Heimskringla - 06.07.1938, Side 4

Heimskringla - 06.07.1938, Side 4
4. SÍÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 6. JÚLÍ 1938 immimmiiHiiinniininiJiniiiiiiinniiiiimmmmimifflmnmnimninmnimnnnminnHnifflnmmmminnraHBiiiffliing iftcimsknniila | (StofnxUi 1888) Kemur út i hverjum miBvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 8SS Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 S37 Verð blaðslns er $3.00 irgangurinn borglst ryrirfram. Allar borganlr sendlst: THE VIKING PRESS LTD. 011 vlðskiíta bréí blaðinu aðlútandl sendlst: g K-».ager THE VIKING PRESS LTD. 8S3 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 8S3 Sargent Ave., Winnipeg “Heimskringla” ls published and printed by THE VIKING PRESS LTD. 8S3-8SS Sargent Avenue, Winnipeg Uan. Teleptoone: 86 637 311111111111111111 WINNIPEG, 6. JÚLf 1938 ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR CANADA Um þjóðhátíðardag Canada (Dominioa Day), sem var s. 1. föstudag, hefir nokkuð verið skrifað í blöðunum sem að líkum lætur. Eins og allir vita, er þjóðhátíðar- dagurinn haldinn í minningu um samband Austurríkja Canada 1867, sem vestur-fylk- in sameinuðust síðar hvert af öðru. Það er því ekki furða, þó áherzla væri lögð á nauðsyn þjóðarinnar að vernda þetta sam- band, í því sem skrifað var um daginn. Enda var það rækilega gert. En það sem frá voru sjónarmiði var eftirtektavert við þau blaðaskrif öll, var hve eindregið þau tóku í þann streng, að sambandinu yrði aðeins með því borgið, að réttur sambandsstjórnar væri í engu skertur og fylkjunum bæri að beygja sig undir úrskurð hennar á hverju sem gengi. Töldu blöðin sambandinu einmitt nú meiri hættu búna en nokkru sinni fyr, vegna ráðríkis vissra fylkja, sérstaklega Alberta og Quebec-fylkja; en Ontario átti heldur ekki að vera laust við byltingar andann. Önnur fylki voru eins og góðu börnin. Þessi skilningur á ríkjasambandi Can- ada, er vægast talað barnalegur, í augum frjálshugsandi manna. Sambandið var eflaust af fylkjunum myndað í fyrstu, sem nokkurskonar sameiginlegt framkvæmda- ráð þeirra, eða miðstjórn, en ekki sem yfirstjórn með einræðisvaldi. Sambands- stjórnin var sameiginlegur fulltrúi fylkj- anna til framkvæmdar í utanríkismálum aðallega en auðvitað einnig í vissum inn- anlandsmálum. En að hún beiti neitunar- valdi hvenær sem eitthvert fylki brýtur upp á einhverju, sem önnur fylki þykjast ekki hafa ástæðu til að taka upp, og hag þeirra kemur ekkert við, er nokkuð, sem varhugavert er. Þó það eigi að vera gert í samræmi við bókstaf stjórnarskrár lands- ins, ber það að athuga, að sá bókstafur er nú að vera um 70 ára gamall, og að þar hlýtur það að vera andi laganna, en ekki bókstafurinn, sem nú verður stuðst við. Að Canada þjóðin sjálf geti breytt laga- stafnum eftir vild, er og skoðun Marino H. Hannessonar, er nýlega hefir skrifað í blaðið Winnipeg Tribune, greinar um stjórnmál landsins og gert það skýrar og gleggra, en menn hafa átt að venjast í blaðagreinum. Er það góð bending um, að svo hafi verið til ætlast, að bókstafur- inn hafi verið skoðaður breytingum háður eftir aldaranda og aldarhætti þjóðfélagsins. Það segir sig einnig sjálft, að það setur blett á virðingu þeirra manna, sem við köllum “feður stjórnarskrár landsins”, að skilja stjórnarskrána öðru vísi, og þjóðin í heild sinni mun aldrei gera það af því að hún skilur betur en Ottawa-fulltrúar henn- ar anda þessara þjóðfrömuða sinna. Þetta er alt saman þeim mun athyglis- verðara, sem það er nú áþreifanlegra en fyr, að stjómir eru alls staðar að seilast í meiri og meiri völd. Þetta er svo auðsætt, að það má heita eitt af táknum