið engu síður eitt af frumat-
riðum fornmenningarinnar eins
og t. d. flatarmálsfræði.
Skilningsleysi' Ameríkumanna
á sönglistinni er eigi svo erfitt
að átta sig á. Orsakirnar eiga
rætur að rekja fyrst og fremst
til trúarbragða og þjóðsiða hinna
púritönsku pílagríma, er fluttu
til Nýja Englands, einnig til ó-
skiftra starfskrafta landnem-
anna, til fjárhagslegrar menn-
ingar, skorts á tómstundum og
fjölgun lærðra tónfræðinga. Al-
þýðuskólar gerðu sér far um að
breyta þessu, en söngfélögum
við skóla og hinum mýmörgu
lúðraflokkum hefir hingað til
helst tekist að útbreiða lúðra-
leiklist og saxagöll heldur en t.
d. slaghörpu og fiðluspil.
Útvarpsstöðvarnar, sem hafa
haft talsvert af góðri sönglist á
boðstólum, hafa einnig haft
margt af hinu lakara taginu. Nú
á síðustu tímum hefir þó hafist
mikil endurbót á þessu. Fleiri
stúdentar ganga nú á æðri skóla,
sem hafa sterkan áhuga á söng-
listinni en áður var. Nálega
hver einasti háskóli og miðskóli
hefir nú söngfræðisdeild, og ver
miklum tíma til sönglistarinnar.
Samt sem áður er ennþá mis-
skilningur á, hvort skipa beri
sönglist sem listrænni mentun.
Þangað til að eins nýlega, var
mjög erfitt að fá viðurkenningu
listaskólanna fyrir tækni í söng-
list.
Og enn þá skortir sönglistina
þá verðugu viðurkenningu sem
t. d. tungumálanám hefir. Það
veröur eigi þangað til að háskól-
arnir hætta algerlega við að beina
allri mentun sinni að hugsana-
hliðinni og leggja alveg eins á-
herzlu á tilfmningalífið og fé-
lagslega breytni manna, að söng-
listin og aðrar listir fá verðuga
viðurkenningu. Sönglistin getur
alls ekki þrifist sem aukaatriði
eða einskonar skrautgripur.
Fæstir sönglista skólar hafa
hvorki starfskrafta né tækni til
að útskrifa lærða söngfræðinga.
Sem mentunargrein, til að hafa
djúp áhrif á tilfinningalíf nem-
andans og opna hugarheim var-
anlegrar lífsgleði, þá á sönglistin
sór hinn helgasta tilverurétt.
Gunnbj. Stefánsson
hljómleika þessa syngja og frú
Sigríður Olson og Paul Bardal.
Söngurinn fer fram mánudag-
inn 18. apríl, byrjar kl. 8.30 e. h.
* * *
Ákveðið er að séra Rúnólíur
Martinsson flytji guðsþjónustur
á páskadaginn (17. apríl): kl. 11
f. h. í kirkju Lúters safnaöar í
Grunnavatnsbygð; kl. 2.30 e.h. í
lútersku ki-rkjunni í Lundar-oæ.
* * *
55. ársþing stórstúku Mani-
toba af alþjóðareglu Goodtempl-
ara verður haldið í G. t. húsinu
í Winnipeg dagana 27. 28. apríl
n. k.
* * *
fslendingadags prógröm
Eftirfylgjandi fslendingadags
prógröm óskast til kaups, fyrir
árin 1890, 1891,1892,1893,1895,
1896, 1897, 1898, 1899, 1900,
1901, 1902, 1903, 1904, 1908,
1909, 1912, 1914, 1915, 1923.
Eintökin mega ekki vera rifin
eða mjög óhrein. Sendið þau
ekki en tilkynnið “Hkr.” hvaða
árganga þér hafið, og á hvaða
verðr. Verður yður þá svarað
strax um hæl.
Ennfremur er óskað eftir sög-
unni:
Fastus og Ermena, er gefin
var út á Gimli af Gísla M.
Thompson.
Ráðsmaður Hkr.
vinnuna innan stjómarinnar og
þakkaði' Haraldi Guðmundssyni
samvinnuna, er hann hefði rækt
af dregskap. Umræður um þetta
mál urðu engar að lokinni ræðu
forsætisráðherra.
-Vísir 18. marz.
DÁN ARFREGN
ÍSLANDS-FRÉTTIR
FJÆR OG NÆR
Heimskringla er beðin að
vekja athygli á hljómleika sam-
komu í Auditorium í Winnipeg,
er haldin er af Winnipeg Phil-
harmonic Choir. í flokkinum
eru 160 raddir. “King Olaf”
syngur þar frægur enskur tenór-
söngvari Steuart Wilson. Við
Gerðardómurinn tekur vænt-
anlega til starfa í dag
Hæstiréttur hefir skipað í
gerðardóm þann sem samþyktur
var á Alþingi í fyrrinótt, að svo
miklu leyti sem réttinum ber að
tilnefna í dóminn.