tímanna og King-stjórnin í Ottawa siglir beint í það kjölfarið. Hjá henni sýnir þetta sig í því, að flest eða alt sem hún hefir gert síðan hún komst til valda, er að treysta sig sem bezt stjórnarsessinum, en um hag þjóðarinnar má fara sem vill fyrir henni. Hún hefir sent heila hersveit matlystugra flokksmanna sinna, sem nefndir, út um alt land, til þes að rannsaka hvað hægt sé að gera til umbóta hag alþýðu, en þær nefndir komast oftast að þeirri niður- stöðu, að alt sé bezt sem er, þ. e. að ekk- ert sé gert, og það hefir stjórnin sér til afsökunar. Og atvinnuleysi og dýrtíð vex í landinu, en minkar ekki. Það sem að þrosksögu Canada lýtur, á alt upptök hjá fylkisstjórnum landsins. Alt sem Canada-stjóm hefir gert síðustu árin, er að reyna að vera þröskuldur í vegi þeirra framfara. Hún hefir tekið sér það vald að kveða umbótatilraunir fylkjanna niður, sem hún sjáanlega hefir engan lýð- ræðislegan rétt til, þegar réttur skilningur er lagður í landslögin. Fylkin hafa aldrei afsalað sér þeim rétti. Og lýðræðið eða vilji alþýðu kemur hvergi betur fram en í fylkjunum. Eigi hann engan rétt á sér, er miklu nær að hampa hér lýðræði minna en gert er og gleyma vesturheimska frelsinu. Á fyrri árum okkar í þessu landi laut efni ræðanna og greinanna sem þennan dag voru fluttar og skrifaðar að mannréttinda- og frelsis hugsjónum. Nú eru þær um konungsríkið Canada, einræði og fasisma. Hvað alt breytist. Við læknadeild háskólans í Toronto, Ont., hafa tveir læknar, D. W. R. Franks og Dr. H. J. Creech gert kunnar. tilraunir, sem þeir hafa verið að gera, til þess að lækna krabba með bólusetningu eða í- spýtu (vaccine). Þeir hafa fundið ráð til að deyfa vist efni í líkama mannsins (di- benzanthracene) og sem úr koltöru mynd- ast, sem hefir feikna mikil áhrif á myndun krabba. Þeir hafa gert tilraunir á dýrum, sem hafa hepnast vel. En þeir segja þó að tilraunir verði enn nokkrar að gera, áður en byrjað verið á að lækna menn. EIGIXKOM R OG KAUP f blaði frá Toronto, birtist nýlega grein sú er hér fer á eftir: “Háskóla ungfrú ein og kennari í hag- vísindum við mestu mentastofnun þessarar borgar, skrifar nýlega grein um það í eitt blað bæjarins, að eiginkonur svona upp og ofan séu metnar skör legra en hvert annað verkafólk af eiginmönnum þeirra. Þær standi sveittar við heimilisverkin frá morgni til kvölds, en fái aldrei grænan skilding fyrir verk sitt, nema hvað fáum af þeim hepnist stöku sinnum að toga nokkra skildinga út úr nirflunum, sem þær eru giftar. Mælir ungfrúin afdráttar- laust með því að lög séu samin, er áskilji eiginkonum kaup fyrir verk sín, sem öllum öðrum. Það væri nú í sjálfu sér gott og blessað að geta orðið við þessu, en vér efumst um, að hin hagsýna ungfrú sé nægilega kunnug málinu sem hún ritar um. Hún virðist fávís um það, að það eru til þúsundir eig- inmanna, sem virða konur sínar og meta ofar öllum öðrum. Vér ætlum það eigi ósannara um eiginmenn í Canada, en hvar annar staðar sem er, að aðal-áhugaefni þeirra sé heimilið og fjölskyldan og þeir meti hið mikla starf sem verðugt er, sem eiginkonan innir af hendi í þágu hvort- tveggja og meira að segja viti og viður- kenni að velferð heimilisins og fjölskyld- unnar hvíli þungt á herðum eiginkonunn. ar. En við eiginmenn vinnum einnig og höfum áhyggjur. Vinnulaun vor eru fáum af oss greidd fyrir ekki neitt. Hjónin vinna því hvort sem annað að þessu aðal velferðarmáli sínu jafnt og eins og unt er, og það er eins og það á að vera, eða eins og vér hugsum okkur ákjósanlegt (ideal) hjónaband. Vér viljum einnig fræða ungfrúna á því, af því henni virðist ókunnugt um það, að eiginkonum er yfirleitt í þessu landi greitt kaup — kaup eiginmanna sinna!”—Þýtt. Tveir sálarfræðingar frá háskólanum í Chicago, er Dr. Nathaniel Kleitman og Bruce Richardson heita, hafa verið að brjóta heilann um hvort þreyta eða svefn væri annað en ávani eða menn legðust til hvíldar um nætur af öðru en því að myrkv- aði og af því að þeir væru því orðnir svo vanir. Til þess að reyna að komast að þessu, lögðu þeir fyrir skömmu af stað og skildu úrin sín eftir heima, til Mammuth- hellisins í Kentucky og byrjuðu þar að lifa “tímalausu lífi”. Þeir fóru einn fjórða ur mílu inn í hellirninn frá dyrunum og eru 119 fet niður í jörðinni. Hitinn er þar 54 stig og er ávalt jafn. Fyrsta skýrslan frá þeim, eftir að þeir höfðu verið eina viku í hellinum, var sú, að þá fýsti enn að leggja sig út af þegar myrkvaði uppi á jörðinni, en væru bezt vakandi þegar dag- ur væri þar. En þeir eru ekki ennþá vissir um að þetta stafi af öðru en vana og ætla að hafast þarna lengur við. ÞINGINU í OTTAWA SLITIÐ Sambandsþingi Canada var slitið s. 1. föstudag. Þó það megi eitt með lengstu þingum telja, er gert ráð fyrir að það komi aftur saman í byrjun vetrar, en fresti því ekki fram yfir nýár eins og venja hefir verið. Það sem þing þetta verður minnisstæð- ast fyrir, er hve fáum af helztu málum sín- um það kom í framkvæmd. Að þessu kveður svo ramt, að fregnritar tala um það sem látalætis-þingið eða vonbrigðanna þing. Stærstu vonbrigðin eru ef til vill þau, að tilraunir um að gera nýja viðskiftasamn- inga við Bandaríkin og Bretland drógust úr hömlu í bráð, ef ekki í lengd. Annað sem kjósendum í Vesturfylkjun- um eru vonbrigði, er að tollar voru ekki lækkaðir. King lofaði í kosningunum 1935 að rjúfa skarð í þann garð og lækka með því verð á akuryrkjuverkfærum. En tollarnir eru þeir sömu og áður og búnað- aráhöldin hafa drjúgum hækkað í verði. Stjórnin afsakaði sig með þeim orðum “að það væri ekki hægt að gefa í dag og gera hagstæðan samning á morgun.” En úr morgundagsloforðum hennar munu nú fáir mikið leggja. Þess hefir verið getið nokkrum stjórn- arsinnum til hróss, að þeir andmæltu mörgu, er stjórnin var fylgjandi og lá við sjálft, að þeir yrðu reknir úr flokki henn- ar. Má á meðal þeirra nefna Dr. Fleming frá Humboldt, H. Leader frá Portage La Prairie, G. G. McGeer frá Vancouver, Motherwell og J. T. Thorson. Þetta er nú gott og blessað. En þó fóru nú leikar svo, að þegar atkvæði var greitt um lækk- un tolla voru allir þessir menn með stjórn- inni, nema Mr. Leader. Þar sem þingmenn þessir eru allir úr vestur fylkjum landsins, sem á móti hátollastefnunni eru, hefir margur kjósandi hlotið að verða fyrir von- brigðum í þessu efni. Mr. McGeer gagn- rýndi svikalaust stefnu stjórnarinnar eigi að síður í peningamálum og kom sér hjá því að greiða stjórninni þar atkvæði með því að ganga af þingi. Mr. Motherwell gagnrýndi einnig athafnir stjórnarinnar í hveitimálinu, en að öðru leyti virtist hann í sátt og friði við stjórnina. Hversu ein lægir sem þingmenn þessir hafa verið í að- finningum sínum, ber framkoma þeirra eigi síður á sér látalætisblæ. Ontario urðu það vonbrigði að fá ekki að selja raforku til Bandaríkjanna. Enn- fremur var öllum þeim sem atvinnumálin bera fyrir brjósti, eigi síður en bændum vesturlandsins vonbrigði að því, að tilboði Roosevelts forseta var hafnað um að hefj- ast handa á dýpkun St. Lawrence-fljótsins. Kaupin á Canada-banka mega hjeita mesta afreksverk þingsins, þó hitt sé vafa- mál hve mikilsverð þau eru. Af sameiningu eða samvinnu járn- brautafélaganna varð ekkert, enda mun þjóðin ekki sjá eftir því. Það er ósklijan- legt hvernig hægt er þar að spara fé svo