Var Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari, skipaður for-
maður dómsins, en auk þess voru
tilnefndir Ágúst Jósefsson heil-
brigðisfulltrúi, Bjöm Steffen-
sen endurskoðandi, Þorsteinn
Þorsteinsson, hagstofustjóri, og
Pétur Lárusson, skrifstofumað-
ur hjá Alþingi.
Af þessum mönnum ryðja að-
ilar sínum manninum hvor en
tilnefna í stað þeirra einn mann
hvor og er þá gerðardómurinn
fullskipaður.
Fer ruðning og tilnefning af
hálfu aðila, þ. e. sjómanna og út-
gerðarmanna, fram kl. 3 í dag,
hjá formanni dómsins. Er þá
gerðardómur fullskipaður og
tekur til starfa. Hvenær vænta
má niðurstöðu dómsins verður
ekki' um sagt að svo stöddu, en
hann mun hraða störfum eins og
auðið er.—Vísir 18. marz.
(Sjá ritstj. grein í þessu blaði
um þetta mál).
* * *
Forsætisráðherra tilkynti
lausnarbeiðni Haralds Guð-
mundssonar atvinnumála-
ráðherra á Alþingi í dag
Áður gengið var til dagskrár
á fundi neðri deildar Alþingis,
kl. 1 e. h. í dag, kvaddi forsætis-
ráðherra sér hljóðs. Tilkynti
hann deiidinni, að sér hefði
morgun borist bréf frá atvinnu-
málaráðherra, Haraldi Guð-
mundssyni, þess efnis, að hann
bæðist lausnar fyrir sig úr ráðu-
neytinu. Kvaðst forsætisráð-
herra hafa símað konungi með
ósk um það, að beiðni ráðherr-
ans væri sint. Jafnframt kvaðst
forsætisráðherra hafa óskað, að
sér væri falið að gegna embætti'
atvinnumálaráðherra, fyrst um
sinn, eða þar til breyting yrði
gerð þar á. Forsætisráðherra
kvað kunnar ástæðurnar fyrir
lausnarbeiðninni og þau rök
sem atvinnumálaráðherra hefði
fært fram, er hann kvaðst munu
biðjast lausnar, þegar gerðar
dómsfrumvarpið var rætt á A1
þingi'. Forsætisráðherra kvað
sér þykja leitt, að svona hefði
farið, að stjórnarsamvinnan
hefði slitnað á þessu máli. En
hann kvaðst álíta það svo stórt
mál og nauðsynlegt að afgreiða
það án tafar, að öll önnur sjón-
armið hefði orðið að víkja fyrir
því. Að lokum ræddi hann sam-
Þann 26. marz andaðist að
Keldulandi við Riverton, Man.,
háöldruð kona, Eirný Jónsdóttir
að nafni', fædd 23. nóv. 1850 í
Bæjarsveit í Borgarfjarðarsýslu
Foreldrar hennar voru Jón
Sveinsson og Sigríður ólafsdótt-
ir en alin var hún upp á Lang-
holti þar í héraðinu. Árið 1886
giftist hún Guðjóni Jónssyni', frá
Uppsölum í Hálsasveit, bjuggu
þau þar um hríð, ásamt foreldr-
um Guðjóns. Þau eignuðust
eina dóttur er Gunnfríður hét, og
dó hún barn að aldri á íslandi.
Vestur um haf fluttust þau
árið 1888. Þau bjuggu á Reyni-
völlum í Fljótsbygðinni', frá því
að þau komu til Nýja-íslands,
unz Guðjón dó í júlí mánuði 1901.
Þá fluttist Eirný, ásamt aldraðri
tengdamóður sinni til Sigurðar
Jónssonar Olson, bónda á Keldu-
andi og Ingibjargar Björnsdótt-
ur konu hans. Bjó hún um hríð
útaf fyrir sig, ásamt aldraðri
tengdamóður sinni, en síðan var
hún um langa hríð, til heimilis
hjá þeim, þjónaði' þeim eftir
megni, og naut umönnunar og
íærleiksrikrar aðhjúkrunar hjá
>eim, til hinstu stundar. Dvaldi
íún á Keldulands heimilinu
um 36 ár. Hin látna hafði' verið
mikil iðjumanneskja, vel vinn-
andi og vel gefin á marga lund.