að nokkru nemi, nema að leggja niður störf á ýmsum stöðum og viðurkenna, að afturför í staðinn fyrir framför, sé fyrir stafni í þjóðlífi þessa lands. Skýrslur þriggja konunglegu nefndanna sem hafa verið starfandi síðan Kingstjórn- in kom til valda, voru lagðar fram í þing- inu. Við Turgeon-skýrsluna um hveiti- söluna var ekkert gert. Ennfremur var lögð á hilluna skýrsla frá nefndinni, sem var að rannsaka gróða ullarverksmiðj- anna. Var þó mikið veður út af skýrslu þeirri gert. En stjórnin hummaði fram af sér af einhverjum ástæðum, að hefjast framkvæmda á nokkrum umbótum í því efni. Eina skýrslan sem stjórnin tók al- varlega, var skýrsla frá nefndinni sem rannsakaði stjórn og eftirlit fangahúsa og vildi reka Ormond, yfirmann fangelsá landsins, en kjósa þriggja manna stjórn í hans stað. En efrideild feldi þetta frumvarp stjórnarinnar. Frá öðrum 50 nefndum eða svo sem eru að starfa að viðreisn og velmegun lands og þjóðar hafa eflaust skýrslur borist stjórninni, en á þinginu var ekkert um þær fjallað. Þingnefnd, sem skipuð var til þess að rannsaka hvort egum nema libarölum væri gefið tækifæri til að ná í nokkurt starf, er stjórnin hefði með höndum, lagði fram skýrslu í þinginu. En skýrslan bar svo eindregið vott um að aðrir hefðu þar lítið tækifæri, að hún var óðara lögð á hill- una. Á þinginu var ósköpin öll talað. Um atvinnuleysismálið var þráttað svo vikum skifti. En stjórnin sat við sinn keip um að þar væri ekkert fyrir hana að gera. Um peningmálin var einnig mikið rætt. Lögðu social credit- sinnar mest til þeirra og vildu að King stæði við það sem hann lofaði í ksningunum 1935 í Saskatoon um að takmarka vald auðkýfinga í þeim málum en lofa þjóðinni að ráða einhverju um hvernig peningaforðanum yrði varið. En King hafði þar skift um skoðun og áleit peningamálin bezt komin í höndum þeirra er nú hefðu þau. Til umræðanna á þinginu seg- ir hinn nafnkunni þingfréttarit- ari Charles Bishop, að R. B. Bennett hafi lagt lang veiga- mestan skerf. Hann hafi ekki einungis oft haldið einn uppi svörum stjórnarandstæðinga, heldur hafi hann einnig talað lengi út í þau mál, er hann var sammála stjórninni um og á því hafi ávalt verið eitthvað að græða. Af einstaklingsfrumvörpum var nokkuð samþykt, en svo virðist sem það sé að verða sí- felt erfiðara, að fá þau tekin til greina. Málið um húsabyggingar í bæjum kom of seint fyrir þingið til þess að nokkuð yrði úr fram- kvæmdum í því á þessu ári. Ef betur tekst til en áhorfist með það mál, er ekki óhugsanlegt að einhver skriður komist á það á næsta ári. SR. JóN SVEINSSON S. J. kaþólski sem dvalið hefir um árlangt í Tokíó, Japan, lagði á stað með japönsku línuskipi — Terukimi Maru — frá Kobe 18. marz s. 1. áleiðis til London, en nokkru þar áður ferðaðist hann með rektor “Sophia” háskólans í Tokíó til nokkurra stórborga í Japan — Yokohama, Kyoto, Osaka, Nara, Nagoya og Kobe, og flutti fyrirlestra í þeim öllum og var alstaðar mæta vel tekið. Síðustu dagana í Japan dvaldi hann á heimili þeirra hjóna séra Ovtavíusar Thorlákssonar og frúar hans í Kobe, sem hafa verið honum hjálpleg og alúðleg á allan hátt. Séra Octavíus hef- ir söfnuð og fagra og myndar- lega kirkju í Kobe þar sem hann er nú búsettur og nýtur mikilla vinsælda — eins og flestum er kunnugt hefir hann verið boð- beri kristindóms í Japan á veg- um Ev. lút. kirkjfél. ísl. í Vest- urheimi, með góðum árangri. Fyrsti áfangi skipsins sem Jón fór með var Shanghai. Þar fór séra Jón í land og flutti 2 fyrir- lestra á háskóla (“Aurore”) sem franskir Jesúítar stofnuðu og starfrækja, — annar fyrirl. fyr- ir kennurum, hinn fyrir nemend- um. Næsti