Guðjón, maður Eirnýjar heit-
innar var föðurbróðir Tímóteus-
ar bónda og póstafgreiðslumanns
Böðvarssonar í Geysis-bygð, og
æirra systkyna.
Útför Eirnýjar fór fram þann
30. marz, frá Keldulandsheimil-
inu og kirkju Bræðrasafnaðar í
Riverton.
S. ólafsson
þar hafa lofast til að flytja sitt
erindið hvor Dr. R. Pétursson og
Dr. Richard Beck, og veit eg að
það muni verða nægilegt að-
dráttarafl fyrir alla góða fsl. ef
þeir aðeins muna eftir deginum.
En svo er fleira á boðstólum til
skemtana. Sem sé: söngur, af
þar til æfðum flokk, einsöngv-
ar frá tveimur beztu sólóistum
bygðarinnar, upplestur (recita-
tion) og fjögra ungra karlmanna
söngur, sem aldrei hafa áður á
ísl. sungið.
Alla þessa skemtun býður nú
deildin “Báran” fyrir aðeins 35c.
En munið að byrjað verður á
slaginu kl. 8 að kveldi. Danz
verður á eftir undir umsjón
Stony’s Orchestra. — Og svo
ætlar kvenfélagið að sjá um að
enginn deyi úr hungri né þörsta.
Nú er glaða sólskin og allir
farnir að sá aftur, eftir kulda
kastið. — Þeir sem áður trúðu
á að sáð yrði snemma, eru nú
með örvæntingarsvip.
v Th. Th.
Framh.
HITT OG ÞETTA
CITY DAIRY
Limited
•
flytur viðskiftavinum sínum
Innilegar Páska kveðjur
Cor. Adelaide & Notre Dame
BRÉF TIL HKR.
Mountain, N. D.,
11. apríl 1938
Hr. ritstjóri:
Mig langar til að biðja þig um
rúm fyrir fáeinar línur í næsta
blaði þínu, sem fréttir, af því að
þessi' nýfædda ísl. þjóðr. deild
hér syðra er naumast komin úr
reifunum ennþá, og því varla
fær um að borga fyrir að auglýsa
sjálfa sig. — Blað þitt hefir áður
minst á að hér ætti að hafa sam-
komu undir hennar nafni á sum-
ardaginn fyrsta (21. þ. m?) og
það eru auðvitað fréttir; ten
okkur langar að bæta því við, að
Eiffelturninn
Á síðasta ári skoðuðu 810,185
gestir hæsta turn Evrópu, Eiff-
elturninn. Árið 1936 voru gest-
irnir 264,145 að tölu. Gestunum
fjölgar altaf svona mikið þau ár,
sem heimssýningar eru í París,
t. d. nam tala gestanna árið
1889, þegar turninn var vígður,
1,968,287, en frá byrjun hafa
meira en 17*4 miljón gestir skoð-
að turninn. — Aðeins tvær bygg-
ingar í heimi eru hærri en hann,
báðar í Ameríku — Chrysler-
byggingarnar (1040) fet og Em-
pire State Building (1248 fet).
Eiffelturninn vegur 15,400,000
pund og samanstendur af 12,000
stálbjálkum, sem haldið er sam-
an með 2,500,000 boltum.
* * *
Játningar
— Elskarðu mig, Guðmann?
— Já.
— Er eg falleg í þínum aug-
um?
— Já.
— Fallegri en allar aðrar
stúlkur?
— Já.
— Hefi eg fegurri augu en
nokkur önnur kona?
— Já.
— Og gáfulegri ?
— Já.
— Er munnurinn á mér fall-
egur?
— Já.
— Fallegasti munnur, sem þú
hefir séð?
— Já.
— Og kyssilegasti ?
— Já. ,
— Er eg vel vaxin?
— Já.
—Spengileg á götu ?
— Já.
— Er eg tígulegri en allar
aðrar konur ?
— Já.
— Heldurðu að allir öfundi
þig af mér?
— Já.
— Heldurðu að öllum karl-
mönnum lítist vel á mig ?
— Já.
— Og að alla langi til að eiga
mig?
— Já.
— En hvað þú getur verið
yndislegur. — Segðu eitthvað
meira fallegt um mig — minn
elskulegi Guðmann!
SVEINBJÖRN TRYGGVI
SOFFONÍASSON
Þér aem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BlrgSlr: Henry Ave. but
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
Frh. frá 3. bls.
um og ýmsri dulfræði. Fanst
honum þar vera helst að finna
ráðning gátunnar — einkum í
spiritismanum. Var þetta ofur
eðlilegt, því hann gerði' í raun og
veru stórar kröfur til lífsins og
fann til bundinna afla í sjálfum
sér, sem aðeins vöknuðu til með-
vitundar um sig sjálf, en væri
svo neitað um öll þroska skilyrði
og hyrfu síðan í dauðanum í al-
gerðu tilgangsleysi. Munu hans
eigin rannsóknir í þessum efn-
um hafa sannfært hann um að
sál mannsins væri ætlaður lengri
og veglegri þroskaferill en þetta
jarðlíf gæti' veitt. Fór hann þó
ætíð gætilega og skynsamlega
með þessar rannsóknir sínar. —
Hann var sjálfstæður í skoðun-
um og hreinskilinn og fékst lítt
um það hvort þær götur sem
honum fanst liggja til hins
sanna og rétta væru troðnar af
mörgum eða fáum. Hann var til
með að róa einn á bát ef svo vildi
verkast. f viðskiftum sínum við
aðra vildi hann vera sjálfstæður
og skulda engum neitt. Með elju
og atorku tókst honum þetta. En
þrátt fyrir það þó hann kepti að
þessu takmarki einstaklings-
hyggjunnar — efnalegu sjálf-
stæði — var hann sósíalisti í
þjóðmálum. Hygg eg að það
hafi átt rætur að rekja aðallega
til tvenns: í fyrsta lagi sá vit
hans enga aðra leið út úr öng-
þveiti mannfélagsmálanna, og í
öðru lagi knúði mannúðin hann
til að heimta meira réttlæti þeim
til handa sem afskiftir verða í
lífsbaráttunni eins og hún er nú
háð. Og mannúð hans var ekki
varafleipur eitt, því hann var ör-
látur af eigin fé við þá sem
þurftu hjálpar með og hann náði
til. Heyrði eg hann stundum
kvarta yfir því, þegar hann vissi
brýna þörf einhversstaðar, að
það væri verst að geta svo lítið
gert til bjargar. Komst eg þó
að nokkrum tilfellum þar sem
hann sendi peninga til að hjálpa
þeim sem illa voru staddir. En
ekki vildi' hann láta nafns síns
getið í því sambandi, því hann
var enginn auglýsingamaður eða
skrumari, hvorki í þessum sök-
um né öðrum.
Gestrisni þeirra hjóna þektu
allir sem heimsóttu þau. Voru
þau samhent í þessum hlutum,
enda mun margt hafa verið svip-
að um gáfur þeirra og lundarfar,
sem og lætur að líkindum því
“margt er líkt með skyldum.”
Þau hjón tilheyrðu íslenzku
bókafélagi hér í bygðinni og var
Snjólaug bókavörður félagsins
um eitt skeið.
Sveinbjörn var góður styrkt-
armaður Fríkirkjunnar hér í
Blaine og í henni var hann
kvaddur hinni síðustu kveðju
hér, að viðstöddu fjölmenni. —
Þakklæti, velvild og virðing sam
ferðamannanna, eru að minsta
kosti sigurlaun þín Sveinbjörn.
En andi vinanna sér kögur
tjaldsins lyftast á nýtt og feg-
urra svið, þar sem þú birtist
þeim brosandi og bíður komu
þeirra.
A. E. K.
gatonia Fötin
fylgja auka buxur
Ágætt úrval fyrir páskana
Grá, blá og brún—Eatonia fötin eru úr tvisti og vaðmáli og eru langt
fyrir ofan venjulegan klæðnað að sniði og gerð. Þau færa yður í flokk með
þeim sem eru hátíðabúnir um páskana—bindið enda á leitina eftir móðins
fötum á hagkvæman hátt. Rúm í sniðum, handa þeim sem eru ungir í
anda—einhnept eða tvíhnept fyrir yngri eða
eldri menn. Föt fyrir allskonar vaxtarlag, háa,
lága, grannvaxna og gilda. Stærðir 35 til 44.
Tvennar buxur......................-.....
UO j/CUH Övlll VI U Ullfell *
$25.00
$20.00 með einum buxum
PÁSKA yfirhafnir nýmóðins fyrir karlmenn
Þær eru nýjasta gerð, þær eru flott, þær eru ofar öllum yfirhöfnum að
sniði; fyrir páskana 1938! Saumaðar og sniðnar úr ullar vefnaði, hæfi-
legar fyrir vorið. Lit og snið um að velja eftir
allra smekk. Sniðin: Raglan, beltiskápur, slag-
hempur, bolsmokkar, varðkápur og stutthempur
(Chesterfield). Stærðir frá 35 til 44. Verð...
icvx Ci uiio.1 vtiiiaui, iiotii-
$20.00
Fást á afborgunar skilmálum.
Karlmannafntadeildin, The Hargrave Shops for Men, fyrsta gólfi
4?
T. EATON C?
LIMITED