viðkomustaður var Hong Kong, en á leiðinni þangað varð sr. Jón hastarlega veikur og gat skipslæknirinn ekkert við það ráðið. í Hong Kong komu I um borð 2 franskar nunnur er voru á leið til heimalandsins; var önnur þeirra hjúkrunarkona og tók hún að sér að lækna Jón, keypti hún meðul og stundaði hann með svo góðum árangri að hann hrestist brátt og varð al- bata. Þegar til Marselju (Mar- seilles) kom fór hann í land og flutti fyrirlestra. Til London kom hann 27. apríl j og tóku Jesúítar þar við honum fegins hendi og settist hann að í stórhýsi er þeir eiga að 114 \ Mount St., og segir hann að sér líði þar mjög vel. í London heimsótti hann ung kona svensk, sem er læknir og heitir dr. Kornerup. Var hún einkar vingjarnleg við hann — ók með hann um borgina í bíl sínum til að sýna honum merka staði og söfn, en það sem gladdi Jón mest var það að þessi ágæt- iskona Dr. Kornerup, hefir á- kveðið að gefa íslandi 30,000 pund sterling til spítala bygg- ingar á Akureyri og nunnu klausturs í Reykjavík. Father Balland, sem er yfir- maður Jesúíta á England, ferð- aðist með séra Jóni til Heythrop, sem er nálægt Oxford — þar nokkur hundruð Jesúítar við nám á stórri mentastofnun. Eru þeir af ýmsum þjóðum, nokkrir Japanir, en flestir enskir. Þar flutti séra Jón fyrirlestra. — Nokkru síðar fór hann flugleið til Parísar og dvaldi þar viku og flutti fyrirlestra; svo til London aftur sömu leið. Bækur hans seljast með afbrigðum )vel á Frakklandi. Sennilega er gamli maðurinn enn í London en naumast mun hann lengi una kyrstöðu. F. S. BRÉ F Anacortis, Wash., 26. júní, 1938 Stefán Einarsson, Kæri vinur: Meðfylgjandi kvæði vildi eg biðja þig að taka í blað þitt, með þeirri ósk, að kynni nokkur að vita um hver höfundur þess var, um fyrirsögn á því, og hvar það hefir verið prentað, vildi sá hin sami gera svo vel að senda slíkar upplýsingar tii Kringlu. Guðrún Salomon segist hafa lært það ung — úr bók eða blaði að hana minnir — fremur en eftir minni einhvers. En man það ekki með neinni vissu. Mér og fleira eldra fólki finst við kann- ast við það. En svo nær ekki fróðleikur sá lengra. Mér finst það gæti verið eftir Kristján Jónsson. En í bók þeirri sem eg á eftir hann, er það ekki. Treysti Hkr. til að greiða þessa flækju. M. J. Benedictson Skammvinn gleði, vinagengið valt Veröld tálfull, hjarta lostið y sárum Það er maður, aflafé þitt alt Unz þú verður herfang dauðans bárum Til hvers ertu að elta tóman Skugga? Eg hef’ viljað vizkufjalli ná Vonarstjarna lýsti brautu mína, Þegar guðdómsgeisla fyrir brá Gremja jarðar hélt eg mundi dvína. Það var draumsjón, duftið batt minn anda. Eg hef’ reikað út í grænum lund Unaðs leitað, fundið beiskju tára, Glaðst að hitta góðra vina fund Gjöld mín urðu, upptök margra sára Vanþökk, spott og vesæll draumaleikur. Eg hef’ viljað viðkvæm fella tár Vin þann finna, mitt er skildi hjarta, Það ei alt er gull sem fagurt gljár Gremju þrunginn hlaut eg brátt að kvarta, —Klakaheimur kuldaglott mér sendir. Höfnin nálgast, hjarta, vertu rótt, Húmið eyðist, bráðum ljómar dagur. Horfin ertu höfga vetrar nótt Himin Guðs mér skin svo unaðs- fagur, Þorna tárin, þagnar sérhver stuna. Eftir minni Guðrúnar And- résdóttur Salomon, frá Kirkju- hvammi á Vatnsnesi, Húnavatns- sýslu, nú á Point Roberts, Wash. Tízkukona er ekki lengur én 55 mínútur að klæða sig sam- kvæmt síðustu tízku. En hún er klukkutíma að hugsa sig um það, í hvaða kjól hún eigi að fara. * * * Eitt sinn var stofnað félag austur á Fjröðum. f lögum fé- lagsins stóð m. a., að tilgangur félagsins væri sá að bræða lifur félagsmanna.—Alþbl.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.